Heimskringla - 11.10.1944, Síða 5
WINNIPEG, 11. OKT. 1944
]
HEIMSKRINGLA
5. SIÐA
Bregst því ei, þótt blási í móti
1 byijasömu þjóölífsróti.
Ver trúr, — og Guð þér gefur
náð.
Hann blómgast lætur bygð.
Ó, bind við land hans trygð.
Hýrð sé drottni.
Þú æsku sveit
streng heilög heit:
Gjör ísland sannan unaðsreit.
Burt með sérhvert haft og helsi,
sem hindrar mannlegt þroska-
frelsi
og líf, sem hæfir hefðarþjóð.
Hver sá hlýtur gróna gremi,
sem gleymir trygð og ræktar-
semi
við áa sinna ættarslóð.
Vér þráum þjóðarvor
nieð þroska og frægðar spor.
Drottinn, Drottinn.
Þú, Guð vors lands, —
. þú Guð hvers lands, —
þú styður veldi vorhugans.
Drottinn Guð, vér krjúpum —
köllum
°g klökk á þínar skarir föllum.
Ó, heyr, Guð Drottinn, hjartans
mál:
Bar um hjörtun helgum eldi,
sem helgi íslenzkt þjóðarveldi
°S -jómi skært um Atlantsál.
Gef farsæld, frið og náð.
Gef frægð og nýja dáð.
Drottinn, Drottinn.
•^ó, líknin trú
sért lofuð nú.
— Lýðveldið Island blessa þú!
Fréttir f rá
þjóðræknisdeild-
INNI “ALDAN”
að Blaine, Wash.
Nýlega hélt hin nýstofnaða
Pjóðræknisdeild í Blaine, Wash..
sinn fyrsta reglulega fund sem
fullkomlega myndað félag.
Fundarstaðurinn var Oddfel-
lows húsið í Blaine, og séra Al-
bert Kristjánsson, forseti deild-
arinnar, stýrði fundi.
Bitari las fundargerning frá
stofnfundi deildarinnar 28. maí
s- h, sem var samþyktur í einu
hljóði og staðfestur með undir-
skrift forseta.
Allar nefndir sem kosnar voru
a stofnfundinum reyndust að
bafa starfað vel og dyggilega.
Fyrst var það laganefndin sem
lagði fram fyrir fundinn hið nýja
lagaform, (constitution) í 13 lið-
ótal fleiri stöðum. Ræður fluttu
þeir séra Albert Kristjánsson,
hr. Andrew Danielson og séra
G. P. Johnson. Islenzku þjóð-
söngvarnir voru sungnir með lífi
og fjöri undir leiðslu tónskálds-
ins Sigurðar Helgasonar. Líka
söng okkar ágæti sóló-söngvari,
Elías Breiðfjörð marga fallega
einsöngva sem allir dáðust að.
Kvæði bárust frá íslenzku skáld-
unum okkar í Vancouver, hr.
Páli Bjarnasyni og hr. Jónasi S.
frá Kaldbak. Kvæðin voru les-
in upp af forseta hátíðarinnar
séra A. K. og var skáldunum
klappað mikið lof í lófa. Kvæð-
in sendast hérmeð til birtingar í
íslenzku vikublöðunum. Veit-
ingar voru hinar ágætustu í alla
staði, og ekki má gleyma góða
skyrinu hennar frú Halldór
Björnsson, með hnausþykkum
rjóma og sykri út á. Já, skyrið
var svo ljúffengt að hvert andlit
ljómaði af ánægjubrosi, sumir
segja að það hefði átt að vera
búið að skrifa um skyrið hennar
frú Björnsson fyrir löngu síðan.
Fundurinn samþykti í einu
hljóði að þjóðræknisdeildin
Aldan, að Blaine, Wash., bæði
um inngöngu í Þjóðræknisfélag
Islendinga í Vesturheimi, og var
forseta, skrifara og gjaldkera
falið að vinna að því sem fyrst.
Tvö merk mál voru rædd á
fundinum, fyrst að Aldan beitti
sér fyrir því að íslenzku skóli
verði byrjaður sem fyrst í
Blaine, og að Aldan beiti áhrif-
um sínum í þá átt að sett verði á
stofn heimili fyrir aldrað ís-
lenzkt fólk í Blaine. Flutnings-
maður þessara mála var séra G.
P. Johnson og gaf hann all ítar-
lega skýringu þessum málum
til stuðnings.
Þegar séra Guðmundur lauk
máli sínu þakkaði forseti, séra
Albert Kristjánsson, málshefj-
anda fyrir góða skýringu á
tveimur nauðsynjamálum sem
væru nú í tíma töluð, í íslenzku-
kenslumálinu var kosin nefnd
til þess að athuga mögulegleika
fyrir framkvæmdum á því, í
nefndinni eru séra Albert Krist-
jánsson, frú Gestur Stefánsson
og séra Guðm. P. Johnson. —
Seinna málið var lagt yfir til
næsta fundar. Fundurinn var
í alla staði skemtilegur og ein-
ingarandi ríkti í fylstu merk-
ingu. Næsti fundur verður hald-
inn seint í okt.
um, mjög vönduð og vel viðeig-
andi félagslög, sem reyndust
vera í nánu samræmi við alls-
berjar lög Þjóðræknisfélags ís-
lendinga í Vesturheimi, og eftir
nokkrar umræður og athuga-'
semdir þá voru lögin samþykt í
einu hljóði. Það er því aðeins
fyrsti liðurinn í lögum þessum 1
sem þörf er að minnast á hér, i
Það er nafn deildarinnar, “Ald-
an , nafnið þótti vel við eiga og
er líka í insta eðli sínu alíslenzkt.
Nafnið var viðtekið af fundar-
mönnum með fögnuði og dynj-
andi lófaklappi.
^ laganefndinni voru þeir séra
Albert kristjánsson, hr An-
drew Danielson og hr. Sigmund-
nr Laxdal.
Útbreiðslunefndin hafði starf-
að með miklum dugnaði síðan
28. maí, og hafði hún fengið
^arga nýja meðlimi inn í félag-'
ið svo á þessum fyrsta formlega 1
undi deildarinnar reyndist J
meðlimatalan að vera komin
yfir 70, og skulu þeir allir kall-
ast stofnendur þessarar deildar,
1 nefndinni eru hr. Guðjón
ohnson, hr. Sigmundur Laxdal
ög frú Anna Kristjánsson.
skilaði af sér undirbún-
ingsnefndin, sem hafði á hendi
a lan undirbúning fyrir hátíða-
haldið 17. júní s. 1. Sú nefnd
hafði starfað með afbrigðum vel,
enda lánaðist hátíðahaldið í
Blaine 17. júní ljómandi vel,
Oddfellows húsið var yfir fult
með fólki svo ekki höfðu ná-
laegt því allir sæti sem þá hátíð-
legu stund sóttu. Þar var fólk
frá Winnipeg, frá Vancouver,
H. C., frá Californíu, Seattle og
Allir Islendingar í Blaine og
bygð, einnig í Bellingham, White
Rock og Point Roberts, eru beðn-
ir að ganga í Þjóðræknisdeild-
ina “Aldan”. Allir Islendingar í
Marietta hafa skrifað sig inn í
félagið,
Aldan er ykkar Þjóðræknis-
félag á Kyrrahafsströndinni,
góðu landar, komið strax og
takið til starfa, því nóg er að
gera.
Guðm. P. Johnson,
ritari. I
FJÆR OG NÆR
Islenzk stúlka óskast í vist á
heimili íslenzkrar kaupsýsluf jöl-
skyldu í New York. Kaup gott
og fargjald til New York greitt
Stúlkan þarf að vera myndarleg
í sér og geta leyst hússtörf vel af
hendi. — Heimskringla vísar á.
★ ★ * *
Brautin
Ársrit Sameinaða Kirkjufé-
lagsins, er til sölu hjá:
K. W. Kernested, Gimli, Man.
S. S. Anderson, Kandahar, Sask.
Valdi Johnson, Wynyard, Sask.
Gísli Guðjónsson, Mozart, Sask.
Jón Ólafsson, Leslie, Sask.
Thorsteinn J. Pálsson, Hecla,
Man.
M. Thordarson, Blaine, Wash.
Björnssons Book Store, 702 Sar-
gent Ave., Winnipeg.
Ófeigur Sigurðsson, Red Deer,
Alta.
E. E. Einarsson, 12 E. 4th Ave.,
Vancouver, B. C.
Viking Press Ltd., 853 Sargent
Ave., Winnipeg, Man.
FJALLKONAN FRJALS
Heill sé þér á heiðursdegi,
Hafi girta fjalla drotning!
Einni þér nú allir hneigi
Andlit sín í djúpri lotning.
Síðan Hjálmar heitinn krafði
Hjálpar-eið af guði sínum,
Framgang þinn og frelsi tafði
Forað margt á vegi þínum.
Gegnum hungur, bál og bylji
Barstu flest þín mein í hljóði.
Frelsisþrá og fastur vilji
Fyltu brjóstið guðamóði.
Meðan lýðir, lostnir æði
Löðra jörð í sif ja blóði,
Af þér kross og konungræði
Kaupir þú með andans sjóði.
Þjóðræðis og þinga móðir,
Þú ert enn þá leiðarstjarna;
Eins og blys um andans slóðir,
Áttaviti lífsins barna.
Fúna menning fyrri alda
Flúðir þú með ljósið dýra.
Oft þó gildi illra valda,
Altaf blakti nokkur týra.
Nú er síðsta skugga-skýið
Skafið burt af himni þínum,
Þar, sem fyrsta frelsis-vígið
Forðum stóð í ljóma sínum.
—P. B.
17. JÚNÍ 1944
Horf langt yfir alheiminn, íslenzk þjóð,
ver aflstöð, sem hækkar þann lága.
Þú samdir um aldirnar sögur og ljóð,
og sýndir í fjarskanum bláa:
að andi, sem fóstraði ís og glóð,
á orku, að gefa þeim smáa.
Við fögnum af alhuga frelsinu því,
sem fangajárn stjórnarfars brýtur;
þó enn byrgi himininn önnur ský,
er óveðurs-stormurinn þýtur,
sem svæfir í fæðingu sannindi ný,
og samúð af rótinni slítur.
Hið sannasta frelsi á sigurbraut
er samstilling hugsananna,
sem gleyma því hvorki í gleði né þraut,
að guð er í sálum manna,
sem horfa langt yfir himinskaut
og huldu vegina kanna.
Við óskum að kreppi þig engin bönd,
vor íslenzka, hjartkæra móðir.
Við sendum þér kveðju af Kyrrahafsströnd,
— á krossgötum tímanna hljóðir.
Við réttum þér öll yfir hafið hönd,
og himnarnir verndi þig góðir.
J. S. frá Kaldbak
Björn Guðmundsson, Reynimel
52, Reykjavík, Iceland
B. Eggertsson, Vogar, Man.
F. Snidal, Steep Rock, Man.
Guðjón Friðriksson, .Selkirk,
Man.
Björn Björnsson, Lundar, Man.
Mrs. Guðrún Johnson, Árnes,
Man.
B. Magnússon, Piney, Man.
T. Böðvarsson, Geysir, Man.
G. O. Einarsson, Árborg, Man.
Einar A. Johnson, Riverton,
Man.
Ch. Indriðason, Mountain, N. D.
J. J. Middal, Seattle, Wash.
Gunnar Matthíasson, Inglewood,
Calií.
Hænan: — Eitt gott ráð skal
eg gefa þér, ungi litli.
Unginn: — Og hvað er það?
Hænan: — Eitt egg á dag
heldur slátraranum í hæfilegri
fjarlægð.
* * *
Hún: — Eg verð að segja þér
það, pabbi er orðinn gjaldþrota.
Hann — Þetta vissi eg altaf
að hann myndi finna upp á ein-
hverju til þess að stía okkur í
sundur.
Heimskringla er til sölu hjá
hr. bóksala Árna Bjarnarsyni,
Akureyri, Island.
BAILEY-BRYGGJAN HJÁLPAR VIÐ FRAMRÁS
ATTUNDA HERSINS
Þegar alt hafði verið undirbúið kom herbrynjuð Suður-
Afríku herfylking og hertók hina mjög svo áríðandi brog,
Orvioto, sem er sjötíu mílur norður af Rómaborg. Þetta skeði
þann 14. júní s. 1. Orvioto stendur á bökkum Piano Nuove-
árinnar. Fólkið í borginni fagnaði mjög komu þessara Suður-
Afríkumanna. — Myndin sýnir hvar heljar miklir skriðdrek-
ar eru að fara yfir eina hinna þriggja Bailey-bryggja, er
bygðar voru í stað þeirra er hinir flýjandi Þjóðverjar sprengdu
í loft upp, áður en þeir yfirgáfu borgina að fullu, skamt fyrir
utan borgina sjálfa.
FRÆÐSLUSTARF
í íslenzku, sögu Islands
og bókmentum
Eins og getið var um í blöðun-
um í vor hefir Icelandic Canad-
ian Club í samráði við Þjóðrækn-i
isfélagið ákveðið að setja á stofn
fræðslustarf í íslenzku sem hefst
nú í þessum mánuði. 1 nefndinni
sem starfar að þessu máli eru:
W. S. Jónasson, séra H. E. John-
son og Hólmfríður Danielson
fyrir hönd Icel. Can. Club og
Ingibjörg Jónsson og Vilborg
Eyjólfson fyrir hönd Þjóðrækn-
isfélagsins. »
Nefndin bygði á þeim grund-
velli að ekki væri nægilegt að
kenna aðeins ísl. mál þar sem
mikil nauðsyn er á því að kynna
ísland yngra fólkinu og vekja
áhuga þess fyrir menningar-
erfðum síns eigin stofns. Var
því afráðið að samhliða ísl.
kenslunni skildi vera fyrirlestr-
ar á ensku sem fjalla um íslenzk
efni, sögu, bókmentir, o. s. frv.
Við sem störfum í nefndinni
höfum hlotið allmikla hjálp og
uppörfun frá okkar allra fær-
ustu mentamönnum hér sem
skilja vel hve afar nauðsynlegt
er að gefa yngri kynslóðinni
tækifæri að kynnast ættlandinu
og fræðast um menningu þess;
og eru þeir einróma um það að
þessi viðleitni muni ná miklum
vinsældum.
Fyrirlestrar þessir og fræðslu-
starf verður einnig til þess að
vekja áhuga hjá foreldrum til
að senda börn sín á laugardags-
skólann og stuðla að stofnun ísl.
kenslu við Manitoba háskólann.
Starf þetta hefir ekkert verið
auglýst enn, þó hafa komið um-
sóknir úr öllum áttum frá yngri
og eldri sem vilja njóta þessar-
ar uppfræðslu. Nokkrar annara
þjóða konur sem giftar eru ís-
lenzkum mönnum eru nú þegar
skrásettar á nemenda skránni.
Starfið hefir nú verið skipu-
lagt og hefst mánudagskveldið
23. okt. í fundarsal Fyrstu lút.
kirkju. Fyrirlestrar verða tólf
að tölu og er þeim svo tilhagað
að þeir gefa gott heildaryfirlit
yfir sögu og bókmentir Islands.
Kenslustundir verða tvisvar í
mánuði. Hinir fróðustu og
snjöllustu menn og konur sem
völ er á hafa lofað að flytja fyr-
irlestra og er það gott merki
þess hvaða álit þeir hafa á þessu
starfi, og erum við þess fullviss
að ísl. almenningur hefir svo
mikinn áhuga fyrir þessum mál-
um að tækifæri annað eins og
þetta verður vel notað.
Til þess að gefa sem flestum
færi á að nota kensluna, verður
skrásetningargjald mjög lágt,
aðeins $2.00 fyrir alt kenslu-
tímabilið; en fyrirlestrar verða
opnir fyrir almenning og að-
gangur 25c fyrir þá sem ekki eru
skrásettir.
Allar upplýsingar fást að 869
Garfield St., sími 38 528. Einn-
ig verður starfið betur auglsýt í
næstu blöðum. Munið eftir deg-
inum, 23. okt. kl. 8 e. h., og hent-
ugast væri að skrásetjast fyrir
þann tíma.
Hólmfríður Danielson
Ingibjörg Jónsson
Gesturinn: — Mér þykir
þjónustustúlkan haga sér frekju-
lega gagnvart yður.
Húsmóðirin: — Já, en maður
verður að þola gömlum hjúum
margt. Hún er búin að vera hjá
mér í þrjá mánuði.
★ ★ ★
Dómarinn: — Hefir ákærði
nokkuð fram að færa áður en
dómur fellur?
Ákærði: — Ekki nema það,
herra dómari, að eg er lítillátur
maður og mun þessvegna gera
mig ánægðan með lítið.
★ ★ ★
Bílstjóri (eftir að hafa ekið á
slátrarasendisvein): — Er nokk-
uð að þér?
Drengurinn: — Við skulum
sjá, hérna er lærið og þarna er
lifrin, en hvar eru nýrun.
Mrs. B. Mathews, Oak Point,
Man.
★ ★ ★
Kaupi
Neðanmálssögur “Heims-
kringlu” og “Lögbergs”. Verða
að vera heilar. Má ekki vanta
titilblaðið.
Björnsson’s Book Store
702 Sargent Ave., Winnipeg
★ ★ ★
Mrs. J. B. Skaptason, 378
Maryland St., Winnipeg, mælist
til þess, að þeir sem ekki hafi
greitt áskriftargjald ritsins
“Hlín”, sendi það sem fyrst, svo
hægt sé að koma því heim fyrir
áramót.
★ ★ ★
Framvegis verður Heims-
kringla fáanleg í lausasölu, hjá
hr. bóksala Lárus Blöndal, Skóla
vörðustíg 2, Reykjavík, Island.
/