Heimskringla - 06.01.1943, Blaðsíða 3
WINNIPEG, 6. JAN. 1943
HEIMSKRINGLA
3. SIÐA
Vera Canadamenn — Canad-
ians.
Eg er í engum vafa um það,
að flestir yðar sem hlustið á
mig í kvöld, látið yður varða
Þátttöku Canda i að vinna
stríðið, og einnig hvaða stefnu
Sa flokkur, sem eg er nú leið-
t°gi fyrir hefir i huga fyrir
h'na hættuminni, en eins erf-
mu tíma, sem vér verðum að
m®ta að stríðinu loknu. Það
er aegilega stórt fyrirtæki sem
þessi þjóð hefir tekist á hend-
Ur- Kostnaður hinnar stóru
fórnar í mannslífum er óreikn-
anletgur, en kostnaður í pen-
mgum hefir þegar yfirgengið
skilning vorn. Skattaálögur
%gja þungt á þjóðinni. —
Stjórnin verður að taka nátt-
Ul*u auðæfi þjóðarinnar, tæma
vasa vora, og drengi vora verð-
Ur stjórnin að biðja að leggja
'*f sitt í hættu. Þar eð þetta
verður svo að vera, vakir sú
sPurning eðlilega fyrir oss,
hvort árangur þessarar miklu
fórnfærslu sem þjóðin er að
leggja á sig, er eins góður og
Þjóðin á heimting á.
Sumar deildir hermálastjórn-
ar vorrar i Canada hafa gert
mæta vel, en um aðrar er vafa
sPUrsmál. Höfum vér notað
mannorku vora til þess ítrasta,
a sanngjarnan hátt? Höfum
ver færst nær hámarki jafnrar
°g sanngjarnrar fórnfærslu?
Höfum vér einhuga og sam-
e'ginlega ákvörðun til að vinna
Þetta stríð, hvað sem það kost-
ar? Á svörunum við þessum
sPurningum byggist árangur
stnðssóknar vorrar að miklu
leyti.
f þeirri fjarlægð sem eg er,
finn eg mig ekki færan að
Sagnrýna nákvæmlega gerðir
hermála stjórnarinnar. En að
m'nu áliti er einn af hinum
helstu þröskuldum í vegi fyrir
fullkominni stríðssókn í Can-
aóa, mislukkun stjórnarinnaj’ í
að taka ákveðnari stefnu í
n°tkun mannorku þjóðarinnar.
Það er ruglingur og efi í
Sambandi við notkun mann-
°rkunnar, ekki einungis í sam-
óandi við herinn, heldur og i
skotfæra og annara hergagna
f^amleiðslu að mannafla til
landbúnaðarins. Þetta stafar
af stjórnleysi annars vegar og
Samtakaleysi við landstjórnina
hinsvegar, og hik stjórnarinn-
ar í að taka ákveðna stefnu í
^vi máli og fylgja henni ötul-
lega fram, eins og stríðssókn
Vur krefst.
Maður þarf ekki nema líta i
1<ringum sig í sínu umhverfi til
a® sjá hversu gölluð þessi
stefna er. Svo eg nú í kvöld
fek undir með mörgum öðrum
' að hvetja stjórnina til að
baeta það bráðasta úr verstu
Sóllunum, sem standa í vegi
fyrir fullkomnri notkun mann-
°rkii þjóðarinnar. Það er mín
mtlun, að alveg án tillits til
Ójóðernislegs uppruna, að
canadiska þjóðin sé reiðubúin
Undir þessum stríðskringum-
staeðum, að takast á hendur
Pantið garðsæðið snemma
alvarlegur skortur er a
ÝMSUM TEGUNDUM
GERANIUMS
18 FYRIR 1 5C
Allir sem blómarækt
láta sig nokkuð snerta
ættu að fá útsæðis-
pakka af Geraniums
hjá oss. Vér höfum úr
feikna birgðum að
velja af öllum litum,
----- hárauðum, lograuð-
“tr>. dökkrauðum, crimson, maroon,
ermilion, scarlet, salmon, cerise,
range-red, salmon pink, bright
{rjnk, peach, blush-rose, white
'otched, varigated, margined. Þær
Ha*a auðveldlega og blómgast á 90
ogum frá sáningu. Pakkinn 15c, 2
25c, póstgjald borgað. Sáið nú.
-•RSTAKT TILBOÐ: 1 pakki af ofan-
,-.íraðu útsæði og 5 pakkar af völdu
sasði fyrir húsblóm, alt ólikt og
auðveldlega inni. Verðgildi $1.25
^Tpu fyrir 60c póstfrítt. Pantið beint
Ur þessari auglýsingu.
v°r stóra útsœðisbók fyrir 1943
Betri en nokkru sinni fyr
&OMINION SEED HOUSE
Georgetown, Ontario
hverja þá skyldukvöð, sem
stjórnin álítur nauðsynlegt fyr-
ir hvern og einn af oss að ynna
af hendi, ef stefna stjórnar-
innar er sjálfri sér samkvæm,
viturlega hugsuð og hiklaust
framfylgt.
Vér af þessari kynslóð ætt-
um aldrei að gleyma því, að
þessir styrjaldartímar sem vér
lifum á, eru hinir örlaga-
þrungnustu tímar, sem mann-
kynið hefir nokkurn tíma séð.
Hættan er mikil. Þessi kyn-
slóð frjálsra manna og kvenna
á þann kindil, sem ef vér höf-
um þrek til getum glætt, —
glætt og látið geislana skína
út yfir nýjan heim — nýjan
heim, hvar óteljandi komandi
kynslóðir eiga að lifa, í friði,!
nægtum og frelsi.
Vér skulum biðja guðlega
forsjón, að gefa oss visku, hug
og viljaþrek, að sjá til þess, að
Ijós kindill vor aldrei blakti á
deyjandi skari, þar til að það
skín bjart í öllum löndum, þar
sem menn þrá frelsi.
Er eg lýk máli mínu, má eg
biðja hinn fjölmenna hóp til-
heyrenda minna um alla Can-
ada, að forláta, að eg tala fá-
ein orð, sérstaklega, til fólksins
í Manitoba, sem hefir verið
mitt hlutskifti að þjóna í meir
en tuttugu ár, og í Saskat-
chewan, þar sem eg áður átti
heima í 13 ár. Sá heiður, að
vera gerður leiðtogi þessa
stóra stjórnmálaflokks hefir
snert mig með djúpri eftirsjá.
Mitt nýja skyldustarf tekur
mig burt frá þeim, sem eg hefi,
meir en helming æfinnar verið
með og sem eg minnist sem
einlægra vina. Ekkert væri
mér kærara en að geta kvatt
ykkur, hvern og einn, með
innilegu handtaki. En ef til
vill, er það eins gott á þennan
hátt, því eg finn hversu örðugt
mér er, jafnvel að stilla mál
mitt, þegar hinu nána þrjátíu
og fimm ára starfs og vináttu
sambandi er þannig raskað.
Ef mér hefir hepnast að
leggja ofurlítinn skerf til metn-
aðar yðar, í skynsamlegu
stjórnar* fyrirkomulagi, með
þjónustu minni til almennings
þarfa, þá er það ekki að litlu
leyti, að þakka góðri samvinnu
annara, samhygðar og skiln-
ingi manna og kvenna af öll-
um þjóðernum og trúarbrögð-
um, allra þeirra sem eg starf-
aði með. Við stóðum saman á
tímum öldurótsins, eins og þá
er særin var sléttur. Eg á
engin orð til að láta í ljósi með
þakklæti mitt fyrir þá hollustu
og vináttu, sem mér hefir verið
sýnd.
Með allri þeirri einlægni, er
einfalt mál getur flutt yður,
vil eg segja: Þær minningar
sem eg tek með mér, eru mér
dýrmætur f jársjóður. Eg vona
að burtför mín verði af engum
misskilin. Eg fer, meðal ann-
ara ástæða, vegna þess, að þau
málefni sem vér stóðum fyrir
til hagsmuna fyrir Canada, séu
framkvæmanlegri við þessa
breytingu.
Og nú, vil eg þakka allri
canadisku þjóðinni, sem hefir
heyrt mál mitt, þar sem eg nú
tekst á hendur þjónustu yðar
á stærra verksviði. Eg bið
yður einkis frekar en hver og
einn vinni sitt hlutverk sem
góður Canadaborgari. Ef í
framtíðinni að forusta og
stefna annara skyldi, að yfir-
veguðu áliti yðar, falla yður
betur, gefið þeim stuðning
yðar, það er lýðræðisleg að-
ferð.
Ef, aftur á hinn bóginn, það
sem vér höfum að bjóða yður,
skyldi virðast bezt til almenn-
ingsheilla i Canada — gleður
það oss að hafa verðskuldað
tiltrú yðar og vér treystum ein-
lægum stuðningi yðar, í til-
raunum vorum, að gera þetta
land að betri verustað fyrir oss
alla. Það er og einnig lýðræð-
1 isleg aðferð. Og nú að síðustu,
vil eg óska yður gleðilegra
jóla og farsæls nýárs.
I lauslegri þýðingu.
G. E. E.
“ÁRIÐ ER LIÐIÐ I
ALDANNA SKAUT—”
Formáli
er æfinlega skrifaður síðast
en prentaður fyrst og fylgi eg
þeirri reglu hér, — þorði ekki
annað, þar sem öll tilbreyting
getur leitt til sakramentis-
eða sálarháska.
Þar eð eg lá í lamasessi og
gat ekkert dútlað við, mér til
gamans, tók eg að draga sam-
an nokkur atvik úr lífi liðins
árs. Helzt hefði eg kosið, að
geta lagst út á krossgötu, þar
sem fjórir kirkjuturnar sjást í
einu, eins og Jón Krukk gerði
í gamla daga, og seitt þar að
mér spásagnaranda, er segði
mér um þetta ár, en það hefði
ekki orðið til neins, þó hægt
hefði verið, því te-kaffi-groms-
kerlingarnar hafa sogað í sig
alla náðargáfuna.
Fyrst tek eg hvern mánuð
út af fyrir sig, og raða atvik-
unum þannveg er minni rekur
til, eða eins og mér finst þau
hefðu átt að ske, en þar á eftir
get eg um nokkur er eg eigi
man hvenær skeðu. Geta svo
velviljaðir lesendur — um hina
kæri eg mig ekki — stungið
þeim þar inn, er þeim sýnist,
tekið út eða bætt inn í eftir
vild. Eru þetta meiri vildar-
kjör en nokkurt skáld, rithöf-
undur eða ritstjóri hefir nokk-
urntima boðið, — þeir, sem alt
þykjast vita og öllu vilja ráða.
Eg tindi aðeins upp smáat-
vikin, sem lítið sem ekkert bar
á og að engu var getið fyrir
smærðar sakir; samt tók eg
með nokkur veigameiri til
bragðbætis út á vatnsgrautinn.
•
Árið í fyrra byrjaði, eins og
öll önnur ár, á gamlársdag
með mynd af skeggjuðu, grá-
hærðu, örvasa gamalmenni,
sem er að staulast niður tröpp-
ur á einhverri stórri bygging.
Á gæjum, við húshornið, er
nýja árið í mynd. brosandi
sveinsbarns, með vængi á báð-
um öxlum, sem er reiðubúið að
stökkva inn í bygginguna eins
fljótt og sá gamli getur slitið
sig frá henni. Svona var mynd-
in i fyrra og svona hefir hún
verið hér í landi síðan eg fyrst
man eftir mér í “landi hér”.
Sjálft nýja árið byrjar ekki fyr
en á lágnætti, og er boðið vel-
komið með kossum og handa-
bandi, því alt sem við vitum
ekkert um hér á jörð, álítum
við betra en það, sem við
þekkjum. Hver músin heldur
verst í sinni holu er gamalt og
gott máltæki. Svo byrjar ný-
ársdansinn klukkan 12.5 fyrsta
Janúar
Messugerð er hafin eins
fljótt og söfnuðurinn hefir náð
sér eftir ballið. Prédikarinn
hughreystir hann með þeirri
fregn, að ekkert sé að óttast
hér á jörð.því í rauninni séum
við hér allir emigrantar, og að
okkar rétta föðurland sé á
himnum. Svo koma svardag-
ar og heitstrengingar er á dag-
inn líður og kvelda tekur. Ann-
ars eru allir eftir sig og mán-
uðurinn tiðinda fár, að undan-
teknum Frónsfundi, sem hald-
inn er með grammifón-plötum
og öðrum fræðandi ræðuhöld-
um. Var allri þeirri angist lýst
í blöðunum og báru menn sig
þar alla vega. Rikkarð skaust
norður að stjórna stjórnar-
nefndinni. Sálmabókar við,-
gerðir voru auglýstar í stór-
skota gríð. Kaldbak hengdi
Hitler i greip sinni í Heims-
kringlu, “mér og þér til unun-
ar,” í skáldskap; og ýmislegt
svona smávegis, er eigi er vert
upp að telja.
Febrúar
Endurprentuð skammarvísa
til Rannveigar í Lögbergi.
Barnlausir piparkarlar arf-
leiddu barnaheimilið til við-
halds mannkyninu. Þjóðrækn-
isþing. Samþykt að kenna ís-J
lenzku utanbókar. Valdimari
hélt snjalla ræðu um enska I
passíusálma. Góður er guð og j
velviljaður ef hann skilur þann!
sorgaróð á sama veg og þann
íslenzka. Hafði Valdi verið
beðinn að tala fyrir málvana
yngri íslendinga hér í landi. {
Þeir komu fáir, en stór hópurj
af mæðrum, feðrum, ömmum'
og öfum, og bað hann þessa
forfeður að skila ræðunni til
krakkanna. Miðsvetrarmót.
Guttormur J. hélt minningar-
tölu um frumherjana er eigi
hefir fengið náð til prentunar.
Hannes spilaði löðursveittur
og snöggklæddur fyrir dansin-
um og hinir tóku undir í sama
máta.
Marz
Goodtemplarar blótuðu móti
sumri og sumarfríi. Stefán
skrifaði skammargrein “sem
skilst mér von” um vestur-ís-
lenzka mentamenn. Konsúl-
atið gerði eitthvað, sem eg
man ekki, en sem þó var þakk-
að fyrir opinberlega. Ásmund-
ur fékk bréf frá New York og
lánaði það, góðfúslega, Heims-
kringlu til birtingar. Hún
þakkaði fyrir sig og sína. Is-
lenzkir listamenn i Winnipeg
gleymdu öllum listamönnum
nema sjálfum sér. Gáta: Um
þessar mundir var getið um í
blaðinu, að nafni hefði komið
til bæjarins til að sitja fund i
einu hinna mörgu félaga er
hann tilheyrir, en eigi getið
hvenær hann hélt heimleiðis.
P. G. kvað:
“Út eru, karl minn, komin ný
Kringlu frétta slitur:
Sveinn ’inn tigni M. B. E.
enn á fundi situr.”
Skrapp andinn út eða inn
hjá Páli?
Apríl
Allir, sem ekki vöruðu sig,
hlupu apríl þann fyrsta. Stefán
fornemaðist við grínskáldið og
öfundaði prentarann. Sóffon-
ías labbaði upp í Skólavörðu-
holt í Heimskringlu á sumar-
daginn fyrsta, að skygnast eft-
ir lóum. Hjálmar hélt ræðu og
kallaði Hrafna-Flóka “sinnu-
lausann grasasna”, og hafi
hann blessaður sagt, því af
þessu sinnuleysi stafaði það,
að hann nenti eigi að afla
skepnum sinum fóðurs svo alt
darpst úr hor, en sjálfur lagð-
ist hann í seladráp á Breiða-
firði. En í sinnuleysis-ergelsis-
hefndarskyni kallaði hann
landið Island og ótugtarlegra
gat hann ekki gert okkur,
skömmin sú arna. En eftir á
að hyggja, er eg ekki viss að
þetta hafi verið sagt á síðasta
ári, gat eins vel verið árið
áður, en það gerir ekkert til,
það ætti að vera sagt i vordaga
á hverju ári.
“Umbrum brumbur og ambrum
bramb og opin dæla
skrúfara rjúfara skrokk í væla
skrattinn má þeim Dönsku
hæla.”
kvað Æri-Tobbi á sinni tíð.
Mai
Fiskimanna-rall á Gimli. P.
B. í Heimskringlu tók S. B. i
forsvar vitsmunalega eins og
hann var áður en hann varð
svona. Karlakórinn hélt sína
Jörfagleði og Gunnar sló þar
taktinn með kurt og pi. Kórið
söng svo allir heyrðu:
“Diskant og tenór titra hátt,
með töfraklið,
bassinn undir dillar dátt,
með dimmum nið.”
Danslaust.
Júni
Allur félagsskapur lognaðist
út af. Nokkrir spila-kandidat-
ar útskrifuðust af J. B. skóla.
“Einn og sér” Islendingur hlaut
alla sigurvinninga ársins í ein-
um hvelli. Alþjóða skrúðganga
fór fram í Winnipeg. Islend-
ingar voru með. Flaggið og
stöngin, sem það hékk á, vakti
almenna eftirtekt. Margar
giftingar og trúlofanir áttu sér
stað — svo margar, að upp hjá
manni rifjast torskilda vísan
hkns Stephans G.:
“Yrði nýja árið kalt,
eitt er þó að lofa:
Fækkað er þeim ótalfalt,
sem einir þurftu að sofa.”
Júlí
Það var ósköp um messuföll
hjá öllum, því prestarnir voru
hingað og þangað að skygnast
um á guðsgrænni jörðinni og
sintu engu. Auglýst var, að
konur tækju að sér uppeldi
barna. Landinn ógnaði öllum
heimi með hótunum um langar
og margar ræður. Fiskimenn
á Winnipeg-vatni drógu inn net
sín og tóku að dorga með
ryðguðum þorskönglum, er for-
feður þeirra fluttu með sér frá
föðurlandinu.
Agúst
Sá þriðji var annar ágúst —
þjóðminningardagur landans á
Gimli. Gunnar B. talaði, Thor-
son talaði og “svo fleiri nátt-
úrlega”. Svo töluðu tveir og
tveir, fjórir, sex, átta og tíu og
að síðustu allir hver ofan í hinn
— í einu. Sigurður orti og
flutti kvæði “i hálfa gátt” og
Einar gerði sömu skil. Karla-
kór Winnápeg-lslendinga söng,
Gunnar E. stóð fyrir framan
andlitin á þeim, lokkandi, seyð-
andi, laðandi, með prikið á
lofti — ef hann hafði það ekki
átti hann að hafa það. Alt fór
prýðilega, allir komust heim —
á endanum. Það er með ann-
an ágúst eins og nýársdag, að
alt verður eftir sig mánuðinn
út, og eins var nú, ef þann
hvalreka hefði ei að borið, að
Sigurður B. komst í mesta áa
uppistand í Lögbergi seinni
part mánaðarins, því hefði það
eigi verið fyrir þetta áa öng-
þveiti, hefði orðið dauft á dala-
bæ hjá málfræðingum lands-
ins.
September
Prestar auglýstu messu eftir
sumarfríið með hátíðlegri
guðsþjónustu, ef guð lofar.
Þjóðræknin tók fjörkipp og
raknaði úr sumarrotinu. Boð-
aður Frónsfundur er fórst fyrir
af ákafanum. Magnús læknir
hélt skammarræðu um and-
skotann, sem ekki var til. Vísa
Sveinbjarnar Árnasonar rifjað-
ist upp:
‘Friðrik ræðu flytja vann
svo flóðu á mörgum trýnin,
hún var öll um andskotann,
sem ekki fór í svínin.”
íslenzkar þjóðhetjur óðu eða
syntu eða sigldu út i Mikley.
Mesta óróa-nótt hjá eyja-
skeggjum þá nótt við veizlur
og ræðuhöld.
Október
Social Credit tók eitthvert
viðbragð, en lognaðist svo út
af aftur. Geysimikil Víkinga-
öld gaus upp í bænum: Viking
Butcher Shop og bartskerar,
Viking Beauty Spot og púður-
kerlingar, Viking Bridge Play-
ers og ofvitar, Viking Cafe og
groms-spádómar, Viking Tem-
perance og fylliraftar, Viking,
— já, — látum okkur sjá, —
jú, ekki neitt. Blöðin tóku að
jagast um pólitik til mála-
mynda. Ný-lslendingar tóku
út allan herskipaflota sinn og
sendu á hendur stjórnarinnar.
Tilgangurinn: Meiri fisk og
hærra verð. Útkoman: Hrakn-
ingar og skollaeyru. Júðskar
landeyður tóku að fiska ís-
lenzka fiskimenn með góðum
árangri. Frú Lára gerði ekk-
ert úr erfðum feðra sinna á
ensku.
Nóvember
Frú Ingibjörg tók í lurginn á
frú Láru. Samsæti voru hald-
in og ræður fluttar; fyrir hvern
og fyrir hvað? Leitið, þá mun-
uð þér finna. Social Credit
stóð í þeirri meiningu, að hún
væri enn þá lifandi. C. C. F.
fundust þeir vera sjálfs síns
herrar. Kommúnistar liðu
undir lok. Textinn var til-
einkaður leiðbeiningum til pip-
(arkarla um kvonfang og
kvennaóskir. Mikil aðsókn frá
báðum hliðum. Brak og brest-
ir síðari part mánaðarins út af
Frh. á 5. bls.
nrcpmí BYGGIR
dfbemi BRYNDREKA
Aldrei hefir einstaklings-sparnaður verið eins nauð-
synlegur í sögu lands vors. Hver dollar sem sparaður
er meinar mikið í stríðsframleiðslunni.
Til að vinna sigur á óvinunum og flýta fyrir friði,
þarf ríkið að hafa nýtízku, velvinnandi, kraftmiklar
stríðsvélar. En slíkar vélar verða ekki búnar til nema
með því, að hver einstalingur fórni nokkru—afneiti
sjálfum sér—spari.
Þar til stríðið er unnið
gerið einka-sparnað kjör-
orð yðar.. Aðgætið eyðsl-
una. Byggið upp varasjóð
af stríðs-dollurum með nú-
verandi vinnulaunum. —
Sagnið til sigurs.
• Þessi bók kennir þér að spara.
The Royal Bank fjölskyldu-áætl-
unarbókin sýnir þér hvernig þú
skalt raða inntektunum, hvernig
má spara með því að ákveða út-
gjöldin. Biðjið um frítt eintak
hjá næsta útibúi.
THE ROYAL BANK
OFCANADA