Heimskringla - 14.02.1945, Síða 1

Heimskringla - 14.02.1945, Síða 1
We recommend tor Your approval our "BUTTER-NUT LOAF" CANADA BREAD CO. LTD. Winnipeg Phone 37 144 Frank Hannibal, Mgr. vVe recommend íor your approval our " BUTTER-NUT LOAF" CANADA BREAD CO. LTD. Winnipeg Phone 37 144 Frank Hannibal, Mgr. + —----—■— ------ LIX. ÁRGANGUR WtNNIPEG, MIÐVTKUDAGINN.14. FEBRÚAR 1945 NÚMER 20. Dr. C. H. Thordarson látinn Bættar póstsamgöngur Dr. C. H. Thordarson 1 gær barst Heimskringlu sú frétt, að Dr. Hjörtur Thórðarson í Qhicago, hugvitsmaðuirinn þjóðkunni, hefði látist 6. febrúar s- 1. og verið jarðaður 10. þessa rnánaðar. Fréttin barst hingað í pnívat bréfi og höfum vér ekki annað en hér er skráð úr því frétt. En Una þennan mikla mann og hið úöllaukna starf Ihans, verður ef- laust síðar skrifað. Dr. Thórðarson var fæddur 12. naaí 1867 á Stað í Hrútafirði og fluttist vestur um 'haf 1873, þá sex ára gamall. Hér lagði hann fyrir sig raffræði og kom á fót rafstofnun í Ohicago, sem talin var ein hin stærsta í þeirri miklu borg. Hana starfrækti hann til hins síðasta. Bókamaður var hann mikill og átti eitt hið verð- mesta bókasafn, sem nokkur ein- staklingur í Bandaríkjunum hef- ir átt. Gáfur, stóóhugur og at- orka einkendu hann mjög enda var hann viðurkendur fyrir starf sitt af mentastofnunum með nafn'bótum (þar á meðal doktors- nafnbót frá einni) og ýmsum öðrum heiðri. Hinn látna lifa kona hans, Júlíana Friðriksdóttir, Gíslason- ar verzlunarmanns í Reykjavík og tveir synir, Dúi og Tryggvi. Það hafa margir frumherjanna íslenzku hér unnið sér og þjóð- flokki sínum heiður með starfi sínu og gáfum. Dr. Thórðarson mun ávalt verða talinn framar- lega í hópi þeirra. iFRÉTTAYFIRLIT 0G UMSAGNIR Berlín býst til varnar Eftir mikið skraf um fall Ber- Lnar, er nú haldið fram, að Þjóð- v®rjar séu-að búa sig þar til öfl- ugrar varnar. Fimtán herdeild- lr af vösku varnarliði eru nú sagðar þar til staðar, og eru að §®ra borgina að óvinnanlegum berkastala, að því er nazistar 'herma. Um 3 miljónir manna I*jnggu í borginni eftir spreng- lngarnar miklu, en með herlið- lnu nú er sagt þar séu um 1 ^úljónir. Úr útjöðrum borgar- lnnar er alt fólk rekið og þar er verið að gera regluleg Sieg- fried-varnarvirki. Það er að- eins eitt sem að er, og það er f^ðuskortur og óhugur íbúanna, Sem í rauninni sjá ekkert nema úauðan framundan. En Hitler ^efir skipað svo fyrir, að skjóta skuli hvern þann, sem kvarti eða óhlýíjnist að taka þátt í Vernd borgarinnar. Ymsir ætla, að þetta verði að- eins til þess að flýta fyrir því, bylting milli hersins og ungraðrar alþýðu brjótist út. _ þess sé hvergi líklegra en nú í Berlín. Yalta-fundinum Loksjns hafa nf, verið birtar réttir af fundinum, sem Chur- , iii, Stalin og Roosevelt hafa ait með sér undanfarna 8 daga. Forkólfarnir héldu fundinn í Yalta, borg á Krímskaga austan- verðum. Samkomulag var hið bezta og málin rædd, sem mestu varða og marga>r samþyktir gerð- ar. Eru þessar helztar. 1. Að flýta strtíðinu á Þýzka- landi. (Hvaða ráða forklófarnir 'hafa hugsað sér að grípa til, er ekki neitt sagt um. Blöð í Lon- don hafa verið undanfarið að spá innrlás í Noreg og Dan- mörku, en hvort það var þarna nefnt veit enginn). 2. Ákveðið var að brytja Þýzkaland upp í þrjú fylki eða meira og hefðu Bretar, Rússar og Bandaríkjamenn eftirlit með sínu hver. 3. Nefnd verður skipuð í Moskva til að meta skaðabæt- urnar, sem Þjóðverjar skulu borga — að líkindum í vörum og vinnu. 4. Póllands-málið urðu sætt- ir um í öllum aðalatriðum undir forustu Lublin-stjórnarinnar. — Rússar áskilja sér landamæri á Curzon-línunni og var ekki á móti því haft af Churchill eða Roosvelt. Vilna og Llow til- heyra með því Rússlandi* 5. 1 Júgóslavíu situr við það sem komið er með Tito sem stjórnanda og undir eftirliti Rússa, sem Pólland. 6. Áframhald funda þriggja Bréf frá Sendiráðinu í Washington 5. febrúar 1945 Herra ritstjóri: Sendiráðið óskar þess, að lesendum íslenzku blaðanna sé gert það kunnugt, að á lok janúarmánaðar hófust reglulegar sendingar flugpósts milli New York og íslands. Verða fyrst um sinn flutt 100 pund af pósti vikulega til íslands og frá Islandi. Bréf á milli landanna ættu nú ekki að vera lengur en viku á leiðinni í stað þess að bréfin voru oft áður tveggja til þriggja mánaða gömul er þau náðu viðtakanda. Fyrsti almenni flugpósturinn var sendur frá íslandi þann 25. janúar. Til gamans skal skýrt frá því að þann dag ritaði póst- og símamálastjóri Guðmundur Hlíðdal mér bréf og var það móttekið í New York 27. janúar, en bréfið barst mér ekki í hendur fyr en 1. febrúar og hafði það því verið meira en helmingi lengur á leiðinni frá New York til Washington en frá Reykjavík til New York. Þá vil eg ennfremur skýra Trá því að Alþingi samþykti einróma hinn 24. janúar heimild fyrir ríkisstjórn Islands til að gera samning við ríkisstjórn Bandaríkjanna um loftflutn- inga. Samkvæmt þessari heimild voru samningar um þetta efni formlega undirritaðir í Reykjavík hinn 27. janúar af sendiherra Bandaríkjanna í Reykjavík Mr. L. G. Dreyfus og utanríkisráðherra Islands Ólafi Thors. Samningurinn gekk í gildi hinn 1. febrúar, en ekki er búist við að reglulegar flugferðir geti hafist fyr en að lokinni styrjöldinni í Evrópu. Bandaríkin hafa mikinn hug á flugi til Íslands og áfram til Evrópu og Islendingar hafa í hyggju að reka flugferðir með eigin flugvélum og íslenzkum áhöfnum milli Islands og Ameríku. Hér með sendist eintak af samningnum milli ríkjanna eins og hann var lagður fyrir Alþingi og einróma samiþyktur þair. Með beztu kveðjum, Thor Thors forkólfanna eða ritara þeirra, á þriggja eða f jögra mánaða fresti. Fyrsti fundurinn verður í Lon- don á miðju þessu ári. 7. Þá komu forkólfarnir þrír sér saman um að halda áfrani Dumharton Oaks-fundinum unz leið er fundin er allir eru sam- mála um. Á því skal byggja friðinn í framtíð. 8. Að forkólfarnir eigi sam- vinnu um, að lönd, sem undan kúgun hafa verið leyst, komi á fót hjá sér lýðfrjálsri stjórn. 9. Með sigri nú og Dumbar- ton Oaks samtökunum, segja forkólfarnir að verulegra spor hafi stigið verið til að koma á varanlegum friði, en nokkru sinni áður í mannkynssögunni. Flugslys Flugskip, er 10 menn áf fylgd- arliði Churchills á fundinn á Krímskaga voru með, fórst yfir Miðjarðarhafinu 7. febrúar. — Fimm af farþegunum fórust, en 5 björguðust, meiddir. OMuleysi er kent um að skip- ið fórst. Á því var ein stúlka frá Win- nipeg, er á stjórnarskrifstofu starfaði í Englanid. Kveður King? I blaði frá Ottawa s. 1. fimtu- dag var hermt að mikið væri eystra talað um að Mackenzie King mundi segja af sér forustu liberal flokksins áður en kosn- ingar færu fram. Bætti blaðið við: Geri hann það, mun annað hvort Mr. Isley eða Mr. Howe setjast í stóMnn; þeir virðast hafa svipað fylgi. Frá stríðinu Það virðist hafa gengið hægt og bítandi síðustu daga í stríð- inu. Um nýja sókn getur þar lítið, nema ef vera skyldi á vest- ur-vígstöðvunum, þar sem frétt- ir víkjfi að því að Siegfried-virk- in hafi verið klofin. Rússar eru á næstu grösum við Berlín, en um nýja sókn eða sigra getur þar ekki s. 1. viku. ÍSLENZKIR AFREKS- MENN í “CURLING” Sagt hefir verið að Winnipeg sé mesta “Curling” íþróttaborg heimsins, og farið er eftir fjölda “curMng” flokkanna sem sækja 'hið mikla “curling”-mót, sem kallað er “Bonspiel” á ihverjum vetri. “Bonspiel-ið” stendur nú yfir, alls hafa sótt það 350 ‘rinks’ eða flokkar alstaðar að úr Mani- toba og nágranna fylkjunum, og þar að auki frá Minneap>oMs. — Alls eru þessvegna um 1400 manns sem keppa í þessu móti. Og þar á meðal eru nokkrir ís- lendingar. Þeir sem vér höfum orðið varir við, eru þessir utanbæjarmenn: B. Egilson, K. Torfason, T. Ellison frá Gimli; H. Thorsteinsson, E. Dalhlman, S. O. Thompson, S. R. Sigurðs- son og V. Árnason frá Riverton; R. F. Pétursson frá Fort William. Einnig eru nokkrir Islendingar sem í Winnipeg eiga heima, sem eru að taka þátt í samkepninni. Meðal þeirra eru Leo. Johnson, Lincoln Johnson, Marino Fred- erickson, Hannes J. Pétursson og ef til vill fleiri. Eins og menn muna eftir vann Leo Johnson og þeir sem með honum voru, fyrstu verðlaun 1936, og ferðuðust þeir þá austur til Toronto þar sem þeir báru aftur sigur úr bítum og hlutu fyrstu verðlaun fyrir alt Canada. Leo Johnson vann fyrstu verðlaun aftur 1941 í samkepninni hér í Winnipeg og hefði ferðast aftur austur til að keppa þar eins og í fyrra skiftið, en þeim ferðum og þeirri sam- kepni hefir verið frestað þangað til eftir stríðið. Um það leyti að þessi orð birt- ast á prenti verður samkepnin hér næstum því á enda og út- kljáð að mestu leyti hverjir verði sigurvegarar. En vonað er að íslendingunum gangi vel og að þegar heim er farið þeir beri allir sigurmerki á skildi. P. M. P. GIFTING Dr. og Mrs. Dallas Medd Síðast liðinn föstudag voru gefin saman í Fyrstu lútersku kirkju í Winnipeg, Miss Guðrún Lína May ísfeld og Dr. Dallas Medd. Giftingarathöfnin var hin prýðilegasta og í kirkjunni var nálega hvert sæti skipað. Séra Valdimar J. Eylands gifti. Brúðurin er einkadóttir Eric Isfelds, forstjóra Central Dairies Ltd., og konu hans Mrs. V. B. Is- feld, pianokennara í þessum bæ. May er útskrifuð áf Manitoba- háskóla og lagði fyrir sig hjúkr- unarstörf. Brúðguminn er af canadiskum ættum, sonur Dr. og Mrs. A. E. Medd, Winnipegosis. Hann útskrifaðist í læknisfræði daginn fyrir giftinguna. Organisti við giftinguna í kirkjunni, var Lennard Heaton, forseti Manitoba Music Teaoh- ers Assn., en einsöngvari wr Gladys Whitehead, forseti Win- nipeg-deildar Manitoba Music Teachers Assn., en vara-forseti þeirrar deildar, er móðir brúð- urinnar, Mrs. V. B. ísfeld. Brúð- armey var ungfrú Marjorie Gol- pitts, en brúðgumann aðstoðaði Dr. Harry Stevens. Á heimili foreldra brúðurinn- ar fór fram mjög fjölmenn og góð veizla. Ræður fluttu þar Dr. A. Blöndal og Dr. Harry Stevens. Eftir að rausnarlegra veitinga hafði verið neytt, var brúðhjónunum óskað til lukku og fararheilla. Þau lögðu sam- dægurs af stað í ferð suður til Minneapolis. Á meðal ýmsra undra fagurra muna færðum brúðhjónunum, frá vinum þeirra, skal hér að- eins nefna einn. Hann var frá móðursystur brúðurinnar, Mrs. Rósu H. Vernon í Toronto og var hljómplata, er söngkon^n hafði sjálf sungið á tvö lög: Bæn, enskt lag, og Because. Heimskringla óskar brúðhjón- unum innilega til lukku. A. W. KLIEFORTH, konsúll Bandaríkjanna, kvaddur The Canadian Press Club hélt samsæti til heiðurs yfirræðis- manni Bandaríkjanna, A. W. Klieforth og konu hans, á mið- vikudagskvedlið. W. J. Lindal, dómari, sem er forseti félagsins stýrði asmkom- unni, og sagði hann í ræðu sinni: “Að skapa og efla umburðar- lyndi, tiltrú og samstarf milli nágranna þjóða og helzt allra þjóða er markmið og tilgangur Canadian Press Club og heiðurs gestur vor í kvöld er alkunnur merkisberi þeirrar stefnu; og hefir honum orðið mikið ágengt. á því sviði.” Ræður voru fluttar: Minni Canada, Arthur Anderson. Minni Bandaríkjanna, Peter Stankovic, ritstjóri “Croatian Voice”; minni bandaþjóðanna, séra Antoine D’Esohambault; og minni heiðursgestsins, Mr. Klie- forth, Rabbi Solomon Frank. Mr. Klieforth fór mjög vin- samlegum orðum um starf Can- ada Press Club, og sagði að það væri fyrsta félagið af þessari tegund sem hann hefði kynst, og hugsjónir þær er það stefnir að hefðu mjög heillað huga sinn. “Eg hef skrifað vinum mínum í l^ashington,” sagði hann, “og verulega auglýst þetta þarfa starf ykkar, starfið til eflingar samkomulags milli allra þjóð- flokka og þjóðarbrota.” Hon. R. F. McWilliams fylk- isstjóri talaði einnig á mann- fagnaði þessum. Pólski konsúllinn og kona hans voru kynt Mr. Klieforth. Miss M. Hryniewiecki afhenti • Mrs. Klieforth fagran blómvönd. Aðrir sem skemtu gestunum voru V. Kaptif, Olive Holow- chuk, Louise Sobie. Mr. Alex Jöhnson söng einsöng á íslenzku. —Þýtt úr “Tribune”. H. D. S. 1. mánudagskvöld lagði séra Philip M. Pétursson af stað til Piney, Man., til að jarðsyngja konu þar, Mrs. W. Brough, sem dó á laugardaginn, 10. þ. m. Hún var tengdamóðir Björns Magnús- sonar, póstmeistara í Piney. Út- förin fór fram í gær (þriðjudag- inn).

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.