Heimskringla - 21.02.1951, Blaðsíða 5
WINNIPEG, 21. FEBR., 1951
HEIMSKRINGLA
5. SÍÐA
vissa fyrir því að um fulla bót sé
að ræða því sjúklingar eiga oft
erfitt með að ná fullri vigt aftur
og líður stundum illa af upp-
þembing og óþægindum í magan-
um eftirá.
Dr. Grímson var kunnugt um,
að ef hann gæti fundið meðal er
gæti stíflað þær taugar sem
trufla meltinguna í maganum þá
væri hægt að komast hjá upp-
skurði.
Það var því fyrir þrem árum
síðan, sem hann fór ásamt öðrum
félögum sínum að setja saman
allskonar efni er gætu deyft taug
arnar svo, að ekki yrði til mikilia j
óþæginda eða skaða. Árangurinn
af þessum tilraunum var Ban-
thine. Svo, fyrst í janúar 1949
var fyrsta tilraunin gerð á maga-
sárs sjúkling með þetta meðal.
Árangurinn virtist mjög góður,
því, eftir að 20 mínútur voru
liðnar frá því að Banthine var
tekið á tóman maga, starfaði
maginn eðlilega og sjúklingnum
leið betur.
Nú reyndi Dr. Grímson Ban-
thine á hundrað sjúklingum og
voru sumir þeirra búnir að hafa
magasár í fimtán ár og alltaf ver-
ið undir læknishendi og matar-
skömtun og meðulum, sumir af
þeim haft blæðandi magasár og
orðið að fá blóð innsprautingu
Öll reynsla var árangurlaus og
ekkert framundan fyrir þessa
sjúklinga annað en uppskurður
Eftir að hafa tekið Banthine
töflur um nokkurt skeið, varð
árangurinn mjög merkilega mik
Islendingar athugið!
f matvöru-, kaffi- og tóbaksverzluninni á horninu á
Sargent Ave. og Simcoe St., eru flestar fyrsta flokks mat-
vörutegundir á boðstólum:
Léttar máltíðir (Lunches), Kaffi alltaf til reiðu með
ótal tegundum af gómsætasta kaffibrauði. Vindlar, vindl-
ingar og reyktóbak — allt fyrir hið sanngjarnasta verð.
Fljót afgreiðsla, glatt og aðlaðandi viðmót. — Lítið
inn þegar þið eruð á ferðinni, landar góðir!
ERIC ÍSFELD, eigandi
Trn/ej?
Check These Features With
Those of Any
Outboard Motor Ever Built
• Far Lighter
• Smaller and More Compact
• Truly Outboard
• Patented Dual Carburetion
• Two-Piece Over-All
Housing
• Finger-tip Control
• Weedless Type Propeller
• No Shear Pin
• Replaceable Bearings and
Cylinder Sleeves
• Positive Rotary Water
Pump
• Positive Tilt-Up Lock
PARK-HANNESSON LTD.
DISTRIBUTORS
WINNIPEG
Man.
EDMONTON
Alta.
ill, verkurinn hvarf að mestu
strax er þeir voru búnir að þola
um margra ára skeið.
Síðast liðinn júlí voru Ban-
thine töflurnar settar á sölutórg-
ið til almennra afnota. Víðsveg-
ar að berast nú gleðifregnir um
hinn góða árangur þessarar Ban-
thine tafla við magasári og hjálp-
ar það nú ótöl mörgum á skömm-
um tíma, sem mörg ár þurfti til
áður eða uppskurð sem hvorugt
var varanlegt.
Fréttir berast líka um, að
sjúklingar sem nota Banthine
geti orðið albata. En varanlega
skal fólk fara í það, að fagna
þessu frmúr hófi og halda að
þeir séu lausir við magasárið ef
verkurinn aðeins hverfur. Það er
fjarstæða. Það krefur langan
tíma og þolinmæði, að græða
magasár. Fæðuna verður að
vakta vel, ekkert feitmeti, steik-
ur, gosdrykki, kaffi, te, reykingar
eða vínanda er leyfilegt að neyta
fyrir þann sem hefur magasár.
Það er eitur sem ýfir upp sárindi
magans aftur. Jafnvel þó sárið
sé gróið, er nauðsynlegt að halda
áfram að nota Banthine um lang-
an tíma og gæta alls hófs í
neyzlu matar og drykkjar.
Eins og mörg góð meðul, hefur
Banthine dálítið óviðfeldin á-
'hrif, sem ekki er vert að verða
hræddur við. Það er heldur
slæmt á bragðið, þurkar upp
muninn og gerir ýmissa líkams-
vöðva slakari og fleira, en þetta
eru aðeins smámunir í saman-
burði við þá hjálp sem það veitir.
Magasár er orðinn mjög al-
gengur sjúkdómur og það er á-
ætlað, að í Bandaríkjunum ein-
um sé ekki minna en tólf miljón-
ir manna og kvenna með magasár.
Ef Banthine er notað eftir lækn-
isráðum og hófsemi gætt í mat
°g drykk, er álitið að miljónir
þessar geti aftur fagnað nýju lífi
og heilbrigði.
Davíð Björnsson
Lauslega þýtt úr ensku.
um það málefni með því að
kaupa og starfrkja búðina þar
! sem Sargent Ave og Simcoe Str.
mætast.
Eric, er maður sem hefir
I margra ára reynslu á mismun-
andi verzlunar-sviðum. Hann er
lipur og léttlyndur maður, og til
þess kjörinn að létta skap þeirra
sem til hans leita í verzlunar-er-
indum. Hann er jafn kurteis við
þá sem koma inn til hans og gera
engin kaup, sem hina, sem bera
út úr búðinni margra dollara
virði af vörum, sem hvergi ann-
arstaðar er nú mögulegt að
kaupa á lægra verði.
Hann selur léttar máltíðir, —
lunches — kaffi með ótal tegund
um af gómsætu brauði, vindla,
vindlinga og reyktóbak, — alt á
lágverði. Fljót afgreiðsla, aðlað-
andi viðmót.
i
* * •
I
The Women’s Association of
! the First Lutheran Church will
hold their next meeting on Tues.
February 27. at 2.30 p.m. in the
j lower auditorium of the church.
í Memibers are requested to bring
I articles for the handicraft show-
er. A Church Parade qill be held
on Sunday Feb. 25th at 11. A. M.
Þetta Nútíma Fljóthefandi
Dry Yeast, þarf
Engrar Kælingar Með
KVEÐJA
Til Rev. og Mrs. B. A. Bjarnason
Þó að burtu í fjarlægð flytjið,
óg ferðist gæfunar vegi á,
að æskustöðvanna oft þið vitjið
í ykkar draumum, það er mín
spá;
I anda verðið þið okkur hjá.
Meinlaus skemtun er mikils
virði,
og margt til gleði var ykkur frá,
góður söngur og gamanyrði
sem geyma í þakklátum huga má,
Nú kveð eg ykkur með eftirsjá.
Böðvar H. Jakobson
FJÆR OG NÆR
Landinn lifir
Enn er tilraun gerð með því
augnamiði að íslendingar geti
náð fundi hvers annars og rabb-
að saman yfir kaffiborðum. Nú
hefir Eric Isfeld hafist handa
Eplatré í Borgarfirði ber
ríkulegan ávöxt.
Pétur Jónsson á Varmalæk í
Andakíl í Borgarfirði fékk í
haust fimmtíu stór og falleg epli
af tuttugu ára gömlu eplatré,
sem hann á. Stærsta eplið vóg
550 grömm, og var því mun
stærra en venjuleg erlend epli.
en öll voru eplin rauð og þroska-
góð.
Enginn veit, hvaðan eplatréð j
á Varmalæk er ættað. Það óx
upp af kjarna úr epli, sem settur
hefur veríð í mold úti, og var
fyrstu árin haft undir beru lofti.
En seinna var það flutt inn í
gróðurhús Péturs, og er það nú
orðið tuttugu ára gamalt og
þriggja metra hátt. Nær króna
Heldur ferskleika!
Verkar fljótt!
Hér er um að ræða undrunarvert, nýtt ger," sem verkar eins
fljótt og ferskar gerkökur, og á sama tíma heldur fersk-
leika og fullum krafti á búrhillunni. Þér getið pantað mán-
aðarforða hjá kaupmanninum yðar, í einu.
Engum nýjum forskriftum eða fyrirsögnum þarf að fara
eftir. Notið Fleischmann’s Royal Fast Rising Dry Yeast
nákvæmlega eins og ferskar gerkökur. Einn pakki jafngildir
einni ferskri gerköku í öllum forskriftum.
1 pakki jafngildir 1 köku af Fresh Yeast!
þess orðið upp í þak í gróðurhús-
inu.
Eplatréð bar fyrst ávöxt árið
1948 — en aðeins eitt epli. f fyrra
náði það sér betur á strik. Þá
bar það tuttugu epli, en í ár urðu
eplin svo fimmtíu eins og áður
er sagt. Virðist eplatréð kunna
mæta vel við sig í gróðurhús-
inu og einskis sakna frá þeim
suðrænu slóðum, sem það er ætt-
að af.
—Tíminn 16. desember
Mrs. Guðrún Skaptason, 378
biður þá umboðsmenn sem óseld
hafa nokkur eintök af Hlín, að
senda sér þau til baka, hún hafi
pantanir fyrir þeim.
VORIR ISLENZKU
BORGARAR
Öll þrjú Hveitisamlög Vesturfylkjanna bjóða alla
íslendinga og afkomendur þeirra velkomna til
þjóðræknisþingsins sem háð verður í Winnipeg
þennan mánuð. Vestur Canada hefir auðgast
stórlega á öllum sviðum við komu þessara hraustu,
starfsömu og ötulu manna og kvenna, bæði í sveit-
um, Ixirgum og þorpum sléttufylkjanna. Þeir, og
feður þeirra, hafa tekið samvinnu hugmyndina í
arf, og með lipurð og drenglund liafa þeir unnið
að henni ásamt meðborgurum sínum hér, og sýnt
okkur ótvírætt lundareinkenni fólksins sem byggir
hina sögufrægu eyju norður við heimskaut í sval-
köldum sævi. Margir af okkar beztu og áreiðan-
legustu mönnum eru fslendingar, sem bera fánann
hátt þar sem á er letrað- “Einn fyrir alla og allir
fyrir einn”. Hvar sem leið þeirra liggur, og hvað
svo sem lífsstarf þeirra er, má óhikað treysta
þeim sem góðum borgurum og góðum nágrönnum.
y
Canadian Cooperative
Wheat Producers Ltd.
WINNIPEG
CANADA
MANITOBA POOL ELEVATORS
Winnipeg Manitoba
SASKATCHEWAN COOPERATIVE
PRODUCERS LIMITED
Regina Saskatchewan \
ALBERTA WHEAT POOL
Calgary Alberta
J