Heimskringla - 22.08.1945, Page 8
8. SIÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 22. ÁGÚST 1945
FJÆR OG NÆR
MESSUR I ÍSLENZICU
SAMBANDSKIRKJUNUM
Messa að Vogar
Messað verður að Vogar, Man.,
sunnudaginn 26. ágúst, kl. 2 e. h.
H. E. Johnson
* ★ ♦
Úngmennanámskeið
Aftur í sumar eins og undan-
farin sumur verður ungmenna
og sunnudagaskóla námskeió
'haldið á sumarheimilinu á
Hnausum, dagana 19—26. ágúst
Auk presta Sambandssafnaðar,
verða viðstödd Rev. G. Richard
Kuch frá Únitara kirkjunni í
Rockford, 111., og Mrs. Wilma L.
Johnson, sunnudagaskólastjóri
frá Minneapolis, Minn. Mr.
Clarence Johnson frá Minnea-
polis, verður einnig viðstaddur
Auk ungmenna taka kvenfélags
fulltrúar þátt í námskeiðinu.
Meðal annars er gert ráð
fyrir að ferðast til kirknana í
Arnesi og Riverton og Arborg
á meðan að á námskeiðinu
stendur. Þessir fundir hafa hlotið
mikla hylli, og átt er von á að
námskeiðið í sumar verði fjöll-
mennara en nokkru sinni fyr.
* * *
Mrs. Valgerður Coghill frá
Riverton, Man., kom til bæjar-
ins í gær austan frá Toronto,
þar sem hún var að heimsækja
systur sína Mrs. Valdheiði Ford.
★ ★ ★
Silver Tea
Silver Tea verður haldið á
sumarheimilinu á Hnausum,
sunnudagin, 26 ágúst,kl. 3—6
í sam’bandi við ungmenna nám-
skeiðið, og undir umsjón kvenna
samb. Konurnar eru að efna
til skemtiskráar í sambandi við
hið fyrirhugaða “Silver Tea”. —
Auk þess veitist mönnum tæki-
færi að kynnast gestunum sunn-
anað, Mr, og Mrs. Jóhnson frá
Minneapolis og Rev. G. Richard
Kuch frá Rockford, 111.
V ★ ★
Mig langar til að biðja Heims-
kringlu fyrir viðurkenningu til
Gamaliels Thorleifssonar að
Garðar, N. Dak., fyrir rausnar-
lega peningagjöf til Sambands-
safnaðar í Winnipeg í sambandi
við útvarps guðsþjónustu 12.
júní s. 1. Peningagjöfinni, að
upphæð $11.00, fylgdi sú orð-
sending að þakka séra Philip M.
Péturssyni fyrir þá ágætis ræðu
er hann flutti við það tækifæri
og fyrir alla stjórn og frágang á
guðsþjónustunni, sem var prýði-
leg að öllu leyti. Mér er ljúft
fyrir hönd fyrsta Sambandssafn-'
aðar í Winnipeg að þakka þessa
gjöf og vingjarnlegu ummæli
vinar míns Gamaliels Thorleifs-
I
sonar.
B. E. Johnson, forseti
Fyrsta Sambandssafnaðar
í Winnipeg
KAUPIÐ HEIMSKRINGLU—
bezta íslenzka fréttablaðið
Dánarfregn
Elzta dóttir þeirra hjóna Jó-
hanns Sigmundssonar og Thór-
dísar Sigurðardóttur konu hans,
Clara, dó þriðjudaginn 14. þ. m.,
eftir langvarandi vanheilsu. Hún
var á 41 árinu. Hún var fædd í
Rðykjavík. á íslandi, 5. sept.
1904, og kom til Winnipeg með
móður sinni 1912 þangað sem
Jóhann hafði komið á undan
þeim. Hún ólst hér upp hjá for-
eldrum sínum. 24. janúar árið
1925, giftist hún eftirlifandi
manni sínum, Sigurði Stsfáns-
syni. Þau eignuðust tvær dæt-
ur, Clara og Margrét. Systkini
hennar eru: Sigurður, í stjórn-
arþjónustu í Vancouver; Guðný,
(Mrs. George Bonnett) fyrver-
andi skólakennari í Winnipeg og
undanfarið hefir verið vestur í
landi með manni sínum sem er í
bernum; Thorvaldur í Winnipeg.
sem er fyrir nokkru kominn
heim úr herþjónustu frá Eng-
landi og Margrét, sem er að
nema hjúkrunarkonustarf á
Winnipeg General Hospital. —
Önnur systir hinnar látnu dó í
febrúar mánuði 1942.
Mrs. Stefánsson hafði lengi
búið við vanheilsu, og hlaut að
lokum hvíld. Byrðin var henni
ofurefli sem hún gat ekki leng-
ur borið.
Kveðjuathöfn fór fram á
fimtudaginn 16. ágúst, kl. 2 e. h.
Séra Philip M. Pétursson jarð-
söng.
* ★ *
Nýlega kom til bæjarins frá
íslandi, hr. Ólafur Pálsson skóla-
stjóri. Hann gerir ráð fyrir að
dvelja hér árlangt og kynna sér
barnafræðslu og skólamál.
* * *
Úr bréfi til ritstj. Hkr.:
Vogar, Man., 4. ág. ’45
Góði vinur:
-----Af mér er fátt að segja.
Ellin er að ná yfirtökunum á mér
sem von er, því víst hef eg aldrei
kunnað að haga svo háttum mín-
um að eg geti orðið að neinu
liði eftir áttrætt. “En svo eru
fleiri”, eins og K. N. kvað. Verst
er að eg er orðinn svo gleyminn
og latur að eg get ekki skrifað
um neitt sem vit er í, og svo eru
fingurnir líka orðnið stirðir. Þó
veit eg ekki nema eg kynni að
rakna við ef einhver réðist á mig
eða málefni sem mér væri ant
um, en nú eru gamlir menn “úr
móð, nema þeir séu ríkir og auð-
ugir” eins og nafni minn á
Möðruvöllum var á sinni tíð. Og
þó minkaði vald hans á elliárun-
um.
Eg geri lítið annað nú en að
skrifa sendibréf, ekki þarf eg
samt að svara bréfum frá Win-
nipeg, því þaðan fæ eg nú engin
bréf síðan þeir Bjarni Þorsteins-
son og Magnús Pétursson fóru
“yfir um”, eins nú er kallað
heima. — Því enginn veit nú
hvert, nema Helgi Pétursson,
enda má vel vera að hann sé
flestum vitrari. Eg fékk 6 bréf
að heiman í gær og átti 4 ósvör-
j uð þaðan, svo eg hefi nóg að
gera nokkra daga, því oft get eg
ekki skrifað meira en á eitt bréfs-
efni milli hvílda.
Hér getur verið “Amen eftir
efninu”, eins og í ræðunni hjá
séra Sigvalda.
Beztu óskir frá
Guðm. gamla frá Húsey
* * *
Dánarfregn
Sigurður Kjartansson, bóndi i
Reykjavíkur héraði norður með
Manitoba-vatni, andaðist á heim-
ili systur sinnar í Woodlands,
Man., 13. ágúst, þá 41 árs að
aldri. Hann var sonur þeirra
hjóna Guðmundar Kjartansson-
ar og Petrínar Sigríðar Ingi-
marsdóttur. Guðmundur var
ættaður frá Dýrastöðum í Mýra-
sýslu.
Sigurður var kvæntur Mar-
gréti Erlendson, dóttur Guðjóns
og Valgerðar Erlendson sem búa
þar nyrðra. Þau eignuðust þrjú
börn, Joanne, Jimmie (Guð-
mundur) og Norman. .
Sigurður hafði búið við van-
heilsu síðan í vor, og veikin á-
gerðist er dagarnir og vikurnar
liðu. Um tíma kom hann inn á
spítala, til Winnipeg, en seinna
var hann fluttur til systur sinnar
í Woodlands, þar sem hann dó
mánudaginn 13. þ. m.
Systkini hans sem lifa hann,
eru fimm, tveir bræður og þrjár
systur. Þau eru: Ingvar og Thor-
steinn, báðir til heimilis við
Reykjavík, Man., og Martha
(Mrs. Sund) á Woodlands, Man.;
Ragnheiður (Mrs. Ólafson) við
Reykjavík og Margrét (Mrs. Lar-
son) í Svíþjóð.
Útförin fór fram í Reykjavík
i föstudaginn 17. þ. m. Séra Philip
i M. Pétursson jarðsöng.
* *
j Þær systurnar, Mrs. Sigfús
Brynjólfsson og Mrs. R. E. Bush-
nell frá San Francisco, Calif.,
dvelja hér í borginni nokkra
daga, komu hingað í kynnisför
til ættingja og vina, sem þær
eiga hér marga. Mr. og Mrs.
Brynjólfsson bjuggu hér í borg-
inni, þar til fyrir rúmum tutt-
ugu árum að þau fluttu bú-
ferlum til San Francisco, og
hafa þau dvalið þar jafnan síðan.
Mr. Brynjólfsson var einn af
hinum vel þektu bygginga-
meisturum fyrri ára hér í Win-
nipeg, og gat sér góðan orðstír.
Hingað til Wi,nnipeg komu
systurnar frá Chicago, þar sem
þær einnig eiga marga vini og
venzla-lið, og héðan fara þær
næstu viku áleiðis til Vancouver
og hverfa svo þaðan heimleiðis.
Þeim fylgja heillaóskir allra
vina þeirra, með þakklæti fyrir
komuna.
W ★ ★
Matreiðslubók
Kvenfélags Fyrsta lúterska
saínaðar í Winnipeg. Pantamr
sendist til Mrs. E. W. Perry, 723
Warsaw Ave.; Mrs. E. S. Feld
sted, 525 Dominion St. Verð
$1.00. Burðargjald 5<p.
Útiskemtun sú sem Norðmenn
efndu til síðastliðinn laugardag
að heimtíli Ernest Parker, Oak-
dean Blvd., var mjög ánægjuleg
og afar fjölmenn. Yfir sex hundr-
uð dollarar söfnuðust þar, sem
alt gengur til bágstaddra Norð-
manna heima á ættjörð þeirra.
— Vel gert.
★ ★ ★
Ungfrú Gerða ÁsvaMs kom
nýverið frá Reykjavík hingað til
borgarinnar. Hún er ráðin í
þjónustu þeirra Dr. og Mrs. P.
H. T. Thorláksson.
★ ★ ★
BRAUTIN
Ársrit Sameinaða Kirkjufé-
lagsins, er til sölu hjá:
Björn Guðmundsson, Reynimel
52, Reykjavík, Iceland
Bókaverzlun Árna Bjarnarsonar,
Akureyri, Iceland
Bókaverzlun Þorsteins M. Jóns-
sonar, Akureyri, Iceland
Björnssons Book Store, 702 Sar-
gent Ave., Winnipeg.
Viking Press Ltd., 853 Sargent
Ave., Winnipeg, Man.
K. W. Kernested, Gimli, Man.
Thorst. J. Pálsson, Hecla, Man.
B. Eggertsson, Vogar, Man.
F. Snidal, Steep Rock, Man.
Guðjón Friðriksson, Selkirk,
Man.
Björn Björnsson, Lundar, Man.
Mrs. Guðrún Johnson, Árnes,
Man.
B. Magnússon, Piney, Man.
Einar A. Johnson, Riverton,
Man.
Dr. S. E. Björnson, Árborg, Man.
Mrs. B. Mathews, Oak Point,
Man.
Ingimundur Ólafsson, Reykja
vík, Man.
S. S. Anderson, Kandahar, Sask.
G. J. Oleson, Glenboro, Man.
Valdi Johnson, Wynyard, Sask.
Jón Ólafsson, Leslie, Sask.
E.JS. Einarsson, 12 E. 4th Ave
Vancouver, B. C.
Ófeigur Sigurðsson, Red Deer
Alta.
G. Thorleifsson, Garðar, N. Dak.,
U.S.A.
M. Thordarson, Blaine, Wash.
Ch. Indriðason, Mountain, N. D
J. J. Middal, Seattle, Wash.
Gunnar Matthíasson, Inglewood
Calii.
Bjarni Sveinsson, Keewatin, Ont
G. B.. Jóhannson, Geysir, Man.
SMÆLKI
FIVE ROSES WHEAT CRANULES
FIVE ROSES CRACKED WHEAT
FIVE ROSES ROLLED OATS
♦. i
FIVE ROSES EDIBLE BRAN
The finest of all cereals
LAKE OF THE WOODS MILLING
CO., LIMITED, WINNIPEG
Á bindindisútbreiðslufundi
stóð einn fundarmanna upp og
lét í ljós með mörgum fögrum
orðum, að hann óskaði þess, að
alt áfengið væri komið á sjávar-
botn.
Sá, er hjá honum sat, var á
sama máli, og er þeir gengu af
fundi, kvaðst hann ekki geta
hrósað ræðumanni nægilega og
spurði hann, hvort hann væri
stúkufélagi.
— Nei, eg er kafari, svarðaði
maðurinn.
★ ★ ★
— Halló þjónn. Það hlýtur
að vera hjartagóður maðut sem
slátraði þessari hænu, sem eg er
að borða.
— Nú, af hverju haldið þér
það, herra minn?
— Vegna þess, að hann hefir
hugsað sig um í minsta kosti 20
ár, áður en hann lét verða af því
að drepa hana.
* * *
— Hvenær hafið þér hugsað
yður að greiða ryksuguna, sem
þér keyptuð?
— Þér fullyrtuð við mig, að
hún myndi margborga sig sjálf.
★ ★ ★
— Stundvísi og heiðarleiki er
mitt fyrsta boðorð. Geti eg ekki
greitt skuld mína á gjalddaga,
borga eg hana alls ekki.
Látið kassa í
Kæliskápinn
NvhoU
m GOOD ANYTIME
The SWAN MFG. Co.
Manufacturers of
SWAN WEATHER-STRIP
281 JAMES ST., WINNIPEG
Phone 22 641
Halldór M. Swan, eigandi
I»JÓÐRÆKNISFÉL\(.
ÍSLENDINGA
Forseti: Dr. Richard Beck
University Station,
Grand Forks. North Dakota
Allir Islendingar í Ame-
ríku ættu að heyra tiJ
Þjóðrœknisfélaginu
Ársgjald (þar með fylgir
Tímarit félagsins ókeypis)
$1.00, sendist fjármálant-
ara Guðmann Levy, 251
Furby St., Winnipeg, Man.
M I N N I ST
B-E-T-E-L
í erfðaskrám yðar
Thos. Jackson & Sons
LIMITED
ORDER YOUR FUEL FOR
NEXT WINTER NOW!
Phone 37 071 (Priv. Exch.)
370 Colony St. Winnipeg
PRINCESS
MESSENGER SERVICE
Við flytjum kistur og töskur,
húsgögn úr smœrri íbúðum
og húsmuni af öllu tœi.
58 ALBERT ST. — WINNIPEG
Sími 25 888
C. A. Johnson, Mgr.
Hórsnyrting — beztu
aðferðir
AMBASSADOR
Beauty Salon
257 KENNEDY ST.
sunnan við Portage
Talsími 92 716
S. H. Johnson, eig.
BEIN JóNASAR HALL-
GRÍMSSONAR
flutt heim og jarðsett
á Þingvöllum?
Þingvallanefnd skorar á ríkis-
stjórnina að hefja undir-
búnnig þess strax.
Viðtal við Harald Guðmundsson
um fyrirhugaðar framkvæmd-
ir á Þingvöllum.
Central Dairies
Limited
Kaupa mjólk og rjóma
Areiðanleg og fljót skil
Telephone 57 237
121 Salter St. — Winnipeg
Eric A. Isfeld, ráðsmaður
Þingvallanefnd, en hana skipa
alþingismennirnir Haraldur
Guðmundsson, Jónas Jónsson og
Jónas Hallgrímsson
Sigurður Kristjánson, ritaði for-
sætisráðherra bréf á 100 ára
greftrunarafmæli Jónasar Hall-
grímssonar. Skoraði nefndin á
ríkisstjórnina að gera ráðstafan-
ir til þess að leifar Jónasar Hall-
grímssonar verði fluttar hingað
heim svo fljótt sem kostur er á
og jarðsettar í grafreitnum á
Þingvelli.
Haraldur Guðmundsso skýrði
Alþýðublaðinu frá þessu í gær,
er það sneri sér til hans og spurði
hann um störf Þingvallanefndar
og framkvæmdir á Þingvelli.
Haraldur Guðmundsson sagði
ennfremur: Aðalframkvæmdin,
sem nú fer fram á Þingvelli, er
að byrjað er að vinna að vegar-
lagningu frá Þjóðveginum við
Kárastaði niður í Kárastaðanes,
þar sem norræna félagið hefir
fengið land undir hina væntan-
legu norrænu höll, en gert er ráð
fyrir, að því sem mér hefir verið
sagt, að eitthvað verði byrjað
á byggingarframkvæmdum á
þessu sumri. Vegur þessi verður
um 2 km. á lengd og liggur hann
meðfram sumarbústaðalöndun-
um, sem úthlutað hefir verið
ofan til við Kárastaðanes og þar
í grend. Þá er gert ráð fyrir því,
að gangstígurinn, sem í fyrra var
lagður í brekkunni, milli Al-
mannagjár og Þingvallavatns,
verði framlengdur að þessum
nýja vegi.
Þá sagði Haraldur Guðmunds-
son ennfremur: Jarðirnar Kára-
staðir, Brúsastaðir, Svartagil og
Arnarfell eru allar í eigu hins
opinbera og liggja að þjóðgarð-
inum. En auk þess liggur land
jarðarinnar Gjábakka einnig að
þjóðgarðinum. Margt bendir til
þess, að heppilegt væri að umráð
allra þessara jarða yrðu í hönd-
um eins aðila með tilliti til af-
nota þjóðgarðsins milli Öxarar
og Hrafnagjár fyrir almenning
og ýmsra framkvæmda í sam-
bandi við hann.
Allmargir sumarbústaðir haf2
verið bygðir í umhverfi Þing-
valla á undanförnum árum og
eftirspurnin eftir lóðum er mikil
og fer sífelt vaxandi.
—Alþbl. 9. júní.
— Vilduð þér gefa einfættum
manin krónu?
— Já, með ánægju, vinur
minn.
— Gefið mér þá tvær krónur.
— Hversvegna?
— Af því eg hefi tvo fætur.
BORGIÐ HEIMSKRINGLU—
því gleymd er goldin skuld
This series of advertisements is taken from the booklet “Back to
Civil Life”, published by and available on request to the Depart-
ment of Veterans’ Affairs, Commercial Building, Winnipeg.
Clip and file for reference.
NO. 4 — WAR SERVICE GRATUITY
A system of war service gratuities was established by the
enactement of the War Service Grants Act, 1944. The Act provides
f°r o wer service gratuity and, subject to certain exceptions and
conditions, makes available also a re-establishment credit.
Those eligible are ex-service personnel who have served on
active service in this war either without territorial limitations.
or in the Aleutian Islands, and who have been honorably dis-
charged. The amount of the gratuity and credit is based on the
period of such ssrvice and there is an additional grant for those
who have served averseas. In computing the length of service,
periods of leave of absence without pay, absence without leave,
pcnal servitude, imprisonment or detention, and periods when
pay is forfeited, are not included.
This space contributed by
THE DREWRYS LIMITED
MD127