Heimskringla - 28.05.1952, Blaðsíða 3
WINNIPEG, 28. MAf, 1952
HEIMSKRINGLA
3. SIÐA
togaranna. T>á tók og Faxaverk-j
smiðjan til starfa og vinnur úr
úrgangi togaraaflans.
Samkvæmt skýrslu frá Félagi
ísl. botnvörpuskipaeigenda nam
hásetahlutur á 28 togtirum árið
sem leið frá 40.975—62.173 kr.
J-aröskjálftar
Hinn 12. kom harður jarð-
skjálftakippur í Reykjavík og
fannst hann víða um suðvestan-
vert landið. Jarðskjálftamælar
fóru úr skorðum og er talið að
þetta sé harðasti jarðskjálfta-
kippur, sem komið hefur í Reykj
avík í 23 ár. Upptök hans munu
hafa verið á Reykjanesskaga. —
Ekki olli hann tjóni svo teljandi
sc. Viku seinna fundust 3 litlir
jarðskjálftákippir og munu þeir
hafa átt upptök sín á sömu slóð-
um.
íþróttir
Á sundmóti í Reykjavík hinn
6. setti Ari Guðmundsson nýtt
íslandsmet í 50 m. baksundi. Þá
setti og Jón Magnússon nýtt
drengjamet í 1000 m. bringu-
sundi.
Meistaraflokkskeppni í bridge
lauk svo, að sveit Benedikts Jó-
hannssonar sigraði.
Eggert Gilfer varð Reykja-
vákurmeistari í skák.
Skíðamót Reykjavíkur var háð
um miðjan mánuðinn og urðu
Stella Hákonard., og Ásgeir
Eyjólfsson Reykjavíkurmeistar-
ar í svigi.
Skíðamót Akureyrar fór fram
og varð Magnús Brynjúlfsson
meistari í svigi og stórsvigi.
Hinn 19. setti Ari Guðmunds-
son nýtt fslandsmet í 500 m.
tkriðsundi og sveit úr sundfélag
inu Ægi setti nýtt met í boð-
sundi.
Mannalát
12. Pétur Lárusson fulltr. í
skrifstofu Alþingis, tæpl. sjötug
ur.
15. Sigfús Sigurhjartarson
fyrv. alþingismaður, 50 ára.
16. Guðmundur Geirdal skáld,
67 ára.
16. Jón Gíslason póstafgrm. í
Ólafsvík, 57 ára.
21. Margrét Guðmundsd. yfir-
ljósmóðir á fæðingardeild Land-
spítalans, 46 ára.
22. Helgi Thordersen trésmið-
ur í Reykjavík, 84 ára.
26. Kristján Guðmundsson,
forstj. Pápuverksmiðjunnar í
Reykjavík, 52 ára.
— Árni J. Auðuns skattstjóri
í ísafirði, 46 ára.
Fjársöfnun og gjafir
2. marz var fjársöfnunardagur
á Akureyri fyrir fjórðungs-
sjúkrahúsið og söfnuðust kr. —
102,856.00. Seinna í mánuðinum
gaf Búnaðarfélag Aðaldæla 2000
kr. til fjórðungssjúkrahússins, j
Aðaldælahreppur 5000 krónur og
Umf. Geisli í Aðaldal 1000 krón-
*
ur.
Frú Ingibjörg Þorláksson'
ekkja Jóns Þorlékssonar fyrrum 1
forsætisráðh. gaf Háskólanumj
50,000 króna sjóð til minningar
um mann sinn og skal sjóðnum
verja til þess að styrkja verk-
fræða stúdenta.
Til minningar um hjónin
Guðnýu Friðbjarnardóttur og
Páls Jónsson smið í Húsavík
færðu börn þeirra sjúkrahúsinu í
Húsavík 3000 kr. gjöf.
Stúkan Akurblómið á Akra-
nesi gaf sjúkrahúsinu þar 2000
kr. til minningar um hjónin
Mettu Hansdóttur og Svein Guð
mundsson, sem lengi voru meðal
ötulustu Góðtemplara þar.
Sjúkrahúsið í Norðfirði fékk
vönduð Röntgentæki að gjöf frá
kvenfélaginu Nanna, kvenna-
deild Slysavarnafélagsins og
Rauðakrossdeildinni þar á staðn
um.
Slys og óhöpp
2. marz sótti dráttarbáturinn
Magni út í flóa enskan togara,
Lord Cunningham, sem hafði1
beðið um hjálp vegna þess að eld
ur hafði kviknað í kolageymsl-
unni. Tólf klukkustundum eftir
að skipið kom hér í höfn tókst
að lokum að kæfa eldinn.
5. Amerískur hermaður hafði
fengið leigða litla flugvél og var
að skemmta sér á henni upp við
Sandskeið. Svo slysalega tókst
til að hann flaug á símastaur,
flugvélin mölbrotnaði og hann
beið bana.
S. d. kom þýzki dráttarbátur-
inn, sem sótti togarana Baldur
og Haukanes, til Reykjavíkur
aftur. Fyrir sunnan Reykjanes
hafði sjór komizt í Haukanes
og héldu menn fyrst að skipið
mundi sökkva, en svo varð ekki.
Hér var sjónum dælt úr skipinu
og það skoðað, og síðan lagði
aráttarbáturinn aftur á stað.
Aðfaranótt 14. strandaði Turk
is, norskt fiskflutningaskip full-
hlaðið hjá Sandgerði, losnaði
með flóðinu en hafði misst stýr-
; ftn/eS?
Check These Features With
Those of Any
Outboard Motor Ever Built
• Far Lighter
• Smaller and More Compact
• Truly Outboard
• Patented Dual Carburetion
• Two-Piece Over-AU
Housing
• Finger-tip Control
• Weedless Type Propeller
• No Shear Pin
9 Replaceable Bearings and
Cylinder Sleeves
• Positive Rotary Water
Pump
• Positive TUt-Up Lock
2Va H.P. $160.00
5 H.P. (as illustrated) $210.00
PgaJz-eA-cwmeéAan Htd.
DISTRIBUTORS
WINNII’EG EDMONTON
Man. Alta.
ið. Sæbjörg og Hermóður drógu
það til Reykjavíkur. Bráðabirgða
viðgerð fór fram hér og síðan
kom norskur dráttarbátur að
sækja skipið og fór með það und
ir mánaðarlokin.
Aðfaranótt 17. hvarf ungur
piltur Magnús Sigfinnsson á
Grænanesi við Norðfjörð heiman
frá sér og fannst ekki þrátt fyrir
mikla leit. ,
^17. fannst lík Sigurgeirs Guð-
jónssonar bílastjóra, sem hvarf
frá bíl í stórhríð 18. jan. s.l. hjá
Hlíðarvatni í Selvogi. Var líkið
skammt utan við veginn þar sem
bílarnir höfðu teppzt.
21. varð lítill drengur fyrir bíl
í Hafnarfirði og beið bana.
Aðfaranótt 30. strandaði vb.
Skjöldur frá Siglufirði austan
Þorgeirsfjarðar. Menn björguð-
ust allir, en skipið hefur ekki
náðst út.
31. datt kona á götu í R.vík og
fótbrotnaði illa.
Fjögur börn urðu fyrir bílum
í Reykjavík í þessum mánuði og
meiddust öll meira og minna.
31. kom amerísk flugvél frá
Grænlandi með 15 ára Eskimóa,
sem hafði fótbrotnað illa. Dreng
urinn var sendur héðan með flug
vélinni Gullfaxa til Kaupmanna-
hafnar.
Eldsvoðar
15. brann fiskimjölsverksmiðj-
an og lýsisbræðslu í Grindavík
til kaldra kola. Upptök eldsins
voru í olíukyntum mjölþurrkara.
Þarna brann lýsi og annað verð-
mæti fyrir 1.5 millj. kr. Bræðslu
maður fótbrotnaði er hann vai
að reyna að bjarga lýsistunnum.
21. kom eldur upp í vélarrúmi
björgunarskipsins Sægjargar, en
var fljótt slökktur og urðu
skemmdir litlar.
Aðfaranótt 23. kom eldur upp
í húsi Jakobs Jósefssonar á Sauð
árkróki. Fólk komst út en fáu
var bjargað af innanstokksmun-
um og urðu miklar skemmdir á
húsinu.
25. kom eldur upp í íbúðarhúsi
á Hofstöðum í Miklaholtshreppi.
Komu menn af næstu bæum fljót
lega á vettvang og tókst að
slökkva eldinn, en miklar
skemmdir höfðu orðið á efri hæð
hússins.
Sýningar
í þessum mánuði voru tvær
málverkasýningar í Reykjavík,
heildarsýning á myndum Snorra
Arinbjarnar og minningarsýning
um Kristján heit. Magnússon
málara.
Þá var og opnuð ljósmynda-
sýning viðvaninga hinn 14. og
stóð hún til mánaðarloka. — 40
menn höfðu sent myndir þangað.
Var aðsókn mikil og fjórar beztu
myndirnar fengu verðlaun.
Nýtt félag, Styrktarf. lamaðra
og fatlaðra var stofnað í R.vík í
öndverðum mánuðinum.
Sjö flugmenn
Loftleiða h.f. komu heim frá
Bandaríkjunum, en þangað
höfðu þeir farið til þess að kynn
ast nýungum í flugmálum og til
þess að ganga undir flugpróf hjá
loftferðaeftirliti Bandaríkjánna
í N. York.
B jörgunartilraun
í seinasta stríði var sökkt 15.-
000 smál. olíuskipi brezku inni
t Seyðisfirði. H.f. Hamar í R.vík
tók nú að sér að athuga mögu-
leika á því að ná skipinu upp
með ollum farmi. Var unnið að
athugunum á því seinni hluta
mánaðarins.
Hallgrímur Jónsson
flugmaður réðist til hollenska
flugfélagsins K. L. M. og á að
taka við flugstjórn austur í Indó
nesíu. Hann er 23 ára.
Axel Helgason
forstöðumaður tæknideildar
rannsóknarlögreglunnar fór til
Englands til þess að kynna sér
starfsháttu hjá Scotland Yard.
*
Skattheimtan
Sérfræðingur frá Chicago, Mr.
ulian Smith, dvaldist hér í mán-
uðinum á vegum ríkisins til þess
að kynna sér fyrirkomulag skatt
heimtunnar og gera tillögur um
endurbætur á því.
Lynde B. McCormick
yfirflotaforingi Atlandtshafs-
Minni mjólkurneyzla
Samkvæmt skýrslu mjólkur-
samlaganna höfðu þeim borizt
rúml. 300.000 lítrum minni mjólk
1951 en 1950, en sala mjólkur á
árinu minnkaði um 600.000 lítra
rúmlega. Birgðir af ostum og
smjöri voru miklu meiri í land-
inu við s.l. áramót en ári áður.
Ekið yfir hálendið
3. kom Guðmundur Jónasson
við 4. mann á snjóbíl til Akur-
eyrar. Höfðu þeir farið þvert yf-
ir hálendið frá Þingvöllum um
Kjöl og yfir Hofsjökul. Ökutmi
hafði verið 16 stundir.
Oraðbók Sigfúsar
Stjórn íslenzk-dansks orðabók
arsjóðs gerði samning við Litho
prent um að Ijósprenta 3000 ein-
tök af orðabók Sigfúsar Blönd-
als.
L jóslækningastofa
Hvítabandið opnaði ljóslækm
ingastofu fyrir börn í Reykja-
vík.
bandalagsins, kom hingað í eftir
litsferð um miðjan mánuðinn.
Búnaðarþingi
var slitið hinn 8. Hafði það þá
setið í 23 daga og afgreitt 50
mál.
Dómur
var kveðin upp í Hæstarétti í
hinu margumtalaða máli útvarps
stjórans. Var hann dæmdur til
að greiða 9000 kr. sekt.
Magnús Jochumsson
var skipaður póstmeistari í R.vík
frá 1. apríl að telja.
Smáhúsahverfi
Bæarráð Reykjavíkur sam-
þykti að úthluta 345 lóðum í
Sogsmýri fyrir sipá íbúðarhús.
Jóhannes Bjarnason
verkfræðingur var ráðinn að á-
burðarverksmiðju ríkisins sem á
að reisa í Gufuneslandi.
Símkerfi fsafjarðar
var endurbætt að miklum mun í
þessum mánuði. Voru þar sett
upp 2 ný skiftiborð fyrir bæar-
símann og símanúmerum fjölgað
úr 300 í 540. Miklar endurbætur
voru gerðar á símahúsinu.
Ferðamenn
í skýrslu frá Ferðaskrifstofu
ríkisins er þess getið að 3800
terðamenn hafi komið til lands-
ins árið sem leið, og telst svo til
að þeir hafi eytt hér um 9 millj.
króna.
Freðfiskf ramlei ðsla n
ieyndist miklu meiri árið sem
leið heldur en nokkru sinni fyr,
eða 31.365 smálestir. Til saman-
burðar skal þess getið að hún var
19.800 smálestir árið 1950. Salan
hefur gengið vel.
Viðskiftajöfnuður
við útlönd varð óhagstæður um
9.1 milljón króna í mánuðinum.
—Lesbók Mbl.
COPENHAGEN
“HEIMSINS BEZTA
NEFTÖBAK’
'jy
BORGIÐ HEIMSKRINGLU—
þvf gleymd er goldin sknld
/