Heimskringla - 02.05.1945, Síða 4

Heimskringla - 02.05.1945, Síða 4
4. SÍÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 2. MAÍ 1945 Heimskringk , (StofnuB lttSJ Kemur út á hverjum miðvikudegi. Eigendur: THE VIKING PRESS LTD. 853 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg — Talsimi 24185 VerS blaSsins er $3.00 árgangurinn, borgist fyriríram. Allar. borganir sendist: THE VIKING PRESS LTD. öll viðskiftabréf blaSinu aðlútandi sendist: Manager J. B. SKAPTASON, 853 Sargent Ave., Winnipeg Ritstjóri STEFAN EINARSSON Utanáskrift til ritstjórans: EDITOR HEIMSKRINGLA, 853 Sargent Ave., Winnipeg Advertising Manager: P. S. PÁLSSON "Heimskringla" is published by and printed by THE VIKING PRESS LIMITED 853-855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man. — Telephone 24185 WINNIPEG, 2. MAl 1945 Heimsókn landstjórans til Gimli Canadiska þjóðin er talin með yngstu þjóðum þessa heims. Samt er hægt um menningu landsins að segja, að hún eigi sér eld- forna sögu. Inn í framfarasögu hins unga lands, hefir ofist menn- ing frá sumum >elztu menningarþjóðum Evrópu með landnemunum sem frá þeim hafa hingað flutt. Við vorum mint á þetta í ræðu, er landstjóri Canada flutti r móttökuveizlu er Islendingar héldu honum á Gimli s. I. fimtudag (26. apríl). Landstjórinn er, eins og frá hefir verið skýrt í heim- sókn um Vestur-Canada. Að hans hágöfgi ásamt Alice prinsessu heimsóttu í þeirri ferð íslenzka landnámið er heiður, sem fá- mennasta þjóðarbrotið getur litið á sem viðurkenningarvott um menningarleg áhrif þess á þjóðlífið, sem hér er að spretta upp og er þegar orðinn blómlegur vísir til vaxandi, mikillar þjóðar. Að þrír landstjórar hafa nú heimsótt þetta landnám, virðist mega skoða sem vott þess, að það hafi eftirtekt okkar betri manna vakið. Við komu hinna tignu góðu gesta, jarlsins af Athlone og Alice prinsessu, klæddist Gimli sínum hátíðarbúningi. Skemtigarðs- höllin var skreytt .innan flöggum, grenitrjám og annari samkomu- húsa prýði. Rétt eftir klukkan tvö, komu gestirnir. Tóku Jón Laxdal kennari og Paul Bardal á móti þeim við dyrnar og leiddu gegnum raðir af Girl Guides og Skátasveitum í einkennisbúning- um, sem lífvörð stóðu, til sætis. Að baki sætum þeirra blöstu við stór tjöld með myndum af Islandi. Eftir að þjóðsöngur Canada hafði verið spilaður af hornleikaraflokki úr hernum á Gimli, undir stjórn Cpl. N. Holling, bauð forseti Jón Laxdal kennari gestina velkomna með vel orðaðri ræðu, sem birt er á öðrum stað í þessu blaði. Á eftir honum hélt Hjálmar Bergmann dómari all-langa og góðu ræðu og gaf gestunum margar sögulegar upplýsingar um landnámið íslenzka. Að því loknu svaraði hans hágöfgi The Earl of Athlone ræðunum,, mintist Islendinga mjög hlýlega og þess mikla skerfs, er þeir höfðu hér til þjóðlífsins lagt, andlega og verklega og kvað þá með landnámsstarfi sínu hafa gefið eftirkomendum sínum og hinni ungu þjóð þessa lands fagurt og göfugt eftirdæmi. Þá var sunginn þjóðsöngur íslands af íslenzkum kirkjukórum á Gimli. 1 minningu um komuna til Gimli, afhenti forseti landstjóra bókina “Island í myndum” sem souvenir. Næst var hennar hátign, Alice prinsessu afhentur blómvönd- ur af íslenzkri stúlku, er'hét Benetta Helgason; móðir hennar, Mrs. Dorothy Helgason, er dóttir Jóns Jóhannssonar, en hann var fyrsta íslenzka barnið, er fæddist á Gimli. Þá voru nokkrir viðstaddir Islendingar kyntir hinum tignu gestum. Voru á meðal þeirra nokkrrr elztu landnemar. Sátu þeir í fremstu röð gestanna er kynna átti. 1 stað þess að bíða þess, að þeir gengu fram gengu landstjóra hjónin til þeirra og heilsuðu þeim. Sýndu þau mikinn góðvilja með þessu. Nöfn landnemanna og annara er kyntir voru í skemtigarðshöllinni, eru birt á öðrum stað í blaðinu. Ennfremur eru nöfn þeirra íslendinga birt, er boðnir voru til miðdagsverðar með landstjóra og landstjóra-frúnni hjá hernum á Gimli og þar voru kyntir. En sá miðdagsverður fór áður fram en veizlan í skemtigarðshöllinni og í íbúðum hersins, fjórar mílur vestur af Gimli. 1 fylgd með landstjóranum þaðan og sem sæti tóku með honum í skemtigarðshöllinni, voru S. S. Garson forsætis- ráðherra, Commander G. E. Kernohan, H.M.C.S. Chippawa; Air Vice Marshall K. M. Guthrie, Wing Commander E. Weaver og Mrs. Weaver. Mrs. Laxdal og Miss Vera Grenfell, lady-in-waiting to the Princess, Major Mark Clayton, Capt. N. A. Usher og Flt. Lieut. J. E. McClure, aides de camp. Bera öllu þessu fólki af hálfu Islendinga þakkir fyrir komuna og ýmsa aðstoð við þessa eftirminnilegu heimsókn. Islendingar líta á komu landstjórans, The Earl of Athlone og H.R.H. Alice prinsessu, sem mikinn heiður sýndan landnámi þeirra og í fylsta skilningi sem sögulegan viðburð. ÍSLENZK BÖRN SKEMTA Skólaári Laugardagsskóla Þjóðræknisfélagsins lýkur n. k. laugardag. Verður þessa minst með samkomu í Sambandskirkju og skemta þar börnin, sem ís- lenzkunám hafa stundað í vetur með upplestri og fleiru. Alt fer fram á íslenzku. Er nú enn einu sinni skorað á Islendinga að sækja samkomu sem þessa. Væri mjög æskilegt, að foreldrar hefðu börn sín með sér sem enn sækja ekki íslenzku- nám, til að sýna þeim hverju kenslan kemur til leiðar, ef ské kynni að það vekti áhuga hjá þeim fyrir íslenzku námi. Það gæti seinna komið í veg fyrir þá iðrun, sem margir unglingar nú oft bera, er þeir finna afa eða ömmu út af því, að geta ekki bablað við þau á máli þeirra, hinu réttilega móðurmáli sjálfra barnanna. Þetta er kjarni alls þjóðrækn- isstarfs Vestur-lslendinga. Samt er þar svo illa komið, vegna hirðuleysis okkar, að ekki má verra vera. Og svo erum við að básúna, hve þjóðræknir við sé- um. Það skal ekki í þetta sinn farið út í þetta mál eins og gera þarf og gert skal seinna. Hér skal að- eins mint á þessa samkomu og benda íslendingum á að fjöl- menna á hana og sýna með því náms-börnunum, að nám þeirra eigi hér lífrænan hljómgrunn, og að það hafi ekki verið dautt mál, sem þau voru að læra. Heimskringla hefir verið beð- in að geta þess, að samkoman byrji klukkan sjö að kvöldinu, en ekki eftir átta, eins og á að- göngumiðunum stendur. — Ollir þessu sérstakt atvik. HRÆÐILEG SAGA Það hafa litlar fréttir borist hingað frá Danmörku frá því landið var hernumið. Á fimtu- dagskvöldið brá út af þessu. í Winnipeg var staddur maður, seiri Peter Freuchen heitir og er kapteinn. Hann er danskur, víð- kunnur fyrir bækur, er hann hef- ir skrifað, ekki sízt um dvöl sína í 25 ár á meðal Eskimóa í Norð ur-Canada. Nefnt kvöld flutti hann erindi um það í Orpheum leikhúsi þessa bæjar, er skeð hefir í Danmörku síðari árin. Freuchen hefir verið þar og segir frá því einu er hann sjálfur reyndi og sá og fram fór undir stjórn nazista. Er saga hans hin hörmulegasta og gefur ekkert eftir því versta, sem heyrst hefir um fantaskap og æði nazista í öðrum hernumdum löndum. í fyrstu sagði hann Þjóðverja hafa sýnt Dönum meiri vægð, en öðrum, t. d. Hollendingum og Belgíu mönnum. Virtist fyrir þeim vaka, að sýna með því, að yfirráð Þjóðverja væru góð og umhyggjusöm þar sem um eng- an mótþróa væri að ræða. En þetta varð skammgóður vermir.v Eftir lítinn tíma fór að kreppa að í Danmörku sem annars staðar. Sáu Danir þá, að við svo búið mátti ekki una, og tóku að skipu- leggja eyðileggingar starfsemi. En þá var nú ekki að sökum spurt. Hver einasti maður sem grunaður var um skemdarverk hvort sem sekur var eða ekki, var bæði pyntaður og drepinn. Skemdarstarfið var aðallega í því ’ fólgið, að sprengja upp verksmiðjur Þjóðverja, er við vopnasmíði fengust. Vasa- sprengjur voru til þéssa notaðar, er skildar voru eftir á staðnum og sprungu síðar. Menn gátu haft þær í vasanum og konur gátu haft þær í buddum sínum. Kvað svo mikið að þessu, að vopna- framleiðslunni var stórkostlega hnekt. Þjóðverjar týndu í fyrstu tölunni við þetta, en þá gránaði nú sagan, því að 10 Danir voru að minsta kosti drepnir fyrir hvern nazista. En eyðilegging- arstarfið hélt samt sem áður á- fram, en var hagað svo, að sem fæstir Danir þyrftu að tapa lífi fyrir það. En nazistar fundu aldrei hvað- an þessi sprengjuframleiðsla kom. 1 öðru lagi var leyni-blaðaút- gáfa hafin og rekin í all-stórum stíl. Voru Danir þannig látnir vita um alt, sem þeir gætu gert nazistum til bölvunar. Við vinnu hjá naizstum voru konur og hörn rekin áfram með svipum. 1 þessu eyðileggingarstarfi var Freuchen kapteinn einn af stjórnendunum. Var hann tvis- var sinnum handtekinn ásamt fleirum, en komst undan og voru þó fjórir af þeim, sem með hon- um voru í annað skiftið, skotnir. Hann sat í fangelsi tvisvar eða oftar. Maturinn þar var hafra- mjölsgrautur, borinn þeim í þvottaskálum. Sagðist hann á leiðinni til Winnipeg, hafa farið með fjórum hermönnum inn í borðsalinn á lestinni, einn morg- uninn, en þeir hefðu allir pantað haframjölsgraut; það hefði stolið frá sér allri matarlyst þann dag- inn! Síðast var nú þar komið, að skipun var fest upp um að skjóta Freuchen kaptein hvar sem hann sæist. Þótti honum þá tími kominn til að flýja, ef hægt væri. Beið hann nú tækifæris að kom- ast til Svíþjóðar. Gafst þess kostur með því, að láta negla sig í einn þessara kassa, er skrifað var á: “This side up”. Komst hann, dóttir hans og einhverjir fleiri á þann hátt austur yfir 20 mílna breiða sundið milli Sví- VESTRIÐ Flutt á sumardaginn fyrsta í Vancouver 1945. ÍSLENDINGAR VILJA EKKI GERAST STRIÐSAÐILI 1 öiýfi aldanna Austrið þess beið, við uppkomnu sólar, að hefja sitt skeið, og mæta Vestrinu í miðjum heim, og með því að fljúga um hnattanna geim. Því Austrið var ferðbúið, — almættið bert — af eilífum guði á þrem dögum gert. Og alt var þess lífrænu óskum í vil svo Austrið var þakklátt að vera orðið til. En Vestrið var óskapað. — Auðnir og tóm, þar áttu í myrkri sinn forlaga dóm. Þar rann ekki dagur né dýrðleg sól, og draumlausa nóttin í frostböndum kól. Þá mælti guð faðir: Eg myrkurhlekk brýt og máttlausa Vestrið úr höndum þess slít. Og draumlausa nóttin skal dagsljósið sjá og dreyma um guðsríki jörðinni á. Með sólblys í hendi, hann sveif yfir tóm og sjá — þegar, spruttu á vegi hans blóm, því lífvana tómi hann ljósorku gaf, landflæmi, ársæld og Kyrrahaf. Þá horfði guð niður. — Frá himninum sá, að heimsálfan mikla, er að fótum hans lá, var óralöng slétta, frá hafi til hafs, með heimsforða allsnægtum frjóvgandi krafts. Eg kórónu smíða vil álfuna á, alvaldur guð mælti, er sléttlendið sá, svo gnæfi hún við himin, — sé göfug og sterk, eg gef henni frumsamið meistara verk. Hún skalf eins og tíbráin, sköpunin öll er skóp hann hin ramauknu Klettafjöll. Svo þung voru átök, er þar gerði hann til þreytu að almættis krafturinn fann. Þá leit hann á verk sitt, sem listrænan vott í ljósinu, og sá það var harla gott. Og Vestrið hið sígilda sjálfstæði fann er sunnudags ársól á fjöllunum rann. Sæmd þeirra og fortíð leyfir það ekki. Sú fregn hefir breiðst út og vakið mikið umtal, að íslending- ar hafi verið meðal þeirra átta þjóða, sem Krímskagaráðstefnan hafi ákveðdð að bjóða á hina fyr- irhuguðu ráðstefnu í San Fran- cisco, ef þær segðu Þjóðverjum og Japönum stríð á hendur fyrir 1. þ. m. Mun þetta mál hafa verið rætt á lokuðum fundum Alþingis undanfarna daga og að lokum verið samþykt’ að hafna því að gerast styrjaldaraðili. Þó mun hafa verið um þetta ágrein- ingur, eins og sjá má af skrifum Þjóðviljans. Framsóknarflokkurinn lagðist eindregið gegn því, að íslending- ar garðust styrjaldaraðili. Stríðsyfirlýsing andstæð sóma þjóðarinnar Ástæðurnar til þess, að IsLend- ingar gerast ekki styrjaldaraðili liggur öllum í augum uppi. — Styrjaldaryfirlýsing af hálfu ís- lendinga, þegar úrslit styrjald- arinnar eru öllum augljós, væd í fullri mótstöðu við íslenzkan hugsunarhátt. Það stafar í -fyrsta lagi af því, að Islendingar telja það andstætt heiðri sínum að gefa mikilmenskulegar yfirlýs- ingar, sem yrðu aldrei meira en orðin ein og myndu ekki ráða hið minsta um úrslitdn. Það stafar • öðru lagi af því, að Islendingum finst það lítilmannlegt að birta þá fyrst stríðsyfirlýsingu, þegat úrslit stríðsins eru alveg ráðin, þótt enn geti þau dregist um nokkrar vikur eða mánuði. Þó ófriður geysi yfir Austurlönd, og einvaldur leggi á þau vopnaða hönd. Þann sáttmála gerði guð Vestrið við að veita því gegnum aldirnar frið. Á sex dögum guð faðir sigurstarf vann, en sjöunda daginn blessaði hann. Á Klettafjöllum hann hvíldist bezt því Klettafjöllunum unni hann mest. J. S. frá Kaldbak þjóðar og Danmerkur, en langt á annan sólarhring lá hann sam- anböglaður niður í kassanum. Bátur réri svo með þau frá skip- inu og lét þau hlaupa útbyrðis um leið og árar kendu botns. Höfuðin stóðu upp úr vatninu og meðan svo er, er ekki öll lífsvon úti, sagði ræðumaður, en heldur myndi það þykja slæmt að ferð- ast hér svipað þessu. Þegar á land kom, buðu Svíar þá velkomna. Það er kveðjan, sem öllum flóttamönnum mætir í Svíþjóð. Þúsundir landa sinna og Norðmanna sagði ræðumaður, að væri nú lifandi vegna þess, að Svíþjóð hefði verið hlutlaus í stríðinu. Frá Svíþióð flaug hann til Englands og þaðan til New York; hefir hann verið í Bandaríkjun- um síðan. Hungurslíf sagði Freuchen ekki laust við í Danmörku. Af- koma þeirra sem hjá Þjóðverj- um hefðu vinnu, væri þröng og arðinn af vinnu bænda, hrifsuðu nazistar. En jafnvel verra en það alt, væri óttinn við hvað næst biði. Enginn maður gengi svo fyrir götuhorn, að hann litaðist ekki um áður. Og eins væri, er út úr húsi væri gengið. Inn á heimili manna væri komið á nótt sem degi í njósnar erindum. Einu sinni er Freuchen kom heim tili sín, voru 5 nazistar þar fyrir með byssur á lofti. Á barsmíðum og meiðlsum gengi stöðugt. Sagði ræðumað- ur dæmi þess, að menn hefðu verið lamdir og beinbrotnir með lurkum og járnpípum unz þeir biðu bana. Danir verða vissulega ekki með vægum friðarskilmálum við Þjóðverja, sagði ræðumaður. Upp í hæstu fjöllum í Noregi, sagði Freuchen Þjóðverja ein angra sig og vera eitthvað að bauka. Hvað það væri vissu engir, en gizkað er áð að þar væru tilraunir gerðar með að íramleiða sjálfvirkar flug- sprengjur, sem senda ætti Bandaríkjunum. Gyðingar voru um 9000 Danmörku. Um eitt skeið fundu nazistar upp á því, að kenna þeim um alt, sem aflaga fór. Voru í svipan 600 af þeim teknir og fluttir til Þýzkalands. Eru nú tveir þriðju af þeim dauðir. Aðeins einn Gyðingur er nú eftir í Danmörku. Erindi sitt flutti Freuchen kapteinn hér á vegum Norræna félagsins Viking Club. Ræðu- mann kynti S. S. Garson for- sætisráðherra Manitoba og Mr. Coulter borgarstjóri þakkaði Freuchen erindi hans. Samkom- unni stjórnaði Karl Simonson, forseti Viking Club. Hefir sú framkoma jafnan þótt lítill sæmdarauki að veitast að þeim, sem eru að verða undir, en hafa hins vegar hlífst við því, þegar úrslit voru tvísýn. Islend- ingar geta ekki talið sér slíka framkomu sæmandi, þótt ein- hver stundarhagur kunni að vera annars vegar og þeir hafi fulla andúð á starfsháttum þeirra, sem eru að bíða lægri hlut. Fyrri afstaða þjóðarinnar Fleira kemur og til en það, að slík styrjaldaryfirlýsing mynd' særa sómatilfinningu þjóðarinn- ar, þar sem hún væri gefin, át> þess að nokkrar athafnir gæt» tylgt á eftir og ekki fyr en úrslit styrjaldarinnar væru fullráðin- Islendingar hafa um margar ald' ir engin vopn borið. Það hefit verið ótvíræður vilji þjóðarinn- ar að taka ekki upp vopnaburð- En það yrði óhjákvæmilegt, ef vikið yrði af þeirri braut, að taka ekki þátt í styrjöldum. Með því að víkja af þeirf' braut, að taka ekki þátt í styrj' öldum, væri tekin upp alveg ný stefna. Það væri brotið blað 1 sögu Islands. Sú sérstaða, sen> við höfum haft sem vopnlaiÞ þjóð, kæmi ekki aftur. Hefði ís' lendingum verið það í huga að taka upp nýja stefnu, var tæk>' færi til þess á undanförnum áX'

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.