Heimskringla - 22.07.1953, Blaðsíða 1
L
AT ALL LEADING GROCERS
Super-Quality
“BUTTER-NUT”
BREAD
“Tops in Quality & Taste”
CANADA BREAD -look for the
Bright Red Wrappet
AT ALL LEADING GROCERS
Super-Quality
“BUTTER-NUT”
BREAD
“Tops in Quality & Taste”
CANADA BREAD -look for the
Bright Red Wrapper
lxvii arga: ^gur
WUNTNIPEG, MIÐVUOJDAGINN 22. JÚLÍ, 1953
NÚMER 43.
FRÉTTAYFIRLIT OG UMSAGNIR
UPPÞOTIN í LEPPRÍKJ-
UNUM STAFA AF MAT-
ARSKORTI
Uppþotin sem hafa átt sér
stað undanfarnar vikur í ríkjun-
um fyrir austan járntjaldið
stafa af matarskorti.
Yfirmenn Sameinuðu þjóð-
anna í Vín, segja að víðtækt
hungur ríki í þessum löndum.
Fleiri miljónir í Ungverjalandi,
Búlgaríu, Tjekkóslóvakíu, Al-
baníu og Póllandi eigi við mik-
inn skort að búa. Það megi þegar
segja, langvarandi hungur sé að
verða fjölda að bana. —
í Austur-Þýzkalandi er upp-
skera rýr og talsvert minni en
\ ið var búist vegna þess að mik-
ið af beztu bændunum þar hafi
strokið í tíma vestur fyrir járn-
tjaldið. Þeir sögðust ekki hafa
getað gert sér að góðu, að láta
Rússa siga sér.
Þannig stendur á óeirunum í
þessum löndum.
Og það er einnig þess vegna,
að þeim er af núverandi stjórn
sýnd miklu meiri lempni en áður.
Nýlega var til dæmis útvarpað
frá Moskvu, að lögin um það, að
vera burtu frá vinnu og sem ráð
gerðu fyrir strangri hegningu
fyrir slík brot, væru úr lögum
numin.
Ýmislegt af þessu tæi er nú
iðulega að hafst til þess að
reyna að sefa óróann.
SÆKJA í HVERJU
KJÖRDÆMI
f Manitoba eru 14 þingsæti á
sambandsþingi. Sækir þing-
mannsefni frá íhaldsflokki í
hverju kjördæmi. Er kunnugt
um nöfn tólf þeirra, þegar þetta
er skrifað, en 2 ekki.
lands, hefir D. Eisenhower.
Bandaríkja forseti boðið Rúss-
um að senda 15 miljón dollara
virði af vörum gefins til Austur-
Þýzkalands. Molotov svaraði,
að á gjöf þessa yrði litið sem á-
róður og hún yrði því ekki þeg-
in.
Þegar svar Molotovs kom var
eitthvað af vörunum á skip kom-
in áleiðis til Vestur-Þýzkalands.
Lofar Adenauer að koma öllu
sem hann getur til þjóðbræðra
sinna í Austur-Þýzkalandi, —
gegnum Rerlín. Segir Adenauer
matvæla skort herfilegan í A,-
Þýzkalandi.
SAGA MINNISMERKJA
MERKILEG.
Rétt fyrri 17. júlí flutti blað-
ið Winnipeg Tribune grein með
fyrirsögninni: “Kynnið yður
minnismerki borgarinnar”. —
Myndin af minnismerki Jóns
Sigurðssonar var birt og grein
gerð hin bezta fyrir henni í það
skifti í blaðinu. Blaðið hvaddi
þjóðarbrotin hér til að koma upp
sögulegum minnismerkjum eins
og íslendingar hefðu gert með
þessu, taldi það frá sögulegu
sjónarmiði mikilsvert.
100,000 MUNAÐARLEYS-
INGJAR í KOREU.
Ameríska Koreustofnunin hef
ur gefið út skýrslu, sem sýnir að
í Koreu eru nú um 100,000 mun
aðarlaus börn.
Er talið, að 100 af hverjum
1000 lifandi fæddum börnum í
N. Koreu deyi mjög ung, og 75
af þúsundi í S. Koreu. Um 40,000
börn eru í barnaheimilum en 10.
000 eiga hvergi skjól yfir höfuð-
ið.
í Brandon-Souris er þing-
mannsefnið Walter Dinsdale;
Churchill, William Thompson;
Dauphin, R. Elmer Forbes; Lis-
gar, W. H. Sharpe; Marquette
Ernest A. Bates; Provincher,
Abe Thiessen; Selkirk, Mike
Baryluk; Springfield, Joseph
Slogan; St. Boniface, George C.
MacLean; Winnipeg South Dr.
O. Trainor; Winnipeg South-
Centre Gordon Churchill; Win-
nipeg North J. Kereluk.
f Portage-Neepawa og Winni
peg North Centre, verða þing-
mannsefnin valin innan skamms.
í ræðu sem George Muir fra
Roland, forseti íhaldsflokksins
í Manitoba hélt nýlega benti
hann á þann sannleika, að þús-
undir ungra, eða nýrra kjósenda
hefðu af reynd ekki þekt neina
aðra stjórn en liberalstjórn. Þá
þyrfti að fræða um hinn sögu-
lega íhaldsflokk, og hvað hann
hafði gert fyrir þetta land. Hann
mintist þessara aðal-atriða:
Myndum fylkjasambands Can
ada, samningu fyrstu fólksinn-
flutningslaganna, stofnun CPR
íélagsins (sem segja má að orðið
hafi til að byggja upp vestur-
landið) og síðar CNR félagsins,
Trans-Canada Airways; mynd-
un lögreglu Norðvestur lands-
ins; viðurkendu fyrstu verka-
mannasamtök, lögum markaði
fyrtr bændaframleiðslu, veittu
konum fyrst atkvæði, samdi lög
um húsabyggingar (National
Housing Act) stofnaði Canada-
banka, lögleiddi hermannastyrk
(benefit's and pensions) og
margt fleira.
LÚÐRARNIR KALLA —
— KOMIÐ. . . .!
Allar líkur eru til þess, að
sýnd verði hreifimynd heiman
frá íslandi, að Gimli á hátíðinni.
Próf. Finnbogi Guðmundsson er
að útvega hana og kemur með
hana með sér er hann kemur með
“hópnum” til baka. Og það verð
ur áreiðanlega reynt, að koma
því svo fyrir, að myndin verði
: vel sýnd. svo fólk þurfi ekki að
verða fyrir vonbrigðum, eins og
átti sér stað síðast þegar sýna
átti myndir frá Islandi.
Aö morgniruim verða spilaðar
nýjai íslenzkar hljómplötur til
Jað skenua þeim sem fyrstir koma
og þangað til skemtiskráin hefst
Community söngur verður að
kvöldinu, eins og tíðkast hefur
undanfarið, og er mjög vinsælt.
Allskonar íþróttir verða sýnd
ar að morgninum og einnig eftir
miðdaginn, í norð-vesturhluta
skemtigarðsins. Mörg verðlaun
gefin.
Dansinn byrjar um klukkan
níu í danssalnum í Parkinu. —
Murray Anderson hljómsveitin
spilar fyrir dansinum.
' Veitingar verða seldar á staðn
um og allskonar drykkir og sæl-
gæti.
Mörg hundruð dollara hefur
nefndin lagt fram til að bæta og
Ifegra Fjallkonusætið, palla og
! sætin fyrir söngflokkinn, svo
| það er nú mjög aðlaðandi og
fallegt orðið og setur mikinn
tignarsvip á allt sem þar fer
fram í sambandi við hátíðahald-
ið.
VISTIR EKKI ÞEGNAR
Samkvæmt beiðni frá Konrad
Forseti fslendingadagsins, J.
K. Laxdal, stjórnar samkomunni
og hann er kunnur að því, að
Adenauer, Kanslara V.-Þýzka- stjórna öllum fundum og mann-
fagnaði liðleg aog vel.
Já, það verður margþætt og
góð skemtun fyrri alla, eldri
sem yngri, á íslendingadaginn
að Gimli þann þryðja ágúst næst
komandi. Enginn sannur og góð
ur íslendingur má við því að
sitja heima þennan dag, og
missa af þessum einstæða fagn-
aðarfundi og gleðistund, því
“Hvað er svo glatt sem góðra
vinna fundur,
er gleðin skín á vonar hýrri brá?
Eins og á vori laufi skrýðist
lundur,
lifnar og glæðist hugarkætin þá.
Já, það verður gaman að koma
til Gimli 3. ágúst.
Davíð Björnsson
ÚR BRÉFI FRA
LOS ANGELES
“Þó ár sé nú liðið síðan við
hjónin sáum þig langar okkur
um leið og við sendum áskriftar-
gjald Hkr., að þakka þér fyrir
síðast. Við komumst heil og
höldnu heim úr ferðinni, en eg
held mér sé óhætt að segja, að
við vorum þreyttari þegar við
komum heim, heldur en þegar
við fórum.
í október s.l. heimsótti okkur
Sigurður Jónasson, bróðir konu
minnar. Hann var á ferðalagi
umhverfis jörðina í flugvél og
var á leið til baka til íslands.
Hann er fslendingum flestum
kunnur—gaf íslandi forsetabú-
staðinn, Bessastaði.
Hinn 21. júní 1953 héldu Los
Angeles fslendingar útisam-
komu eða fslendingadag í Echo
Park hér. Á að gizka kom þar
saman um 100 manns. Kosin var
sem forseti félags vors fyrir
næstkomandi ár hin góðkunna
kona Mrs. B. S. (Guðný) Thor-
valdson, sem áður bjó að Akra
og Cavalier, Norður Dakota. En
vara-forseti var kosinn Neil
Thor (Njáll Thorkelson), —
frændi Soffóníasar Thorkels-
sonar stóriðjuhölds um langt
skeið í Winnipeg. Mr. Thor er
einn af stofnendum íslendinga-
lélagsins, sem nú er orðið 30 ára
gamalt í Los Angeles.
Við komum saman til að sjást
og talast við og minnast ætt-
jarðarinnar og að við séum ís-
lendingar.
Hér hefir verið afarheitt
meira en viku og ekkert farið
að kólna ennþá---------”
, Fred T. Fridgerson
KRISTJÁN KÉRNEST 88 ÁRA
19. júlí 1953
Tugi átta, og átta
ár að baki sér
á hinn aldni þulur,
—enn er með oss hér.
Hæverskur og hraustur,
hugumstór og frár,
bæði trúr og traustur,
tregar ei sín ár.
Ef við fleiri ættum
eins og þennan mann,
yrði okkar dýpri
ást við heimarann.
Allt sem ísland prýðir
er hans líf og sál.
Hann hefir ísland elskað,
úti í vestrinu. —Skál.
P. S. P.
Amtsbókasafnið á Akureyri,
hefir ákveðið að kaupa smáfilm
ur af ýmsum handritum þjóð—
skjalasafns ed ljósmynduð verða
í vetur af Genealogical Society
í Salt Lake City í Utah. Verð á
filmunum verður um 58,0000 kr.
en lesvélkostar um 8000 kr. —
Þegar þetta er komið í kring,
batnar mjög hlutur norðlenzkra
fræðimanna.
ALÞINGISKOSNINGARNAR
Á ÍSLANDI 30. júní
Frá aðalúrslitum Alþingis-
kosninganna hefir áður verið
sagt. Hér verða birt nöfn þing-
mannanna sem kosnir voru:
f Reykjavík — Þingsætin, sem
eru 8 alls, skiftust þannig milli
flokkanna: — Sjálfstæðismenn
kosnir: Bjarni Benediktsson,
Björn Ólafsson, Jóhann H&f-
stein og Gunnar Thoroddsen. —
Sósíalistar kosnir: Einar Ol-
geirssen og Sigurður Guðnason.
Alþ.fl.: Haraldur Guðmundsson.
Framsókn: Gils Guðmundsson.
Á fsafirði — Kjartan J. Jóhanns
son Sjálfstæðism. kosinn.
Á Sýslufirði — Einar Ingi-
mundarson Sj.
Akureyri — Jónas G. Rafnar, sj.
Seyðisfirði — Lárus Jóhannes-
son, Sj..
Vestmannaeyjum — Jóhann Þ.
Jósefsson, Sj.
Hafnarfirði — Ingólfur Flygen-
ring Sj.
Borgarfjarðarsýslu — Pétur Ot-
tenson, Sj.
Mýrasýslu — Andres Eyjólfs-
son F.
Snæfellsnessýslu — Sigurður
Ágústsson, Sj.
Dalasýsla — Ásgeir Bjarnason,
F.
Barðastrandasýslu — Gísli Jóns
son, Sj.
V. ísafjarðarsýslu — Einar Þor
steinsson, F.
N. f saf jarðarsýsla — Sigurður
Bjarnason, Sj.
Strandasýslu — Hermann Jónas-
son, F.
V. Húnavatnssýlu — Skúli Guð-
mundsson F.
Á. Húnavatnssýslu — Jón
Pálmasson, Sj.
Skagafjarðarsýslu — Steingr.,
Steinþórsson, F.; Jón Sigurðs-
son, Reynistað, Sj.
Eyjaf jarðarsýslu — Bernharð
Stefánsson; Magnús Jónsson Sj.
Suður-Þingeyjas. — Karl Kristj
ánsson, F.
N. Þingeyjars. — Páll Zóphóní-
asson, F., (ekki víst um annan)
SuðurMúlasýslu — Eysteinn
Jónsson, F., Vilhjálmur Hjálm-
arsson, F.
Austur-Skaftaf.s. — Páll Þor-
steinsson, F.
V. Skaftafellss. — Jón Kjartans-
son, Sj.
Rangárvallasýslu — Ingólfur
Jónsson, Sj. Helgi Jónsson F.
Árnessýslu — Jörundur Brynj-
ólfsson F., Sigurður Óli Ólafs-
son Sj.
Gullbringu og Kjósarsýslu —Ól-
afur Thors Sj.
Þetta eru þeir sem nú þegar
eru kosnir en samt ekki allir.
En uppbótar-þingsæti flokkanna
verður ekki enn sagt um hverjir
hljóti. Sósíalistafl., sem kaus að-
eins 2, fær 5 uppbótar þingmenn.
Alþ. fl., sem aðeins kaus einn,
fær aðra 5 uppbótarþingmenn,
Þjóðvarnarfl. nýji kaus einn og
fær annan til uppbótar sér. —
Stærri flokkarnir svo sem Sjálf
stæðisfl. og Framsóknarfl. fá
enga uppbótar þingmenn; hinn
fyrnefndi er viss með 21 þing-
sæti og hinn síðarnefndi með 16
Nánari fréttir eru ekki komn-
ar.
MÓÐURMÁLSVERND OG
NÝYRÐI
(Eitt af hinum alvarlegu nú-
tíðar viðfangsefnum fslendinga,
er það, að smíða ný orð yfir nýj-
ungarnar, sem bæði ryðja sér nú
til rúms í verknaði og vísindum.
En hvert vandaverk það er, minn
ir eftirfarandi grein á. Það kvað
hafa verið reynt að bæta úr þörf
Frú Margrjet Kristjánson
Fjallkona Islendiogadagsins í Seattle
inni á þessu með nýrri orðabók,
sem vér höfum ekki séð, en orðið
varir við útdrátt úr, sem vér ekki
kunnum að dæma neitt um, en
bendir á að tíð og tími verði þar
bezti dómarinn og að nýyrðum
megi ekki gleypa við hugsunar-
laust. —Rstj. Hkr.)
Á síðustu áratugum hafa eins
þessu falli sé “hugsari” betra orð
en hugsuður.
Brekkubæ í Hornafirði,
Bjarni Bjarnason
FRÁ ISLANDI
Konurnar í Vogunum reka
bandaríska herinn á flótta!
Sá atburður gerðist inni á Suð
urlandabraut í fyrrad. að nokkr-
og kunnugt er, á öllum sviðumiar konur úr Vo^unum ráku
þjóðlífs vors, orðið svo örar
framfarir og breytingar, að fræði
menn vorir hafa varla eða ekki
haft við að skapa nýyrði yfir all-
an þann fjölda erlendra orða,
og nýrra hugtaka, sem slíkri þró
un hefir verði samfara. Margt
hefir þó mjög vel verið gjört í
þessum efnum. Allir munu vera
sammála um, hvílík nauðsyn
slíkt er, til að vernda og við-
bandaríska herinn á óskipulagð-
an flótta.
Bandarískir hermenn voru að
flækjast í stórum bílum um Suð-
urlandabrautina og sáu þar hóp
af börnum nálgast. Sneru þeir
þá að börnunum, er þótti þetta
nýstárlegir gestir, og fóru stríðs
mennirnir að taka myndir af sér
með börnin.
Þegar mæður barnanna veittu
halda voru fagra og auðuga móð, þessu athygH kölluðu þær - ^
urmáli, sem við höfum fengið í
arf. Hvorki meira né minna en
sjálfstæði og menning þjóðar
vorrar liggur við, sé þessa ekki
gætt.
Móðurmál vort sýnir einna
bezt og sannar, hvílíku mannviti
forfeður vorir hafa verið gædd-
ir. Fullkomið mál eins og ís-
lenzkan, með jafn vel byggðum
og samræmdum orðaforða, get-
ur ekki hafa myndazt, nema hjá
kynflokki, sem um aldaraðir
hafði búið við sérstæða menn-
ingu. Málið er endurskin af mann
viti, þótt fátt finnist nú um slíkt
skráð, því friðar og menningar-
saga hefir ætíð síður þótt í frá-
sögur færandi en saga styrjalda
og hryðjuverka. —
Við sköpun allra nýyrða verð-
ur, auk þess sjálfsagða grund-
vallaratriðis, að orðin séu mynd
uð af íslenzkum stofni, að gæta
þess, að þau verði í samræmi við
fegurð og tign málsins, svo stæl
og mýkt þess viðhaldist.
Stundum hefir verið hér á mis-
ín, en forvitni barnanna varð
yfirsterkari, svo ein kvenanna
fór á vettvang og tjáði stríðs-
mönnunum að mæðurnar vildu
ekkert hafa með þetta að gera,
þeir skyldu því hafa sig á brot.
En hermennirnir skildu hana
ekki,
Þá fór ein kvennanna á vett-
vang með myndavél, en þá brá
svo við að stríðsmennirnir lögðu
á hraðanflótta og voru horfnir
eftir örskamma stund!
—Þjóðv.
*
f Tímanum 26 júní segir að
sláttur sé byrjaður á Siglufirði,
á Hólsbúinu, en það er kúabú
bæjarins. Það er mánuði fyr en
á s.l. sumri, en gras orðið eins
gott og þá.
y * *
Það er nú kunnara en frá þurfi
að segja, að hús á íslandi eru
nú úr steini eða steinsteypu að-
allega gerð. Og nú er íslenzka
ríkið að koma upp sementsverk-
smiðju, sem að sjálfsögðu hefir
brestur. Eg hefi nú í huga orðið j meiri þýðingu í byggingarmál
hugsuður, sem nokkuð hefir ver, um landsins í framtíð en nokk-
ið notað á síðustu árum. Finnst
mér, að orð þetta, yfir hið mikla
hugtak, hafi miður vel tekizt, né
vera í samræmi við hliðstæð orð
í málinu, ef tekin eru til saman-
burðar vel gerð nafnorð af sögn
um.
Við myndun umrædds orðs
gætu t.a.m..sagnorðin að mála,
skapa, prenta, gefið nokkra bend
ingu um það, hvernig mynda
ætti nafnorð af sögninni að
hugsa, þó gefa ætti til kynna
jafnvel viðfeðmari merkingu. —
urt annað fyrirtæki.
*
Drottning ánafnar ts-
landi málverk
C. P. M. Hansen kammer-
herra, sem var ritari Hennar Há
tign Alexandrine drottningar,
hefir tilkynnt, að drottningin
liafi ánafnað íslenzka rikinu 2
málverk í minningu um ham-
ingjustundir sínar á íslandi. Mál
verkin eru bæði frá Þingvöllum,
annað eftir Jóhannes Sv. Kjar-
val, en hitt eftir Jón Stefánsson.
Málverkin verða afhent listasafn
Með þetta í huga tel eg að í inu.
—Vísir 24. júní