Heimskringla - 20.06.1945, Side 8

Heimskringla - 20.06.1945, Side 8
8. SIÐA HEIMSKRINGLA FJÆR OG NÆR MESSUR í ÍSLENZKU SAMBANDSKIRKJUNUM tJtvarpsmessa Útvarpguðsþjónusta fer fram í Sambandskirkjunni í Winnip>eg n. k. sunnudag, 24. júní kl. 7 e. h. C.D.T. og verður útvarpað yfir CKY. Séra Philip M. Pétursson messar. $ Söngflokkurinn syngur undir stjórn Péturs Magnús, en organ- isti verður Gunnar Erlendsson. Sólóistar verða Mrs. Elma Gísla son og Pétur Magnús. Sálmarnir sem sungnir verða, eru nr. 556, Ó, syng þínum drottni, eftir Valdimar Briem; nr. 59, Á hendur fel þú honúm, eftir Björn Halldórson; nr. 334, Sú trú, sem fjöllin flytur, eftir Helga Hálfdánarson; nr. 638, faðir andanna, eftir Matthías Jochumsson. — Söngflokkurinn syngur “Bæn“ eftir Gluch, en einsöngurinn sem Mrs. Gíslason syngur verður “How Lovely are Thy Dwellings”. Þessi útvarpsmessa, eins og áður, er undir umsjón Hins sam- einaða kirkjufélags íslendinga í Norður Amreíku. Leitað er til almennings að styrk til að halda útvarpsmessum uppi. Áður hafa menn sýnt mikla velvild með því að styrkja þessi fyrirtæki, og vonast er að nú aftur verði hlý- hugur gagnvart kirkjufélaginu sýndur. Gjaldkeri er Páll S. Pálsson, 796 Banning St., Win- nipeg. ★ ★ ★ Messa og ársfundur í Riverton Messað verður í Sambands- kirkjunni í Riverton sunnudag- inn 24. júní n. k. kl. 2 e. h. Árs- fundur safnaðarins verður á eft- ir messunni. Óskandi væri að sem flestir mættu. Messa á Lundar og Oak Point Messað á Lundar kl. 2 e. h. 24. júní n. k. Safnaðarfundur eftir messu. Sama dag verður ensk messa flutt að Oak Point kl. 8.30 e. h. H. E. Johnson * « * * Mrs. Svava Líndal lézt að heimili sínu, 277 Toronto St., hér í Winnipeg 19. þ. m. Fékk slag og lifði aðeins einn sólar- hring. Hún var ekkja Björns Líndals, sem dó s. 1. ár. Mrs. Lindal var 85 ára að aldri, frá- bærlega vel gefin kona andlega og líkamlega. Útförin fer fram frá útfararstofu Bardals, föstud. 22. júní kl. 3.30. Séra Philip M. Pétursson jarðsyngur. ★ ★ ★ Dr. R. Beck, sem staddur er hér nyrðra í þjóðrækniserindum, gat þeirra frétta að sunnan, að cand..theol. Pétur Sigurgerisson hafi verið kominn til Grand Forks, er hann fór að heiman, og sé væntanlegur bráðlega til Win- nipeg. ★ ★ ★ Dánarfregn Þriðjpdaginn 12. júní, jarð- söng séra E. J. Melan, Björgu Jónsdóttur Goodman, sem and- aðist 9. júní s. 1. að heimili Mrs. Inge í Foam Lake. Björg sál. var fædd 13. júní, árið 1851 í Sel- fosskoti á Skaga í Skagafjarðar- sýslu. Foreldrar hennar voru hjónin Jón Sigurðsson og Elísa- bet Þorláksdóttir. Björg fulttist til Canada 1874 og dvaldi á ýms- um stöðum og síðustu ár æfinn- ar, eftir að hún misti mann sinn, dvaldi hún hjá Mrs. Inge, sem býr ásamt syni sínum og tengda- dóttur nálægt Foam Lake. Björg sál. var dugandi kona, trygg ó*g falslaus, er bar erfiðleika lífsins með þolgæði og hreysti, og vildi ætíð öllum gott. Hún var jörð- uð frá United kirkjunni í Foam Lake og lögð til hvíldar í grafreit bæjarins. Islenzk útvarpsguðsþjónusta frá Sambandskirkjunni í Winnipeg SUNNUDAGINN, 24. þ. m. kl. 7 e. h. Valdir sálmar, ágætir einsöngvar, sérstaklega valin ræða og organspil. Útvarpað yfir CKY stöðina. — Sjá Sambandskirkju fréttir á öðrum stað í Heimskringlu. SAMKOMA KVENNASAMBANDSINS VERÐUR HALDIN I ÁRBORG HALL, ÁRBORG, MAN. LAUGARDAGINN, 30. JÚNl 1945, kl. 9 e. h. SKEMTISKRÁ: 1. O Canada 2. Ávarp forseta ________Ólafía J. Melan 3. Violin solo Jóhannes Pálson, Lilja Martin, aðstoðar 4. Duet________Svava Pálson og Lovísa Erickson 5. Flower Drill Undir stjórn Mrs. P. Onyrko, Riverton 6. Violin solo Jóhannes Pálson, Lilja Martin aðstoðar 7. Trio Emily Abrahamson, Svava Pálson, Lovísa Erickson 8. Söngflokkur ungra stúlkna, undir stjórn Davíð Jensen Mrs. Broadley, aðstoðar 9. God Save the King. Aðgangseyrir — 35? fyrir fullorðna, 20? fyrir börn ÞINGBOÐ Nítjánda ársþing Sambands Islenzkra Frjáistrúar Kven- félaga í N. Ameríku, hefst LAUGARDAGINN 30. JÚNÍ, 1945 kl. 9 f. h. í kirkju Sambandssafnaðins í Árborg, Man. Dagskrá þingsins verður á þessa leið: Laugardaginn 30. júní, kl. 9—12 f. h. Ávarp forseta Forseti Sambands kvenfélagsins í Árborg, býður gesti velkomna. Fundargerð síðasta þings lesin. Skýrsla fármálaritara lesin. Skýrsla féhirðis lesin. Skýrslur kvenfélaga Sambandsins lesnar. Skýrslur millinþinganefndar lesnar. Sunnudaginn 1. júlí 9—10.30 f.h. — Þingfundir. 10.30—11.30 — Almennar umræður um áhugamál Sambands kvenfélaganna. Kl. 11.30—12 — Embættismanna kosningar. Kl. 3.30—4 e. h. — Fyrirlestur um heilbrigðismál, Miss Laura Johnson. Kl. 4—4.30 e. h. — Afhnet skírteini heiðursfélögum Sambandsins. Kl. 4.30—6 e. h. — Ný mál og þingslit. Ólafía J. Melan, forseti Ólöf Oddleifson, ritari 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. Kl. Kl. Á meðal greina er bíða næsta i blaðs, vegna rúmleysis, eru | Minni Canada flutt að Hnausa, ! eftir W. J. Lindal dómara, út- varps ávarp frá Thor Thors ! sendiherra o. fl. Eru hlutaðeig- endur beðnir afsökunar. * * * Skírnarathöfn j Sonur þeirra hjóna Mr. og Mrs. Joseph Harold Marsh, í St. Vital, ! Gary Harold, var skírður s. 1. laugardag að heimili foreldra hans, 7 Claydon Road. Séra Philip M. Pétursson fram- kvæmdi athöfnina. Guðfeðgin voru Miss Ella Hall, frænka Mrs. Marsh, og Mr. J. Herbert. * * * I bakseglin virðist aftur hafa slegið á San Francisco-fundinum, vegna þess að Rússar hafa beð- I ist þess, að tillögurnar um að : smærri þjóðir nýja þjóðabanda- i lagsins hefðu vald til þátttöku ! og umræðna á stríðsgerðum frið- i arfélagsins séu til baka dregnar. Málið um hver valdið skuli hafa I í nýja þjóðabandalaginu, eru því alt annað en samþyktar ennþá. * k * Hallur Magnússon frá Van- j couver kom í fyrri viku til bæj- arins. Hann bjó í Winnipeg fyrstu árin eftir komuna að heiman og reisti hér hús, en hef ir ekki verið hér s. 1. 20 ár. Hann er hér að heimsækja gamla vini og kunningja, er öllum þykir gaman að hitta hann, því hann er fullur'glaðværðar og fyndni, eins og fyrrum. n it * Dánarfregn Þann 14. júní s. 1. jarðsöng séra E. J. Melan, Guðrúnu 111 ugadóttir Björnson, sem andað ist 11. júní á sjúkrahúsinu i Wynyard, Sask. Hún var fædd 6. apríl 1858. Hún giftist á Is- landi og misti þar mann sinn. Fluttist hingað til lands árið 1900. Tvær dætur hennar eru á lífi, Mrs. Ingibjörg Sveinson á Gimli og Mrs. Sigríður Gíslason, Wynyard. Frá heimili hinn- ar síðarnefndu var hún jörðuð og hvílist í grafreit bygðarinnar. * * * Mr. og Mrs. Jóhannes Gísla- soA frá Elfros, Sask., komu til bæjarins s.l. föstudag. Þau fóru norður til Hnausa s. 1. laugardag til að vera við lýðveldishátíðina, og dvelja þar nyrðra nokkra daga í heimsókn hjá vinum og kunningjum. ★ ★ * Stúkan Skuld heldur næsta fund sinn á heimili Mrs. M. Johnson, 308 Furby St. Allir meðlimir eru beðnir að sækja fundinn. ★ ★ ★ Undirritaður óskar eftir að fá keyptar þessar bækur: Árbækur Espólíns, Sýslumannaæfir B. B., Prestatal S. Níelssonar, Skóla- meistarasögur, Færeyingasögu, Sverrissögu, Atla. S. Baldvinson, Gimli, Man. ★ ★ ★ The Rt. Rev. Dr. Franklin C. Fry, útvarpar á ensku prédikun frá Fyrstu lút. kirkju n. k. sunnu- dag kl. 11 f. h. Hann er hér staddur í sambandi við kirkju- þing lúterskra er hefst á morgun. ★ ★ ★ Séra Ásmundar Guðmunds- sonar, próf. við guðfræðideild há- skóla íslands, er von til Winni- peg í sambandi við kirkjuþing lúterskra. Ingimundur Ólafsson frá Reykjavík, Man., var á ferð í bænum s. 1. viku. * ★ ★ Skírnarathöfn Sunnudaginn 11. júní, fór fram skírnarathöfn að guðsþjón- ustunni lokinni, sem fór fram í Piney, og voru þá fimm börn skírð. Séra Philip M. Pétursson framkvæmdi athöfnina. Börnin voru Richard Christopher, sonur hjónanna Riohard Magnus Nor- man og Patricia Mary Patrick Norman; Wayne Frank, sonur hjónanna Frank Okapiec og Myrtle Olson Okapiec; Patsy Ann, Freeman John, og Lloyd Lawson, börn þeirra Björns Freemans Asmundson og Clara Margaret Lawson Asmundson. Guðfeðgin hinna síðast nefndu barna voru Mr. og Mrs. W. Björnsson. En guðfeðgini Rich- ard Christopher Norman voru Mr. Steve Stephanson og Miss Maye Norman, og fyrir Wayne Frank Okapiec, Mr. Freeman Ásmundson og Miss Jlthel Olson. móðursystir barnsins. * ★ ★ Jón Sigurðsson félagið þakk- ar öllum sem tóku þátt í því að gera kaffisöluna 22. maí ánægju- lega. Sérstaklega þakkar félag- ið Major J. Hjálmarson er flutti erindi að kveldinu og Miss Mar- gréti Helgason, er skemti gestum með söng. Félagið hefir gefið $25 í sjóð Kauða Krossins í þakklátri minn- ingu um V-E. Day”, og til að minnast afmælisdags Jóns Sig- urðssonar 17. júní. ★ ★ ★ Vísa Þegar ljóðagerðin góð geilsum braga klæðist, hýrnar auga, hitnar blóð hjartað endurfæðist. C. O. L. Chiswell ★ ★ ★ Bréf til Hkr.: Laugaveg 69, Reykjavík, 10. maí, 1945 Kæra Heimskringla: Eg þakka þér fyrir að þú tókst á móti beiðni minni um bréfa- viðskifti. Eg hef komist í bréfa- samband við marga landa mína vestan hafs og á eg það þér að þakka og vona eg að þú eigir langa og góða lífdaga fyrir hönd- um og eigir eftir að auka ennþá meir á samheldni Islendinga þarna fyrir vestan og hér heima. Lengi lifi Heimsrkingla. Þinn einlægur, Guðm. Marteinsson >« ★ * “Brautin” ársrit Hins sameinaða kirkju- félags Islendinga, verður full- prentað innan fárra daga. Ritið er hið vandaðasta í alla Staði, og flytur framhald af Kirkjusögu Islendinga í Vesturheimi, ásamt öðru fjölbreyttu efni. Eg vildi mælast til að um- boðsmenn sem kynnu að hafa einhver eintök óseld, láti mig vita sem fyrst, hvað mörg þau eru, sömuleiðis eintakafjöldann af II. árgangi, sem þeir óska að fá til útbýtingar. Ritið kostar aðeins $1.00. Þeir sem vilja fá það sent beint með pósti, snúi sér til undirritaðs. Umboðsmönnum Brautarinn- ar, vil eg þakka einlæglega fyrir hönd útgefenda, alla þeirra að- stoð við sölu fyrsta árgangsins, og vona að þessi árgangur verði öllum kærkominn gestur. Páll S. Pálsson —796 Banning St., Winnipeg WINNIPEG, 20. JÚNl 1945 Látið kassa í Kæliskápinn WvnoLa Æ GOOD ANYTIME The SWAN MFG. Co. Manufacturers of SWAN WEATHER-STRIP 281 JAMES ST„ WINNIPEG Phone 22 641 Halldór M. Swan, eigandi Thos. Jackson & Sons LIMITED COAL - COKE - BRIQUETTES STOKER COAL Phone 37 071 (Priv. Exch.) 370 Colony St. Winnipeg Central Dairies Limited Kaupa tnjólk og rjóma Areiðanleg og fljót skil Telephone 57 237 121 Salter St. — Winnipeg Eric A. Isfeld, ráðsmaður PRINCESS MESSENGER SERVICE We move trunks, small suite furniture and household articles of all kinds. 58 ALBERT ST. — WINNIPEG Telephone 25 888 C. A. Johnson, Mgr. Hársnyrting — beztu aðferðir AMBASSADOR Beauty Salon 257 KENNEDY ST. sunnan við Portage Talsími 92 716 S. H. Johnson, eig. MESSUR og FUNDIR í kirkju Sambandssafnaðar Prestur, sr. Philip M. Pétursson 640 Agnes St. Sími 24 163 Messur: á hverjum sunnudegi Kl. 11 f. h. á ensku Kl. 7 e. h. á íslenzku. Safnaðarnefndin: Fundir 1. föstudag hvers mánaðar. Hjálparnefndin: Fundir fyrsta mánudagskveld í hverjum mánuði. Kvenfélagið: Fundir annan þriðjudag hvers mánaðar, kl. 8 að kveldinu. Ungmennafélagið: — Hvert sunnudagskveld kl. 8.30. Skátaflokkurinn: Hvert mið- vikudagskveld kl. 6.30. Söngœfingar: lslenzki söng- flokkurinn á hverju fimtu- dagkkveldi. Enski söngflokkurinn á hverju miðvikudagskveldi. Sunnudagaskólinn: A hverjum sunnudegi, kl. 12.30 e.h. MINNIST B-E-T-E-L í erfðaskrám yðar ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG j tSLENDINGA t Forseti: Dr. Richard Beck * University Station, ; Grand Forks, North Dakota j Allir Islendingar í Ame- j ríku ættu að heyra til Þjóðrœknisfélaginu Ársgjald (þar með fylgir | Timarit félagsins ókeypis) | $1.00, sendist fjármálarit- * ara Guðmann Levy, 251 i Furby St., Winnipeg, Man | Tilkynning # til vestur-íslenzkra hluthafa í Eimskipafélagi Islands Símskeyti barst Árna G. Eggertsyni 3. þ. m. frá Eim- skipafélagi íslands, Reykjavík, að ársfundur félagsins hefði verið haldinn 2. júní s. 1. Fundurinn endurkaus, í stjórnarnefnd Eimskipafé- lagsins, hr. Árna G. Eggertson, K.C., til tveggja ára. Samþýkt var að félagið borgaði 4 prósent í arð fyrir árið 1944. Útborgun á þeim arði til vestur-óslenzkra hlut- hafa annast hr. Árni G. Eggertson, K.C., 209 Bank of Nova Scotia Bldg., Winnipeg. Ámi G. Eggertson —ÞINGBOЗ 23. ársþing Hins Sameinaða Kirkjufélags fslend- inga í Norður Amerífcu verður sett í kirkju Sambandscafnaðar í Árborg, Man. FÖSTUDAGINN 29. JÚNÍ, 1945, kl. 7.30 síðdegis Söfnuðir sem eru í kirkjufélaginu eru kvaddir til að senda fulltrúa á þingið, tvo fyrir hverja hundrað safnaðar- meðlimi eða færri, og einn fyrir hverja fimtíu þar yfir. Á þinginu mæta einnig fulltrúar sunnudagaskóla og ungmennafélaga. Samband Islenzkra Frjálstrúar Kvenfélaga heldur þing sitt laugardaginn 30. júní. Erindsrekar skrásetjist í Sambandskirkjunni kl. 5—7 e. h. þingsetningardaginn. DAGSKRA ÞINGSINS: Föstudaginn 29. júní: Kl. 7 e. h. — Þingsetningar guðs- þjónusta. Þingsetning (ávarp forseta). Nefndir sett- ar. Fyrirlestur. Laugardaginn 30. júní: Kl. 9—12 — Kvennaþing. Nefnd- arfundir. Kl. 1.30—6 — Aðal þingstörf, nefndarálit o. s. frv. Kl. 8.30 — Samkoma Kvennasamibandsins. Sunnudaginn 1. júlí: Kl. 9—12 — Kvennaþing. Nefndir aðal þingsins mæta. Kl. 2 — Guðsþjónusta. Kl. 3.30—5 — Þingstörf. Kvennaþing. Kl. 8.30 — Fyrirlestur og þingfundir. Mánudaginn 2. júlí: Kl. 9—12 — Þingfundir. Kl. 2—4 — Kosning embættismanna. Ólokin störf. þingslit. Kl. 4 — Skemtiferð til Sumarheimilisins á Hnausum. Hannes Péturson, forseti Philip M. Pétursson, ritari

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.