Heimskringla - 31.03.1943, Síða 4
4. SiÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 31. MARZ 1943
iticintskrimilci
(StofnuB 1S86)
Kemur tit á hverjum miBwkudegi.
Eigendur:
THE VIKING PRESS LTD.
SS3 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg
Talsiml: 88 537
Verð blaðsins er $3.00 árgangurinn, borgist
fjrrirfram. Allar borganlr sendist:
THE VIKING PRESS LTD.
öll viðskifta bréf blaðinu aðlútandl sendist:
Manager J. B. SKAPTASON
858 Sargent Ave., Winnipeg
Ritstjóri STEFAN EINARSSON
Uitanáskrift til ritstjórans:.
EDITOR HEIMSKRINGLA
853 Sargent Ave., Winnipeg
"Heimskringla" is published
and printed by
THE VIKING PRESS LTD.
853-855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man.
Telephone: 86 537
WINNIPEG, 31. MARZ 1943
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNIS-
FÉLAGSINS
Sá bókmentalegi viðburður skeður
einu sinni á ári — og er Þjóðræknisfé-
laginu að þakka, að hér kemur út ársrit,
sem sómir sér á bekk mið betri íslenzk-
um tímaritum. Það síðasta og sem er
tuttugasta og f jórða ritið, kom út eins og
venjulega um það leyti, sem ársþing
Þjóðræknisfélagsins er haldið seint í
febrúar. Af þessari hlið bókmenta
vorra, er ekki nema um þetta eina rit að
ræða; það hefir því mikið og vítt starfs
svið. En þrátt fyrir það, eru þess ljós
merki nú eigi síður en áður, að útgáfa
þess, að því er viðvíkur lesmáli hvílir á
alt of fáum. Þar koma hinir mörgu og
glæsilegu sérmentuðu Islendingar svo
lítið til greina, að manni verður ósjálf-
rátt að spyrja, hvort þeim standi fjand-
an á sama um alt íslenzkt. Þetta er öllu
sem út er gefið hér á íslenzku til hins
mesta hnekkis og aukjnna erfiðismuna.
Við skulum segja, að listamönnum,
læknum, lögfræðingum, háskóla kenn-
urum og vísindamönnum, íslenzkum,
sem hér eru orðnir á hverju strái, þyki
efni vikublaða of rusl-kent til að skrifa í
þau. En það á ekki ^við um Tímarit
Þjóðræknisfélagsins. Þessum mönnum
ber sama þjóðræknisskylda og öðrum
til að miðla okkar íslenzka þjóðfélagi af
sérþekkingu sinni, fræða um viðhorf og
stefnur í hærri listum, bókmentum og
vísindum, tsvo íslenzkur aimenningur
fái nokkurt útsýni yfir komandi tíma á
þessum sviðum eigi síður en öðrum. En
reynsla vor er sú, að ílt sé nú orðið að
fá nakikurn söngfróðann að segja orð
um söngsamkomur, eða prófessora og
bókmentamenn um bækur á íslenzku.
Því er auðvitað brugðið við, að málið,
íslenzkan, sé þarna þrándur í götu. En
Þjóðrækhisfélagið hefir að minsta kosti
ráð á að fá slíkum greinum snúið á is-
lenzku, þó skrifaðar væru á ensku, sem
ritlaun hefir séð sér fært að greiða, þó
öðru máli gegni um vikublöðin. Það
ríður á miklu að sem flestir fletir á
krystalli menningarlífs eða mentunar
íslendinga hér komi fram í bókmentum
þeirra og það ætti hvergi að vera auð-
særra, en í Tímariti Þjóðræknisfélagsins,
en er það ekki vegna fáisinnis þess, sem
á hefir verið minst.
En eftir þennan út úr dúr, skal nú
vikið að Tímaritinu.
1 þetta nýútkomna hefti, skrifa skáld
og rithöfundar og gera þar vel hver um
sig. Væru aðrir sér eins meðvitándi um
skyldur sínar við íslenzk rit ög blöð og
þeir, þá væri vel. Grein dr. St-efáns Ein-
arssonar um ritdóma, er i fylsta máta
bókmentaleg. Sú grein hefði mátt vera
lengri; það virðist sem þar vanti niður-
lagið, með niðurstöðu höfundarins sjálfs
um efnið, nema hann sé þeirrar skoðun
ar, að ritdómar séu — þegar öllu er til
skila haldið — óþarfir, og sem vissu-
lega er ekki fjarri sanni um þá ritdóma,
sem sjáanlega eru ekki til neins annars
skrifaðir, en að klappa vinum sínum á
herðarnar og vænta borgunar í sömu
mint frá þeim aftur. Eigi að síður geta
ritdómar verið mikilsverðir bæði höf-
undum og sérstaklega almenningi, sem
auglýsing eða frásögn um efni bókar til
góðs þeim er áhuga kynnu að hafa fyrir
þvi sérstaka efni er þar um ræðir. Ög
athugasemdir við það sem höfundi hefir
sézt yfir, geta þá einnig verið tímabær
ar.
Það næsta sem hér skal minst á, er
fantasíán hans dr. J. P. Pálssönar:
“Rakka Rökkur”. Þessi stutta frásögn
af hinum stórbrotnu og flóknu afbrotum
mannkynsins með stríðinu, sem nú
stendur yfir, er svo meistaraleg, að oss
er nokkur efi á, að með öllu þvr fádæma
flóði, sem skrifað hefir verið um stríðið,
hafi nokkrum í eins fáum orðum tekist
að draga sanna mynd af því. Þessi fan-
tasía ætti að vera þýdd á öll heimsins
tungumál og lesin; hún er svo stutt, að
það kostar hvorki tima né^erfiði að líta
yfir hana, en ágóðinn af þeim lestri.yrði
meiri, en fleirí árgangar dagblaða; hún
er listaverk.
Jón J. Bíldfell, fyrverandi ritstjóri
Lögbergs, skrifar tVær greinar í Tíma-
ritið. Er önnur um Árna heitinn fast-
eignasala Eggertsson; kastar hún björtu
ljósi á þerinan góða mann og óviðjafnan-
lega starfsmann. Ilin greinin er um
Leifsbúðir í Ameríku”. J. J. B. hefir
bréflega kynst manni sem Gordon I.
Lewis heitir og er prestur í Nova Scotia,
sem hefir þá skoðun, að hann hafi fundið
Leifsbúðir í grend við bæ eða þorp er
Tusket heitir í Nova Scotia. Fer grein-
arhöfundur nokkuð út i sögu þessa máls,
sem gott er að rifja upp, að hvaða niður-
stöðum sem komist verður um skoðun
prestsins. Greininni fylgja tvær myndir
af rúnasteinum frá tið norrænna manna.
Þá ritar dr. Sig. Júl. Jóhannesson um
Friðrik Sveinsson heitinn málara, hinn
merkasta mann, er til Vesturheims kom
árið 1874 og var á þjóðhátíðinni það ár
í Milwaukee. Hann var fróður maður
um sögu Vestur-lslendinga, enda áhorf-
andi hennar frá byrjun.
J. M. Bjarnason skáld skrifar og eina
af hinum mörgu og skemtilegu minn-
ingasögum frá'tíð Islendinganna í Nýja
Skotlandi. Heitir hún Eyvindur, og fip-
ast höfundi ekki að halda áhúga les-
andans.
Um íslandsvininn C. Venn Pilcher,
skrifar dr. Ríkarður Beck verðuga grein
í Tímaritið. Dr. M. B. Halldórson’skrif-
ar “Um meðferð vopna” og þá er skop-
saga: Hrossabresturinn, eftir Þorst. Þ.
Þorsteinssoú *
Af kvæðum er nokkuð í ritinu. Skal
þar fyrst nefna: Lofsælu ljóðsins, eftir
Þ. Þ. Þ., fremst í ritinu, voldugt kvæði
um mátt orðsins. önnur kvæði eru: Um
Árna Eggertsson eftir P. S. Pálsson,
Dansinn í Hruna, eftir Gutt, J. Guttorms-
s°n, Rökkurrof eftir Ragnar Stefánsson,
Landið hennar mömmu eftir Steingrím
Arason, Skammdegi eftir dr.' Ríkarð
Beck, Merkileg hugsjón eftir dr. Sig. Júl.
Jóhannesson, Draumur ástarinnar eftir
S. B. Benedictsson og Hvítbláinn eftir
Jakob J. Norman.
Mynd' er í Tímartinu af J. M. Bjarna-
syni og konu hans og fylgir henni frá-
sögn af samsæti er þeim hjónum var
haldið á árinu 1942 í tilefni af 70 ára
afmæli skáldsins. Smávegis í eyðuna,
heita tvær smágreinar eftir ritstjórann.
Lestina rekur svo fundargerð ársins
1942. Er það ein lengsta fundargerðin
sem birst hefir, um 44 blaðsíður, en jafn-
framt hin fróðlegasta, þar sem sagt er
frá umræðum, auk allra skýrslna og
samþykta; þar eru jafnvel birt tvö heil
kvæði. Ja — fyr má nú gagn gera.
Allur ytri frágangur ritsins og próf-
arkalestur, er ágætur, enda mun leit á
öðrum betri til þeirra hluta en ritstjór-
anurn, Gisla Jónssyni.
sprengjuefnin. Loftlögur var ekki not-
aður í siðasta stríði, sökum þess hve
fljótt hann gufaði upp; en ekki er ó-
'mögulegt að á því verði bót ráðin.
Hættan við tilbúning skotfæra og
sprengjuskeyta gæti mjög mikið rýrnað
við notkun loftlagsins; að mínsta kosti
hyggja þýzkir vísindamenn það. 1 stað
þess að hlaða skipin þungum farmi af
bráðhættulegum sprengjuefnum, mætti
byggja loftlagar-framleiðslu á hverju
skipi, og þannig, eftir því sem ætlað er,
búa til sprengjúr eftir því sem nauðsyn
krefði; á sama hátt sem línuskpin taka
sér forða af ís, vatni og öðrum efnum
eftir þörfum.
Til að framleiða eina fötufylli af loft-
legi þarf hér um bil jafnmikið loft, sem
það er rúmast í litlu svefnherbergi; og
framleiðslan gerist á 15 mínútum eða
styttri tíma.
Lögur þessi, úr lofti gerður, hefir'ýmsa
kynlega eiginleika. Hann er gagnsær,
glitrandi vökvi, mjög líkur vatni; en svo
kaldur að hann sýður á ís og alkohol og-
kvikasilfur frjósa í honum.
þangað. Eru flestir þeirra út- hugtök en reynslan hefir hing-
lendingífr, af ýmsum þjóðum. að til sýnt. Það verður ekki að
Ríikið hefir einnig látið þenri-, sinni sagt, hvé lengi líf og
an mikilvæga fornmenjagröft heilsa gæti enst, ef betur væri
til sín taka, og býður stuðning húið að lífinu og gætt svo vel
sinn til starfsins. Gripir hafa j s€m verða má þeirra frumskil-
þegar verið sendir þaðan á ýms | y^ða, sem reynsla og- rann-
forngripasöfn í Canada og sóknir hafa sýnt, að það er
Bandaríkjunum. Það sem helzt háð. Svo mikið er þó víst, að
tefur fyrir starfinu, er rigninga-1 hfið gæti enzt miklu lengur en
tíminn, í marzmánuði; þá er' á sér stað.
öllu starfi frestað. ! Um mannkynið og þá sér-
Ef þessi for-ngripafundur,' staklega um mennigarþjóðirn-
verður undrunarefni sex kyn-
slóða, má geta nærri hve mik-
ils má vænta af honum á næstu
arum.
B. Th. þýddi
. i
NÝSTÁRLEGT AFMÆLI
MIKILL ÓNOTAÐUR AFLGJAFI
FJALL MEÐ (ÍLEYMDUM
AUÐÆFUM
Eftir Jónas Kristjánsson lœknir
ÉTr Tiempo, Mexico
Visindamenn og hergagnafræðingar,
um heim ailan, beita nú rannsóknum sín-
um me4t að tveimur, mjög mikilvægum
efnum. Annað þeirra er olía, hitt er loft-
lögur (liquid air).
Ef menn tækju loftlöginn í þjónustu
sína, til að hreyfa vélar, hefðu allar
þjóðir sömu aðstöðu til að framleiða
gögn sin. Það er því alls ekki undravert,
að mestu hugvitsmenn heimsins leggja
nú alt kapp á að sýna hvemig þessi, því
riær ónotaði aflgjafi verði notfærður á
hagkvæmasta hátt. Þau ríki sem eru
snauð af kolum og olíu, sjá glögglega
hvílíkt hagræði þeim væri að loftlegin-
um. Hann væri þeim því nær óþrot-
legur aflgjafi, á stríðs- og friðartímum.
Og ekkert annað ríki gæti hann frá
þeim tekið með herafla, á landi, sjó eða
í lofti.
Loftlögurinn er undursamleg vísinda-
uppgötvun. í sjálfu sér er hann ekki
mjög ólíkur öðrum fljótandi efnum;
nema að því leyti, að hann sýður á ákaf-
lega lágu hitastigi. Nú um skeið hafa
Þjóðverjar notað kolsýru og fljótandi
súrefni, við námugröft sinn, til að spara
Ferðamenn og námsmenn líta, nú á
dögum, undrandi augum á þann forn-
gripa-auð, sem eftir áætlun finnandans,
Alfonso Caso, verður sex kynslóðum
fornfræðinga að undrunarefni.
Þetta eru hinar frægu rústir í Monte
Alban, í Oaxaca-fylknu í Mexico. Þar
er feyki-mikið starfað að rannsóknum
og uppgreftri. “Það er hinn mikilvæg-
asti fornmenja-fundur sem gerst hefir á
þessari öld,” segir Clarke Wissler, yfir-
rnaður mannfræðis-deldarinnar í sögu-
lega minjasafninu. Við hvers högg grjót-
pálsins ikoma í ljós dásamlegar, skínandi
hrúgur af ómetanlegum dýrgripum. Yfir
500 slíkra gripa koma úr einu einasta
leiði. Hálsfestar úr gulli, perlur, tur-
quois-steinar, krystall og brjóstplötur úr
gulli.
Fjallið sem Monte Alban-rústirnar eru
á, er 1,000 feta hátt. Áður en þessir
merkilegu forngripir fundust þar, leit
fjall þetta út sem hver önnur fjallbunga,
vaxin hrísi og grasi. Fyrsta vísbending
um, hvað undir sverðinum kynni að leyn-
ast kom frá íbúum umhverfisins, Zapotec
og Mixtec-Indíánum. Þessir tveir kyn-
flokkar eru að útliti, mjög líkir hverjum
hinna fimtíu Indíána-kynflokka í Mexico,
með sína sérstöku siði, mállýzku, dansa,
söngva, hátíðahöld og klæðaburð.
Alfonso Caso, sem hafði kynt sér
menningu hinna ýmsu Índíánaflokka, sá
í nútíðar-menningu Zapotec- og Mixtec-
Indíánanna, merki um hámarks-menn-
ingu á fyrri öldum. Af þeim orsökum
fór hann að rannsaka uppruna þeirra;
og hóf þar næst forngripaleit í þeirra
héruðum.
Prófessor Caso er lögfræðingur; og
hann er einnig frægur fornfræðingur.
Hann tók sér til fylgdar sex verkfræð-
inga; þrjá stúdenta úr mannfræðideild
háskólans og 130 verkamenn.
Svo að segja við fyrstu rekustungu
kom í ljós einhver hlutur sem glansaði á.
Það var höfuðkúpa; og meðfram henni
var röð af fögrum, fornum kerum, gerð-
um úr onyx-steini. Þar allnærri, í beina-
hrúgu, fundust margir munir úr gulli,
einnig perlur, gullkóróna, skreytt skín-
andi blágrænum turquois-steinurrv Við
þann fund óx kapp og áhugi leitar-
manna; og héldu þeir starfinu áfram með
mestu kostgæfni. Pýramídar, grafhvelf-
ingar og aðrar byggingar ikomu i ljós.
Óvænt merki um fornmenningu í stór-
um stil höfðu fundist.
Smám saman er hin forna borg grafin
upp úr fjallinu. Nú þegar er aðaltorg
hennar, eða “plaza”, 1000 feta langt og
600 feta breitt, til sýnis. Til hliðar við
torg þetta fanst bygging með minnis-
varða-stiga, sem talinn er breiðastur
allra þeirra er fundist hafa i Ameríku.
Þegar Roosevelt forseti frétti um þennan
forngripafund, sagði hann að þar væru
“skýr og óhrekjandi merki mikillar
menningar.”
Prófessor Caso álítur, að hin miklu
auðæfi sefn þarna er hrúgað saman, hafi
svo mikið lista- og vísinda-gildi, að þau
séu verðmætari en beztu forngripirn-ir
frá Grikklandi, Egyptalandi og Kína.
Á hverjum mánuði koma, til jafnaðar,
um 1000' gestir að rústunum i Monte
Alban; hefir orðrómurinn dregið þá
Síðastliðinn 17. jan. var hald-
ið upp á nýstárlegt afmæli í
heimsins mestu borg, New
York. Vakti þetta afmæli tals-
verða eftirtekt meðal vísinda-
manna. Var þess getið í flest-
um víðlesnum læknaritum um
heim allan.
Fyrir 30 árum, eða 17. jan.
1912, hafði lífeðlisfræðingnum
Alexis Carrel tekist að skera
hjanta úr hænuunga, áður en
honum var klakið út, koma þvi
fyrir í viðeigandi næringar-
vökva eða svipuðu umhverfi
og unginn býr við í egginu og
halda því siðan lifandi um 30
ára skeið. Það er að minsta
kosti þrefaldur aldur hænu eða
hana, sem hæstum aldri ná.
Á þessum tíma hefir þessi lif-
andi dýravefs-ögn aldrei orðið
lasin eða sjúk. Hún er eins
lífskröftug og í fyrstu. Hjartað
vex jöfnum vexti. Það tvöfald-
ast að stærð á hverjum 48
klukkutímum, og væri búið að
ná ótrúlegum vexti, ef ekki
væri af því numið, svo að segja
jafnóðum og það vex.
Þetta litla hænuunga-hjarta
slær að vísu ekki lengur. Það
sló aðeins liðuga 100 daga,
vöðvavefurinn smáeyddist, en
að öðru leyti lifir það kröftugu
lífi.
Þetta hefir vakið óskifta eft-
irtekt allra lífeðlisfræðinga. Er
vakað yfir þessu viðkvæma
lífi með hinni mestu árvekni.
Alexis Carrel þykir einn
hinn snjallasti lífeðlisfræðing-
ur, sem nú er uppi, og hefir
hlotið Nobelsverðlaun fyrir vís-
indaafrek. Hefir hann látið af
störfum við þá vísindastofnun,
sem hann hefir starfað við um
langt skeið. En við eftirliti
með hænuungahjartanu hafa
tekið samverkamenn hans,
læknir og tvær konur. Að tek-
ist hefir að halda þessu hjarta
ar er það sagt, að þær séu
kvillasömustu verur jarðarinn-
ar. Þetta mun líka vera satt.
En það vill nú svo til, að nær
því allir kvillar, sem sækja
menn heim, stafa einmitt af
því, að hin einföldustu frum-
skilyrði fullikominnar heil-
brigði.eru brotin á einn eða
annan hátt, ekki einu sinni,
heldur stöðugt og áframhald-
andi. Sjúkdómar og vanlíðan
eru engin tilviljun, heldur bein
afleiðing þessarar vanrækslu
eða vanþekkingar. Menn sofa
og dveljast í illu lofti. Menn
neyta óeðlilegrar fæðu, svo að
líkaminn er illa haldinn. Þetta
verður til þess, að óhrein efni
menga blóðið, í stað þess að
fly.tjast burtu. Hreinsunar-
tæki likamans megna ekki að
rækja starf sitt sökum þessa
vaneldis. Menn neyta eitúr-
efna ýmist vegna vanþekking-
ar eða hirðuleysis. Þannig fer
neyzla tóbaks og alkóhols hrað-
vaxandi. Börn byrja á sæl-
gætisáti, taka því næst tóbakið
og enda á alkóhóli eða enn þá
sterkara eitri. Börn og ungl-
ingar verða hópum saman von-
arpeningur og vanmetafé þjóð-
félagsins vegna vanþekkingar
og hirðuleysis fullorðna fólks-
ins. Það kennir börnunum illa
siði, bæði vegna vanþekkingar,
en eins vegna hirðuleysis.
Fullkomin heilbrigði og vel-
liðan manna og þjóða er fyrst
og fremst þekkingaratriði. —
Fullkomin þekking á því lög-
máli, sem líf og heilsa er háð,
er aðkallandi anuðsyn fremur
allri annari fræðslu, en er van-
rækt meira en alt annað. Um
það ber kvillasemin glögt vitni.
—Samtíðin.
PÓSTAR ÚR BRÉFI
FRÁ R. H. R.
Camp Claiborne, La.,
21. marz 1942
Kæri Stefán:
Það er langt til Sargent Ave.,
héðan frá Louisiana, en “Hkr.”
kemur nú samt hvern sunnu-
eða mánudag og er kærkominn
gestur. Maður saknar íslenzk-
unnar því meir, sem maður
lifandi, er bundið' þeim'’óTrá-! heyrir hana rialdnar. Eg hefi
víkjanlegu frumskilyrðum, sem!ekki orð af íslénzku mælt
alt ldf á jörðunni og öll heil- 1 mín eyru síðan um í61
hermannabúðir eru mjög af-
skektar og má heita að hér í
kring sé að mestu eyðiskógur
brigði er háð. Þau eru gnægð
súrefnis, eðlileg næring að
kostum og gnægð, og óhindr-,
uð og reglubundin tæming' með kofum her og þar og Sma'
þeirra efna, sem við lifsbrun-
ann verða til.
Frá fullnægingu þessara
frumskilyrða lífsins hefir ekki
mátt skeika hið minsta. Jafn-
vel hið hærra líf getur ekki án
þeirra þrifist. En þar sem ekki
tókst að halda hjartavöðvunum
við, verður árvekni manna og
umhyggja að . koma í þeirra
stað, til þess að viðhalda til-
blettum í kring, sem eitthvað
eru unnir. Hér er nú vor og
trén að grænka og á sólskins-
dögum nokkuð heitt fyrir land-
ann.
Með þessu bréfi sendi eg ör-
fáar línur sem ver er frá geng-
ið en eg vildi, því hér er lítill
tjmi til ritstarfa.
Þessar hugsanir hafa verið
að ásækja mig lengi og loks í
færslu súrefnis og næringar, og gærkveldi og morgun er eg lá
einnig til þess að fjarlægja ó-
hrein efni, er lífsbruninn hefir
í för með sér. Verður að þvo
daglega burt öll slik efni. Frá
þessu hefir ekki mátt skeika,
að öðrum kosti dvínaði lífið
fljótt.
Alexis Carrel hefir síðan
reynt með aðstoð læknisfróðra
manna, að búa til gervi-hjarta.
Það hefir ekki tekist. En til-
raununum-er haldið áfram.
Þessi hái aldur hænuunga-
hjartans þyikir næsta merki-
legt fyrirbrigði. Það er bend-
ing um það, að kvillsemi og
dauði gætu verið fjarlægari
hér i fletinu nær örmagna eftir
langa hergöngu, kom eg þessu
á pappir. Mér hefir komið til
hugar ýmislegt annað og e. t. v.
hugðnæmara lesendum er eg
gjarna vildi senda “Kringlu”
við tækifæri.
Það er margt sem landanum
kemur einkennilega fyrir augu
í hernum og seinna, ef mér end-
ist líf og heilsa, má vera að eg
taki við að fylla blaðið að dæmi
ýmsra góðra manna.
-----Þú mátt geta þess, að
mér líbí vel og uni hag mínum
hið bezta ‘ i her Jónatans
frænda. Kvebja, Ragnar