Heimskringla - 21.09.1949, Side 4
4. SlÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 21. SEPT. 1949
itfeimskrinjila
(StofnuO 1886)
lemui út á hverjum miðvikudegl.
Eigendur: THE VIKING PRESS LTD.
853 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg — Talsími 24 185
Verð biaðsins er $3.00 árgangurinn, borgist íyrirfram.
Allar borganir sendist: THE VIKING PRESS LTD.
öll viðskiftabréf blaðinu aðlötandi sendist:
Tíie Viking Press Limited, 853 Sargent Ave., Winnipeg
Ritstjóri STEFAN EINARSSON
Utanaskrift til ritstjórans:
EDITOR HEIMSKRINGLA, 853 Sargent Ave., Winnipeg
Advertising Manager: P. S. PÁLSSON
“Heimskringla" is published by THE VIKING PRESS LIMITED
and printed by VIKING PRINTERS
853-855 Sargent Avenue, Wlnnipeg, Man. — Telephone 24 185
Authorized as Second Class Mail—Post Office Dept., Ottawa
WINNIPEG, 21. SEPT. 1949
Athyglisgáfan að hverfa eða breytast
Það kemur nokkru sinnum fyrir nú orðið að bent er á það á
prenti, að ýmislegt beri með sér, að aíhyglisgáfa manna sé annað
hvort að sljófgast eða breytast.
Helztu dæmi þessa eru fyrst og fremst talin þau, að lestur bóka
sé að dvína, bæði góðra og illra. Menn sitji nú að jafnaði ekki við
lestur og allra sízt ef efnið er þungt og nokkur fyrirhöfn er því
samfara að skilja það.
Annað, sem mjög þykir bera vitni um þetta sama, er það, að
nútíma menn sinni nálega engu orðið fornum listaverkum. Það sé
eins og menn sjái ekkert í þeim. Einnig þetta er talið bera vott um
hnignandi listhæfileika hjá mönnum.
Eldri skáldskapur er einnig hættur að hrífa menn eins og áður.
Hinir yngri virðast honum svo fráhverfir, að það er farið að
spyrja hvort fram sé komið á jörðu nýtt mannkyn sem skáldskap
hvorki unni eða meti að nokkru. Útlitið sé, að hann eigi eftir að
deyja út, eins og svo margt annað?
Á sama tíma og merki alls þessa sjást glögt er maður samt í vafa
um svarið við því, hvort athyglisgáfan sé að leggjast niður. Hún
gæti verið að breytast. Það þykir ekki bera á miklum sljóleik eða
deyfð yfir hugum ný-uppvöxnustu kynslóðarinnar á skemtunum,
eða gagnvart vélum og tækni nútímans, eða viðskiftum. Hún er þar
eins vakandi og hún hefir nokkru sinni áður verið.
En ýmsir segja, þó svo geti verið, þá sé vafamál, hvort þeirri
athygli fylgi ekki sljófgun í hugsun.
Það eru til menn, sem sterktrúaðir eru á það, að anda mannsins
þroski ekkert, sem lestur. Og fráhvarfið frá honum boði ekkerí
annað en dvínandi hugsun eða athyglisgáfu.
Það er og bent á, að þægindi nútímans stuðli mjög að andlegri
hnignun. Járnbrautalestirnar skrölta með þig frá hafi til hafs og þú
þarft ekkert um það frekar að hugsa, en greiða fargjaldið. Og
flugförin? Það er ekkert betra til að gera menn lata en þau. Á-
reynslan er fólgin í því einu, að ganga upp fáeinar tröppur inn í
þau, rífa pappírs umbúðir utan af matarbita og ef vel tekst til, að
líta í dagblað,' sem þú stakst á þig og lest nú eins umhugsunarlaust
og þú hafir tekið það með þér til þess að geta sofnað sem skjótast.
Slík ferðalög og nú hefir verið lýst, þroska ekki hugsunina.
En það eru ekki þau ein, sem úr einbeitingu hugans draga.
Hávaðinn daglega umhverfis oss gerir það einnig. Umferð á vegum
og götum, fylgir skrölt og inni í húsum ganga glymskrattarnir frá
morgni til kvölds. Skarkali lífsins nú á tíð, er alveg nægur til að
banna alla hugsun, og jafnvel ærinn til að gera menn vitlausa.
Af þægindum nútímans verða menn athafnaminni, værukærari,
hugsunarlausari og ábyrgðarlausari fyrir hvernig alt fer. Það er
eðlilegt. En spursmálið er hvað holt það er andlegu þroskalífi
manna.
Líf og andi hvers verks, er listin. Og hin elzta allra lista, er
rit og leslistin. Getur maðurinn verið án þeirra?
Á VÍÐ OG DREIF
ERLENDUR DÓMSTÓLL
LÉTTUR FUNDINN
Eitt af því sem farið er fram á
í boðskap Ottawa-stjórnar, er
það, að hæsti réttur Canada verði
æðsti dómstóll landsins, en að
skjóta málum til leyndarráðs
Bretaveldis skuli hætt.
Baráttan um þetta mál er ekki
ný. Hún er búin að vera á döf-
inni síðan 1876, er Edward Blake
hófst handa og gekk út í bardag-
ann á móti leyndarráði Breta.
Síðan eru nú 73 ár. Sá er nú
mun mest hafa um málið að segja,
verður að líkindum Stewart Gar-
son, núverandi dómsmálaráð-
herra sambandsstjórnar.
Það er sitt af hverju bæði með
og móti því hægt að segja, að
leggja niður að áfrýja málum til
Bretlands. Það hefir nú fyrst og
fremst aldrei verið mikið að því
gert. Öll glæpamál hafa um langt
skeið verið dæmd hér og fullnað-
ardómur I þeim verið í Canada.
Aðeins mál einstakra mapna eða
félaga eða stjórna hefir verið
hægt að senda til Bretlands. En
það hefir verið svo dýrt, eða oft
og tíðum numið 15,000 dölum, að
það hefir aldrei verið hér al-
gengt. í öðru lagi hefir þetta
skygt á sjálfstjórnarvald Canada
í hugum ýmsra, að dómsúrslitin
væru í Bretlandi.
hefir aldrei sýnt sig atkvæða-
meiri, en þegar hann var að
reyna að svifta fylkin réttindum
sínum, en draga þau í hendur
sambandsstjórnar.
Þjóð þessa lands er ekki búin
að bíta út úr nálinni með það
hvað eins voldug stjórn og hún
setti til valda í síðustu kosning-
um, gerir, eða getur gert áður en
lýkur.
*
THE ICELANDIC
CANADIAN
Fyrsta hefti áttunda árgangs
ofannefnds rits kom út í byrjun
þessarar viku. Ritið er fjölbreytt
að efni og getur flestra nýunga
á meðal íslendinga á ársf jórðung-'
inum, sem um er að ræða. En auk1
þess eru í þetta sinn í ritinu að
minsta kosti tvær greinar bók-
mentalegs efnis. Er fyrri greinin
skrifuð af W. Kristjanson eftir
ferðalag um nágrenni Winnipeg-
borgar er hann ásamt mörgum
fleirum tóku þátt í og helgað var
heimsókn sögulegra staða fylkis-
ins. Verður höf. tíðrætt um hina
fyrstu kirkju, St. Andrews kirkj-!
una, er vissulega má telja eitt
merkilegasta minnismerki hér
uppistandandi frá tíð fyrstu!
hvítra manna. Hin greinin er út-
varpserindi eða kveðja frá konum
heima á fslandi, til kvenþjóðar
þessa lands. Erindið er samið af
Öliu Johnson og flutt hér í út-
varpi; er það að efni til lýsing af
lífi sveitakvenna á íslandi og
hefir ekkert, að því er vér ætlum,|
betur verið skrifað á ensku um
það efni áður. Þeir einir, sem
gagankunnugir eru þjóðlífi
tveggja þjóða, geta túlkað hlut-
ina eins og gert er í þessari
grein.
í ritinu er margt fleira sem
þess er vert, að á væri minst, eins
og stutta en hugðnæma minnmg-
argrein um Svein heitinn Thor-
valdson, skrifaða af W. J. Lindal
dómara. Um Gimli fslendinga-
daginn er og góð grein rituð af
J. K. Laxdal og grein sem heitir
Enohanted Coach, eftir Hólm-
fríði Danielson. Munu flestar
hinna stuttu og góðu fréttagreina
af íslendingum skrifaðar af
henni.
★
HVER Á AÐ BREYTA
STJÓRNARSKRANNI? ,
Það horfir líkt við með ráðgert
frumvarp sambandsstjórnar um
að veita þingi valdið í hendur að
breyta stjórnarskránni, og með
dómsvaldið, sem stjórnin hefir
hugsað sér að taka í sínar hend-
ur. Það segir sig sjálft, að stjórn-
arskráin muni eftir því sem tím-
En á móti þessu mælir aftur ar líða, þurfa breytinga við. Enda
annað. Það er til dæmis mjög er ekkert til fyrirstöðu að það sé
vafasamt, að fylkin njóti síns gert- Þó æðsti úrskurður í því
léttar eins vel, er þau eiga L máli þurfi að koma fyrir Breta,
höggi við sambandsstjórnina um stafar það af alt öðru, en að með
einhver mál, ef hún sjálf er dóm- því sé verið að koma í veg fyrir,
arinn, eins og kalla má að hún sé,! að vilji þjóðar þessa lands komi í
Tvö tæKifæris»kvæði
Eftir Guttorm J. Guttormsson
Ijós. Stjórnarskrá Canada (The
British North American Act), er
mjög yfirgripsmikil. Hún fjall-
ar um einkaréttindi tveggja
þjóða, auk réttinda hins þrískifta
stjórnskipulags, lands fylkja- og
sveita eða bæjastjórnar. En auk
alls þessa fjallar hún um utanrík-
ismál, sem sjaldgæft mun í
stjórnarskrám. En þess þótti nú
þörf með hér á þessum tímum.1
Þó slíkt horfi nú öðruvísi við, er
ekki með því sagt, að slíkt sé
óviturt jafnvel enn, þar sem utan-
ríkismál koma nú meira orðið við
sögu hverrar þjóðar sem er, en
þau hafa nokkru sinni áður gert.,
En nú vill Ottawa-stjórnin
En það sýnir hvermg farið geti, breyta þafna & einhvem hátt til.
ef flokksstjórnir verða of vold-j Látum það gott heita. En hvað
eða hverju sem hún hugsar sér
að breyta, er þetta ávalt hið var-
með dómstólana sem sína þjóna.
Það er ekki til neins að neita
þessu, því þessir dómstólar hafa
oftast verið erfiðir í garð þeirra,
er mál hafa þurft að sækja á
hendur stjórnum. Fyrir einstakl-
inginn hefir það oftast reynst ó-
kleift að sækja mál á hendur
stjórnum. Á þetta ber að líta.
Æðsti dómstóll þessa lands, verð-
ur aldrei annað en afkvæmi sam-
bandsstjórnarinnar og það er
þunt blóð, sem ekki er þykkra en
vatn.
Barátta Roosevelts heitins for-
seta við dómsvald Bandaríkjanna,
mun mörgum enn minnisstætt.
í SILFURBRÚÐKAUPI KRISTÍNAR OG VALDIMARS
BENEDICTSON
Þegar leiðir voru valdar
Viti, snild og æskudug,
Haft að marki fjall, sem faldar
Fremd, að vinna á þrautum bug, —
Ferð þau hófu fjórðungs aldar
Fram með prúðum, ráðnum hug.
Yfir hyl og flaum í fljóti
Fjöldinn þaut á veikri spöng, —
Þau sér tömdu gang á grjóti;
Gerðist leiðin trygg en ströng,
Er þau gengu upp í móti
Eftir lífsins göngusöng.
— Yfir sjálfa sig að hækka
Sómir þeim sem heyja stríð,
Þroskast, yngjast upp og stækka
Eftir því sem líður tíð,
Aldrei hika, aldrei lækka
Upp í markmiðs fjallahlíð.
Einu þrepi er altaf færra
Eftir því sem hærra er sótt,
Markmið alt af meira og stærra
Meir sem lífið hleðst af þrótt
Og því lengra, ofar, hærra
Eftir hverja brúðkaupsnótt.
í GULLBRÚÐKAUPI PÁLÍNU OG BERGS HORNFJÖRÐ
Fyrir minni brúðgumans
ugar.
Eitt sem til mála kemur auð-
vitað, verður og að hækka kaup
dómara hæstaréttar. Eftir að
vald dómstólsins hefir víkkað, er
ekki að búast við, að þessi eftir- lands. Með þessu er stjórnin að of mikinn hlut að máli, svo að til
lætisbörn stjórnarinnar sætti sig leggja undir vald þingsins eða í þess ætti alls ekki að koma, að
Hún Saga dís frá Sökkvabekk
Er sögum allajafna
Um engi, haga, stöðla og stekk
Og stræti og torg að safna.
Veit drótt sem hennar doðrant les
Og dæmt um nokkuð getur,
Að Framnes gerðist frama nes
Og fræða höfðings setur.
Til frama bóndinn byrjaði’ á
Að búa vel í pottinn,
Að heyja, plægja, herfa og sá
Og hvílast eins og drottinn.
En það er upp að hafa horft
Úr heimsins svarta flagi,
Að hafa sér til sæmdar ort
Og sínu bygðarlagi.
Oss finst þó einna flest um hann
Sem fræðaþul og manninn,
Sem fyrir sér þann fjölda kann
Og færir heim um sanninn,
Því eftir þrotlaust grufl og grúsk
f gömlum rúnaskræðum
Á hreinum skildi bjartan brúsk
Hann ber frá sigurhæðum.
Oss finst það merkt og mikilvirkt
Og mannskap sóma hressum,
Að hafa að jöfnu akra yrkt
f andans heimi og þessum.
f báðum heimum hann sér vann
Til hárra launabóta
Og meginarðs sem átti hann ‘
Þó yngri að fá að njóta.
En falli hann um fimbulhaust,
Sem fleiri, undir torfið,
Það þýðir ekki að þagni hans raust
Né þrek hans alt sé horfið;
Hið góða heldur áfram alt
Og aldrei þverr né tapast,
Því hundrað sinnum hundraðfalt
Af hverju nýju skapast.
Að stutt sé æfin, listin löng,
Ei lýgi var til forna,
En lind sem oft í eyra söng
Og upp er nú að þorna.
Af ást, sem manni aldrei deyr
Og er því betri fengur
Sem hann að árum eldist meir,
Hann endist sjálfur lengur.
Það undra jafnvel á sér stað
Af ást til blaðs og penna
Að sjötíu ára og yfir það
Sé elli of snemt að kenna.
Og ennþá getur Bergur bætt
Við Braga og Fróða ræður
Og aðrir notið, endurglætt
Sinn anda við hans glæður.
hugaverða við það, að hún ætlar • -----■■■■■■■ -■■ ■ ■■ ------ - ■ . =
sjálfri sér valdið og ráðin í þeim smáar, ríkisstjórn, fylkisstjórn þing eftir þing, að breyta stjórn-
efnum en ekki almenningi þessa og sveitastjórn, sem þarna eiga arskránni þar til lítið eða ekkert
væri orðið eftir af hinum upp-
runalega tilgangi hennar. f
stjórnar boðskapnum segir að
vísu, “að vald þings eða stjórnar
í þessu efni nái ekki til mála er
fylkin áhræri, eða til hlunninda
vissra stofnana eða félaga með
sérstöku leyfi til athafna, eða til
sérréttinda eins og þau er veitt
eru vissum þjóðflokkum í tungu-
málum.” En hver í ósköpunum á
að geta smíðað í huga sínum eða
vitað, hvað það er sem stjórnin
ætlar að fara fram á?
Það getur verið gott og blessað
að breyta stjórnarskránni. En
þær breytingar eiga að koma frá
þjóðinni, en valdið í þeim efnum,
hverju skuli breytt og hverju
ekki, væri fáránleg villa að skilja
eftir í höndum þess stjórnar-
flokks, sem við völd er í Can-
ada í það og það skifti.
Þegar á þetta er litið, er auð-
séð hvað mikil hætta lýðræði
þessa lands getur stafað af öðru
eins bauki og því, er liberal-
stj. er lögð upp í ferðina með í
stjórnarskrármálum Canada. Það
stefnir, sem raunar flest, sem
liberal flokkurinn hefir starfað
að, að því að efla honum einum
völd landsins. Það er eins mikill
einvaldsbragur á öllu því, sem hin
nýja liberal stjórn hefir hafst að,
eins og hjá nokkrum hinna fornu
einvaldskonunga eða keisara. En
hverjum getum við um þetta
kent? Engum öðrum en kjósend-
um þessa lands sjálfum á s. 1.
sumri. Þeir fólu sig í faðm þess
stjórnmálaflokks, sem síðan 1896
hefir hér ráðið lögum og lofum
og því verki hefir reynst vaxn-
astur, að skatta allar framfarir
og þroska landsins svo, að hvor-
ugt hefir getað þrifist og þetta
auðuga land og fjölmenna, sem
verið gæti, er hrygðarmynd borið
saman við landið fyrir sunnan
oss, sem fyrir stuttum tíma var á
svipuðu gelgju skeiði statt í þjóð
legum skilningi, en er nú lang
voldugasta og fremsta menning-
arþjóð heimsins.
Norðurljósa rannsóknir
Menn hefir stöðugt greint á
um það af hverju norðurljós
stafa. En nú hefir amerískur vís-
indamaður, dr. Carl W. Gartlein
við Cornell háskólann komið
fram með nýja skýringu á því.
Kveðst hann hafa gert mjög víð-
tækar og nákvæmar rannsóknir
á norðurljósum og komist að
þeirri niðurstöðu, að þau stafi
frá “brintatómum” sem sólin
þeyti frá sér. Frumeindir þess-
ar koma með 600 km. hraða á sek-
úndu inn í gufuhvolf jarðar og
þá skeður eitt af tvennu: Annað
hvort lýstur þeim saman við raf-
endir loftsins, svo að úr verður
gneistaflug, eða þá — og það er
algengast — að þau koma köfn-
unarefnasamböndum loftsins í
uppnám og við það skapast þessi
Ijósadýrð.
Menn höfðu fyrir löngu veitt
því athygli að eitthvað samband
var á milli sólbletta og norður-
ljósa. Sólblettirnir vissu menn
að stöfuðu af gosum í sólinni,
og samkvæmt rannsóknum Gart-
leins er sólin hlaðin af “brinta-
tómum” og fær af þeim birtu
sína.
Norðurljós og suðurljós á suð-
urhvelvi jarðar sjást ekki nema
í grend við segulpóla jarðar. Er
það af því að segulpólarnir
draga að sér rafeindir loftsins.
En menn hafa ekki vitað áður
hvort þessar rafeindir væri “neg-
ativar” eða “positivar”, en nú
vita menn eftir rannsóknir Gart-
leins að þær eru ‘positivar”.
—Lesbók Mibl.
við 12,000 dollara tekjur, sem raun og veru sitt, sem stendur að ein þjóðfélagsstofnunin, lands-
dómarar nú hafa. j minsta kosti, vald, sem ekki er í stjórnin, ætti öllu að ráða um
Mr. Garson mun ekki mikinn verkahring sambandsstjórnarinn- stjórnarskrána.
gaum gefa þeirri hlið málsins, ar. Það er þjóð þessa lands og Væri landstjórninni veitt þetta
sem að almenningi snýr. Hann stofnanir þess allar stórar og vald, gæti hún farið til verks,
Þegar hinn frægi málari Rap'h-
ael var fenginn til þess að mála
nokkrar helgimyndir, komu
tveir kardínalar til hans til þess
að líta á verkið. Þeir byrjuðu
strax að gagnrýna myndirnar.
— Páll postuli er of rauður í
andliti, sagði annar.
— Hann hefir roðnað svona af
að sjá í hverjar hendur kirkjan
er fallin, sagði listamaðurinn
hæglátlega.
I Framvegis verður Heims-
krinela fáanleg í lausasöbi hiá
hr. bóksala Lárusi Blöndal. Skóla
vörðustíg 2. Reykjavfk. Tsland.