Heimskringla - 27.06.1945, Blaðsíða 4
4. SIÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 27. JÚNI 1945
■pfeímskringla
(Sto/nuB lttS)
Kemur út á hverjum miðvikudegi.
Eigendur: THE VIKING PRESS LTD.
853 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg — Talsimi 24 185
Verð blaðsins er $3.00 árgangurinn, borgist fyrirfram.
Allar borganir sendist: THE VIKING PRESS LTD.
--—-— ---g------------
öll viðskiftabréf blaðinu aðlútandi sendist:
The Viking Press Limited, 853 Sargent Ave., Winnipeg
Ritstjóri STEFAN EINARSSON
Utanáskrift til ritstjórans:
EDITOR HEIMSKRINGLA, 853 Sargent Ave., Winnipeg
Advertising Manager: P. S. PÁLSSON
"Heimskringla" is published by and printed by
THE VIKING PRESS LIMITED
853-855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man. — Telephone.24 185
----------------- ---------- ■ ■■ 5 .-n=.-n—
WINNIPEG, 27. JÚNÍ 1945
Kirkjuþingið í Árborg
ÁrSþing hins Sameinaða kirkjufél'ags Islendinga í Norður
Ameríku, verður í ár haldið í Árborg; það hefst n. k. föstudags-
kvöld (29. júní). f
Starfsskrá þingsins hefir verið auglýst og þarf hér ekki að
orðlengja um ihana. En vér viljum þó draga athygli lesenda að
nýrri og góðri frétt þar, en hún er sú að á þessu þingi verður kær-
kominn gestur heiman af Islandi og flytur þar fyrirlestur á sunnu-
dagskvöldið (1. júlí). Gesturinn er próf. Ásmundur Guðmundsson,
formaður guðfræðisdeildar Háskóla Isl'ands og ritstjóri Kirkju
ritsins, sem gefið er út af Prestafélagi Islands. Hann ér staddur
hér um þessar mundir í boði Evangeliska lúterska kirkjufélagsins,
á 60 ára starfsafmæli þess. Kom hann rakleiðis heiman af
íslandi, fór þaðan 19. júní og verður aftur komin heim í byrjun
ágúst mánaðar. Próf. Ásmundur hefir góðfúslega lofast til að
heimsækja ársþing Sameinaða kirkjufélagsins, sem vér vitum
fyrÍTtfram, að er ánægjuefni þeim, sem kost eiga á að sækja
þingið.
Annar góður gestur er hér einnig staddur að heiman, þó í
Bandarí'kjunum hafi verið um. skeið. Það er cand. theol. Pétur
Sigurgeirsson, sonur Sigurgeirs Sigurðssonar, biskups Islands.
Vonum vér að hann komi því einnig við að heimsækja ársþingið í
Árborg. Það mundi marga gleðja, er föður hans kyntust. Hann
naun dvelja hér nyrðra um þriggja mánaða skeið og staría að
prestverkum bæði í Winnipeg og Argyle-nýlendunni.
Auk þessa fer margt fram á ársþinginu; þar verða mörg
erindi flutt af þektum ræðusnillingum bæði konum og körlum,
því Kvennasambandið hefir þing sitt á sama tíma.
Að öðru leyti skal vísað til auglýsinga í blaðinu um starf
þingsins.
ÚT VARPSRÆÐ A
Flutt af séra Philip M. Pétursson
í Sambandskirkjunni í Win-
nipeg, 24. júní síðastl.
Eg hefi valið textann fyrir
þessa útvarpsguðsþjónustu úr
17. kap. Lúkasarguðspjalis, þar
sem að þessi orð standa rituð:
“En er hann var aðspurður af
Fariseunum, hve nær guðsríki
mundi koma, svaraði hann þeim
og sagði: Guðsríki kemur ekki
þannig að á það verði bent; og
ekki munu menn segja, Sjá, það
er hér, eða það er þar; því sjá,
guðsríki er hið innra í yður.”—
Lúk. 17:20, 21.
1 þessum orðum er aðal áherzl-
an lögð á hugsunina að guðsríki
er hið innra í oss, og eg legg
þannig út af þeim orðum, að
heimurinm verði að guðsríki, eða
stetfni í þá átt, í hlutfalli við full-
komnun mannkynsins, þ. e. a. s.
eftir því, að hve miklu leyti
mennirnir fullkomnast. Heim-
urinn fullkomnast með full-
komnun mannanna! Ófullkomn-
ar verur geta naumast búið í eða
stjórnað fullkomnu þjóðfélagi
svo að fullkomnunin glatist ekki.
Þannig bera thin fornu orð oss
boðskap, sem vér verðum enn að
athuga^ með mikilli gaumgæfni,
“Guðsriki er hið innra í yður”. 1
hverjum manni eru guðdómlegir
möguleikar, og oss ber, hverjum
og einum af oss, að hlúa að þrosk-
un og full'komnun þeirra mögu-
leika, svo að þeir blómgist og
beri ávöxt, svo að þeir rnegi birt-
ast í framkomu vorri og öllum
samböndum vorum við aðra
menn. Þannig, með því móti,
getur ríki guðs orðið að lokum,
að fullkomnum veruleika meðal
mannanna.
Hinn mikli guðfræðingur, sem
séra Matthras Jochumsson dáði
svo mjög og mintist í bréfum sín-
um, stofnandi Unitara félagsins
í Bandaríkjunum, William El-
lery Channing, lýsti því yfir
einu sinni, að tilbeiðsla, sem
væri samífara skilningi, — og
sem leitaðist við að stofna rétt-
læti og þekkingu meðal manna,
gæti ekki annað en leitt menn
inn á hærra svið þekkingar, bæði
á sjálfum sér og á heimiinum um-
hverfis þá’ og þar að auki á til-
gangi mannanna í heiminum og
takmarkinu, sem þeim var ætlað
að stefna að. Þannig með þeirri
tilbeiðslu uppfyllir maðurinr.
fyrirmæli og boðskap allra hinna
æðstu og fullkomnustu trúar-
leiðtoga heimsins, sem nokkurn-
tíma hafa verið uppi, 9pámanna
gamla testamentisins, höfunda
hinna miklu austrænu trúar-
bragða, og Jesú sjálfs, er hanr.
kom til sögunnar.
Það er í þesskonar hlutum, í
þesskonar kenningum, sem vér
finnum það, sem hefir ævarandi
gildi í trúmálum, og sem hefir
djúpa og raunverulega þýðingu
fyrir oss. Það eru þesskonar
hlutir, sem vér verðum að leggja
vora aðal álherzlu á í trúarvið-
leitni vorri. Og gerum vér það,
þá megum vér með réttu teljast.
eins og komist hefir verið að
orði: ‘meðal hinna útvöldu af
giuði’.
En eins og allir vita, er það
vanalega auðvelt að ráðleggja
öðrum. Vanalega er mjög auð-
Velt að tala um ástandið í heinw
inum eins og oss finst það eigi að
vera en ér samt’ ékki. ‘ Einnig er
auðvelt að sjá otg skilja það, sem
ábótavant var í fornri tíð, og öðl-
ast skilning um hvernig heimin-
um var oft haldið til baka, vegna
skamsýni og skilningsleysi
mannanna. En ekki er eins
auðvelt fyrir oss að sjá vor eigin
mistck né heldur að fylgja hinu
rétta eða sanna, og sízt cif öllu
þegar það kemur í bága við skoð-
anir sem vér hötfum áður haldið,
jafnvel þó að þær séu villa. Þetta
megum vér til að skilja og kann-
ast við.
Er vér lesum fornsögur heims-
ins, 9jáum vér hvernig villimað-
urinn, eða fornmaðurinn út-
I skýrði náttúrufyrirbrigðin eins
| og til dæmis, þrumuna og eld
inguna og storminn. 1 fornfræð-
um vorrar eigin þjóðar koma
fram skýringar á þessum hlutum
sem errgum nútíma manni kæmi
til hugar að taka sem fullgild-
ar, vegna framíara á sviði lær-
dóms og þekkingar.
Framfarirnar hafa verið mikl-
ar. Vér hreykjum oss upp af
fullkomnara skiining vorn, af
æðri þekkingu og vísindalegum
lærdómi. Vér föllum ekki lemg-
ur óttaslegin fram fyrir náttúru
fyrirbrigðunum eins og forn-
mennirnir gerðu og eins og marg-
ar óupplýstar þjóðir gera enn.
En samt eru menn til sem sýn-
ast ha'fa tlihneigingu til að
krjúpa fyrir ýmsum öðrum hlut-
um á vorum tímum, sem verð-
skulda þesskonar tilbeiðslu
miklu síður en náttúrufyrir-
brigðin.
Á miðöldunum gerðust menn
þrælar, (í andlegum skilningi),
vissra kenninga qg vissra skoð-
ana um alheiminn, nákvæmlega
eins og fornmennirnir gerðust
þrælar skoðanna þeirra á þrum-
unum og eldingunum og stormin-
um. En þá komu vísindamenn
til sögunnar, með nýjar uppgötv-
anir sem sýndu það, að alheim-
urinn, stjörnurnar og hnettirnir
og tunglin og sólin, fylgdu öðr-
um lögum en þeim, sem hinii
eldri vísindamenn og hinir eldri
guðfræðingar höfðu haldið fram
að þau fylgdu. Og altaf síðan
hefir verið deilt um þessi mál, og
því hefir verið haldið fram að
vísindin og trúin hafi sagt hvert
öðru stríð á hendur og að friður
hafi aldrei síðan fullkomlega
samist. En sannleikurinn er,
auðvitað, að þessi bardagi er
ekki á milli trúarinnar og vísind-
anna, en á milli guðfræðinnar og
vísindanna, sem er eitthvað alt
annað. Það er fjarstæða að
hyggja að guðfræði sé trú. Hún
er það ekki og getur ekki verið.
Guðfræði og trú eru sitt hvað.
Trúin berst alderi á móti sann-
leikanum, þó að guðfræðin geri
það, og hefir lengi gert.
Guðfræðin er útskýring og
greinargerð, sem menn hafa
dregið upp í tilraun þeirra til að
útskýra ýmislegt í sambandi við
trúarhneigð mannanna. Hún er
tilraun til að gera grein fyrir
sköpunarkraftinum í tilverunni.
fyrir al'heiminum og því, sem í
honum er, og kemur oft fram í
mjög flóknu og ofsakendu formi.
En trúin er innri til'hneiging,
innri hvöt í mannimum sjálfum.
Hún er manninum meðfædd. -r—
Guðfræðin er utanaðkomandi,
en trúin er innankomandi.
Þegar vér hugsum dálítið um
þessa hluti, munum vér ekki
furða oss á því, þó að hin-
um fornu guðfræðingum skyldi
skjátlast í ýmsu, og ekki
heldur að vísindamenn þeirra
daga skyldu gera hið sama.
Ekki íhöfðu þeir neinn að-
gang að fullkomnum né ævar-
andi sannleika, ekki frekar en
vér höfum aðgang að honum nú.
En þeir hugðu að þeir hefðu
uppgötvað sannleikann, bæði
vísindalegan og andlegan, og
þeir héldu því fram, að guð hefði
opinberað mönnum hann. Ef að
nokkur. efaðist nokkuð um kenn-
ingar þeirra, var hann skoðaður
sem guðleysingi eða villutrúar-
maður, og efasemdir hans voru
skoðaðar sem guðlast.
En hvað voru þessar skoðanir
eða kenningar? Ekkí ætla eg
mér að reyna að telja þær allar
upp. En líturn á aðeins eitt
atriði, á kenninguna um heim-
inn sjálfann. Hann átti að vera,
(samkvæmt þsssum kenningum),
alfullkominn. Allir hlutir hreyfð-
ust með mikilli nákvæmni, að
sagt var. Sólin og tunglið og
stjörnurnar, allar hinar mörgu,
snerust kringum jörðina, sem
var miðpunktur alheimsins. —
Tunglið var fullkomið og flekk-
laust, og eins var sólin og allar
stjörnurnar, sem voru eilífar‘í
heiminum. Og yfir öllu sat guð,
nákvæmlega eins og vélstjóri sit-
ur yfir vél sinni, altatf tilbúinn
til að setja alt í lag aftur ef að
nokkuð fer úr lagi.
En svo komu hinar nýju vís-1
indakenningar. Þær 'héldu því
fram, að hreyfing himinhnatt-1
anna væri, fyrst og fremst, ekki í
nákvæmum hringum, hver um1
annan, eins og haldið hafði verið j
fram, en heldur í sporbaugum
eða eftir sporbrautum. Tunglið
var ekki slétt og flekklaust, en
fjöllótt og fult af eldgígum og
hamraborgum. Sólin var ekki
öll eitt stórt og óflekkað eldhaf, j
en í henni voru margir stórir og'
svartir sóiblettir. Einnig upp-1
götvuðu vísindamennimir það, i
að stjörnur vom að deyja út og1
aðrar að myndast. Allur heim '
urinn sýndist vera eins og í
bræðslu, í staðin fyrir að vera j
ein fullkomin og óumlbreytanleg
heild. En þetta var alt í mót-
sögn við hinar viðteknu k,ann-
ingar. — Og svo, fyrir rúm-
um áttatíu árum birtist enn
! önnur kenning, breytiþróunar-
i kenningin, og þá fanst mörgum
1 að hámarki umbyltingarinnar
1 vera náð. Með þessari kenningu,
hugðu margir, að verið væri að
gera tilraun til að umsteypa öllu
j sem heimurinn hafði áður fest
trygð við, og jafnvel guði sjáltf-
um. Þeir hugðu að þessar nýju
kenningar væru í raun og veru
1 að kippa undirstöðurnar undan
' veruleikanum, undan veldisstóli
guðs, og að verið væri að leggja
alt hið andlega í rústir.
En eins og vér sjáum og skilj-
um nú, voru þessar kenningar
j engin tilraun til að eyðileggja,
en heldur til að uppbyggja. Þær
j komu með nýjan sannileika, nýj-
j an og fullkomnari skilning um
j guð og um sköpunarverkið. Trú-
! arhugmyndir manna urðu heil-
brigðari oð skilningsbetri með
þeim afleiðingum, að menn
standa nú fyrir kraftaverkum
náttúrunnar með fullkomnari
; skilning, og þess vegna með full-
j komnari lotnirugu en nokkru
j sinni fyr. Og nú hafa menn, sem
þetta viðurkenna, sagt skilið við
hið ófullkomna, sem þeir áður
! þektu og viðurkendu, — í trú-
málum — eins og í vísindunum,
og stefna að enn meiri fullkomn-
un, — í þeirri sannfæringu að
trúin þroskast við aukin skiln-
ing og aukna þekkingu, og að
sönn og einlæg trú leitar ætíð
betra skilnings og fullkomnari
þekkingar. Hún hvetur menn
til æðra flugs í sannleiksleit
þeirra, í þeirri vissu að hið þýð-
ingarmesta í trúnni .eins og í öllu
öðru, er það, að kunna að lifa, að
í sýna trúna af verkunum, að sýna
kærleika vorn til guðs með því
að elska náungann og gera hon-
um gott.
Hin sanna trú kennir oss, ekki
svo mikið hvernig eða hverju vér
eigum að trúa, en heldur hvern-
ig vér eigum að litfa, að haga lífi
voru, að breyta gagnvart öðrum.
En samt, þó að þetta hafi verið
aðal áherzla hvers trúarleiðtoga
heimsins, og hvers trúarhöfund
ar, í hverri heimsálfu, þá hefir
mannkynið gefið mjög lítinn
verulegan gaum að tilmælum
þeirra. Samt er þessi skilningur
að aukast víðast hvar í heimin-
um nú á vorum dögum.
En ekki er framtíðin hættu-
: laus, hvað trúna snertir. Vér
verðum, umtfram alt annað, að
vara oss á að endurtaka villur og
misskilninig fornra daga, og vara
oss á að beygja oss undir ný ok,
og gerast þrælar nútíma hégilja
eða kreddukertfa, á hvaða sviði
sem er.
Á vorum dögum eru hætturn-
ar að engu leyti minni, en í
fornri tíð, þó að möguleikarnir
til fullkomnunar, til að öðlast
sannleika, og þekkingu, séu
miklu meiri nú en þá. Þær hætt-
ur verðum vér að vara oBs á, og
aldr.ei missa sjónar á þörfinni tii
að gagnrýna, sí og æ, ekki aðeins
hið nýja, en einnig hið gamla,
því það er oft frá hinu gamla og
úrelta sem rnesta hættan stafar,
og otftast vegna vanadeyfðar og
hugsunarleysis mannanna.
Hætturnar eru að engu leyti
minni. En með aukna þekkingu,
fullkomnari sannleika og viður-
kenningu hans geta menn unnið,
bug á þeirn, sem þeir eru nú
margir að gera með einu eða öðru
móti, og þar á meðal með því, að
viðurkenna sannleikann, að trú-
arhneigð manna þroskast og ger-
ist fullkomin með því að öðlast
skilning á lífinu, og með því að
læra að lifa, að læra að lifa fyrir
heildina og að fullkomna þjóðlíf- j
ið, því þannig skapast ríki guðs
meðal manna, en ekki með ein-
tómum helgihöldum eða við-
hafnasiðum. Menn eru meira og
meira að viðurkenna þetta, og
með því fylgja þeir sannlaika
þeirra orða sem Jesús talaði þar
sem hann sagði, “guðsríki er hið
innra í yður”.
Það er þetta, guðsríkið, sem
vér leitum. Lengi misskildu
menn hv^rnig eða á hvaða hátt
það ríki gæti komið, og margvís-
lega hefir verið farið að, og oft
hefir verið vilst af leið. En gömlu
orðin standa enn. Það sem vér
viljum að heimurinn verði, það
verðum vér og sjálf að verða. —
“Guðsríki kemur ekki þannig að
á það verði bent; og ekki munu.
menn segja, ‘Sjá, það er hér, eða
það er þar’, því sjá, guðsríki er
hið innra í yður.”
Það er þetta, sem hin raun-
verulega trú kennir oss, undir
-hvaða nafni sem hún gengur, og
þó að hún birti oss en-gan annan
boðskap, þá væri þetta nóg, þvi
með þvi að uppfylla þennan boð-
9kap, uppfyllum vér alt annað,
sem nauðBynlegt er. I þessari
einu kennin-gu er fólginn allur
trúar-sannleikur, sem nauðsyn-
legur er, til þess að msnnirnir
geti ummyndast, og ummyndað
heiminn, á sama tíma. Þetta
er hinn eini boðskapur sem þörf
er að skilja. Alt an-nað er auka-
atriði, — aukakenningar, — sem
bæði beinlínis og óbeinlínis
byggjast á þessum eina grund-
velli. En oft hefir guðfræðing-
um tekist að blinda au-gu -manna
fyrir þessum san-nleika, með
kenningum sínum, sem oftast
eru flóknar og óskiljanlegar.
Einu sinni ræddi prestur á Is-
landi um kærleika og nærveru
guðs, og komst þannig að orði:
“Þar sem kærleikurinn er, þar er
guð, í bókstaflegasta skilningi.
Það má alstaðar gera guði alt-
ari, þar sem unt er að tigna hann
og vegsama. Það má gera það
úti í náttúrunni. En fegursta
al-tarið, sem guði verður reist,
verður þó ávalt í sjálfri manns-
sálinni. Mannssáálin er dýr-
mætasti bústaðu-r guðs hér á
jörð.” (Har. Nielson, II., bls. 146).
En 'hvað benda þessi orð á ann
að en það, sem eg hefi verið að
1 reyna að segja, — að framtíð
heimsins byggist á því, sem þeg-
| ar býr í manns brjósti, — á
j vonum hans, — á háleitri þrá, —
j á fullkomnunarlöngun, — á kær-
j leikstilfinningum og á draumum
j um fagra og blessunarríka fram-
tíð, — þar sem verður friður og
kærleikur meðal manna, — þar
sem ríki guðs er, — í fullfcomn-
asta skilningi.
Það sem heimurinn nú er, —
það eru mennirnir sem í hon-um
búa. Það sem menn framtíðar-
innar verða, það verður heim
urinn. Heimurinn fullkömnast
— er þeir fullkomnast.
ALt sem stefnir í átt þess ríkís,
sem vér leitum hefir gildi, trúar-
legt og andlegt gildi. Alt sem
vinnur á móti því, — hvað sem
það kann að vera, og hvar, og í
hvaða formi sem það birtist, -er
ilt, og verður að skoðast sem eitt
af þeim ihlutum sem það er
skylda vor að berja-st á móti,
hvort sem það kemur fram í
kirkjulífi heimsins eða í hinu
veraldlega.
Þannig vinnum vér að því, að
sá tími nálgist, að alt mannkynið
verði eitt, — þar sem menn rétta
út frjálpfúsar hendur, hver til
annars, og vinna alstaðar á móti
erfiðleikum hinnar veraldlegu
afkomu í vinsemd og bróðurhug,
og allir bera umhyggju hver fyr-
ir öðrum.
Þannig mun himnaríki smátt
og smátt stöfnast bér á jörðu, —
því guðsríkið býr í hjörtum
mannanna, og guðsrikið á jörðu
verður aðeins ytra tákn þess,
sem finst í brjósti þeirra sem
byggja jörðina. Það er ekki ein-
hver utanaðkomandi hlutur, en
er innan að komandi.
“Guðsríki er ekki þannig að á
það verði bent, og ekki m-unu
menn segjia, ‘Sjá, það er hér, eða
það er þar’, því sjá, guðsríki er
hið inn-ra í yður.”
MINNINGARORÐ
Frú Kristín Þorsteinsdóttir
Hinrikson
1861
1943
Hér er merkrar konu að minn-
ast og mikillar landnámskonu og
vildi eg gera tilraun til þess, þó
eg finna að eg er þess ékki mynd-
ugur, að gera það eins og vert
væri. Þyðir ekki að bera fram
afsakanir fyrir 'því. En mér
finst, að þegar hinir ágætu ís-
lenzku landnámsmenn og konur
falla frá eftir að hafa unnið ó-
trúlega stórt dagsverk og þarft
og við sem eftir lifum minnus-t-
um þeirra að engu, þá komustum
við óþægilega nærri 'þeirri hugs-
un, sem vakað mun hafa fyrir
forfeðrum vorum, þegar þeir
brugðu mönnum um að frændur
þeirra lægju óbættir hjá garði.
Frú Kristín Þorsteinsdóttir
Hinrikson var fædd 29. marz
1861. Voru foreldrar hennar
Þorsteinn Jónsson í Haugshús-
um á Álftanesi í Gullbringusýslu
og kona hans, Kristín Guð-
mundsdóttir, Jakobssonar, frá
Hsúafelli og er hún því af hinni
merku og vel kunnu Húsafells-
ætt, sem kend ér við séra Snorra,
sem þar varð prestur 1757. En
þó hann væri þá 47 ára að aldri,
var h-ann þar þó prestur langa
hríð, því hann varð maður fjör-
gamall og hélt andlegum og lík-
amlegum kröftum til mjög hárr-
ar elli. Hann var hreystimaður
með af-brigðum og fjölhæfur á
marga lund, enda hafa myndast
um hann margar þjóðsögur, sem
að sjáltfsögðu eru ekki allar á-
byggilegar, eða sannsögul'egar.
Þessi ætt er nú fjölmenn og
þýkja góðar gáfur og miikill ætt-
arþróttur hafa haldist þar vel
við og má óhætt fullyrða, að þar
hefir frú Kristín ekki orðið af-
skift. Þjóðkunnastur m-aður aí
þeirri ætt mun nú vera hinn
mikli fræðaþulu-r og ágæti rit-
höfundur, Kristleifur Þorsteins'
son bóndi á Stórakroppi í Borg'
arfirði, sem flestir Vestur-ls-
lendingar munu kannast vel við.
Um föðurætt frú Kristínar er
mér ókunnugt, 'en nánustu föð-
urfrændur voru á Alftan'esi þar
sem hún er fædd og þar sém hun
ólst upp á góðu og velstæðu
heimili foreldra sinna og hlam
vafalaust gott uppeldi að þeirrar
tíðar sið. Hún gifti-st 4. júlí 166^
Magnúsi Hinrikson; dó hann
nokkru fyr en kona hans og minf'
ist eg hans á sínum tíma a^
nokkru. Viku eftir brúðkaupið
lögðu ungu hjónin a-f stað
Canada og komu til Winnipeg
ágúst. Ekki munu þau huf3