Heimskringla - 27.06.1951, Blaðsíða 1
Þing Sameinaða kirkjufélagsins hefst 29. júní á Gimli
r---------------------}
Toast Master
BREAD
Good For Toast or Table
At Your Neighborhood Grocer’s
J
Toast Master
BREAD
Good For Toast or Table
At Your Neighborhood Grocer’s
LXV ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN . 27. JÚNÍ, 1951
NÚMER 39.
Kosninga-ósigur liberala alvarlegur
í auka-kosningum sem fóru fram til sambandsþingsins s. 1.
mánudag í fjórum kjördæmum landsins vann íhaldsflokkurinn
fræ^an sigur.
Fyrir kosningarnar voru liberala þingmenn í öllum kjördæm-
unum nema einu. fhaldsmenn unnu ekki aðeins þau þrjú sæti af
þeim, heldur juku atkvæðatöluna til muna í sínu eigin kjördæmi.
Kosningarnar fóru víða fram og sýna æði ákveðið hug þjóðar-
innar í heild sinni til núverandi stjórnar.
Tvö kjördæmin í Manitoba, annað í Suður-Mið-Winnipeg og
hitt í Brandon, höfðu áður liberal þingmenn. En nú unnu íhalds-
sinnar í báðum, Walter Dinsdale í Brandon, en Gordon Churchill
í Winnipeg. í Waterloo South í Ontario héldu íhaldsmenn sínu
sæti, en Queens kjördæminu á P. E. I. náðu þeir frá liberölum.
Það er ekki það, að sambandsstjórnin þurfi neitt að óttast enn
um þingfylgi sitt, heldur hitt, að þjóðin er sjáanlega óánægð og
væri líkleg til að steypa liberal-stjórninni af stóli, ef kosningar
færu nú þegar fram. Stjórnin veit af því sem fram fór s.l. mánudag,
að hún situr við völd í trássi við vilja kjósenda.
Ástæðan fyrir ósigri liberala er auðsæ öllum nema stjórninni.
Þrályndi stjórnar að vilja ekkert skifta sér af hinni bandóðu verð-
hækkun á vöru, háum sköttum af hálfu stjórnar, og minni verð-
hækkun á hveiti, en á iðnaðarvörum, hefir eflaust verið orsökin að
þv*í,. að kosningarnar fóru eins ákveðið á móti stjórninni og raun
varð á. Skýring Winnipeg Free Press á tapi stjórnarinnar, er ein
hin fáránlegasta sem sézt hefir. Það á alt að stafa af því, að þjóðin
vildi ekki að stjórnarflokkurnin væri eins sterkur á þingi og hann
er og vildi fjölga í andstæðinga-flokkinum. Tapið stafaði ekki
af óvild til stjórnarinnar. Nei. Það væri ómögulegt. Þjóðin vill
ekki aðra stjórn við völd. En henni finst hún of-einráð með svo
sterkan bakhjarl sem hún nú hefir.
Rödd þjóðarinnar hefir mint sambandsstjórnina á, að ef hún
haldi verndarhendi yfir verzlunarokrinu og skattaokinu eins og
hún hefir gert, en skeyti ekkert um afkomu almennings, megi hún
gá að sér. Stjórnin hefir ekki hið minsta tillit tekið til vilja
almennings, í níu fylkjum landsins að minsta kosti. Það er það
sem aukakosningin hefir mint hana á, hvað sem hún gerir við því.
Útskrifast með heiðri
Þ. 5 júní lauk Margaret Beck
Hvidston, dóttir þeirra Dr. R.
Becks og Berthu Beck í Grand
Forks, N. Dakota; “Bachelor of
Arts” prófi á ríkisháskólanum í
Norður Dakota, með háum
heiðri. Nokkru áður hafði hún
verið kosin félagi í “Phi Beta
Kappa”, en sá heiður blotnast
þeim háskólastúdentum einum,
sem fram úr skara í námi. Aðal-
námsgrein hennar voru enskar
bókómenntir, en jafnframt lagði
hún stund á Norðurlandamál og
bókmenntir og listfræði.
Samtímis lauk maður hennar,
Paul Hvidston, fullnaðarprófi í
almennri verkfræði —Bachelor
of Science in Civil Engineering,
með góðri einkunn; hefir hann
þegar fengið ágæta stöðu hjá
vegamáladeild California. Ungu
hjónin lögðu af stað til Vestur-
strandarinnar þann 10. júní, og
verður heimili þeirra í Los
Angeles.
Poul Reumert í stuttri
heimsókn í Reykjavík
Hinn víðfrægi leikari og góð-
kunningi íslendinga Poul Reu-
mert kom hingað til Reykjavíík-
ur á sunnudaginn var, í stutta
heimsókn. Fer hann héðan aftur
um næstu helgi, ásamt frú sinni
Önnu Borg, er
leikheimsókn sinni við Þjóðleik
húsið.
Eg hitti Poul Reumert og frú
hans snöggvast í gær á Hótel
Borg, til að bjóða hann velkom-
inn hingað til lands. Bar margt
á góma eins og jafnan, þegar
hann á í hlut. M. a. Parfsarferð
þeirra hjóna, en þau fara héðan
beina leið til Parísar til þess að
mæta þar, sem fulltrúar hvert
fyrir Sína ættjörð, á hátíð, sem
haldin verður til kynningar
menning Norðurlandaþjóða, í
sambandi við 2000 ára afmæli
Parísarborgar.
Ölfugt og fjölmennt félag þar
í borginni, sem vinnur að menn-
ingarlegu samstarfi þjóða í
milli, á frumkvæðið að þessari
Norðurlandahátíð er haldin verð
ur í einni glæsilegustu sönghöll
borgarinnar.
En kynnir hátíðarinnar verður
hinn frægi franski rithöfundur
Andre Maurois. Hann flytur inn
gangsræðu fyrir hverja þjóð fyr
ir sig, og mun t.d. leggja áherzlu
á, að kynna fyrir gestum heims-
borgarinnar hversu íslenzkar
bókmenntir standa á gömlum
merg.
En síðan segir frú Anna
Borg fram kafla úr Gunnlaugs-
sögu Ormstungu á íslenzku, en
kaflinn verður að sjálfsögðu
þýddur í efnisskránni. 1 danska
hluta hátíðarinnar flytur Poul
Reumert eitt af æfintýrum H. C.
Andersen, og fer með kafla úr
einu leikriti Moliére, með aðstoðl
nokkurra leikara frá Þjóðleik-
húsi Frakka.
En Poul hefir um langt skeið
sem kunnugt er, gert leikrit Mo-
liére að sérgrein sinni. Enda
haft þann einstaka frama sem
leikari, að vera boðinn að leika
í Moliére leikritum í sjálfu Þjóð
leikhúsi Frakka.
f íslenzka hluta efnisskrár-
innar leikur Jón tónskáld Nor-
dal á slaghörpu, og sýnd verður
þá hefur lokið íslenzk kvikmynd.—'Mbl. 22. maí
TEMPLARA HÁTÍÐ í
MINNEAPOLIS
A. S. Bardal og Stefán Einars-
son komu s.l. sunnudag til baka
úr ferð sinni til Minneapolis.
Voru þeir hrifnir af ýmsu er
þeir sáu fara fram í sambandi
við 100 ára minningarhátíð G.
Templara reglunnar, en fyrir
henni stóðu templarafélög og
stúkur í Minneapolis. Sóttu há-
tíð þessa menn allsstaðar að úr!
Bandaríkjunum, frá Evrópu,
Ástralíu og íslandi. Það var
engu líkara en að hver stór-
stúka Goodtemplara, ætti þarna
fulltrúa. En eftirtektarverðasti
hópurinn og hinn stærsti var frá
Svíþjóð. Þaðan komu um 80
manns, og allir Goodtemplarar.
Þeir komu nægilega snemma til
þess að vera við samskonar hátíð
sem haldin var í Chicago. Þó
menn þessir notuðu ferðina til
að finna hér skyldmenni og vini,
má þetta stórmerkilegt heita.
Hátíðir þessar bæði í Chicago
og Minneapolis voru sóttar af
mörg hundruð manns og gestum
skemt á hinn bezta hátt, ekið
með þá á fegurstu staðina og
sögulegustu, sem sérstaklega
var unaðslegt.
Okkur íslendingunum héðan
brá við að sjá hundruð templara
saman komna á fundum stúkn-
ana, og samkomum þeirra í Min-
neapolis. Oft var það, að um-
ræður fóru mest fram á sænsku
eða norsku. Það eru Svíar og
Norðmenn, sem öllum þjóðum
virðast betur meta og skilja G.T.
starf.- Af allri tölu Goodtempl-
ara í heimi, sem er yfir 300,000
mun einn þriðji vera Svíar og
Norðmenn.
í Minneapolis og út um alt
Minnesota-ríki, er mikið af
stúkum, er halda uppi templara-
starfi í öllum myndum þess. Þar
eru unglingastúkur. Komu fram
á fyrsta fundinum sem við vor-
um og sem var stúkufundur,
sóttur af 250 manns, nokkur
börn frá 5 til 7 ára og sungu
sína templarasöngva. Þau voru
klædd einkennisbúningi og
hefði mörgum í stúkunum okkar
þótt skemtilegt að sjá æskuna
eins og hún kom þarna fram
berandi merki templara. Það
hefði mint gamla fólkið á fyrri
tíma.
Á þessum hátíðahöldum kynt-
umst við íslendingi, sem háfíð-
ina í Chicago sótti og kom þar
fram, sem fulltrúi stórstúku fs-
lands. Hét hann Indriði Indriða-
son, ættaður af Norðurlandi, en
búsettur í Reykjavík, maður vel
gefin og hinn viðkynninga bezti
Langaði hann að koma norður til
Winnipeg, en vissi ekki hvort
tími ynnist til þess því hann er
hér í sumarhvíldartíma sínum.
Hann flutti kveðjur sínar á
fundum í Chicago. Dr. R. Beck
hélt þar og ræðu á skemti sam-
komu um templaramál.
í Minneapolis voru ræðuhöld-
in mikið á sænsku. Og síðasti
eða þriðji hátíðardagurinn, var
algerlega helgaður Miðsumars-
skemtun (Midsummer day) sem
þeir svo nefna. Það er þeirra
þjóðernisdagur hér vestra, ekki
þjóðhátíðardagur Svía Var sú
hátíð svo vel sótt, að þar voru
bara 60,000 Svíar og Norðmenn
saman komnir. Hátíðin var hald-
in í Minnehaha Park, og stóð
yfir allan sunnudaginn, 24. júní.
Að morgni var messa um kl. 10
er mér var sagt að um 15,000
manns hefðu hlýtt á. Hún fór
fram á sænsku. En eftir hádegið
fór fram löng myndaleg skemti-
skrá,- svipuð að formi og hér
gerist á íslendingadögum, —
þrúngin af þjóðrækni og ætt-
jarðarminningum. Ingangur var
ekki seldur, en hnapp, sem gerð-
ur var fyrir daginn og kostaði
25 cents gátu þeir keypt sem
I vildu bera eitthvað af kostn-
aði dagsins. — En í garðinum
var veitt ókeypis máltíð hverj-
um sem vildi. Við íslendingar
hrósum okkur af gestrisni. En
í þessu skortir mikið á, að við
jöfnumst á við Svíana, því ís-
lendingada gsnefndin okkar
hefir aldrei veitt gestum sínum
ókeypis máltíð. Eg býst ekki við
að þær 60,000, sem þarna voru
viðstaddar hafi etið máltíð en
gestir lengra að gerðu það efa-
laust. Og matsalurinn var lengst
af fullur af fólki.
Við gestirnir héðan að norðan
skemtum okkur vel með frænd-
unum. Ekki gafst okkur tæki-
færi að segja þeim af starfi okk-
ar hér eins og við vorum þó und-
irbúnir að gera. En við fórum í
þess stað með upplýsingar um
það til ritstjóra blaðs templara,
sem gefið er út á sænsku, og
vonum að sjá eitthvað af því þar.
íslendingurinn G. B j ö r n
Björnsson flutti á svenskarnas
Dag, eða Miðsumarhátíðinni, á-
varp og kveðjur, sem konsull ís-
lands.
Meðan á templara-hátíðinni
stóð, var einn daginn ekið út í
garð nokkuð út úr bænum, er G.-
templarar eiga og sem heitir
Goodtemplar Park. Er það garð-
ur 14 ekrur að stærð, með sam-
komuhúsi. Þar er og stórt
stöðuvatn og er fiskað í því.
Þetta er skínandi staður og ó-
efað málefni templara til mikils
góðs að eiga slíkan skemtigarð
fyrir útisamkomur sínar.
Annan dag var okkur sýnt
American-Swedish Institute, en
þar eru þau kynstur af lista-
varningi og munum, frá Sví-
þjóð, að langan tíma þarf til að
kynnast því. Þar má sjá iðn- og
athafnasögu Svíþjóðar, æði
greinilega. Datt mér í hug, að
gaman væri ef nefnd þjóðræknis
félagsins okkar, sem íslenzkum
munum safnar, hefði eitthvað
likt þessu að sýna. Eg á ekki við
stóreflis byggingu, eins og þarna
er um að ræða og hana mikið
til fylta með gömlum minja-
gripum og stóreflis bókasafni,
öllu þjóðlegu sem vert er að
geyma, eins og þarna er gert, en
samt einhverja íslenzka mynd af
þessu öllu á einum stað, þó
aldrei komist í jöfnuð við þetta
minjahús Svíanna.
Af íslendingum hittum við
Gunnar Björnsson og Valdimar
Björnsson, komum heim til
þeirra, drukkum þar kaffi og
skröfuðum saman. Á hátíðinni
úti í Minnihaha Park hittum
við Hjört Lárusson, er tók okk-
ur með valdi heim. til sín fyrir
kvöldverð, ók svo með okkur til
flugvallarins og skildi ekki við
okkur fyrir en við tröppur flug-
farsins. Á heimili þessa hógværa
listræna manns, var unun að
dvelja.
Þetta mun nú þykja full-langt
orðið. En ef til vill þarf eg síð-
ar að segja eitthvað um Minne-,
Rev. and Mrs. Eric H. Sigmar
Séra Eric H. Sigmar, prestur
lúterska safnaðarins í Glenboro,
sonur Dr. H. Sigmars í BÍaine,
Wash., og Lillian Svava Pálsson,
dóttir Wilhelms Pálsson í Ár-
borg, voru gefin saman 14. júní í
lútersku kirkjunni í Selkirk, af
föður brúðgumans. Við gifting-
una aðstoðaði og séra Sigurður
Ólafsson. Mrs. Sjigmar móðir
brúðgumans og Mrs. Elma Gísla-
son aðstoðuðu með söng. Mrs. L.
Martin, frænka brúðurinnar spil-
aði við giftinguna.
Veizla fór fram í samkomu-
húsi Selkirk-íslendinga.
Brúðhjónin tóku sér ferð á
hendur til Detroit Lakes, Minn.
en munu koma hér við og kveðja
skyldmenni og vini áður en þau
leggja af stað til Seattle, Wash.,
þar sem framtíðar heimili þeirra
verður. Heimskringla óskar til
lukku.
apilosborg, sem að svo mörgu
leyti er svipuð sett og Winni-
peg, en þessi munur er á, að
önnur er að verða miljónaborg,
en hin stendur í stað.
Að endingu þakka eg sam-
ferðamanni mínum A. S. Bar-
dal fyrir hans óbilandi glað-
værð og kæti og sem vaxandi
fer því lengur sem álíður og
hann eldist. S.E.
tTR BRÉFI
Frá Lundar, Manitoba
Hér dó aðfaranótt þess 19 þ.
m. öldungurinn, Sigurður Mýr-
dal yfir 90 ára að aldri. Hann
var gamall frumherji þessarar
byggðar. Fyrir nokkrum árum
hætti hann landbúnaði og flutti
til Lundar og nú síðustu árin
hefur hann verið á vegum
tengdasonar síns, Mr. Kára Byr-
on, sveitar oddvita. Sigurðar
verður efalaust minst nánar síð-
ar.
*
Emil Guðmundsson, presta-
skóla stúdent, var hér á ferð og
frú hans í heimsókn til foreldra
sinna, Björgvins Guðmundsson-
ar og Rannveigu Þorsteinsd. —
Emil hafði stutta viðdvöl hér.
*
Nú er Ottawa stjórnin að láta
telja öll manns-nef hér um slóð-
ir. Af útkomunni reiknar hún
svo, að líkindum, atkvæðin við
næstu kosningar, sem hún kann
að fá.
reisa sér ný heimili og gripa
hús. Framfarir hér hjá bændum
mega kallast miklar nú á síðari
tímum. Það má svo heita að allir
bændur hafi ný-tízku verkfæri
til landbúnaðar hér í bygð.
Beinsteinn í brössunum
Sgt. Darrel Bjornson frá
Camp Rucker, Alabama, og
frændi hans, Loren Bjornson frá
Minot, N. D., dvöldu hér í borg-
inni nokkra daga s. 1. viku. Þeir
voru í heimsókn til vina og
skyldmenna hér. Heimili Sgt.
Bjornson er í Moorhead, Minn.
ÚTSKRIFAÐUR
Harry Arthur Jonasson, B.A.
Þessi ungi ísendingur útskrif-
aðist sem Bachelor of Arts frá
háskóla Manitoba-fylkis.
Hann er sonur Mr. og Mrs. T.
Mr. Björn Björnsson, að Lauf- E. jónasson, 681 Home St., Win-
ási, Lundar, Man., hefir reist
ipeg. Hann hefir tekist á hendur
ser myndarlegt heimili a landar- . . .. _ . _ _
.r._ ... starf hia Royal Insurance Co.,
eign sinm, en rifið niður sitt
gamla heimili sem staðið hefur hér { bæ °g óska vinir °g vanda’
frá landnámstíð og orðið elli- menn honum allra heilla í fram-
hrumt. Fleiri bændur hér eru að tíðinni.