Heimskringla


Heimskringla - 20.06.1945, Qupperneq 1

Heimskringla - 20.06.1945, Qupperneq 1
 We recommend for your approval our 'BUTTER-NUT LOAF " BUTTER-NUT LOAF CANADA BREAD CO. LTD. Winnipeg Phone 37 144 Frank Hannibal, Mgr. FRÉTTAYFIRLIT OG UMSAGNIR íslendingadagnrinn á Hnausum Þjóðhátíðardagurnn á Hnaus- um, 16. júní, hepnaðist ágæt- lega. Veður var gott, svalt með nokkrum stormi fram yfir há- degi, en úr því lygndi og var eftir það stöðugt sólskin og hlýtt og blítt til kvölds. Féhirðir dags- ins taldi alt að tvö þúsund manns hafa sótt hátíðina; hefir ekki síð- ari árin verið þar svo f jölment. Aðal-aðdráttarafl dagsins var óefað vitneskjan um að dr. Stef- án Einarsson héldi þar ræðu. — Menn höfðu lesið skrif hans í vikublöðunum og Tímariti Þjóð- ræknisfélagsins sér til ánægju og létu sér ekki tækifærið nú úr greipum ganga, að hlýða á hann. Urðu menn þar ekki fyrir von- brigðum, því á tali manna um hátíðina fóru menn ekkert duit með, að Islands minni Stefáns væri eitt hið bezta er þeir hefðu hlýtt á hér á íslendingadögum. Vér ætlum það og ekki ofmælt. Annars var skemtiskráin öll góð. W. J. Lindal dómari flutti minni fóstrunnar og gerði það prýðisvel. Hann flutti ræðu sína á íslenzku og snerti hún víða viðkvæma strengi í brjóstum barna fóstrunnar góðu. Hon. Ivan Schultz, heilbrigðismála- ráðherra Manitoba-fylkis, var og einn ræðumanna og mintist ís- lendinga mjög hlýlega; hann er alinn upp við Baldur í Manitoba á meðal þeirra, en á þessari hátíð mætti hann ekki mæla á íslenzk- unni, sem þeir hefðu kent sér. Minni hermanna flutti Stefanía Sigurðsson, vel samið erindi. — Auk þessa flutti forseti skemti- skráar, V. Jóhannesson, ávarp og Fjallkonan, Mrs. Regína Erickson og Miss Canada, Solla Lifman. Þá fluttu kvæði sín skáld dagsins, G. J. Guttormsson og Ragnar Stefánsson. Söngnum á deginum stjórn- uðu systkinin Jóhannes Pálsson og frú Lilja Martin; þau eru börn Jóns Pálssonar bónda á Geysir og eru bæði snillingar í söngment. Þau höfðu þarna all- fjölmennan söngflokk, er söng fjölda íslenzkra þjóðsöngva og skemti áheyrendum sérstaklega vel. Veitingar voru í skemtigarð- inum, svo að jafnvel mestu mat- menn þurfti ekki að bresta. Að morgni dagsins fóru fram fþrótt- ir, en frá þeim er í þeim sköruðu fram úr, mælumst vér til að í- þróttanefndin segi síðar. Að kvöldin var dans í Hnausa hall. Vér erum þess fullvissir, að 'hátíðin verður þeim er hana sóttu, minnisstæð sem ágætasta skemtun. Sigurför í hljómleik Rögnvaldur Sigurjónsson heit- ir ungur hljómlistarmaður frá Is- landi, sem dvalið hefir um stund í Bandaríkjunum. Hann hélt piano hljómleik í National Gal- lery of Art í Washington 10. júní og hlaut svo mikið lof fyrir hjá fregnritum stórblaðanna, að eftirtekt vekur á honum um alt land (Bandaríkin). Það var verið að reyna að fá hann að koma til ^Yinnipeg, en það ferst fyrir í 'þetta sinn, því hann er nú á för- um til íslands. Rögnvaldur Sigurjónsson Pianisti, er sonur Sigurjóns ^larkússonar fyrv. sýslumanns °g Sigríðar Björnsdóttur, systur ^jarna skopleikara. Á 'hljómleik hans var um 1000 manns og segist sendiherra Thor Thors svo frá í skeyti til Islands, sem hann sendi afskrift af til ís- lenzku blaðanna, að hljómleikar hans hafi verið stór sigurför fyrir listamanninn og hverju lagi hafi verið lokið með langvarandi lófa- taki. Að lokum var hann sjö sinnum klappaður fram og lék tvö aukalög. Musikvinir og listdómendur blaða í Bandaríkjunum sem sam- sæti sátu á heimili sendiherra Thor Thors, til heiðurs Rögn- valds, luku meira lofi á hinn unga hljómleikasnilling, ep dæmi hefir verið til lengi, telja hann jafnvel strax í flokki út- valdra eða víðfræga hljómleik- ara. CR ÖLLUM ÁTTUM Mackenzie King forsætisráð- herra Canada, féll í kosningun- um 11. júní í kjördæmi sínu, Prince Albert. Hann hefir verið þar þingmaður síðan 1936. Hann skorti 129 atkvæði til að bera jafnan hlut frá borði og E. L. Bowerman, C.C.F.-fulltrúi, er kosningu hlaut. Forsætisráð herra hlaut 7,799 atkvæði alls, en Bowern^an 7,923. Hermanna atkvæði réðu úr slitum. King hlaut 542 þeirra, en Bowerman 934. Það er líklegt talið, að King sæki í Ottawa East, en það sæti vann Jean Richard, liberal í kosningunni 11. júní. Aðrar breytingar við tálningu ihermanna atkvæða voru 3 í On- tario, en þar tapaði Bracken- flokkurinn tveimur sætum eri vann eitt. C.C.F. græddu tvö sæti. Tala flokkanna á þingi er þvi nú þessi: Kingstjórnin hefir --119 Bracken sinnar_____ __ 65 C. C. F. sinnar_______ 28 Social Crediters —:--- 13 Aðrir flokkar --------- 20 * * * Eisenhower hershöfðingi kom heim til Bandaríkjanna um síð- ustu helgi. Var honum sem vita mátti fagnað með dunum og dýnkum. Er sagt að um 6 milj. manna hafi raðað sér við þau stræti New York-borgar er hann átti leið um til móttökuveizlu, er honum var þar haldin. 1 Hvítahúsinu í Washington var önnur móttökuveizla fyrir hann og fylla blöðin syðra margar síð- ur af myndum og fréttum af þvi. Stóðu veizlurnar á báðum stöð- unum yfir allan daginn og var hinn frægi hershöfðingi á milli þess sem til borðs var setið og honum voru ræður fluttar á í- þróttaleikjum eða dönsum. 1 ræðum er Eisenhower flutti, lagði hann mikla áherzlu á nauð- synina á að vináttubönd Banda- þjóðanna héldust á friðartím- um eins vel og á stríðsárunum Fyrir það yrði alt í sölur að leggja, ef árangur stríðsins ætti áð verða sá, er til var ætlast. EINI ÍSLENDINGURINN Á SAMBANDSÞINGINU LANDA MILLI Flutt á Iðavelli 17. júní, 1945 V Þegar skriö á gandi um geim Gerist liðugt næsta Förum við að heiman heim Hátt um sviðið glæsta. Það er seimur sem er hnoss, Svona í geimi þöndum, Blessað heima-athvarf oss Eiga í tveimur löndum. Góður sonur sæmdir þær Sýndar honum meti! Er ei von hann elskað tvær Ungar konur geti? Veit eg hvar er varmi, þó Við mér hjarinn blasi. Er og var mér yndi nóg Ilmur þar úr grasi. Einnig fékk mér yndisgnótt, Oft um rekkjustundir, Sá eg ekki svarta nótt, Sólin gekk ei undir. Samt er listaljósið þar Lengst um fyrst og síðast Það sem flyzt um fold og mar Fólki yzt og víðast. Gleymist aldrei andi skygn, Einkum gjalda sjólar: Æðsta vald er andans tign Undir tjaldi sólar. Norræns anda aðalsmenn, Æðstir landsins fursta, Rímið vanda’ og efnið, en Aðrir standa og hlusta. Þó eg kvarti um muninn, mér Maður vart þú láir, Þar er margt sem ei hér er Og mitt hjarta þráir. Okkur gæðum miðla mild, Mörgum þræði í sögur Líkt og mæður, löndin skyld, Lofsverð, bæði fögur. Oss í villum aldrei sást Yfir snilTi beggja Skal því hylli, skyldu og ást Skift á milli tveggja. Bindist særi trygðir tvær, Tvinnað ærubandið Altaf færi okkur nær Island, kæra landið! Guttormur J. Guttormsson Wm. Benidickson, lögfr. Eins og sagt var frá í síðasta blaði, náði Wm. Benidickson, CANADA BREAD CO. LTD. Winnipeg Phone 37 144 Frank Hannibal, Mgr. lögfræðingur í Kenora, kosningu | framúrskarandi mikilvægt í í kjördæmi sínu (Kenora-Rainy i hernaðinum á móti kafbátafarg- River) 11. júní. Hann verður aninu á Norður-Atlantshafinu. eini Islendinguminn á sambands-1 Hann var á öllum flugráðstefn- þinginu, er það kemur næst sam-' um flughersins, er að ferðum an. Mr. Benidickson er fæddur i Dauphin, Man., 1911, en flutti með foreldrum sínum, Mr. og Mrs. Christian Benidickson, til Winnipeg 1923. Gekk hann hér mentaveginn unz hann útskrif- aðist af Manitoba-háskóla árið 1932 og lauk lögfræðisnámi 1936. Tók hann þá fyrir lögmannsstörf í Kenora, Ont., og rak þau með miklum dugnaði unz hann tók við við herstörfum í byrjun þessa stTíðs. I félagsstarfi hér aðs síns tók hann mikinn og góð- an þátt og hafði oft forustu ýmsra framfaramála með hönd- um. I stríðsbyrjun átti hann mik- inn þátt í stofnun Air Observer’s Séhols í Vestur Canada. Fórst skipalesta lutu. Á Bretlandi var hann og tvö ár í þjónustu með þeim er bug voru að reyna að vinna á kafbáta-athæfi Þjóð- verja. Að síðustu var hann svo við störf á aðalstöðvum flugliðs Can- ada á austurströndinni (Canad- ian Staff Officer at Royal Air Force Coastal Command Head- quarters). Hafði hann þá unnið svo stórvægilegt skipulagningar starf í þágu canadiska og brezka flugliðsins, að hann var gerður að Wing Commander í R.C.A.F. Þetta starf alt var þessháttar, að á stríðsárunum var ekki frá því hægt að segja. En stjórn þessa lands hefir nú lýst því og viðurkent Wm. Benidickson og starf hans sem hið ágætasta í honum verk það svo úr hendþ að farfir kón§s °S lands- eins og her er sagt. hann varð leiðandi maður í starfi flughersins, varð Administration Officer. Sem slíkur vann hann mikið starf í Canada, á Bret- landi, Azóreyjum og á Islandi. Á ættlandinu var hann skamm- an tíma, en þar þótti honum einna skemtilegast að vera og dá- ist að vináttu og gestrisni íslend- inga. Hann var einn hinna fyrstu í flugher Canada á At- lantshafsströndinní, sem byrjaði manni (hann er að skipuleggja samvinnu flug- og sjóhersins. Var það starf I kosningunum hafði Flt.-Lt. Benidickson á annað þúsund at- kvæða fram yfir hæsta andstæð- ing sinn. Faðir hans, Christian Beni- dickson, kom vestur um haf frá Úlfsstöðum í Skagafirði. Móðir hans er ensk. Heimskringla unga íslenzka MINNI CANADA Flutt á Iðavelli 17. júní, 1945 V Landið bjartra ljúfra vona, landið frjálsra dætra’ og sona, innflytjandans undraheimur, æskulýðsins verkasvið. Ljóminn yfir breiðum byggðum, blik á vötnum spegilskyggðum letrar gullnum geislarúnum guðspjall lífsins — ást og frið. Beiðst þú hér um ár og aldir, aðrir staðir löngu valdir. Skildu höfin helming jarðar, heima tvenna langa hríð Þyrptust senn að þínum ströndum þjóðabrot frá öllum löndum. Tókstu við þeim opnum örmum alla þína landnámstíð. Sjálfsagt hefir landnámsliðið lært að meta nýja sviðið — þó að ráðið reikult gerði rótar slit frá ættlands-meið. — Eðlilega efst í minnum ást á fornum heimakynnum, reyndi þá á mátt og manndóm mest á þeirra æfileið. Örlát varstu á öll þín gæði — ótakmörkuð landasvæði. Þeim sem áttu þrá til frama, þrótt og styrk í hverri raun, hefir flest til happa gengið hlotnast alt, sem bezt varð fengið. Fáum hlauzt sú gæfa’ að geta goldið betri fósturlaun. Vegsummerkin sýna og sanna sigur fyrstu landnemanna. Hrjóstrum breytt í hreinar lendur, höll, er bjálkakofinn stóð. Kynslóð ung af stofnum sterkum stolt af áa kraftaverkum. Erfðagull og eigin kostir ættu’ að mynda snildar-þjóð. Fagra land með fjöll og skóga, fiskisæld og akra nóga. Virðist sem þér hlotnast hafi hagsæld flest og orkulind. Yfir hverju byggðu býli blessun drottins jafnan hvíli. Vertu í öllu um aldaraðir allra landa fyrirmynd. Ragnar Stefánsson óskar hinum sambandsþing- nú 34 ára) til heilla í hinum nýja starfshring hans. S A M S Æ TI Á St. Regis hóteli í þessum bæ, var til samsætis efnt af Is- lendingadagsnefnd Iðavallar og Þjóðræknisfélaginu til heiðurs dr. Stefáni Einarssyni í gær- kvöldi. Dr. R. Beck, forseti Þjóð- ræknisfél. stjórnaði samsætinu; héldu auk hans ræður séra Valdimar Eylands borðbæn, Valdi Jóhannesson, er afhenti heiðursgestinum lindarpenna sem souvenir frá Islendinga- dagsnefndinni á Hnausum og dr. Sveinn E. Björnsson, er flutti dr. Stefáni kvæði; er það birt í þessu blaði. Dr. Stefán þakk- aði gestrisni og vináttu sér sýnda með snjallri ræðu; kvað komuna hingað norður verða sér mjög minnisstæða. Dr. Stefán hefir dvalið á heim- ili Mr. og Mrs. Gísla Jónssonar, 906 Banning St., þá dagana sem hann dvaldi í bænum. Var á föstudagskvöldið boðið til móts við heiðursgestinn á heimili þeirra hjóna. Fyltist húsið brátt af gestum, er vænt þótti um tækifærið, að finna dr. Stefán að máli.. Þar voru og veitingar á takteinum. Bera húsráðendum beztu þakkir fyrir þá rausn og vinaboðið. Dr. Stefán var helming tím- ans sem hann dvaldi hér norður í Nýja-lslandi, enda var honum af nefnd Islendingadagsins á Hnausum boðið norður. Hann lagði af stað suður kl. 2 e. h. í dag flugleiðis. Heimskringla þakkar honum í nafni landa hans hér komuna norður. Hann átti hér marga vini er aldrei höfðu hann séð fyrir ritstörf sín; hann á þá vissulega fleiri eftir komuna og ljúfmannlega persónulega við- I kynningu.% Heiðraðir á afmælisdag dag konungs voru um 30 menn frá Manitóba í stríðinu. Á meða) þeirra, sem getið var, er einn ís- lendingur Sqd.-Ldr. N. S. Mag- nússon, sonur Mr. og Mrs. Ara Magnússonar í Winnipæg.

x

Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.