Heimskringla - 17.03.1943, Page 1
t ■■ "—"——■■—"—"———- . I
We recommend for
your approval our
"C.B.4 WHITE LOAF"
(Canada Approved)
as an excellent source of the
Vitamin B Complex
“The QualityGoes In before theNameGoeaOn”
CANADA BREAD CO. LTD.
Winnipeg Phone 35 565
Frank Hannibal, Mgr.
Wedding and Birthday Cakes
made to order
---------------------—......4-
We recommend for
your ctpproval our
“C.B.4 WHITE LOAF"
(Cánada Approved)
as an excellent source of the
Vitamin B Complex
“The QualityGoea In before the Name Goes On’
CANADA BREAD CO. LTD.
Winnipeg Phone 35 565
Frank Hannibal, Mgr.
Wedding and Birthday Cakes
made to order
---------------------------—■■■»
LVII. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 17. MARZ 1943
NÚMER 24.
’ * HELZTU FRÉTTIR * *
Gravdon kosinn forseti
A fundi, er Progressive Con-
servative félagið í Canada hélt
s. ]. laugardag í Toronto, var
Gordon Graydon kosinn for-
seti; hann er foringi flokksins
á sambandsþinginu.
Annað, sem félagið gerði, var
að samþykkja breytinguna, er
gerð var á nafni flokksins i
desember í Winnipeg, er Hon.
Johm Bracken var kosinn
flokksforingi. Stefnuskráin,
sem samþykt var á Winnipeg
fundinum, hafði áður verið
samþykt af félaginu, en breyt-
ingin ekki á nafninu.
Mörg mál voru rædd á fund-
inum áhrærandi starf félags-
ins. Þar var og hinn nýi for-
ingi, Mr. Bracken, en hann hélt
ekki ræðu á fundinum, heldur
á veizlufundi. Hann lofaði allri
þeirri samvinnu við King-
stjómina, sem kostur væri á,
frá andstæðingi, í stríðsmál-
unum.
Hann sagði heimspeki sína
mjög óbrotna: “Mannkynið
æskir og á skilið að lifa betra
lífi en það hefir nokkru sinni
átt áður, og það er nóg af
þekkingu í heiminum til þess
að sjá því fyrir þessu.”
Öryggi frá vöggu til grafar
Spurningunni um það hvern-
ig öllum verði séð fyrir viðun-
anlegri afkomu að stríðinu
loknu í Canada, hefir að nokkru
verið svarað af nefnd, sem Ot-
tawa-stjórnin skipaði til að
rannsaka það mál ifyrir
skömmu. Nefndin lagði tillög-
ur sínar fyrir stjórnarráðið í
gær. Eru þær alllíkar tillög-
um Beveridge á Englandi, er
samdar munu hafa verið með
hliðsjón á samskonar löggjöf
Ný-Sjálendinga, þó mikið vanti
á að henni nái.
Hugmundin er sú, að tryggja
hverjum manni, ungum sem
gömlum, í hvaða stétt eða
stöðu sem er, þær tekjur, er
viðunanlega afkomu veita. Lá-
mark teknanna á að vera á-
kveðið og má ekki niður fyrir
það fara.
Til þess að sjá fyrir þessu,
gerir nefndin ráð fyrir að stjórn
in eyði $1,000,000,000 (einni
biljón dala) á ári. Helmingur
þess fjár er ætlast til að fáist
inn frá vinnandi almenningi og
verkveitendum, en fyrir helm-
ingnum á sambandsstjórnin að
sjá (með öðrum sköttum).
Auk þessa er gert ráð fyrir
að stjórnin ver* *ði að leggja
fram aðra biljón dollara fyrsta
árið eftir stríðið til grundvall-
ar starfi, svo allir hafi atvinnu.
Segja tillögumenn þetta ekki
nerna helming þess fjár, sem
nú sé árlega veitt til stríðsins.
En öryggið á meðal annars
að vera í þessu fólgið:
1. Hverju barni skal greiða
$8 til $9 á mánuði, hvað sem
tekjum þeirra líður, sem fyrir
því sjá. En sá böggull fylgir
þó þessu skammrifi, að undan-
þága sem veitt er frá tekju-
skatti nú fyrir hvert barn, fell-
ur niður.
2. Að hækka um 50% hagn-
að verkamanna á atvinnuleys-
is-vátryggingum sem nú gilda.
3. Þeim, sem ekki hafa at-
vinnuleysis-^átryggingu, skal
greiða 10% minna en þeim sem
hafa hana.
4. ókeypis læknishjálp með
tíð og tíma.
5. Sjúkravátrygging á svip-
uðum grundvelli og atvinnu-
leysisvátrygging.
6. Vátrygging fyrir bams-
burð kvenna er vinna á sama
grundvelli (og í gr. 5).
7. Sama vátrygging gegn
slysum vð iðnaðarstörf og nú
er.
8. Að lækka aldur þeirra
er ellistyrk fá, úr 70 í 65 fyrir
karlmenn, en til 60 ára aldurs
fyrir konur. Ennfremur að
hækka ellistyrkinn úr $20 í $30
á mánuði.
9. Að koma upp sjóðum til
styrktar mönnum í ellinni, sem
þeir sjálfir leggja fé í áður en
þeir setjast í helgan stein og
njóti góðs af sérstaklega.
10. Að koma upp slysaá-
byrgðum á sama hátt.
11. Að koma upp ekkna-
styrk á sama hátt.
12. Að greiða útfarir $100
fyrir fullorðna, $65 fyrir ungl-
inga og $25 fyrir börn.
Þetta á nú í stuttu máli að
vera þráðurinn í löggjöfinni
um “öryggi frá vöggu til graf-
ar”. Þetta á ekki að koma í
bága við neitt svipað starf, sem
nú er rekið af einstaklingum,
eins og starf vátryggingafé-
laga. En sumt af svipaðri lög-
gjöf, sem stjórnin nú hefir með
höndum, mun verða sameinuð
starfinu i tillögunum, ef þær
verða að lögum gerðar.
Tillögur þessar eru kendar
við dr. Leonard C. Marsh, er
rannsóknarstörf margvísleg
hefir með höndum fyrir sam-
bandsstjórnina; að uppkastinu
hefir einnig unnið dr. Cyril
James, yfirkennari við McGill-
háskóla.
Frá stríðinu á Rússlandi
, i
Síðast liðinn manudag töp-|
uðu Rússar borginni Kharkov
í hendur Þjóðverja, er þeir fyr-
ir skömmu tóku af þeim. —
Nazistar hafa eflt lið sitt svo
ótrúlegt er í Suður-Rússlandi.
Rússar munu búa sig undir að
mæta þeim við Öonets ána,
nokkru austar og er þar nú
grimmasti bardagi háður. —
Fregnritar kenna um þíðum í
Suður-Rússlandi og illfærum
vegum, að Rússar komu ekki
liði i tæka tíð til Kharkov.
Sókn sinni beina nú Rússar í
áttina til Smolensk, en þar er
höfuð aðsetur Þjóðverja nú í
Rússlandi.
Gunnar Salómonsson æfir
sig í að lyfta fíl
Hinn þekti íslenzki aflrauna-
maður Gunnar Salómonsson
starfar nú við Sarasani-cirkus-
inn — eitt af frægustu og
stærstu hringleikjahúsum jarð-
ar.
1 fyrrakvöld lét Gunnar til
sín heyra í útvarpi á íslenzku
frá Berlín. Bað hann að heilsa
öllum vinum og kunningjum
og kvaðst vona að hann fengi
sem fyrst tækifæri til að koma
heim.
Þulur útvarpsins skýrði frá
þvi, að Gunnar vekti mjög
mikla athygli á sýningum
hringleikjahússins, Tvö aðal-
sýningaratriði hans eru fólgin
í því, að Gunnar lyftir 12
manns í einu, og hitt í því, að
hann lyftir stórum hesti
(dönskum) með manni á. En
núna er Gunnar að æfa sig í
því, að lyfta fíl, 2ja tonna
j pungum.
Séra Guðmundur Árnason
Þá sigldirðu á ókunna sæinn
það sy^ti, þó lengt hefði daginn.
Hvi undirðu ei áratug lengur
þú ágæti mannkosta drengur?
Þú fræðarinn, foringinn góði
ert fallinn, við grátum í hljóði.
Þitt dagsverk var dómgreind að styrkja.
Nú drýpur þín frjálsborna kirkja.
Þín för var mót frelsi og degi.
Þú fórst ekki almanna vegi.
Og fámenna hópinn, sem fanstu,
með framkomu prúðmennis vanstu.
Þú landnemans ljóssækni prestur,
í lífsspeki stærstur og beztur.
Þín sveitir með söknuði minnast
því seint mun þinn jafningi finnast.
Við stöndum á ströndinni hljóðir,
og störum á eftir þér bróðir.
í vorlofti vitarnir brenna,
sem værurðu ennþá að kenna.
Úr læðingi harmsakir leysum,
og leiðtoga merkið þitt reisum;
í hrygðinni hræðustum eigi,
það hefjum mót sólu og degi.
J. S. frá Kaldbak
KOSINN f TRÚNAÐAR-
STÖÐU
Dr. Halldór Hermannsson
Gengur Gunnar alment und-
ir nafninu Ursus, sem þýðir
björn.
Við hringleikjahúsið starfa
160 manns, þar eru 80 hestar,
25 fílar og fjöldi annara dýra.
Gunnar Salómonsson hvarf
héðan af landi brott árið 1936.
Hafði hann til þess tíma stund-
að glímu og aðrar íþróttir hjá
Glímufélaginu Ármanni. En
sumarið 1936 fór hann á Olym-
píuleikana í Berlín, þaðan fór
hann til Danmerkur og hefir
síðan ferðast, ekki aðeins um
þvera og endilanga Danmörku,
heldur og um Noreg, Sviþjóð
og víðar. Og nú er hann
starfsmaður hjá einum þekt-
asta sirkus veraldar, er tekur
7 þúsund manns í sæti í einu
—Vísir, 23. okt. ’42.
ÚR ÖLLUM ÁTTUM
Rauði-Krossinn er nú að
safna fé og öðru þvi, er til
líknar má verða, bæði þurf-
andi föngum og særðum, í
stríðinu. Síðast liðna viku
gáfu 90 fanga í tugthúsinu i
Headingly í Man., hver sinn
skamt af blóði Rauða-Krossin-
um. Ef ekki hefði verið fyrir
slíka hjálp, sem hér um ræðir,
hefði mörgum til ólífis blætt á
vigvöllum Evrópu. 1 Winnipeg
hafa 3,000 manns skráð sig
Aðstoðio frá Bretlandi og Bandaríkjunum
til Rússlands
Hvað miklu nemur aðstoðin,
sem Bretland og Bandaríkin
hafa veitt Rússum?
Nákvæmar tölur yfir þetta,
eru hernaðar-leyndarmál, en
þó má af skýrslum, sem nýlega
hafa verið birtar í London og
Washington, fá all-glöggva
hugmynd um þetta.
Oliver Lyttelton, ráðherra
vörubirgða á Bretlandi, sagði á
fundi í Newcastle 21. febr. að
Bretland og Bandarikin hefðu
til samans sent Rússlandi 6,200
skriðdreka og 5600 flugför frá
því í októbermánuði 1941 til
desembermánaðarloka 1942.
John Anderson, ráðuneytis-
forseti Breta, sagði um svipað
leyti, að Bretland eitt hefði
sent hergögn til Rússlands, er
nægðu til að gera út 20 her-
sveitir. Hann sagði 31. des.
Breta hafa sent 2,974 skrið-
dreka og 2,480 flugför til Rúss-
lands og auk þess 600 flugför,
samkvæmt brezk-rússnesku
samningunum.
Lyttleton sagði að Bretland
og Bandaríkin hefðu ^uk skrið-
dreka og flugvéla sent til Rúss-
lands 60,000 smálestir af tog-
leðri, 831,000 smálestir af hern-
aðar-vélaáhöldum, málmi,
handbyssum, og um 70 miljónir
byssu kúlna. Skridrekarnir og
flugvélarnar sagði hann, að
nægði til að gera 32 hersveitir
út og 400 flugsveitir ( aerial
squadrons).
Skýrslur sem lagðar voru
fram fyrir þingnefnd í Wash-
ington s. 1. viku, af Edward R.
Stettinius, umsjónarmanns
leágu-lánsstarfsins, sýndu að
hernaðarleg aðstoð Bandaríkj-
anna til Rússlands var meðal
annars 2,600 flugför, 3,200
skriðdrekar, 72,500 vagnar
(trucks), 7,700 mótorhjól, 1,300
hervagna (military tractors),
130,000 byssur (sub-machine
guns), 850,000 smálestir af
stáli, 75,000 smálestir af járn-
brautateinum, 17,000 smálestir
af öðrum járnbrauta útbúnaði,
140,000 talsima fyrir herinn,
þúsundir smálesta af sínki,
duraluminum, kopar og eyr-
blendingi, “óheyrilega mikið”
af matvöru og þrjú miljón pör
af hermannaskóm.
Mr. Stettinius fór lofsamleg-
um orðum um aðstoð Canada
til annara þjóða, um leið og
hann las skýrslu sína. Sagði
hann landið á einu ári hafa
aðstoðað Breta, Rússa, Ástral-
inga og Ný-Sjálendinga með
vörum og vopnum, án nokkUrr-
ar endurgreiðslu, er næmi
$1,000,000,000. Það hefði sent
skriðdreka til Rússlands eins,
svo að $50,000,000 næmi, en
einnig mikið til Bretlands. —
Bandaþjóðunum hefði það sent
400,000 hernaðarmótorhjól; á
mánuði hverjum sendi það
ieina miljón sprengja út úr
landinu og vélabyssur og riffla
svo að næmi IV2 miljón á ári.
Á ársfundi stjórnarnefndar
menningar- og fræðafélagsins
The American-Scandinavian
Foundation, sem haldinn var í
New York-borg þann 6. febr.
s. 1., var dr. Halldór Hermanns-
son, prófessor í norrænum
fræðum í Cornell University,
Ithaca, New York, kosinn einn
af forráðamönnum (Trustee)
nefndrar stofnunar, en hann
hefir um margra ára skeið átt
sæti í útgáfunefnd hennar. —
Með kosningu* þessari er hon-
um maklegur sómi sýndur og
verðug tiltrú, en jafnframt má
skoða hana sem viðurkenningu
á auknum mennngarsambönd-
sem fúsa til að gefa skamt af
blóði; hefir það gert Rauða-
Krossinum fært að senda um
300 skamta á viku hverri til
særðra í Evrópu.
★ ★ ★
í útvarpi frá Róm s. 1. fimtu-
dag, var Bandaríkjunum gefið
til kynna, að borgir þeirra
mættu senn eiga von heim-
sóknar af þýzkum sprengju-
flugvélum. Gaf útvarpið þá
lýsingu af flugvélunum, að þær
væru Heinkel 177 gerðin, með
4 hreyflum, bæru 6 tonn af
sprengjum og gætu flogið
hvíldarlaust til New York og
til baka. í skeytinu var haldið
fram að flugvélarnar væru
framleiddar í stórum stil.
★ ★ ★
Einn af senatorum Banda-
rikjanna, Sheridan Downey,
demokrati frá Californíu, segir
að herlið Bandaríkjanna muni
í lok þessa árs verða 15 miljóp-
ir í stað 11 sem áætlað hefði
verið.
★ ★ ★
Bandríkin byrja að skamta
kjöt og smjör, ost, fisk í dósum,
feitmeti og fleiri matvöru 1.
apríl n. k. Kjötskamtúrinn
verður um 2 pund á viku á
hvern mann, en getur þó orðið
meiri, því nefndar vörur verða
allar í einum flokki; sé minna
keypt af osti en leyft er, má
táka einhverja aðra af vörun-
um á skömtunarmiðunum. Á
matsöluhúsum er ekkert
skamtað. Þessi skömtun verð-
ur varla tilfinnanleg.
★ ★ ★
Sumner Welles, vara-ríksrit-
ari Bandaríkjanna, sagði
stjórnardeildina hafa fengið
fregn, en óstaðfesta þó, um að
Hitler væri farinn að heilsu,
hefði svo mikinn taugaóstyrk,
að hann hefði orðið að taka sér
hvíld á heimili sínu í Berch-
um milli Islands og Banda-
ríkjanna, en vaxandi fjöldi ís-
lenzkra stúdenta stundar nú
nám við mentastofnanir í landi
þar. Kosning Islendings í um-
rædda trúnaðarstöðu mun og
mega líta á sem vott aukins á-
huga í Bandarikjunum á ís-
lenzkum bókmentum og menn-
ingu þjóðar vorrar, í þvi sam-
bandi má geta þess, að John
Watkins, umsjónarmaður stúd-
enta-starfsemi The American-
Scandinavian Foundation,
stundar nú nám í íslenzku und-
ir handleiðslu Halldórs prófess-
ors í Cornell.
Halldór Hermannsson varð
hálf-ájötugur upp úr áramót-
unum, því að hann er fæddur
6. jan. 1878. Hann lauk stúd-
entsprófi á lærða skólanum í
Reykjavík 1898 og stundaði
siðan nám á háskólanum í
Kaupmannahöfn 1901—1904;
en snemma á þeim árum komst
hann í kymni við Islandsvininn
og fræðimanninn Willard Fiske
og gerðist honum handgenginn
og samverkamaður hans að
ýmsum fræðistörfum. Síðan
1905 hefir Halldór Hermanns-
son verið bókavörður hins
mikla íslenzka Fiske-bókasafns
í Cornell, en jafnhliða h^fir
hann haft með höndum kenslu
í Norðurlandamálum og bók-
mentum og verið prófessor í
þeim fræðum síðan 1924.
Háskóli íslands gerði Hall-
dór Hermannsson heiðursdok-
tor í heimspeki Alþingishátið-
arárið 1930. íslandsstjórn
gerði hann Stórriddara með
stjörnu af Fálkaorðunni 1939,
en áður hafði hann sæmdur
verið bæði Riddara og Stór-
riddarakrossi þeirrar orðu. —
Hann er heiðursfélagi í Bók-
mentafélagi Islands og einn af
elztu heiðursfélögum Þjóð-
ræknisfélags Islendinga i Vest-
urheimi.
Hin umfangsmiklu fræði-
störf Halldórs Hermannssonar
eru Islendingum beggja megin
hafsins löngu kunn, og leyfi eg
mér að vísa til greinar minnar
um það efni í Tímariti Þjóð-
rœknisfélagsins í fyrra. Meta
landar hans hann og virða að
verðleikunvfyrir þá merkilegu
og þörfu starfsemi hans.
Veit eg því, að eg tala eigi
aðeins í nafni Þjóðræknisfé-
lagsins heldur einnig fyrir
munn landa hans alment í
landi hér, er eg flyt honum
hugheilar feskiir í tilefni af
kosningu hans f fyrnefnda
virðingarstöðu og í tilefni af
nýafstöðnu 65 ára afmæli hans.
Er það einlæg ósk vor, að hans
megi enn lengi við njóta á vett-
vangi islenzkra fræða.
Richard Beck
Hon. Ian Mackenzie, heil-
brigðismála-ráðherra, sagði frá
því í Ottawa s. 1. föstudag, að
lausn hefði verið veitt 75,000
manns úr her Canada. Tala
hermanna er nú 683,000 alls; i
sjóliðinu eru 53,000, í flugliðinu
200,000 og í landhernum 430,-
000. Frá ástæðu fyrir þessu
var ekki greint, en heilsuveila
mun aðalorsökin vera. Reglur
fyrir heilbrigði kváðu strang-
ari en nokkru sinni fyr í hern-
um.
★ ★ ★
í virðingar og þakklætis-
skyni fyrir hetjuskap Pólverja
tesgaden. Göbbels neitaði umij þessu stríði, hefir stjórnin í
hæl og fréttin birtist, að hún 'British Columbia nefnt sérstakt
væri sönn, sagði Hitler ennjfjan Vestra eftir borginni Var-
hafa stjórn á rekstri stríðsins sjá (Mount Warsaw).
og veta í Rússlandi. | Frh. á 8. bls.