Heimskringla - 31.03.1943, Síða 8
8. SÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 31. MARZ 1943
FJÆR OG NÆR
MESSUR 1 ÍSLENZKU
SAMBANDSKIRKJUNUM
Útvarpsguðsþjónusta
Útvarpað verður kl. 11 f. h.
n. ik. sunnudag, 4. apríl frá
Sambandskirkjunni í Winnipeg
á ensku, undir umsjón Unitara
safnaðarins, hins enskumæl-
andi. Séra Philip M. Péturs-
son messar. Við kvöld guðs-
þjónustuna verður messað á is-
ienzku eins og vanalega. Um-
ræðuefnið verður “Kirkja fram-
tíðarinnar”. — Sækið messur
Sambandssafr^aðar.
★ ★ ★
Mánudaginn 14. marz, voru
gefin saman í hjó'naband Miss
Olive Taylor Rutledge, dóttir
Mr. og Mrs. Joseph Rutledge,
Bancroft, og Pilot Officer Stef-
án Frederick Thorvaldson, son-
ur Mr. og Mrs. Sveinn Thor-
vaidson, M.B.E., Riverton. Gift-
ingin fór fram í Bridge St.
United kirkjunni i Toronto. —
Rev. J. Semple, B.A.Th.D. gifti.
Ungu hjónin brugðu sér til
Riverton og Winnipeg að finna
fólk brúðgumans. Var þeim
haldið veglegt samsæti s. 1.
fimtudag á heimili Mr. og Mrs.
T. Ruby Couch, 209 Mayfair
Ave. Tóku foreldrar, systkini
og fjöldi vina þátt í samsæt-
inu. Ungu hjónin lögðu af stað
'til Austur Canada aftur s. 1.
föstudag. Heimskringla óskar
til lukku.
★ ★ ★
Gjafir í blómasjóð Sumarheim-
ilis ísl. barna, að Hnausa, Man.:
Kvenfélagið “Eining” Lund-
ar, Man.........-.... $15.00
í þakklátri minningu um séra
Guðm. Árnason og Mrs. Mekk-
ínu Guðmundsson.
Steinunn Magnússon, Winni-
peg ............-......$5.00
í minningu um kæra vinkonu,
Mrs. Rannveigu Eríksdóttur
Stefánsson.
Meðtekið með samúð Og
þakklæti.
Emma von Renesse,
Árborg, Man.
i ROSE THEATRE
1 ---Sargent at Arlington---------
= April 1-2-3—Thur. Fri. Sat.
j§ Greer Garson—Walter Pidgeon
"MRS. MINIVER"
Selected Shorts
-------------------------------- g
April 5-6-7—Mon. Tue. Wed. s
Irene Dunee—Cary Grant I
"PENNY SERENADE"
Preston Foster—Lynn Bari I
"SECRET AGENT of JAPAN" |
S 2
C‘iiiiiiiiMiC3iiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiaiiiiiiuniir»>
Leiðrétting
i í W. P. & T. B. greininni á 7.
bls. í þessu blaði um “Jam og
Jelly”, þar sem talað er um að
tæma misstóru glösin í pott-
glas, er betra að nota bolla til
að mæla með, telja fjóra bolla
j í pottinn, reikna svo hálft ann-
I að punda af sykri fyrir hvern
pott o. s. frv. S. Wathne
★ ★ ★
Björg Jónsdóttir Thorkelson,
lézt 15. marz að heimili systur
sinnar, Mrs. Guðleifar Johnson
að Otto, Man. Hin látna var
75 ára, kom 18 ára gömul vest-
ur um haf með foreldrum sin-
um; hún stundaði lengst af
skólakenslu bæði í þessu fylki
og í Saskatchewan. Á lífi eru
tvær systur hennar: Mrs. I.
Johnson, Otto og Mrs. Ö. Bíld-
fell, Winnipeg. Hin látna er
ættuð frá Flautafelli í' Norður-
Þingeyjarsýslu.
★ ★ ★
Winnipeg'fréttir
Síðast liðin sunnudag drukn-
uðu 3 drengir í Assiniboine-
ánni, rétt hjá Main St. brúnni.
Voru nokkrir drengir að leika
sér á ísnum, en við brúna var
vök eða is mjög .ótraustur. —
Fleiri lentu í vökina, en þeir
björguðust allir nema nefndir
þrir.
Síðast liðinn fimtudag varð
sprenging mkil í kjallara Le-
land hótelsins, af völdum gas-
pípuleka. Skaðar urðu nokkrir
bæði úti og inni, en manntjón
varð ekki annað en að tveir
meiddust, aðallega af bruna,
ekki samt hættulega og eru á
sjúkrahúsi. Um 80 gestir voru
á hótelinu, er allir fluttu út.
Fyrir Hársnyrtingu Yðar
PERMANENT
HEIMSÆKIÐ Miss Margaret Einarson
Margra ára þekking og reynsla.
Fullkomið verk, aðeins
Kynnið yður aðferð vora.
Margucrite’s Beauty Salon
683 Broadway við Sherbrook
Sími 31 366
H. F. EIMSKIPAFÉLAG ISLANDS
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Hlutafélagsins Eimskipafélags íslands,
verður haldinn í Kaupþingssalnum í húsi félagsins i
Reykjavík, laugardaginn 5. júní 1943 og hefst kl. 1 e.h.
D A G S K R Á :
I. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og fram-
kvæmdum á liðnu starfsári, og frá starfstil-
högununni á yfirstandandi ári, og ástæðum
fyrir henni, og leggur fram til úrskurðar end-
urskoðaða rekstursreikninga til 31. des. 1942
og efnahagsreikning með athugasemdum end-
urskoðenda, svörum stjórnarinnar og tillögum .
til úrskurðar frá endurskoðendum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar
um skiftingu ársarðsins.
3. Kosning fjögra manna í stjórn félagsins, í stað
þeirra sem úr ganga samkvæmt félagslögun-
um.
4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá
fer, og eins vara-endurskoðanda.
5. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál,
sem upp kunna að verða borin.
5>eir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hlut-
höfum og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu fé-
lagsins í Reykjvík, dagana 2. og 4. júní næstk. Menn
geta fengið eyðublöð fyrir umboði til þess að sækja
fundinn á aðalskrifstofu félagsins í Íleykjavík.
Reykjavík, 22. janúar 1943.
STJÓRNIN.
Islendingar eru hér með
mintir á samkomu norræna
klúbbsins, 8. apríl í Picardy
borðsalnum. Hún hefst kl. 6.45
e. h. og byrjar með máltíð. En
að þvi búnu verða ræðuhöld og
annað til skemtunar. Þar verða
Og myndir sýndar.
Þessu norræna félagi til-1
heyra nú nokkrir íslendingar,
ýn eftir þeim er ekki einungis
vonast á þessa samkomu, held-
ur mörgum fleirum. Síðasta
samkoma klúbbsins, þótti mjög
skemtileg.
★ ★ ★
Laugardagsskólinn
heldur lokasamkomu sína,'
lauagrdkginn 17. apríl kl. 8.30
e. h. í samkomusal Sambands-
kirkjunnar á Banning St.
Börnin eru að æfa tvö smá-
leikrit, framsögn, söng og dans
og munu mikið á sig leggja til
þess að gera þessa kvöldstund
sem skemtilegasta. Bregðist
ekki börnunum, sœkið sam-
komu þeirra. Sjáið um að
: hvert sæti verði skipað, það er
: vottur þess að þér viljið að ís-
(lenzku kenslu sé haldið áfram
og að íslenzkan lifi í Vestur-
heimi.
Aðgangur að samkomunni er
] ókeypis fyrir börn innan 14 ára
t en 25c fyrir fullorðna.
★ ★ ★
Næsti fundur Jóns Sigurðs-
i sonar félagsins (I.O.D.E.) verð-
I ur haldinn að heimli Mrs. G. A.
■ Paulson, 351 Home St., fimtu-
daginn 6. apríl.
★ ★ ★
1 St. Mary’s kirkjunni í Cal-
gary, Alta., voru 13. febrúar s.l.
j gefin saman í hjónaband Miss
Eileen Millen og L.A.C. Jóhann
Sigurðson. Brúðurin er dóttir
Mrs. W. Millen í Winnipeg og
manns hennar, nú dánum, en
brúðguminn er sonur Sigurþórs
og Maríu Sigurðson í Winnipeg.
Er hann einn af fjórum sonum
þeirra hjóna i hernum og er að
ljúka flugnámi í Calgary. ' Að
giftngu lokinni var veizla i
Palliser Hotel í bænum. The
Rev. Father Dwyer gifti. Hkr.
óskar ungu hjóunum til lukku.
★ ★ ★
Jón Sigurdson Chap. I.O.D.E.
Á spilasamkomu félagsins
20. marz hlutu þessir happa-
drættina: Kaffiborð, Mr. S. M.
Bachman, 833 Garfield St., (nr.
825). Ábreiðuna, Mrs. E. Mich-
et, 622 Erin St. (nr. 685).
★ ★ ★
Lúterska kirkjan í Selkirk
Sunnud. 4. apríl: Sunnu-
dag^skóli kl. 11 f. h. Ensk
messa kl. 7 e. h. Föstumessa,
miðvikudagskvöld 7. apríl á
heimili. Mr. og Mrs. Einars
Magnússonar á Lake Ave., kl.
7.30. Allir beðnir velkomnir.
S. ólafsson
★ ★ ★
Matreiðslubók
Kvenfélags Fyrsta lútereka
safnaðar í Winnipeg. Pantanir
sendist til: Mrs. E. W. Perry,
723 Warsaw Ave.; Mrs. E. S.
Feldsted, 525 Dominion Street.
/erð $1.00. Burðargjald 5«.
★ ★ ★
Messa í Árborg
4. apríl — Árborg, íslenzk
messa kl. 2 e. h.
B. A. Bjarnason
★ ★ ★
Bœkur til sölu á Heimskringlu
Endurminningar, 1. og II.
hefti, alls 608 blaðsíður, eftir
Friðrik Guðmundsson. Verð
upphaflega $2.50, báðar bæk-
urnar; nú $1.00.
Hetjusögur Norðurlanda, um
200 blaðsiður að stærð, eftir
Jacob A. Riis. Islenzkað hefir
Dr. Rögnvaldur Pétursson. —
Verð 35c.
★ ★ ★
SKRÁ
yfir tillög í minningar- nóms-
sjóð Mrs. W. J. Lindal
Eins og tilkynt hefir verið
í blöðunum hefir AÍumnae As-
sociation of United Colleges í
Winnipeg farið af stað með
fjársöfnun, er nemi því, að
vextir af greiði eitt náms-
sikeið á ári — í minningu um
Mrs. Jórurmi H. Líndal. —
Fjárhæðin tiltekna er $3,500.00
sem vextir af ættu að verða
$100.00 námsskeið.
Nokkur félög hafa kosið
nefndir til þess að annast um
þessa fjársöfnun. Á meðal Is-
lendinga, hefir Mrs. J. B. Skap-
tason, 378 Maryland St., tekið
að sér að veita tillögum mót-
töku í sjóðinn og hafa eftir-
fylgjandi tillög þegar borist:
Dr. B. J. Brandson,
Winnipeg ...........$ 5.00
Mr. Paul Reykdal,
Winnipeg ........ 100.00
Mr. Hannes Líndal,
Winnipeg ----------- 50.00
Mr. Peter Anderson,
Winnipeg .......... 25.00
Mr. Ólafur Pétursson,
Winnipeg -........ 5.00
Mr. Hannes Pétursson,
Winnipeg ........ 5.00
Mrs. J. Couch,
Winnipeg ........... 10.00
Mr. G. F. Jónasson,
Winnipeg ........ 25.00.
Mrs. Kristín Hinrikson,
Churchbridge, Sask... 100.00
Dr. P. H. T. Thorlakson,
Winnipeg ......... 25.00
Mrs. I. T. Olson,
Churchbridge, Sask... 50.00
Miss Sibba Axford,
Cannon Falls, Minn.,
$9.25 American $10. Can.
Mrs. J. S. Gillies,
Winnipeg .....:..... 2.00
Mrs. G. J. Markússon,
Bredenbury, Sask.... 25.00
Mr. og Mrs. J. B. Skapta-
son, Winnipeg ...... 10.00
Látið kassa í
Kœliskápinn
WvmoLa
M GOOD ANYTIME
VIÐ KVIÐSLITI
Ti] linunar, bóta og styrktar
•eynið nýju umbúðirnar, teyju-
lausar. Stál og sprotalausar. —
Skrifið: Smith Manfg. Company,
Pept, 160, Preston, Ont.
Dr. Robert Fletcher, retired
deputy minister of Education
and president of the Canadian
Unity Council will bring greet-
ings from that organization
and tell us a little about its
work.
Mr. Carl Simonson, member
of the executive and on the
teaching staff of the Daniel
Mclntyre Callegate Inst, will
be the main speaker. Subject:
“Democracy ip Action”, with
particular reference to the high
development of the Scandinav-
ian countries.
Rev. Knut Bergsagel, minist-
er of the Norwegian Lutheran
Church, will say grace and also
briefly pay tribute to those'
fallen in the fight for liberty
after the invasion of Norway
and Denmark, three years ago,
on April 9, 1940.
Musical contribution will be
rendered by Miss Snjólaug Sig-
urdson, Mrs. Lincoln Johnson
and Mrs. Gladys McBean.
Tickets are set at 75 cents
and reservation should be
made early.
MESSUR og FUNDIR
i kirkju Sambandssaínaðar
Prestur, sr. Philip M. Pétursson
640 Agnes St. Sími 24 163
Messur: á hverjum sunnudegi
Kl. 11 f. h. á ensku
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
Safnaðarnefndin: Fundir 1.
föstudag hvers mánaðar.
Hjólparnefrdin: Fundir fyrsta
mánudagskveld í hverjum
mánuði.
Kvenfélagið: Fundir annan
þriðjudag hvers mánaðar,
kl. 8 að kveldinu.
Ungmennafélagið: Yngri deild
— hvert sunnudagskveld
kl. 8.30.
Eldri deild — annað hvert
mánudagskveld kl. 8.15.
Skátaflokkurinn: Hvert fimtu-
dagskveld.
Söngœfingar: Islenzki söng-
flokkurinn á hverju fimtu-
dagskveldi.
Enski söngflokkurinn á
hverju föstudagskveldi.
Sunnudagaskólinn: Á hverjum
sunnudegi, kl. 11 f. h.
DÁN ARFREGN
$447.00
Auk ofangreindra upphæða
meðteknum af Mrs. Skaptason
hefir aðal nefndnini verið af-
hent sem partur af íslenzkum
tillögum, sem fylgir:
Jijdge W. J. Lindal,
Winnipeg .......... $100.00
Ágóði af Silver Tea 125.00
$225.00
Tillög, sem nefndum berast,
verða stanslaust send gjald-
kera yfir-nefndar skólans
(United College) og lögð í hinn
fyrirhugaða sjóð.
Þeir sem máli þessu sinna
eru því beðnir að senda tillög
sín til Mrs. J. B. Skaptason,
sem viðurkenningu gefur fyrir
þeim og biður aðalnefnd skól-
ans, að fénu afhentu, að senda
einum og sérhverjum gefanda
ennfremur viðurkenningu. Til-
lög, sem það er hér um ræðir,
má draga frá árstekjunum, er
skattur er greiddur.
Jóhann Jóhannsson, er í full
35 ár hafði átt heima í Selkirk-
bæ, andaðist að heimili sinu
þar, þann 18. marz, síðdegis.
Um siðastliðin 5 ár hafði hann
verið lasinn meira og minna; 3
síðustu árin leið hann oft mik-
ið, þótt til hins síðasta væri
hann aldrei með öllu rúmfast-
ur.
Hann var fæddur í Núpa-
sveit í Norður-Þingeyjarsýslu,
þann 16. ágúst 1866, en ólst upp
á Daðastöðum þar í sveit. For-
eldrar hans voru Jóhann Árna-
son og Hólmfríður Jónsdóttir.
Hann kom til þessa lands
1889, þá rúmra 23 ára gamall,
settist hann að í Argyle-bygð,
og átti heimili hjá Helgu Stev-
ens, systur sinni, er þar bjó.
Hann giftist þar 1896, eftir-
lifandi ekkju, Kristínu Hafliða-
dóttir, ættaðri úr Mýra- og
Borgarfjarðarsýslu. — Þau
bjuggu í Argyle-bygð um hríð,
en fluttu til Selkirk fyrir meira
en 35 árum síðan. Jóhann vann
árum sarnan á frystihúsum i
Selkirk; en síðar á járnbraut-
inni milli Selkirk og Winnipeg,
og þess utan hverja þá vinnu er
hann gat fengið, meðan kraftar
hans entust. — Mrs. Jóhanna
Walterson, kona C. Waltersorí,
fyr í Selkirk, en nú íGeraldton,
Ont., er dóttir Kristínar konu
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG
ÍSLENDINGA
Forseti: Dr. Richard Beck
University Station,
Grand Forks, North Dakota
Allir Islendingar í Ame-
ríku ættu að heyra til
Þjóðrœknisfélaginu
Ársgjald (þar með fylgir
Tímarit félagsins ókeypis)
$1.00, sendist fjármálarit-
, ara Guðmann Levy, 251
;; Furby St., Winnipeg, Man.
hans, en stjúpdóttir Jóhanns;
reyndist hann henni jafnan
mjög vel og var hændur að
börnum Walterson hjónanna,
er voru honum og konu hans —
ömmu þeirra, einkar hugulsöm
og góð. — Þau eru: Thelma,
Mrs. Murray, Geraldton, Ont.
Kristinn, í herþjónustu á Eng
landi, kv. Mary Bunn; Helgi.
herþjónustu á Englandi, ókv.
; Ralph, Camp Borden, kv.
| Minnie Hampson; Ingunn og
Oddny, í Geraldton, Ont.
Mrs. Walterson, ein af fjöl-
skyldu sinni gat verið viðstödd
útför stjúpföður sins, og staðið
við hlið aldraðrar móður sinn-
ar, ásamt vinum hennar. Út-
förin fór fram frá M. Gilbarts
útfararstofu, mánud. 22. marz
að viðstöddu mörgu fólki.
Jóhann var maður dyggur
til verka og trúr ‘þjónn, um-
hyggjusamur um heimili sitt
og ástvini, og trúr í öllu er
hann tók sér fyrfl hendur.
S. Ólafsson
Hermálasérfræðingur, sem
einu sinn var mjög á móti
Rússum, hrósar nú her þeirra
á hvert reipi, sem ekki er að
furða, þar sem þeir taka hverja
borgina af annari skjótara en
við getum borið þær fram.
Áætlaðar messur í Gimli
prestaka]li,> sunnud. 4. apríl:
Betel, kl. 9.30 f. h.
Gimli, kl. 2 e. h.
S. ÓLafsson
LESIÐ HEIMSKRINGLU—
bezta íslenzka fréttablaðið
CARL SIMONSON
to speak on "Democracy in
Action" at Viking Club Din-
ner Meeting Thur. April 8
in the Picardy Hall,
Broadway Avenue.
Following up /the distinct
success of the first Scandinav-
ian “Get-together” banquet on
January 30, where His Honor
Judge W. J. Lindal in his bril-
liant address “The Roots Lie
Deep” outlined the origin and
the national inheritance of the
Nordic races, the Viking Club
has the pleasure of inviting
our Scandinavian people to án-
other treat at a festive gather-
ing to be held in the Picardy
Salon, Broadway and Colony,
on Thursday, April 8, at 6.45
p.m. '
ÞEGAR BRETAR TÓKU MERSA MATRUH, OG RAKU
ÓVININA Á FLÓTTA
Óvina herinn, á flótta, reyndi að veita þar móstöðu,
en urðu brátt frá að hverfa. Aðalher Breta hliðgekk borg-
ina til flýtis við flóttarekstur óvinanna.* Brátt gafst borgin
upp. Myndin sýnir skriðdreka koma inn í borgin^ eftir
uppgjöf hennar.