Heimskringla - 20.06.1945, Síða 4
4. SlÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 20. JÚNI 1945
Heimskringla
(StofnuO lStt)
Kemur út ó hverjuin miðvikudegi.
Eigendur: THE VIKING PRESS LTD.
853 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg — Talsími 24185
Verð blaðsins er $3.00 árgangurinn, borgist fyriríram.
Allar borganir sendist: THE VIKING PRESS LTD.
öll viðskíftabréf blaðinu aðlútandi sendist:
The Viking Press Limited, 853 Sargent Ave., Winnipeg
Ritstjóri STEFAN EINARSSON
Utanáskrift til ritstjórans:
EDITOR HEIMSKRINGLA, 853 Sargent Ave., Winnipeg
Advertising Manager: P. S. PÁLSSON
"Heimskringla" is published by and printed by
THE VIKING PRESS LIMITED
853-855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man. — Telephone 24 185
WINNIFEG, 20. JÚNÍ 1945
ÍSLANDS MINNI
Eftir dr. Stefán Einarsson.
Flutt að Hnausa, Man., 16. júní 1945.
Kæru landar mínir:
I.
Mig langar fyrst af öllu til að þakka ykkur fyrir þann heiður,
sem þið hafið gert mér með því að kalla mig hingað í dag til að
tala fyrir ykkur. Eg er ykkur enn þakklátur fyrir það, að þetta
er nú í annað sinn, sem þið kallið mig hingað, og það þótt eg í fyrra
skiftið brygðist algerlega vonúm ykkar, og gæti því tæplega vænst
þess að þið gengjuð eftir mér með grasið í skónum aftur.
Það er nú liðið hátt á annan tug ára síðan eg kom fyrst vestur
um haf. Þá mun eg hafa alið þá von í brjósti, að mér gæfist ein-
hverntíma tækifæri til þess að sækja ykkur heim, landana í
vestur-íslenzku bygðunum. Að sú von hefir ekki ræst fyr en nú
er, sem sagt ekki ykkar skuld, heldur sjálfsskaparvíti. Mér hefir
venjulega fundist, að eg hafi haft of mikið að gera til þess að taka
mig upp, — og svo hef eg þá látið mér nægja, að senda ykkur tón-
inn við og við. En eins og allir vita, þá eru það æfinlega mennirnir,
sem gera minst, sem mest þykjast hafa að gera, enda skal eg nú
láta útrætt um þetta mál.
II.
Vorið á íslandi
1 dag er vor heima á Islandi, hávor með björtum nóttum,
“nóttlaus voraldar veröld” eins og Stephan G. Stephansson kvað.
Það er þetta vor, sem eg hef altaf saknað, síðan eg kom vestur um
haf, því hér geng eg með þá tilfinningu, að það sé farið að dimma af
nótt, sumarið sé að kveðja. Hjá ykkur Canada-búum er munur
Jónsmessuleytis og skammdegis meiri en hann er suður í Balti-
more, en þó er enn mikilla muna vant að canadiska vorið nái hinu
íslenzka vori. Og eins og það er erfitt að gera sér grein fyrir vor-
nóttinni með sólinni við sjóndeildarhringinn í norðri, eins er það
ekki auðvelt að gera sér grein fyrir áhrifum þeim, sem ísl. vorið
hefir á alt sem lifir, fólk og fé. Alt rís af dvala: grasið grær, skóg-
Urinn ilmar, kúnum er hleypV út, féð rásar nýrúið inn á afréttir og
hestarnir una sér í grænum högunum hvasseygðir og makkareistir.
Farfuglarnir eru komnir og farnir að verpa, krían er sígargandi
við sjóinn, en lóan og spóinn halda daglanga hljómleika upp til
sveitanna.
Og áhrifin eru sízt minni á mannfólkið. Sannleikurinn er sá
að margir Islendingar hafa tilhneigingu til að leggjast í dvala eins
og híðbjörn í skammdeginu en sofa varla fuglsblund í langdeginu
á vorin. Vera má að mörgum þætti þeir ekki öfundsverðir af
slíku hlutskifti, og það er víst, að eg hef heyrt útlendinga kvarta,
eigi aðeins undan áhrifum skammdegisins, heldur einnig undan
svefnleysi hinna björtu nótta. En Islendingar láta það ekki á sig
fá; á misjöfnu þrífast börnin bezt, sagði gamla fólkið.
Hringleikur árstíða í mannlífi og þjóðlífi
Fyrir löngu hafa vitrir menn þótst skynja skyldleik með
hringleik árstíðanna og mannsæfinni. Eins og grasið sprettur úr
vetrardauðri moldinni, grænkar og blómgast með vorinu, ber
ávöxt að sumrinu og sölnar og fellur aftur í vetrardvalann með
haustinu, þannig fæðist barnið, þroskast sem unglingur, verður
fullorðinn maður, eignast börn og buru, eldist, hrörnar og deyr.
Og eigi aðeins mannlífið, heldur einnig þjóðiífið hefir oft virst
spekingum sömu lögum bundið, lögum fæðingar og þroska, hrörn-
unar og dauða. “Alt sem hefir upphaf þrýtur — alt 9em lifir
deyja hlýtur.”
Árstíðir í ísl. sögu
íslenzkir sagnfræðingar hafa a. m. k. síðustu hundrað árin
litið sögu þjóíar sinnar frá þessu sama sjónarmiði. Þeir hafa eygr
fornöldina í blámóðu aldanna, sem gengna gullöld. Sú gullöld átti
upphaf sitt með landnámi íslands, stóð kansike með mestum blóma
á sögu-öldinni, átti sín manndómsár á elleftu og tólftu öldinni, sín
hrörnunar og upplausnarár á Sturlungaöldinni. Eftir það tekur
við hinn langi vetrardvali, skammdegisdróminn, sem bindur þjóð-
ina um margar aldir, unz rofa fer af nýju vori á öndverðri riítjándu
öld.
Framför afturför?
Oft getur verið erfitt að átta sig á, hvað sé framför og hvað
afturför í heimi þessum. En það verða varla deildar meiningar
um það, að síðan á dögum Skaftáreldanna hafi íslenzka þjóðin
verið á stöðugri framfarabraut. Skaftáreldarnir, og það sem þeim
fylgdi, voru svartasta skammdegið, sem þjóðin hefir lifað, og
munaði fyrir manna sjónum ekki miklu, að hún skrimti ekki af.
En þjóðinni tókst að þreyja þorrann og góuna, hún svalt að vísu
heilu hungri, en hún komst af.
Vor 19. aldar
Og vor 19. aldarinnar var gott vor fyrir íslendinga. Þeir
Baldvin Einarsson, og Fjölnismenn hafa stundum verið kallaðir
vormenn Islands og það með réttu. Enginn ber það nafn þó með
jafnmikilli rentu og Jón Sigurðs-
son sjálfur, maðurinn sem fædd-
ist 17. júní 1811 á Rafnseyri á
Vestfjörðum og átti eftir að
verða sverð þjóðar sinnar, sómi
hennar og skjöldur um langa og
athafnaríka starfsæfi. Það er
táknrænt að Jón skuli vera fædd-
ur á vori. En þegar maður renn-
ur hugaraugum yfir æfi hans,
þá minnir hún mann þó enn
meir á þroská og gfóða sumars-
ins. Hér er maður sem ávalt
virðist hafa kunnað tökin á
hverju, sem hann tók sér fyrir
hendur. Hann gerði sér sögu
landsins að því vopni, sem bezt
beit í baráttunni við hin íhalds-
sömu öfl í Danmörku. Hann
vann mest að stofnun og mynd-
un hins nýja alþingis, sem nú á
aldarafmæli fyrsta júlí næst-
komandi. Og þótt hann lifði ekki
lengur en til að sjá hina fyrstu
stjórnarskrá, sem Kristján IX.
kom með færandi föðurhendi á
Þingvöll 1874, þá steig hann þó
bæði fyrsta og drýgsta sporið
til sjálfstæðis þess, sem við feng-
um viðurkent fyrst með samri-
ingum við Dani 1918 og nú svo
að segja spilandi upp á eigin
spýtur á lýðveldishátíðinni
fyrstu í fyrra, 17. júní 1944.
Lýðveldishátíð
Eg var eins f jarri lýðveldishá-
tíðinni á Þingvöllum í fyrra eins
og þið, en eg heyrði forseta Is-
lands lýsa gleði manna, er hann
kom vestur um haf í boði Roose-
velts í fyrra sumar. Og eg hel
lesið hinar snjöllu lýsingar á há-
tíðahöldunum eftir forseta Þjóð-
ræknisfélagsins, og getur engin
sem hefir þessar heimildir efast
um hátsíðaskap fólksins. — Eg
hef einungis lifað eina slíka
þjóðhátíð: Alþingishátíðina 1930,
en vera má, að sumt af elzta fólk-
inu, sem hér er saman komið
lumi enn á minningum um þús-
und ára afmæli landsins 1874.
III.
Horfur í heimspólitíkinni
Það getur verið, að það þyki
ekki viðeigandi að láta alvarlega
hluti raska hátíðaskapi manna,
en eg er svo skapi farinn, að eg
kann ekki við að þegja um það,
sem mér býr í brjósti úr því eg
■feinu sinni hef tekið til máls. Mér
er sagt að veður hafi verið mun
skuggalegra á Lýðveldishátíð-
inni 1944, heldur en á Alþingis-
hátíðinni 1980. Og mér kæmi
ekki á óvart, þótt sumum hefði
virst teiknin á himni heims-
pólitíkarinnar allmikið verri en
þau þó voru 1930. Þá lýstu ls-
lendingar yfir ævarandi hlut-
leysi sínu, og þótt sumum kunni
að hafa runnið í grun, að það
stæði kanske ekki til enda ver-
aldar, þá held eg flestum hefði
þótt forsögn, að ísland yrði kom-
ið í ófrið áður en 10 ár væru lið-
in. Svo fór nú samt, og nú þurf-
um við ekki að dyljast við, að
héðan af höfum við aldrei hlut-
leysis að vænta, ef stórveldun-
um slær saman í eina brýnu enn.
Það er að vísu stórþakkarvert að
vera undir Vernd Englendinga
og Bandaríkjamanna, bæði nú í
stríðinu og eins á komandi frið-
artímum. En sagan sýnir, þvi
miður, að það líður aldrei á
löngu, unz guð uppvekur vonda
menn, sem gera uppreisn mót
þjóðum þeim sem friðinn elska.
ísland Gibraltar Norðursins
Island er nú orðið Gíbraltar
norðursins fyrir engilsaxnesku
þjóðirnar, og þótt þær skifti sér
ekki af okkur á friðartímum, þá
hljóta þær að taka landið aftur
undir eins og ófrið ber að hönd-
um. Sá ófriður verður varla
hafinn fyr en uppreistarmenn,
hverjir svo sem þeir kunna að
verða eru orðnir jafnlangt á
undan öðrum í vígamensku eins
og Þjóðverjar voru þegar þeir
réðust á Pólland.
Ef Reykjavík er þá ofanjarðar
:á verður tæplega erfitt að þurks
hana út af kortinu eins og gerl
refir verið um svo margar borg-
ir í þessu stríði. Eg hygg því, ac
KVEÐJA
Frá Norður Nýja Islandi 19. júní 1945
til Dr. Stefáns Einarssonar
Fyrir ræður og ritin snjöll
og röggsemd kunna í iðju þinni,
velkominn bauð þig bygðin öll;
bróðurlegt viðmót og húsakynni.
Þú öðlaðist frægð fyrir orðsins mátt,
^r afl þíns penna ber ljósust merkin.
Um langar stundir, því ítök átt
í Islendings hug, fyrir snildarverkin.
1 gegn um þokuna heyrðist hljóð,
er heim oss seiddi í gamla bæinn:
Þar Breiðdælingur á bjargi stóð
og benti oss heim, yfir lönd og sæinn.
Hann gerðist útvörður íslenzks máls,
af eigin mætti og frjálsum vilja.
,1 gegn um sorann hann svarf til stáls;
og svör hans og rök jafnvel börnin skilja.
Þinn andi var frjáls, og sú skoðun skygn
á skapandi mátt hins göfga og sanna,
að íslenzkrar tungu eðlistign
sé áhrifakraftur, í lífi manna.
Og enn fer blærinn um Atlants sjá,
með alt, sem fest hafði dýpstar rætur;
sem vængjaþytur um vötnin blá,
og vorhugur frjáls, um bjartar nætur.
enda var leikurinn til þess gerð-
ur.
Áður en einokunarverzlunin
danska hófst, höfðu verið skær-
ur milli Englendinga og Þjóð-
verja um íslenzkar hafnir, er.
Dönum lukkaðist að bola báðum
burt. Sagnaritarar hafa bent á
það, að Englendingar borguðu
betur fyrir fiskinn en Danir
gerðu, og er líklegt að efnahag-
ur landsins hefði orðið betri, ef
Englendingar hefðu borið þá sig-
ur úr býtum. Spurningin er,
hvort það hefði orðið betra fyrir
sjálfstæði íslands. Eg held ekki.
— Það má að vísu deila um það.
En um hitt verður ekki deilt, að
Orkneyjar og Hjaltland, sem
komust undir ensk (skozk) yfir-
ráð á 14. og 15. öld, hafa með
öllu glatað tungu sinni og nor-
rænum arfi, þar sem Færeyingar
hafa haldið hvorutveggja með
mikilli prýði undir verndarhendi
Dana, þótt þeim hafi ekki altaf
þótt hún mjúk, fremur en okkur.
Þessi ólíku örlög Orkneyinga
og Færeyinga virðist mér benda
ótvírætt í þá átt, að við eigum
jafnvel einokun Dana ekki ó-
merkilega skuld upp að inna, ef
við á annað borð metum, það að
hafa haldið þjóðerninu óbreyttu.
Nú meta vér viljum og þakka þér,
þrotlausa vörn um helgidóminn,
hinn dýrmæta þjóðararf, sem er
íslenzka málið, með töfra hljóminn.
Og vesturálfan þig annist bezt
í athöfn og framsókn braut þér greiði;
en Island, sem gaf þér af öllu mest
að enduðum degi heim þig leiði.
S. E. Björnsson
ef Reykvíkingar vilji ekki fljóta
sofandi að feigðarósi, þá Verði
þeir að grafa sig í fjöllin: annað-
hvort í Öskuhlíðina, eða kanske
öllu heldur í Esjuna. Þetta hafa
Svisslendingar gert a. m. k. og
þetta urðu Malta-búar að gera
eftir að styrjöldin hófst.
Eg skal nú ekki fara lengra út
í þessar hrakspár, þó að eg geti
ekki neitað því> að mér þykir,
ekki óviturleg heimspeki Ein-
ars gamla á Kleif. Hann sagði:
“Bústu við því illa, það góða
skaðar þig ekki.”
Island í útsæ veraldar
En eg verð að benda á annað
atriði í sjálfstæðismáli Islands.
Það er eðlilegt, að fyrir flestum
standi það sem barátta milli
hinna íslenzku frumherja frels-
isins — með hetju dagsins Jón
Sigurðsson í broddi fylkingar
og hinna dönsku kúgara. En í
raun og veru er þessi frelsisbar-
átta ekki nema lítið straumkast
eða hringiða í hinum mikla póli
tíska útsæ veraldar. Og þótt
Islendingar hafi oft ekki vitað
það sjálfir, þá hafa kjör þeirra
löngum mótast af því pólitíska
veðri, sem í þann og þann svip-
inn var staðviðri úti í Evrópu
eða hinni víðu veröld.
Glötun sjálfstæðis á 13. öld
Þetta er áþreifanlegt á Sturl-
ungaöldinni, þeirri öld er glataði
hinu forna sjálfstæði landsins.
Hvernig er þá umhorfs í ná
grannalöndunum? Veraldlega
valdið er í höndum konungs og
lénsmanna hans, en andlega
valdið í höndum páfa. Hver otar
sínum tota. Páfi gerir harðar
kröfur um aukið vald kirkjunnar
bæði um eignarrétt á kirkjum og
aukið vald guðslaga í löndunum.
Konungarnir berjast á aðra hönd
við páfann, á hina við lenda
menn sína og veitir ýmsum bet-
ur.
Islendingar apa eftir tískunni i
Evrópu. Höfðingjunum þykir
sú virðing mest að gerast lendir
menn Noregs-konungs og kanske
jarlar yfir öllu íslandi. Svo
berjast þeir, unz yfir lýkur, og
Gissur gengur sigrandi af hólmi.
bá koma norsku biskuparnir til
ið minna hann á, að hann sé
?kki einungis jarl yfir íslandi,
heldur líka jarl undir Noregs-
konungi.
Svona legst alt á eitt að koma
landinu undir Noregskonung
vaxandi konungsvald, vaxandi
vald páfa og metorðagirnd höfð
ingja, sem hugsuðu og höguðu
sér eftir þeim hugsjónum, sem þá
voru ríkandi út í Evrópu. Þess-
ar hugsjónir voru ekki hollar ís-
lendingum, þótt þær veittu land-
inu frið og kanske fullan kvið,
meðan Noregskonungur gleymdi
ekki að standa í skilum með
skipin sex, sem senda átti af Nor-
egi til landsins árlega eftir
Gamla sáttmála.
Skipin sex í Gamla sáttmála
minna okkur á annan þátt í sjálf-
stæðissögu íslands: sögu hins
efnalega sjálfstæðis landsins, eða
kanske öllu heldur hins efnalega
ósjálfstæðis þess.
Einokunin
Hugurinn hvarflar þá til hins
illræmdasta tímabils: öld einok-
unarinnar frá 1600 fram á miðja
19. öld. Varla mun hægt að
telja að neitt tímabil í sögu
landsins hafi verið jafn-óvinsælt
og þetta, má heita að öllum
sagnariturum 19. og 20. aldar-
innar hafi komið saman um að
telja þetta höfuðmein íslenzku
þjóðarinnar, átumein, sem nærri
hafði riðið henni að fullu. Og hér
eru það Danir, sem bera ábyrgð-
ina og skuldinni er skelt á. Að
sjálfsögðu er mikið, alt of mikið,
hæft í þessari ljótu sögu, en þó er
skylt að meta hvert mál frá
fleiru en einu sjónarmiði; verið
getur líka að hér sem oftar sann-
ist það, að fátt sé svo með öllu
ilt, að ekki boði nokkuð gott.
Þess er þá fyrst að geta, að
það var síður en svo, að Danir
fyndu upp á einokunarverzlun-
inni til að sjúga merg úr íslend-
ingum. Þeir fóru eftir fyrir-
myndum þeim, sem þá þóttu
beztar með stórveldunum. Þá
voru öll stórveldin á þönum að
útvega sér nýlendur til þess að
geta haft einkarétt á að verzla
við nýlendurnar. Frjáls verzl-
un þektist ekki. Hinsvegar þótti
það góð pólitík að flytja hráefn-
in úr nýlendunum heim til móð-
urlandsins, vinna þar úr þeim og
selja svo aftur hina unnu vöru
til nýlendanna. Þetta átti að
vera báðum gott nýlendunni og
heimalandinu, en oftast nær mun
heimalandið hafa hagnast meir,
Englendingar og frelsið
Hinsvegar eigum við það Eng-
lendingum að þakka, að við losn-
uðum að lokum við eniokunina,
eins og við líka eigum þeim það
að þakka, að Danir gáfu okkur
pólitískt frelsi 1918. Því frá Eng-
lendingum komu á 19. öldinni
ekki aðeins hugmyndirnar um
frjálsa verzlun, heldur einnig
hugmyndirnar um auikið lýð-
frelsi undir hinni þingbundnu
konungsstjórn þeirra. Kröfurnar
um lýðfrelsið urðu háværastar í
frönsku byltingunum, en víðs-
vegar í Evrópu spruttu upp af
þeim kröfurnar um sjálfsá-
kvörðunarrétt þjóðanna. 1 krafti
þeirra brutust Grikkir undan
yfirráðum Tyrkja, Ungverjar
gerðu uppreisn gegn Austurríkis
mönnum, Pólverjar gegn Rúss-
um.
Þessum kröfum var aldrei sint
af meiri alvöru en eftir síðasta
stríð, þegar smáþjóðir Evrópu
fengu sjálfstæði í samræmi við
(tillögur Wilson Bandaríkjafor-
seta.
Þegar Danir sömdu við okkur
um að viðurkenna fullveldið
1918, þá voru þeir að taka síðasta
skrefið í .þessari þróun. Krafan
um sjálfsákvörðunarrétt þjóð-
ernanna hafði eigi aðeins hlotið
viðurkenningu í orði, heldur
einnig á borði, framar en nokkru
sinni áður hafði verið gert.
Horfurnar í heiminum
En hvernig blása nú vindar
heimspólitíkurinnar gagnvart
þessari kröfu?
Hún er að vísu viðurkend i
orði, en margt bendir á, að henn’*
verði ekki mikill gaumur gefinn.
nema þar sem stórveldunum
þykir vel henta sínum eigin
I hagsmunum.
I Við Islendingar höfum verið
svo hepnir að lenda þeim megin,
sem áhættulaust var fyrir sjálf-
stæði okkar í bráð. En Finnar
hafa ekki verið svo hepnir, og
Pólverjar hafa ekki verið svo
hepnir, og það þó að Englending-
ar færu í stríðið beinlínis til að
vernda rétt þeirra og sjálfstæði-
Alþjóðastefna ^
Eg get ekki betur séð en að
alt sefni að því að minka rétt
smáríkjanna, en auka rétt hinna
miklu heimsvelda. Atlantshafs-
sáttmálinn er metinn á við boð-
orðin eða fjallræðuna, en frarii-
kvæmdum er skotið á frest, eins
og framkvæmdinni á boðorðinU
um að elska óvini sína. Öll stefn-
an er í alþjóðaáttina, burt fra
þjóðerniskröfum 19. aldarinnar.
Þessi alþjóðlega andúð gegn
þjóðrækniskröfum manna, hlýf'
ur að verða mjög alvarlegt m'ál
fyrir þá íslendinga, sem vernda
vilja íslenzkt þjóðerni í fraxö'
tíðinni. í stað þess að Jón Sig'