Heimskringla - 20.06.1945, Side 4

Heimskringla - 20.06.1945, Side 4
4. SlÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 20. JÚNI 1945 Heimskringla (StofnuO lStt) Kemur út ó hverjuin miðvikudegi. Eigendur: THE VIKING PRESS LTD. 853 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg — Talsími 24185 Verð blaðsins er $3.00 árgangurinn, borgist fyriríram. Allar borganir sendist: THE VIKING PRESS LTD. öll viðskíftabréf blaðinu aðlútandi sendist: The Viking Press Limited, 853 Sargent Ave., Winnipeg Ritstjóri STEFAN EINARSSON Utanáskrift til ritstjórans: EDITOR HEIMSKRINGLA, 853 Sargent Ave., Winnipeg Advertising Manager: P. S. PÁLSSON "Heimskringla" is published by and printed by THE VIKING PRESS LIMITED 853-855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man. — Telephone 24 185 WINNIFEG, 20. JÚNÍ 1945 ÍSLANDS MINNI Eftir dr. Stefán Einarsson. Flutt að Hnausa, Man., 16. júní 1945. Kæru landar mínir: I. Mig langar fyrst af öllu til að þakka ykkur fyrir þann heiður, sem þið hafið gert mér með því að kalla mig hingað í dag til að tala fyrir ykkur. Eg er ykkur enn þakklátur fyrir það, að þetta er nú í annað sinn, sem þið kallið mig hingað, og það þótt eg í fyrra skiftið brygðist algerlega vonúm ykkar, og gæti því tæplega vænst þess að þið gengjuð eftir mér með grasið í skónum aftur. Það er nú liðið hátt á annan tug ára síðan eg kom fyrst vestur um haf. Þá mun eg hafa alið þá von í brjósti, að mér gæfist ein- hverntíma tækifæri til þess að sækja ykkur heim, landana í vestur-íslenzku bygðunum. Að sú von hefir ekki ræst fyr en nú er, sem sagt ekki ykkar skuld, heldur sjálfsskaparvíti. Mér hefir venjulega fundist, að eg hafi haft of mikið að gera til þess að taka mig upp, — og svo hef eg þá látið mér nægja, að senda ykkur tón- inn við og við. En eins og allir vita, þá eru það æfinlega mennirnir, sem gera minst, sem mest þykjast hafa að gera, enda skal eg nú láta útrætt um þetta mál. II. Vorið á íslandi 1 dag er vor heima á Islandi, hávor með björtum nóttum, “nóttlaus voraldar veröld” eins og Stephan G. Stephansson kvað. Það er þetta vor, sem eg hef altaf saknað, síðan eg kom vestur um haf, því hér geng eg með þá tilfinningu, að það sé farið að dimma af nótt, sumarið sé að kveðja. Hjá ykkur Canada-búum er munur Jónsmessuleytis og skammdegis meiri en hann er suður í Balti- more, en þó er enn mikilla muna vant að canadiska vorið nái hinu íslenzka vori. Og eins og það er erfitt að gera sér grein fyrir vor- nóttinni með sólinni við sjóndeildarhringinn í norðri, eins er það ekki auðvelt að gera sér grein fyrir áhrifum þeim, sem ísl. vorið hefir á alt sem lifir, fólk og fé. Alt rís af dvala: grasið grær, skóg- Urinn ilmar, kúnum er hleypV út, féð rásar nýrúið inn á afréttir og hestarnir una sér í grænum högunum hvasseygðir og makkareistir. Farfuglarnir eru komnir og farnir að verpa, krían er sígargandi við sjóinn, en lóan og spóinn halda daglanga hljómleika upp til sveitanna. Og áhrifin eru sízt minni á mannfólkið. Sannleikurinn er sá að margir Islendingar hafa tilhneigingu til að leggjast í dvala eins og híðbjörn í skammdeginu en sofa varla fuglsblund í langdeginu á vorin. Vera má að mörgum þætti þeir ekki öfundsverðir af slíku hlutskifti, og það er víst, að eg hef heyrt útlendinga kvarta, eigi aðeins undan áhrifum skammdegisins, heldur einnig undan svefnleysi hinna björtu nótta. En Islendingar láta það ekki á sig fá; á misjöfnu þrífast börnin bezt, sagði gamla fólkið. Hringleikur árstíða í mannlífi og þjóðlífi Fyrir löngu hafa vitrir menn þótst skynja skyldleik með hringleik árstíðanna og mannsæfinni. Eins og grasið sprettur úr vetrardauðri moldinni, grænkar og blómgast með vorinu, ber ávöxt að sumrinu og sölnar og fellur aftur í vetrardvalann með haustinu, þannig fæðist barnið, þroskast sem unglingur, verður fullorðinn maður, eignast börn og buru, eldist, hrörnar og deyr. Og eigi aðeins mannlífið, heldur einnig þjóðiífið hefir oft virst spekingum sömu lögum bundið, lögum fæðingar og þroska, hrörn- unar og dauða. “Alt sem hefir upphaf þrýtur — alt 9em lifir deyja hlýtur.” Árstíðir í ísl. sögu íslenzkir sagnfræðingar hafa a. m. k. síðustu hundrað árin litið sögu þjóíar sinnar frá þessu sama sjónarmiði. Þeir hafa eygr fornöldina í blámóðu aldanna, sem gengna gullöld. Sú gullöld átti upphaf sitt með landnámi íslands, stóð kansike með mestum blóma á sögu-öldinni, átti sín manndómsár á elleftu og tólftu öldinni, sín hrörnunar og upplausnarár á Sturlungaöldinni. Eftir það tekur við hinn langi vetrardvali, skammdegisdróminn, sem bindur þjóð- ina um margar aldir, unz rofa fer af nýju vori á öndverðri riítjándu öld. Framför afturför? Oft getur verið erfitt að átta sig á, hvað sé framför og hvað afturför í heimi þessum. En það verða varla deildar meiningar um það, að síðan á dögum Skaftáreldanna hafi íslenzka þjóðin verið á stöðugri framfarabraut. Skaftáreldarnir, og það sem þeim fylgdi, voru svartasta skammdegið, sem þjóðin hefir lifað, og munaði fyrir manna sjónum ekki miklu, að hún skrimti ekki af. En þjóðinni tókst að þreyja þorrann og góuna, hún svalt að vísu heilu hungri, en hún komst af. Vor 19. aldar Og vor 19. aldarinnar var gott vor fyrir íslendinga. Þeir Baldvin Einarsson, og Fjölnismenn hafa stundum verið kallaðir vormenn Islands og það með réttu. Enginn ber það nafn þó með jafnmikilli rentu og Jón Sigurðs- son sjálfur, maðurinn sem fædd- ist 17. júní 1811 á Rafnseyri á Vestfjörðum og átti eftir að verða sverð þjóðar sinnar, sómi hennar og skjöldur um langa og athafnaríka starfsæfi. Það er táknrænt að Jón skuli vera fædd- ur á vori. En þegar maður renn- ur hugaraugum yfir æfi hans, þá minnir hún mann þó enn meir á þroská og gfóða sumars- ins. Hér er maður sem ávalt virðist hafa kunnað tökin á hverju, sem hann tók sér fyrir hendur. Hann gerði sér sögu landsins að því vopni, sem bezt beit í baráttunni við hin íhalds- sömu öfl í Danmörku. Hann vann mest að stofnun og mynd- un hins nýja alþingis, sem nú á aldarafmæli fyrsta júlí næst- komandi. Og þótt hann lifði ekki lengur en til að sjá hina fyrstu stjórnarskrá, sem Kristján IX. kom með færandi föðurhendi á Þingvöll 1874, þá steig hann þó bæði fyrsta og drýgsta sporið til sjálfstæðis þess, sem við feng- um viðurkent fyrst með samri- ingum við Dani 1918 og nú svo að segja spilandi upp á eigin spýtur á lýðveldishátíðinni fyrstu í fyrra, 17. júní 1944. Lýðveldishátíð Eg var eins f jarri lýðveldishá- tíðinni á Þingvöllum í fyrra eins og þið, en eg heyrði forseta Is- lands lýsa gleði manna, er hann kom vestur um haf í boði Roose- velts í fyrra sumar. Og eg hel lesið hinar snjöllu lýsingar á há- tíðahöldunum eftir forseta Þjóð- ræknisfélagsins, og getur engin sem hefir þessar heimildir efast um hátsíðaskap fólksins. — Eg hef einungis lifað eina slíka þjóðhátíð: Alþingishátíðina 1930, en vera má, að sumt af elzta fólk- inu, sem hér er saman komið lumi enn á minningum um þús- und ára afmæli landsins 1874. III. Horfur í heimspólitíkinni Það getur verið, að það þyki ekki viðeigandi að láta alvarlega hluti raska hátíðaskapi manna, en eg er svo skapi farinn, að eg kann ekki við að þegja um það, sem mér býr í brjósti úr því eg ■feinu sinni hef tekið til máls. Mér er sagt að veður hafi verið mun skuggalegra á Lýðveldishátíð- inni 1944, heldur en á Alþingis- hátíðinni 1980. Og mér kæmi ekki á óvart, þótt sumum hefði virst teiknin á himni heims- pólitíkarinnar allmikið verri en þau þó voru 1930. Þá lýstu ls- lendingar yfir ævarandi hlut- leysi sínu, og þótt sumum kunni að hafa runnið í grun, að það stæði kanske ekki til enda ver- aldar, þá held eg flestum hefði þótt forsögn, að ísland yrði kom- ið í ófrið áður en 10 ár væru lið- in. Svo fór nú samt, og nú þurf- um við ekki að dyljast við, að héðan af höfum við aldrei hlut- leysis að vænta, ef stórveldun- um slær saman í eina brýnu enn. Það er að vísu stórþakkarvert að vera undir Vernd Englendinga og Bandaríkjamanna, bæði nú í stríðinu og eins á komandi frið- artímum. En sagan sýnir, þvi miður, að það líður aldrei á löngu, unz guð uppvekur vonda menn, sem gera uppreisn mót þjóðum þeim sem friðinn elska. ísland Gibraltar Norðursins Island er nú orðið Gíbraltar norðursins fyrir engilsaxnesku þjóðirnar, og þótt þær skifti sér ekki af okkur á friðartímum, þá hljóta þær að taka landið aftur undir eins og ófrið ber að hönd- um. Sá ófriður verður varla hafinn fyr en uppreistarmenn, hverjir svo sem þeir kunna að verða eru orðnir jafnlangt á undan öðrum í vígamensku eins og Þjóðverjar voru þegar þeir réðust á Pólland. Ef Reykjavík er þá ofanjarðar :á verður tæplega erfitt að þurks hana út af kortinu eins og gerl refir verið um svo margar borg- ir í þessu stríði. Eg hygg því, ac KVEÐJA Frá Norður Nýja Islandi 19. júní 1945 til Dr. Stefáns Einarssonar Fyrir ræður og ritin snjöll og röggsemd kunna í iðju þinni, velkominn bauð þig bygðin öll; bróðurlegt viðmót og húsakynni. Þú öðlaðist frægð fyrir orðsins mátt, ^r afl þíns penna ber ljósust merkin. Um langar stundir, því ítök átt í Islendings hug, fyrir snildarverkin. 1 gegn um þokuna heyrðist hljóð, er heim oss seiddi í gamla bæinn: Þar Breiðdælingur á bjargi stóð og benti oss heim, yfir lönd og sæinn. Hann gerðist útvörður íslenzks máls, af eigin mætti og frjálsum vilja. ,1 gegn um sorann hann svarf til stáls; og svör hans og rök jafnvel börnin skilja. Þinn andi var frjáls, og sú skoðun skygn á skapandi mátt hins göfga og sanna, að íslenzkrar tungu eðlistign sé áhrifakraftur, í lífi manna. Og enn fer blærinn um Atlants sjá, með alt, sem fest hafði dýpstar rætur; sem vængjaþytur um vötnin blá, og vorhugur frjáls, um bjartar nætur. enda var leikurinn til þess gerð- ur. Áður en einokunarverzlunin danska hófst, höfðu verið skær- ur milli Englendinga og Þjóð- verja um íslenzkar hafnir, er. Dönum lukkaðist að bola báðum burt. Sagnaritarar hafa bent á það, að Englendingar borguðu betur fyrir fiskinn en Danir gerðu, og er líklegt að efnahag- ur landsins hefði orðið betri, ef Englendingar hefðu borið þá sig- ur úr býtum. Spurningin er, hvort það hefði orðið betra fyrir sjálfstæði íslands. Eg held ekki. — Það má að vísu deila um það. En um hitt verður ekki deilt, að Orkneyjar og Hjaltland, sem komust undir ensk (skozk) yfir- ráð á 14. og 15. öld, hafa með öllu glatað tungu sinni og nor- rænum arfi, þar sem Færeyingar hafa haldið hvorutveggja með mikilli prýði undir verndarhendi Dana, þótt þeim hafi ekki altaf þótt hún mjúk, fremur en okkur. Þessi ólíku örlög Orkneyinga og Færeyinga virðist mér benda ótvírætt í þá átt, að við eigum jafnvel einokun Dana ekki ó- merkilega skuld upp að inna, ef við á annað borð metum, það að hafa haldið þjóðerninu óbreyttu. Nú meta vér viljum og þakka þér, þrotlausa vörn um helgidóminn, hinn dýrmæta þjóðararf, sem er íslenzka málið, með töfra hljóminn. Og vesturálfan þig annist bezt í athöfn og framsókn braut þér greiði; en Island, sem gaf þér af öllu mest að enduðum degi heim þig leiði. S. E. Björnsson ef Reykvíkingar vilji ekki fljóta sofandi að feigðarósi, þá Verði þeir að grafa sig í fjöllin: annað- hvort í Öskuhlíðina, eða kanske öllu heldur í Esjuna. Þetta hafa Svisslendingar gert a. m. k. og þetta urðu Malta-búar að gera eftir að styrjöldin hófst. Eg skal nú ekki fara lengra út í þessar hrakspár, þó að eg geti ekki neitað því> að mér þykir, ekki óviturleg heimspeki Ein- ars gamla á Kleif. Hann sagði: “Bústu við því illa, það góða skaðar þig ekki.” Island í útsæ veraldar En eg verð að benda á annað atriði í sjálfstæðismáli Islands. Það er eðlilegt, að fyrir flestum standi það sem barátta milli hinna íslenzku frumherja frels- isins — með hetju dagsins Jón Sigurðsson í broddi fylkingar og hinna dönsku kúgara. En í raun og veru er þessi frelsisbar- átta ekki nema lítið straumkast eða hringiða í hinum mikla póli tíska útsæ veraldar. Og þótt Islendingar hafi oft ekki vitað það sjálfir, þá hafa kjör þeirra löngum mótast af því pólitíska veðri, sem í þann og þann svip- inn var staðviðri úti í Evrópu eða hinni víðu veröld. Glötun sjálfstæðis á 13. öld Þetta er áþreifanlegt á Sturl- ungaöldinni, þeirri öld er glataði hinu forna sjálfstæði landsins. Hvernig er þá umhorfs í ná grannalöndunum? Veraldlega valdið er í höndum konungs og lénsmanna hans, en andlega valdið í höndum páfa. Hver otar sínum tota. Páfi gerir harðar kröfur um aukið vald kirkjunnar bæði um eignarrétt á kirkjum og aukið vald guðslaga í löndunum. Konungarnir berjast á aðra hönd við páfann, á hina við lenda menn sína og veitir ýmsum bet- ur. Islendingar apa eftir tískunni i Evrópu. Höfðingjunum þykir sú virðing mest að gerast lendir menn Noregs-konungs og kanske jarlar yfir öllu íslandi. Svo berjast þeir, unz yfir lýkur, og Gissur gengur sigrandi af hólmi. bá koma norsku biskuparnir til ið minna hann á, að hann sé ?kki einungis jarl yfir íslandi, heldur líka jarl undir Noregs- konungi. Svona legst alt á eitt að koma landinu undir Noregskonung vaxandi konungsvald, vaxandi vald páfa og metorðagirnd höfð ingja, sem hugsuðu og höguðu sér eftir þeim hugsjónum, sem þá voru ríkandi út í Evrópu. Þess- ar hugsjónir voru ekki hollar ís- lendingum, þótt þær veittu land- inu frið og kanske fullan kvið, meðan Noregskonungur gleymdi ekki að standa í skilum með skipin sex, sem senda átti af Nor- egi til landsins árlega eftir Gamla sáttmála. Skipin sex í Gamla sáttmála minna okkur á annan þátt í sjálf- stæðissögu íslands: sögu hins efnalega sjálfstæðis landsins, eða kanske öllu heldur hins efnalega ósjálfstæðis þess. Einokunin Hugurinn hvarflar þá til hins illræmdasta tímabils: öld einok- unarinnar frá 1600 fram á miðja 19. öld. Varla mun hægt að telja að neitt tímabil í sögu landsins hafi verið jafn-óvinsælt og þetta, má heita að öllum sagnariturum 19. og 20. aldar- innar hafi komið saman um að telja þetta höfuðmein íslenzku þjóðarinnar, átumein, sem nærri hafði riðið henni að fullu. Og hér eru það Danir, sem bera ábyrgð- ina og skuldinni er skelt á. Að sjálfsögðu er mikið, alt of mikið, hæft í þessari ljótu sögu, en þó er skylt að meta hvert mál frá fleiru en einu sjónarmiði; verið getur líka að hér sem oftar sann- ist það, að fátt sé svo með öllu ilt, að ekki boði nokkuð gott. Þess er þá fyrst að geta, að það var síður en svo, að Danir fyndu upp á einokunarverzlun- inni til að sjúga merg úr íslend- ingum. Þeir fóru eftir fyrir- myndum þeim, sem þá þóttu beztar með stórveldunum. Þá voru öll stórveldin á þönum að útvega sér nýlendur til þess að geta haft einkarétt á að verzla við nýlendurnar. Frjáls verzl- un þektist ekki. Hinsvegar þótti það góð pólitík að flytja hráefn- in úr nýlendunum heim til móð- urlandsins, vinna þar úr þeim og selja svo aftur hina unnu vöru til nýlendanna. Þetta átti að vera báðum gott nýlendunni og heimalandinu, en oftast nær mun heimalandið hafa hagnast meir, Englendingar og frelsið Hinsvegar eigum við það Eng- lendingum að þakka, að við losn- uðum að lokum við eniokunina, eins og við líka eigum þeim það að þakka, að Danir gáfu okkur pólitískt frelsi 1918. Því frá Eng- lendingum komu á 19. öldinni ekki aðeins hugmyndirnar um frjálsa verzlun, heldur einnig hugmyndirnar um auikið lýð- frelsi undir hinni þingbundnu konungsstjórn þeirra. Kröfurnar um lýðfrelsið urðu háværastar í frönsku byltingunum, en víðs- vegar í Evrópu spruttu upp af þeim kröfurnar um sjálfsá- kvörðunarrétt þjóðanna. 1 krafti þeirra brutust Grikkir undan yfirráðum Tyrkja, Ungverjar gerðu uppreisn gegn Austurríkis mönnum, Pólverjar gegn Rúss- um. Þessum kröfum var aldrei sint af meiri alvöru en eftir síðasta stríð, þegar smáþjóðir Evrópu fengu sjálfstæði í samræmi við (tillögur Wilson Bandaríkjafor- seta. Þegar Danir sömdu við okkur um að viðurkenna fullveldið 1918, þá voru þeir að taka síðasta skrefið í .þessari þróun. Krafan um sjálfsákvörðunarrétt þjóð- ernanna hafði eigi aðeins hlotið viðurkenningu í orði, heldur einnig á borði, framar en nokkru sinni áður hafði verið gert. Horfurnar í heiminum En hvernig blása nú vindar heimspólitíkurinnar gagnvart þessari kröfu? Hún er að vísu viðurkend i orði, en margt bendir á, að henn’* verði ekki mikill gaumur gefinn. nema þar sem stórveldunum þykir vel henta sínum eigin I hagsmunum. I Við Islendingar höfum verið svo hepnir að lenda þeim megin, sem áhættulaust var fyrir sjálf- stæði okkar í bráð. En Finnar hafa ekki verið svo hepnir, og Pólverjar hafa ekki verið svo hepnir, og það þó að Englending- ar færu í stríðið beinlínis til að vernda rétt þeirra og sjálfstæði- Alþjóðastefna ^ Eg get ekki betur séð en að alt sefni að því að minka rétt smáríkjanna, en auka rétt hinna miklu heimsvelda. Atlantshafs- sáttmálinn er metinn á við boð- orðin eða fjallræðuna, en frarii- kvæmdum er skotið á frest, eins og framkvæmdinni á boðorðinU um að elska óvini sína. Öll stefn- an er í alþjóðaáttina, burt fra þjóðerniskröfum 19. aldarinnar. Þessi alþjóðlega andúð gegn þjóðrækniskröfum manna, hlýf' ur að verða mjög alvarlegt m'ál fyrir þá íslendinga, sem vernda vilja íslenzkt þjóðerni í fraxö' tíðinni. í stað þess að Jón Sig'

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.