Heimskringla - 11.06.1947, Qupperneq 5
WINNIPEG, 11. JÚNl 1947
HEIMSKRINGLA
5. SIÐA
HUGSAÐ HEIM
(Gefið í Heklusjóð)
1 bréfi frá Jóni S. Laxdal,
Garðar, N. D. segir: “Eg er að
hugsa heim og vil sýna ofurlít-
inn lit á því, sem aðrir. Þessi
sjóður má ekki verða oklkur til
mínkunnar, og þjóðrækni okkar
ekki eintóm fögur orð án hjart-
státtar.
Eg veit að hún Hekla er varg-
ur og voðal'eg er henni sinnast.
Þá má og sonnurinn margur,
meiðslum og sórsauka kynnast.
í sjóðinn hafa borist þessa
viku tillög frá þessum:
John S. Laxdal Gardar,
N. D. ___________-____ $10.00
Mr. og Mhs. Eiríkur H. Sigurð-
son 575 Ágnes St. Wpg. $10.00
Fná íslandsvinum ------- $6.00
Jón Joihannesson, Elfros Sask.,
_________________________$5.00
Samtals .1------------ $31.00
Áður auglýst -------- $176.00
Nú alls _____________ $207.00
Brýrnar tvær
G. O. Einarsson. Er hann vel
þektur af kvæðum er oft hafa
birslt eftir hann í íslenzku blöð-
unum og hér í norður hluta Ný-
íslandi sem stór þátttakandi í
flestum okkar félagsmálum.
Söngflokki hátíðarinnar —
stjórniar Jóhannes Pálsson með
aðstoð systur sinnar Lilju Mart-
in. Mun söngurinn ekki verða
veigaminsti þáttur hátíðarinnar
fremur en að undanförnu.
Þá hef eg að nokkru, minnst
þess helstu er fram á að fara á
Iðavelli 21. júnií, 1947 og vona
að það verði ykkur bvöt til að
korna og skemta ykkur. Um
veðrið hefir nefndin ekki fengið
ákveðið loforð, en liggur á bæn-
um að það verði Skýnandi bjart.
Fyrir hönd nefndarinnar
T. Böðvarsson, (ritari)
HELZTU FRÉTTIR
Athugasemd Gandhis
Mohandas K. Gandhi, hinn
aldrurhnigni leiðtogi Indlands,
hefir ekki gefið mikið út á það,
hvernig honum falli ráðagerðin
um skiftingu ríkjanna á Ind-
lartdi, er yfir hefir verið lýst.
Nýlega á hann þó að hafa
komist svo að orði, að ef Hind-
ustan og Moslemríkin gætu ekki
komið sér saman um neitt ann-
að, þá væri ekki úr miklu að
velja fyrir vísikonunginn.
Rússar ræða skuldir sínar
við Bandaríkin
fyrir árásir á Bretauson)9baésp
þóf, samþykkt að senda nefnd
til Bandaríkjanna til þess að
semja um skuldir þær, er þeir
stofnuðu til á stríðsárunum, en
þá lánuðu Bandaríkamenn þeim
11 þúsund milljónir dollara.
Það er ekki talið líklegt, að
Rússar treysti sér til að greiða
þessa skuld alla, en Bandaríkja-
mienn hafa ítrekað kröfur sínar
itm að málið verði rætt. Skuldir
Sóvétríkjanna við Bandaríkin
nema einum milljarð meira en
Bins og kunnugt er, halda Vestur-lslendingar úti tveim vikublöð-
um, Lögbergi og Heimskringlu. En þeir gefa líka út blað á ensku, sem
heitir “The Icelandic Canadian”. Það er sérstaklega ætlað því fólki,
sem er af íslenzku bergi brotið, en er ekki svo vel að sér í íslenzku,
að það hafi fullt gagn af íslenzku lesmáli, og tilgangur blaðsins er
að glæða hjá því fólki skilning á islenzkri menningu og löngun til að
leggja rækt við íslenzka þjóðernisarfinn. Einn þeirra manna er að
því blaði standa, er hinn góðkunni dómari Walter J. Líndal i Winni-
peg, maður prýðilega menntaður, þjóðrækinn og mikils metinn. Hon-
um er mjög annt um það, að sem best kynni geti tekist með ungu
fólki beggja vegna hafsins. I því skyni hefur hann ritað grein þá, er
hér fer á eftir, og er vonandi að henni verði góður gaumur gefinn, þvi
að hér er um mjög þýðingarmikið mál að ræða. —Lesbók Mbl. 1. júní
Fyrir rúmum sjötíu árum lögðu hópar af íslendingum af stað
yfir Atlants-hafið til Norður-Ameríku. Þeir stofnuðu nýlendur
víða og var aðal nýlendan við ströndina á Winnipeg-vatni. Hún var
kölluð Nýja ísland og hefir nafnið haldizt við til þessa dags. í
þessari nýlendu myndaðist íslenzkur félagsskapur, stjórnarfyrir-
komulag var stofnsett sem var miklu fullkomnara en venjulegar
sveitarstjórnir, og innan skamms var gefið út íslenzkt blað. Allt
fór fram á íslenzku, sem er auðskilið, þar sem fólkið var nýkomið
frá Islandi.
Á þessu stutta tímabili — rúmum mannsaldri — hefur mikil
breyting átt sér stað. Víðast hvar, einkum í borgunum, er enskan
daglega málið; á flestum fundum fer allt fram á ensku; í kirkjun-
um er messað bæði á íslenzku og ensku. Nýjar kynslóðir hafa fæðst
og vaxið upp og aðrar dáið og hefur það valdið miklum umskiftum.
En það sem meir en nokkuð annað flýtir fyrir þessari breytingu
og gerir varanlegt viðnám ómögulegt, eru giftingarnar. Prestar
segja að blandaðar hjónavígslur — þar sem annaðhvort hjónanna
er ekki íslenzkt — sé miklu fleiri en hinar, í borgunum fjórar af
hverjum fimm, í íslenzku byggðunum að minnsta kosti helming-
urinn. Að börn þessara hjónabanda læri íslenzku er sú fádæma
undantekning að naumast þarf að taka hana til greina.
Á síðasta ársþingi Þjóðræknisfélagsins í Vesturheimi var eg
staddur. Einn kunningi minn og eg lítum yfir hópinn mjög ná-
kvæmlega í því skyni að reyna að komast að meðal aldri þeirra er
sátu þingið. Við vorum sammála um að hann væri ekki lægri en
sextíu ár.
Þegar íslenzkir merkismenn koma til Winnipeg og halda hér
ræður er oftast húsfyllir. Margir af þeim sem þangað koma, kunna
lítið í íslenzku, einstaka alls ekkert. Alla langar til að vera við-
staddir, þó ékki væri meira en að taka í hendina á gesti frá gamla
föðurlandinu.
Þess ber einnig að gæta að yngra fólkið, engu síður en það
eldra, næstum undantekningarlaust hikár ekki við að láta hérlent
fólk vita að það sé af íslenzku bergi brotið. Margur borgari þessa
lands, sem er íslenzkur aðeins í aðra ætt eða minna, hefur meiri
mætur á sínum íslenzka ættstofni en hinum. Að því leyti er hann
mjög líkur Skotum í þessu landi.
Menntafólk meðal yngri kynslóðanna, eða jafnv.el allir þeir
sem hugsa alvarlega og lesa fræðandi bækur, grípa tækifærið, ef
þess gefst kostur, að kynna sér sögu íslendinga bæði austan hafs og
vestan. Þýðingar úr íslenzkum bókmenntum, fornum og nýjum, eru
lesnar, en þær eru af skornum skamti og væri nauðsynlegt að fá
umbót á því.
Þjóðernistilfinningin þarf ekki að eyðileggjast þótt ætt-blóðið
þynnist. Canada og Bandaríkja borgurum af íslenzkum ættum
þykir vænt um þjóðina litlu úti á eyjunni í Atlantshafinu. En fróð-
leikur þeirra um ísland og íslendinga er að miklu leyti byggður á
afspurn og því alls ekki fullnægjandi og stundum ekki áreiðan-
legur.
★ ★ ★-
Nú hef eg bent á sumar staðreyndirnar eins og þær koma okkur
fyrir augu hér vestra. Þær eru að sumu leyti ekki hughrey^tandi
en samt er hægt að finna í þelm framtíðarvon. Þær knýja menn til
alvarlegra hugsana og kref jast þess að hlynt sé að því sem hægt er
að varðveita.
Tungan er að hverfa sem daglegt mál en ættar- og þjóðræknis-
tillfinningin er enn sterk. Hér virðast vera andstæður sem sumir
álíta að ómögulegt sé að samræma. En samt verður að gera það.
Ekki bætir úr að æðrast þótt ekki sé allt eins og maður hefði ákosið.
Enn þá síður má láta skeika að sköpuðu og leggja árar í bát.
Fyrsta sporið er að greiða svo fyrir að, æskulýðnum í þessari
álfu gefist tækifæri að kynnast stofnþjóðinni betur. Ef það
heppnast liggur næsta sporið við, að opna dyrnar að fjársjóðum
þeim sem íslenzk menning hefur að geyma. Þótt það væri æskilegt
þá þarf lykillinn samt ekki nauðsynlega að vera úr hreinum íslenzk-
um málmi.
Aðra mál-mynd mætti nota. Það þarf að brúa hafið svo allir
hafi not af og til þess þurfa brýrnar að vera tvær. Önnur er nú
þegar til og er margra ára gömul. Hún er úr há-íslenzkum viðum,
er enn sterk og mun haldast við að minnsta kosti um tíma, ef til
vill marga mannsaldra. Eldra fólkið, jafnvel það sem fætt er hér
og uppalið, les og talar íslenzku, hefur í mörgum tilfellum ótrúlega
igóða þekkingu á sögu og bókmenntum íslendinga. Þjóðræknisfé-
lagið nær til þessa fólks, heldur við minningum ög styrkir böndin
við ættlandið og er þar þörfu starfi afkastað.
, Næst er að hefjast handa og byggja hina brúna. Efnin í hana
verða að vera tvenn. íslenzka þjóðin þarf að kynnast yngri kyn-
slóðunum hér sem lítið eða ekkert kunna í íslenzku, fólki sem ann
Bjartsýni
Dr. John Mott, (amerískur) er
vann Nobels friðar-verðlaunin
á árinu 1946, lét svo um maelt
í Berlin nýlega, að hann hefði
aldrei séð eins mikla ástæðu til
að vera bjartsýnn, eins og ein-
mitt nú á tímum.
Aldrei hiefðu verið eins miki-
it framfaramöguleikar fyrir
hendi, heimsinum til blessunar.
Dr. Mott er forseti Y.M.C.A.
alheims-samtakanna.
Ekki örugg enn
Talið er, að stærstu skipin,
er notuð voru við Atom-rann-
sóknar tilraunimar á Bikini fyr-
ir 10 mánuðum siðan, séu ekki
örrug til notkunar enn, sökum
“radio”-áhrifa.
ÞJóÐRÆKN ISSTARF
meðal ungra V.-íslendinga
Á meðal Vestur-íslendinga
eru allmargir áhugamenn sem
láta sér ant um það, að sú kyn-
slóð sem er að allast þar upp nú
og kann lítið í íslenzku, fái
þessu landi, föðurlandi sínu, en samt hefur ekki gleymt stofnþjóð- i nokkra fræðslu um Island og ís-
lenzkt þjóðlíf. í því skyni hafa
ínm.
Einnig þarf þetta fólk, sem er meira og minna blandað
öðrum þjóðflokkum, að kynnast gamla ættlandinu og kvnþjóðinni
þar. Móðurmál heimaþjóðarinnar er íslenzkan; móðurmál okkar
hér vestra, eða málið sem okkur er tamast, og sem við verðum að
grípa til ef við eigum að gefa hugsunum okkar full skil, er enskan.
Það verður að nota báðar tungurnar. Með því móti getur nýja
brúin orðið að tilætluðum notum.
Menn hafa oft hugsað um þetta og hafa ýmsar hugmyndir verið
ræddar og á nú að reyna að koma einni þeirra í framkvæmd. Hún
er sú, að menn hér, sérstaklega meðal hinna yngri, skrifi greinar á
því máli sem þeim fellur bezt, og láti í ljósi afdráttarlaust tilfinn-
ingar sínar og sannfæringu varðant|i þessi mál, og eiga þær greinar
að koma út í blöðum og tímaritum á íslandi. Búist er við að sumir
þeirra, sem þetta verk er falið á hendur, sé ekki nema að parti af
íslenzkum ættum og ef til vill kunni ekkert í íslenzkri tungu. Svo
er vonast eftir að íslendingar austan hafs riti greinar sem aðallega
eiga að ná til yngri kynslóðanna hér og munu þær koma út á ensku
í tímariti okkar sem nefnist; The Icelandic Canadian.
Fyrsta greinin frá Islandi, rituð af séra Friðrik Hallgrímssyni
kom út í vor-hefti þessa árs og þetta er fyrsta greinin að vestan.
Vonandi er að þessari hugmynd verði vel tekið og að hún fái
byr undir vængi beggja megin hafsins. Hún er aðeins dálítil byrjun,
en, að mér finnst, byrjun í þá einu átt sem hægt er að stefna, ef
ætlunin er að ná til yngra fólksins. Ef þetta misheppnast og ekkert
innað er fengið í staðinn, hlýtur að koma að því fyrr eða síðar að
sá hópurinn meðal okkar, sem fer sí-stækkandi, muni hverfa algjör-
lega inn í þjóðarstraumana hér og tapast heimaþjóðinni.
W. J. Lindal
allar stríðssikaðabætur, er þeir
hafa krafizt af Þjóðverjum.
Bandaríkin hafa þráfaldlega
reynt að fá Sóvétríkin til þess að
taka málið til athugunar, og hafa
Sóvétríkin látið allar slíkar
kröfur sem vind um eyrun þjóta,
þar til nú.
Örlagasvæði Hitlers
Því er haldið fram, sam-
kvæmt stríðsleyniskj ölum, er
uppgötvuð hafa verið nýlega á
Þýzkalandi, og birt almenningi,
að Hitler hafi látið allar áætl-
anir um árásir á Bretland í febr-
úar, 1942, farast fyrir, vegna
þess að hann gekk með þá grillu
í höfðinu, að Noregur væri hið
fyrirfram ákvarðaða land, er
Sambandsþjóðimar ætluðu að
hefðja árásir á Þýzkaland frá og
þar af leiðandi stafaði mesta
hættan þaðan.
Einnig gerði hann áætlanir
um það, þegar Japanar náðu
yfirráðum á Ceylon, að þeir
When You Build . . .
remember to install
CITY HYDRO
Electric Service
, 0
for a dependablet low~cost
supply of electricity
CITY HYDRO 848 124
Dr. Richard Beck fimmtíu ára
9. júní 1947
Þjóð vor hyllir þig og sendir
Þökk frá innstu hjarfarót.
Norðurlanda frægð og fræði
fága Jáfs þins tímamót.
Manndáð, vilji, mennt og göfgi
merkið prýddi allia leið.
Nú frá heiðum himni ljómar
hádags sól þitt fagra skeið.
Starf þitt ást og virðing vakti
vítt um heimsins mennta 9við.
Sál þín glögg í sögu og kvæði,
sýndi vinar-þel og lið.
Heill og djarfur, hreinn og prúður
hátt við lífsins skyldu kall.
Ei var þitt um hæl að hopa,
hetjublóð í taugutm sval'l.
»
Enn er tíð með táp og fjöri
til að lyfta andans sjón,
vígja traustu vinabandi
Viínlands byggð og móðurfrón.
Hröð þó liggi leið að hausti,
langt er enn til hinsta dags.
Lengi geymist sólrík saga,
samúð þín til bræðralags.
Ný undirstaða lögð
Byrjað hefir verið að leggja
undir nýja neðri deild þinghúss-
ins mikla í London, er nálega
eyðiLagðist í loftárusum í sáðásta
stríði. Skal sú bygging reist á
hinni görnlu lóð í “Palace of
Westminster”
Þrjú ár er gert ráð fyrir að
taki til að endurreiSa bygging-
una, og á hún að vera útbúin
með hinum allra nýjustu tækj-
um er nú þekkist, lofíthreinsunar
útbúnaði og fullkomnustu hljóð-
aukakerfum.
Sjónvarp
Langt er síðan mögulegt var
að tengja fjársýnisáhöld, “tel-
evision” við talsímann, svo. að
sá sem talar gæti séð þann sem
við er talað, eða þeir hvor annan
en útbúningur sá er enn talinn
of dýr til almennrar notkunar.
M. Markússon
skyldu nota þann stað fyrir árás-
ir Breta á Indlands-hafinu, til
þess að gera sjóher Hitlers
hægra fyrir að ná haldi á her-
stöðvum í Miðjarðar hafinu
En allar þessar háfleygu ?
margútreiknuðu áætlanir fóru
út um þúfur.
Dánarbú Roosevelts
Poughkeepsie,N.Y. — Hinn
nýlega látni forseti Bandaríkj-
anna, Franklin D. Rossevelt, lét
eftir sig eignir, er nema
$2,111,673.26.
Kom þetta fram, er erfða-
skjölin komu upp fyrir rettinn
í Dutchess County til birtingar,
síðastliðinn föstudag.
Erfðaskjölin sýndu, að við
hinar upprunalegu eignir hafði
bætzt $994,155.19 frá móður
hans, Mrs. Sarah Delano Roos-
evelt, og aukning höfuðstólsins
sennilega frá “stocks and bonds”
$167,787.40.
íþeir stofnað félag í Winnipeg,
sem nefnist The Icelandic Can-
adian Club of Winnipeg. Það fé-
lag heldur allöft fundi til
fræðslu og skemmtunar og auk
þess gefur það út blað á ensku
er nefnist The Icelandic Cana-
dian, og kemur út á hverjum
ársfjórðungi.
í síðasta hefti þess blaðs er at-
hyglisverð grein eftir Walter J.
Líndal, dómara í Winnipeg, sem
lætur sér mjög ant um að unga
kynslóðin vestur-íslenzka glati
ekki tengslum við íslenzkt þjóð-
erni og menningu. 1 sama hefti
birtist grein um samstarf Islénd-
inga austan hafs og vestan eftir
séra Friðrik Hallgrísson, og
munu fleiri greinar héðan að
heiman birtast í blaðinu á næst-
unni.
1 lesbók Morgunblaðsins mun
næstkomandi sunnudag birtast
grein eftir Líndal dómara/ er
'hann ritaði í fyrsta hefti þessa
árangs Icelandic Canadian grein
sem að efninu til er erindi er
hann flutti í íslenzka kvöldskól-
anum í Winnipeg um mentamál
á Islandi.
Morgunblaðið telur það vei
farið ef almenningur hér. á landi
gæfi gaum að þessu máli, því að
svo miargir íslendingar hafa orð-
ið þjóð sinni til sóma vestan hafs
að hún ætti að gleðjast af því og
meta það að verðleikum.
Þjóðræknisfélag Islendinga
vill greiða fyrir útbreiðslu blaðs-
ins The Icelandic Canadian hér
heima. Það kostar hér 8 krónur
árgangurinn, en 18 krónur 3 ár-
gangar greiddir fyrirfram. Þeir
sem vilja gjörast áskrifendur,
geta snúið sér til skrifstofu fé-
lagsins í Þjóðleikhúsinu (geng-
ið inn frá Lindar götu), sem
verður opin fyrsit um sinn á
mánudögum og fimtudögum kl.
10 12 árd. —Mbl. 15. maí
“Svo að konan þín er farín tl.
Palim Beaoh sér til heilsubótar.
Hvaða sjúkdóm hafði hún?”
“Hún hafði $500, sem faðir
hennar haffði geffið henni”..
THE FOLLOWING DOCTORS WISH TO ANNOUNCE
THEY ARE NOW ASSOCIATED WITH THE
KOBRINSKY CLINIC
216 KENNEDY STREET — WINNIPEG
Solomon Kobrinsky, M.D.,
Maternity and Diseases of Women
Louis Kobrinsky, M.D., F.R.C.S., (Edin.)
General Surgery
Sidney Kobrinsky, M.D., Internal Medicine
M. Tubber líobrinsky, M.D., Physician & Surgeon
Sam Kobrinsky, M.D., Rhysician & Surgeon
Bella Kowalson, M.D., Physician & Surgeon
Samuel Rusen, M.D., Physician & Surgeon
Telephone 96 391
if no answer, call Doctors’ Directory 72 151