Heimskringla - 13.05.1953, Blaðsíða 1
AT ALL LEADING GROCERS
Super-Quality
“BUTTER-NUT”
BREAD
“Tops m Quality & Taste”
CANADA BREAD -look for the
Bright Red Wrapper
AT ALL LEAIJING GROCERS
Super-Quality
“BUTTER-NUT”
BREAD
“Tops iu Quality & Taste”
CANADA BREAD -look for the
Bright Red Wrappei
LXVII ÁRGA ÍGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 13. MAÍ 1953
NÚMER 33.
FRÉTTAYFIRLIT OG UMSAGNIR
FYRSTI MAÍ
•t
Hátíðahöld 1. mai voru um-
fangsmest nú sem fyr í Moskvu
og að vísu í öllu Rússlandi, en
minna var þó um þau en oft áð-
ur °g í peðríkjunum voru þau
ekki neitt til takandi. Utan Rúss
lands, virðist helgi þessa dags
vera að dvína. í Japan segir þó
frá skrúðgöngu 500,000 verka-
manna. Fór þar alt friðsamlega
fram þar til í lok dagsins, að
lög<reglan fór að dreyfa úr hóp-
unum. Snerist æsku- og skólalýð
Urinn öndverður við því og hóf-
Ust út af því erjur við lögregl-
una. Um 10,000 voru í hópi
aeskumanna, en aðeins 1500 í lög
regluflokki. Æskan lét hana því
ckki skipa sér fyrir verkum.
í Berlín, bæði vestlæga og
rússneska hlutanum, voru mikl-
ar skrúðfarir og virtist, sem sam-
kepni væri þeim á milli um að
hafa hátíðarhöldin sem viðhafn-
armest. í Austur-hlutanum var
gengið framhjá stað er rússnesk-
ir yfirmenn höfðu safnast fyrir
til að sjá um hverju fram færi.
f vestur hlutanum var miðstöðin
ríkisþinghúsið. Fluttu leiðtog-
arnir þar svæsnar ræður um á-
gengni kommúnista.
í íran voru hátíðahöld af
þessu tæi bönnuð.
í N. York bannaði lögreglan
einnig skrúðgöngu. Sagði hún
hátíðarhöld þessi ekkert orðinn
annað en gallharðan kommúnista
áróður.
Fyrsti maí hefir í meira en
Jiálfa öld verið talin tyllidagur í
Evrópu og Bandaríkjunum. —
Verkamenn völdu hann til að
bera fram kröfur sínar með
skrúðgöngum. Og “Hið annað
Alþjóða jafnaðarmanna félag”
samþykti hann sem helgidag ár-
ið 1889.
En uppruna mun dagurinn eiga
að rekja, sem tyllidagur til vor-
hátíða Indverja og Egypta, sem
á þessum degi þökkuðu vorgyðj-
um sínum fyrir sumarkomuna.
t>að var einnig siður í Róm að
faera vorgyðjunni, Flora, þakkir
fyrir batnandi veður og gróður
jarðar 28. apríl og því um mjög
líkt leyti. Maypoles-fagnaðurinn
á Englandi, sem og fluttist til
Bandaríkjanna og helzt þar enn
við, átti sér einnig stað 1. maí.
En hann var aðeins barna dansar
aðallega í kring um háa stöng
skreytta drenglum, og héldu
börnin í enda þeirra, er þau döns
uðu í kring um stöngina.
ER húN afkomandi
ALBERTS THORVALDSENS
Mælt er að hin ítalska kvik-
myndaleikkona Anna Magnini,
sé afkomandi Alberts Thorvalds-
sens.
Á Rómaárum hins mikla lista-
manns, hafði hann um skeið ít-
alska lagskonu, er hét Anna Mag
nini. Með henni eignaðist hann
tvö börn, dreng og stúlku. Dótt-
irin giftist Fritz Paulsen ofursta.
Eiga afkomendur þeirra hjóna
heima í Róm, og eftir því sem
menn segja, er núverandi kvik-
myndaleikkona meðal afkom-
enda þeirra.
Mörgum íslendingum mun á-
reiðanlega leika forvitni á að fá
að vita hvaða núlifandi íslend-
ingar séu nánustu ættingar hins
heimsfræga listamanns, er aldrei
leit ættjörð sína, en bar ætíð
Linn mesta hlýhug til lands og
þjóðar, eins og Jónas Hallgríms-
s°n komst að orði í þakkarkvæði
Slnu fyrir skírnarfontnin er T'nor
valdsen sendi Miklabæjarkirkju
í Blönduhlíð og hingað kom í
Dómkirkjuna árið 1839. — Þar
segir m.a.:
Risti smíð þessa
í Róm suður
Albert Thorvaldsen
fyrir árum tólf
ættjörð sinni
ísalandi
gefandi hana
, af góðum hug.
Hinir iðnu ættfræðingar vorir
ættu að grafa það upp, hverjir
nú lifandi manna á íslandi séu
I nánustu ættmenn séra Þorvaldar
á Miklabæ. En eigi er um nánari
skyldmenni listamannsins að
ræða hérlendis. —Mbl.
FRÉTTAMOÐ
Háir tollar í B,andaríkjunum
geta orðið dýrir lýðræði vest-
lægu þjóðanna í vörn sinni á
móti kommúnisma, sagði Banda-
ríkjaritari John Foster Dulles í
ræðu, 4. maí í Washington.
Fyrir þinginu var frumvarp til
umræðu, sem fór fram á toll-
hækkun. Skiftust Republikanar í
r.ærri tvo jafnstóra flokka út af
tollmálunum. Kveður svo mikið
að þessu, að demókratar gera sér
vonir um að það kljúfi stjórnar-
flokkinn og felli hann við næstu
kosningar.
★
Nokkrar líkur þykja á því, að
fimm Indíánar muni sækja í
kosningunum í British olumbia
9. júní. Sumir eru óháðir, en aðr-
ir fylgja einhverjum hinna
kunnu landsflokka.
*
f sjö Mig-flugvélum, sem
skotnar voru nýlega niður í Ko-
reu, voru fjórir flugstjóranna
Rússar. Það virðist því ekki alt
satt sem sagt er um það, að Rúss
ar komi ekki nærri Koreu stríð-
inu.
★
Síðast liðna viku, lét stjórnin
á Englandi af komsölu. Hafði
hún rekið hana í 12% ár. Taka
nú séreignafélög við henni.
Umsetning stjórnarinnar nam
árlega um $850,000,000 í inn-
fluttu korni. Er hún því einn
stærsti viðskiftareksturinn a
Englandi, sem í lofa séreigna-
manna er aftur lagður.
Kornið hefir verið keypt frá
Canada, Rússum, Bandaríkjun-
um og Argentínu. Er ekki efi á
að þessi félög kaupa ekki hveiti
á eins háu verði og stjórnin
gerði.. Og þá má hamingjan
hjalpa Canada í samkepninni við
nefnd lönd, hvað sem hreysti
orðum Howes verzlunarmála-
ráðherra líður um að hann en
ekki Bretar róði verðinu
*
Lt. F. Jarewski, sá er í flug-
fari strauk frá Póllandi til Dan-
merkur, kom s.l. viku til N. York
til að hitta landa sína, sem þar
er mikill sægur af. Hann segir
megna óánægju í Póllandi undir
yfirráðum Rússa. Sögur sem
breiddar væru út um það, að
Bandaríkin hafi hvatt hann og
boðið honum fé sem hann þyrfti
með til að strjúka, sagði hann
ekki fót fyrir. Hann kvaðst haf i
tekið það algerlega upp hjá
sjálfum sér.
*
í vestur Asíu, fraq og Jordan,
voru tveir konungar, 18 ára gaml
ir krýndir 2. maí.
Heitir annar þeirra Feisal kon.
II. Tók hann embætiseið sinn í
Bagdad um að vera þjóð og
stjórnarskrá fraqs trúr.
En fyrir handan f jöll og öræfi
í suðvestri, fór á sama tíma fram
krýning Hussein I. konug í litlu
þinghúsi í Ammans, í Jordan.
Krýningar þessar sóttu öll
stórmenni landa þeirra og mikið
af fulltrúum frá öðrum löndum.
Hussein tekur við af föður
sínum, Talal, en hann var rekinn
frá völdum fyrir ári síðan; hafði
flogaveiki.
Feisal tekur einnig við af föð-
ur sínum, Gazi kon. I., sem fórst
í bílslysi 1939. Krýning Feisals
hefir aðeins beðið eftir, að hann
næði 18 ára aldri. Með Hussein
var hinu sama að skifta.
Báðir eiga ætt að rekja til Huss
ein konungs þess, er konungdóm
stofnaði í Arabíu, þegar Arabar
gerðu byltingu á móti Tyrkjum
í fyrsta alheimsstríðinu.
Báðir hafa konungar þessir ver
ið mentaðir á Englandi.
*
Kjötskamturinn á Englandi
var yfir síðustu helgi aukin um
helming. Getur húsfreyjan nú
keypt kjöt fyrir 2 shillings á
viku handa hverjum manni í
stað 1 shillings áður. Verzlanir
eru nú orðnar miklu sjálfráðari
um innkaup á erlendum vörum,
en þær hafa verið—og sem þýðir
að lægra verðs er krafist.
*
Einn af þingmönnum Breta,
George Wigg að nafni, verka-
mannafulltrúi, sagði nýlega á
brezka þinginu, að Bretar létu
Rússum i té hernaðarleyndarmál
viðvíkjandi flugvélum. Þessu
var um hæl neitað af birgðaráðh.
Duncan Sandy. Hann sagði ekk-
ert af því tæi nú eiga sér stað.
En meðan verkamannastjórnin
hefði verið við völd og hefði
leyft vélsmíðafélaginu “Nena”
að selja Rússum bíla, hefðu þeir
einnig selt Rússum vélar, sem nú
væri ljóst orðið, að Rússar hefðu
notað í sínar fyrri Mig 15 flug-
vélar. Rússar breyttu meira að
segja ytri gerð flugskipanna til
að geta notað vélarnar frá félag-
inu sem þeir gátu hvergi annars
staðar keypt.
★
Það virðist undarlegt við suma
fangana frá Koreu, bæði canad-
iska og bandaríska, að þeir virð-
ast svo niðurbrotnir, að þeir vita
stundum ekki nanað, en að þeir
séu> í Koreu og segja þá það
sem þar ber að segja um frelsi
kommúnista, en kúgun vestlægu
þjóðanna.
Kveður svo mikið að þessu, að
það kvað í Bandaríkjunum þykja
nauðsynlegt, að lækna fangana
af þessu. Er og á því byrjað. En
hvað langan tíma lækningin tek-
ur, er ekki reynt ennþá.
*
Öll stærri blöð í Ecuador rík-
inu í Suður Ameríku, neituðu að
koma út 28. apríl. Ástæðan fyrir
því var sú, að tvö stærstu blöð
landsins, voru stöðvuð af stjórn-
inni. Byggingar blaðanna eru 5
höndum stjórnarinnar, en eigend
ur þeirra og ritstjórar eru í tugt
húsinu.
Ástæður fyrir gerðum stjórn-
arinnar kvað sú, að blöðin hefðu
flutt svívirðilegar greinar um
stjórnarflokkinn ásamt hótunum
um byltingu. Blöðin eru La Na-
cion og La Hora, bæði í borg Gu
ayaquil.
Önnur blöð ríkisins gerðu
verkfall til að mótmæla gerðum
stjórnarinnar.
•k
Búnaðar-verkfærasali í Blue-
field, W. Va., reyndi að vekja
athygli bænda á vöru sinni með
því að stinga upp á að láta drátt-
\él og fíla togast á. Þá sæist
fyrst munur eldri tímans og hins
nýja, menningarinnar og villi-
menskunnar. Maður sem var með
dýr á sýningu í bænum og heyrði
þetta, bauð verkfærasalanum að
reyna þetta.
Svo var komið með dráttvél og
fíl og þau látin draga hvort á
móti öðru
Fóru leikar skjótt þannig, að
fíllinn hafði betur og hljóp með
hóstandi dráttvélina á eftir sér
um allan sýningarvöllinn.
★
Af orðum St. Laurent forsætis
ráðherra að dæma, eftir ferð hans
til Washington á fund Eisen-
howers og eftir viðtal hans við
forsetann um viðskifti milli
landanna, færði hann þinginu
þær fréttir í gær, að Eisenhower
hefði rétt lengra út hendina til
samkomulags, en nokkur demó-
krata eða önnur stjórn hefði
gert. Hann hélt fram að þjóðir
sem huguðu eins og störfuðu og
stefndu eins að nákvæmlega
hinu sama og Canada og Banda-
ríkjaþjóðin gera, gætu án minstu
fyrirhafnar unnið saman að öllu
því, sem þeim er til velferðar.
Eisenhower bætti ennfremur við
að algerlega óþarft væri, að við-
skifta halli ætti sér stað á milli
þessara landa, og það væri meir.i
ólag á viðskiftunum, ef svo
þyrfti að vera.
Það væri ekki í samræmi við
þá einingu, vináttu og samvinnu,
sem í hugum borgara beggja
megin landamæranna ríkti. Alt
sem í bág kæmi við þetta væri ó-
eðlilegt og yrði að hverfa.
*
í byrjun þessarar viku, snjóaði
í Winnipeg og út um alt fylkið.
Fylgdi honum kuldi frá 2 til 7
gráður fyrir neðan frostmark. —
Voru það mikil umskifti frá því
um miðja s.l. viku, er hitar kom-
ust upp úr öllu veldi—yfir 90
stig einn daginn. Veðrið í byrj-
un þessarar viku hefði ekki ver-
ið sem verst um jólaleyti. En í
nærri miðjum maí, á það ekki
heima. En fátt er svo með öllu
ilt. Hér höfðu verið miklir þurk-
ar og fyrir gróður verður úrkom
an góð. Ennfremur voru skóg-
areldar í norðaustur Manitoba
hinir mestu. Úr þeim dróg mikið
við snjókomunna. Það er enn
sagður nokkur eldur í jörðu, en
með vaskleik er vonast til að
vinna bug á þeim.
*
Eitt af verkefnum alþjóða
hveitisamningsins sem undir-
ritaður var 23. marz 1949 og sem
sala á hveiti hefir síðan verið
háð, var það, að koma í veg fyrir
að hveiti lægi óselt nokkursstað
ar og að verð þess haggaðist
ekki. Á þeim tíma voru óseldar
hveitibirgðir 811 miljón mæla.
En þetta hefir ekki betur tekist
en það, að nú eru óseldu birgð-
irnar orðnar nærri 1% biljón m.
Af því hafa Bandaríkin 668 mil-
jón mæla, Canada 533 miljón, Ar-
gentína 160 miljón og Ástralía
106 miljón.
Þrátt fyrir þó allar aðal-hveiti
framleiðslu og hveitikaupa þjóð
ir heimsins standi að þessum
samningi, hefir nokkuð af hveit-
inu selzt á “frjálsum markaði”.
Og það sem lakara er, að verðið
hefur þar verið hærra, en þetta
samningsverð. Með þannig lag-
aðri sölu, hafa birgðirnar tals-
vert minkað.
Alheims hveitisamningurinn
hefur því ekki komið í veg fyrir
auknar óseldar birgðir, né bætt
verðið. Og hvers virði er þá þessi
samningur eða samtök um söl-
una?
VESTUR-f SLENZK
LEIKKONA f KVIKMYND
í AUSTURBÆJARBÍÓI
Eileen Christy
Vestur-íslenzk leikona Ei-
leen Christy, leikur aðalhlut-
verkið i amerísku kvikmyndinni
Æskusöngvar” sem Austurbæj-
arbíó sýnir um þessar mundir.
Foreldrar hennar eru Guðrún
°S Kjartan Kristófersson. Afi
Eileenar mun vera Sigurður
Kristófersson, ættaður úr Mý-
vatnssveit, en hann var meðal
þeirra fyrstu, sem fluttust vest-
ur um haf. Bróðir Eileenar,
Kjartan, var hér á landi á stríðs-
árunum og giftsit hann íslenzkri
stúlku, en þau búa nú í Ameríku.
Talar hann ágæta íslenzku, en
Eileen, sem er yngst af níu syst-
kinum kann lítið í málinu, en
skilur islenzkuna allvel. Eileen
er fædd í Baldur, Manitoba í
Kanada, en þegar hún var átta
ára fluttist fjölskylda hennar til
San Francisco. Stundaði hún
leiklistar- og söngnám þar í borg
og 1949 kom hún fram í sjón-
varpi. Árið 1950 lá leið hennar til
Hollywood og lék hún fyrst í
tveimur kvikmyndum hjá MGM
en síðan réðst hún til Republic-
kvikmyndafélagsins, en fyrsta
mynd hennar þar var “Æsku-
söngvar”. Síðan hefir hún leik-
ið í tveimur myndum til viðbót-
ar. “Thunderbirds” en þar leik-
ur John Derek á móti henni, og
"Sweetheart Time”, — sem er
söngvamynd í eðlilegum litum.
Kvikmyndin, sem íslenzkir bíó-
gestir sjá hana í núna fjallar um
æskuár tónskáldsins vinsæla
Stephens Forsters. Mynd þessi
er skemtileg og mjög falleg í
henni eru sungin og leikin nær
öll vinsælustu lög Fosters. Er ó-
hætt að segja að Eileen valdi
ekki vonbrigðum hjá bíógestum.
—Mbl. 10 apríl.
Til viðbótar ofanskráðri frétt
segir 13. apríl í Morgunblaðinu:
í fyrradag birtist hér í blaðinu
mynd af ungri og fallegri vestur-
íslenzkri kvikmyndaleikkonu, —
sem virðist á góðri leið með að
verða ein vinsælasta Hollywood
stjarnan í bili—og er þar með
ekkert smáræði sagt!
Sérstaklega vekur hin falllega
söngrödd Eileenar mikla athygli
og aðdáun og er hennar víða get-
ið í heiminum um þessar mund-
ir.
M.a. birtir danska kvennablað-
ið “Tidens Kvinder” nýlega um
hana mjög lofsamlega umsögn,
en ættfærir hana á þá leið, að
hún sé “Dansk-ísansk”. Faðir
hennar, Kjartan Christopherson
(með Ch-ph!) hafi, eins og nafn
ið bendir til, verið af dönsk-ísl.
ættum og fæddur í Reykjavík.
“Eileen Christy er sef sagt að
nokkru leyti dönsk”—segir blað-
ið.
Þessi skyldleiki Eileenar við
Dani fyrir finst ekki, og er að-
eins gamla sagan, að Danir vilja
eigna sér hvað eina sem íslend-
ingur vinnur sér til frægðar.
Frú Anna G. Jóhannson
Vinarkveðja
Ertu sofnuð, elsku vina mín?
Unninn sigur, hvíldin bíður þín.
Hverfðu’ í friði heim frá dauðans dal,
Drottinn blessar það er koma skal.
Já, hann blessar blíða drauminn þinn,
blessar þína ferð í himininn,
þerrar sérhvert tár, er titrar nú
trúrra’ vina á brá, er kveðu þú.
Þegar kveðja þínir líkar hér,
þrá til föðurlandsins ríkust er,
heim úr útlegð, hrópar andans þor,
heim úr vetri’ í eilíft dýrðarvor.
Far þú vel á ljóss og sælu land,
lög Guðs treysta kærleiks handaband,
ástvinanna engill varstu hér,
ástvinanna hugir fylgja þér.
Börn og maki þakka þína fylgd,
þessi leið er nú á enda sigld,
móðir betri’ og ástvin átti’ ei neinn,
andi þinn var mildur, trúr og hreinn.
Fleiri’ en þínir eigin áttu skjól
undir þinni vernd mót hlýrri sól
elsku þinnar; alla vildir þú
umvefja í kærleik, von og trú.
Eg var ein, sem undi við þitt ljós,
einhver dýrsta minninganna rós,
sem eg á í æsku drauma heim,
er frá samvistinni’ á dögum þeim.
Hve þú brostir blítt við ungri sál,
bergðir með mér ljúft af gleðiskál,
hvíslaðirðu: “Hvað, sem gengur á,
haltu velli, þú munt sigur fá”.
Raust þín blíð og fögur fylgir mér,
fegurst, er eg held á eftir þér.
Hjartans þökk. f geisla’ af gleðisól
gakk þú inn að Drottins náðarstól.
Kristín M. J. Björnson