Heimskringla - 26.11.1952, Side 2
2. SIÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 26. NÓV. 1952
l&i'tmskrinala
fStotnuD 18*6)
íexnur ii'; á hrertun miðvikudegl.
s'igend.ir THE VTKING PRESS LTD
853 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man. — Talsími 74-6251
Verfl hlHðstns er $3.00 árgane;urinn, borgist fvrirfram
Allar borganir sendist: THÉ VIKING PRESS LTD
öll viðskiftabréí biaðinu aðlútandi sendist
The Viking Press Lirnited, S53 Sargent Ave.. Winnipeg
Riistjóri STEFAN EINARSSON
Utanásl'rift til ritstjorans:
LDTT^n HErMSKHTNGLA W Sareem 4vr Wtnnlpeg
Advertising Manager: GUNNAR ERLENDSSON
"Heimskrmgla" is published by THE VIKING PRESS LIMITED /
and printed by VIKING PRINTERS
853-855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man., Canada — Telephone 74-6251
Authorízed rrs Second Class Mai!—Post Office Dept., Ottawa
WINNIPEG, 26. NÓV. 1952
Sjáið EVROPU
í vor! i
Um nýja forsetann
Takið þá ferð á hendur, sem þér hafið
frestað um langan tíma. . . . Sjáið ferða
umboðsmann yðar nú þegar. Hann mun
góðfúslega og án endurgjalds gefa allar
nauðsynlegar upplýsingar viðvíkjandi nið-
ursettu fargjaldi, og hvernig hægt sé að
nptfæra sér “Sparnaðar Tímabilið”.
Eftir frekari upplýsingum skrifið:
ICELANDIC CONSULATE GENERAL
50 Broad Street,
New York 4, N. Y.
European Jravel CoMMISSION
Ferðaskrifstofa Evrópu
Evrópa sameinast um eflingu vináttu og framþróun, er
ferðalög glæða.
Þetta Nýja Ger
Verkar Eins Fljótt Og Ferskt Ger
Heldur Ferskleika Eins Og Þurt Geí
I
Hvert blaðið af öðru bæði í þessu landi og í Bandaríkjunum,
rekur nú sögu hins nýkosna forseta, Dwight David Eisenhowers og
reynir að gera sér grein fyrir, hvers af honum megi vænta sem for-
seta. En það sem vér höfum enn af því tæi séð, virðist fara eins
langt fyrir ofan garð og neðan eins og mikið af því gerði, er um
hann var sagt í kosningunum.
Á þessu er ef till.vill engin furða. Maðurinn, sem það hefir við
sig, að vera kosinn undir þeim kringumstæðum, sem raun var á um
Eisenhower, hefir eitthvað meira við sig, en það, sem í fljótu
bragði verður séð. Hann sækir á móti flokki sem í 20 ár hefir verið
við völd og sem bakhjarl á í hverju horni. Yfirlýstir fylgjendur
demókrata flokksins voru bæði verkmannasamtök og bændur, auk
miljóna dugandi stjórnarþjóna. Flokkurinn virtist ósigrandi, og
reyndist það í höndum Roosevelts. En allar þessar stoðir skekkj-
ast og bila er Eisenhower kemur fram og sækir undir merki flokks,
sem legið hefir á kistubotni um tugi ára og er gleymdur þjóðinni—
yngri kynslóðinni að minsta kosti.
Það virtist alt sem til greina gat komið í kosningum vera á
móti Eisenhower. Þar við bættist, að valinn maður var af hálfu
demókrata kosinn á móti honum til að sækja um forsetasstöðuna.
En ekkert af þessu nægði til að gera menn fráhverfa Eisen-
hower, þó ætla hefði mátt að fyllilega nóg væri til þess.
Eins fór með útreikninginn í öðrum greinum. Til dæmis var'
það talinn einn af ókostum Eisenhowers, að hann var hermaður. :
Það er satt, að Eisenhower sem nú er 62 ára, hefir stundað her-,
mensku í 40 ár .En hann er ekki eini forsetinn, sem hershöfðingi |
hefir verið. Þjóðin hefir áður kosið þá sjö og hafa allir reynst vel. j
Hinn fyrsti og ágætasti þeirra var George Washington, foringi
uppreistarmanna í frelsis stríðinu og fyrsti forseti þjóðarinnar. A.\
meðal hinna voru U. S. Grant, 1869, Andrew Jackson 1828 og
Zachary Taylor 1849.
Það var oftast á alvarlegum tímum, sem þessir menn voru
kosnir og komu þjóðinni til bjargar. Næstu fjögur stjórnarár
Bandaríkjanna eru hættuleg ár. Út af stríðinu sem 1950 braust út í
Koreu, óttast menn um að þriðja alheimsstríðið muni brjótast út.
Hver veit nema að nú bjargi málum, að Eisenhower var kosinn. Það
hefir margt ólíklegra skeð.
Eitt af því sem mikið var á lofti haldið á móti Eisenhower, var,
að hann fylgdi flokki, sem óviðundi stefnu hefði í utanríkismálum
Bandaríkjanna. Ef það reynist satt að slík stefna sé til og að Eisen-
hower sé henni bundinn, væri það lakara. En eins og Heimskringla
hefir áður bent á. má skipa forsetum Bandaríkjanna í tvo flokka í |
þessu efni, þá sem fylgja flokkinum og þá, sem leiða flokk sinn. f
hvorn flokkinn Eisenhower skal skipa, er vandalaust. Hann er ekki
flokksmaður og hefir aldrei verið það. Þegar málum Evrópu var
þar komið, að þau voru orðin hið mesta vandamál, var þess farið á
leit af báðum stjórnmálaflokkunum, að hann tæki að sér leiðsögn
þjóðarinnar, gæfi kost á sér til forsetastöðunnar. Var það all-ah j
ment álit, að þjóðunum sem í varnarstöðu eru gegn kommúnisma,
mundi um ekkert þykja betur en það, að Eisenhower tæki stjórn-:
málataumanna í Bandaríkjunum í sínar hendur. Þær þóttust örugg-
ari um afstöðu sína með því, en nokkru öðru. .
Af þessu virðist mjög ljóst, að þá var ekki verið að gera mikið
úr flokksfylgi Eisenhowers. Hann var þá sá sem leiða átti þjóð sína
og flokk, hver sem hann var. Verði hann mjög undirgefinn flokki
sínum, eða Taft, eins og nú er haldið fram, er það algerlega ný hlið
á Eisenhower. f próf-kosningunum á móti Taft, sýndi sig alt ann-j
að.
Dómarnir um það að Eisenhower láti flokk sinn eða nokkurn |
leiða sig, hafa ekki við meira að styðjast en margt annað, sem um
hann var sagt.
Vér segjum þetta ekki af neinni hlutdrægni með eða móti re-
publikunum, heldur bendum á það, sem dæmi þess, hve
þeim skjátlaðist, sem heldu Eisenhower ófæran til að stjórna vegna
flokks-undirgefni sinnar.
Ekki var misreikningurinn minstur, er honum var brugðið um
að geta ékki haldið ræðu. Til þeirra hluta átti hann að vera ófær.
Þó hann væri nokkur ár búinn að halda fyrirlestra á Columbia-há-
skóla og á West Point herskólanum, átti hann ekki að geta smíðað
pólitískar ræður. Þetta var ekki hlífst við að útbreiða. En einnig þar
glaptist mönnum sýn. Ræður Eisenhower voru að öllum jafnaði
frumlegri og líkari fyrirlestrum, en vanalegum pólitískum mál-
flutningi. Þeir voru einnig á mun betra máli, en hér gengur og ger-
ist yfirleitt. Stafar það af því, að Eisenhower ritar svo fagurt mál,
að mikið minnir á góða höfunda. Til dæmis um þetta, var mjög
vandfundinn ritari fyrir hann. Eru dæmi til að hann hafi rekið þá,
vegna þess er hann kallaði kunnáttuleysi í ensku máli. Auk þess að
hafa skrifað bók um ástand Evrópu, sem víðseldust var á sínum
tíma, reit Eisenhower mikið af tækifæris ræðum og öðrum skrifum
McArthurs, meðan hann var undirmaður hans. Þeir sem héldu því
fram, að Eisenhower gæti hvorki soðið saman pólitíska ræðu né
flutt, hafa eflaust, sem fyr illa skilið Eisenhower.
Einstöku hafa komið fram með þá skoðun á Eisenhower, að
hann sé of góður og vingjarnlegur maður til þess að standa í
stímabraki við pólitíska áflogaseggi, er á hann vilji leika. Þegar
fylgjendur Eisenhowers drógu athygli hans að þessu, var svar
hans: Hafa Þjóðverjar sagt þeim
eða kvartað undan því við þá,
að eg hafi verið vægur á þeim?
Margt meira af þessu tæi
mætti tína til, en þess gerist ekki
þörf. Um kosningu Eisenhowers
má segja, að furðuleg hafi verið.
Með henni voru svo margar gaml
ar víggirðingar niður brotnar í
politískum skilningi, að engin
forseti hefir í sögunni slíkt af-
rek unnið. Sigur hans þar var
eins ákveðinn og hersigrar hans.
Og pólitískir sigrar vinna sig
ekki sjálfir fremur en sigrar á
vígvelli.
En hvernig víkur því við, að
Eisenhower forsetefni vinnur
sinn mikla sigur, ef enginn tekur
eftir honum, eða skilur hann?
Auðvitað skildi almenningur
hann. Það var aðeins andstæð-
ingaflokkur hans, sem ekkert
þótti til Eisenhower koma, þessi
flokkur, sem á grafarbakkann
var kominn og tekinn var til að
lifa svo inn í sjálfan sig, að hann
vissi ekki hvað almenningsvilj-
anum leið. Þetta hvorttveggja
reið baggamuninn. Liberalflokk-
ur Canada horfist nú í augu við
mjög svipað ástand í kosningum
er hér fara fram á næsta sumri
og getur vissulega ekki litið
björtum augum til komandi
hausts. Aðrir geta það að vlísu
heldur ekki, vegna þess óhapps
að hér er enginn Eisenhower inn
an hinna flokkanna að taka við til
að sjá um uppfyllingu vilja og
vona kjósenda hér, sem syðra.
Við þetta skal svo ekki bæta.
Hvernig stjórn Eisenhowers
verður sker tíminn úr. Æfi
atriði hans er í fáum orðum hægt
að segja. Hann er fæddur 1891 f
Denison, Texas, en er alinn upp
í Kansas-fylki og telur sig sjálf-
ur Kansasbúa. Hann útskrifaðist
frá hermannaskólanum í West
Point árið 1915. Varð hann þá um
tíma kennari í vagnahernaðar-
deildinni. Einnig um stund hátt-
settur starfsmaður hjá McArth-
ur herforingja. En síðan tók
hann við stjórn hersins í Evrópu
á Miðjarðarhafinu, Morrokko og
Egyptalandi. Hann stjórnaði
þessum Evrópu her þar til sigur
var unninn á Hitler. Hann frels-
aði þá Frakkland og sá um inn-
rás hersins, sem sendur var til
meginlandsins í því stríði.
Að sigri fengnum kom hann
heim og tók við yfirkennarastöðu
á Columbia háskóla, Eftir striíð
ið var hann gerður að yfir-
manni Bandaríkja hersins, í stað
Marshalls hershöfðingja, er
sagði þeirri stöðu lausri.
Þegar í annað sinn ókyrðist
um í Evrópu, og Atlanzhafs og
Vestur-Evrópu her þurfti aftur
að koma upp, var Eftsenhower
falið það starf. Hefir starfshæfni
hans, þó bæði væri áður kunn af
hinum erfiða hernaði á Kyrra-
rafinu, sem hann átti svo mik-
inn þátt í að skipulega og í N.-
Afríku, aldrei komið gleggra í
ljós, en við sameiningu hins hjá-
leita hers 12 þjóða í eina órjúf-
andi starfsheild.
Að síðustu má það um kosn-
ingu Eisenhowers í forsetastöð-
una segja, að hún á meira skylt
við ástandið í alheimsmálunum,
en það, að honum væri hún eftir-
sóknarverð. —Meira seinna.
FJÆR OG NÆR
Gifting í Wynyard, Sask
Laugardagskvöldið, 15. nóv.,
fór fram giftingarathöfn í Sam-
bandsskirkjunni í Wynyard, er
gefin voru saman í hjónaband,
Hjalti Hafsteinn Guðnason og
Mary Nancy Franki. Séra P. M.
Pétursson frá V7innipeg, gifti.
Brúðguminn er sonur þeirra
hjóna Sigurðar Árna Guðnason
og Sveinbjargar Kjarval, sem er
systir listamálarans á íslandi.
Brúður:n er af austurlenzkum
ættum og var hjúkrunarkona á
spítalanum í Wynyard. Brúðg-
uminn stundar búskap við Kan-
dahar. Þau voru aðstoðuð af Carl
Guðnason, bróður brúðgumans,
Mrs. S. H. Erickson systur brúð-
arinnar frá Saskatoon og Betty
Kendall frá Yorkton, Sask. Helgi
Olafson frá Kandahar og Sher-
man Erickson frá Saskatoon
leiddu til sæta. En Donald Erick
son, litli sonur þeirra Ericksons
hjónanna var hringberi.. Hall-
grímur Johnson söng einsöng,
“O Promise Me”, og Mrs. Ted
Sveinbjörnson var við orgelið.
Að athöfninni lokinni var
gengið niður í neðri sal kirkj-
unnar þar sem fór fram vegleg
brúðkaupsveizla. Séra Philip M.
Þarf engrar
kælingar með
Nú getið þér fengið fljóthefandi ger án þess að vera hrædd um
skemdir. Hið nýja Fleischmann’s Fast Rising Dry Yeast heldur
sér viku eftir viku án kælingar. Hafið ávalt mánaðarforða á
búrhillunni.
Notið það nákvæmlega eins og ferskt ger. Einn pakki af þessu
nýja, þurra geri jafngildir einni köku af fersku geri í öllum
forskriftum. Vinnur tafarlaust, er fljóthefandi. Að leysa upp.
(1) í ofurlitlu volgu vatni skal leysa upp vel eina teskeið ai
sykri móti einu umslagi af yeast. (2) Sáldrið í það dry yeast.
Látið standa 10 mínútur. (3) Hrærið vel. (Vatn sem notað er
þannig reiknist sem hluti af þeim lög sem forskriftin sýnir.)
Biðjið nú þegar matvörusalann yðar um hið nýja Fleischmann’s
Fast Rising Dry Yeast.
1 pakki jafngiidir 1 köku af Fresh Yeast
fc
Pétursson mælti fyrir skál brúð-
arinnar og brúðguminn flutti
nokkur þakkarorð. Síðan var
raunsnarlega borið á borð. Seinna
um kvöldið var farið heim í hús
brúðhjónanna fyrir vestan Kan-
dahar, sem var reist í haust og
þar gafst gestum að skoða nýja
húsið og hinar mörgu og fögru
gjafir sem brúðhjónunum hafði
borist. Og síðan var stigin dans
í samkomuhúsinu í Kandahar.
En brúðhjónin lögðu af stað í
brúðkaupsferð til Regina og víð'
ar.
ir t *
Innilegt þakklæti
Við undir rituð biðjum Heims-
kringlu að færa öllum þeim inni-
legt þakklæti er efndu til gleði-
samsætis fyrir okkur í aamban^
kirkjunni fyrra laugardag í tiV
efni af bústaðaskiftum okkar.
Við nefnum ekki nöfn neinna,
en viljum ,láta kunningjana og
vinina vita, að góðvild þeirra 1
.i*mpnv
VQU BUV
M
S£Mt-
ActroMAr/c
S£ir-F££t?
ttmmmr
TRAOE MARK
/tr /?£mt!# mtss
Hc-r kemur það—hið mesta sparnaðarboð á árstfðinni! —
Ein smálest af kolum fyrir hið fullkomnastsa kolahitunai-
tæki, sexn er fáanlegt í dag. Þér komist að raun um að kol
eru beztu kattpin, fyrir öruggan, jafnan, ódýran hita. —
I “Booker” endist ein smálest af kolum lengi—í tnargar
viktir munuð þér hafa ókeypis hita.
Ekkert aukreitis að borga—ekkert aukreitis til að kaupa. —
Veljið í dag hjá næsta umboðsmanni, þann “Booker, sem
þé-nar yður bezt — það gefur yður ré-tt ókeypis á einni smá-
lest, 2,000 undum, af beztu “Booker” kolum, unnin í
Saskatchewan og Alberta. — Hér getið þér fengið þessi hin
frægu Booker kol:
Mined in Saska tch ewan
ECONO OLD MAC
KLIMAX SASKO
SOO
Mined in AJberta
BIRNWELL DIPLOMAT
BLACK NUGGET ROSELYN
BLUE FLAME VESTA
Tk
,/(S OFFÉR G0OD AT ANÝ
'(3 BOOKEF DEALER
Act now! You'll find 12 models of space heaters, fumaces and conversion
models to choose from. Experience these extra benefits of Booker heating
now enjoyed by thousands throughout western Canada. Light your fire
just once a year—never goes out. Finger-tip control for fast heat. No moving
parts to gp wrong—no shear pins, no motors. Burns the smoke for clean
heat, free from dust and dirt, No clinkers, little ash. Under control at all
times—positively safe. Booker units can be fitted with electric or non-electric
(Bookerstat) controls.
THIS OFFER...
EXPIRES MIDNIGHT
JANUARY 17th, 1953
PATINTID
Everyone Can Afford a B00KER. Priced $79.75 and up F.Ö.B. Wpg.
SElf FEED S0FT C0AI
HEATERS ond FURNACES
A MODÉL FOR EVERY. HEATING NEED
SELECT THE RIGHT UNIT FOR
YOUFÞ HEATING NEEÐS
12 MODUS TO CHOOSl FROM
MORE THAN 45.Mt) SATISFlÉD
* BOOKER USERS IN WtSTERN CANADA
“* ‘ 'TSKrrpwwT™ ‘
DISTR IBUTORS
INTERNATIONAL KEATING & SUPPLY LTD.
WINNIPEG. CANADA