Heimskringla - 04.03.1953, Blaðsíða 3
WINNIPEG, 4. MARZ, 1953
n £ I M S K ii .< o
3. SÍÐA
búið er að ræsa fram mýrar, og
farið er að rækta slíka bletti. Á
ferðalögum mínum um ísland sa
eg oft stór flæmi, þar sem búið
var að eyða miklu fé og erfiði í
það að ræsa fram mýrar, slétta
og sá, og samt hafði sprettan
eyðilagzt, og sást nú aðeins ill-
gresi. Islendingar eyða miklu fé
í það að auka ræktun landsins,
og verða bændur fyrir miklu
tjóni ef uppskera, ekki sízt hey-
fengur, bregzt. Rannsoknum er
haldið áfram á þessu sviði, en|
lausn þessa vandamáls hefur enn
ekki fengist.
Mér finnast þessar athuga-
semdir leiða hugann beint að at-
riði, þar sem sannarlega væri
breytinga þörf. Nú eru til fjórar
tilraunastöðvar á Islandi, ásamt
rannsóknardeild við háskólann
og tveimur búnaðarskólum til
sveita, þar sem tilraunir fara
fram að nokkru leyti, og þá eru
l'íka stjórnarstyrkir veittir til
takmarkaðra tilrauna hér og
hvar á landinu. Enn sem komið
er hefur ekki myndazt heildar-;
kerfi úr iþessum hliðstæðu störf-
um, og samvinna er ekki næg
milli aðilja. Þá verður líka að
benda á iþað, að f járveitingar til j
tilraunastöðva til dæmis ,eru af|
svo skornum skammti, að nauð-
synlegt hefur verið fyrir stöðv-
arstjóra að standa í beinum bú-
rekstrarönnum til þess að reyna
að græða nægilegt fé til að^
standa straum af tilraunakostn-1
aðinum. Afleiðingin er sú, að
fáir faglærðir menn fá tækifæri.
til þess að nýta að verulegu leyti
þá þekkingu, sem á að notast við
tilraunirnar sjálfar. Ávinningar
við tiiraunastarfið verða þannig
seinfengnarí en ella yrði. Ef ein-
hverjum tilraunastjóra — nægi-
lega reyndum og lærðum—væri
falin á hendur stjórn yfir öllu
slíku starfi á landinu, yrðu fram-
farirnar vafalaust örari. Til eru
ntargir sérfræðingar við rann-
sðknarstofu Háskólans, sem
gætu orðið ráðunautar í sínum
eigin greinum við allar tilrauna-
stöðvarnar, og ætti starfið alltj
að komast á hærra stig með því
móti. N
Eg hef þegar minnzt á nauð-
synlegar rannsóknir, sem verða
að aukast á ýmsum sviðum —
um hagnýtari grastegundir, um
notkun áburðar, ræktun miðuð
við mismunandi jarðargæði, sem
sé rannsóknir í nærri öllum
greinum landbúnaðarins. — Eg
þykist vita það, að ísland með
aðeins 145 þúsundir íbúa eigi
erfitt með að leggja fram það
fjármagn, sem þyrfti til slíkra
f ramkvæmda. Samt sem áður, þar
sem “bú er landstólpi”, að eins
miklu leyti sem raun ber vitni
um á íslandi, þá finnst mér að
þjóðin gæti varla varið fé á arð-
vænlegri hátt en einmitt með
því að bæta skipulagningu bún-
aðartilrauna til muna og auka
fjárveitingar í því skyni.
Þegar farið er . að athuga,
hvernig bændum er kynntur á-
rangur tilrBunastarfseminnar
kemur ýmislegt í lj°s. Út-
breiðslu starfsemi búnaðarsam-
taka hefur farið fram á-íslandi í
tæpa öld. Rit eru útbreidd þarj
sem upplýsingar eru tiltækar
mjög svo greiðlega, og bænda-
fundir eru haldnir reglulega
víðsvegar um landið. Það sem er
mest ábótavant við þessar upp-
lýsingar, er einmitt það, að þær^
eru teknar að svo miklu leyti úr ^
eflendum heimildum, en hafa
ekki verið sannprófaðar í skóla
reynslunnar á íslandi. Þeir, sem
eru framsæknastir meðal landa,
nota uppiýsingar eftir föngum,
læra nýjustu vinnuaðferðir og
hraða framförum á öllum sviðum
landbúnaðarins. Breytingar- og
þróunaralda rís hjá búmönnum
íslands. Fólki fækkar til sveita,
eins og auðséð er á hverjum
bóndabæ. Vélamenningin er að
ryðja sér til rúms meðal bænda.
En auðséð er um leið á mörgum
hasjum, að fjöldinn fylgist ekki
eins vel og vera bæri með í þeim
Framh. á 4. bls.
í
Sonur lýðsins
(RAGNAR STEFÁNSSON ÞÝDDI)
----------—
Þetta var sannarlega sjaldgæf skemtun;
Bilesky lávarður, máttlaus af hlátri, hafði látið
fallast ofan í stól, og gaf þjónunum fyrirskip-
•anir, en stúlkur allsstaðar annarstaðar frá, úr
höllinni komu hlaupandi inn í eldhúsið í sínum
síðu marglitu búningum, er sýndu svo vel hinn
lögulega vöxt þeirra, handleggir þeirra voru
berir, og andlit þeirra Ijómuðu af æsingi og eft-
irvæntingu yfir því, að eiga von á að sjá Gyðing
neyddan til þess að éta bita af svínakjötl.
Hlátursaldan, gleðskapurinn og háværðin
náði hámarki sínu, þegar Benko hinn gildi og
virðulegi yfirmatreiðslumaður, í mjallhvítum
kufli, og með hvíta húfu, kom fram á sjónarsvið
ið, og bar fram geysistórt svínslæri, matreitt af
mikilli snilld, og hið girnilegasta á að líta til
átu. —“Þetta er stór-ágætt”, sagði Bilesky, en
kvenfólkið klappaði saman höndunum af á-
nægju, og Jankó tók stóran dúk og kom honum
vandlega fyrir undir höku Gyðingsins. Hann
gat þó varla gert það fyrir ofsahlátri; tárin
runnu niður kinnar hans, og hann mátti til að
hætta með köflum, til þess að grípa fyrir brjóst-
ið, þar sem hann ætlaði að kafna af hlátri.
“Jæja þá, karlfausk'ur, eg skal ábyrgjast að
þú hefir aldrei notið þvílíkrar veizlu á allri
þinni æfi.”
Rosenstein leit sannarlega ekki þannig út,
eins og hann skemti sér við þetta, sem gerði á-
nægjuna ennþá fullkomnari fyrir áhorfendurna.
Andlit hans var bókstaflega óttalegt, augun
ætluðu út úr höfðinu, meira sýnilega af reiði
en hræðslu. Hann gat ekki hreyft sig, þar sem
hann var rígbundinn við stólinn, og með báðum
höndum hafði honum verið þröngvað til að nota
hníf og gaffal, en ungur hjarðmaður hélt hand-
leggjum hans í stálviðjum. En augnaráðið sem
hann sendi aðalkvalara sínum, þeim, er gefið
hafði fyrirskipanirnar um þessa svívirðilegu
meðferð, var svo hatursfullt, að eigi er ólíklegt,
að ef hinn göfugi lávarður hefði gefið sér tíma
til að athuga, hvílíkt dauðlegt hatur fólst í því,
þá hefði hann orðið skelkaður, þó ekki væri
nema eitt augnablik, sl að sjá þessa ómælis-
dýpt haturs og mannlegra ástríðna, sem var á
bak við tillit þe"Ssara mildilegu, litlausu, votu
augna.
Á meðan á þessu stóð, hafði Benko skorið
tvær stóreflis sneiðar af svínakjöti, og tveir
menn gengu að því, að þröngva kjötbitum ofan
í Gyðinginn, einum eftir annan. Hann reyndi
að brjótast um, en árangurslaust; kvalararnir
héldu honum eins og í járnviðjum, og þegar
hann gerði árangurslausar tilraunii; til þess að
renna ekki niður bitunum af þessari fæðu, sem
fordæmd er með lögum meðal gyðinga-þjóð-
flokksins, þá gripu böðlar hans fyrir munn ag
nasir honum, svo hann neyddist til að renna
kjötinu niður, eða hann hefði kafnað.
Aldrei hafði slíkur gleðskapur og háværir
hlátrar verið í Bilesky-eldhúsinu ; hlátrasköllin
heyrðust um alla höllina, svo að greifafrúin og
greifadóttirin, Ilonka sendu þjónustumey til
þess að vita hvað væn um að vera. Allt þjón-
ustufólkið hafði safnast saman, og troðið sér
inn í eldhúsið, eða eins nálægt og það gat, og
fjórða part úr klukkustund gleymdu allir veizlu
undirbúningnum, brauðinu í ofnunum, hinum
miklu kjötsteikum, yfir gleðinni við það að
horfa á Gyðing þröngvað til að neyta svína-
kjöts. Rosenstein virtist hafa sætt sig við þessa
háðuglegu meðferð, og hætt að mestu tilraun-
unum að losa sig úr klóm böðlanna, og til þess
að fullvissa hann um hversu allar slíkar tilraun
ir myndu verða gersamlega árangurslausar, _
heyrði hann smellina í svipum hjarðmannanna,
er gáfu ótvírætt til kynna hvers hann mætti
vænta, ef hann sýndi nokkurn mótþróa.
Bilesky var búinn að hlæja svo mikið að
hann tárfelldi. Hann iðraðist sannarlega ekki
lengur eftir því að hafa þurft að lofa því að
greiða þessa aukamæla af hveiti ásamt þeim
gripafjölda og kindum, sem áttu að ganga upp í
það að greiða hina svívirðilega háu okurvexti,
þar sem hann hafði haft upp úr þeirri greiðslu
einhverja hina dásamlegustu skemtun, sem hann
minntist að hafa fengið í langan tíma.
Að lokum urðu allir ásáttir um að Gyðing-
urinn væri búinn að eta eins mikið af kjötinu
eins og hollt væri fyrir hann, og þar að auki
var í rauninni ekki tími til fyrir meiri gleði
og gáska þann daginn, ef undirbúningurinn und
ir veizluna átti að verða svo fulkominn að hann
væri í öllu venjulegu samræmi við hina al-
þektku risnu Bilesky-setursins.
Hinn göfugi lávarður gaf merkið, og fjötr-
arnir voru leystir af Gyðingnum; titrandi af
teiði, reyndi hann að staulast út úr eldhúsinu
gegnum hóp hlæjandi, snoppufríðra þjónustu-
meyja, sem hneigðu sig í háði fyrir honum um
leið og hann fór út. Bilesky fannst auðsjáan-
lega, að Gyðingurinn hefði borgað nægile^a
mikið fyrir hinar óréttlátu okurvaxta-kröfur
sínar, því hann komst undan þeirri hýðingu að
mestu, sem honum hafði verið heitin. Eitt eða
tvö svipuhögg frá hjarðsveinunum á horuðu
herðarnar var allt sem hann varð að þola. Hann
nam ekki staðar til að strjúka aumu blettina á
líkama sínum, ekki leit hann heldur framar á
böðla sína, en flýtti sér eins mikið og hans titr-
andi, sáru limir leyfðu, út úr bústað hins hágöf-
uga skuldunautar síns. Með samanklemdum vör
um, og í sýnilegum taugaæsingi, flýtti hann sér
út ganginn, gegnum garðinn, ag út trjágöngin
Fyrir utan hliðið nam hann staðar, og eins
ok kona Lots forðum, leit hann til baka...
Aðalsetur Bilesky-ættarinnar frá þeim tíma
er þeir aðstoðuðu Matyas konung til að komast
til valda, var í sjálfu sér ekkert tiltakanlega
stórkostleg bygging, nema ef til vill að því leyti
að stærð hennar var gúfurleg. Það var lág, al-
menn tveggja hæða bygging, reist í ferhyrning
kringum steinlagt svæði í miðjunni. Steinninn
sem höllin var byggð úr, hafði verið húðaður og
málaður með fagurgulum lit, eftir því sem tíð-
kaðist á þeim tíma, og tvöföld röð af grænum
gluggahlerum var eins og fagurlitt belti um-
hverfis allt húsið.
Garðinum var að mestu komið fyrir með
listrænni útlagningu margra raða af plöntuð-
um rósatrjám, og í hverju tré héngu allavega
litar glerkúlur, er endarvörpuðu töfrabirtu inn
f hin háu og tignarlegu trjágöng.
Beiður hringstigi úr steini, lá frá neðri hluta
hallarinnar upp á hina rúmmiklu efri hæð, og|
í aðalhlutanum þar var hin víðfræga borðstofa,
þar sem rúm var fyrir tvö hundruð borðgesti.í
án þess að nokkurra þrengsla gætti við hin tvö
skeifumynduðu stórkostlegu borð, er stóðu á
hinu steintíglum setta gólfi. Á miðri leið upp j
hinn mikla stiga, mátti sjá kima inn í stein-:
vegginn, þar sem komið var fyrir feikna stóru
líkneski úr granít af Attila, er horfði með fyrir-
litningu niður á þá, er fram hjá gengu. Gesta-
herbergin mynduðu tvær hliðar ferhyrningsins,
og opnuðust öll út. á svalir er sneru að- hinu
mikla ferhyrnda svæði er álmur byggingar-
innar lágu að, en á miðju því svæði var hring-
myndaður garður, umkringdur dvergvöxnum ac
acias og voru þar plöntuð rósatré, og í þeim enn
þá fleiri allavega litar glerkúlur.
Svölunum héldu uppi súlnaraðir, og í topp-
um margra þeirra áttu fuglar hreiður sín.
í einni álmu ferhyrningsins var hið geysi-
mikla eldhús, skrifstofur, kvennaherbergi, og
herbergi þjónustu fólks sem vann í höllinni;
hjarðmenn og fjárhirða sváfu undir heiðum
himninum, vafðir hinum miklu og hlýju sauð-
skinns yfirhöfnum sínum.
í fullar fimm mínútur stóð Gyðingurinn
Rosenstein við hin miklu hlið, og greip með
grönnu höndunum um járn-skrautverkið, og lit-
lausu augun hans loguðu af innbyrðisofsa á-
stríðum stóð þar eins og persónugerfingur, lif-
andi líkneski dauðlegs haturs og hefnigirni. í I
fullar 5 mínútur stóð hann þarna þangað til hann j
sá hvítklædda, yndislega veru koma reikandi j
eftir hinum ilmandi trjágöngum, þá snéri hann
sér í áttina til þorpsins, og hélt leiðar sinnar.
5. Kapítuli
GAMALL MAURAPÚKI
Þegar Gyðingurinn Rosenstein snéri baki
við hinu mikla hliði Bilesky hallarinnar, hélt
hann í áttina til sléttunnar.
Fylkið Heves, með Bilesky, Kisfalu og;
Sarda, breiddi sig út í allri sinni miðsumars-
dýrð til hægri og vinstri við sjónum vegfarand-
ans. í öllum áttum blöstu við samfelldar breið-
ur af gullbrúnum hveitiökrum, einhverju hinu I
bezta hveiti sem framleitt er nokkursstaðar í
heiminum, blómlegur maís og fagurgrænar
vatnsmelónur. Allt benti á fegurð og frjósemi
þessa allsnægtalands. Gyðingurinn lét augun1
hvíla á þessum gróðurríku landeignum um
stund, og það lýsti sér ánægja í svip hans, en
einnig kuldi og háð, bann nuddaði jafnvel sam- ’
an horuðu og visnu höndunum. Vegirnir voru,
eins og vant er um þurkatímann, harðir og ó-
sléttir, og Gyðingurinn varð fljótlega þreyttur
og fótasár af ganginum. en það virtist ekki fá
mikið á hann. Hugsanir hans, sem eftir öllu út-
liti að dæma hlutu að vera mjög ánægjulegar,
gerðu veginn mjúkan, og honum varð oft á að
klappa ástúðlega með hendinni á brjóstvasann
sem fyrir svo skömmu síðan var úttroðinn með
bankaseðlum, envar nú sama sem tómur, hafði
aðeins inni að halda skjalið með undirskrift
hins óhyggna og sóunarsama lávarðar.
Vegurinn sem Rosenstein gekk eftir, var á !
kafla hulinn með grönnum, háum viðarteinung-
um til beggja handa, og bærðust silfurlauf þeirra
við hvern minsta vindblæ. Langt framundan
mátti ógerla greina hina sendnu sléttu, með sín
um frjóa jarðvegi, hið háa, fagra himintjald, og
litla, einkennilega og fornlega gestgjafahúsið
við vegamótin.
ProíB.vMona/ ancí Business
Directory—
Office PhoM.
924 762
Kes. Phone
726 115
Dr. L. A. SIGI RDSON
528 MEDICAL ARTS 8LDG.
Consultatlons nv
Appointment
Dr. P. H. T. Thorlakson
WINNIPEG C.LINIC
St. Mary’s and Vauehan. Winnipe*
Phone 926 441
J. J. Swanson & Co. Ltd.
REALTORS
Rental. Insurance and FinanciaJ
Agents
Simi 927 5S8
308 AVENUE Bldg. — Winnipeg
WINDATT COAL
CO. LIMITED
Establtshed 1898
S06 PARIS BLDG.
Office Phone 92-7404
Yaid Phone 72-0573
CANADIAN FISH
PRODUCERS Ltd.
J. H. Page, Managing Director
Wholesale Distributors of
Fresh and Frozen Fisb
311 CHAMBERS ST.
Otfice Ph. 74-7451 Res. Ph. 72-S917
M. Einarsson Motors Ltd.
Distrihutors
KAISF.R AUTOMOBILES
The 1951 Kaiser Car is here
Built to Better the Best on the Road
IMMEDIATE DELIVERY
Shewroom: 445 RIVER AVENUE
Phone 44 395 & 43 527
The BUSINESS CLINIC
(Anna Larusson)
306 AFFLECK BLDG. (Opp. Eaton’s)
Office 927 130 House 724 315
Bookkeeping, Income Tax, Insurance
Mimeographing. Addressing. Typing
MALLON OPTICAL
405 GRAHAM AVENUE
Opposite Medical Arts Bldg.
TELEPHONE 927 118
Winnipeg, Man.
COURTESY TRANSFER
& Messenger Service
Flytjum kistur, töskur, húsgögn,
píanós og kæliskápa
önnumst allan umbúnað á smásend-
ingum, ef óskað er.
Allur fltuningur ábyrgðstur
Sími 526 192 1096 Pritchard Ave.
Eric Erickson, eigandi
Gimli Funeral Home
PHONE - 59 - PHONE
Day and Night Ambulance Service
EÍRUCE LAXDAL
(Licensed Embalmer)
Baldvinsson’s Bakery
749 EUice Ave., Winnipeg
(milli Simcoe & Beverley)
Allar tegundir kaffibrauðs.
Brúðhjóna- og afmæliskökur
gerðar samkvæmt pöntun
Sími 74-1181
DR. A. V. JOHNSON
DENTIST
★
506 Somerset Bldg.
*
Office 927 932 Res. 202 398
Thorvaldson Eggertson
Bastin & Stringer
Lögfrœðinqar
Bank of Nova Scotia Bldg.
Portage og Garry SL
Sími 928 291
H. J. PALMASON & Co.
Chartered Accountanta
505 CONFEDERATION LIFE Bldg.
TELEPHONE 927 025
Rovatzos Floral Shop
253 Notre Dame Ave. Ph. 932 934
Fresh Cut Flowers Dally.
Plants in Season
We specialize in Wedding and
Concert Bouquets and Funeral
Designs
Icelandic Spoken
A. S. BARDAL
LIMITED
selur llkklstur og annast um
ötfarir. Allur úttoúnaður sá bestl.
Ennfremur selur hann r»iiaie«~»>
minnisvarða og legsteina
843 SHERBROOKE ST.
Phone 74-7474 Winnipeg
Union Loan & Investment
COMPANY
Rental, Insurance and Finandal
Agents
Slmi 92-5061
508 Toronto General Trusts Bldg.
GUNDRY-PYMORE Ltd.
British Quality - Fish NettlnB
S0 Victoria St., Winnipeg. Man.
Phone 928 211
Your Patronage Will Be
Appreciated
Manager: T. R. THORVALD6QN
Halldór Sigurðsson
*c SON LTD.
Contractor & Builder
•
542 Waverley St.
Sími 405 774
FINKLEMAN
OPTOMETRISTS
and
OPTICIANS
Kensington Bldg.
275 Portage Ave. Winnipeg
PHONF. 922 496
Vér vcrzlum aðeius mcð fyrsta
flokks vörur.
Kurteisleg og fljót afgreiðsla.
TORONTO GROCERY
PAUL HALLSON, eigandi
714 Ellice Ave. Winnipeg
TALSIMI 3-3809
—«■>
THIIN. JACKSOK & SflNS
LIMITED
BUILDERS’ SUPPLTES
COAL - FUEL OIL
Phonc 37 071 Winnipeg
SAVE l/2 ON NEW RUGS
CARPET REWEAVING
NEW RUGS MADE FROM YOUR
OLD WORN OUT CLOTHES
OR RUGS.
Write For Free Illustrated Cataloge
CAPITOL CARPET CO.
701 Wellington Ave.
Winnipeg, Man. Ph. 74-8733
1
Off. Ph. 74-5257 700 Notre Danie Ave.
Opp. New Maternity Hospital
NELL’S FLOWER SHOP
Wedding Bouquets, Uut Flowers
l uncral Designs, Corsages
Bedding Plants
Mrs. Albert J. Johnson
Res. Phone 74-6753
"S
GRAHAM BAIN & CO.
PUBLIC AC.C.OUNTANTS and
AUDITORS
350% HARGRAVE ST.
Bus. Ph. 93-7246 Res. Ph. 3-7390
Lungnakvef
Njótið þör eigi sveefns vegna taugaveikl-
andi lungnakvefs og hósta, er ekkert sýn-
ist vinna á? Tempieton’s RAZ-MAH töfl-
ur eru til þess gerðar að losa um sl(m og
létta fyrir brjósti, og við það hverfur
hóstinn og rennsii úr nefi. Fáið RAZ-
MAH vegna skjóts bata. 65/., $1.35 í
lyfjabúðum. R56