Heimskringla - 08.04.1942, Qupperneq 8
8. SÍÐA
WINNIPEG, 8. APRIL 1942
HEIMSKRINGLA
FJÆR OG NÆR
MESSUR 1 ÍSLENZKU
SAMBANDSKIRKJUNUM
Messur í Winnipeg
N. k. sunnudagskvöld, kl. 7, £
fer fram “Family 'Service”,
messa fyrir foreldra og börn, í
Sambandskirkjunni í Winni-
peg. Þessi guðsþjónusta verð-
ur á ensku, og verður umræðu-
efni prestsins “An Amazing
Adventure”.
Morgunmessan, kl. 11 verður
einnig á ensku eins og vana-
lega, og verður umræðuefnið
við það tækifæri, “What Must
I Do To Be Saved?”
Fjölmennið við báðar guðs-
þjónustur, og foreldrar og ung-
menni, sækið kvöldguðsþjón-
ustuna, kl. 7, og takið sameig-
inlegan þátt í henni.
ROSE THEATRE
---Sargent at Arlington-
Phone 23 569
This Week—Thur., Fri. & Sat.
IN TECHNICOLOR!!!
Betty Grable—Don Ameche
“MOON OVER MIAMI"
ALSO
Richard Dix—Florence Rice
“Cherokee Strip"
Cartoon
| Friday Nite <S Sat. Matinee =
= Chap. 3 of "SPIDER'S WEB" s
....................
— HEYRNARLEYSI —
HÉR ER ÞA LOKSINS
HIÐ NÝJA UNDRA
VERKFÆRI
Dregur úr háum hljóðum og
öðrum skerandi hávaða, lagar
hljóðið sjálfkrafa. Frí reynslu-
sýning á laugárdaginn og alla
næstu viku.
Dunlop Prescription Pharmacy
Cor. Kennedy and Graham
Opin á kveldin til kl. 8
Messsað verður í Sambands-
kirkjunni í Árborg sunnudag-
inn 12. aprnl n. k. kl.,2 e. h.
• * *
Séra Guðm. Árnason messar
12. apríl á Lundar og 19. apríl
á Oak Point.
* • •
Sumarmála-samkoma Kven-
félags Sambandssafnaðar verð-
ur haldin 23. apríl í kirkjunni á
Banning og Sargent. Hefir hið
bezta verið til hennar vandað.
Nánar auglýst síðar.
* * *
Jakob Vopnfjörð, Blaine,
Wash., kom til bæjarnis s. 1.
laugardag. Hann dvelur hér
tveggja vikna tima og mun
verða til heimilis hjá dóttur
sinni, Mrs. O. Jónasson. Hann
sagði meðal annara frétta lát
þriggja Islendinga vestra:
Magnúsar Jónssonar frá Fjalli,
80 ára; dó 31. marz í Blaine;
Bjarna Lyngholts í Blaine, 70
ára, dó um mánaðarmótin
marz og apríl, lifir hann kona
hans; Mrs. Ólafar Björkolf.
ekkju norsks manns; hún dó
29. marz, var 68 ára, ættuð úr
Vopnfirði. Móðir hennar, Mrs.
Jones er á lífi og á íheima i
Vancouver.
Ennfremur sagði Mr. Vopn-
fjörð Islendinga á ströndinni,
bæði í Vancouver og bæjum
sunnan landamæra, hafa kom-
ið sér saman um einn Islend-
ingadag, er haldinn verður í
Friðargarðinum á landamær-
unum í júlí mánuði. Er forseti
þess hátíðarhalds Mr. Elíasson,
verður eflaust birt meira um
dagtnn síðar.
Nú er tíminn að hefja
Vorsönginn
Og hér kemur hann—ilm-
andi vorvindar — lauf og
gróður lifna—landið laug-
ast i sólskininu og klæðist
grænum skrúða.
En látið vorið ekki vera úti,
flytjið það inn til ykkar! —
Skoðið EATON'S Vor- og
Sumar vöruskrána og þér
munuð finna þar alt, sem
þarf til að flytja ánægju og
yndi sumarsins inn í hvert
herbergi. Beztu tegundir af
farfa og lakki fyrir gólf og
veggi, húsmuni, gólfdúka,
giuggatjöld, gardinur, vegg-
tjöld, yfir höfuð alt sem
heimilið þarf til að verða
aðlaðandi og elskulegt, og
alt þetta í mörgum og mis-
munandi úrvölum, -að þar
við bætist að verðið er
EATON'S verð, sem er
trygging fyrir því, að þér
fáið peningavirði og það
sem þér báðuð um.
Verzlið eftir EATON'S
Vöruskrá
“Búð milli tveggja spjalda'
*T. EATON C'L™
WINNIPEG CANADA
EATON’S
Tengdapabbi
Er nú ákveðið að þessi
skemtílegi gamanleikur verði
sýndur í samkomusal Sam-
bandskirkju mánudagskvöld-
ið 4. maí og þriðjudagskvöldið
5. maí. Þessi leikur var sýnd-
ur hér fyrir 14 árum síðan og
tókst ágætlega. Aðal hlutverk-
in leika Ragnar Stefánsson, P.
S. Pálsson og Guðbjörg Sig-
urðson. Aðrir leikendur eru
S. B. Stefánsson, Grace Pétur-
son, Sigrún Líndal, Inga Árna-
son, Sigurbjörg Sigbjörnson,
Gunnar Norland og Bragi Frey-
móðsson, þeir tveir síðast-
nefndu eru stúdentar frá Is-
landi sem stunda hér nám um
hrið. Stjórn á leiknum hefir
Steindór Jakobsson. Aðgöngu
miðar verða til sölu í Björn-
son’s bókabúð á Sargent og hjá
meðiimum leikfélagsins.
* # *
Sambandskvenfélagið í Riv-
erton hefir tombólu og dans í
samkomuhúsi Riverton 24.
apríl n. k.
* # #
Séra Guðm. Árnason frá
Lundar var staddur í bænum í
gær.
* * •
Laugardagaskóii Esjunnar í
Árborg hefir ákveðið að hafa
sína lokasamkomu mánudags-
kveldið þ. 20 þ. m. Hofir verið
mjög til þess vandað að gera
samkomuna vel úr garði. —
Verður þar meðal annars mjög
gott barnaprogram s.s. söng-
flokkur, upplestur og leikur,
sem öll börnin taka þátt i. Enn-
fremur, og ekki sízt, flytur Dr.
Richard Beck þar erindi um
viðhald íslenzkunnar hér í
landi. Eru menn hér með
beðnir að fjölmenna á þessa
samkomu og styðja með því að
viðhaldi móðurmálsins, sem
ölluim æ{ti að vera jafnkært.
S. E. B.
• • •
A general meeting of the
Junior Icelandic League will
be held in the Antique Tea
Room, Enderton building, Sun-
day, 8.30 p.m., April 12. The
speaker will be Mr. A. G. Egg-
ertson, K.C. Topics for dis-
cussion will be a new name for
the cluib and a new éonstitu-
tion. All members are urged
to attend as this is A VERY
IMPORTANT MEETING.
# # *
Jón Grímsson frá Mozart,
Sask., er verið hefir við vinnu
hér síðan á s. I. hausti, fór af
stað heim í s. I. viku.
• • •
Fœðing: 25. marz fæddist
Mrs. Ivy Thompson, konu Cor-
poral Clyde Thompson, R.C.
A.F., dóttir—Joan Margaret.
Minningarrit
Þeir, sem eignast vilja 50
ára minningarrit Sambands-
safnaðar, geta eignast það með
því að senda 50^ til Davíðs
Björnssonar, 702 Sargent Ave.
Ritið er mjög eigulegt, með
myndum og ágripi af sögu
kirkjunnar á íslenzku og ensku.
Dónarfregn
Fimtudaginn, 2. þ. m. and-
aðist á King George spítala,
Páll G. Magnússon, 43 ára að
aldri, eftir langvarandi van-
heilsu. Hann var sonur Guð-
mundar Magnússonar og Sig-
ríðar Jóhannesdóttur konu
hans, og var fæddur 11. júlí,
1898, : Búðareyri, við Seyðis-
fjörð í Norður-Múlasýslu á ís-
landi, og kom til Winnipeg með
foreldrum sínum 18. júlí 1904.
Hann gekk hér á skóla og byrj-
aði ungur að vinna fyrir sér
hjá C. N. R. félaginu og hlaut
þar, hjá öllum sem hann vann
með og fyrir, hinn bezta vitn-
isburð. ,
Fyrir tíu árum fann hann
fyrst til sjúkdómsins sem varð
banamein hans. Hann var
nokkur ár á Ninette hælinu, og
náði sér nóg til þess að geta
farið að vinna aftur, fyrir fjór-
um árum, hjá sama félaginu,
C. N. R. En fyrir nokkrum
mánuðum, tók sjúkdómurinn
sig upp aftur, sem hann hafði
áður þjást af. Hann var fluttur
á spítalann þar sem hann and-
aðist s. 1. fimtudag.
Auk foreldra hans, sem eru
nú bæði á áttræðisaldri, sem
verða áttræð nú í sumar,
hann 3. júní og hún 17. ágúst,
lifa hann tveir bræður, Þor-
steinn, sem á heima hér í Win-
nipeg og Magnús, til heimilis í
London, Ont. Einnig lifir hann
eiginkona ihans, Anne Cootes,
sem reyndist honum góð í alla
staði, og syrgir með hinum ást-
vinunum, lát hans.
Nú hafa hinir öldnu foreldr-
ar fjóra syni, þrjá á fslandi,
og nú þenna fjórða son, Pál.
Guðmundur, faðir Páls, er af
Kaldaðarnes ættinni í Árnes-
sýslunni, og er sonur Magnús-
ar Einarssonar, frá Kaldaðar-
nesi, Hannessonar, hospítals-
haldara, og Sigríður, móðir
Páls heitins, er af hinni vel-
kunnu Laugardalsætt.
Páll heitinn var jarðaður í
Elmwood grafreitnum. Útför-
in fór fram frá útfararstofu
Bardals s. 1. laugardag. 4. þ. m.
Séra Philip M. Pétursson jarð-
söng.
• • #
Blái krossinn, dýraverndun-
arfélag þessa bæjar, hefir al-
mennan samskotadag (tag
day) 18. apríl.
• • •
Séra Valdimar J. Eylands
hefir verið til þess kvaddur af
National Religious Advisory
Council að útvarpa ,stuttum
morgun guðsþjónustum yfir
CBC útvarpskerfið dagana 20—
25. aprál, frá kl. 10—10.15 f. h.
(Kl. 9 Mountain time). Útvörp
þessi má heyra frá stöðinni
CBK í Watrous, Sask.
• * •
Messur í Gimli
Sunnud. 12. apríl: Betel,
morgunmessa. Gimli, íslenzk
messa kl. 3 e. h.
B. A. Bjarnason
• • •
*
Þegar þú kemur seint af
C. P. R. lestinni eða þarft að
leggja snemma af stað að
morgninum, þá gistið að 44
Austin St., eins manns rúm 50«,
tveggja manna 75«. Mátíðir ef
óskað er.
Guðrún Thompson eigandi
Dasn á hverju fimtudags og
laugardagskveldi 20«.
* * •
Messa í Riverton
Næsta sunnudag, 12. apríl,
kl. 8 e. h. verður islenzk messa
í kirkju Bræðrasafnaðar.
B. A. Bjarnason
ÚRTININGUR
Söngur vorsins
Ástargyðju sælu söngar
Sálu mannsins veita frið;
Lifsins-blæ um landið slöngvar
—Lífræn opnast himins-hlið.
Vorið kemur til að gleðja og
endurnœra allan lífsþrótt
Vefur grænar voðir enn
Varmi geisla blærinn.
Ennþá gleður goð og menn
Grundin hýr og særinn.
Nú eru jötunöfl að verki á
voru jarðneska, andlega og
himneska tilverusviði bœði
til ills og góðs
Heimsmenningar heljarafl,
Hrjáða þvingar lýði.
Vopna þinga voða tafl
Veitir ringa prýði.
M. Ingimarsson
DÁN ARFREGN
Land til sölu —
140 ekrur, fast við Gimli-bæ
— við þjóðveginn — Mj mílu
frá skóla — gott heimili — átta
herbergja hús. Gott vatn, góð-
ur jarðvegur. — Allar nauð-
synlegar girðingar. Upplýsing-
ar hjá Mrs. G. Davidson, 43
Lennox Ave., St. Vital. Sími
201 975.
Mrs. Regina Vilhelmína
Schaldemose Skúlason,
andaðist að heimili Skúla son-
ar síns og Guðrúnar dóttur
hans, í Riverton, Man., eftir
stutta legu, þann 23. marz, ár-
degis. Hún var fædd 24. okt.
1844, og voru foreldrar hennar
Jóhann Schaldemose og Guð-
rún kona hans, búandi á Ný-
lendi, í Skagafjarðarsýslu, var
Jóhann danskur að ætt, en
móðir hennar ættuð úr Skaga-
firði. Hún ólst upp hjá for-
eldrum siínum, en giftist Sig-
fúsi Skúlasyni úr sama héraði,
1866, þá 22 ára að aldri. Þau
settust að á eignarjörð hans,
Axlarhaga.og bjuggu þar allan
sinn búskap á íslandi. Þau
eignuðust 8 börn, en þrjú náðu
fullorðins aldri. Karl sonur
þeirra dó á Islandi fullþroska
maður. Regina og Sigfús mað-
ur hennar fluttu vestur um haf
1884, og ásamt þeim tvö börn
þeirra Ingibjörg og Skúli. Um
stutta stund dvöldu þau í Win-
nipeg, en fluttu þá til Moun-
tain, N. D., og bjuggu þar í
mörg ár. Þaðan fluttu þau til
Caliento, Man. Þar dó Sigfús
maður hennar, 1917. Árið 1920
fluttist hún ásamt Skúla syni
sínum og Guðrúnu dóttur hans,
til Riverton, Man., naut hún
elsku og umönnunar þeirra og
hagkvæmrar hjúkrunar sonar-
dóttur sinnar. Að því fráteknu
að heyrn hennar sljófgaðist síð-
ari ár, naut hún sæmilegrar
heilsu, var mjög tápmfkil og
hraust að upplagi. Til hinstu
stundar gat hún lesið sér til
ánægju og dægrastyttingar. —
Hafði hún alla æfi verið mjög
bókelsk. Hún fylgdist furðu
vel með öllu er daglega bar við;
og naut sín einkar vel, með
tilliti til þess hve háöldruð hún
var. Mun hún hafa verið ein
elzta manneskja, íslenzk, í
norðurbygðum Nýja-lslands.
Að sögn þeirra er bezt þektu
hana, var hún glaðlynd að
eðlisfari og tók straumhvörfum
liífsins með jafnaðargeði. Hún
átti trygga lund og einlæga
Látið kassa í
Kœliskápinn
WvmoLa
M GOOD ANYTIME
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG
ÍSLENDINGA
Forseti: Dr. Richard Beck
University Station,
Grand Forks, North Dakota
Allir Islendingar í Ame-
ríku ættu að heyra til
Þjóðrœknisfélaginu
Ársgjald (þar með fylgir
Tímarit félagsins ókeypis)
$1.00, sendist fjármálarit-
ara Guðmann Levy, 251
Furby St., Winnipeg, Man.
1 '#################################,
löngun til að gleðja aðra. Byrði
langrar æfi bar hún með þreki
og þolinmæði, og djúpu trausti
til hans, sem öllu stjórnar. Átti
hún hlý ítök í hugurn margra
óskyldra samferðamanna. Út-
för hennar fór fram þann 26.
marz, frá heimili hinnar látnu
og frá kirkju Bræðrasafnaðar í
Riverton, undir stjórn sóknar-
prestsins þar, sr. B. A. Bjarna-
sonar. Sá er Hnur þessar ritar,
mælti einnig kveðjuorð.
S. ólafsson
SJÓLIÐI LÝSIR SKOÐUN
SINNI Á ÍSLANDI
Frh. frá 1. bls.
en margar verzlanir í stærri
borgum. Síðan tók eg mjög vel
eftir öllum nýjum byggingum,
til dæmis Háskólanum og Þjóð-
leikhúsinu og mörgum öðrum.
Tjörnin var ísi lögð, og var
það mjög skemtilegt að sjá
unga fólkið á skautum.
Við vorum þreyttir og fórum
aftur til hermannaskálanna. —:
Eg stóð kyr og horfði á hin si-
breytilegu, töfrandi norðurljós,
sem breyttust stöðugt, og eg
hugsaði um það, sem fyrir mig
hafði borið þennan dag. Eg
gerði mér fyllilega Ijóst, að eg
var ókunnugur maður í landi
sem eg þekti ekkert, en sem
eg vildi kynnast. Á þessu kyrra
og bjarta vetrarkvöldi ákvað
eg að læra íslenzku.
Upp frá þessu var eg oft í
bænum með islenzka málfræði
og talandi við börnin. Eg leit-
aðist við að læra fáein orð, og
börnin voru mér mjög hjálp-
söm við iþetta erfiða nám. —
Svo leið veturinn og fór að
sumra með gróður margskonar
og fuglalíf. Sérstaklega varð
eg hrifinn af öndunum á Tjörn-
inni með ungana sína, þegar eg
gekk fram ihjá Tjörninni til
vinnu minnar. Eg hefi hvergi
í Englandi séð viltar endur
með unga sína í miðjum bæ.
Mér fanst alt svo skemtilegt,
og eg dáðist að iðni fólksins
við að gróðursetja tré, setja
niður kartöflur og rófur og
margt fleira, svo að það fengi
góða uppskeru næsta haust.
Eg varð líka að vinna mikið,
en hægt og örugt lærði eg ís-
lenzku með aðstoð þolinmóðs
fólks, sem eg hitti. En hvað
eg naut þessa bjarta og ihlýja
MESSUR- og FUNDIR
í kirkju Sambandssafnaðar
Prestur, sr. Philip M. Pétursson
640 Agnes St. Simi 24 163
Messur: á hverjum sunnudegi
Kl. 11 f. h. á ensku
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
Safnaðarnefndin: Fundir 1.
föstudag hvers mánaðar.
Hjálparnefndin: Fundir fyrsta
mánudagskveld í hverjum
mánuði.
Kvenfélagið: Fundir annan
þriðjudag hvers mánaðar,
kl. 8 að kveldinu.
Ungmennafélagið: Yngri deild
— hvert sunnudagskveld
kl. 8.30.
Eldri deild — annað hvert
mánudagskveld kl. 8.15.
Skátaflokkurinn: Hvert fimtu-
dagskveld.
Söngœfingar: íslenzki söng-
flokkurinn á hverju fimtu-
dagskveldi.
Enski söngflokkurinn á
hvérju föstudagskveldi.
Sunnudagaskólinn: Á hverjum
sunnudegi, kl. 11 f. h.
SARGENT TAXI
7241/2 Sargent Ave.
SÍMI 34 555 eða 34 557
TRUMP TAXI
ST. JAMES
sumars með ljómandi^fallega
sólarlagið.
Mér finst eg skilja fólkið
betur nú, af því að eg hefi lært
mikið af þvi, og einnig lesið
mikið um íslenzku þjóðina. Eg
hefi oft hlustað með athygli á
sögurnar um Ingólf Arnarson
og Leif Eiríksson, sem fyrstur
fann Ameríku. Eg varð hisslí
á þeirri sögu, því mér var kent
í skólanum, að það hefði verið
Columbus, sem uppgötvaði
Ameriku. Og fleiri sögur, sem
eg hefi heyrt um hinar fornu
ihetjur, hafa vakið undrun
mina.
Af því að eg hefi talað við Is-
lendinga og lesið dagblöðin,
skil eg miklu betur þau vanda-
mál, sem Islendingar eiga við
að stníða. Vafalaust eruð þið
staddir á merkilegum tíma-
mótum í sögu landsins, og nú
er tiimi kominn til þess að vitr-
ir og dugandi menn hafi vel-
ferð allrar þjóðarinnar efst í
huga, svo að risa megi upp ný
og fögur öld, sem börn hinna
komandi kynslóða verða
hreykin af.
Joseph P. Walsh
—Mbl. 30. des. 1941.
Munið eftir og sækið sam-
k o m u Laugardagsskólans,
laugardaginn 18. apríl n. k.
Ókeypis fyrir börn upp að 14
ára aldri. Mjög er áríðandi að
börn sæki allar kenslustundir
til loka skólans og séu stund-
vís.
HERSKIP BANDARÍKJA NORÐUR-AMERÍKU TVEGGJA ÚTHAFA FLOTI A SJÓ
Herskipa framleiðsla Bandaríkjanna er nú þegar komin á það stig að hún hefir aldrei
meiri verið. Þeir hafa nú sextán stór herskip tilbúin til víga, og fimtán í srmðum, og auk
þess ellefu loftfara flutningsskip og að minsta kosti 155 tundurspilla. ; Heydartala her-
skipa bandamanna er nú eru í smíðum eru 968 og ættu öxul-þjóðirnar að finna til þeirra
fyr eða siíðar.
I