Heimskringla - 06.10.1948, Side 3
WINNIPEG, 6. OKT. 1948
HEIMSKRINGLA
3. SÍÐA
Eg sný aldrei aftur til gamla landsins
Þetta NYJA Ger
VINNUR HRATT! - HELDUR FERSKLEIKA!
Þarfnast engrar kælingar
Nú getið þér bakað í flýti án fersks gers. Takið pakka af Fleisch-
mann’s Royal Fast Rising Dry Yeast af búrhillunni og notið það
á sama hátt og köku af fersku geri. Þér fáið sömu fljótu
hefinguna. Þér fáið bezta árangur í öllum yðar bakningum.
Fáið yður mánaðar forða af þessu ágœta, nýja geri. Notið það i
nœsta bakstur af brauðum og brauðsnúðum. Þér verðið hrifin.
Þér munuð aldrei kvíða oftar viðvíkjandi því að halda ferska
gerinu frá skemdum. Þér munuð ávalt nota Fleischmann’s Royal
Fast Rising Dry Yeast. Pantið það frá kaupmanninum yðar, í dag.
1 pakki jafngildir I köku af Fresh Yeast
K)RT
iodatf’s
•\ BtGGEST
Coffee
Verfae
o**1
.tSjrSbeu
F«
at HO»'J'oee^
Lydia Makarova flýði 15 ára
frá Rússlandi til Svíþjóðar. Nú
krefjast rússnesku yfirvöldin
þess, að hún hverfi aftur, til
Rússlands. Og aðferðir Rúss-
anna minna á mál Kasenkinu
kenslukonu í New York.
Lydia Marcelle Makarova,
rússneska stúlkan í Svíþjóð,
sem Rússar hafa margreynt að
fá til að snúa aftur heim til Ráð-
stjórnarríkjanna, hefur sagt í
viðtali við blaðamann, að hún
muni aldrei hverfa af frjálsum
vilja til einræðisríkis Stalins. —
Hún er staðráðin í að dvelja á-
fram í Svíþjóð, og enda þótt hún
hafi huga á að ferðast og leggja
stund á píanóleik erlendis — og
þá sérstaklega í París — er ó-
líklegt að hún geri það á næst-
unni, af ótta við sömu mennina,
sem jafnvel hafa sýnt sig líklega
til að nema hana á brott og flytja
hana nauðuga til Rússlands. Svo
ásælir hafa þessir menn verið,
að sænska utanríkisráðuneytið
hefur séð ástæðu til að skipa
rússneska sendiráðinu í Stokk-
hólmi að látá Lydiu afskifta-
lausa.
Lydia Makarova er nítján ára
gömul. Hún er lagleg og frjáls-
mannleg í framkomu og gædd
góðum hljómlistargáfum, vel
gefin ung stúlka, sem hlær oft
og lætur sig dreyma um að verða
frægúr píanóleikari. Hún flúði
frá Eystrasaltslöndum þegar
hún var 15 ára gömul, komst til
Svíþjóðar og bað þar um land-
vistarleyfi. Hún kunni ekkert í
málinu, þekkti engan. En hún
var dugleg og hugrökk og stað-
ráðin í að komast áfram — og nú
er hún hrædd.
—Já, eg er hrædd, sagði Lydia
þegar fréttamaður frá Dagens
Nyheter ræddi við hana í síðast-
liðnum mánuði. Eg hélt að nú
mundi eg fá að vera í friði. Eg
kann mjög vel við mig í Svíþjóð
eg er búin að læra málið og lít
ekki á mig sem útlending. . . Eg
sný aldrei til baka til gamla
landsins.
— Að Rússarnir skuli ekki
geta skilið þetta, heldur hún á-
fram. Þetta er allt svo ónauðsyn-
legt. Eg hefi sagt Tchernychev
(sendiherra Rússa í Stokkhólmi)
að eg ætli að vera hér áfram og
að þýðingarlaust sé að reyna að
fá mig til að breyta ákvörðun
minni. — En þeir vilja víst ekki
skilja þetta.
Lydia ræddi fyrst við Tcher-
nychev sendiherra fyrir tveimur
árum síðan. Einn af starfsmönn-
um sendisveitarinnar hafði beð-
ið hana að heimsækja sendiherr-
an eða tala við hann í síma. Hún
tók síðari kostin og átti langt
samtal við hann.
Tchernychev skýrði henni frá
því, að hann væri með bréf til
hennar frá föður hennar í Rúss-
landi. Gerið mér þá þann greiða
að senda mér það í þósti, svar-
aði Lydia.
sendiherran. Faðir yðar tekur
skýrt fram í bréfinu, að það eigi
að afhentast hér á sendiráðinu.
— En þér hafið þá lesið bréf-
ið, svaraði Lydia.
Tchernychev varð hvumsa, en
áttaði sig þó fljótlega. Hann
skýrði Lydíu frá því, að hann
hefði raunar fengið tvö bréf frá
föður hennar, annað til sín sjálfs
hitt til dótturinnar.
En Lydia færðist undan að
heimsækja sendiherrann. í við-
tali við fréttamann Dagens Ny-
heter orðar hún þetta á eftirfar-
andi hátt:
— Hversvegna bera þeir svona
mikla umhyggju fyrir mér? Eg
skil það ekki. Þeir segja, að
pabbi vilji fá mig heim, og því
gæti eg auðvitað trúað. En mér
er ómögulegt að skilja hvers
vegna pabbi skrifar ekki beint til
mín. Hvers vegna skyldi hann
óska eftir því, að eg fari upp á
sendiráð? Það er það, sem eg
hræðist, og það er það, sem vak-
ið hefur tortryggni mína. Það
getur varla verið af eintómri um-
hyggju fyrir föður mínum að
sendiráðið er svona áfjáð að ná
í mig.
En hversu mikið Rússar vilja
leggja í sölurnar til þess að
handsama Lydíu fór að verða
augljóst fyrstu dagana í ágúst-
mánuði. Þann 5. ágúst kom einn
af fulltrúum rússnesku sendi-
sveitarinnar út til sumarhússins
sem Lydia býr í skamt frá
Stokkhólmi. Margt þykir nú
benda til þess, að sendisveitar-
fulltrúinn, en hann heitir Vladi-
mir Petropavlevskij, hafi ætlað
að nema flóttastúlkuna á brott
með aðstoð tveggja félaga sinna.
Sænsku blöðin segja þannig:
Þriðjudaginn 5. ágúst kom
rússneskur sendiráðsstarfsmaður
sem síðar kom í ljós að var Vladi
mir Petropavlovskij, til sumar-
hússins fyrir utan Stokkhlóm.
Hann gekk rakleitt inn í húsið,
án þess fyrst að gera vart við
sig. Húsmóðirin var af tilviljun
stödd úti á svölum. Hún spurði
Rússann hvað hann vildi, og
fékk það svar, að hann óskaði
eftir að ná tali af stúlkunni. —
Konan heyrði á máli hans, að
hann var rússneskdr, og spurði
hvað hann vildi henni. Hann var
með bréf, svaraði Rússinn, frá
föður hennar.
— Eg skal fara upp og spyrja
Lydíu, hvort hún vilji tala við
yður, svaraði konan.
Lydia neitaði að koma niður.
Hún vildi alls ekki tala við sendi
sveitarfulltrúann og húsmóðir
hennar tjáði honum það.
En þegar Petravlovskij fékk
þetta svar, gerði hann sig líkleg-
an til að ryðjast fram hjá henni
og upp stigann upp á aðra hæð,
þar sem hann vissi að Lydia var.
Þegar hér var komið skeði eft-
irfarandi, og er enn stuðst við
frásögn “Dagens Nyheter” og
fréttamannsins, sem bæði hefur
rætt við Lydiu og hina sænsku
húsmóðir hennar:
Þegar Rússum tókst ekki að
homast framhjá frúnni og upp
stigann, lysti hann því yfir, að
hann mundi bíða þar sem hann
var kominn, þar til Lydia kæmi
niður og talaði við hann. Frúin
bauðst til að afhenda stúlkunni
bréf föður hennar. Rússinn hafn
aði boðinu og sagðist hafa feng-
ið ströng fyrirmæli um að af-
henda bréfið sjálfur.
Frúin svaraði því til, að þar
sem stúlkan vildi ekki tala við
hann og taka á móti bréfum frá
honum, væri ef til vill best að
hann færi og sendi síðan bréfið
í pósti. Rússinn neitaði. Frúin
benti honum þá á, að hann væri
staddur í einkahúsi sænsks borg-
ara.
Rússinn svaraði: Eg get borg-
að fyrir að sitja hér.
Þar sem konan treysti sér ekki
ein til þess að losna við komu-
manninn, kallaði hún á garð-
yrkjumann, sem var að vinna við
húsið, og bað hann að gera Rúss-
anurn ljóst, að ekki væri óskað
eftir nærveru hans. Garðyrkju-
manninum tókst um síðir að
koma sendisveitarfulltrúanum út
úr húsinu og af lóðinni, en þar
nam sá rússneski staðar og lýsti
því yfir að honum yrði ekki þok-
að þaðan fyr en hann fengi að
tala við stúlkuna.
En hér lauk þessu þó í þetta
skipti. Sænskan liðsforingja,
sem konan þekti, bar af hend-
ingu þarna að, og er hún fór
fram á hjálp hans, fél'lst Petro-
pavlovskij loks á að fara. Hann
steig upp í rússneska sendisveit-
arbílinn og ók af stað, og á eftir
honum fór önnur bifreið, sem
numið hafði staðar skammt frá
húsinu um fimm mínútum eftir
að sendiráðsfulltrúinn kom þang
að. Vegfarendur skýra frá því,
að fólkið í bíl þessum, karlmað-
ur og kona, hafi farið út úr bíln-
um og talað lengi við bílstjóra
sendisveitarbifreiðarinnar, með-
an Petropavlovskij var að reyna
að ná fundi Lydiu. Fjölskyldan,
sem rússneska stúlkan býr hjá,
og raunar fleiri, eru því þeirrar
skoðunar, að Lydia hafi átt að
nema á brott. Æltun var sýnilega
sú að láta Petropovlovskij tæla
stúlkuna út úr húsinu, en mann-
inn og konuna taka hana að því
loknu á brott með sér. Sjálfur
gat hann svo fylgt á eftir þeim
í sendisveitarbílnum, einn ásamt
1. sept., þegar utanríkisráðhr.,
Frakka afhenti Trygve Lie, aðal-
ritara Sam. þjóð., lykil úr gulli,
táknar það, að 11 ekrur lands í
vesturhluta Parísar verða ríki S.,
þjóðanna, einskonar ríki í Frakk-
landi.
Frá þeirri stundu og allt þar
til allsherjarþinginu (sem hófst
21. sept.) er lokið, mun franska
stjórnin ekkert framkvæmdar-
vald hafa yfir þessum hluta Par-
ísarborgar. — Jafnvel Parísar-
lögreglan hefur ekkert vald í S.,
Þ.-ríkinu.
Sérstakir landamæraverðir
munu hafðir á landamærunum til
þess að fara inn fyrir þarf sér-
stök vegabréf.
★
íbúatalan lík og í íslenzkum
kaupstað
í S. Þ.-ríkinu verða 4,200 íbú-
ar, sem samanstanda af 1,500 full-
trúum 1,500 starfsmönnum og
1,200 blaðamönnum. Auk þess
verður hægt að taka við 800 gest-
um í einu.
Þetta smáríki, sem verður
stofnað í Chaillot höllinni á
bökkum Signufljóts, á að hafa
sína eigin lögreglu, landamæra-
verði, brunalið, loftvarnarlið.
banka, pósthús, símstöð, útvarps-
stöð og þrjú veitingahús, þar sem
5,000 gestir geta borðað daglega.
★
Allar heimsins sígarettutegundir
Þarna verða líka ölstofur og
söluturnar, þar sem allar síga-
rettu tegundir frá hinum ýmsu
bílstjóra sínum, eins og hapn
hafði komið.
Önnur tilraun Rússanna til að
ná Lydju á sitt vald var gerð 11.
ágúst. Ííágranni fjölskyldunnar,
sem stúlkan býr hjá, hringdi og
skýrði frá því, að sendisveitar-
bíllinn væri aftur á leiðinni.. —
Lydia varð ofsahrædd og faldi
sig, en þegar bifreiðin nam stað-
ar við húsið, stigu út úr henni
tveir Rússar og sænskur lögreglu
þjónn. Húsmóðirin hélt enn fast
á rétti sínum og Lydiu. Hún
hleypti að vísu lögregluþjónin-
um inn í húsið en neitaði að taka
á móti Rússunum. Annar þeirra
var Petropavlovskij sendiráðs-
fulltrúi.
Lögregluþjónninn kvaðst vera
með áðurnefnt bréf frá föður
Lydiu, og hefðu Rússarnir beð-
ið sig að afhenda henni það. Að
því afloknu, spurði hann Lydiu
hvort hún vildi tala við sendi-
ráðsmennina, og er hún svaraði,
neitandi kvaddi hann og hélt á
brott ásamt Rússunum tveimur.
En bréfið frá “föður” rússn-
esku stúlkunnar reyndist vera
harla einkennilegt. f ljós kom,
að það var skrifað á sendiráði
Rússa í Stokkhólmi og undirrit-
að af Nikischin sendisveitarrit-
ara. Það var dulbúið hótunarbréf
þar sem lagt var fast að stúlk-
unni að fallast á að fara til Rúss-
lands, enda gefið í skyn, að það
mundi koma sér betur fyrir ætt-
ingja hennar heima. Ein setn-
ing þess var svona: Ef eg til-
kynni föður yðar, að þér neitið
að taka á móti bréfi hans, verður
það vafalaust hans bani.
Og þannig er þessu máli þá
komið í dag. Lydia Marcello býr
enn í húsinu fyrir utan Stokk-
hólm og harðneitar að heimsækja
rússneska sendiráðið. Utanríkis-
ráðuneytið sænska hefur sagt
sendiherranum að láta stúlkuna
í friði. Og Lydia, sem 15 ára
kömul fann griðland í Svíþjóð,
er staðráðin í að sækja um
sænkan ríkisborgara rétt, strax
og hún nær 21 árs aldri. En hún
óttast ofsóknir rússnesku sendi-
sveitarinnar, enda hefur mál Kas
enkinu í New York sannað fyrir
alheimi, að sendimenn Stalins
svifast einskis, þegar rússneskir
borgarar gera tilraun til að öðl-
ast erl. það einstaklingsfrelsi,
sem þeim er neitað um í heima-
landi sínu.—Mbl. 3. sept.
löndum verða seldar. Þá vantar
ekki ferðaskrifstofu og upplýs-
ingastofu. í fundarsal allsherj-
arþingsins verða hlustunartæki
við hvert sæti og fulltrúarnir
þurfa ekki annað en að hreyfa til
takka þá geta þeir heyrt orð ræðu
mannsins eða túlkun þeirra á
hverju hinna lögskipuðu tungu-
mála þingsins sem er.
Lögskipuð tungumál eru enska
franska, sspánska, rússneska og
kinverska.
★
Mikil vinna lögð í endurbætur
3,000 verkamenn hafa unnið
dag og nótt frá því í maí s. 1. að
því að standsetja 3,000 skrifstof-
ur og fundarsali hinna ýmsu und
irstofnana S. Þ.
. .Fjórir stórir nefndarsalir verða
útbúnir eins og salur allsherjar-
þingsins, með fullkomnu kerfi
hlustunartækja, sem eru í sam-
bandi við hraða tungumálatúlk-
un.
★
Fjárútlát — en samt gróði
Franska þingið veitti 836 milj.
franka (25,372,000 ísl. kr.) til
endurbóta á Chaillto höll.
En samt er enginn vafi á að
franski ríkiskassinn mun frekar
hagnast af dvöl þeirra 4,200
manns, sem þarna verða. Satt
að segja bíða Parísarbúar með
eftirvæntingu komu fulltrúanna.
Og vitað er að það táknar straum
erlends gjaldeyris inn í landið.
★
Flestir eiga náttstað'annarstaðar
Flestir íbúar í ríki S. Þ. munu
sofa þar, fyrir utan lögreglu-
mennina og meðlimi Öryggisliðs-
ins.
Sendimenn erlendra ríkja
munu flestir búa í sendiráðum
þjóðar sinnar í Parísarborg og
nægilegt af 45,000 gistihúsher-
bergjum borgarinnar hefur verið
tekið frá fyrir aðra fulltrúa og
fylgdarlið þeirra.
Til dæmis hefir bandaríska
sendinefndin tekið Hótel Crill-
on allt á leigu, breska sendi-
nefndin Georg V. hótelið og sú
rússneska, Royal Monceau.
—Mbl. 1. sept.
FRÉTTIR FRÁ ÍSLANDI
íslendingur vekur athygli í
skozkum skóla
Skozka blaðið ‘The Bulletin”,
ritar svo 28 júlí um íslenzkan
námsmann við skóla í Edenburg:
“Magnús Magnússon kom frá
íslandi til að stunda nám við
Edinburgh Acadamy. f gær barst
honum margt upp í hendurnar,
þegar úthlutað var verðlaunum í
skólanum. Sir J. Angus Gillan
festi gullpening um háls honum
sem viðurkenningu fyrir hæsta
prófi í skólanum. Jafnframt voru
honum afhent verðlaun fyrir
framúrskarandi námsafrek í
ensku og lífeðlisfræði.
Rektor skólans, C. M. E. Sea-
man sagði að Magnús mundi vera
fyrsti íslendingur, sem unnið
hefði verðlaun er veitti honum
ókeypis nám í ensku máli við Ox-
ford háskóla.
Þar með var ekki heiðursverð-
launum Magnúsar lokið. Hann er
foringi í heræfingadeild í skól-
anum og var afhentur hinn svo
kallaði “Ceylon” bikar, sem að-
eins hlotnast hinum beztu for-
ingjum.”—Vísir, 31. ágúst.
* * *
Fyrsta áætlunarierð Geysis
til Bandaríkjanna vakti
mikla athygli
Fyrsta áætlunarferð Loft-
leiða frá íslandi til Bandaríkj-
anna var farin nýlega. Geysir
fór héðan að kvöldi 25. f. m., full
setinn farþegum. Þegar komið
var til New York 26. f. m., var
hitabylgja mikil skollin á. Var
hitinn um 40 stig í forsælu. —
Blaðamenn og ljósmyndarar hóp
uðust að farþegunum, spurðu
þá, ljósmynduðu og kvikmynd-
uðu. Þótti fréttamönnunum það
hið ákjósanlegasta frásagnarefni
að geta komu íslendinganna
suður í hitabylgjuna, og voru
myndir af þeim og viðtöl birt í
helztu blöðum Bandaríkjanna,
og frásögn af komu vélarinnar
útvarpað og sjónvarpað.
f ráði var, að Geysir færi frá
New York til írlands en af því
varð ekki. Kom vélin aftur hing-
að til Reykjavíkur í gær 1. sept.
—Tíminn 2. september
Það get eg ekki, svaraði
Utanáskrift mín er:
H. FRIÐLEIFSSON,
1025 E. lOth Ave., Vancouver, B. C.
Nýjar bækur til sölu:
Fyrsta bygging í alheimi.........$2.50
Friðarboginn er fagur............ 2.50
Eilífðarblómin Ást og Kærleiki... 2.00
HOW YOU WILL
BENEFIT BY READING
the world’s daily ncwspaper—
THE CHRISTIAN SCIENCE MONITOR. You will find yourself one of
the best-informed persons in your community on world offoirs when
you reod this world-wide doily newspaper regulorly. You will goin .
fresh, new viewpoints, a fuller, richer understonding of todo/s vitol
news—PLUS help from its exclusive feotures on homemoking, educo-
tion, business, theater, music, rodio, sports.
Subscribe now to
this spcciol #'get- 1
acquointcd" offer
—1 month for$«
(U. S. funds) 1
| The Christian Science Publishing Society PB-5
r One, Norwoy Street, Boston 15, Moss., U. S. A.
l[ Enclosed is $1, for which please send me The Christion
II Science Monitor for one month.
listen to 'The Christian
Science Monitor Views the
News'' every Thursday
night over the American
Broadcasting Company
Nome.
Street-
lcity...
Zone—. Stote-.....**.
Rtki Sameinuðu þjóðanna í París