Heimskringla - 29.08.1945, Qupperneq 5
WINNIPEG, 29. ÁGÚST 1945
HEIMSKRINGLA
5. SÍÐA
VESTUR-ÍSLENDINGUM
HÉR í HERNUM
FÆKKAR ÓÐUM
Ógleymanlegt að hafa dvalið hér,
segir Ragnar H. Ragnar
liðsforingi.
Margir af íslendingum þeim,
sem búsettir voru í Vesturheimi
fyrir styrjöldina og komu hing-
að til lands með ameríska hern-
nægju af þessum ferðalögum, og
í sambandi við þau og starf mitt í
öryggisdeildinni í heild, varð eg I
var við hversu Islendingar
skildu vel nauðsynina á því að
öryggi hersins væri sem mest.
Þetta kom fram við fjölmörg
tækifæri, og nægir í því sam-
bandi að benda á, hversu Is-
lendingar hafa oft og mörgum
sinnum hjálpað mönnum úr
hernum, ef þeir hafa verið nauð-
uglega staddir, eins og til dæmis
um, eru nú ýmist farnir eða á f sambandi við fiugsiys 0g mörg
Velþektir verzlunarmenn
förum héðan.
Einn þessara manna er Ragnar
H. Ragnar. Hann mun fara héð-
an innan fárra daga. Ragnar kom
hingað 15. ágúst 1943 og hefir
starfað hér síðan í öryggisdeild
hersins. Hann er fæddur hér á
landi, að Ljótsstöðum í Laxár-
dal í Suður-Þingeyjarsýslu, son-
ur Hjálmars Jónssonar bónda
þar og konu hans Áslaugar
Torfadóttur.
Síðastliðinn laugardag gekk
Ragnar að eiga unga stúlku, Sig-
ríði Jónsdóttur frá Gautlöndum
í Suður-Þingeyjarsýslu. Hún
mun flytjast með manni sínum
til Bandaríkjanna.
Tíðindamaður Vísis hitti
Ragnar að máli nýlega, og átti
tal við hann um ýmislegt við-
víkjandi dvöl hans hér og störf-
um fyrir herlið Bandaríkjanna.
Heima, eftir 22 ára fjarveru
— — Eg kom hingað heim,
segir Ragnar, eftir að hafa dval-
ið 22 ár í Ameríku. Að koma
hingað heim, eftir þessa löngu
útivist, var í fylsta máta óvið-
jafnanlegt. Við, sem svo lengi
höfum verið fjarri Islandi, en
erum af íslenzku bergi brotin,
þráum fátt heitar en að komast
heim til gamla landsins og hitta
þar ættingja og æskuvini.
Eg varð ekki lítið undrandi
yfir öllum þeim breytingum, sem
höfðu orðið hér á öllum sköpuð-
um hlutum, frá því að eg fór
héðan, fyrir 22 árum. Vegir voru
þá lítið bygðir og samgöngur
yfirleitt heldur erfiðar. Nú
bruna bifreiðar af nýjustu teg-
undum um alt landið og flug-
vélar flytja mann á nokkrum
klukkustundum ’svo að segja
hvert sem maður óskar sér. í
öðrum efnum eru framfarirnar
svipaðar. í mínum augum er
það æfintýri, að svo fámenn þjóð
skuli hafa áorkað öðru eins á svo
stuttu tímalbili.
Að vera íslendingwr
í hermannabúningi
— Fyrst eftir að eg kom hing-
að, kom það einstaka sinnum
fyrir, að það reyndist talsvert
þvingandi, að vera íslendingur i
hermannabúningi, hér í sínu eig-
in föðurlandi. Á þeim tíma var
mikið um hermenn og að sjálf-
sögðu var fólki heldur illa við að
láta sjá sig í einhverjum tengsl-
um við “ástandið”. Sérstaklega
kom þetta fyrir, ef maður var
boðinn á heimili til kunningja
sinna, og gestir voru þar fyrir,
sem engin deili vissu á manni.
En altaf var mér þó heilsað vin-
gjarnlega, og þegar það vitnað-
ist, að eg var íslendingur, voru
þessi óþægindi öll á bak og burt.
Að öllu samanlögðu, get eg í
fylstu einlægni sagt, að eg hefði
ekki getað kosið mér meiri vin-
semd, en eg hefi átt að mæta
hér hvarvetna, og eg hefi eignast
hér fjölmarga vini þessi ár. Eg
sakna að skilja við þá og mun
altaf minnast þeirra.
Störf f þágu hersins
— Allan þann tíma, sem eg
hefi dvalið hér á landi, hefi eg
starfað í öryggisdeild hersnis.
Eg hefi kynst mörgum löndum
mínum í sambandi við þetta
starf mitt. Eg hefi, í sambandi
við það, ferðast mikið um landið
og hitt menn að máli í fjölmörg-
um stöðum á landinu. Meðal
annars ferðaðist eg bæði um
Austfirði og Vestfirði og sýsl-
urnar Norðanlands.
önnur tilfelli.
Jólaútvarp og tón-
listar starfsemi
— Starf mitt vestanhafs var
eingöngu tónlistarstarfsemi. -
Starfaði eg að þeim málum í
bygðum Islendinga, bæði í Can
ada og Bandaríkjunum. Um
langt skeið átti eg heima í Win-
nipeg. Þar stjórnaði eg meðal
annars söngflokki íslendinga í
borginni og kendi auk þess á
slaghörpu og önnur hljóðfæri. —
Síðustu árin áður en eg kom
hingað heim átti eg heima í
bygðum íslendinga í Norður-
Dakota. Var starf mitt hið sama
þar og meðan eg var meðal Is-
lendinga í Canada.
Það tímabil, sem eg hefi verið
hér heima, hefi eg átt þess kost,
að halda þessari starfsemi minni
áfram að nokkru leyti. Veturinn
1943 var útvarpað héðan dag-
skrá á jólunum, og meðal ann-
ara atriða þar, var bæði söngur
og hljóðfæraleikur. Annaðist eg
undirbúning þess hluta dag-
skrárinnar. Þessum dagskrár-
lið var útvarpað um allar stöðv-
ar Bandaríkjanna, með endur-
varpi frá stöðinni hér. Auk þess
hefi eg annast söngstjórn hjá
blönduðum kór, er félag Þingey-
inga hér í bænum hefir haft á
sínum vegum. Var það mér ó-
blandin ánægja, að eiga þess
kost, að vinna með sveitungum
mínum að þessum málum.
Á förum vestur
— Eg mun aðeins vera hér
stutt enn. Þegar vestur kemur
mun eg verða leystur frá her-
þjónustu. Að því búnu fer eg til
íslendingabygðanna í Norður
Dakota, og mun heimili mitt
verða þar fyrst um sinn.
Það er margt, sem hægt væri
að segja um dvölina hér, en eg er
alls ekki að kveðja fyrir fult og
alt, heldur ætla eg að koma hing-
að ásamt konu minni, eftir eitt
til tvö ár aftur. Eg verð þó að
segja, að eg kveð hér mína mörgu
vini og kunningja víðsvegar um
landið með söknuði, en jafn-
framt með innilegu þakklæti
fyrir viðkynninguna. Eg vona,
að mér eigi eftir að auðnast sú
gleði, að hitta sem flest þeirra
aftur seinna meir, og að hagur
þeirra og allra annara íslend-
inga hér heima verði þá í engu
lakari en hann er nú, segir
Ragnar að lokum.
—Vísir, 30. júlí.
Hugh L. Hannesson
Roy E. Park
Nýjar bækur
sem allir þurfa að lesa
BRAUTIN, ársrit Hins Sam-
einaða Kirkjufélags Islendinga í
Norður Ameríku. II. árg. 120
blaðsíður í Eimreiðarbroti. —
Fræðandi og skemtilegt rit. —
Verð ______-__-______$1-00
“ÚR ÚTLEGД, ljóðmæli eft-
ir Jónas Stefánsson frá Kaldbak.
Vönduð útgáfa með mynd af höf-
undi. Góð bók, sem vestur-ís-
lenzkir bókamenn mega ekki
vera án. Bókin er 166 blaðsíður
í stóru broti. Verð_ $2.00
BJÖRNINN ÚR BJARMA-
LANDI, Þ. Þ. Þ., í bandi $3.25,
óbundin $2.50.
FERÐAHUGLEIÐINGAR eft-
ir Soffanías Thorkelsson, í tveim
bindum, með yfir 200 myndum.
Bæði bindin á $7.00.
HUNANGSFLUGUR, eftir
Guttorm J. Guttormsson. Kostar
aðeins $1.50 í bandi. Fæst nú i
BJÖRNSSONS BOOK STORE
Samkvæmt yfirlýsingu firá Drummondville Cotton Co.,
hafa þessir efnilegu og framkvæmdarsömu menn tekið að sér
rekstur þessarar verzlunar, upp á eigin reikning og ábyrgð.
Þessir menn eru svo velþektir að óþarft er að skrifa langt
mál til þess að kynna þá lesendum vorum. Mr. Hannesson
hefir verið forstjóri ofanskráðs félags um eða yfir fjögur ár,
og hefir hann á þeim tíma eignast marga viðskiftavini, sem
munu gleðjast yfir velgengni hans og því tækifæri sem honum
gefst nú til frekari framfara á sviði viðskiftanna. Allir sem
hann þekkja vita að hann er hinn trúverðugasti í öllum
greinum.
Verzlunarfélagi hans, Mr. Park, er og velþektur meðal
fisikmanna í Vestur Canada. Hann var áður forstjóri Drum-
mondville félagsins hér í Winnipeg, en síðastliðin fjögur ár
hefir hann verið “Sales Manager” fyrir það félag í Montreal.
Hið nýja félag gengur undir nafninu Park-Hannesson.
Umdæmi þessa nýja félags verður: Vestur Ontario, Mani-
toba, Saskatohewan, Alberta og North West Territories.
Verzlunarvaran verður sú sama sem Drummondvilla
Cotton félagið hafði hér með höndum, sem sé, hið velþekta
“Bluenose” netagarn, tilbúin net og alt annað sem til fiski-
veiða heyrir.
SMÁVEGIS
(Úr hagskýrslum Canada)
Eg hafði ósegjanlega mikla á- 702 Sargent Ave. Winnipeg
Etfirfarandi tafla sýnir verð-
lags ástand hjá vissum þjóðum
1. janúar ár hvert síðan í ágúst
1939.
Canada U.S.A, U.K.
100.0
112.3
126.5
129,0
128.4
128.4
130.3
53.0
12.0
6.2
75.8
23.0
3.1
43.6
FJÆR OG NÆR
Ág. 1939.„ 100.0 100.0
Jan.1940 103.0 100.9
Jan. 1941 107.4 102.2
Jan.1942 114.5 113.6
Jan.1943 116.2 122.4
Jan.1944 118.1 126.0
Jan. 1945 . 117.7 128.9
★ ★ *
Kjötneysla
1944 Canada
Gripakjöt - 61.7
Kálfakjöt . 11.0
Kindakjöt 4.8
Svínakj öt 61.4
Hænsnakjöt — ___ 23.7
Aðrir alifuglar 3.9
Egg 36.2
★ ★ ★
Til gamans fyrir okkur sem
erum átakamiklir í neyslu tó-
baks, gæti það verið okkur hugg-
un að tilfinnanlegur skortur hef-
ir ekki orðið hér í Canada á
Cigarettes eins og í Bandaríkj-
unum, því Canada stjórn leggur
$10—11 skatt á hverjar 1000
cigarettes. En í Bandaríkjunum
eru aðeins $3.36. I Canada var
sem svarar 1000 cigarettes á
hvern mann í landinu reykt,
1944. En í Bandaríkjunum sem
svarar 1700 á hvern einn.
En þeir sem hafa gaman af
háum tölum geta svo margfald-
að þetta með fólkstölunni hjá
hverri þjóð til að sjá cigarettu
fjöldann.
Áður fyrri þurfti Canada að
flytja inn mikinn part af tóbaki
sem brúkað var, en nú eru 99 ýr
af reyktóbakinu sem nevtt er
ræktað hér í Canada. Svo það
er stór atvinnugrein fyrir þjóð-
ina tóbaks framleiðslan.
En verka skiftingin verður lík-
lega svona: Annar framleiðir en
hinn kaupir framleiðsluna fyrir
sína peninga og brennir hana
svo. Og sá síðari getur með góð-
um rétti sagt að hann haldi uppi
þessari framleiðslu. S.
borgið HEIMSKRINGLU—
því gleymd er goldin skuld
Jón Sigurdson Chapter I.O.D.
E. heldur sinn fyrsta fund eftir
sumarfríið á fimtudaginn 6.
september kl. 8 e. h. í Board
Room No. 2 í Free Press Bldg.,
Carlton St., Winnipeg. Það er
áríðandi að meðlimir fjölmenni
á Iþennan fund.
★ ★ ★
Hr. Gunnar Erlendsson, söng-
fræðingur, dvelur nú í orlofi
norður við Steep Rock, Man. —
Heimkomudagur óákveðinn.
★ ★ *
Vinsamleg tilmæli
Það hefir komið til orða að
safna saman öllum þeim ljóðum
og kvæðum sem Bjarni Thor-
steinsson, — síðast til heimilis í
Norwood, Man., — orti og Iþýddi,
og er það gert með því augna-
miði að gefa út safn af öllum
hans ljóðum sem hægt er að
komast yfir.
Eftir tilmælum barna hins
andaða skálds, vil eg biðja alla
sem eitthvað af þessum kvæðum
hafa í fórum sínum, hvort held-
ur það eru úrklippur úr blöðum
eða í eigin handriti, að senda mér
þau sem allra fyrst, svo hægt sé
að koma þessu í framkvæmd í
nálægri framtíð.
Páll S. Pálsson
—796 Banning St.,
Winnipeg, Man.
Velkominn aftur til friðarstarfa,
Hermaður!
EATON’S hafa fengið fyrir afturkomna hermenn, sem
hafa pöntunarseðla í höndum, nokkur hundruð tilbúin
föt. Á þessum fötum gerum við breytingar á tveim
dögum. Meiri hlutinn af þessum fötum er úr ull, vel ofin
og falleg áferðar. Þar á meðal er einnig talsvert úrval
af ”rugged” ofnum fötum og ennfremur fínum “serge’
fötum. Að endingu, í þessum birgðum er gott úrval fyrir
stóra og smáa menn.
Svo, ef þú hefir í höndum forgangsréttarleyfi, og ef þú
ert í flýti að komast til friðarstarfa, þá er EATON’S
staðurinn fyrir þig. Verð frá $26.50 til $45.00.
Fyrir þá heimkomna hermenn, sem ekki eru í flýtir,
viljum vér ráðleggja að panta klæðskera saumuð föt
eftir máli er kosta $28.50, $36.00 og $41.00. Tilbúin innan
þriggja vikna.
—Karlmannadeildin, Hargrave Shops for Men, Aðalgólfi.
T. EATON C°„
Samsæti
Það hafði rignt mikið að und-
anförnu, en 7. júlí s. 1. var þó
undantékning enda var nóg brúk
fyrir gott veður og góðar brautir
því að kvöldi þess dag stofnuðu
Víðir og Farmnesbúar í Nýja ís-
landi til samkomu í samkomu-
húsinu í Víðir, í því skyni að
kveðja okkur í tilefni af því að
við vorum þá að flytja alfarin frá
Víðir eftir 35 ára búskap þar.
Nokkrir góðkunningjar okkar
frá Arborg og einnig frá Geysir-
bygðinni tóku þátt í þessu móti.
Söngflokkur hafði verið æfður
undir stjórn Mrs. E. Vigfússon í
Framnes, sem samanstóð af fólki
úr báðum bygðarlögunum. —
Söngurinn hljómaði hið bezta.
Ræður voru haldnar og kvæði
kveðin. Gjafir voru framborn-
ar okkur til handa frá báðum
bygðarlögunum og sérstök gjöf
frá skyld- og venzlafólki.
Séra Bjarni Bjarnason stjórn-
aði samsætinu og gerði því beztu
skil eins og honum er lagið á
slíkum mótum. Veitingar voru
framreiddar að íslenzkum sið og
þarf það engrar skýringar við.
“Þau eru ekki þægileg, þessi
vistaskifti”. Svo komst skáldið
að orði, en þetta samsæti náði
tilgangi sínum á þann hátt að
það lét okkur gleyma óþægind-
unum sem af því stafa, að flytja
burtu úr umhverfi sem maður
hefir fest rætur í, ef á annað
borð er hægt að kveða svo að
orði um Islendinga sem komu
fullorðnir að heiman. En hvað
um það?
Þökk fyrir gjafirnar, og góð-
vildina okkur auðsýnda með
þessu fjölmenna samsæti.
Fríða og Laugi Hólm
frá Grund í Víðirbygð
LESIÐ HEIMSKRINGLU
bezta íslenzka fréttablaðið
UMITEQ
Mrs. Agnes George K. Allen
ásamt dóttir hennar, Rosamond,
árs gamalli, frá Prince Rupert,
B. C., lagði af stað heimleiðis,
eftir að hafa dvalið hér um
þriggja mánaða skeið, hjá móð-
ur sinni, Mrs. Kristján Sigurðs-
son, 982 Banning St. Capt. G. K.
Allen maður Agnes var hér
einnig í frístund sinni úr hern-
um, en hann er bandarískur sjó-
liði.
★ ★ ★
Heimskringla á íslandi
Herra Björn Guðmundsson,
Reynimel 52, Reykjavík, hefir
aðalumboð fyrir Heimskringlu á
íslandi. Eru menn beðnir að
komast í samband við hann, við-
dkjandi áskriftar-gjöldum, og
einnig allir þeir sem gerast vilja
kaupendur hennar, hvar sem er
á landinu.
Hr. Guðmundsson er gjaldkeri
hjá Grænmetisverzlun ríkisins
og þessvegna mjög handhægt
fyrir borgarbúa að hitta hann
að máli.
* * ★
Alþingishátíðin 1930,
eftir próf. Magnús Jónsson er
Islendingum kærkomin vinagjöf.
I bókinni er yfir 300 myndir og
frágangur allur hinn vandaðasti.
Fæst bæði í bandi og óbundin.
Verð í bandi $20.50 og $23.00,
óbundin $18.50.
Björnssons Book Store
702 Sargent Ave., Winnipeg
★ ★ ★
Heimskringla er til sölu hjá
hr. bóksala Árna Bjarnarsyni,
Akureyri, Island.
— Jæja, Villi. Hvað geturðu
sagt mér um Columbus?
— Það var eniskonar fugl.
— Hvernig getur þér dottið
önnur eins vitleysa í hug?
— Nú, það er altaf rætt svo
mikið um Columfousareggið.
FYRSTA MYND AF ÞOKUDREIFING
Þessi mynd er ein af þeim fyrstu er leystar hafa verið úr banni, er sýna hvernig þokunni
var dreift af flugvöllum sambandsþjóðanna. Aðferðin er þessi: Það eru kynt bál beggja meg-
in við upptökunarsvæðið, sem framleiða nægan hita til þess, að þokan lyftist frá jörðu og gufar
upp af flugvellinum. Þessi aðferð var uppgötvuð meðan á stríðinu stóð. Myndin sýnir hvar
Mosquito flugbáturinn er að lyftast frá jörðu, og sézt eldhafið til beggja hliða.