Heimskringla - 11.06.1947, Blaðsíða 1
We recommenð lox
your crpproval oui
"BUTTER-NUT
LOAF"
CANADA BREAD CO. LTD.
Winmpeg Phone 37 144
Frank Hannibal, Mgr.
We recommend íor
your approval our
//
BUTTER-NUT
LOAF"
CANADA BREAD CO. LTD.
Winnipeg Phone 37 144
_________Frank Hannibal, Mgr
LXI. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 11. JÚNÍ 1947
NÚMER 37.
Frá ísl. Sendiráðinu í Washington
Herra ritstjóri Heimskringlu:
3. júnlí, 1947
Vegna hins hörmulega flugslyss, sem átti sér stað á íslandi
nýlega hefir sendiráðinu borizt tvö svoh'ljóðandi símsikieyti frá
utanríkisráðuneytinu í Reykjaivík: ,
“Yngsta Dakotaflugvél Flugfélagsins fórst í Hestfjalli,
Héðinsfirði á fimmtudag með tuttugu og einn farþega og
fjögra manna áhöfn. Lagði af stað 11.25 til Akureyrar,
sást frá Siglufirði og hafði samband við Akureyrarstöð
um svipað leyti, klukkan 12.30. Hefir sennilega rekist á
fjallið skömmu síðar, á leið inn Eyjafjörð. Flakið sást
í morgun frá leitarflugvél, mikið brunnið. Ekkert merki
um líf. Ráðstafanir geyðar að nálgast það frá sjó.
Meðal tuttugu og eins farþega: Garðar alþingismaður
Þorsteinsson;. Þorgerður, systir Stefáns _ sendiherra;
Brynja Hlíðar lyfjafræðingur og hjónin Erna Tryggvi
Jóhannesson með tvö börn; auk þess eitt barn. Flug-
maður Kristján Kristinsson; aðstoðarflugmaður Georg
Thorberg Óskarsson; Íoftskeytamaður Ragnar Guð-
mundsson; þerna Sigríður Gunnlaugsdóttir.
Aðrir farþegar til Akureyrar: Guðlaug Einarsdóttir;
Saga Geirdal; Sigurrós Stefánsdóttir; Rannveig Kristj-
ánsdóttir; Júlíana Arnórsdóttir; Árni Jónsson; Þórður
Arnaldsson; Sigurrós Jónsdóttir; Stefán Sigurðsson deild-
arstjóri KEA; Gunnar Hallgrímsson, tannlæknir.
Húsvíkingar; María Jónsdóttir; Jens Barsnes, norskur;
Bryndís Sigurðardóttir, Reykjahlíð, Mývatnssveit og
Jóhann Guðjónsson, Eyrarbakka.”
Virðingarfyllst,
Thor Thors
15 FLJÚGA HEIM
Á MORGUN
Á morgun 12. júnií, kemur
flugskip Loftleiða hingað frá
New York og tekur 15 íslenzka
farþega — beina leið til Islands.
Farþegarnir eru þessir:
Asgeir Gudjöhnsen, kona og 3
börn, Jóihann Pálsson, stúdent;
Guðbjörg Sigurðson, Winnipeg;
Halldóra Peturson, Baldur, Man.
Miss Lára Johnson hjúkrk.
Miss Lovísa Sigurðson, hjúkr.k.
Miss Alma Lerví.; Kr. Thorsteins-
son; Miss Ása Jónsd.; Miss Sig-
ríður Westdal; Paul O. Einarson
Lundar.
Mótmæli járnbrauta-sam-
takanna .
Miklum mótmælum og um-
kvörtunum um aðgerðaleysi
stjórnarinnar í Canada, hefir
verið hreyft opinberiega yfir því
að Ludger Dionne, þingmanni
(Liberal) og eiganda klæðaverk-
smiðju í Quiebec, var ieyft að
flytja inn 100 póiskar stúlkur til
þeSs að vinna í verksmiðjunni;
er þetta talið þrælahald af
verstu tegund, “Virtuád slavery”
og hafa járnbrauta-samtökin,
Canadian Brotherhood of Rail-
way Employees, ákveðið að snúa
sér tafarlaust til stjórniarinnar
með þessar umkvartanir.
V öru verðlags-samanburður
Mörgum finnst, sem full von
«r til, vöruverð gífurlegt hér í
Canada á þessum tímum, eink-
um verð á nauðsynjavörum, sivo
sem matvælum, klæðnaði og því
um iíku.
Öllum er einnig meira og
minna kunnugt um, að verð
þeirra hluta er almenningur
þanf að sér að hafa, er enn þá
Ægilegra hinum rnegin landa-
mæranna, í Bandaríkjunum, en
svo er kaupgjald þar hærra, og
aðstæður allar næsta ólíkar.
Já, vöruverðhækkun hefir ver-
ið voðaleg á hinum slíðu'stu árum.
Canada hélt þó vöruiverðs-ieftir-
Hti, þegar Bandaríkin áfnámu
sín verðlags yfirráð og árangur-
inn varð vitanlega sá, samkvæmt
rannsóknum Canada verðlags-
rftirlits-nefndarinnar (W.P.T.B.)
að verðlagið er lægra en í U.S.A
Verð matvæla, og margra
annara nauðsynja hefir verið
rannsakað og borið saman i
Jnörgum nærliggjandi borgum,
báðum megin landamæranna,
°g hefir það sannast, að lifi-
brauðs-kostnáður í Bandaríkjun-
öm hefir hækkað 54.8% frá 1939
þessa dags. 1 Canadla hefir
Vöruverðið, á þessu sama tíma-
Hili, meðan eftirlit og verðtak-
tearkanir héldust, aðeins hækk-
að 30%.
Síðan V.J. Day, hefir hækkun-
inni verið haldið í 6%. Verð-
iags-samanburðurinn var gerð-
ur í Vaneouver og Seattle; —
Winnipeg og Minneapolis; Tor-
onto og Detroit og Clieveland;
Ottawa og Syracuse; Montreal
og Boston.
iSamanburður var aðeins gerð-
ur á þeim vörutegundum og
hlutum er nákvæmlega voru eins
að gerð og gæðum. Sömu verð-
álagninga-sérfnæðingarnir voru
við rannsóknirnar beggja megin
landamæranna.
Eins og áður er sagt, varð á-
rangur rannsóknanna sá, að verð
mativæla í Canada er sum voru
þá með ákvæðisverði, voru að
miklum mun lægra. Verð á fátn-
aði líkt, eða lægra, að undan-
teknum kvensokkum; húsgögn-
um og flestu þar að lútandi.
Ríkishagstofu-skrá Banda-
ríkjanna um kostnað hluta til
lífsviðurhal'ds, sýnir meðaltálið
100 frá 1935—1939, en sú talal
var komin upp í 133 í júná 1946. i
Með rýmkun, og síðan afnámi
OPA eftirlits var húm orðin
156 í marz, 1947.
Samanburður á smásöluverði
frá 14 — 24 apríl fylgir hér með:
Er vöruverð í Canada sýnt
fyrst, en verð í Bandaríkjunum
þar næst:
$ <1>
Mjólk, (Imp. Qt.) 13-16 20-22
Smjör 41-46 62-75
Egg (dúsin) 39-49 53-69
Brauð (24 únz) 7-10 15-18
Mjöl (24 pd.) 72-89 205-219
Sveskjur (pd.) _ 15-21 23-31
Ávaxtamauk(Jam) 26-29 45-73
Tómatós(28 únz kn.) 15-19 24-35
Kjöt (steik) ____ 41-49 50-79
Svínakt(Loin Pork) 39-45 49-69
Sápuduft _______ 24-26 34-39
Þar endar þessi verðjsaman-
burður.
Canada heldur í horfinu
Yfir höfuð er talið, að Canada
geri meira en halda þá samninga
er gerðir voru við Bretland, um
að byrgja það upp méð þeim
tegundum matvæla, er það nauð-
synlega þarfsast, þó birgðirnar
á sumum sviðum verði ekki eins
nægar, og vonast var eftir.
Til dæmis fylgja farmsiending-
ar hveitis, svínakjöts (bacon)
eggja, ávaxta, og sumra tegunda
garðmetis til Bretlands,. nokkurn
veginn áætlun, en skortur á
nautakjöti og osti gera það vatfa-
samt, hvort Canada getur staðið
að fu'llu við samningana.
Að þessu, hefir Canada sent
hér um bil 124,000,000 mæla af
hveiti, af þeim 160,000,000 miæl-
um er lofað var af hveiti yfir-
standandi árs uppskeru, sam-
ikvæmt fjögurra ára “Anglo-
Canadian hveiti-samningunum.
Vonast er eftir, að lokið verði
við að senda allan þann farm,
áður en uppskeruárið er liðið.
Með kjötsamningana, hvað
nautakjöt og svínakjöt snertir,
er alt miklu erfiðara og váfa-
samara.
Merkilegur fundur
Samfcvæmt útvarps frétt frá
Moskva, á beinagrind áf “Indri-
choterium”, er teljast á faðir
allra dýra, að hafa fundist í
sandlagi í Kazakhstan.
Skepna þessi á að hafa lifað
fyrir 60,000,000 árum sáðan, og
á það að hafa verið breytirigar-
stigs-tímabil milli skriðdýra og
spendýra. Beinagrind þessi er 21
fet á lengd, með þriggja feta
kjiálkuim. Sérstök léiðangurs-
nefnd á að fara til Kazakhstan á
þessu surnri, til þess að athuga,
hvort mögulegt er að færa beina-
grindina til, eða flytja hana.
Ef það verður gerlegt, Verður
hún flutt til Leningrad.
Ekkert fornmenjuSatfn hefir
nokkru sinni áður getað náð í
heila hauskúpu af Indrichoter-
ium, hvað þá heldur heila beina-
grind.
VIÐURKENNING
i
Próf. Skúli Johnson
Á ársfundi Humanities Re-
searoh Council of Canada í maí,
var próf, Skúli Johnson kosinn
í stjórnarnefnd félagsins til
tfjögra ára. Starf félagsins lýtur
að því, að efla og örva vihinda
iðkanir á sviðum klassiskra
«
bókmenta, eldri og nýrri, heim-
speki og sögu. í þessu skyni held-
ur stjórnarnefndin fundi tvisvar
á ári í Ottawa. Félagið hefir á
þessuvori gefið út bók um starf-
semi í Canada er að þessu lýtur.
Sameining Balkanslandanna
Frá Belgrade — Petru Groza,
forsætisráðherra Rómanáu, var
fagnað á járnbrautarstöðinni
síðástliðinn laugardag, er hann
kom þangað í þriggja daga vina-
heimsókn. Stjórnarráðuneyti
Jugóslavíu, og sendiherrar tóku
þátt í móttöku-viðhöfninni.
Stjórnarfulltrúa-nefnd frá Al-
baníu kom þangað síðastliðinn
föstudag.
1 fylgd með Groza forsætis-
ráðherra var utanríkismiála-ráð-
herra Gheorghe Tatarescu, og
haigfræðis og menntamálaráð-
herra.
The London Telegraph frétta-
blaðið segist svo frá, að mikil
áherzla sé lögð á, og mjög mikils
varðandi þyki ráðstefnur þessar
og heimsóknir, milli Rómaníu
og Jugósiovíu, en bætir því við,
að ekki sé þó víst að heimsókn-
irnar leiði til neinnar sameining-
ar Balkansríkjanna, þótt það
væri að mörgu leyti einkar æski-
legt.
Skifting Palestínu
Capetown, — Jan Christian
Smuts, forsætisráðherra Suður-
Afríku, hefir sagt ráðþinginu
þar, að eftir sinni skoðun og
sannifæringu, væri hin eina úr-
lausn Palesínu-málanna sú, að
farið væri 3,000 ár aftur í tím-
ann, og landinu skift eins og það
var á dögum ritningarinnar.
Kvað hann Palestínu aldrei
hafa verið að öllu leyti ríki Gyð-
inga; (Jewish State) á dögum
ritningarinnar hefði þvií verið
skift á milli Gyðinga og Filistea
(Philistines). Úrlausnin virtist
vera sú, að fara aftur á bak til
forntíðarinnar, hvað skiítingu
landsins snerti. ,
Gyðingum ætti að úthluta
þeim parti landsins, er þeir
hefðu rétt til samkvæmt verald-
arsögunni.
Kvað hann sama eiga að gflda
um Palestínu, eins og Indland,
en eins og kunnugt væru, hefðu
fcomið fram fullnáðartillögur að
skitfta því, samkvæmt fornum
lögum. Væri það hin eina úr-
lausn þessara mála.
Langlífar skepnur
Hvalir geta lifað 500 ár; Emir
200 ár; Krókódílar geta orðið
300 ára gamlir og Fíl'ar (ele-
phamts) 100 ára, eða meira.
Mr. og Mrs. Gunnar Matthíasson
Á LEIÐ TIL ÍSLANDS
Gunnar Matthíasson og kona
hans Guðný Matthíasson frá
Inglewood Cal. komu til bæjar-
ins í vikulbkin. Þau eru á leið til
íslands í boði vina þeirra heima.
Þau komu í bíl alla leið að vest-
an og halda áfram í honum til
New York og taka hann með sér
heim. Frá New York er gert ráð
fyrir að sigla með skipi 26. júní.
Hjónin gera ráð fyrir að dvelja
heima fram á haust, eg bætti
við fram á næsta vor. Gunnar er
sem kunnugt er, brennheitur
ættjarðar vinur og félst skjótt á
þá skoðun, að þeir, sem upp-
komnir færu að heiman, ættu í
eiginlegasta skilningi þar heima
en ekki annars staðar.
Námsmenn frá Islandi, sem
dvalið hafa í. Califoríu, hatfa
sagt heimili Gunnars og Guðnýj-
ar hafa staðið þeim opið, og þar
hefði margri tómlegri stund
námsmannanna íslenzku fjarri
öllum Siínum og landi oft verið
snúið upp í gleði og fagnaða
stund.
Gunnar kom að heiman fyr-
ir 38 árum. Etftir 10 ára dvöl hér
brá hann sér heim, en jafnvel
síðan er nú langt og eftirvænt-
ingin ekki minni að koma heim.
Hér stundaði hann lyfjasölu og
ýmSa aðra vinnu.
Gunnar, er sonur þjóðskáids-
ins Matthíasar Jockumssonar en
kona hans, Guðný, er dóittir
Árna Sveinssonar heitins í
Glemboro, Man. Þau eiga fjögur
uppkomin mannvænleg og ment-
uð börn.
Gunnar mun halda til sinna
fornu átthaga, Akureyrar, þessa
sólheims með angandi aldin-
garði og suðlægri hlýju norður
undir svalköldum heimsskauta-
baug.
Þarna hefir hann, að sjálf-
sögðu á fjarveru árunum ofí
dreymt sólroðnar hlíðar og borg
speglandi sig í “silfur-polli”
eins og faðir hans kvað. Heims-
kringla óskar Gunnari þess, að
dvöl hans á þessum fornu slóð-
um verði honum sem fagur
minninga og æskudraumur.
Flóð og manntjón
Einhvert hið versta flóð, er
komið hefir á hinum Síðari ár-
um, varð af völdum Mississippi-
árinnar síðastliðinn mánudag.
Geysimiklar rigningar hafðu
gengið fyrir og um síðustu helgi
er ollu því að áin braut alla vam-
argarða, er hlíft höfðu borgum
og bæjum nærri henni í Illinois
og Missouri fylkjunum. Varð alt
undan að láta hinurn ægilfega
vatnsgangi.
Að minnsta kosti 22 persónur
drukknuðu í Iowa, Missouri,
Feigðar-sendingar
í síðastliðinni viku, byrjuðu
að finnast nökkur grunsamtega
útlítandi bréf á aðal-pósthúsinu
í London á Englandi og víðar,
var utan á þau skrifað til margra
æðstu og mikilsmetnustu manna
Bretlands, svo sem eins og kon-
ungshjónanna, helztu stjórn-
mála-leiðtoga, Attlee, forsætis-
ráðherra, Winston Churchill og
íleiri og fleiri.
Reyndust brétf þessi hatfa inni
að halda banvænar sprengjur,
“bornbs”,, eða sprengjuefni. Um
20 bréf hafa fundist þessu liík.
Til leynilögreglu aðalstöðv-
anna “Scotland Yard” var auð-
vitað undireins leitað, og er hinn
mesti fjöldi leynilögreglumanna
þaðan að rannsaka hvaðan þess-
ar ægilegu feigðar-sendingar
komu. Er þess getið til að þetta
séu leynisamtök á móti Stjórn
Bretlands, og mörgu þar að lút-
andi^og'á bak við þau, samtök-
in, standi hinn svokallaði “Stern
Ohio og Oregon, og 5 manns
létu lifið, er hvirtfilvindar geys-
uðu í Pennsylvaníu og Ohio og
urðu því dauðsföllin er hlutust
af þessum slysum 27. Þá er og
talið að á að gizka 15 manns, sem
vitað er, hafi drukknað í Ott-
umwa, Iowa, þar sem 6,000
manns varð að flýja heimili sín
þegar Des Moines- áin óx svo
mikið, að hún gekk berserks-
gang, og flæddi um nálæg héruð.
ÚR ÖLLUM ÁTTUM
Vittorio Mussolini, einn af
sonur Benito Mussolinis, er í
Buenos Aires í Argentínu. Var
þetta staðtfest af argentínsku
lögreglunni og var skýrt svo frá
að honum mundi verða teytft að
dvelja í landinu, en hann mundi
verða látinn greiða sekt fyrir að
komast ólöglega inn í landið.
•
Eftirfarandi frétt birtist í Vísi
13 maí: Svía konungur sæmdi
hinn 22. apríl s. 1. prófessór Ein-
ar Jónsson, myndhöggvara heið-
urspeningi, Eugens prins, fyrir
framúrskarandi listastarf. Sendi-
herra íslands í Stokkhólmi veitti
heiðurspeningnum móttöku fyr-
ir hönd myndhöggvarans í mið*
degisveizlu hjá Eugen prins.
Gang”, uppreisnarflokkur með-
al Gyðinga í Patestínu. Á þessi
leynistofnun að hafa svarið þess
eið, að hefna sín grimmilega á
æðstu leiðtogum Bretlands, er
þeir, (Gyðingar) telja að beri
alla ábyrgð á því, að ekki hefir
skipast betur til með vandræða-
mál Palestínu.
Hefir heyrst frá Tel-Aviv, eft-
ir forsprökkum leynisamtak-
anna, að skeytasendingar þes'sar
kæmu frá félags-deild “Fighters
for Freedom of Israel”, er ætti
heima í Evrópu.
í öllu falli hafa sumt brófa
þessara verið send frá ítaiíu.
Miklum óhug hefir slegið á
brez-ku þjóðina, við þessar dráps-
sendingar, en ekki á að hafa
orðið slys að þeim ennþá, þegar
þetta er skrifað. Sterkur leyni-jaf 50 hvölum. Þetta kemur sér
lögreglu-vörður er hafður um sérstaklega vel fyrir Breta nú
.Nýtega kvað komið til Eng-
lands brezkt hvalveiðaskip, sem
hefir verið á veiðum í 6 mánuði.
Skipið kom með lýsi úr 2500
hvölum og auk þess fryst kjöt
konungsfólkið og fleiri, er send-
ingar þessar hafa fengið.
þar sem skortur er þar mikill á
allri feitmetisvöru.