Heimskringla


Heimskringla - 28.07.1943, Qupperneq 1

Heimskringla - 28.07.1943, Qupperneq 1
AUKABLAÐ WINNIPEG, 28. JÚLÍ 1943 Hetmöfertnsla KRISTJÁN STEFÁNSSON 19. sept. 1874—6. júní 1943 Dauðinn kemur æfinlega sem óvæntur gestur er hann ber héðan ástvini vora, en aldrei meir en nú, þar sem hann hefir ráðist þrisvar inn á sama heim- ilið og tekið fyrst móður, og þar næst, nokkrum mánuðum seinna, föður, og þremur dög- um eftir jarðarför föðursins, elzta soninn. Þrisvar á tæpum sex mánuðum hefir hann breitt vængi sína yfir það heimili, og borið þaðan burt móður, föður og son,-sem við máttum ekki við að missa úr vorum fámenna hóp íslendinga. Vér sitjum klökk og hljóð, er vér reynum að gera grein fyrir þessum mikla missi, og að skilja það mikla leyndarmál á bak við tilveruna, sem enginn fær skil- ið, og sizt af öllu við slíkum at- vikum og þessum. Móðirin, Rannveig Eiríks- dóttir Stefánsson, dó 18. janúar s. 1. Hennar var minst hér í blaðinu nokkru seinna. Faðir- inn, Kristján Stefánsson, dó 6. júní, og sonur þeirra, Ingi, dó 13. júní, aðeins 35 ára að aldri. Og nú sofa þau öll hlið við hlið, svefn eilífðarinnar, en vinirnir sem eftir eru sakna þeirra sárum söknuði, og sygja með djúpri sorg, og helzt eftirlifandi börn þeirra hjóna, Kristjáns og Rannveigar, og systkini Inga, og eiginkona hans og lítil dóttir. Kristján heitinn var sonur Stefáns Kristjánssonar í Garði, á Þistilfirði Stefánssonar. — Kona Kristjáns í Garði hét Hólmfríður. Móðir Kristjáns isál. var Guðrún Jónatansdóttir Þorkelssonar. Jónatan, faðir ihennar bjó síðast á Flautafelli á Þistilfirði. Kona Jónatans hét Guðleif Jónsdóttir. Kirstján misti föður sinn þegar Ihann var aðeins sex ára að aldri, og nú er móðir hans einnig dáin fyrir mörgum ár- um. Af systkinum hans eru aðeins tvö á lífi, Hólmfríður, ekkja Þorsteins Gíslasonar, sem átti heima í Tantallon, Sask. Hún hefir dvalið á Lund- ar nokkuð undanfarið; og íbróð- ir, Guðmundur, sem á heima á Vestfold þar sem hann hefir búið í meira en 40 ár. Eina systur misti hann fyrir mörg- fe. parbal Funeral Service Winnipeg & Gimli, Manitoba Heilla Ósk \ frá BA Y I □□ □□ 'C'INU SINNI enn—beztu óskir til okkar íslenzku vina á þessurn árlega minn- ingardegi þeirra. Þátttaka sona yðar og dætra í herþjón- ustu, hinn mikli skerfur til sigurlánsins, hin stóru kaup af stríðsmerkjum, tillag yðar til Rauða Krossins og margt annað í þarfir stríðsins, hefir átt sinn stóra þátt í sókninni til sigurs. Kristján Stefánsson 19. sept. 1874—6. júní 1943 Ingi Stefánsson 23. marz 1908—13. júní 1943 □□ □Ð Vér réttum yður hönd í nafni Canada vors sameiginlega fósturlands T'ntiýúity'Bag (Eötnpanjt. um árum, Guðleifu, sem var gift Benjamíni Einarssyni, og tvö önnur systkini dóu í æsku á Islandi. Kristján kom til þessa lands 12 ára að aldri, og fór til móður sinnar sem setst hafði að á Gimli, er hún kom hingað árið áður. Þremur árum seinna fór hann að vinna fyrir sér, og varð að sjá um sig úr þvi. Hann vann hjá ýmsum mönn- um hér í Winnipeg og lærði smíðavinnu, sem hann leysti ætið vel af hendi. Hann sýndi sig vera góður og dyggur verka maður, ráðvandur og ábyggi- legur, og hann vann sér traust og tiltrú allra sem kyntust honum. Árið 1907, 11. maí, kvæntist hann Rannveigu Eiríksdóttur, sem, eins og áður hefir verið getið, var ættuð frá Hræreks- læk í Hróarstungu í Norður- Múlasýslu. Börn þeirra voru alls sex, sem enn eru öll á lífi, nema elzti sonur þeirra, Ingi, sem hér verður minst með nokkrum orðum. Þau sem lifa foreldra sína og elzta bróður, eru: Anna, sem hefir búið í heima- húsum. Stefán, sem er í Canadahernum og hefir verið staddur í Hali- fax, N. S. Eirikur, á Oak Point. Kristján, sem er i hernum, og staddur hefir verið í Barrie- field, Ontario. Guðmundur, i Winnipeg. Auk þessara barna eru fjög- ur barnabörn. Árið 1915 flutti Kristján með fjölskyldu sina út á land vegna vanheilsu og settist að í grend við Vestfold. Hann bjó þar ellefu ár, en eitthvað af þeim tíma lá hann á spítala. Hann var aldrei fullhraustur maður. En hann kvartaði aldrei, og lét lítið á því bera. Árið 1926 flutti hann inn til Winnipeg aftur og Framh. á 10. bls. INGI STEFÁNSSON 23. marz 1908—13 júní 1943 Ingi Stefánsson, sonur Krist- jáns heitins og Rannveigar Ei- ríksdóttur konu hans, var að- eins 35 ára að aldri er hann kvaddi þetta líf. Hann var fæddur í Winnipeg 23. marz, 1908. Hann flutti með foreldr- um sínum út á land til Vestfold þegar þau fluttu þangað 1915, og kom hingað aftur með þeim 1926, og átti heima hér í Win- nipeg úr því, þar til hann flutti austur til Fort William fyrir rúmum þremur árum, í maí mánuði 1940. Skólaganga hans var aðal- lega öll í Winnipeg. Hann gekk á Greenway School og seinna á Jóns Bjarnasonar skólann, þar sem hann útskrifaðist af mið- skóla. Þar að auki gekk hann á skóla í Vestfold, og um tvö ár á Lundar, fyrstu tvö mið skóla ár hans. Seinna lærði hann bankastörf og bókhald eftir tilhlutun bankans sem hann var þá byrjaður að vinna hjá. Þær greinar voru gefnar af Queen’s University í “exten- sion course” formi. 1 fyrstu prófunum sem hann skrifaði í þessum greúnum útskrifaðist hann með heiðri og var næst hæstur allra stúdenta í Canada sem þá voru að taka sömu námsgreinar, og í seinni próf unum útskrifaðist hann einnig með heiðri, og var þá fimti í röð, sem þykir með afbrigðum gott. Sem dæmi þess hve mik- il frammistaða þeirra er metin, sem þannig skara fram úr má geta þess að bankinn borgar til baka öll kenslugjöld svo að námið verði þeim, sem það stunda, kostnaðarlaust. Þannig var Ingi heitinn í háu áliti þeirra, sem hann vann hjá, og einnig samverkamanna sinna. Og hann verðskuldaði að fullu alla viðurkenning sem hann fékk, eins og allir vita sem þektu hann. Fyrir þremur árum, 4. júlí, 1940, kvæntist hann Fanneyju Victoríu Magnússon, dóttur þeirra hjóna Jóhanns Péturs Magnússonar og Ólafar Össurs- dóttur, sem búa hér í Winni- peg. Þau eignuðust eina dótt- ur, Thóru Önnu. Á meðan að Ingi dvaldi í Fort William, gerðist hann meðlimur frímúrara reglunnar. Og hér í Winnipeg áður en hann flutti héðan tók hann drjúgan þátt i ýmsum félags- málum. Hann var, til dæmis, í stjórnarnefnd Sambandssafn- aðar og var gjaldkeri safnaðar- ins, og hann þjónaði þeirri stöðu með samvizkusemi og trúmensku. Hann tilheyrði fé- lagsskapnum sem nefndur er Icelandic Canadian Club, og var forseti þess félagsskapar. Hann var meðlimur einnig í þjóðræknisdeildinni Frón. Oss getur ekki annað en fundist að ef hann hefði fengið að lifa og ihalda góðri heilsu, að hann hefði risið hátt i áliti, ekki aðeins samlanda sinna, en einnig þeirra er hann vann hjá, og þannig, þó að hann væri þegar búinn að vinna sér tiltrú manna, hefði hann risið enn hærra og afkastað miklu og lofsverðu verki, í viðbót við það sem þegar var komið, hon- um sjálfum og þjóð hans til heiðurs og sóma. Vinir hans kveðja hann en geyma minningu hans. Þeir þakka guði fyrir margar fagr- ar endurminningar og fyrir að hafa fengið að njóta hans, vin- semdar hans og hlýleiks. Þeir samhryggjast ekkju hans og lítilli dóttur og rétta út vinar- hendur til þeirra, til að hugga og að styðja á þeim erfiðu stundum, sem hinir komandi dagar munu hafa í för með sér. Kveðjuathöfnin fór fram 18. júní s. 1. frá Sambandskirkj- unni í Winnipeg, að miklum fjölda viðstöddum og jarðsett var í Brookside grafreitnum við hlið föður hans og móður. Útfararstjóri A. S. Bardal sá um útförina. :*3IIIIIIIIIIIIClllllllllllllClllllllllllllC3IIIIIIIIIIIIElllllllllllllC3IIIIIIIIIIIIC]llllllllllll[]lnillllllllC3IIIIIIIIIIIIC3IIIIIIIIIIIIC]IIIIIIIIIIIIC3IIIIIIIIIIIIC3li: ^ Leaders in Quality, j > Courtesy and Service j N i INCORPORATED 2?? MAY 1670. PHONE 201 101 yysccccca&&o&ecccccccccccccaccocccoccccccccccccccccc& RgBS mm oMS «vtA°.5IIt ***** LAKE OF THE WOODS MILLING CO. LIMITED. WINNIPEG Sendið kveðjur FJARLÆGUM KUNNINGJUM OG ASTVINUM MEÐ L0NG DISTANCE TELEPH0NE Iðgjöld vœg eftir kl. 7 e. h. og alla sunnudaga Raust þín ert þú!

x

Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.