Heimskringla - 25.07.1951, Blaðsíða 3
WINNIPEG, 25. JÚLf, 1951
HEIMSKRINGLA
3. SÍÐA
VINSÆLT FRÆÐIRIT
Hin enska ljóðskáldasaga dr.
Richards Beck, “History of Ice-
landic Poets”, heldur áfram að
fá ágæta dóma íselnzkra og hér-
lendra bókmentafræðinga.
Dr. Alexander Jóhannesson,
rektor Háskóla íslands, ritaði
einkar vinsamlega umsögn um
ljóðaskáldasöguna í vetrarhefti
hins kunna ameríska bókmenta-
rits, “The American-Scandinav-
ian Review”, sem endurprentuð
var í “School of Education Re-
cord”, sem Kennaraskóli Há-
skólans í N. Dakota gefur út.
Þá hafa nýlega komið prýði-
legir ritdómar um bókina í tveim
öðrum merkum amerískum tíma-
ritum. í “Journal of English and
Germanic Philology”, eftir dr.
Adolph B. Benson, prófessor í
norrænum fræðum við Yale há-
skólann; og í “Scandinavian
Studies” eftir dr. Watson Kirk-
connell, forseta Acadia háskólans
í Nova Scotia. Hefir prófessor
Benson lagt mikla rækt við ís-
lenzk fræði og snúið á ensku úr
sænsku merkri bók um ísland, en
um kynni dr. Kirkconnells af ís-
lenzkum bókmentum og þýðing-
ar hans er óþarft að fjölyrða.
Allir fara fræðimenn þessir
hinum lofsamlegustu orðum um
ágætt málfar ljóðskáldasögunnar,
meðferð efnisins og fræðimensku
höfundarins.
Dr. Krikconnell byrjar ritdóm
sinn á þessa leið: “More than
twenty years of devoted and
scholarly labor have gone into
the making of this invaluable
survey of Modern Icelandic
poetry. It has likewise Ibeen
built on an exhaustive study of
all available material both on
this continent and in Iceland.”
Eftir að hafa rakið mentaferil
höfundarins í megindráttum,
segir dr. Kirkconnell ennfremur:
“After a quarter-century as an
American professor, he 'jis as
completely at home in English
as in Icelandic. The fact that he
himself is an experienced poet in
his mother-tongue has helped to
make him a sound and sensitive
critic of Icelandic verse. No.man
is better equipped to write this
volume for an American audi-
ence, and the performance is
worthy of his capacity.”
Báðir fara þeir prófessor Ben-
son og dr. Kirkconnell miklum
viðurkenningarorðum og aðdá-
unar um íslenzkar og vestur-ís-
lenzkar bókmentir.
Hvíta vofan
AMERÍSK FRÁSAGA
Verndarvætturinn
í Vestur-Þýzkalandi var ný-
lega handsamaður Þjóðverji,
sem gekk milli húsa og seldi
myndir af Stalin. Salan gekk
furðu vel því að hann hélt því
fram við kaupendur, að það yrði
þeim vernd gegn öllu mótlæti,
ef Rússar réðust inn í Vestur-
Þýzkaland, að hengja upp mynd
af Stalin á áberandi stað.
*
Gátan ráðin
Undanfarinn 32 ár hafa menn
við og við þótzt sjá skrímsli í
Loch Ness í Skotlandi.
Nú er mál þetta upplýst sam-
kvæmt tilkynningu flotastjórn-
arinnar. Árið 1918 voru fjöl-
mörg tundurdufl sett í vatnið í
rannsóknarskyni. Um 100 þeirra
sukku og náðust ekki upp, en
við og við hefir eitt og eitt flot-
ið upp og hafa menn þá talið, að
þar væri um skrímsli að ræða.
Um 40 dufl eru enn á vatnsbotn-
inum.
íslendingadagurinn í Blaine
/erður haldinn 29. júlí n.k. á
iama stað og áður, í Friðargarð-
num. f hátíð þessari taka þátt
Eslendingar í Vancouver, Bell-
ngham og Blaine. Söngflokkur
jndir stjórn Helga S. Helga-
;onar tónskálds, tekur þátt í
ikemtiskránni.
LESIÐ HEIMSKRINGLU—
bezta islenzka fréttablaðið
Mendon hafði fengið töluvert fé í föður-
arf, en hann hafði ekki kunnað að halda á því,
og var það því fyrir löngu fokið út 5 veður og
vind. Og Mendon var reiðubúinn til hvers er
vera skyldi, til þess að ná í auðæfi aftur, áður
en synir hans kæmust upp, því að hann fann
það, að hann var þannig skapi farinn, að hann
myndi una því illa, að þurfa að vera þeim háður
í fjárhagslegu tilliti.
Mendon reikaði fram og aftur eftir gang-
svölunum, er voru fram með miðju húsinu. —
Hann hélt höndunum fyrir aftan bakið, og var
auðsæilega mjög hugsandi. Allt í einu glumdi
við húrra-óp frá drengjunum, og varð Mendon
þá litið á eldri son sinn, er hljóp eftir knettin-
um, sem farið hafði yfir skíðgarðinn inn í garð
inn. Hann beit á vörina, og tautaði við sjálfan
sig:
“Hvað hann er fljótur að stækka, strákur-
inn! Mér finnst svo stutt síðan hann var í
vöggu, að eg gæti vel trúað því, að það hefði
verið í gær, og nú þarf eg ekki annað en sjá
hann, til þess að minnast þess, að eg hljóti að
vera farinn að eldast. Hvað myndi Adrienne
segja ef hún sæi stjúpsoninn, sem eg ætla henni
að eignast?”
Honum hafði orðið það ófjálfrátt, að
hækka röddina lítið eitt, er hann sagði þetta,
svo að kona ein, er komið hafði út á svallirnar,
án þess hann yrði þess var, heyrði til hans og
svaraði:
“Hvað gerir það til? Þú ert enn þá nógu
ungur og laglegur maður, Adolph, til þess að
geta krækt í fallegustu og ríkustu stúlkuna í
allri Louisiana”.
Kona sú, sem talaði, var auðsæilega komin
um eða yfir sextugt. Hún var há og tíguleg,
beinvaxin og svo fjörleg í öllum hreyfingum,
að mörg yngri kona hefði mátt öfunda hana
af því.
Hún hafði tvívegis gifzt, og eignazt sitt
stjúpbarnið með hvorum manni, en sjálf hafði
hún ekkert barn átt. Þegar hún giftist Mendon
hinum eldri, var Adolph sonur hans drengur á
sjöunda ári. Adolph var bæði efnilegur og elsku
legur drengur, og stjúpa hans þótt þvi þegar
mjög vænt um hann. Og henni þótti ávallt vænt
um hann, eins eftir það er hún varð ekkja, jafn-
vel þótt hann væri ekki samvistum við hana þau
árin, sem hann var hjá bróður sínum. Maddama
Crozat mat peningana fremst af öllu, og hún
hafði enga ósk heitari en þá, að eftirlætissynin-
um hennar mætti auðnast, að ná í auðæfi þau,
er mágkona hans lét eftir sig. Hún hélt því fram
að hann væri bezt að auðnum kominn, með því
að bróðir hans hefði hér um bil tvöfaldað eignir
sínar með hyggindum og stjórnsemi.
Eugene Mendon andaðist skyndilega, og
ekkja hans, sem upphaflega hafði átt eign þá
er þau bjuggu á, sat í óskiftu búi eftir hann, án
þess að nokkrum kæmi til hugar að ónáða hana.
Enginn af ættingjum mannsins hennar gerði
neitt tilkall til eignanna. En þegar maddama
Mendon giftist, og andaðist svo skömmu síðar
á mjög dularfullan hátt, þá var gerð tilraun til
þess, að ná að minnsta kosti helming eignanna
frá Lecour.
En Lecour vann málið fyrir dómstólnum,
sva að Adolph og stjúpa hans voru með öllu
orðin vonlaus um, að ná í arfinn, þar til nú, er
þeim hugkvæmdist allt í einu nýtt ráð til þess,
að fá óskum sínum fullnægt.
Á leiðinni frá New Orleans hafði Maddama
Crozath þegar geðjast mjög vel að Adrienne, og
orðið hrifin af yndisleik hennar og ljúflyndi.
Og Þe&ar hún komst að því, í hvaða sambandi
hún stóð við “mislita sauðinn” í ættinni, skýrði
hún undir eins stjúpsyni sínum frá því. En hann
hafði þegar tekið eftir því, hve óskiljanlega hún
var lík mágkonu hans.
Það er auðvelt, að ná trúnaði óreyndrar,
nítján ára stúlku, og það leið ekki á löngu áður
en hún hafði trúað maddömu Crozat fyrir því,
að hún hefði strokið burt úr klaustri því, er hún
hefði alizt upp í, og vonaðist eftir að fá að lifa
í friði og sælu hjá hinum ókunna ættingja sín-
um.
Maddama Crozat reyndi þegar að fá hana
ofan af því, að fara til Lecours, og bauð henni
að koma til sín, en eins og vér höfum áður séð,
sat Adrienne fast við sinn keip, og maddama
Crozat varð að láta hana ráða.
Þegar Mendon heyrði hana svara sér, sneri
hann sér allt í einu við, og mælti hálf-gremju-
lega:
“O, þér eruð of hlutdræg, maddama. Eina
stúlkan, sem eg kæri mig nokkuð um að ná í,
núna í svipinn, hefir látið mig finna til þess,
að eg er ekki lengur ungur—að hún kýs heldur
einhvern annan en mig!”
“Er hún trúlofuð, þessi vesalings stroku-
stúlka? Segðu mér hvað við bar í gær, Adolph.
Eg hefi átt svo annríkt, síðan eg kom heim, að
eg hefi ekki haft neinn tíma til þess að tala við
Þig-’ ’
“Það er ekki svo óeðlilegt, maddama”,
mælti hann hlæjandi, “því að Francois sagði
mér, að þér hefðuð farið um alla planterkruna
þennan síðastliðna sólarhring, til þess að líta
eftir öllu, orðið vör við ótal vitleysur og bætt
úr þeim öllum. Eg öfunda yður oft og tíðum af
því, hve dugleg og leikin þér eruð í allri bú-
sýslu”.
“Það á eg uppeldinu að þakka”, svaraði hún
rólega. “Hefði eg verið hálfum mánuði lengur
í New Orleans, þá hefði allt veirð komið á ring-
ulreið hér heima á plantekrunni—þvílík eyðslu-
semi og óregla, sem hér hefir átt sér stað á allan
hátt. Það er blátt áfram dæmalaust. En segðu
mér nú eitthvað um þessa ungu stúlku. Er nokk-
ur leið til þess, að við getum náð í hana hingað
til okkar?”
“Nei, ekki get eg skilið það. Og ef hún er
ástfangin í öðrum, þá er það líka gagnslaust fyr-
ir okkur”.
“Já, en það er ekki annað en bull. Hún hefir
bara orðið ofurlítið skotin í fyrsta karlmannin-
um, sem talað hefir við hana, eins og er svo ó-
sköp algengt með óreyndar og barnalegar stúlk-
ur. En slíkt á ekkert skylt við ást. Þú getur
fljótlega komið henni til að gleyma því, ef þú
ert svo einstaklega leikinn í.”
“Nei, þér gerið yður sannarlega of háar
hugmyndir um hæfileika mína í þá átt”, svar-
aði Mendon brosandi. “Eg er hræddur um, að
tómlæti hennar og tilfinningarleysi að því er
mig snertir, sé með öllu ósigrandi. Og auk þess,
við erum ekki alveg viss um sigur, þá eyðum við
tímanum til einskis, ef við erum að reyna að
hafa áhrif á hana. Og hversu vel sem mér lízt á
hana, þá get eg þó ekki gifzt henni, nema því
aðeins, að eg sé vissum að hún erfi Lecour. Þú
veizt það vel sjálf, að eg má ekki giftast nema
ríkri stúlku. Eg verð að ná mér í peninga.”
Maddama Crozat kinkaði kolli.
“Nú, já, það skil eg nú eins vel og þú. En
hvernig sem á henni stendur, þá er hún að
minnsta kosti bezti kvenkosturinn í Louisiana.
Ef hún er í raun og veru dótturdóttir gamla
Frakklendingsins, þá erfir hún auðvitað allar
eignir hans, og eins og þú veizt, getur hann ekki
átt langt eftir.”
“Það er alls ekki áreiðanlegt, að hann arf-
leiði hana að eignum sínum, því að honum var
það mjög þvert um geð, að taka hana á heimili
sitt. En þegar hann komst að því, að við vildum
taka hana til okkar, þá snerist honum undireins
hugur. Þá vildi hann fyrir hvern mun hafa hana
hjá sér.”
“Þú getur reitt þig á það, Adolph, að Le-
cour hefir líka tekið eftir því, hvað hún er ó-
skiljanlega lík konunni hans sálugu. Hann get-
ur ekki verið með öllu óvitandi um gömlu sög-
una, sem gekk hér einu sinni, og hann átti jafn-
hægt með að draga sínar ályktanir af því, eins
og við.
“En við vitum ekki nokkurn skapaðan hlut
með vissu, maddama. Þetta var ekki annað en
eins og hver önnur fjúksaga, sem aldrei fengust
neinar sannanir fyrir, og hefði svo verið, að
Louise hefði átt barn, sem enn væri á lífi, þá
hefði hún aldrei ofurselt þessum vandræðakarli
allar eignir sínar. Það er satt, að þær eru undar-
lega líkar, en það er áreiðanlega tilviljun ein
og hún getur á engan hátt, nema sem dótturdótt
ir Lecours, gert tilkall til arfsins—þessa mikla
arfs, sem eg var einusinni að vona, að yrði mín
eign.”
“Og sem skal verða þín eign, ef nokkurt
réttlæti er til”, mælti stjúpa hans einbeitt. “Eg
er jafn sannfærð um það nú, eins og áður, að arf
leiðsluskráin var fölsuð. Dómurunum, sem
dæmdu Lecour í vil, var mútað. Eg geri táluvert
meira úr tilkalli stúlkunnar til arfsins en það
lítur út fyrir að þú gerir, því að mér er kunnugt
um ýms atvik, sem benda á, að hún sé hinn rétti
erfingi.”
“Nei, er það satt? Eg hélt að þú hefðir feng
ið allan þinn fróðleik um þetta efni hjá mér.”
“Þú hefir gleymt henni Leonie, múlatta-
stúlkunni, sem fór með ungfrú Montreuil. til
Frakklands, og var þar þangað til eftir að ung-
frú Montreuil var aftur komin til Louisiana. Af
tilviljun varð hún hjúkrunarkona hjá fyrri kon-
unni hans Crozats sáluga, þegar hún lá banaleg-
una, var hjá henni, þegar hún dó ,og annaðist
svo um hana Paulínu, stjúpdóttur mína, þangað
til eg giftist honum.”
“Og hvar er hún nú? Hún getur veitt okkur
ómetanlega fræðslu um þetta.”
“Hún er hérna. En nú í svipin er hún ekki
svo, að hún geti gefið neina skýrslu. Hún hefir
aldrei viljað skilja við fósturbarn sitt, og þrátt
fyrir það, þótt hún væri mér ekki til mikils
gagns, lét eg hana fá kofakytru hérna, og leyfði
henni að vera. Hún hefir fengið ákafa hitasótt,
meðan eg var fjarverandi, og er nú alveg rænu-
'laus. Eg kom einmitt frá henni núna, og innan
um óráðsruglið kom nafnið Iouise Montreuil
oft fyrir ásamt öðru nafni, sem eg hefi heyrt
fyr. Þú mátt reiða þig á það, að henni er kunn
ilgt um þetta allt saman. Bara að við getum haft
einhver ráð til þess, að veiða það upp úr henni
. 1 Professional and Business Directory ~ J
Office Phone Res. Phone 924 762 * 726 115 Dr. L. A. SIGURDSON 528 MEDICAL ARTS BLDG. Consultations by Appointment DR. A. V. JOHNSON DENTIST • 506 Somerset Bldg. • Office 927 932 Res. 202 398
Talsími 925 826 Heimilis 404 630 DR. K. J. AUSTMANN Sérfræðingur í augna, eyrna, neís og kverka sjúkdómum 209 MEDICAL ARTS BLDG. Stafutími: 2—5 e. h. ANDREWS, ANDREWS, THORVALDSON & EGGERTSON Lögfrœðingar Bank of Nova Scotia Bldc. Portage og Garry St. Sími 928 291
Dr. P. H. T. Thorlakson WINNIPEG CLINIC St. Mary's and Vaughan, Winnipeg Phone 926 441 DR. H. W. TWEED Tannlæknir 508 TORONTO GENERAL TRUSTS building Cor. Portage Ave. og Smith St. PHONE 926 952 WINNIPEG
J. J. Swanson & Co. Líd. REALTORS Rental, Insurance and Finandal Agents Sími 927 538 308 AVENUE Bldg. — Winnipeg H. J. PALMASON & Co. Chartered Accountanta • 505 CONFEDERATION LIFE Bldg. • TELEPHOjVE 927 025
THE WATCH SHOP CARL K. THORLAKSON Diamond and Wedding Rings Agent for Bulova Watches Marriage Licenses Issued 699 SARGENT AVE. Rovatzos Floral Shop 253 Notre Dame Ave. Ph. 932 934 Fresh Cut Flowers Daiiy. Plants in Season We specialize in Wedding and Concert Bouquets and Funeral Designs Icelandic Spoken
WINDATT COAL CO. LIMITED Established 1898 506 PARIS BLDG. Office Phone 927 404 Yard Phone 28 745 A. S. BARDAL L I MIT ED selur líkkistur og annast um utfarir. Allur útbúnaður sá besti. Ennfremur selux hann allskonox minnisvarða og legsteina 843 SHERBROOKE ST. Phone 27 324 Winnipeg
CANADIAN FISH PRODUCERS Ltd. J. H. Page, Managing Director Wholesale Distributors of Fresh and Frozen Fish 311 CHAMBERS ST. Office Phone 26 328 Res. Phone 73 917 Union Loan & Investment COMPANY Rentctl, Insurance and Finandal Agents Sími 925 061 510 Toronto General Trusts Bldg.
M. Einarsson Motors Ltd. Distrihutors KAISER AUTOMOBILES The 1951 Kaiser C-ar is here Built to Better the Best on the Road IMMÉDIATE DELIVERY Showroom: 445 RIVER AVENUE Phone 44 395 & 43 527 GUNDRY-PYMORE Ltd. British Quality - Fish Nettlng 60 Victoria St., Winnipeg, Mcm. Phone 928 211 Manager: T. R. THORVALDBON Your Patronage Will Be Appreciated
The BUSINESS CLINIC (Anna Larusson) 308 AFFLECK BLDG. (Opp. Eaton’s) Office 927 130 House 724 315 Bookkeeping, Income Tax, Insurance Mimeographing, Addressing, Typing Halldór Sigurðsson & SON LTD. Contractor & Builder • 1147 Ellice Ave. Sími 31 670
MALLON OPTICAL 405 GRAHAM AVENUE Opposite Medical Arts Bldg. TELEPHONE 927 118 Winnipeg, Man. FINKLEMAN OPTOMETRISTS and OPTICIANS Kensington Bldg. 275 Portage Ave. Winnipeg PHONE 922 496
PRINCESS MESSENGER SERVICE Við flytjum kistur og töskur, húsgögn úr smærri íbúðum og húsmuni af óllu tæi. NEW ADDRESS: WHITLA Bldg., 70 ARTHUR ST. WINNIPEG, MAN. C. A. Johnson, Mgr Vér verzlum aðeins með fyrsta flokks vörur. Kurteisleg og fljót afgreiðsla. TORONTO GROCERY PAUL HALLSON, eigandi 714 Ellice Ave. Winnipeg TALSIMI 37 466
< S Gimli Funeral Home Ný útfararstofnun hefir tekið til starfa á Gimli. Hún er á lst Avenue — Sími 32 Heimilissími 59 Allur útbúnaður hinn fullkomnasti. Otfararstjóri: ALAN COUCH TBOS. .ItfkSÍU & SII\S LIMITED BUILDERS’ SUPPLIES COAL - FUEL OIL Phone 37 071 Winnipeg :