Heimskringla


Heimskringla - 22.08.1945, Qupperneq 4

Heimskringla - 22.08.1945, Qupperneq 4
4. SIÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 22. ÁGÚST 1945 Heimslmngla (StofnuB ÍSU) Kemur út á hverjum miðvikudegi. Eigendur: THE VIKING PRESS LTD. 853 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg — Talsimi 24 185 Verð blaðsins er $3.00 árgangurinn, borgist fyrirfram. Allar borganir sendist: THE VIKING PRESS LTD. öll viðskiftabréf blaðinu aðlútandi sendist: The Viking Press Limited, 853 Sargent Ave., Winnipeg Ritstjóri STEFAN EINARSSON Utanáskrift til ritstjórans: . EDITOR HEIMSKRINGLA, 853 Sargent Ave., Winmpeg Advertising Manager: P. S. PÁLSSON "Heimskringla" is published by and printed by THE VIKING PRESS LIMITED 853-855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man. — Telephone 24 185 WINNIPEG, 22. ÁGÚST 1945 Friður um alian heim i. Með ósigri Japa í stríðinu, er “síðasti óvinurinn að velli lagð- ur,” eins og Attlee, stjórnarformaður Breta komst að orði. Fagnaðarefni er það öllum heimi, að þessu mesta stríði, sem nokkru sinni hefir háð verið, er lokið. Síðustu daga þess gerðust svo stór tíðindi, að nærri lá, að á sjálft stníðið skygði. I>að var uppgötvun atóm-sprengjunnar. Eftir að tveim sprengjum hafði verið kastað á japanskar ■borgir, var sjáanlegt, að dómur var kveðinn upp í stríðinu yfir Jöpum. Fyrsta sprengjan lenti á Hiroshima, borg með 310 þús. íbúa; týndu alt að -þrír fjórðu þeirra <lífi. Hin borgin, Nagasaki, sem fyrir síðari sprengjunni varð, var enn ver útleikin. Brig. Gen. Thomas F. Farrell, sem eftirlit hafði með atóm sprengjuárásunum og var með í báðum leiðangrunum, sem farnir voru, hraus hugur við hryðjuverkunum. Og víst var um það, að fleiri sprengjum var ekki kastað. Sú sönnun var þegar fengin að með einum 100 slíkum sprengj- um, væri hægt að vinna meiri og stærri hryðjuverk, en unnin höfðu verið í hinu langa stríði frá byrjun um heim allan. II. Með þetta í huga fóru Bandaþjóðirnar að bjóða Jöpum frið. Þó Jöpum gæti ekki dulist, að .hægt væri á fáeinum mínútum að uppræta þá af jörðinni, kröfðust þeir í svari sínu viss friðarskil- yrðis, eða þess, að keisara sínum væri ekkert gert að grandi og að hann fengi að halda völdum! Þó krafa þessi bæri í senn vott fávísi og flærðar, var hún samt að svo miklu leyti tekin til greina, að keisarinn sleppur við réttmæta hegningu, í bili, að minsta kosti, og á að vera látinn í friði eins lengi og hann hlýðir boði og banni MacArthurs hershöfð- ingja, sem Bandaþjóðirnar hafa sett til yfirstjórnar í Japan. III. En <hvað er þá um friðinn? Potsdam-friðartliboðið hvílir að öllu leyti á Atlantshafs-sáttmálanum. Jafnvel þetta sem undan- þágu virðist mega kalla, með japanska keisarann, mun mega réttlæta, þó hitt sé nokkurn veginn víst, sem Manchester Guardian heldur fram, “að það atriði verði óþrotlegt deiluefni” komandi tíma. Vinstrimenn eru yfirleitt óánægðir með þetta atriði, segja Japa hafa hlotið skilorðsbundinn frið, sem ekki hafi verð komandi við í friðarsamningi Þjóðverja. Af stjórnum Bandaþjóðanna, munu það Ástralngar einir, sem beinum mótmælum hafa hreyft. En Kínverjar og Rússar virðast ekki ánægðir heldur, þó þeir væru aðilar Potsdam-samningsins, með Bandaríkjamönnum og Bretum. Efablendnin um að friðurinn við Japa geti góðri lukku stýrt, styðst auðvitað við það, að Hirohito keisarihafði samþykt, með þögninni, ef ekki öðru, öll hryðjuverk, sem japanski herinn hefir framið á föngum, og ber að minsta kosti meira en nokkur annar einn mað- ur ábyrgð þeirra. Menn óttast vald hans og áhrif á þjóðina, hversu sterkar skorður, sem við því verða reistar og telja þarna sýna sig linkend flestra lýðræðisþjóða. Síðan friðurinn var saminn, hefir það heldur ekki orðið til að uppræta þann illa grun, að keisarinn hefir skipað tengdason sinn, Naruhiko Higashi-Kuni, prins, til stjórnar-formensku. Það minnir óþyrmlega á, að keisarairin hafi byrjað á að bryjna sig út í pólitíska valdabaráttu, þó hann afsaki þetta með því, að hervaldinu geti hann ekki treyst til neins, sem með stjórnarvöld hefir farið síðari árin í Japan. Þetta mun þó alt illa duga til þess, að vinna sér vináttu annara þjóða, eins og keis- arinn kveðst vera að reyna. IV. En svo er sú hliðin á þessu, er foringjar friðartilboðsins halda fram. 1 þeirra augum er hér aðeins um bráðabirgðastjórn að ræða. Almennar kosningar eiga að fara fram á sínum tíma í Japan, og þá á þjóðin að eiga þess kost, að velja um lýðstjórnar skipulag eða einræði, með hervaldið í broddi fylkingar, sem leitt hefir hana út á barm glötunar. Verði sú stefna aftur ofan á, er auðsætt hvernig fara muni. Núverandi leiðtogar hennar fá þá lítið tækifæri til að berjast til valda, því upp yfir þeim verður sami dómur kveðinn og þeim, er upptök áttu að Evrópu-stríðinu. Hirohito er talinn að eiga alt önnur og meiri ítök í hugum þjóðarinnar, en hernaðar- fantarnir, þrátt fyrir þó hann sé þeim með-ábyrgur, stöðu sinnar vegna. Það lítur svo út, sem Bandaþjóðirnar telji þjóðina svifta allri leiðsögu, að hún sé aumur höfuðlaus her, sem litla viðreisn- arvon eigi, ef “syni himinsins” sé einnig ofan steypt, er dýrk- aður sé af ihenni — að vísu að hætti miðaldarmanna, en sem samt nýtur mikils, ef ekki óskeikuls, trausts hennar. Hvort sem rétt er, eða ekki, virðast foringjar okkar trúa því, að keisarinn geti orðið henni sami leiðarhnoðinn, hvort sem um einveldi eða lýð- veldisskipulag er að ræða. En það er á grundvelli lýðræðisstefn- unnar, sem þeir ætla að reisa þjóðina við. V. Hitt er þó að líkindum það, 9em Bandaþjóða foringjarnir reiða sig mest á, að stjórn þeirra hafi alt í hendi sér, þar til þjóðin sé orðin það þroskuð, að sjá málum sínum sjálf borgið. MacArthur Hann er talinn þeirri stöðu vel minsta kosti umhverfis okkur. 1 vaxinn; er Jöpum og hugsunar- atominu er talað um kjarna, sem nefna mætti sól þess en sem ekki er stærri en miljón-biljónasti hluti atómsins sjálfs. Utan um þessa sól sveima electrón og neu- trón í tómu rúmi, sem svarar til þess, sem kallað er ljósvaki, og í þessum heimi atómsins er alt á flugi og hringferð eins og hætti þeirra þaulkunnugur og mun ekki sýna í hernaðar-að- gerðuunm, sem þar fara fram mikla blíðu, heldur ganga þar svo frá, að hervaldið í Japan sé ekki að óttast fyrst um sinn. Kínvjerar og Rússar munu held- ur ekki sofa á verðinum. Þegar á alt þetta er litið, er linkendina t úti í sólna eða stjarna heiminum. gagnvart keisaranum ef til vill ekki mikið að ótta.st. Hinu verð- ur ekki neitað, að japanska þjóð- in er herská og fláráð eins og bæði hermanna sjálfsfórnir hennar sýna, þó ýmsir segi nú minna að þeim kveða, en úr er gert og Pearl Harbour árásin, sem Roosevelt heitinn sagði reynast mundi varanlegt met þjóðar-vansæmdar. Það hafði blað eitt á orði nýlega, að nú væru þeir að sleikja sig upp við Kínverja og þættust albúnir að hjálpa þeim til að verja Kína fyrir Rússum, eftir að hafa átt í átta ár í stríði við þá. Að treysta þeim of mikið, gæti reynst hált. VI. En maður skal nú vonast hins bezta. Að heimurinn sé almenn- ingi út um heim fagnaðarefni, eftir alt sem á hefir dunið í sex ár í Evrópu og átta í Asíu, þarf ekki að lýsa. Um 55 miljón manna hafa fallið og lemstrast í stríðinu, og fj ármunalegt tap nemur tveimur ihundruðum bil- jóna — eða meiru. Hefði það haldið áfram í Japan eins lengi og við var búist, í sex mánuði eða ár lengur, gerir Churchill ráð fyrir, að ein miljón manna hefði fallið í viðbót af Banda- þjóðunum. Það var kominn tími til að þessu linti. Lögmálið alls staðar eitt og hið sama! Heimssmíðin er vissulega undursamleg — og voldugur og ríkur hlýtur sá að vera, sem hana hefir gert, eins og í Snorra- Eddu segir. ÚTDRÁTTUR ÚR FUND- ARGERÐUM SÍÐASTA Þ JÓÐRÆKN ISÞIISí GS ATÓMSPRENGJUR OG JÖKLAR ÍSLANDS Canada er oft nefnt í sam- bandi við atómsprengju upp- götvunina. í Cambridge á Eng- landi átti Ross Harkness rit- stjóri Windsor Star, tal við vís- indamann, er nafns síns bað að geta ekki, en sem fórust orð á þessa leið: “Með atóm-hitun væri hægt að hita upp Superior vatn . . . og frá því stórvötnin hin og ár, t. d. Huron, Erie og Ontario- vatn. 1 Suður-Ontario fylki og umhverfi vatnanna, mundi lofts- lagið vissulega mildast. . . Eins mætti gera með Winnipeg- og Manitoba-vatn. Atóm sprengja gæti blásið íshúfunni af Græn- landi og með því mundi loftslag hlýna á Labrador, í Austur- Quebec fylki og á Nýfundna- landi. I hinum bygða hluta Can- ada gæti með þessu orðið svipað loftslag og í Californíu. En þessi stórfenglega breyting á loftslagi, yrði ef til vill ekki alls staðar eins vel þegin. Að bæta veðurfar í Canada, gæti orðið til að hlýja það fullmikið í Bandaríkjunum. Bandaríkja- mönnum mundi ekki geðjast að því.” Lengra nær þessi frétt ekki. En hvað er um ísland? Er ekki alveg eins gerandi ráð fyrir, að þar mætti eyða jöklunum og á Grænlandi, með atóm-sprengj- um, og hita þar upp stórvötn eins og í Canada, og gera ís land með því einnig að Cali- forníu, einum fegursta, frjóasta og bezta bústað á jörðu? Að þingið lýsi ánægju sinni yfir því, að póst og farþega- ] flutningur eru nú þegar hafnir loftleiðis milli Bandaríkjanna og íslands. Að þingið feli forseta sínum og skrifara að semja og senda bréf til forsætisráðherra, utan- ríkismála- og viðskiftamálaráð- herra Canada, og að afrit af bréfi þessu séu send þingmönn- um sléttufylkjanna í Ottawa, þar sem farið sé fram á, að stjórnin athugi möguleika á því: (a) að efna til pósts og farþega- flugs á milli Canada og Is- lands, (b) að Island og Canada skiftist á dkisfulltrúum (Diplomatic Exchange), (c) að Canada hafi verzlunarfull- trúa á íslandi. Að Þjóðræknisfélagið athugi hvort mögulegt sé eða æskilegt að fara þess á leit við Canadian Broadcasting Corporation að taka upp á plötur hið vikulega fréttaútvarp frá Islandi, sem svo megi endurútvarpa til gagns og gleði fyrir íslendinga hér í Vestur-Canada. Voru allar bendingar milli- þinganefndarinnar samþyktar, nema næst síðasti aðalliður (8. liður) þeirra, er vísað var til þingnefndarinnar í samvinnu- málum, en hún lagði fram eftir- farandi tillögur, er allar voru samþyktar: 1. í sambandi við bending forseta í skýrslu sinni um stofn- un upplýsingaskrifstofu, þá mæl- ir nefndin hið bezta með tillög- unni og telur hana bæði nyt- sama og tímabæra. En þar eð nefndinni finst ekki nægilegar upplýsingar fyrir hendi, til þess að gera ákveðnar tillögur í mál- inu, leggur hún til að málinu sé vísað til væntanlegrar stjórnar- nefndar, til yfirvegunar og fyrir- greiðslu. 2. í sambandi við 8. lið í á- liti milliþinganefndarinnar samvinnumálum við Island legg ur nefndin til, að stjórnarnefnd Þjóðræknsfélagsins sé falið: a) Að leita allra fáanlegra upplýsinga um möguleika til þess að fá Canada-stjórn til þess að stofna til fólks og póstflutn- ings milli Islands og Canada og að beita öllum sínum áhrifum um að fá því máli framgengt. ib) Að ísland og Canada skift- ist á ríkisfulltrúum. Þessa hug mynd, sem fram kemur í nefndu milliþinganefndaráliti, teljum vér svo umsvifamikla og erum einnig í dálitlum vafa um hvort slík afskifti af vorri hálfu yrðu ekki álitin af hlutaðeigandi að- iljum of djarftæk, og hyggjum vér því, að hlutaðeigandi stjórn- arvöld verði að eiga upptökin að slíku máli. c) Um þá tillögu milliþinga- Eins og fyr getur lagði milli-'nefndarálitsins, að Canada hafi þinganefndin í þeim málum * verzlunarfulltrúa á Islandi, virð- Frh. frá 1. bls. riti síðan útbýtt á meðal deilda og annara áhugamanna í þjóð- ræknismálum vourm. Fræðslumál Jafnhliða því, sem hún þakk- aði milliþinganefnd í fræðslu- málum og öllu starfsfólki unnið starf á árinu, lagði þingnefndin í fræðslumálum fram þessar til- lögur, er allar náðu samiþykt þingsins: Að þingið bendi deildum fé- lagsins á, að æskilegt væri að setja á stofn fræðslustarfsemi með svipuðum hætti og Ice- landic Canadian Evening School (á ensku ef þörf gerist) fyrir unglinga og fullorðna. I sam bandi við þessa fræðslustarfsemi væri æskilegt að stofna bóka- safn, sem hefði að geyma enskar bækur um sögu Islands, bók- mentir og nútíðar ísland, t. d. bækur Vilhjálms Stefánsson. Að þingið feli væntanlegri fræðslumálanefnd að láta semja og fjölrita íslenzkar lexíur til afnota skólunum, lexíur, sem gera kennurunum auðveldara að æfa börnin í því að tala daglegt íslenzkt mál; og að láta fjölrita íslenzka smáleiki og annað efni, sem er hæfilegt til afnota á loka- samkomum skólanna. Að þingið gefi skólunum þess- ar bendingar: að þeim börnum, sem sækja skólann stöðugast, séu gefin verðlaun, og að börn- um, sem skara fram úr í íslenzku náminu, sé gefið tækifæri til að koma fram á samkomu Þjóð- ræknisfélagsins, t. d. með fram- sögn Ijóða, o. s. frv. Forseta var falið að skipa 5 manna milliþinganefnd í fræð- slumálum. Ennfremur skal þess getið, að samkvæmt tillögu frá fjármálanefnd þingsins var samþykt að veita $400.00 til fræðslumála á yfirstandandi fjárihagsári. Samvinnumál við Island ATÓMIÐ UNDURSAM- LEGT Það hefir óvanalega mikið undanfarna daga verið sagt og skrifað um frumeindir (atóm) og menn hafa yfirleitt lesið það með undrun og athygli. Þar hefir verið vikið að stærð frumeind- anna, þessum ódeilis ögnum efn- is, sem enginn maður hefir nokkru sinni séð, en sem samt eru heimar út af fyrir sig alveg eins og hinn stærri stjörnuheim- hershöfðingi, hefir verið valinn stjórnari í Japan af þeirra hálfu. Ur, sem við sjáum nokkuð af að ítarlegt álit fyrirþingið og gerði, meðal annars, bendingar um það, að þingið votti ríkisstjórn Islands þakkir fyrir heimsókn dr. Sigurgeirs Sigurðssonar, biskups Islands, fyrir það að bjóða fulltrúa frá félaginu og Vestur-íslendingum að taka þátt í lýðveldishátíðinni og fyrir ör- læti hlutaðeigandi stjórnarvalda og ágætan f járhagslegan stuðn- ing til útgáfu íslenzku vikublað- anna vestan hafs. Ennfremur benti nefndin á það, að æskilegt væri, að þingið þakki Þjóðrækn- isfélaginu á Islandi drengilegan stuðning og samvinnu, láti í ljósi ánægju sína yfir komu góðra gesta heiman um haf og sendi símleiðis kveðjur til for- seta íslands, ríkisstjórnar þass, biskups, Þjóðræknisfélagsins og( varpa, sem oss hafa verið send á félags Vestur-lslendinga í Rvík. j hljómplötum, oss að kostnaðar- Annars voru þessar helztu bend- lausu, en til ósegjanlegra mik- ingar nefndarinnar: j illar aðstoðar og uppbyggingar í Að nauðsynlegt sé að kynna þjóðræknismálum vorum. Vér almenningi hér vestra betur en j vildum benda þinginu á, að vér gert hefir verið tilboð ríkis-, hér vestra mettum slíka góðvild, stjórnar íslands um námsstyrk með því að endurgjalda í sömu við Háskólann í Reykjavík fyrir mynd, með filmum, sem teknar ist oss öðru máli gegna. Það er vitanlegt, að Canada er nú á þessari tíð að auka mjög verzl- unarsambönd sín við önnur lönd. Mælum vér því hið bezta með þessari hugmynd og leggjum til, að stjórnarnefnd Þjóðræknisfé- lagsins sé falið málið til athug- unar og framkvæmda, á þann hátt sem henni hentast þykir. 3. Eins og flestum Vestur- Islendingum er kunnugt, þá höf- um vér á undanförnum árum notið góðvildar og höfðingsskap- ar landa vorra á Islandi á marg- an hátt. Meðal annars höfum vér notið hreyfimynda, sem teknar hafa verið á Islandit, og sendar hingað vestur oss til á- nægju og afnots. Einnig vin- gjarnlegra og bróðurlegra á- námsfólk hér vestra. væru hér í bygðum og bæjum Islendinga, og einnig með hljóm- plötum, sem færðu vinum vorum og ættbræðrum á ættjörðinni vinarkveðjur vorar og þökk. Vér leggjum því til, að stjórnar- nefndinni sé falið þetta mál til athugunar og framkvæmda eins fljótt og föng eru á. 4. Á þingum hefir oft komið í ljós sú skoðun, að til aukins á- huga og skilnings meðal æsku- lýðs vors, væri æskilegt að afla sér bæði skugga- og hreyfimynda af íslenzku landslagi, iðnaði og menningu. Framkvæmdir hafa þó aldrei orðið á þessu, líklega mest sökum erfiðleikanna, sem hreyfimyndaframleiðslan hefir verið undirorpin á Islandi. Nú eða í nálægri framtíð ræðst að líkindum bót á þessu. Þar sem vér teljum hugmynd þessa svo þýðingarmikla í fræðslustarf- semi vorri hér vestra, leggjum vér til, að stjómarnefndinni sé falið að afla sér allra fáanlegra upplýsngia í þessu máli og leggja þær fyrir næsta þing. I ** Útgáfumál Álit þingnefndarinnar í út- gáfumálum, er vottaði ritstjóra Tímaritsins, auglýsinga-safnanda þess og Þjóðræknisfélaginu á ís- Islandi, þakkir fyrir vel unnið starf í þágu ritsins, var annars á þessa leið, og var samþykt ó- breytt: Þingið felur væntanlegri stjórnarnefnd Þjóðræknisfélags- ins að sjá um útgáfu Timaritsins með svipuðu fyrirkomulagi og að undanförnu, ráða ritstjóra og sjá um aðrar framkvæmdir máls- ins. Bókasafnið Þingnefnd fjallaði venju sam- kvæmt um viðhald og notkun bókasafns Þjóðræknisfélagsins, sem deildin “Frón” starfrækir, og voru þessar tillögur hennar samþyktar: Að gert sé við bókaskápa safnsins svo fljótt sem unt er. Að gangskör sé gerð að fram- kvæmd annarar greinar í bóka- safnsnefndaráliti síðastliðins þings, um að vísir að ensku bóka- safni um íslenzkt efni sé komið á fót sem fyrst, er verði hluti af safninu. Að Þjóðræknisfélagið leggi bókasafninu til húsnæði endur- gjaldslaust, en að sá styrkur falli niður, sem félagið hefir veitt safninu að undanförnu, sem nam $100.00 á ári. Ný mál Deildin “Báran” í N. Dakota hafði flutt inn á þingið árið áð- ur þá tillögu, að heppilegra væri að breyta þingtímanum og halda þingið að vorinu eða snemma sumars, en málinu hafði verið frestað til þessa þings. Einnig lá nú fyrir tillaga, er fór í sömu átt, frá deildinni “Esjan” í Árborg. Urðu miklar umræður um málið, með og móti, er lauk með þvi, að eftirfarandi tillaga var sam- þykt: Að málinu sé frestað til næsta þings og að kosin sé fimm manna milliþinganefnd, sem hafi málið með höndum, leggi það fyrir deildir og láti síðan fram fara atkvæðagreiðslu um málið af allra hálfu, deilda og einstakra félagsmanna. Sé atkvæðagreiðsl- unni þannig háttað, að fram komi greinilega, hversu margir eru með eða á móti umræddri breytingu á^þingtímanum. I ofannefnda milliþinganefnd voru þessir kosnir: Guðmundur Fjeldsted, H. T. Hjaltalín, Eld- járn Johnson, Ásmundur P. J°" hannsson og Gunnar Sæmunds- son. Þá hafði þinginu borist bréf frá Jóns Sigurðssonar félaginii og Icelandic Canadian Club, er -benti á, hve brýn þörf væri a því, að Islendingar ættu sér al- ment samkomuhús í Winnipeg og hvatti til þess, að Þjóðræknis- félagið tæki að sér forgöngu 1 því máli. Var málið sett í þiug"

x

Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.