Heimskringla - 21.05.1947, Side 1
A'e tecommend lot
your crpproTcl our
//
BUTTER-NUT
LO AF "
CANADA BREAD CO. LTD.
Winnipeg Phone 37 144
Frank Hannibal, Mgr.
We recommend tor
your approYCtl our
//
BUTTER-NUT
LOAF"
CANADA bread co. ltd.
Winnipeg Phone 37 144
Frank Hannibal, Mgr.
LXI. ÁRGANGUR
TT ..
FRÉTTAYFIRLIT
Notkun kjarnorkunnar
E>r. Leopold Infeld, prófessor
í stærðfræði við háskólann í Tor-
onto, hélt ræðu í Manitoba-ihá-
skólanum siíðastldðinn föstudag;
var hann gestur háskólaráðsins,
og á vegum þess.
Meginatriðin í ræðu hans voru1
um kjamorkuna, og not hennar.
Er hér leitast við á ná nokkrum
útdrœtti úr efninu.
Sagði hann, að ef vísindamenn
snéru sér heilhuga að notkun1
kj arnorkunnar til iðnaðarrekst-
urs, í stað stríðsprengjubirgða,
þá myndu byrja að sjást hinar
stórkostlegustu ummyndanir og
breytingar í iðnaði og fram-
AFDRIFARÍKT MÁL
G. S. Thorvaldson, K.C.
Fyrir tveim árum gerði stjórn
Winnipeg-borgar að lögum að
loka búðum og vinnu- og söiu-
konxpum (svonefndum shops) kl.
7 á virkum dögum, en kl. 9 á
laugardögum.
Nýlega var maður að nafni
Philip Hoot, fundinn brotlegur
við þessi lokunarlög, en hann
rekur bílastöð, er nefnist The
Fort Rouge Garage. Var verk-
stæði hans opið eitt lauigardags-
kvöld s. 1. september eftir kl. níu.
Hoot var svo dæmdur 7. nóv.
s. 1. i $14 sekt og málskostnað,
af Magistrate M. G. Garton, í
lögreglurétti .bæjarins.
G. S. Thorvaidson, K.C., varði
málið fyrir Hoot. Dómi þessum
var áfríað.
(Mjr. Thorvaldson bjó máiið ú+
til áfilíunarréttarins á þessa leið.
1. Er sekt þessi lögmæt og
stenzt hún andmæli?
2. Ná þessi lokunarlög til bíl-
stöðva? Eru “Shop” lokumarlög-
in ekki hluta af Municipal Regu-
lation Act fylkisins.
3. Var bílstöð (servioe station)
hins ákærða ólögiega opin s. !. |
september?
4. Eru aukalög bæjarins, nr.
15870 gild eða ekki?
Áfríunrarétturinn svaraði síð-
Ustu spurningunni þannig, að
lokunarlög bæjarins væru hluti
af sveitalögum fylkisins, en þau
næðu ekki til Winnipeg-borgar.
Var með því fyrri spurningunum
einnig svarað á sömu leið.
Dómurinn um sekt Hoots var
því ekki lögum samikvæmur,
eins og Mr. Thorvaldson grun-
aði.
Uessi úrskurður áfráunarrétt-
ar er mjög þýðingarmikill. Hann
naer ekki eingöngu til þessa eina
anainsta máls, heldur eru jafn-
Iramt því öll þau aukalög sem
haerinn hefir samþykt á 43 árum.
hgild, 9em getur verið dálítið
iakara, ef í það færi.
0G UMSAGNIR
ieiðslu á þessu meginlandi á
næstu 5 — 10 árum.
Ef á því væri byrjað, yrðu
byltingarnar hraðfara eins og
skriðufall.
En væri öll áherzlan lögð á
sprengjur en engin á iðnaðar-
framfarir, yrði árangurinn kyr-
staða. Ekki taldi hann þó líklegt
að komið gæti til greina, að
rannsóknir kj arnorku-ef nisins
færu fram óendanlega til afnota
á friðartímum; einhvert land
myndi hafa forustuna á því sviði,
og hin yrðu að haga sér þar eift-
ir, eða verða gjaldþrota.
Kvað Dr. Infeld allan okkar
iðnfræðislega hugsunarlhátt —
verða að breytast, heimurinn
yrði að venjast hinni nýju iðn-
fræði.
Hvað Manitoba snerti, eins og
raunar alla Canada, þá þýddi
þetta með tímanum nýjan iðnað,
er kæmi í stað kola, olíu og gass,
sem unnið væru úr jörðu; en
kjarnorkan notuð til eldsneytis.
Væri það sérstaklega þýðing-
armikið fyrir þau svæði, þar sem
skontur er á eldsneyti, en hafa
að öðru leyti nægileg hráéfni.
Dr. Infeld hefir verið prófess-
or við Toronto4háskólann, síðan
1939, og var sterkur fylgismaður
Albert Einsteins fyrir stríðið.
Féllst hann á þær kenningar, og
hefir um þær ritað.
Hann er fæddur á Póllarwii,
og menntun sína hlaut hann á
pólskum og þýzkum háskólum.
Hann er meðlimur Rockerfellér
Foundation við Cambridge-há-
skólann, og einnig tilheyrir
hann hærri-fræða stofnun
Princeton-háskólans.
Meðan á stríðinu stóð, vann
hann sem vísinda og eðlisfræð-
ingur þeirra áætlana, er við
komu hermálum og með mikilli
leynd var með farið.
Iðnaðar og verzlunarskattar
Ályktun ríkisráðs (P.C. 1502),
er fram fór 17. aprxl, nær yfir
36 mánaða skeið, eða til ársloka
1948, og á því tímabili getur
hvert löggilt verzlunar og iðn-
aðarfyrirtæki gert endurkröfu
til helmings þeirra aukaskatta,
er lagðir voru á yfir stríðs-tíma-
bilið. Afleiðingar eða áhrif þess-
ara endurbóta á stníðsskatta-
reglugerðinni, verða, eða eiga að
verða til þess að minka eða
lækka aukaskatts-ágóða, er lagð-
ur var á fyrirtækið á áður
nefndu tímahili. Verzlunanfélög
eða iðnaðarfyrirtæki, af hvaða
tegund sem er, verður að velja
um, hvert 12 mánaða tímaibilið
það kýs, af hinu framlengda 36
1 mánaða titekna árabili — frá 1
jan. 1946, til 31. des. 1948, til
þess að krefjast áfallins uppi-
haldskostnaðar á því tiltekna
tímabili eftir stríð, er átt hefði
að takast til greina á stríðstím-
unum.
Einnig á þetta að verða tii
bóta að því leyti, að það á að
hvetja og styrkja félagsstofnan-
ir og fyrirtaöki til þess að hressa
upp á, og endurbæta og endur-
nýja slitnar vélar, aðbúnað all-
an og tæki, sem látið var draig-
ast að fá nokkra viðgerð eða
bætur á, meðan á stríðinu stóð.
Minni járnbrauta-ágóði
Inntektir canadisku járn-
brautarfélaganna námu $57,
565,026 yfir gíðastliðinn janúar,
borið saman við $55,796,577 yfir
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 21. MAÍ 1947
F'iróinx
Heill þér Frón, með faldinn bjarta
frelsi, von og trú í hjanta,
þér vér réttum hug og hönd.
Mál þitt, ljóð og sagnasjóður
sendir fögnuð, yl og gróður,
hvar sem börn þín byggj'a lönd.
Trú á forsjón lífsins laga,
lýst af mannúð alla daga,
aldrei neinu helsi háð.
Geymdu forna dáð og dygðir,
drottinn verndi þínar bygðir,
fræga, kæra, feðra láð.
Fjflla land, með vötn og voga,
vorsins nætur sólarloga,
velli, grund og gróin tún.
Legi faðmað landið heima
lj úft er þig í hug að geyma,
merkið blasir hátt við hún.
M. Markússon
Ofanritað kvæði var flutt á ársfundi þjóðræknxsdeildar-
innar Frón, 25. febrúar s. 1. Höf.
sama mánuð 1946, samkvæmt
hagstofu skýrslum ríkisins.
Flutningsgjöld (freight) juk-
ust 10.6% á síðastliðnu ári, og
námu $44,872,495, og er það
nýtt hámark fyrir janúar mán-
uð, en inntektir af farþegaflutn-
ingi lækkuðu um 22%.
Réksturskostnaður yifir jan-
úar mánuð hækkaði úr $52,637,
332 á síðastliðnu ári, upp í —
$55,374,574, og lækkuðu því
reksturs-inntektimar úr $135,
087—-í $508,111 halla.
Frá Svíþjóð
Frá Berlin bérst sú frétt, að
Svíþjóð hafi tekist á hendur að
sjá um ferjuflutninga leið þá,
sem hún áður veitti forstöðu fyr-
ir stríðið, milli Svíþjóðar og
Norður-Þýf;kalands hafnarinnar
Warnemúnde nálægt Rostoek,
ætla Svíar að skifta sænskum
vélum og verkfærum fyrir
þýzkar vefniaðarvömr. Samn-
ingar þessir, er búist við nái
fram að ganga við sæn'ska verzl-
unar-fulltrúa.
Öryggissjóður Hollands
Frá New York — Konungsríki
Niðurlandanna hefir skriásett
verðbréf hjá “Securities and Ex-
change Oommission” að upphæð
$20,000,000, með 3%% vöxtum
í 10 ár.
Á upphæð þessi að vera erlent
eyðslufé Hlutafélag það, sem
leggur x þetta fyrirtæki, er
Kuhn Lock Co. Ágóðanum verð-
ur varið til kaupa á vörubirgð-
um, og til greiðslu fyrir sitörf,
unnin í þarfir viðreisnar og end-
urbóta Niðurlandanna.
Varar við nýjum hættum
Winston Churdhill skoraði á
Bretland og Frakkland að gang-
aSt fyrir því, að Þýzkaland yrði
endurreist á þjóðmegunarlega
vísu, og komið undir það fótum,
áður en hin yfirunna og niður-
troðna þýzka þjóð fyltiist upp-
reiSnaranda og hefndarþrosta.
Sagði Churchill þetta í ræðu
er hann hélt seint í síðastl. viku
á miklum og fjölmennum fundi,
er rætt skyldi á, hver tök væru
á að sameina hin tvístruðu Ev-
rópu-þjóðrlíki, og koma þar á
einhverri tegund friðar og ein-
ingar.
Kvað Churchill Þýzkaland
myndi enn á ný rtísa upp eins og
ægilegur óskapningur, ef edgi
væri fyrir það tékið í tíma, og
brátt myndi nábúum þess, og
öllum heiminum standa ógn af
því, og ávöxtum sigurs og frtels-
is kastað algerlega á glæ. Kvað
hann framtíð Þýzbalands vera j
aðal vandræða málið, er Evrópa |
horlfðist í augu við sem stæði.!
Þýzkaland lægi flatt í hinum
hræðilegustu rústum í dag, þj ak-
að af hungri og skorti; auðsýni-
legt væri, að ekki væri að búast
við neinni endurreisnar-tilraun
frá þess hendi, það væri skylda
Bretlands og Frakklands að eiga
frumkvæði að hinni einu réttu
endurreisn Þýzkalands.
Alþjóðlegur skiftimyntar-
sjóður
Frá New York — Aðal til-
gangur þessarar sjóðstofnunar,
er að hjálpa til að slétta úr
gjaldeyrisgengis og viðskifta-
myntar-misfellum og árekstrum
víðsvegar um heim, og draga
með því úr útlendum viðskifta-
vandræðum með því að byggja
sem flestar hlutaðeigandi þjóðir
upp með þeirri erlendri skifti-
mynt, er þær þarfnast.
Camille Gutt, stjórnandi og
forráðaimaður þessa sjóðs, kveðst
búaSt við að starf sjóðsins hefj-
ist innan fárra vikna.
Sagði Mr. Gutt þetta í ræðu,
er hann hélt á blaðamannafélags
fundi, en hann var þá nýkominn
heim úr 4 vikna ferðalagi með-
al vestur-Evrópu þjóðanna, til
þess að ræða ujn tilhögun og
yfirráð þessa sjóðs.
Ekki gat hann um, hvaða
land eða þjóð myndi verða fyrst
til þess að njóta þessara hlunn-
inda, sagði aðeins, að uppbæðir
úr sjóðnum yrðu ekki eins háar
og búist hefði verið við sumstað-
ar, en enginn þyrfti að örvænta
um að sjóðurinn hefði eigi méð-
tímanum nægar skiftimynta-
birgðir.
Forn biblía
Partur af mjög fornri biblíu,
sem haldið er að geti verið frá
dögum Jiohannesar Gutenberg,
hefir fundizt í almennings-bóka-
safni í Leningrad, samkvæmt
Tass, Sovét-ríkisfréttastofunni.
Bókarkápa nokkur frá 16 öld
var tekin til vandlegrar athug-
unar, og kom þá í ljós, að hún
var blað úr hinni fágætu “36
línu bibiíu”, en af þeirri útgáfu
er ekki vitað að til séu nema 4
einitök. Bibiía þessi, sem dnegur
nafn af tölu línanna á hverri
blaðsíðu, var prentuð jaifnhliða,
eða jafnvel fyr en hin fyrsta
stóra biblía, “42 línu” Johannes-
ar Gutenbterg, er gefin var út í
Main, Þýzkalandi árið 1456.
TIL HEIMSKRINGLU
Gamla Kringla fréttáfróð
fólksius huga glæðir,
hennar þor, pg meginmóð,
mótbyr enginn hræðir.
Svinn í hverri sókn og vörn
svífur milli landa,
framsækin og fróðleiksgjtorn
frjáls og glöð í anda.
Þjóðrækninnar þel og hag
þér er ljúft að gleðja,
sextíu ára samfélag
signir vina bveðja.
Bragi
Heimskringla þakkar Braga
“inum gamla” ofan skráð kvæð;
og óska^ honum alls hins bezta.
Finnland fær lán
Ríkisstjórn Finnlands héfir
gert samninga um $1,350,000
lán frá stóriðju-fyrirtækinu,
General Motors Corporatiion of
America, til þess að kajxpa fyrir
flutningsvagna (trucks).
Fregn þessi er höfð eftir em-
bættismanni utanríkismála-
skrifstofu Finna.
Viðhorf kristindómsins
Sagt er að Sir Stafford
Cripps, ráðherra í brezka ráðu-
neytinu, hafi haldið nýlega ræðu
við lelkmannamessu í St. Mart-
ins kirkjunni á Englandi. Hafi
hann í ræðu þessari talið við-
horf kristindómsmálanna á Brét-
landi gildustu ástæðuna fyrir
stórkostlegum og hættulegum
misféllum og óförum á iðnaðar-
og þjóðmálasviði landsins.
Kvað hann siðferðisástand
þjóðarinnar á viðskifta og iðn-
arsviðum lágt, af því að efnislegt
og eigingjarnt viðhorf á verk-
unum, gæti ekki skapað hátt eða
göfugt takmark til að keppa að.
Kvað hann það stafa af því, að
þjóðin sem að sönnu héldi áfram
að nefnast kristin, hefði að
mörgu leyti gengið svo langt út
frá hinum einföldu, en háleitu
kenningum Krists, að þær væru
nálega eins og hver önnur hálf-
gleymd fræði, sem skjaldan eða
aldrei hefði verið farið eftir.
Taldi hann það allmikla, ef
ekki aðal-ástæðuna fyrir hinum
ægilegu erfiðleikum nútímans.
Forsætisráðherra Italíu
Rómarborg — Fylgis fiokkur
Alcide de Gaspari, (Clhristiaix
democrat) útnefndi hann ný-
lega og endurkaus til forsætis-
ráðherra, og er talið líkiegt að
hann stofni nýtt flokka-ráðu-
neyti.
De Gasperi lýsti því yfir um
síðustu helgi, að hann hefði til-
valið Vittario Emanncle Orlando
87 ára gamlan, til stjórnar-for-
manns.
Orlando var forsætisráðherra
ítaiíu í fyrra alheimsstríðinu.
Vilja losna við Breta
Cairo — Mahmand Fahmy
Nokrashí Pasha, forsætisráð-
herra, sagði að stjórnarráðu-
neyti Egyptalands myndi leggja
þá kröfu um að Bretar færu al-
gerlega í burtu með hersveitir
sínar úr Nile-dalnum, fyrir ör-
yggisráð Sameinuðu þjóðanna,
undireins og ráðstefnu þeirri, er
yfir stendur um Palestínu er
lokið. Sem svar við kvörtunum
yfir því, að dráttur á því að
leggja málið fyrir, myndi
skemma málstað Egyptalands.
Kvað ráðherrann ekkert standa
á sér.
NÚMER34
ÍSLENDINGI VEITT
HÁ NÁMSLAUN
Harold A. C. Johnson, B.Sc.
Verðlaun til vísindanáms hef-
ir National Research Oouncil (í
Canada), veitt um langt skeið
efnilegri námsmönnum frá há-
skólum, sem Mklegir væru til
framhaldsstarfs í vísindum. Er
þar ekki hörgull rannsöknarefna
og sumra nýrra eins og kjarn-
orkunnar. S. 1. viku voru 8
menn, sem útskrifast höfðu á
fyrra ári frá Manitoba-háskóla
valdir til framhalds vísindanáms
hjá rannsóknarstofnuninni. Var
einn þeirra íslendingurinn Har-
old A. C. Johnison, sonur
próf. og Mrs. Skúli Johnson í
Winnipeg. Eru námsverðlaun
hans $450. Hann hefir síðan
hann útskrifaðist stundað jarð-
fræðisrannsóknir (economic geo-
logy).
Herskipa heimsókn
Það hefir vérið uppd látið, að
brezk herskip úr Miðjarðarhafs-
flotanum, undir stjórn sjóflota-
foringjans, Sir Algeron WilMs,-
muni heimsækja Istanbul á
Tyrklandi í júlí mánuði og fara
einnig til Sevastapol á Rúss-
landi — (Krimsbeganum).
Brezka utanríkjamála skrifstof-
an hefir þó neitað að láta uppi,
hvort þessi heimsókn til Tyrk-
lands geti skoðast nokkurt merki
þess, að Bretar séu samþykkir
utanríkja-stefnu Bandaríkj anna
í málum Balkans — og Miðj arð-
arhafs landanna.
Bundið skilyrðum
Yfirmaður innflutninga, En-
gracio Fabre, á Manila, hefir lót-
ið uppi, að Rússum verði ekki
leyfður innflutningur á Phil-
ipps-eyjar, nema Sovét-iþjóðirn-
ar könnuðust við rétt eyjanna
sem lýðveldis.
Mr. Fabre kvað ákvæði þessi
nó bæði til rauðra og hvítra
Rússa.
Bætti hann því við, að sams-
konar afstaða yrði tekin gagn-
vart öðrum þjóðum, er eigi væru
tengdar Pilipps-eyjum neinurn
vinóttuböndum.
Harðrétti
Frankfurt — Þýzkir yfirmenn
matvæla, gerðu þá^ uppástungu
um síðustu helgi, að hitaefna-
skamturinn yrði færður, til i
bráðabirgða, úr 1,550 ofan í
1,130 hitaeiningar (calories) dag-
lega á hinum brezka og banda-
rísku hersetuliðs-svæðum. Fór
þetta fram, er sérfræðingar í
gildi og verðmæti fæðutegunda
héldu ráðstefnu til að reyna að
ráða fram úr hinum háskalega
matvælaskorti á Vestur-Þýzka-
landi.
Ef tillaga þessi nær samþykki
beggja herstjómar yfirvaldanna
gengur lækkunin i gildi 25. maí,
og varir um 4 vikna tímabil.