Heimskringla - 22.08.1951, Síða 1
r---------------------'
Toast Master
BREAD
Good For Toast or Table
At Your Neighborhood Grocer’s
V_____________________J
Toast Master
BREAD
Good For Toast or Table
At Your Neighborhood Grocer’s
c___________________
LXV ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 22. ÁGÚST, 1951
NÚMER 47.
Er forsætisráðherra að kveðja?
Áskell Löve:
ÁVARP Á GIMLI
á islendingadaginn, 5. ágúst 1951
Maður les með undrun frétt-
ina í stjórnarblaðinu Winnipeg
Free Press í gærkvöldi um það,
að forsætisráðherra Canada væri
a.ð hugsa um að kveðja kóng og
jar! og segja af sér stjórnarfor-
mensku.
Blaðið hefir þetta ekki eftir
íorsætisráðherranum sjálfum. —
En það veit samt um vilja vinar
síns í þessu efni. Og hann er
áreiðanlega sá, að segja embætt-
inu lausu á miðju komandi sumri.
Louis St. Laurent, stjórnarfor-
maður, er sjötugur 1. febrúar
1952 og þykist þá vera orðinn of
gamall til að snúast í að afgreiða
hinar mörgu kröfur, sem gerðar
eru á hendur stjórninni og það
sé bezt að hinir ungu taki við
því. í>eir eru hvort sem er tím-
ans herrar, sagði Jón Ólafsson.
Liberal flokkinum þykir þetta
alt annað en góður fyrirboði. —
Hann vill að sjtórnarformaður
hinkri við eitt eða tvö ár enn, að
kosningar fara fram. En St.
Laurent skoðar það óráðlegt.
Liberalar mega því undir eins
Frá Koreu
Um síðustu helgi, voru ekki
öll sund sögð lokuð í vopna-
hlésmálinu í Koreu.
Til marks um að svo væri
ekki, var bent á ræðu, sem Nam
II, yfirhershöfðingi Norður
Koreu hélt í útvarp og að efni
til var um, að koma mætti sér
saman um einhvern annan hlut-
lausan stað en 38 gráðu, úr því
Sameinuðu þjóðirnar vildu
hann ekki þar.
Þetta er í fyrsta sinni sem
kommúnistar hafa gefið í skyn
tilslökun á kröfum sínum.
Þeir sem bezt þekkja til þess-
ara mála, telja ástæðu fyrir því
þessa: Kommúnistar eru smeyk
ir við alheimsstríð, ef ekki verð-
ur af vopnahléssamningum nú.
En um það kæra kommúnistar
sig ekki, þessa stundina.
Stál bannvara
Bandaríkjastjórn er að semja
lög um bann á útflutningi á
stáli, er búist er við að í gildi
verði komin 1. október n.k.
Bann þetta er talið að hafa
hin verstu áhrif á iðnaðarstarf-
semi Canada. Fyrir því er þó
gert ráð, að stál til hernaðar-
vörugerðar, verði ekki takmark-
að.
Þetta er talin byrjun á frekari
höftun sem gera skal, vegna
væntanlegs stríðs.
Viðskifti Breta og Rússa
Sir Hartley Shawcross, for-
maður verzlunarráðs Breta, seg-
ir að Breilands sé fjari því, að
bindast nokkrum samtökum um
að stöðva viðskifti við Rúss-
land. '
Þessi orð hans voru svar við>
gagnrýni af hálfu Bandaríkj-
anna út af viðskiftum Breta og
Rússa.
Hann sagði Breta fá nauð-
synjavörur frá Rússlandi, er
þeir gætu ekki án verið eða
annarsstaðar fengið. Bandarík-
in gætu sjálf framleitt hana eða
fengið frá öðrum, eftir þörfum.
Bretar samþyktu þó að hætta
viðskiftum við Kína s.l. apríl,
vegna kröfu Bandaríkjanna um
það, en viðskiftin héldu áfram
við Rússland og gera enn.
Bretland talar og nú um að
kaupa auk alls annars 1,000,000
tonna af kornvöru frá Rússum.
fara að hugsa sér fyrir eftirmanni
hans. Það er og sagt, að þeir
hafi nú þegar um það hugsað, þó
þeir þykist engan vilja, nema nú-
verandi stjórnarformann. Sá sem
þeir hafa fyrst og fremst auga-
stað á, er einn af háðherrunum,
Clarence Decator Howe. Hann
kemur fyrst til greina. Annar er
J. G. Gardiner. En af báðum
þessum er nú æskuljóminn horf-
inn, því hinn fyrnefndi er 66, en
hinn síðarnefndi 69 ára.
Það sem eflaust er orsök þess-
arar stjórnarbyltingar er hækk-
andi vöruverð. Það eru meira en
litlar ákúrur, sem stjórnin hefir
orðið fyrir út af því og hafa
haldið að sér höndum og ekkert
gert til að reisa skorður við þeirri
stigamensku viðskiftanna. Það
hefir meira að segja nú gefið svo
á bátinn í þessu efni fyrir liberal
stjórninni að hún er lánsöm ef
hún siglir heilu og höldnu í höfn
við næstu kosningar. Aukakosn-
ingarnar á þessu ári munu vera
stjórninni minnisstæð bending
um hvert fyrir henni stefnir.
Setja Rússar þau skilyrði, að
kornið sé endurgreitt með tog-
leðri.
En það er hernaðarvara og
nokkuð, sem í taugar Banda-
ríkjanna fer.
En hér er ilt við að ráða.
Milli Hong Kong og Kína eru
viðskifti, þrátt fyrir bannið,
rekin í stórum stíl. Smyglkóng-
ar hafa risið upp í hundraða
tali og þeim fer ekki fækkandi.
Eftirlit Breta kvað í þeim efn-
um heldur ekki vera á marga
fiska.
Það er víst eitthvað bragð-
betra þetta korn Rússa, en korn
Canada.
Hearst fallinn frá
Með William Randolph Hearst
er s. 1. viku dó í Chicago, er einn
af einkennilegustu blaðamönnum
heimsins í val fallinn.
Hann var óneitanlega miklum
hæfileikum gæddur. Hitt er vafa-
samara hvernig hann notaði þá.
í vissum skilningi, eða eftir
nútíðar hugsunarhætti, má segja,
að blaðafyrirtæki Hearst hafi
hepnast. Hann varð miljóneri á
því. En spursmálið er hvort að
þjóðfélagið hagnaðist á því.
Það sem virtist takmarka þetta
áform Hearsts, var að hann tók
lítið tillit til þjóðfélagsins. Hann
átti í eilífri baráttu við einstakl-
inga og reyndi að útbreiða hatur
hjá þeim fyrst og fremst. Það er
ekki verkefni blaða. Enda kom
að því, að þjóðfélagið varð að
taka í taumana fyrir honum og
banna blað hans um tíma. Það
var og gert í Canada. Þetta var
að vsu á stríðstímum. En það
dregur ekkert úr því þó á hættu-
tímum væri, að það sé á öðrum
tímum eins óviðeigandi að vinna
að sundrungu þjóðfélagsins.
Á óhöppum sem henda menn,
hefir oft verið sterkt tekið í Chi-
cago Tribune, jafnvel þó ein-
staklingurinn eigi ekki einn alla
sök á því. Fyrirsagnir blaðsins
fólu oft í sér ótakmarkaða fyrir-
litningu og hatur, sem ekki gat
annað en meitt hlutaðeiganda.
En bezt hefir þó líklega þessi
fjandskapar stefna komið fram
í hatrinu til Bretlands.
Það fer auðvitað ekki hjá því,
að maður með hæfileikum og
valdi Hearst hafi ekki eitthvað
gott látið af sér leiða. Blaðaheim-
ur hans var sérstakur um margt
og þar átti margt upptök sín,
sem til fyrirmyndar hefir orðið.
Hann var óspar á að krækja í
góða og ritfæra menn og greiða
þeim hærra kaup en aðrir. —
Hann skildi hvað það varð fyrir-
tæki hans til mikils góðs. Og
þetta er ekki það eina, sem um
blaðaútgáfu hans var myndar-
legt, eða jafnvel myndarlegra en
hjá öðrum blaðakóngum.
SNJOLAUG' SIGURDSON
RECITAL SEPT. 10
Miss Snjolaug Sigurdson, New
York pianist, will give a recital
in First Lutheran Church, Sept.
lOth.
Miss Snjolaug Sigurdson,
well-known New York pianist,
will giv? a recital in the First
Lutheran church, September 10,
under the sponsorship of the
Icelandic Canadian Club Schol-
arship committee, the proceeds
to further the career of another
brilliant Winnipeg piano stu-
dent who will leave shortly for
advanced study abroad.
Not only will those who at-
tend this concert be assured of
listeniií^ to a consummate art-
ist perform for their enjoyment,
but they will be privileged to
participate in Snjolaug’s grac-
ious and unselfish gesture of
helping another worthy student
on the road to success.
Snjolaug was awared the Ice-
landic Canadian Club Scholar-
ship in 1946. She has spent the
last five years in N. York, and
has through her own efforts and
unusual musical talents manag-
ed to reach a high degree of art-
istry in her chosen profession,
and also a fair measure of suc-
cess in a difficult and highly
competitive field. Shé has giv-
en solo recitals in Brooklyn and
gave her debut recital in N.
York’s Times Hall, where she
received the warm acclaim of
New York critics, and the en-
thusiastic approval of the very
large audience. Each summer
on her visits to Winnipeg she
has been invited by the CBC to
give several recitals over their
coast-to-coast (and affiliated)
networks.
In the fall of 1947 (September
lOth, by a happy co-incidence)
Snjolaug gave a very success-
ful piano recital in aid of the
Icel. Can. Scholarship fund,
thus proving conculsively that
even before she herself was
well on the road to success, she
was willing and anxious to give
of her time and talent to help
other worthy and aspiring stu-
dents.
Watch for program announce-
ments for this interesting musi-
cal event, in the next issues of
the Icelandic weeklies and the
daily papers.
Holmfridur Danielson,
Chairman, Scholarship Com.
FRÁ ÍSLANDI
Heimili Matthíasar
Á undanförnum árum hefir
verið rætt um það að gera heim-
ili Matthíasar Jochumssonar að
minningarstað hans, og safna
þangað öllu því er unnt er nú að
fá og honum tilheyrði. Þetta er
mál, sem ekki má öllu lengur
draga að framkvæma. Eftir því
sem tíminn líður fyrnast þeir
hlutir, sem á skáldið minna og
nú eru komnir víða. Umbætur á
húsinu hafa verið gerðar og
frekari umbætur eru knýjandi.
Það má því búast við að því
meiri umbætur sem gerðar eru á
húsinu á meðan það er einka-
eign því meira fjarlægist það
þeirri mynd er það hafði
á meðan skáldið hafði þar ból-
festu.
Nú hefir ríkið gert upp
nokkra gamla sveitabæi (svo
sem Grenjaðarstað og Glaumbæ
í Skagafirði) til þess að halda
við með þjóðinni byggingarstíl
undanfarinna alda.
Hví þá ekki eins að gera Sig-
urhæðir að einum slíkum minn-
ingarstað um eitt hið mesta
stórskáld sem íslendingar hafa
átt.
En tíminn líður og smátt og
smátt firnist yfir vörðubrotin,
ef ekki er hresst við þeim.
—íslendingur 25. júlí
*
Var tæpar 19 stundir til Alaska
í morgun lagði flugvélin
Aries 3, af stað frá Keflavík til
Alaska. Þetta er sprengjufluga
úr brezka flughernum. Hún er
af Licoln-gerð. Var flogið um
norðurheimskautið til Eielson-
flugvallar í Alaska, um 3500
mílur, og tók flugið tæpar 19
stundir.
Bensínbirgðir flugvélarinnar
nægðu til 24 stunda flugs. Á-
höfnin er 10 manns.
—Mbl. 25. júlí
*
Nýir prófastar
Prófastar hafa verið skipaðir
frá 1. júlí þeir séra Jón Auð-
uns, sem verður dómprófastur
í Reykjavík í stað séra Bjarna
Jónssonar og séra Þorsteinn B.
Gíslason í Steinnesi, prófastur
í Húnavatnssýslu prófastsdæmi
í stað séra Björns Stefánssonar
á Auðkúlu.
*
Móðurskip rússneska síld-
veiðiflotans hér við land, —
TUNGUS, liggur á miðju
Grímseyjarsundi. Skipið virðist
vera um 10 þús. tonn að stærð
af svonefndri Liberty-gerð. —
Rússnesk veiðiskip munu vera
mörg á miðunum fyrir Norður-
landi og stuitda reknetaveiðar
aðallega. Veiðin er söltuð í
móðurskipinu, og vinnur margt
kvennfólk þar að söltuninni.
—fsl. 25. júlí
*
Brezkur skipstjóri dæmdur á
Seyðisfirði í 75 þús. kr. sekt fyr
ir landhelgisbrot. Varðskipið
Sæbjörg tók skipið austan við
Langanes. Skipstjórinn neitaði
brotinu og áfrýaði dómnum.
—íslendingur 25. júlí
*
Sláttur sennilega almennt
hafinn um síðustu helgi
Búnaðarfélagið gerði ráð fyr-
ir, að sláttur yrði almennt haf-
inn um land allt um s.l. helgi.
Spretta á túnum hefir yfir-
leitt verið hæg og er enn víð-
ast með lélegra móti. Víða, eink
um í Eyjafirði og einnig á Aust
urlandi, aðallega Héraði, eru
menn búnir að hirða talsvert.
Kæra Fjallkona, herra forseti,
góðir Vestur-fslendingar!
Mér er það sönn ánægja að
hafa fengið aðstæður til að mæta
svo mörgum ykkar hér á Gimli á
hinum fyrsta íslendingadegi eft-
ir komu mína til Canada. Að
vísu get eg ekki mælt til ykkar
nein opinber kveðjuorð né held-
ur heilsað ykkur frá stórmenni
heima, til þess hefi eg ekki um-
boð, en í stað þess get eg glatt
ykkur með því að segja ykkur,
að eg hefi fyrir löngu týnt allri
tölu á þeim hinum mörgu heima,
sem báðu mig að skila kveðjum
til ættmenna og vina einhvers-
staðar í Manitoba. Eg er að auki
búinn að gleyma nöfnum flestra
þeirra, sem kveðjurnar áttu að
fá, get ekki heldur auðveldlega
grafið upp, hverjir báðu mig fyr-
i ír þær. Mér þykir þetta að vísu
I leitt, en í staðinn vil eg grípa
! tækifærið og biðja ykkur, sem
| hér eruð stödd, að taka við heild-
arkveðjum íslenzkrar alþýðu og
bera þær áfram til hinna, sem
heima sitja, því að lang flestar
voru kveðjurnar frá íslenzku al-
þýðufólki austan hafs til íslenzks
alþýðufólks vestan hafs, til syst-
kina, frænda og vina. Og þótt
þið heyrið sjaldan frá þeim bréf-
lega, get eg fullvissað ykkur um,
að frændur ykkar og vinir á eyj-
unni gömlu norður í Dumbshaf-
Er það á bæjum þar sem sláttur
gat byrjað fyrir 2 — 3 vikum.
Dæmi eru þess, að tún hafa ver-
ið alhirt, t. d. í Vogum við Mý-
vatn og hér á Seltjarnarnesinu.
Að þessu sinni hefir komið í
ljós mjög skýrt, sem raunar
fyrr, hve mikilvægt er að koma
tilbúna áburðinum á túnin
snemma vors, en hins er að geta
að í vor var víða við nokkura
erfiðleika að etja að ná tilbúna
áburðinum heim á bæina nógu
snemma.
Töðufengur mun víða verða
talsvert minni en vanalega, ekki
aðeins vegna lélegrar sprettu,
heldur og vegna kals, en eink-
um hefir borið á kali á halla-
lausum túnum.
—Vísir, 19. júlí
KIRKJUÞING Á GIMLI
Framh.
3. Grein: Tillaga frá séra E.
J. Melan, studd af Miss Elin
Hall, að þessari grein sé vísað
til nefndarinnar aftur til frek-
ari íhugunar á því atriði hver
skuli kjósa fulltrúa og hver
skuli borga kostnaðinn við
ferðina. Samþykt.
4. grein: Tillaga frá Miss
Hlaðgerði Kristjánsson, að þessi
grein sé samþykt. Studd af Miss
Guðbjörgu Sigurðsson. Til
máls tóku séra E. J. Melan og
Stefán Einarsson. Tillagan bor-
in upp til atkvæða og samþykt.
5. grein: Séra E. J. Melan
lagði til og Stefán Einarsson
studdi, að þessi grein sé samþ.
Til máls tóku þeir G. O. Einars
son, G. B. Magnússon, séra E.
J. Melan gerði þann viðbætir
við tillöguna, að fundur verði
kallaður daginn fyrir íslend-
ingadaginn í sumar, og á þeim
fundi skuli rætt um það, hvort
væri nokkur leið til þess, að fá
Emil Guðmundsson til þess, að
þjóna Wynyard söfnuði, sem
kirkjufélagsprestur. Var svo til
inu kalda hugsa oft og einatt
hlýtt og innilega til ykkar.
Við höfum nú dvalið hér á
botni hins forna Agassiz'-vatns í
liðlega hálfan annan mánuð, og
reynsla okkar af náttúru landsins
og fólkinu er svo góð, að við get-
um hiklaust fullyrt nú þegar, að
bæði hið líkamlega og andlega
loftslag er hér langtum betra en
heima í Reykjavík. Kannske er
það sólskinið og skorturinn á
umhleypingum hér, sem gerir
fólkið glaðara og ánægðara og á
allan hátt elskulegra, ekki veit
eg, og hver veit nema þið séuð
öll umsnúin á veturna. Og þótt
loftslag sé hér gott að sumarlagi
og öll náttúran unaðsleg og fólk-
ið gott, er vafalaust réttast að
fella engan dóm um gæði lands-
ins og loftslagsins fyrr en að
liðnum vetri. Dag skal að kvöldi
lofa, en mey að morgni, segir þar,
og vafalaust má bæta við: og
Manitoba að liðnum vetri.
Góðir landar! Við þökkum
ykkur fyrir þá ánægju, sem okk-
ur er veitt með því að fá að vera
gestir ykkar í dag á þeim stað,
sem himneskast nafn ber á okkar
máli. Og það er ósk okkar og
von, að við eigum eftir að hittast
hér oft og mörgum sinnum á
ókomnum árum til að tala ást-
kæra ylhýra málið og heyra sung-
in þau ljóð, sem ljúfust hafa ver-
ið kveðin á íslenzka tungu.
lagan borin upp til atkvæða með
þessum viðbætir og samþykt.
Klukkan var nú orðin 4 e.h.
og boð komu inn á þing frá
kvennfélaginu þess efnis, að
kaffi væri til reiðu í samkomu-
húsi Gimli safnaðar og bað það
þinggesti alla að gera svo vel
og neyta þess. Forsetinn ákvað
þá fundarhlé svo fólk gæti hag-
nýtt sér boðið.
Klukkan fjögur og þrjátíu,
setti svo forseti þingfund aft-
ur.
Tillaga kom frá G. P. Magn-
ússon, sem var studd af E. J.
Scheving, að þinggestum sé
veitt full þingréttindi til að
taka þátt í málum þó þeir væru
ekki erindsrekar neins safnað-
ar. Það var samþykt.
Þriðja lið í útbreiðslu nefnd-
arálitinu hafi verið vísað til
nefndarinnar aftur til frekari í-
hugunar. Hafði nú nefndin lok-
ið við starf sitt og hljóðar nú
liðurinn eins og hann birtist
breyttur hér að framan, var
hann þannig viðtekinn og samþ.
samkvæmt tillögu frá séra E. J.
Melan, sem var studd af Miss
Hlaðgerði Kristjánsson.
Séra E. J. Melan lagði til, og
Mrs. Anna Arnason studdi, að
stjórnarnefnd kirkjuf. sé falið
að hlutast til um, að hægt verði
að útvarpa einni eða tveim
messum á árinu. Var sú tillaga
samþykt.
Séra E. J. Melan lagði til, að
fundi yrði nú frestað þar til kl.
9 á sunnudagsmorguninn þann
fyrsta júlí, til að gefa þeim
nefndum, sem enn hafa ekki
lokið starfi sínu, tíma til að
Ijúka við sitt verk. Sú tillaga
var samþykt.
Sagði þá forseti fundi frest-
að þar til kl. 9 næsta morgun og
bað þær nefndir, sem enn hefðu
ekki lokið starfi sínu að taka til
starfa og hafa álit sín tilbúin
í þann tíma.