Heimskringla - 08.08.1945, Page 1
We recommend for
your approval our
"BUTTER-NUT
LOAF"
CANADA BREAD CO. LTD.
Winnípeg Phone 37 144
Frank Hannibal, Mgr.
-------------------*
IWe recommend for
your approval our
" BUTTER-NUT
j LOAF"
ICANADA BREAD CO. LTD.
Winnipeg Phone 37 144
Frank Hannibal, Mgr.
-- --------—.— ----4
LIX. ÁRGANGUR
•
WTNNIPEG, MIÐVXKUDAGENN, 8. ÁGÚST 1945
NÚMER 45.
FRÉTTAYFIRLIT
íslendingadagurinn á Gimli
Þjóðhátíðardagur Winnipeg
Íslendinga á Gimli 6. ágúst,
hepnaðist ljómandi vel. Veður
var ákjósanlegt, glaða sólskin
meðan á hátíðinni stóð, en svali
nægur til að gera ekki of heitt.
Við þetta bættist svo, að
skemtiskráin öll var mjög ágæt.
Til að skemta á deginum með
söng, var fengin frú María Öst-
lund, Metropolitan Operu söng-
kona um skeið. Mann brestur
orð að lýsa hinum miklu áhrif-
um söngs henanr á deginum.
Menn vissu hvers þar var að
vænta og geta margra er, að á
hátíðinni hafi nú verið fjöl-
mennara, en líklegast n'okkru
sinni fyr, vegna komu hennar.
Frá enskum, sem söngkonunni
voru ókunnugir hér, rigndi
spurningum, hvert ekki yrði
kostur að hlýða á frú Östlund
í þessum bæ. Því miður, mu«
það ekki verða.
Fjallkona á hátíðinni var frú
Ólína Pálsson, sem í því sæti,
sem annars staðar, tekur fegurð-
arverðlaun; flutti hún ávarp,
sem venja er til, af snild og við
hrifningu áheyrenda, enda hið
fegursta samið. — Ræðumenn
gerðu og hlutverkum sínum hin
beztu skil. íslandsminnið gat
tæplega skörulegra verið flutt
en af cand. theol. Pétri Sigur-
geirssyni; er hann þó bæði nógu
unglegur og elskulegur til að
ætla, að hann sé ekki enn yfir sín
æskuár kominn. Var mál flestra,
að hann væri efni í ræðugarp.
Minni Canada, er Dr. Thorlaks-
son flutti, var geisilega góð hug
vekja um mál þessara ískyggi-
legu, yfirstandandi tíma.
Minnin í ljóðum eru bæði birt
í þessu blaði og eru höfundum
þeirra til sóma.
Karlakór skemti og á hátíð-
inni vel eins og að vanda.
OG UMSAGNIR
Að morgni fóru fram íþróttir,
en fréttir af þeim höfum vér
ekki við ihendina. Að kvöldi
voru söngvar sungnir og að lok-
um stiginn dans.
Þeir sem daginn sóttu, munu
lengi búa að skemtuninni sem
þeir nutu þar.
Flugnemar halda suður
Þrir Islendingar, sem hér hafa
verið við flugnám, sumir í heilt
ár, en allir nokkuð lengur en
til námsskeiðsins þurfti, héldu
fyrir helgina suður til Tulsa í
Oklahöma til flugnáms á ný. —
Eftir langan tíma og geysimikið
fé, sem þeir hafa hér eytt í nám-
ið, verða þeir nú að eyða öðru
eins fé og tíma í það í öðru landi
til að fá það próf, er krafist er
til þess að geta hafið flug sem at-
vinnu. Piltarnir sem hér um
ræðir voru Anton Axelson,
Gunnar Frederiksen og Jóhannes
Markússon. Hinn fyrst nefndii
sendi prófumsókn sína sam-
bandsstjórn Canada fyrir sex
mánuðum og hefir beðið svars
síðan, en ekkert fengið.
Flugnemunum sem nú kveðja
þökkum við góða viðkynningu
og þykir fyrir að dvöl þeirra hér
hefir orðið þeim mikil vonbrigði.
★
Um það leyt, sem blaðið er að
fara í pressuna, er nú, góðu heilli
tilkynt, að prófið fáist. Munu 6
flugnemanna frá íslandi enn
vera hér, af 15 alls, er fá munu
að leysa hér af hendi próf. Er
það vel farið. Tjónið sem af
þessu hefir leitt, er orðið meira
en átt hefði að vera.
ÚR ÖLLUM ÁTTUM
Mackenzie King, forsætisráð-
herra Canada, hlaut mikinn sig-
ur í aukakosningunni í Glen-
garry, s. 1. mánudag. Á móti
Rússar segja Jöpum stríð á hendur
Á þeirri stundu sem blaðið fer í pressuna, flytur
útvarpið þær fréttir, að Rússar hafi sagt Jöpum stríð
á hendur upp úr hádegi í dag (8. ágúst).
honum sótti Dr. Richard Wfona-
han frá Sharbot Lake, Ont., ó-
háður liberali og ekki studdur
af neinum flokki. Mr. King
hlaut 4,623 atkvæði, en gagn-
sækjandinn 327; Dr. Monahan
hlaut í mörgum kjörstöðum ekki
eitt einasta atkvæði, sem trauðla
var von, þar sem stefnuskrá hans
hvíldi einungis á hatri til King§.
★ ★ ★
Nýjar sprengjur, nefndar
atom-sprengjur hafa Bandaríkin
fundið upp. Eru þær sagðar
2000 sinnum kraftmeiri en
sterkustu sprengjur, sem áður
voru þektar. Hefir að uppfynd
ingunni verið starfað lengi og
eytt til þess tveim biljón dölum.
Það mun byrjað að nota sprengj-
una í japanska stríðinu.
★ ★ ★
anna þriggja er nú lokið. Helzta
verkefni fundarins munu hafa
verið í því fólgið, að ráða fram
úr hvað gera skyldi við Þýzka-
land. Og úr þeirri gátu virðist
í fám orðum sagt hafa verið
ráðið með því að svifta þjóðina
öllum iðnaði sínum, stóriðnaði
að minsta kosti, sem mikið mun
verða fluttur til Rússlands, og
gera þjóðina að jarðyrkju- eða
landbúnaðarþjóð, óráðandi
sjálfri sér að öllu leyti, jafnt í
uppeldismálum, sem í stjórn-
málum. Um aðrar ákvarðanir
getur lítið, en seinna skal þó að
þessum fundi frekar vikið í blað-
inu.
FJÆR OG NÆR
Japar svöruðu friðartilboði
Bandáþjóðanna s. 1. viku með
því, að segjast halda stríðinu á-1
fram, að því setta marki. að
frelsa Asíu úr klóm Vestur-Ev-;
rópu og Bandaríkjanna. Að inn-|
rás í Japan sé á döfinni mætti
ætla, þar sem Douglas MacAr-i
thur yfirhershöfðingi, hefir ver-
ið skipaður yfirstjórnandi slíkr-
ar innrásar.
★ ★ ★
Sir Harold Alexander, hers-
höfðingi Miðjarðarhafsflotans,
hefir verið skipaður landstjóri
Canada. Hann kemur hingað á
næsta vori, er kjörtímabili jarls-
ins af Athlone lýkur. Hann er
53 ára og sonur jarlsins af Cale-
don of County Tyrone á Irlandi.
Potsdam fundi stóru mann-
Guðjón Ármann, Grafton, N.
Dak., leit inn til Heimskringlu á
þriðjudaginn, hann var á heim-
leið eftir að hafa sótt íslend-
ingadaginn á Gimli, sem hann
gerir árlega, og einnig sækir
hann þjóðræknismótið hér á
hverjum vetri. Sagði hann upp-
skeru horfur í sinni bygð, þær
beztu sem hann myndi eftir, í
þau 52 ár sem hann hefir dvalið
í Grafton.
Guðjón er sannur Islending-
ur, — þráir ættjörðina, en er
trúr þegn síns fósturlands. —
Hann fór heim til Islands á þús-
und ára Alþingishátíðina 1930.
á vegum Þjóðræknisfélagsins,
og geymir margar minningar frá
þeirri för sinni, eins og svo ótal
margir aðrir. — Hann er nú að
verða 79 ára.
ÍSLAND
CANADA
Minni flutt á tslendingadeginum á Gimli 6. ágúst 1945.
Minni flutt á Islendingadeginum á Gimli 6. ágúst 1945.
Nú ljósgyðjan sendir frá austrinu enn
sitt árblik til vestursins kæra,
þar enn byggja landnámið íslenzkir menn,
sem einhuga lofgjörð þér færa,
Canada friðhelga, frjálsborna grund,
Frónbúans athvarf á reynslunnar stund.
islenzkra landnema ástmey þú varst
á örlagaríkustu stundum;
er ómálga börnin á örmum þú barst
við órofa trygð við þig bundum.
Nú gefum við fegnir, ef framtíðin þín
vill fáeina stuðla í ljóðmælin sín.
Þann arf, sem við fluttum af íslenzkri grund
og ávalt var drýgstur á metum,
nú helga þér viljum í vöku og blund
og vinna þér alt, sem við getum;
því íslendings móðir þú verður og varst
og Vínland hið góða það nafn, sem þú barst.
Og djarfleg og ákveðin dáðirðu þá
drengi, sem hug áttu að berjast.
Þú kaust ekki styrjöld, en komst þó ei hjá
að krefjast þíns réttar, að verjast:
Því legg nú í friðarins sáttmálasjóð
þann sigur er vanst fyrir líf þitt og blóð.
Og fegurstu hugsjón, er framtíðin á
fullkomna í sigrinum gjörðu;
er stórþjóðir veraldar stefnumót há
og stofnsetja “Friðinn á jörðu”.
Gefðu henni Canada hug þinn og hönd
frá Hellulands ósum að Kyrrahafs strönd.
Vér hyllum þig, Island, þú útsævar storð,
með unga og fámenna þjóð.
Vér dáum þinn manndóm og drengskaparorð,
dáðríkar hetjur og ljóð.
Af afrekum þínum engu skal gleymt
úr annálum, sögum né brag.
Því lýðræðið forna úr helju er heimt,
þinn himinn er bjartur í dag.
Þú kjörlandið fræga hins kynstóra lýðs,
sem kostgnægð í skauti þér fann,
er efldi til friðar en æskti ekki stríðs
sín óðöl án styrjaldar vann.
Hvort sveitin þar blasti með sund eða fjörð
við sjónum hins norræna manns,
Þá var þessi frjóva og friðsæla jörð
framtíðar draumlandið hans.
Þó feðurnir tryðu á megin og mátt,
var mannlundin göfug og heið
og fjöllin þeim bentu í himininn hátt
og hollvættir sóru þeim eið.
En svalviðrið gnúði um sæfarans stafn
og sýldi um strendur og ver.
Þá hlaustu ísland þitt örlaga nafn,
sem aldirnar helguðu þér.
Á “Lögbergi helga” er himinn þinn blár
og heimur þinn bjartur og frjáls,
þar drottinn þér blessi um aldir og ár,
hina’ algildu lífsspeki Njáls.
Vér gleðjumst er íslenzkir afburðamenn,
yngjast á norrænum hlyn.
I sagnlist á Snorri sér arfþega enn
Ávarp Fjallkonunnar
Flutt af frú Ólínu Pálsson að Gimli, Man., 6. ágúst 1945.
Heiðruðu íslands synir og dætur:
Á þessari hátíðar-stund flyt eg yður innilegar árnaðar-
óskir vorrar ástkæru móður, Fjallkonunnar.
Ekki er þó svo að skilja, að árnaðaróskir hennar séu
bundnar við aðeins einn dag ársins. Hitt mun sanni nær, að
hún vaki yfir velferð yðar alla daga.
Frá þeim tíma er þér settuð segl og tókuð yður far til ann-
arar heimsálfu hefir hún glaðst yfir gengi yðar, syrgt óhöpp
yðar og minst yðar í hinum hljóðu bænum sínum. Þær
bænir hafa stigið til hásætis hins eilífa anda, “sem í öllu og
alstaðar býr”, og verið endurgoldnar í ríkum mæli.
Fjallkonan hefir horft tárvotum augum yfir höfin, þang-
að sem niðjar hennar hafa barist gegn órétti og undirokun.
Þér hafið ekki farið varhluta þeirra sorga sem sú þátttaka
hefir haft í för með sér. Sárin eru mörg og sorgimar þungar.
— En þér hafið enn á ný fært öllum þjóðum heim sanninn
um það, að þér metið frelsis-hugsjónir og bræðralag framar
öllu, — jafnvél lífinu sjálfu.
En nú eru skýja-rof í lofti. Þrautum og þjáningum hins
ógurlega stríðs hefir verið létt af nokkrum hluta heimsins.
Hin göfuga og friðelskandi móðir yðar gleðst yfir þeim þátta-
skiftum. Nú verða færri synir hennar og dætur herguðinum
að bráð. Möglunarlaust hefir hún kvatt þessi stórhuga og
manndómsríku börn sín, og borið harm sinn með stillingu, og
þannig staðfest hin fögru orð skáldsins:
“Þó að margt hafi breytzt síðan byggð var reist,
geta börnin þó treyst sinni íslenzku móður.
Hennar auðmjúka dyggð, hennar eilífa tryggð
eru íslenzku byggðanna helgasti gróður.
Hennar fórn, hennar ást, hennar afl til að þjást
skal í annálum sjást, verða kynstofnsins hróður.
Oft mælir hún fátt, talar friðandi lágt.
Hinn fórnandi máttur er hljóður.”
Fjallkonan fagnar hinum dýrkeypta friði og samgleðst öllum
þjóðum sem sjálfstæði sitt hafa öðlast. Þeim þjóðum, sem enn
eiga í stríði við öfl stigamensku og undirokunar, réttir hún hönd
sína með fullu trausti, að einnig þar verði skamt að bíða að sól
frelsis og friðar fái að skína í heiði.
í hjartaslögum yðar í dag, heyri eg, kæru Islendingar, undir-
spil við hendingarnar úr Hátíðarljóðunum frá 1930:
“Við börn þín, Island, blessum þig í dag.
Með bæn og söngvum hjörtun eiða vinna.
Hver minning andar lífi í okkar lag.”
Verið þess ætíð minnug að þér eigið göfuga og góða móðir.
Fjarlægðin dregur ekki úr móðurástinni. Virðing við arf yðar
og ræktarsemi við minningar feðra og mæðra, gerir yður betri
menn og konur, sannari og nýtari borgara þess lands sem þér
alið aldur hjá, og skylduræknari fósturbörn.
I dag dvelja hugir yðar “heima”. — Heima á æskustöðvunum,
þar sem þér lékuð yður sem börn, og þar sem feður yðar og mæður
gáfu yður fyrstu heilræði lífsins. Öllum þeim sem lærðu þau
heilræði og breyttu eftir þeim, hefir vegnað vel, hvaða land sem
þeir bygðu, því að í þeim var falin speki mannréttinda, bræðra-
lsgs og friðar. Þessa lífsskoðun fluttuð þér með yður vestur um.
hið breiða haf, og hafið nú gróðursett þau fræ í hjörtum barna
yðar, svo að þeim mun einnig vegna vel, — og hugir þeirra og
hjörtu “bera síns heimalands mót”.
Eg veit að grunntónn allra hugsana yðar í dag, er hinn sami
sem Fjallaskáldið forðum fléttaði inn í sitt ódauðlega kvæði:
“Blessi þig drottinn um aldur og æfi,
eflist þinn hróður og vaxi þitt ráð,
norður við heimskaut í svalköldum sævi,
svellkrýnda, eldþrungna minninga láð.”
Frá vestrænum Brávöllum, búandans þar,
þér berast hans andvökuljóð.
Hann hróður þinn, ættjörð, til útlanda bar,
í öndverðri fylkingu stóð.
Þó landarnir flyttust um höf eða heim,
ei hugurinn jarðbundinn var,
þeir senda þér laufblöð frá legstöðum þeim
sem liggja (út) við Sandy-Bar.
Ó, fjallkonan unga, þú feðranna mold
þitt frelsisorð skjöldur þinn ber.
Þó rætur þú eigir í erlendri fold
á ætternið samleið með þér.
Því hvar sem (að) hjartað helgar þitt mál
vér hnýtum þér lárviðarkrans.
Þitt gildi er eilíft íslenzkri sál
og óðal hins göfuga manns.
S. E. Björnson
og EgiII sitt Hrafnistu kyn.
Gunnbjörn Stefánsson