Heimskringla - 27.07.1949, Page 7

Heimskringla - 27.07.1949, Page 7
WINNIPEG, 27. JÚLf 1949 1 HEIMSKRINGLA 7. SIÐA Hann hugsaði um þennan forblindaða mann og þessa töfrandi en vanræktu konu, hina hættu- legu fegurð lafði Kildonan, en honum urðu all- ar þessar hugsanir ofurefli, því hann var þreytt- ur eftir hina löngu ferð. Svo féll hann í væran svefn í nokkrar mínútur. 6. kafli Dr. Armathwaite hafði ekki sofið lengi, þrátt fyrir að hann var þreyttur eftir ferðalag- ið; áður en hann hálf vaknaði við eitthvað ó- greinilegt hljóð, sem hann gat ekki áttað sig á hvað var. Hann hélt áfram að fieyra þetta, þar til, þó hálf sofandi að hann heyrði að það var grátekka hljóð konu. Það varð smátt og smátt skýrara fyrir honum, þar til hann glaðvaknaði og settist upp og hlustaði. Það hafði lægt vind- inn, þó stöku sinnum skrölti af og til í um- gjörðinni. Hann starði hálfsofandi augum á gluggan, en það var ekkert hljóð að 'heyra þaðan. Hann hugsaði að þetta hefði verið draum- ur, svo hann lagðist fyrir aftur og lokaði aug- unum. En hann hafði ekki fyr lagt höfuðið á koddan, en hann virtist heyra þessar ekkastun- ur aftur. Hann rétti út hendina og þreifaði allt í kringum sig, en fann ekkert nemá kalt línlak- ið og hina mjúku æðardúns yfirsæng sem hann hafði ofan á sér. Hann settist aftur upp og hlustaði; en gat ekki heyrt annað en skrjáfið í laufi trjánna fyrir utan gluggan. Svo lagðist lagðist hann fyrir aftur, en heyrði brátt þetta undarlega hljóð, sem hafði ónáðað hann. Hann fór að hugsa um þær sögur sem stóðu í sam- bandi við þetta herbergi, en þar eð hann var ekki taugaveiklaður, þá urðu þessar sögur frem- ur til að gera hann rólegan en órólegan. “Reimleiki — vitleysa! Það er náttúrlega vindurinn í trjánum!” — tautaði hann fyrir munni sér, og þar sem hljóðið heyrðist ekki nema af og til, hefði það ekki staðið honum fyr- ir svefni, ef ekkastunurnar hefðu ekki verið slitnar með orði, sem honum fanst hann heyra. “Hver er það?” heyrði hann sagt. Svo eftir litla þögn var sagt: “Kondu inn.” Hann var viss- um að hann var glaðvakandi, og þetta væri eng- inn draumur. Hann heyrði þessar hvíslingar greinilega, þó hann gæti ekki fyrst í stað heyrt greinileg orðskil, svo hann gæti fengið nokkra meiningu út úr þeim, en svo varð þetta samtal skýrara. “Hvað er það?” “Því kemur þú?” “J>ú gerð- ir mig hrædda!” Svo heyrði hann aðra rödd eins og hálf dravandi: “Hræddi eg þig, jæja! Eg skal ekki vera hér lengi. Eg vil bara fá að vita hvað þú sagðir lækninum þegar eg fór út úr stofunni í kvöld, og hvað þú meintir með því að koma hingað með hann og hvar þú fanst hann?” Dr. Armathwaite fanst þetta undarlegur draumur, ef það væri draumur? Hann reyndi að bæla sig ofan í koddan, en hin milda rödd hélt áfram að hljóma fyrir eyrum hans, sem nú tal- aði: “Eg sagði honum bara það sem allir geta séð, að eg sé stöðugt að verða meira og meira taugaveikluð.” “Veik! Taugaveikluð! Ef svo er þá er það þér sjálfri að kenna. Þú vilt ekki fara neitt. — Núna fyrir tveimur dögum varstu boðin til Crags, en--------” “Crags! Það mundi ekki vera mér til heilsu- bótar að koma þangað. Láttu mig sjálfráða. Á, nú, lofaðu mér að fara! Eg er þér ekki til neinn- ar ánægju, bara til byrgði fyrir þið. Eg get sann- að svo mikið, og eg skal, eg er ekkert til þín. Þú breyttir ekki við mig sem konuna þína, ekki einu sinni sem systir þína. Ó, eg hef reynt daga og vikur til að safna áræði til að tala við þig, og krefjast mannúðlegrar umgengni og viðmóts, en það er eins og vilji minn og ákvörðunar mátt- ur hafi svikið mig. Eg skil ekki hvað hefir kom- ið fyrir mig, en eg held að eg sé — að verða dauðans matur!” Blóðið sté upp í andlit Dr. Armathwaites við að heyra þessi orð. Haiyi var viss um að sig væri ekki að dreyma; það var nauðvörn bugaðr- ar konu, sem annað hvort af ástæðu, eða ástæðu- lausu, áleit að hún hefði verið beitt miklum rangindum; en hvernig þetta merkilega samtal barst honum til eyrna vissi hann ekki, og gat ekki getið sér til um það. En hann var þess full- viss að hann var að hlusta á einkamál konu, sem var fórnardýr einhvers, sem hún grunaði um ó- heiðarlegheit gagnvart sér. Nú var hann glað- vaknaður og hlustaði eftir því sem sagt var, eins vel og hann gat. Hann efaðist ekki um, að ein- hver máttur, sem hann þorði ekki að nefna, hefði komið honum í þetta hús til þess að hann skyldi beita öllu viti sínu til gagns og hjálpar mann- eskju, sem væri illa farið með. Það var ekki hægt að aðgreina hinar hálf- hvíslandi raddir, en nú fanst honum hann vera viss um að það var karlmanns rödd sem talaðf. “Dauðansmatur! Vitleysa! Þvaður! Vertu ekki að ímynda þér að þú sért einhver píslar- vottur. Hvað hefurðu eiginlega að klaga yfir!” Svo kom sundurslitið svar, eins og orðin væru knúin fram í örvæntingu. “Yfir hverju — eg — hef — að — kvarta?” ^eoðððeððsoðsooðeeoðssoððecfiðOðððððððssasððSðOðsosððSðosoooeocosoMeeðOðSoeoeso^ s Pool Elevators ÆSKJA SAMVINNU YÐAR Borgarar Canada af íslenzkum stofni eru ekki allir bændur. Nokkrir þeirra eru dómarar, læknar, lögmenn, kaupmenn, tré- smiðir, blýsmiðir, (útrenslu-meistarar), og alskonar handiðna- menn. Það eru margar og góðar ástæður að bændurnir selji uppskeru sína til sameigna kornfélaganna. Íslendingar, sem koma til Canada, flytja með sér hina sönnu samvinnu hugmynd. Þeir eru vingjarnlegir menn, og vilja taka höndum saman við nágranna sína í öllum samvinnu hugsjónum. Þeir eru skarpvitrir framfara-menn, og þeim hefir orðið mjög ljóst að samvinnu kornlyfturnar líta eftir uppskeru þeirra ráð- vandlega, vel og skynsamlega, og þar að auki útbýta til meðlima sinna ágóðanum sem í þeirra skaut fellur. Með aukinni umsetn- ingu, vex ágóðinn. Öll veröldin byggir vonir sínar á samvinnuhugmyndinni. íslend- ingar eru samvinnu-menn. Ef þér hafið ekki nú þegar gengið í samvinnu sambandið, þá skuluð þér hitta að máli næsta sameigna- umboðsmann, (Pool Agent), og skipa yður í fylkingu framsóknar- bænda heimsins. Canadian Co-operative Wheat Producers Ltd. WINNIPEG CANADA MANITOBA POOL ELEVATORS SASKATCHEWAN CO-OPERATIVE ALBERTA WHEAT POOL WINNIPEG MANITOBA PRODUCERS LIMITED CALGARY ALBERTA . REGINA SASKATCHEWAN v.»ccccccoccccccececceoccccoocGccoccocoG,íoooooococooooccooooococoocosooococcccoc< \ FALL TERM 0 P E N S MONDAY, AUGUST 22nd If you prefer to enroll either before or after this date, however, you may do so. Our classes will be conducted throughout the summer without any interruption. Make Your Reservation Now For our Fall Term we have already received many advance registrations from near and far-distant points in Western Canada. To reserve your desk, write us, call at our office, or telephone. Ask for a copy of our illustrated Prospectus, with which we will mail you a registration form. TELEPHONE 926 434 S/L ucceM locmme/y-cia C\ 7 'e THE AIR-CONDITIONED COLLEGE OF HIGHER STANDARDS Portage Ave. at Edmonton St. v WINNIPEG TELEPHONE 926 434 I

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.