Heimskringla - 16.08.1944, Blaðsíða 7
WINNIPEG, 16. ÁGÚST 1944
HEIMSKRINGLA
7. SIÐA
BRÉF TIL HKR.
R.R. 1, White Rock, B. C.,
7. ágúst 1944
Kæri ritstj. Hkr.:
Aðeins fáar línur í þetta sinn.
Aðeins að segja fá orð um tíðar-
farið og sumt fleira. Að vísu ber
nú fátt við hér á þessum vestur-;
jaðri veraldar, að minsta kosti
við það sem gerist annarstaðar á
hnettinum.
Af tíðarfarinu er það að segja,
að veðrátta í vor, var með versta
móti um mörg ár, regn ekki stór-'
kostlegt, þó nokkuð og kaldir
vindar og slitur langt fram á vor;
gróðri fór seint fram. En seint í
júní brá til þurka og í júlí urðu
hitar meira en í meðallagi og
tvær síðustu vikurnar meiri hit-
ar en hér eru vanalega, oft dag
eftir dag 85—90 st. í skugga. —
Grasvöxtur varð góður, en hald-
ið að jarðepli og fleira verði í
tæpu meðallagi vegna of fljótra
þurka, þó getur það lagast enn-
þá, ef regn kæmi. Þó er hætt
við að korntegundir verði rýrari
en oft hefir verið, þegar veðrátta
hefir verið jafnari.
Eins og auglýst var í íslenzku
blöðunum, var íslendingadagur
haldinn hér við bæinn Blaine,
sunnudaginn 30. júlí. Það há-
tíðahald fór ágætlega fram, og
heyrði eg menn segja það eitt hið
bezta sem hér hefir verið. Stað-
urinn Samuel Hill Memorial
Park, er á milli toll- og innflutn-
inga stöðva Canada og Banda-
ríkjanna; í gegnum þær varð-|
stöðvar fara engir syndarar, en
garðurinn er á milli og þangað
er öllum frjálst að koma úr hvoru
ríkinu sem er. Það verður á-
reiðanlega skrifað um þessa sam-
komu, svo eg ætla ekki að segja
mikið um hana. — Vil að-
eins geta þess, að mér virtust
allir ánægðir. Veðrið var gott
frekar, fyrri part dagsins voru
sumir hræddir, að myndi rigna
og um hádegið leit sVo út.
En um kl. 1.30 setti forseti,
Andrew Danielson, samkomuna,
og lyfti sínu augliti íbygginn til
himins, og glaðnaði þá yfir veðr-
inu og fólkinu strax.
Kvað þá við ágætur söngur og
ræður á mis, allur söngurinn fór
fram á íslenzku, en ræðuhöld öll
á ensku, nema A. E. Kristjánsson
talaði á íslenzku. Það hafa víst
flestir orðið samdóma um, að all-
ir ræðumenn hafi leyst verk sín
svo vel af höndum að óþarft sé
að sækja ræðumenn langt að.
Aðsókn var allgóð og hefði þó
sjálfsagt verið meiri %ef ekki
hefðu verið óviðráðanlegar
hömlur á flutningstækjum. Á
svona samkomur ættu allir að
koma sem geta.
Garðurinn er hinn prýðileg-
asti, þó ungur sé, og þar er gott
tækifæri að sjá vini sína, og þar
geta allir komið án þess að hafa
vegabréf. Alt prógramið var
búið kl. rúmlega 5, og fór fólk þá
að tínast í burtu.
Mikil samsöfnun er nú á bað-
stöðunum hér við ströndina,
bæði við Crescent og White Rock
og víðar. Bæirnir hálf tæmast
þegar þessir tveir _ mánuðir
standa yfir, sem börnin eru frá
skólunum, enda sýnast nú allir
svo vel efnum búnir að geta not-
ið lífsins, (furðulegt að til þess
skuli þurfa stríð).
Atvinna er nú mikil og kaup-
INNKOLLUNARMENN HEIMSKRINGLU
A ÍSLANDI
Reykjavík ____________Björn Guðmundsson, Reynimel 52
í CANADA
Antler, Sask.......................K. J. Abrahamson
Árnes, Man.......;................Sumarliði J.. Kárdal
Árborg, Man..........................G. O. Einarsson
Baldur, Man.........................Sigtr. Sigvaldason
Beckville, Man.......................Björn Þórðarson
Belmont, Man.............................G. J. Oleson
Brown, Man........................Thorst. J. Gíslason
Cypress River, Man...................Guðm. Sveinsson
Dafoe, Sask...........................S. S. Anderson
Ebor, Man.......................... K. J. Abrahamson
ETros, Sask....................Mrs. J. H. Goodmundson
Eriksdale, Man.......................ólafur Hallsson
Fishing Lake, Sask...._i..............JRósm. Árnason
Foam Lake, Sask........................Rósm. Árnason
Gimli, Man.........................................K. Kjernested
Geysir, Man..........................Tím. Böðvarsson
Glenboro, Man.......................... G. J. Oleson
Hayland, Man.........................Sig. B. Helgason
Hecla, Man..........................Jóhann K. Johnson
Hnausa, Man..........................Gestur S. Vidal
Innisfail, Alta....................Ófeigur Sigurðsson
Kandahar, Sask.........................S. S. Anderson
Keewatin, Ont.......................Bjarni Sveinssor.
Langiaith, Man.................................Böðvar Jórlsson
Leslie, Sask......................:..Th. Guðmundsson
Lundar, Man.............................D. J. Líndal
Markerville, Alta.............. ..Ófeigur Sigurðsson
Moaart, Sask..........................S. S. Anderson
Narrows, Man........................... S. Sigfússon
Oak Point, Man................... _Mrs. L. S. Taylor
Oakview, Man...........................—S. Sigfússon
Otto, Man.........................— Hjörtur Josephson
Piney, Man..............r................S. V. Eyford
Red Deer, Alta.....................Ófeigur Sigurðsson
Riverton, Man........................Einar A. Johnson
Reykjavik, Man........:...............Ingim. Ólafsson
Selkirk, Man..........................S. E. Davidson
Silver Bay, Man...,................—..Hallur Hallson
Sinolair, Man......................K. J. Abrahamson
Steep Rock, Man......................... Fred Snædal
Stony Hill, Man.................................Björn Hördal
Tantallon, Sask..................... Árni S. Árnason
Thornhill, Man.................-...Thorst. J. Gíslason
Víðir, Man.............................Vug. Einarsson
Vancouver, B. C.....................Mrs. Anna Harvey
Wapah, Man.............................Ingim. Ólafsson
Winnipegosis, Man...........................S. Oliver
Wynyard, Sask.........................S. S. Anderson
í BANDARÍKJUNUM
Bantry, N. Dak..........................Í. J. Breiðfjörð
Bellingham, Wash................Mrs. John W. Johnson
Blaine, Wash.....................Magnús Thordarson
Grafton, N. Dak.....................
Ivanihoe, Minn....................Miss C. V. Dalmann
Milton, N. Dak.........................._.S. Góodman
Minneota, Minn....................Miss C. V. Dalmann
Mountain, N. Dak----------------------—.. C. Indriðason
National City, Calif.....John S. Laxdal, 736 E. 24th St.
Point Roberts, Wash....................Ásta Norman
Seattle, Wash.......J. J. Middal, 6723—21st Ave. N. W.
Upham, N. Dak—.........................E. J. Breiðfjörð
The Viking Press Ltd.
Wmnipeg Manitoba
gjald gott, verðlag á framleiðslu
hátt og alt sem keypt er í háu
verði. Heilsufar fólks er yfir-
leitt gott að sagt er; í vetur var
látið illa af heilsu Jónasar Páls-
sonar, hann er nú sagður orðin
jafngóður. Eg get þessa vegna
þess, að eg varð var við, að fólk
vildi ekki missa Jónas strax.
Ekki veit eg hvort fólk efaði af-
gang hans, heyrði engan óska
þess að hann snerist og lifði.
heldur að hann héldi áfram að
vera sami Jónas, sem margiy
hafa þekt svo lengi, reifur og
glaður, — og það hefir fengist.
Nú sem stendur er fátt talað
um stjórnmál og pólitík, enda
umgengst eg lítið stjórnmála-
menn, en blöðin hafa látið þá
skoðun í ljós, að svo geti farið
að fylkiskosningar kunni að fara
fram hér í október, og er haft
eftir C. C. F., að hér muni verða
önnur C. C. F. stjórn í landinu,
og' getur svo farið, einkum ef
liberalar og conservatívar sækja
hvorir á móti öðrum. Þetta síð-
asta kjörtímabil hefir verið sam-
vinna með þessum flokkum, og
ekki farið illa. Stjórnin ekki ó-
aðfinnanleg, en þó mun betri en
oft áður; að C. C. F. flokkurinn
vinni getur verið, en fleðulæti
þeirra við Japaníta gefur þeim
tæpast fylgi, minsta kosti ekki
meðan stríðið stendur yfir.
Sagt er að John Hart, stjórnar-
formaður, sé nú að undirbúa
akur liberala hér og að John
Bracken ætli að láta sína ásjónu
lýsa yfir sína vini hér bráðlega,
og mun það eitthvað þýða.
Hvernig fylkiskosningar fara,
gerir nú minst til, því eins og
lögin eru, getur engin flokkur
gert mikið, sem breytingar geta
talist. Stjórnarskráin kemur í
veg fyrir það. Sambandsstjórn-
in er þar einvöld, annars ætti ait
kosningabrask að bíða þar til
stríðið er búið, það er nóg brúk
fyrir þau útgjöld sem kosningar
hafa í för með sér, sú sem stend-
ur, til annars þarfara en að fylla
vasa óvandaðra pólitískra skrum-
ara.
Nýlega fluttu blöðin þá frétt.
eftir King forsætisráðherra, að
eftir stríðið yrðu margir Japar
fluttir til síns ættlands, og
myndu fáir harma það. En það
er að athuga við þetta, fyrst, að
King telur endir stríðsins nærri;
annað, að hann ætli ekki að
ganga til kosningar í bráðina, ef
hann ætlar að ráða þessu, eða þá
að hann telji sér sigur vísan við
næstu kosningar. En það er nú
hæpið, því þó ljótt sé frá að
segja, eru margir sem halda að
stjórnarreksturinn síðustu árin
hafi ekki verið sú fyrirmynd, að
aðrir gætu ekki gert eins vel.
Að mínu áliti væri b.ezt, að engar
sambandskosningar yrðu'fyr en
eftir stríð. Stjórnarskifti hafa
altaf truflun í för með sér, niður-
rif og starfsaðferðum breytt.
Ókunnugir menn settir í stöður
sem þeir oft eru ekki vaxnir, en
eins og nú stendur, er öllu öðru
nauðsynlegra að vinna stríðið —
og það færi bezt á því, að núver-
andi stjórn bæri ábyrgðina alt í
gegn. Sá flokkur var ekki um-
burðarlyndur í pg eftir hitt stríð-
ið. Það væri því óskandi, að þeir
gerðu nú betur, því svo mikið
sem þá lá við, verður það ekki
minna eftir þetta stríð.
Þetta er nú orðið lengra en eg
ætlaði. Heimskringla hefir ver-
ið hátíðleg og skrautklædd, bæði
fyrir 17. júní og aftur nú 2. ág.,
og bætir það upp fyrir glys-
mangara brækur þær sem hún
var skreytt með á síðustu jólum.
Svo bið eg Heimskringlu að
flytja Sambandskirkjufélaginu
þakklæti fyrir tímaritið “Braut-
ina”, vildi óska að ritið næði
sömu vinsældum og nafna þess.
Vertu svo blessaður, — og fyr-
irgefðu
Þ. G. ísdal
Heimskringla á fslandi
Herra Björn Guðmundsson,
Reynimel 52, Reykjavík, hefir
aðalumboð fyrir Heimskringlu á
íslandi. Eru menn beðnir að
komast í samband við hann, við-
einnig allir þeir sem gerast vilja
kaupendur hennar, hvar sem er
á landinu.
Hr. Guðmundsson er gjaldkeri
hjá Grænmetisverzlun ríkisins,
og þessvegna mjög handhægt
fyrir borgarbúa að hitta hann
Framvegis verður Heims-
kringla fáanleg í lausasölu, hjá
hr. bóksala Lárus Blöndal, Skóla
vörðustíg 2, Reykjavík, Island.
ÞAU BJARGA HUNDRUÐUM MANNSLÍFA—FRIÐARTÍMA
FLUTNINGASKIP BRETA ERU Ntr BJÖRGUNARSKIP
Brezk skip, sem á friðartímum voru notuð sem fólksflutn-
inga- og vöruskip, hafa nú fengið það veigamikla starf, að
bjarga sjóhröktum sjómönnum á höfum úti, er hafa orðið fyrir
ofsóknum óvinanna. Fyrir stríðið voru skip þessi aðeins not-
uð til styttri ferða, en nú fylgja þau flutningalestaskipum
þvert yfir Atlantshaf, sem hjálpar eða björgunarskip er slys
eða ofsóknir bera að höndum, og stundum sem læknaskip við
flutninga særðra hermanna frá einu skipi til annars. Þau eru
útbúin með fullkomnum hospítals áhöldum, skurðarborðum
og læknum, eru mönnuð algengum friðarsjómönnum og hafa
bjargað hundruðum mannslífa síðan í byrjun þessa voða
stríðs. — Hér sézt hvar verið er að taka hrakta dáta úr björg-
unarbát út á regin hafi upp í eitt þessara skipa.
víkjandi áskriftar-gjöldum, og að máli.
Professional and Business
M-Jireeiory %
OrncE Phoní Res. Phonx 87 293 72 409 Dr. L. A. Sigurdson 116 MEDICAL ARTS BLDG. OrricE Hocrs : 12—1 4 P.M.—6 P.M. AND BY APPOINTMENT DR. A. V. JOHNSON DENTIST 506 Somerset Bldg Office 88 124 Res. 202 398
Dr. S. J. Jóhannesson 215 RUBY ST. Beint suður af Banning Talslmi 30 877 Viðtalstími kl. 3—5 e.h. andrews, andrews, THORVALDSON & EGGERTSON Lögfrœðingar Bank of Nova Scotia Bldg. Portage og Garry St. Sími 98 291
DR. S. ZEAVIN Phýsician & Surgeon 504 BOYD BLDG. - Phone 22 616 Office hrs.: 2—6 p.m. Res. 896 Garfield St., Ph. 34 407 DRS. H. R, and H. W. TWEED Tannlœknar 406 TORONTO GEN. TRUSTS „ . BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith St. PHONE 26 545 WINNIPEG
J. J. Swanson & Co. Ltd. REALTORS Rental, Insurance and Financial Agents Simi: 26 821 308 AVENUE BI.DG.—Wiimípeg H. J. PALMASON & Co. Chartered Accountants 1103 McARTHUR BLDG. Phone 96 010
THE WATCH SHOP CARL K. THORLAKSON Dlamond and Wedding Rings Agent for Bulova Watcbes ttarriage Licenses Issued 699 SARGENT AVE Rovatzos Floral Shop 253 Notre Dame Ave., Phone 27 989 Fresh Cut Flowers Daily. Plants in Season We speclaUze in Wedding & Concert Bouquets & Funeral Designs lcelandic spoken
SUNNYSIDE BARBER & BEAUTY SHOP Hórskuráar og rakara stofa. Snyrtingar salur fyrir kvenfólk. Abyggileg og greið viðskifti. Sími 25 566 875 SARGENT Ave., Winnipeg Clifford Oshanek, eigandi A. S. BARDAL ■elur llkkistur og annast um útfar- lr. Allur útbúnaður sá besti. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarða og legsteina. 843 SHERBROOKE ST. Phone 86 607 WINNIPEG
H. HALDORSON BUILDER 23 Music and Arts Building Broadway and Hargrave Phone 21455 Winnipeg, Canada Union Loan & Investment CÖMPANY Rental, Insurance and Financial Agents Sími 23 631 510 Toronto General Trusts Bldg.
CANADIAN FISH PRODUCERS, LTD. J. H. Page, Managing Director Wholesale Distributors of Fresh and Frozen Fish .311 CIIAMBERS ST. Office Phone 86 651 Res. Phone 73 917 GUNDRY-PYMORE Ltd. British Quality - Fish Netting 60 Victoria St., Winnipeg, Man. Phone 98 211 Manager: T. R. THORVALDSON Your Patronage Will Be Appreciated
ÁSGEIRSON’S PAINTS AND WALL PAPER 698 SARGENT AVENUE Winnipeg, Man. Telephone 34 322 Halldór Sigurðsson General Contractor ★ 594 Alverstone St., Winnipeg Sími 33 038
LIST YOUR PROPERTY FOR SALE WITH Home Securities Ltd. REALTORS 468 Main St., Winnipeg Leo E. Johnson, A.I.I.A., Mgr. Phones: Bus. 23 377—Res. 39 433 A. SAEDAL PAINTER & DECORATOR ★ Phone 29 654 ★ 696 Simcoe St., Winnipeg
lOKSTOREi
702 Sargent Ave., Winnipeg, Man.