Heimskringla - 28.11.1951, Blaðsíða 5

Heimskringla - 28.11.1951, Blaðsíða 5
WINNIPEG, 28. NOV. 1951 HEIMSKRINGLA 5. SÍÐA sögnum úr lífi liðinna kynslóða, um athafnir þeirra og lífskjör, sorgir þeirra og gleði, trú þeirra og hjátrú. Þá vakti og umhverf- ið hjá mér lifandi áhuga, sjór- inn með sínum hamförum, stór- brotið landið, gróðurinn, dýrin, atvinnulífið og mennirnir, ekki síst þeir sem fullorðnir voru, en af þeim gáfu sér best tóm til að sinna mér, spurningum mínum og hugleiðingum, það fólk, sem aldrað var orðið . . .” Úr þessum fjölbreytta efnivið spinnur Hagalín góðar og skemmtilegar frásagnir. —Mbl. 21. október * Ævar Kvaran fer til Bandaríkj. Það hefir verið ákveðið að Ævar Kvaran leikari fari til Bandaríkjanna í boði því, sem íslenzkum listamanni var gert. Fer hann vestur í fyrstu viku febrúar, og mun dvelja í Banda-i ríkjunum í þrjá mánuði og kynna sér þar leiklist. —Tíminn 9. nóvemeber * Styrkir til náms í Kanada og Noregi. Ráðuneytið hefir veitt Krist- ínu Helgadóttur cand. med. fjögur þúsund kr. styrk úr Kan- adasjóði til framhaldsnáms í læknisfræði (barnasjúkdómum) í Winnipeg. Ingvar Emilsson stúdent hefir hlotið 2250 kr. styrk úr Snorrasjóði til náms í hagfræði við háskólann í Berg- en og Ingvar Hallgrímsson stúd ent 2250 kr. styrk úr sama sjóði til fiskifræðináms í Osló —Tminn 8. nóv. ★ Fóru til rjúpna í flugvél í fyrradag sáu menn, er voru að ganga við rjúpur norðan í Ármannsfelli, að flugvél kom úr suðri og lækkaði flugið. Sveim- aði hún yfir sandinum nokkuð norður af Sandklyftavatni og lenti síðan þar á sandinum. Fóru rjúpnamenn, sem staddir þar uppi í hlíðum áleiðis til flug vélarinnar, því að þeim datt í hug, að einhverrar hjálpar þyrfti með. En þegar flugvélin hafði numið staðar, snöruðust út úr henni tveir eða þrír menn og höfðu haglabyssur meðferðis. Gengu þeir síðan upp í hlíð að huga að rjúpu. En líklega hefir veiðin orðið lítil eins og hjá flestum á þessum sloðum þann daginn. En það er annars hin skemtilegasta nýjung að skreppa til rjúpna á flugvél. —Tíminn 9. nóv. * Rússinn samdi og er farinn úr Eyjum Rússneska síldveiðiskipið sem lengst af hefir beðið í Vest- mannaeyjum er nú farið heim á leið. t»að var Áki Jakobsson, sem kom til Eyja og leysti skipið út og kom á sættum um björgunar- laun fyrir skipið. Samdi hann af hálfu rússneskra stjórnar- valda, en Jón Hjaltason lögfræð ingur af hálfu Vestmannaeyja- bátanna tveggja, sem björguðu skipinu. Mún að lokum hafa orðið sam komulag um, að Rússar greiði milli 90 og 100 þúsund krónur í björgunarlaun. —Tíminn 8. nóvember * Sovétríkin banna útflutning á hvers konar vísindaritum Frá og með byrjun næsta árs koma til framkvæmda í Ráð- stjórnarríkjunum nýjar og ó- vanalegar útflutningshömlur. Menn eru löngu hættir að kippa sér upp við það, þótt Rús- sar reyni með öllu móti að hindra það, að menn geti kynnzt landi þeirra af eigin reynd, stofnunum þeirra, framförum, fólkinu, nema af frásögn komm- únsta — eða þá í bezta lagi, að menn fengju að ferðast eitthvað um í löndum Rússa undir ströngu eftirliti. Kommunistar í Rússlandi hafa vakið á sér al- heims athygli fyrir að banna rússneskum konum sem gifzt hafa erlendum mönnum, að fara úr landi með eiginmönnum sín- um, eða til þeirra, séu þeir komnir heim til síns lands. Mætti svo lengi telja. Nú hafa Rússar bannað út- flutning á flestum helztu vís- indaritum landsins. Það á að girða fyrir það með öllu, að jarð fræðingar, efna- og eðlisfræð- ingjar annara þjóða og slíkir menn, geti fylgzt með þróun- inni í þessum efnum í Rúss- landi. Til þessa hafa vísinda- menn annara þjóða getað fylgzt með ýmsum mikilvægum upp- götvunum og kenningum rúss- neskra vísindamanna. Nú á að| koma í veg fyrir sb'kt. Og með ráðstöfunum j þessu efni er sýnt að fullyrðingar Zverniks og fleiri Sovét-leiðtoga um að ráð- stjórnin hafi áhuga fyrir að slík upplýsingastarfsemi þjóða milli skuli sem frjálslegust, eru blekkingar einar. —Vísir 24. okt Nýlega veiddist við Noregs- strendur föngulegur hvalur sem vó um 70 smálestir. Danskur heildsali, Sögaard að nefni, keypti hvalinn og lét flytja hann til Kaupmannahafn- ar, þar sem hann er til sýnis. Nýru hvalsins vega 1000 pund, hjartað 1200, lifrin 1800. Lungu hvalsins rúma 14,000 ten.metra af lofti en blóðið er 8—10,000 lítrar. Sögaard varð að greiða 100 þúsund d. krónur fyrir hvalinn að meðtöldum flutnings kostnagi til Kaupmannahafnar. —Vísir JÓNAS TRYGGVI (Jónasson) 1863 1951 Með brottför Jónasar Tryggva voru a£ sjónarsviði jarðlífsins, er slit- inn einn af hinum síðustu lifandi þáttum, í því bandi, sem tengir okkar kynslóð við “Æfintýrið frá íslandi til Brasilíu”. Jónas var fæddur 10. júlí, 1863 að Grímsstöðum við Mý- vatn. Foreldrar hans voru: Jón- as Hallgrímsson og kona hans Sigríður Jónsdóttir. (Sjá um ætt þeirra hjóna í “Æfintýrið frá ís- landi til Brasilíu” eftir Þ. Þ. Þorsteinsson, bls. 122-123). Um mánaðamótin, júní og júlí fer Jónas, faðir Jónasar Tryggva með þremur öðrum mönnum að heiman, áleiðis til Akureyrar, þar sem þeir nokkru síðar tóku sér far með skipi er flutti þá á- leiðis út í “Æfintýrið”. Skipið sigldi frá Akureyri 11. júlí, en þá var Jónas Tryggvi eins dags gamall. Sáust þeir feðgar aldrei, því Jónas eldri dó í Brasilíu 13. apríl 1870, án þess að koma því áformi sínu fram að ná fjöl- skyldu sinni frá íslandi. Jónas Tryggvi ólst upp hjá Hálfdáni á Grímsstöðum, föður Jakobs Hálfdánarsonar, hins nafn nafnkunna athafnamanns og brautryðjanda í samvinnumálum Þingeyinga. Hefir Jónas hlotið þar gott uppeldi og gekk hann á Möðruvallaskóla. En til Canada fór hann kringum árið 1887. Var hann eitthvað fyrst í Winnipeg en flutti þá vestur að Kyrrahafi og átti heima í Vancouver og Victoria. Var nokkur ár í Can- hernum. Síðar flutti hann til Bandaríkjanna og bjó á Point Roberts og í Blaine og Bell- ingham. Stundaði hann fiski- veiðar og aðra algenga vinnu. Kona Jónasar var Solveig Georgsdóttir, systir Daníels verzlunarmanns og Georgs, læknis. Dó hún á heimili barna sinna í Seattle, árið 1943. Þau Jónas og Solveig eignuð- ust 8 börn. Eru þau, eftir ald- ursröð: 1. Herman, býr í New York borg, 2. Sara, kenslukona, í Spokane, Washington. 3. Oliver, Lieutenant Command- er, U. S. Coast Guard Reserve Býr í Tacoma, Wash. 4. Dr. Carl, Lieutenant Colonel, U.S. Medical Corps Reserve. Býr í Seattle, Wash. 5. Una, (Mrs. Walton), býr í Seattle. 6. Einar, býr í Ephrates, Wash. 7. Elin, dó ung í Bellingham. 8. Harold, býr í Detroit, Mich. Auk þessara barna lifa afa sinn tvö barnabörn. Ættarnafn þessara barna Jón- asar er Tryggvi, því hann tók sér síðara skírnarnafn sitt að ættnefni. Jónas Tryggvi átti tvo bræð- ur: Hallgrím, gagnfræðis- og búnaðarskólanema á Hólum, þar sem hann dó úr mislingum, 1882 og Hermann, er varð búfræðing- ur og skólastjóri á Hólum, rit stjóri, alþingismaður og rithöf- undur. Dvaldi hinn síðarnefndi hér fyrir vestan haf um skeið og er því Vestur-íslendingum kunn- ur. Jónas Tryggvi var góðum gáf- um gæddur, eins og ferill ætt- ingja hans og afkomenda bendir ótvírætt til. En hversdags annir, stór barnahópur og þar af leið- andi fremur þröng efni með köflum, hindruðu hann frá því að rækta þær til nokkurrar hlít- ar. Hann var frjálslyndur í skoðunum og athugull um margt. En ljóðum og söng unni hann öðru fremur. Hann söng hér vestra með íslenzkum söng- flokkum og stjórnaði söngflokk um tíma. Nokkur sönglög samdi hann sjálfur og var eitt þeirra spilað á fíólín við jarðarför hans í Bellingham 9. september, síðast liðinn. Vonandi er að börn hans sjái til þess að sönglagasmíði föður þeirra gleymist ekki eða glatist. Gjarnan hefði eg kosið að kynnast Jónasi fyr á æfinni og meir en raun varð á, því fund- um okkar bar sjaldan saman og alls ekki fyr en á efri árum hans. Er eg sannfærður um að saga hans væri þess verð að vera sögð fyllri og með skýrari dráttum en hér er gert vegna þess að per- sónuleg kynni mín af honum voru svo takmörkuð og önnur gögn fá fyrir hendi. Nú er hann lagður af stað í ferðina, þar sem allar manna leiðir “víkja að sama þunkt”, hvort sem þær hefjast í Brasilíu eða á íslandi. Guð fylgi þér, góður fslend- ingur út í æfintýrið mikla. — A. E. K. máli farinn eins og bezt sannað- ist á íslendingadeginum í sum- ar sem leið, en þar mælti hann fyrir minni fslands. Annað til skemtuar verða hljómplötur frá íslandi og gefst fólki þar kostur á að hlusta á Elsie Sigfúss, Ein- ar Kristjánsson, Stefano íslandi og Karlakór Reykjavíkur. Vonandi er að meðlimir og velunnendur Fróns sæki þennan fund sem bezt. H. Thorgrímsson ritari “Fróns ★ ★ ★ The Women’s Associationtof the First Lutheran Church, Victor Street will hold their “Annual Christ- mas Tea” in the church parlors Wednesday, Dec. 5, from 2.30 to 5 and from 7.30 to 10 p.m. Mrs. V. Jonasson, president, and Mrs. V. J. Eylands, with the general convenors: Mrs. A. H. Gray and Mrs. Quiggin, will receive the guests. Home Cooking — Mrs. H. Taylor, Mrs. Boline, Mrs. Coor, ey. Handicraft — Mrs. J. Ander- son, Mrs. Olsen, Mrs. J. Ingi- mundson, Mrs. Isford. Candy — Mrs. C. Sigmar, Mrs. Frederickson. White Elephant: Mrs. F. Thordarson, Mrs. W. Potruff. Tea Table Captains — Mrs. G. Finnbogason, Mrs. R. Broadfoot, Mrs. P. Sivertson, Mrs. Richard- son. Come and bring vour frinds. Einkennilegar og vel gerðar vísur Haustvísa Úti er leikur — andans flug aðeins veikur þytur. Söknuð eykur hljóðum hug haustsins bleiki litur. Ólína Jónasdóttir (Úr. fsl.) Sauðárkróki HITT OG ÞETTA Viðhafnarstrandgata Chicago átti að bera nafn Leifs Eiríkssonar Chicago-búar halda því fram, sð strandgatan meðfram Michi- ganvatni sem er margir km. á lengd, sé hin fegursta í heimi. Þeir eru að vísu mikið fyrir að taka upp 1 sig. En þetta er þeirra skoðun. — Þeir hafa vafalaust nokkuð til síns máls, segir frétta- rtiari “Aftenposten” í Oslo, Theo Findal. Hann leggur ekki út í neinn samanburð á þessari viðhafnar- Dr. R. Marteinsson heiðraður götu og öðrum fögrum götum í Dr. Rúnólfur Marteinsson var, heimsborgum. En eitt sérkenni er FJÆR OG NÆR heiðraður s. 1. föstudag á fundi Icelandic Canadian club í Fyrstu lút. kirkju með því, að vera gerð- ur að lífstíðar félaga klúbbsins. Við þetta tækifæri hélt John Laxdal kennari ræðu um starf sr. Rúnólfs í menningarmálum ís- á götulífinu þarna, segir hann. Þarna eru engir gangstígir, af þeirri einföldu ástæðu, að þar í borg er það úrelt orðið að ganga sér til hressingar. Bílaþyturinn yfir malbikuðum götum er hinn nýi tónn í Ameríkusöngnum og frá ýmsum Norðmönnum um það, hvernig stafa ætti nafn Leifs á götunni. Sumir vildu að þai stæði “Leifr Eiriksson”, aðrir vildu hafa það Eirikson, aðrir vildu ekki hafa Eiríksson með ei, heldur Erikson, og sumir vildu að það væri stafað með ch, Erich- son, svo komu aftur aðrir sem vildu að það væri stafað Leivr Eiríksson. Nefndin, sem hafði þetta mál með höndum, vissi hvorki upp né niður og botnaði ekkert í hvað Norðmennirnir vildu í þessu efni. Þá kom fram rödd frá dönskum tannlækni, er taldi rétt- ast að gatan væri kend við Leif Eriksen. Þetta fanst nefndinni heillaráð, því þetta ættarnafn er vel kunnugt í Chicago. En þessi tillaga kom ekki á neinum sættum meðal Norð- manna. Deilan gaus upp, hvað eftir annað þeirra í milli, hvern- ig stafa ætti nafn Leifs. Svo þetta varð til þess, að nafnið var strikað út úr göturegisteri Chi- cago-borgar, en gatan látin heita í staðinn Hotel Drive. Leifur tapaði, Columbus vann,j segir hinn norski blaðamaður. En ítalir í Chicago risu nú upp og voru ekki í rónni fyrr, heldur en þarna var komin mikil stand- mynd af Columbusi og Columbus Avenue í borginni. Þessu gátu þeir komið í kring enda þótt að margvísleg réttritun sé á Colum- bus-nafninu, er var ítali að ætt, eins og kunnugt er, sigldi undir spönskum fána og nam lönd fyrir Spánverja. En ítalir kæra sig fjandann um, hvort nafnið er skrifað Christopher Columbus, eða Kristófer Kolumbus, með K, enda þótt sá ritmáti sé hvorki ítalskur né spænskur. ítalirnir kalla hann Christo- foro Colombo, og Spánverjarnir segja Christobal Colon, en bæði Spánverjar og ítalir þar vestra, höfðu vit á að vekja engar deilur um hvernig ætti að rita nafnið. Og þess vegna sigruðu þeir. Norðmennirnir hefðu átt að láta sér þetta að kenningu verða, og lofa Chicago-búum að nefna fegurstu götu sína eftir Leifi, VOPNAHLÉ HAFIÐ Á miðvikudagskvöld (28. nóv.) var vopnahlé hafið á bardaga- svæðum Kóreu. Hershöfðingj- arnir höfðu fengið skipun um þetta, en fréttina var þó ekki bú- ið að senda út til fregnstofa sem staðfesta af heryfirráði. jafnvel þótt það yrði Leif Eric- son. Hinn norski blaðamaður, sem gerir sér þetta að umtalsefni, gerir sér ekki neina grein fyrir afstöðu íslendinga til þessa máls því í hans augum er Leifur norsk ur og aldrei annað.—Mbl. 10. okt. Kveðið við komu nýja Þórs Við komu nýja varðskipsins Þórs til Reykjavíkur nýlega, varð þessi kveðlingur til: “Vaxa grið og gæfa stór, greiðist margur vandi, ef að getur þessi “Þór” þjófa hrætt frá landi.” Margir karlmenn hafa játað, að kvonbænir séu eitt af því örð- ugasta, sem þeir hafi nokkurn tíma lent í. Sumir hafa gripið til kyndugra úrræða til að forðast þær. Læknir einn sendi t. d. stúlku, sem hann elskaði, rönt- genmynd af hjartanu í sér og skrifaði á meðfylgjandi miða þessi orð: “Þú getur fengið hjartað sjálft, ef þú kærir þig um.” Steve Indriðason frá Mountain, N. Dak., er eins og áður hefir verið getið umboðsmaður Hkr. og annast innheimtu og sölu blaðs- ins í þessum bygðum: Mountain, Garðar, Edinburg, Hensel, Park River, Grafton og nágrenni nefndra staða. Allir í nefndum bygðum, bæði núverandi kaup- endur og þeir, sem nýir áskrif- endur hyggja að gerast, eru beðn- / ir að snúa sér til umboðsmanns- ins S. Indriðason, Mountain, N. Dak., með greiðslur sínar. . EXPECT RIGID ENF0RCEMENT 0F TRAFFIC LAW$ Automobiles are becoming more essential and indispensable to the business o£ making a living. They are becoming more numerous and, because of their power and speed pontentialties, more dangerous. Without rigid rules, traffic would be chaotic and the accident toli gigantic. It is more necessary than ever that all rules be rigidly enforced. The responsible motorist will observe the rules because he respccts the rights of other motorists and knows that he must operate his car in an orderly manner. Published in the interests of public safety by SIIEA’S WIIIPEG HREWERV LTD. MD-300 lendinga. Forseti Icelandic Can-. hljómar allan sólarhringinn við adian club Dr. Wilhelm Kristj-1 Michigan-vatn. ánsson mælti nokkur hlý orð til sr. Rúnólfs. Einsöngva sungu Miss Ingunn Bjarnason og Albert Halldórson. Sr. Rúnólfur þakkaði heiður- inn og óskaði klúbbnum til ham- ingju í hinu góða starfi, sem hann væri að vinna. * * * Arsfundur Fróns Fyrir nokkru kom það til orða að nefna þessa götu eftir Leifi Eiríkssyni. Allir Chicago-búar, af norskum ættum, urðu himín- lifandi yfir þessari tillögu. Stór standmynd var reist af þessum fræga sjófaranda í Humbolt- garðinum. Eftir miklar bolla- leggingar og áróður í borgar- stjórn og öðrum stofnunum bæj- Eins og sagt var frá í síðasta arins, var ákveðið að fegursti blaði verður ársfundur deildar- hluti þessarar fegurstu götu ætti innar haldinn í G. T. húsinu á mánudaginn 3. des. n. k. kl. 8.15 e. h. Eitt með öðru sem fyrir fund- inum liggur verður kosning em- bættismanna til næsta árs. Að loknum fundarstörfum fer fram ágæt skemtiskrá og verður að heita eftir manninum sem fyrst fann Ameríku, Leifi Ei- ríkssyni. En þó hinir norsk-ættuðu Chi- cago-búar væru hrifnir af þessari hugmynd, um nafngiftina, var það fjarri því að málið væri leyst frá þeirra hendi, eftir því sem meginþáttur hennar ræða flutt, segir í endurminningum eftir af Birni Jónssyni lækni frá Bald- j ejnn Chicago-Norðmann Birgir ur, Man. Björn læknir er með afbrigðum fróður um íslenzkar bókmentir og mun hann velja Osland að nafni. Jafnskjótt og tilkynt hafði verið, þessi ákvörðun borgar- sér þær að umtalsefni °S (stjónaryfirvaldanna, streymdu auk þess er hann p.rýðilega vel tjnögur til borgarstjórnarinnar VERZLUN ARSKÓL ANÁM Aldrei hefir verið eins nauðsynlegt og ein- mitt nú, að hafa verzlunarskóla mentun, og það fólk sem hennar nýtur hefir venju- lega forgangsrétt þegar um vel launaðar stöður er að ræða. Vér höfum nokkur námsskeið til sölu við fullkomnustu verzlunarskóla í Winnipeg. Spyrjist fyrir á skrifstofu vorri þessu viðvíkjandi, það margborgar sig. The Viking Press Limited Banning og Sargent WINNIPEG :: MANITOBA

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.