Heimskringla - 08.08.1945, Qupperneq 8
8. SIÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 8. ÁGÚST 1945
FJÆR OG NÆR
MESSUR í ÍSLENZKU
SAMBANDSKIRKJUNUM
Messa í Árnes
Messað verður í Sambands-
kirkjunni í Árnesi næstkomandi
sunnudag, 12. ágúst, kl. 2 e. h.
* ♦
Messur í prestakalli
séra H. E. Johnson
12. ágúst, kl. 2 e. h., Vogar.
19. ágúst, kl. 2 e. h., Lundar.
19. ágúst, kl. 9 e.'h., Oak Point
(á ensku).
★ ★ ★
Séra Philip M. Pétursson
messar n. k. sunnudag í Unitara
kirkjunni í Underwood, Minn.
* ★ *
Hjónavígsla
Laugardaginn 4. ágúst, voru
gefin saman í hjónaband, að
heimili séra Philip M. Pétursson,
þau Davíð Björnsson og Hall-
gerður Rose Magnusson. I>au
voru aðstoðuð af Bjarna Good
man og Miss Christine Johnson.
Davíð Björnsson er bóksali hér í
Winnipeg og er sonur þeirra
hjóna Björns Hjálmarssonar og
Guðrúnar Bjarnadóttur konu
hans, en brúðurin er dóttir hjón-
anna Jóns Magnússonar og Thor-
gerðar sál. Eysteinsdóttur konu
hans. Hún hefir verið skóla-
kennari hér í bæ. Þau eiga fjölda
vina, sem óska þeim allir til
mikillar hamingju. — Séra
Philip M. Pétursson gifti. Fram-
tíðarheimili þeirra verður hér í
Winnipeg.
★ ★ ★
Ungfrúrnar Auður Jónsdóttir
og Svala Waage frá Washington
og Mrs. Jón Sigmundsson frá
Arlington, Va., systir Sveins
Oddssonar prentara, komu til
Winnipeg um síðustu helgi. —
Auður er við Rauða Kross-starf-
semi hér vestra; Svala er starf-
andi á Sendiráðsskrifstofunni
íslenzku í Washington. Allar eru
konur þessar hér i stuttri kynn-
isför. Þær gerðu ráð fyrir að
vera á Islendingadeginum á
Gimli 6. ág. og þótti vel bera í
veiði, að hann var haldinn um
þetta leyti.
★ ★ ★
Jón Júlíus Johnson, kona hans
og móðir, Kristín Johnson 90
ára, frá Bowness, Alta., komu til
bæjarins fyrir viku síðan. Þau
eru að flytja búferlum til Gimli.
í bænum hafa þau dvalið hjá
Kristjáni A. Johnson, bróður-
syni Mr. J. J. Johnson. Mr.
Johnson kom vestur um haf
1888, frá Stóru Skógum í Dala-
sýslu og gerðist hér einn af
frumbyggjum Hólabygðarinnar,
sem nú gengur undir nafninu
Tantallon í Saskatchewan-fylki.
Og þar bjó hann og má heita búa
enn, þó hann hafi tvö síðustu ár-
in verið í Alberta-fylki hjá syni
sínum, Otto Wafhne Johnson.
Jón Júl. Johnson hefir verið bú-
höldur bezti og jafnsýnt um
stjórn héraðsmála, sem búskap-
inn.
★ ★ ★
Mr. S. Egilsson frá Brandon
leit inn á skrifstofu Hkr. s. 1.
þriðjudag. Hann er Islandsvin-
ur mikill, var á Islendingadeg-
inum á Gimli s. 1. mánudag og
mun sækja hátíðirnar reglulega,
þó langt eigi að fara.
★ ★ ★
Mr. og Mrs. C. V. Davidson
frá Fickle Crow, Ontario, voru
meðal hinna mörgu langt að
komnu gesta er sóttu Islend-
ingadaginn að Gimli. Mrs.
Davidson, ásamt syni þeirra
hjóna, hefir dvalið hér og á
Gimli, (þar sem foreldrar henn-
ar búa), um þriggja vikna tíma;
en Mr. Davidson kom rétt í tíma
fyrir hátíðina. Þau hjón verða
hér þar til um enda þessa mán-
aðar að þau halda heimleiðis
aftur.
★ ★ *
í sprengingu sem varð í korn-1 Á laugardaginn 28. júlí voru
forðabúri í Port Arthur og sem gefin saman í Fyrstu lút. kirkju
var eign Saskatchewan Hveiti- þau Stanley Warrington og
samlagsins í gær, er ætlað að 25 Magnea Johnson hér í borginni.
til 35 manns hafi beðið bana. Brúðurin er dóttir Mrs. Elínar
Bruni mikill fylgdi sprenging-
unni er miklu eignatjóni mun
hafa ollað.
★ ★ *
Norðan frá Manitoba-vatni eru
í bænum staddir Ingvar Gísla-
son frá Steep Rock og Sig. Sig-
fússon frá Öakview. Þeir voru
Islendingadeginum á Gimli s. 1.
mánudag.
★ * ★
Mrs. Anna Matthíasson frá
Vancouver, B. C., er stödd
bænum. Hún kom s. 1. föstudag,
aðallega til að vera á íslendinga-
deginum á Gimli; munu færri
hafa komið lengra að í þeim er
indum. — Mrs. Matthíasson er
kona Kristjáns Matthíassonar
en systir Kristjáns heitins Sig-
urðssonar og Elínar Sigurðsson,
sem heima á í þessum bæ. Hún
gerði ráð fyrir að halda vestur
n. k. föstudag.
★ ★ ★
Stúkan “Skuld” heldur næsta
fund sinn 13. ágúst, í Good
Templara húsinu.
★ ★ ★
Mrs. M. Eyjólfson frá Joseph-
ine Mine, A.C.R., Ontario, var
stödd í bænum í gær. Hún kom
vestan frá Theodore, Sask., var
þar að heimsækja systur sína,
Mrs. J. C. Hooge er misti mann
sinn nýlega. Hún gerði ráð fyrir
að dvelja hér nokkra daga, áður
en hún héldi heimleiðis.
Matreiðslubók
Kvenfélags Fyrsta lúterska
safnaðar í Winnipeg. Pantanir
sendist til Mrs. E. W. Perry, 723
Warsaw Ave.; Mrs. E. S. Feld-
sted, 525 Dominion St. Verð
$1.00. Burðargjald 5^.
THE PROVINCE 0F
MANITOBA
- OFFERS -
VETERINARY
SCHOLARSHIPS
to young men from Manitoba farms.
Applicants to possess a good livestock backgróund
and aptitude for veterinary practice.
Permanent positions in rural areas for Graduate
Veterinarians.
For particulars write to
D. L. CAMPBELL,
Minister of Agriculture and Immigration,
Legislative Building, Winnipeg
Mentun eflir Manngildið
Aldrei hefir verið eins nauðsynlegt og ein-
mitt nú, að hafa verzlunarskóla mentun,
og það fólk sem hennar nýtur hefir venju-
lega forgangsrétt þegar um vel launaðar
stöður er að ræða.
Miss Norma Alfred frá Chi-
cago, er stödd í bænum. Hún er
dóttir Mr. og Mrs. Óli Alfred
ættuðum frá Reykjavík og Lang-
ruth, Man., en hafa um mörg ár
búið í Chicago. Hin unga dóttir
þeirra, sem enn er á skólaaldri,
var í sumarfríi sínu að heim-
sækja frændur og tengdafólk á
fornum slóðum foreldranna og
segir þar skemitlegra en í Chi-
cago.
+ * *
Messur við Churchbridge
í ágúst mánuði:
Þann 5. í Concordía. 1 Hóla-
skóla þann 12., kl. 2 e. h. Þann
19. í Concordia. Þ. 26, í Lögbergi
kl. 2 e. h. S. S. C.
★ ★ ★
Guðsþjónustur hefjast n. k.
sunnudagskvöld í Fyrstu lút.
kirkju. Sóknarpresturinn pré-
dikar.
★ ★ ★
Útiskemtun (Garden Party)’
til aðstoðar Noregi, verður hald-
in í skemtigarði Mr. Ernest Par-
ker, að 185 Oakdean Boulevard,
Stuirgeon Creek, laugardaginn
18. ágúst frá kl. 2.30 e. h. til kl.
9 e. h. Nörska hjálparnefndin
og norski Rauði Krossinn standa
fyrir skemtuninni. Þau æskja
að sjá Islendinga fjölmenna.
★ ★ ★
Messur í Nýja íslandi
12. ágúst — Hnausa, ferming-
og altarisganga kl. 2 e. h. Víðir
messa kl. 8.30 e. h.
19. ágúst — Geysir, ferming
og altarisganga kl. 2 e. h.
B. A. Bjarnason
Jónasson, og fyrra manns henn
ar, Gunnsteins Jónssonar, sem
er dáinn fyrir mörgum árum. Að
afstaðinni hjónavígslu fór fram
veizla á heimili Mr. og Mrs. J
H. Page, 908 Dominion St.
Framtíðarheimili ungu hjón-
anna verður í Winnipeg.
FRÉTTIR FRÁ ÍSLANDI
Nýtt skip, Reykjaröst
ísafirði, miðvikudag
1 gær hljóp nýtt skip af stokk
unum í skipasmíðastöð Marsell
íusar Bernharðssonar. Skip þetta
var skýrt Reykjarröst, en eig-
andi er h.f. Röst í Keflavík.
Skipið er 53 rúmlestir og knú-
ið 150 hestafla Fairbanks Morse
vél.
Skipstjóri verður Angantýr
Guðmundsson frá Súgandafirði.
Miun Reykjaröst fara á síldveið-
ar um helgina.—Mbl. 12. júlí.
★ ★ *
Gizur Bergsteinsson
forseti hæstaréttar
Gizur Bergsteinsson hæsta-
réttardómari, var nýlega kjör-
inn forseti Hæstaréttar frá 1.
september n. k. að telja. Kjör
hans gildir til 1. september 1946.
Fráfarandi forseti Hæstarétt-
ar var Þórður Eyjólfsson, hæsta-
réttardómari.—Mbl. 12. júlí.
★ ★ ★
Ivar Guðmundsson
kominn heim
Ivar Guðmundsson fréttarit-
stjóri Morgunblaðsins og kona
hans komu heim úr þriggja mán-
aða Ameríkuför í gærmorgun.
Þau hafa farið víða um Banda-
ríkin og til Winnipeg og láta hið
bezta yfir ferð sinni.
—Mbl. 8. júlí.
★ ★ ★
Margir Esjufarþegar illa
staddir fjárhagslega
Margir þeirra Islendinga, sem
komu frá Norðurlöndum með
Esju eru illa staddir fjárhags
lega. Sumir hafa verið atvinnu-
lausir, en aðrir, sem einhverja
atvinnu höfðu munu ekki hafa
haft það kaup, að þeir gætu
lagt fyrir. Nokkrir bæjarbúa
hafa tekið sig saman um, að
gangast fyrir fjársöfnun til
styrktar þeim, sem komu með
Esju og mun nefnd úr hópi far-
þega úthluta fé því sem safnast.
1 sambandi við þetta hefir
Morgunbla§ið verið beðið fyrir
eftirfarandi tilkynnngu frá
Rauða Kross Islands.
Rauða Kross íslands hafa bor-
ist tilmæli frá nokkrum bæjar-
búum, um að veita viðtöku fé-
gjöfum til að bæta úr brýnustu
þörfum ýmissa af farþegunum,
er komu heim með m.s. Esju, og
eru illa staddir fjáilhagslega.
Rauði Krossinn hefir orðið við
þessum tilmælum og verður tek-
ið á móti fégjöfum á skrifstofu
hans til næstu helgar.
Látið kassa í
Kæliskápinn
The SWAN MFG. Co.
Manufacturers oí
SWAN WEATHER-STRIP
281 JAMES ST., WINNIPEG
Phone 22 641
Halldór M. Swan, eigandi
DJÓÐRÆKNISFÉLAG
ÍSLENDINGA
Forseti: Dr. Richard Beck
University Station,
Grand Forks, North Dakota
Allir Islendingar í Ame-
ríku ættu að heyra til
Þjóðrœknisfélaginu
Ársgjald (þar með fylgir }
Tímarit félagsins ókeypis) I
$1.00, sendist fjármálarit- {
ara Guðmann Levy, 251 ;
Furby St., Winnipeg, Man. ?
PRINCESS
MESSENGER SERVICE
Við flytjum kistur og töskur,
húsgögn úr smœrri íbúðum
og húsmuni aí öllu tœi.
58 ALBERT ST. — WINNIPEG
Sími 25 888
C. A. Johnson, Mgr.
“Brautin” II. árgangur
Nýkomin út. Fæst hjá útsölu-
mönnum víðsvegar. — Sjá um-
boðsmanna-skrá á öðrum stað í
blaðinu. — Einnig hjá Björns-
sons Book Store, Winnipeg, og
P. S. Pálsson, 796 Banning St.,
Winnipeg. — Kostar aðeins $1.
Mikið stærra rit heldur en I. ár-
gangur. Tryggið yður eintak
með því að kaupa strax.
★ ★ *
FALLEG MUSIC
Fimm einsöngslög eftir Sigurð
Þórðarson, stjórnanda “Karla-
kór Reykjavíkur”.
Hér er um lög að ræða sem allir
söngelskir menn og konur ættu
að eignast, jafnst enskumælandi
fólk sem íslenzkt, því texti hvers
lags er bæði á ensku og íslenzku.
Lögin eru hvert öðru fegurra og
samin við erindi, sem allir kunna
og unna.
Lögin eru þessi:
1. Sjá dagar koma ár og aldir
líða, úr hátíðaljóðum Dav-
íðs Stefánssonar.
2. Mamma, eftir Stefán frá
Hvítadal.
3. Vögguvísa, eftir Valdimar
V. Snævar.
4. Sáu þið hana systur mína,
eftir Jónas Hallgrímsson.
Harmaljóð, eftir Stefán frá
Hvítadal.
Framsíða þessa söngheftis er
með afbrigðum frumleg og fög-
ur. Heftið kostar aðeins $1.50
og sendist póstfrítt út um land.
Björnssons Book Store
702 Sargent Ave., Winnipeg
★ ★ ★
Heimskringla er til sölu hjá
hr. bóksala Árna Bjarnarsyni,
Akureyri, Island.
M I N N I S T
B-E-T-E-L
í erfðaskrám yðar
Thos. Jackson & Sons
LIMITED
ORDER YOUR FUEL FOR
NEXT WINTER NOW!
Phone 37 071 (Priv. Exch.)
370 Colony St. Winnipeg
Hórsnyrting — beztu
aðferðir
AMBASSADOR
Beauty Salon
257 KENNEDY ST.
sunnan við Portage
Talsími 92 716
S. H. Johnson, eig.
Central Dairies
Limited
Kaupa mjólk og rjóma
Areiðanleg og fljót skil
Telephone 57 237
121 Salter St. — Winnipeg
Eric A. Isfeld, ráðsmaður
PÓST
SENDINGA
ÞJÓNUSTU
DEILD
Vissirðu að EATON’S hafa
Póstsendinga Þjónustu Deild
til þæginda fyrir viðskifta-
menn sína? Þar sem spyrja
má um hluti, hvort sem þeir
eru auglýstir eða ekki í vöru-
skránni.
Þessi þjónusta kemur
þér bezt að notum, ef
þú þarft að fá áætl-
un um byggingarefni,
parta í vélar eða þess-
konar auka hluti, sem
til falia af og til. Ekki
að hika við að nota sér
þetta — deildin er sett
þér til þæginda. Sendið
spurningar ykkar til
“The Mail Order Service
Department” í Winni-
peg, og hver sú spurn-
ing sem þig langar að
fá svarað, verður svar-
að með glöðu geði strax
um hæl.
“'T. EATON
WINNIPEG CANADA
EATONS
i
Vér höfum nokkur námsskeið til sölu við
fullkomnustu verzlunarskóla í Winnipeg.
Spyrjist fyrir á skrifstofu vorri þessu
viðvíkjandi, það margborgar sig.
The Viking Press Limited
Banning og Sargent
WINNIPEG :: MANITOBA
M0RE AIRCRAFT
WILL BRING
_ QUICKER
'VJjCTORY
Kaupið Heimskringlu
Lesið Heimskringlu
Borgið Heimskringh*
tf^WAR SAVINGS
^^>CERTIFICATES
MJÓLK FYRIR HOLLENZKT-FÓLK
Það gengur talsvert á þegar mólkurskamturinn er afhentur Hollendingum. Myndin hér
að ofan, er tekin af einni götu Amsterdam-borgar, er mjólkurvagnarnir koma með mjólk-
ina. Mjólkin er gefin til fólksins án endurgjalds, en það verður að sýna skömtunarseðla.