Heimskringla - 12.07.1944, Page 8
8. SÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 12. JÚLl 1944
FJÆR OG NÆR
MESSUR I ÍSLENZKU
SAMBANDSKIRKJUNUM
Messa í Árnes
Messað verður í Sambands-
kirkjunni í Árnesi, sunnudaginn
16. júlí, kl. 2 e. h.
★ ★ ★
Messa á Lundar
Séra Halldór E. Johnson mess-
ar í Sambandskirkjunni á Lund-
ar, sunnudaginn 16. júlí á vana
legum tíma. Eftir. messu fer
fram safnaðarfundur. Eru allir
bygðarmenn beðnir að minnast
þess og fjölmenna við messu.
★ ★ ★
Gifting
Fyrsta júlí s. 1. voru gefin
saman í hjónaband af séra E. J.
Melan að heimili hans í Riverton,
Man., Joseph E. Einarson, Ár-
borg, Man., og Christine Anna
Johnson, Árborg, Man. Brúð-
guminn er sonur Mr. og Mrs. G.
O. Einarson, Árborg, en brúður-
in er dóttir Mr. og Mrs. E. L.
Johnson, Árborg. Framtíðar-
heimili ungu hjónanna verður í
Árborg.
★ ★ ★
Mrs. Katrín S. Jóhannson and-
aðist að héimili sínu, 858 Gar-
field St., hér í borginni, föstu-
daginn 7. þ. m. Þessi kona kom
frá íslandi fyrir 43 árum og sett-
ist að í Langruth, Man. Eigin-
mann sinn misti hún fyrir 15 ár-
um síðan, og frá þeim tíma hefir
heimili hennar verið í Winnipeg.
Eftirlifandi fimm börn hennar
eru: Mrs. J. D. McLeod og Mrs.
E. Erlendson, báðar í Winnipeg;
Mrs. G. Garrett, Portage la
Prairie, og tveir synir, Jóhann
og Árni, Langruth, Man.
★ ★ ★
Victory lánið, hið sjötta í röð-
inni, hefir numið $1,407,547.650,
en beðið var um aðeins $1,200,-
000,000. Þetta eru hærri tölur
heldur en getið er um í þríliðu
Eiríks Briem.
★ ★ ★
Mr. og Mrs. Árni G. Jóhanns-
son, Hallson, N. Dak., dvöldu
nokkra daga hér í borginni með-
al vina og kunningja en eru nú
farin heimleiðis, þegar þetta er
ritað.
•>iiiiimmiioiiimiiiiiiuniiiiiiiiii[]iiiiniiiiiiuiiiiMiiiiiiniiiiiiiiiii{.
| ROSE THEATRE 1
I -----Sargent at Arlington------ i
| July 13-14-5—Thur. Fri. Sat. |
| Betty Grabie
George Montgomery =
□ "CONEY ISLAND"
ADDED 5
| "Riders of the Timberline" |
| July 17-18-19—Mon. Tue. 'Wed. n
Sonja Henie—Jack Oakie
"WINTERTIME"
= Craig Stevens—Faye Emerson
"SECRET ENEMIES"
.........MMMUMMM..
Sumarheimili barna
á bökkum Winnipegvatns við
Hnausa, Man., byrjaði starf-
rækslu föstudaginn 7. þ. m. Þann
dag fór hópur stúlkna þangað til
þess að njóta sumarsælunnar og
hvíla sig eftir skólastarf og inni-
setur vetrarins. Eftirlit sumar-
heimilisins er hið ákjósanleg-
asta, svo það er börnunum sann-
arlegur “sólskins-blettur í heiði”
að dvelja þar og njóta gæða lífs-
ins. Næsti stúlknahópur fer
þangað 21. þ. m. Umsóknir
verða að sendast sem fyrst, svo
hægt sé að gera nauðsynlegar
ráðstafanir. — Mrs. P. S. Páls-
son, 796 Banning St., tekur á
móti umsóknum.
* ★ ★
Kominn heim
Pte. Pétur Bjarni Pétursson,
næst yngsti sonur Ólafs og Önnu
Pétursson, ,sem hefir verið
staddur á Englandi rúmt hálft
annað ár, kom heim s. 1. laugar-
dagsmorgun. Hann kom með
skipi sem flutti til Canada ellefu
hundruð þýzka fanga, setn her-
teknir voru í Normandy á
Frakklandi, og var einn yarð-
mannanna sem var yfir þeim á
leiðinni yfir hafið. Hann fær nú
mánaðar frí, en hvort sem hann
verður sendur aftur til Englands
eða verður í herþjónustu hér
heima fyrir, er ekki vitað.
Pétur gekk í herinn 21. júní
1940, og var þá tekinn í Winni-
peg Light Infantry, en tæpu ári
seinna, 23. maí 1941, innritaðist
hann í Royal Canadian Ordnance
corps og er í þeirri deild nú. Til
Englands fór hann með þeirri
deild 13. desember 19942. Hann
er nú,23 ára að aldri. Fæðingar-
dagur hans var 21. júní 1921.
Auk hans, á hinu sama skipi, og
SECOND ANNUAL VIKING CLUB
P-I-C-N-I-C
Saturday, July 15, 1944, beginning at 3 p.m. in the
Vasalund Park, Charleswood.
Nichol's 25-Piece Girls' Brass Band — Combined Scandinavian
Choirs — Scandinavian Community Singing
Guest Speaker: DR. ANDREW MOORE — Subject: "Centenary
of Adult Education in Scandinavia"
DANCE 9—12 p.m. — AL BLOOM’S ORCHESTRA
Extra Bus Serviee from City Limits 2—7 p.m.
Ljettar
SUMAR TREYJUR
til úti brúkunar
Léttar, gulbrúnar baðmullar
treyjur, þægilegar til úti brúk-
unar að sumrinu; algengar
meðal golf-spilara og garð-
yrkjumanna, einnig til skemti-
ferða.
Full lengd “zipper”-bands á-
samt færanlegri mittisól. —
Stærðir 36 til 46. CC QQ
Hver 4>w.UU
Fallegar Oti Buxur
Eftir erfiðan dag á skrifstof-
unni, hvílist í þessum þægi-
legu og snotru útibuxum. —
Stórt úrval af rayon tropicals,
cotton worsteds, flannels og
tennis cords. Mjaðmarvíddir
29 til 40.
$3.95 “‘$11.95
—Karlfatadeildin, The Hargrave
Shops for Men, Aðalgólfi.
T. EATON C°u^
með sömu járnbrautarlestinni,
komu einnig nokkrir særðir og
veikir menn bæði frá Frakk
landi og Italíu.
Daginn áður en Pétur kom
heim, kom Sigurður Gunnar,
bróðir hans, yngsti sonur þeirra
Mr. og Mrs. O. Pétursson, sem
einnig er í hernum, þó aðeins 18.
ára að aldri, og hefir undanfarna
mánuði verið staddur í Halifax.
Hann tilheyrir Royal Canadian
Army Service Corps, og innrit-
aðist í þá deild í byrjun janúar,
þessa árs.
★ ★ ★
Ungfrú Alda Pálsson
dvaldi yfir síðustu helgi, hér í
Winnipeg. Hún hefir í vetur
stundað hljómlistar-nám við
Toronto Conservatory of Music,
Toronto, Ont., í sambandi vil
verðlaun er henni voru úthlutuð
frá þeim skóla. Var þún á heim-
leið til Westminster, B. C., þar
sem foreldrar hennar búa.
Skömmu áður en Alda fór frá
Toronto, var hún valin til þess
að spila á Massey Hall, að til-
hlutan Toronto Conservatory of
Music. Leysti hún hlutverk sitt
þar svo vel af hendi, að með á-
gætum mátti kallast. Fer rit-
dómari “Globe and Mail” þann-
ig orð um hana meðal annars:
“Alda Pálsson sýndi óvenju-
lega lista hæfileika. Eldsnarar,
laðandi, óbrotnar öldur hljóð-
færisins stigu til eyrna þeirra
sem hlustuðu á spil hennar þegar
hún spilaði “the demanding al-
legri moderato of Hummel’s
piano concerto in A Minor” og
kennari hennar, Lubka Kolessa
tók undirspilið.”
Þessi unga námsmey er dóttir
Jónasar Pálssonar piano kenn-
ara og konu hans Emily Bald-
winsön Pálsson, sem nú búa í
New Westminster, B. C. Hefir
Alda lært hjá föður sínum þar til
síðastliðinn vetur að hún stund-
aði nám hjá Madam Lubka Kol-
essa, við Toronto Conservatory
of Music. Heimskringla réttir
henni örvandi hönd, hún er á-
reiðanlega “á framtíðar vegi.”
★ ★ ★
Meðtekið í útvarpssjóð
Hins Sameinaða Kirkjufélags
Mrs. Sigurlaug Knútson,
Gimli, Man. ____________$1.00
Mr. og Mrs. Jón Jónsson, og
fjölskylda, Árnes, Man. 2.00
Mr. og Mrs. J. Ólafsson,
Árnes, Man. ____________ 1.00
Mrs. Guðrún Johnson,
Árnes, Man. _____________ 1.00
Mr. og Mrs. Th. Thorfinn-
son, Mountain, N. Dak. 1.10
Mrs. Elín Björnsson,
Piney, Man. _____________ 1.00
Mr. og Mrs. O. J. Olson,
Steep Rock, Man.________ 1.00
F. E. Snidal,
Steep Rock, Man.________ 2.00
Mr. og Mrs. John Thorsteinson,
Steep Rock, Man. ________ 2.00
Með kæru þakklæti,
P. S. Pálsson,
796 Banning St.,
Winnipeg, Man.
★ ★ ★
Látið kassa í
Kæliskápinn
WvmoIa
M GOOD ANYTIME
The SWAN MFG. Co.
Manufacturers of
SWAN WEATHER-STRIP
281 JAMES ST., WINNIPEG
Phone 22 641
Halldór M. Swan, eigandi
Hjónavígsla
■ laugardaginn 8. júlí fór fram
giftingarathöfn í Sambands-
kirkjunni í Winnipeg er Sgt.
Francis William Jessett og Con-
stance Thorsteinson voru gefin
saman í hjónaband. Brúðurin er
dóttir þeirra hjóna Kolskeggs
Thorsteinson og Sigurlaugar Gil-
bertson Thorsteinson, en brúð-
guminn er af enskum ættum, og
er í flughernum. Ungu hjónin
voru aðstoðuð af Mr. A. Jessett
bróður brúðgumans og Mrs.
Thelma Sonders. Svaramaður
brúðarinnar var faðir hennar.
Séra Philip M. Pétursson fram-
kvæmdi athöfnina. Einsöngur,
Ave Maria eftir F. Schubert var
sunginn af Miss Margery Law,
og Gunnar Erlendsson aðstoðaði
á orgelið.
★ ★ ' ★
Viking Club
Takið eftir Viking Club Picnic,
sem auglýst er. á öðrum stað hér
í blaðinu. Islendingar eru fjöl-
mennasti hópur skandinava hér
í borg, æskilegt er að þeir sæki
þetta mót. Komið til Vasalund
Park, í Charleswood, laugardag-
inn 15. júlí Aðgöngumiðar fást
hjá Björnsson’s Book Store, 702
Sargent Ave.
★ ★ ^ ★
Leiðrétting
1 hinu ágæta erindi dr. Árna
Helgasonar, sem birtist í Hkr.
14. júní s. 1., eru nokkrar prent-
villur sem leiðréttast hérmeð.
1 öðrum dálki, fyrstu málsgr.
bls. 11. stendur: “talin í Banda-
ríkja dollurum, námu viðskiftin
1929 nálega 32 miljónum, útflutt
17.2” o. s. frv. Lesist, “talin í
Bandaríkja dollurum, námu við-
skiftin 1928 nálega 32 miljónum,
útflutt 17.5”, og á sömu bls.
þriðja dálki, 2. málsgrein: “165 J
menn svara til 1% % af öllu fólki
á landinu”, á að vera IV3 af þús-
undi.
Láðst hefir að geta þess, að
nýverið gerði United College,
hér í borginni, séra Harald Sig
mar, að heiðursdoktor í guð-
fræði. Vér flytjum dr. Haraldi
árnaðaróskir vorar í tilefni af
þeirri sæmd sem honum hefir
hér hlotnast.
★ ★ ★
Mrs. Karl Kernested frá Oak
View, Man., er stödd hér í borg-
inni ásamt tveim sonum sínum,
Philip og Valdimar, eru þáu hér
í heimsókn til frænda og vina.
Philip tilheyrir flugliði Canada,
og dvaldi hann um víkutíma
heima hjá skyldfólki sínu.
★ ★ * ★
Mr. og Mrs. Bogi Guðmunds-
son frá Hensel, N. Dak., voru hér
í borginni um s. 1. helgi. Þau
komu hingað norður til að mæta
Mr. og Mrs. Finnboga Guð-
mundsson og Doreen Guðjóns-
son, öll frá Mozart, Sask., er fóru
suður með Mr. og Mrs. B, Guð-
mundsson.
★ ★ ★
Mrs. Geir Thorgeirsson, sem
heima á hér í borginni, fór vest-
ur til Elfros, Sask., s. I. mánu-
dagskvöld í heimsókn til foreldra
sinna, Mr. og Mrs. Tímóteus
Guðmundsson og annara ætt-
menna og vina. Bjóst hún við
að dvelja þar vestra um þriggja
vikna tíma.
Hr ★ ★ ,
Mrs. C. V. Davidson og sonur
hennar, Wayne, frá Central Pa-
tricia, Ont., eru hér á ferðinni í
heimsókn til vina og vanda-
manna hér í bænum og á Gimli.
Mrs. Davidson er dóttir Mr. og
Mrs. Ólafur Bjarnason á Gimli.
W ★ ★
Miss Isabella Hunter frá El-
fros, Sask., er dvalið hefir hér
í borginni um viku tíma í sumar-
f-ríi, fór af stað til Carberry
Man., þar sem hún mun dvelja
fáeina daga á heimleiðinni.
★ ★ ★
Fáein orð til vina Sumar-
heimilisins á Hnausa, Man.
Um leið og eg af alhug þakka
öllum þeim sem að hafa styrkt
Sumarheimilið síðan að það var
stofnað fyrir sjö árum síðan vil
eg nú tilkynna að eg hefi látið af
því starfi að vera fjármálaritari
þeirrar stofnunar. Mrs. Sigríður
Árnason, 1090 McMillan Ave.,
Winnipeg, Man., hefir tekið við
því starfi, og eru allir sem að
vilja hjálpa Sumarheimilinu á
einn eða annan hátt, beðnir að
snúa sér til hennar.
Með beztu óskum,
Emma von Renesse,
Arborg, Man.
★ ★ ★
Vanþakklæti
væri það, ef Heimskringla
leiddi hjá sér að viðurkenna og
þakka, allar þær mörgu umsagn-
ir og vinabréf, sem henni hafa
borist viðkomandi blaðinu sem
helgað var endurreisn hins ís-
lenzka lýðveldis, 17. júní 1944.
Ritstjórar, verzlunarmenn, rit-
höfundar og skáld, utan og innan |
Canada, hafa sent oss vina og)
þakklætisbréf. Vér, aftur á móti'
þökkum þeim öllum góðvild og'
hlýhug.
íslendingadagurinn í Blaine
Þrátt fyrir mikla og. vaxandi
örðugleika með allar samgöng-
ur og mannamót, vegna stríðs-
þarfanna, fanst íslendingadags-
nefndinni hér óhugsandi að fella
niður hátíðahald þetta ár — sig-
urár íslenzku þjóðarinnar. Þetta
þýðir auðvitað það, að menn
verða að leggja þeim mun meira
á sig þjóðrækninnar og vinskap-
arins vegna, jafnvel það, að
ganga einar þrjár eða f jórar míl-
ur ef þörf gerist. Það var sú tíð,
að landinn lét sér ekki slíkt fyrir
brjósti brenna. Nefndin gerir
alt, sem í hennar valdi stendur
til að gera daginn sem ánægju-
legastann, eins og sjá má, meðal
annars, á skemtiskránni á öðrum
stað í þessu blaði. Nú hefir það
einnig sannfrézt, að kvenfólkið
hefir allmikinn viðbúnað hvað
vistir snertir, og mun þar ekki
skorta munntama rétti og seðj-
andi. Sólskinið í Peace Arch
Park hefir ekki brugðist að und-
anförnu, og hyggur nefndin að
svo muni enn verða. Látum nú
sjá hvað landinn getur þegar á
reynir og fjölmennum meir en
nokkru sinni fyr á íslendingadag
á þessu heillaári heimalandsins.
A. E. K.
★ ★ ★
Nýr prestur
Guðfræði kandidat Skúli Sig-
urgeirsson, tók prestvígslu á ný-
afstöðnu kirkjuþingi sem haldið
var í Glenboro, Man. Ráð er
fyrir gert að séra Skúli þjóni
lúterska söfnuðinum á Gimli.
★ ★ ★
Pétur N. Johnson hefir verið
settur pólití í Wynyard í stað Mr.
Smiths, er það var áður en hann
lézt af slysi í mikla veðrinu er
gekk yfir bæinn nýlega. Pétur
er þaulvanur lögregluþjónn frá
Winnipeg og Elfros, og mun enn,
þó aldraður sé, geta sýnt þeim
yngri hvernig þeir eigi að haga
sér.
★ ★ ★
“Brautin” á íslandi
Þetta vinsæla ársrit Hins
Sameinaða Kirkjufélags íslend-
inga, er nú fáanlegt á Islandi. Hr.
Björn Guðmundsson, Reynimelí
52, Reykjavík, annast um sölu og
útsendingu ritsins þar, fyrir!
mína hönd. Þetta eru menn
beðnir að athuga.
P. S. Pálsson
MESSUR og FUNDIR
í kirkju Sambandssafnaðar
Prestur, sr. Philip M. Pétursson
640 Agnes St. Sími 24 163
Messur: á hverjum sunnudegi
Kl. 11 f. h. á ensku
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
Safnaðarnefndin: Fundir 1.
föstudag hvers mánaðar.
Hjólparnefndin: Fundir fyrsta
mánudagskveld í hverjum
mánuði.
Kvenfélagið: Fundir annan
þriðjudag hvers mánaðar,
kl. 8 að kveldinu.
Ungmennafélagið: Yngri deild
— hvert sunnudagskveld
kl. 8.30.
Eldri deild — annað hvert
mánudagskveld kl. 8.15.
Skótaflokkurinn: Hvert fimtu-
dagskveld.
Söngœfingar: Islenzki söng-
flokkurinn á hverju fimtu-
dagskveldi.
Enski söngflokkurinn á
hverju föstudagskveldi.
Sunnudagaskólinn: Á hverjum
sunnudegi, kl. 11 f. h.
The Similkameen Star
er vikublað sem gefið er út í
Princeton, B. C. Þetta blað er í
alla staði vel úr garði gert. Síð-
astliðin 6. júlí flytur það rit-
stjórnargrein um Island, í tilefni
af hinu nýstofnaða lýðveldi. —
Þessa grein nefnir ritstjórinn.
“Elzta þjóðþing og yngsta lýð-
veldi”.
Hér er í örstuttu máli ráktir
aðalþættir sögu íslands frá byrj-
un landnáms og niður til þess
dags sem þjóðin endurheimti
frelsi sitt. Er hér farið svo rétt
með þetta mál, að undrun sætir.
Jafnvel er skýrt þar frá, að Al-
þingi íslands sé hið fyrsta sem
mannkynssagan greinir frá, og
þar af leiðandi séu hin fyrstu
lýðveldis-lög stofnsett þar, og á
þeim sé bygð löggjöf allra lýð-
veldis-ríkja frá upphafi.
Það hlýtur að vera oss öllum
gleðiefni að vita til þess, að jafn-
vel okkur óþekt frétta-blöð, skuli
minnast þessa merka atburðar í
ritstjórnar-dálkum sínum. —
Kæra þökk!
0R útlegð
Kvæðabpk
eftir
JÓNAS STEFÁNSSON
FRÁ KALDBAK
er til sölu hjá höfundinum
að 2907—6th Street, New
Westminster, B. C.
Verð 2 dalir.
íslendingadagurinn í Peace Arch Park
I BLAINE, WASHINGTON, 30. JÚLl 1944
Fojseti dagsins........................Andrew Danielson
Framkvædarnefnd.......Andrew Danielson, Magnús Elíasson,
A. E. Kristjánsson, H. S. Helgason, Mrs. Carl Westman
Söngnefnd....H. S. Helgason, L. H. Thorlakson, E. K. Breidford
Söngstjórar .............—L. H. Thorlakson, H. S. Helgason
SKEMTISKRÁ :
1. Ó, guð vors lands.....................Söngflokkurinn
2. Ávarp forseta......................Andrew Danielson
3. íslenzkir söngvar....................Söngflokkurinn
4. Sandy Bar. ........Kvæði eftir Guttorm J. Guttormsson,
í enskri þýðingu eftir Pál Bjarnason
5. Einsöngur ........ ......Valagilsá eftir Sveinbjörnsson
Ninna Stevens
6. Kvæði: Minni Canada................Ármann Björnsson
7. Ræða: Kyrrahafsströndin.............A. E. Kristjánsson
8. Duet:............Sólsetursljóð eftir Bjarna Thorsteinson
Ninna Stevens og E. K. Breidford
9. Kvæði: Minni Islands.......... Þórður Kr. Kristjánsson
10. Einsöngur............................E. K. Breidford
11. Ávarp.........Arthur B. Langlie, Governor of Washington
12. Ávarp.......Hon. John Hart, Premier of British Columfoia
13. Islenzkir söngvar.................... Söngflokkurinn
14. Einsöngur ...........................Jul. Samuelson
15. Ræða: Minni islands (á ensku).......Einar Símonarsön
16. íslenzkir söngvar,........Undir stjórn H. S. Helgasonar
Allir syngja:
(a) Ó, fögur er vor fósturjörð.
(b) Hvað er svo glatt.
(c) Eldgamla ísafold.
(d) ATnerica
(e) God Save The King.
Pianist....................Mamie Popple Rowlands
Gjallarhorn, undir stjórn Leo G. Sigurðssonar,
flytur skemtiskróna til óheyrenda.
Kapphlaup fyrir börn innan 11 ára.