Heimskringla - 12.05.1954, Blaðsíða 1

Heimskringla - 12.05.1954, Blaðsíða 1
LXVIII, ÁRGANGUR WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 12. MAÍ, 1954 NÚMER 32. FRÉTTAYFIRLIT OG, UMSAGNIR MRS. S. K. HALL DÁIN Söngkonan góðkunna, Mrs. Sigríður Anna Hall, dó s.l. sunnudag (9. maí) að heimili sínu í Wynyard, Sask. Hún var 74 ára, fædd á íslandi, en kom vestur um haf 5 ára gömul og átti heima í Winnipeg 51 ár, en síðustu 18 árin í Wynyard. Hún var einsöngvari í kirkju Fyrstu lút. safnaðar í 30 ár og tók ávalt virkan þátt í sönglífi íslendinga hér vestra. Hana lifa eiginmaður hennar, Steingrímur K. Hall, organisti, og tvær dætur þeirra hjóna, Mrs. William Einarsson og Mrs. George Manning, og einn bróð- ir, Jón Útförin fer fram frá Fyrstu lút.-kirkju á morgun (fimmtu- dag 13. maí) kl. 2 e.h. Dr. V. J. Eylands jarðsyngur. A S Bardall sér um útförina Það munu fáir af samtíðar- sveit vorri skilja eftir í brjóst- um slendinga fegurri og kærari minningu en þessi kona gerir. Löngu eftir burtför hennar og meðan nokkurir eru eftir af þeim er á hana hlýddu, mun hin engilfagra rödd hennar endur- óma í^minningu þeirra og fylla lífið á ný fegurð og listræni eins og fyrrum er við hlýddum á söng hennar.. Og þær minningar fylgja henni nú að skilnaði hinstum frá hennar samtíð. Heimskringla vottar hinum aldna góða eiginmanni dýpstu samhygð sína og þeirra nánustu. ÍSLENDINGUR TEKUR VIÐ AF DR. ANDERSON Dr. G. R. Anderson, sem síðan 1944 hefir verið yfirmaður Sask- atoon Teachers College, lætur nú af því starfi sakir aldurs. Hann hefir um 34 ár í Saskatche v/anfylki starfað að kenslumál- uid og síðustu 10 árin verið í stjórnarnefnd Saskatchewan há- skóla. Við stöðu hans tekur Dr. S. W. Steinson, áður kennari í sál- arfræði á skólanum. Hann hefir áður kent á skólum í Saskatche- wan og á háskóla í Bandaríkjun- um. Frá háskólanum í California tók 'hann doktorsstigið í fræðslu málum 1948. Hann er fæddur í Manitoba og hlaut sína undir- búningsmentun hér í fylki og Saskatchewan. fyrir öldungnum, og það er í sambandi við kröfu- Cohns um undanþágu fyrir hermann einn, auðmanns son frá N. York. G. Davið Shine, frá að vera send ur á vígvöll til Evrópu. Höfðu þeir McCarthy og Roy M. Cohn, einn af fremstu mönnum í rann- sóknarnefn efrideildar, ögranir í frammi við herritarann Robert M. Stevens, ef hann ekki veitti þessa bón, en sem Stevens tók ekki í mál að gera. Við yfir- heyrzluna hefir og mikið verið rætt um rannsókn McCarthy á bækistöðvum hersins í Mon- mouth, sem af .frekju var rekinn af nefndinni. En um mál þetta er ekkert endanlega enn hægt að segja. “LIFI FRAKKLAND’’ Síðustu orðin, sem hershöfð- ingjum Frakka fóru á milli fyr- ir fall Dien Bien Phu, voru þegsi í símtali: Cristjan de Castras, hershöfð- ingi í Dien Bien Phu: “Stríðið mjög alvarlegt. Allstaðar barist, jafnt á vígstöðvum sem annar staðar. Úrslitin nálgast. En við höldum áfram til loka.” Rene Cogny herforingi Indó- Kína hersins: “Eg skil. Engin ástæða að draga hvítt flagg að stöng eftir þína frægu vörn.” De Castries: “Skil Það. Við eyðileggjum allar byssur og öll radio áhöld. Við berjumst til loka. Vertu sæll, hershöfðingi minn. Vive la France!” ÚR ÖLLUM ÁTTUM Viðtökum Elizabetu Breta- drotningar heim n.k. laugardag til London, verður útvarpað til Canada. • Er fréttirnar af falli Dien Bien Phu bárust til Parísar, lá þar við uppreist. Kom til nokk- urra átaka milli hers og lög- j reglu. • Hertoginn af Edinburgh, mað ur Elizabetar drotningar, er bú- ist við að taki þátt í kappsigl- ingu 2. ágúst í Victoria, B. C.. FJÆR OG NÆR Elizabetu drotningu er von heim til Englands n.k. laugar- dag (15. maí). Móttöku-undir- búningur heima fyrir mikill og á götum Lundúnar er búist við jafnmörgum og við krýninguna 2. júní s.l. Churchill forsætis- ráðherra bíður konungshjónin Velkomin, á Westminster bryggju, en þar ber hið konung- lega skemtiskip, Britania, að landi. • Nýtt flugskip Trans Canada Airlines, flaug s.l. föstudag á 8 I klukkustundum frá Vancouver ! til Montreal. Þetta eru 2,333 mílur á kl.st. Flogið var í 21,000 * feta hæð. Dánarfregn Ingbjörg A. Eiríksd., ekkja I Þorsteins sál Péturssonar, prent I ara og bónda í Piney, Man., and- ; aðist s.l. sunnudag að heimili sonar síns, Sigurðar Petursson i | Piney, 84 ára að aldri. Hún var ! dóttir Eiríks Magnússonar frá Meðalnesi í Fellum og Guðrún- ar Hailgrímsdóttur Peturssonar frá Hákonarstöðum í Jökuldal. ( og var fædd á Brekkusili í Hró- I arstungu í N. Múlasýslu, 3. nóv. ; 1869. Hún kom til þessa lands , 1889. Hún futtist með Þorsteini i manni sínum til Piney, árið 1908 og bjó þar mest af tímanum síð- an, nema um nokkur ár sem hún bjó í Transcona hjá Sigurði syni sínum eftir að Þorsteinn dó. Hana lifa þrír synir: Petur Sigurður í Piney; Gunnar Eirík ur í Winnipeg og Loftur J. Julíus í Piney. Kveðjuathöfnin fór fram þriðjudaginn, 11. maí. Séra Philip M. Pétursson, frá Winnipeg flutti kveðjuorðin. Jarðsett var í grafreit Piney- bygðar. Útfararstjóri Helgesen frá .Roseau, Minn. sá um útför- ina. * ★ ★ Kristinn Þórarinnson, íslend- ingur sem að heiman kom fyrir tveimur árum, en atvinnu hefir nú í Pcklescrow, Ontario, er staddur í bænum, ásamt konu sinni (áður Miss Lilja Jónasson frá Riverton, Manitoba, og barni þeirra). Kristinn er á sínum hvíldardögum hér. Hann hefir skrifstofu og trúnaðarstörf ýms með höndum eystra enda er hann fjölhæfum gáfum gæddur og mentaður á . verzlunarskola heima. Hann sagði gott orð fara af Islendingum hvar sem hann hefði heyrt þeirra getið. Einn fslendingur Charles Davidson býr þar um 16 mílur burtu og er kaupmaður, ættaður úr þessum bæ. ★ ★ ★ Mrs. Emily Thorson frá Van- couver kom til bæjarins í byrj- un þessarar viku. Hún leggur upp í skemtiferð til Evrópu n.k. sunnudag með bróður sínum, Victor B. Anderson og Mrs. Anderson er til Sviss eru ráðin til ferðar. Fer Victor þangað sem áður segir fyrir hönd verka- mannasamtaka í Canada. * * * * Hugsað tiJ Lúlla Kristjáns- sonar 8. maí Inndælis veður — áttundi maí Afmælið þitt í dag Fuglarnir sýngja fögrum róm Sitt fegursta sumarlag. Bífluga suðar við blómstur- hnapp Beljurnar jórtra í makt. Á traktornum yrki eg þér af- mælisljóð. sem alt verður bjagað og skakt. Á afmælisdaginn þinn ætti eg helzt að eiga hressandi frí, og syngja þér kvakandi sumar- brag ef söngrödd næði eg í. En nfb er eg rámur af ryki og mold röddin aumkvæunarverð og gáfan er als ekki yfir mér eins og þú líklega sérð. En svo hef eg hugsað mér seinna í kveld er sest á rúmstokkinn, að halda ræðu og hrópa upp til heiðurs þér Lúlli minn. — En bresti þig aldrei bros á vör og bjóði þér vinir hönd Gangan verði þér greið og létt og gæfan þér fylgi strönd. Rósm. ★ ★ ★ Úr bréfi frá Vancouver. Kæri ristjóri — Viltu gera svo vel og geta um lát íslenzkrar konu í blaðinu, (Mrs. Oscar) er lézt hér á elliheimilinu Höfn í Vancouver 3. maí. Hún varð bráðkvödd. Hún hét Ólafía Sigríður Guð- mundsdóttir bónda Jónssonar i Bygðarholti í Lóni í Austur- Skaptafellssýslu. Hún kom til Canada rétt eftir síðustu alda- mót, settist að í Winnipeg, gift- ist þar 1905 Ásgeiri Ásgeirssyni, ættuðum frá íslandi. Þau voru DIEN BIEN PHU Vígi þetta sem var það öflug- asta í Norður-Indó-Kína, féll í hendur rauðahernum s.l. laugar-j áag. Um 17 sveitir (iCompanies) frakkneskra hermanna voru; teknar af rauðliðum. Sigur Viet- Minh hersins er því mikill. En þrátt fyrir hið mikla tap( Frakka þarna, er baráttunni ekki lokið. Frakkar búa sig til varn- ar annars staðar. Dien Bien Phu vígið var einangrað í eyðimörk á Norðurlandamærum Indó- Kína og um alla aðdrætti varj þar erfiðara sunnan að en að norðan. Frakkar eru ekki með öllu tapaðir þó þannig sé komið í Dien Bien Phu. En sól þeirra í Asíu lækkar á lofti við þetta. Vörn Frakka í Dien Bien Phu er fræg hvað sem öðru líður. Rauðliðar voru orðnir fjórir þar á móti einum í liði Frakka, er ekki var hægt að hjálpa, en lið hinna rauðu efldist óðum. MCCARTHY MÁLIÐ Yfirherzlan í Joseph Mc- Carthy-málinu heldur áfram. Að einu leyti horfir ekki til betra Útvarpið í Peiping hélt fram s.l. föstudag að stríðið í Viet Nam einu hefði á 7 árum kost- að Frakka 381,720 fallna og særða. • Sættir nást ekki á Geneva- fundinum um frið eða vopnahlé í Indó-Kína. Rússar og Kínverj- ar hlusta ekki á sáttaboð Frakka. Þeir heimta mikið af landinu, eða Viet Nam, Laos og Cam- bodia í hut Vietminh, eða upp- reistarflokks landsins. Frakkar eru reiðubúnir að fleygja í þá snni nýlendu og ætti það að nægja. En kommún- istar vilja meira. Það er sagt, að Frakkar hafi veitt bæði Laos og Cambodia fullkomið sjálf- stæði er þeir sáu hvað að fór. En kommúnistar vilja þau ríki eins fyrir því. Það virðist þvi annað hafa vakað fyrir-uppreist armönnum en að koma Frökkum burtu, eins og þeir oftast báru við. • í Dien Bien Phu voru um 8000 hermenn (Franskir) teknir fangar ásamt hershöfðingjanum j Christran de Castries, er komm' únistar tóku herstöðina. HJÖRTUR BRANDSS0N Þú áttir stærri hugarheim en hversdags maður,— Hlýlyndur og hjarta glaður. Ekki varstu afskiftur af ýmsum raunum.— Sorgin vaxtar vit að launum. Enga hrekki í brjósti barst né brigð til vina,— lá þér rómur lágt um hina. Göngum hljótt um góðra manna grafarvegi, — væri gott þeir gleymdust eigi. Margt var rætt og mörgu spáð og mætt var gaman, þegar að við sátum saman. Fræða slyngur fjölhygginn og frjáls í anda, — skygn á stefnur lýðs og landa. Þó hann löngum lúakendi lífs í hildi, allra böl hann bæta vildi. Ég skal ekki í eftirmæli öfgar skapa, — tízku þarf eg ekki að apa. Breiðafjarðar bernskulög í barmi sungu.— Lá þér fagurt ljóð á tungu. Hönd þér rétti eg Hjörtur minn, fyrir hlýja kynning, kveðjan er helguð kærri minning. Jón Jónatansson Bandaríkin og Indó-Kína Hvað kom til að Bandaríkin sendu ekki her til Indó-Kína, er mest reið á að verja virkið í norðrinu, Dien Bien Phu? Það var talað í Washington all-líklega um að senda her þangað áður en Geneva-fundurinn hófst. Það þótti mörgum þetta eins sjálfsagt og að senda her til Koreu. Þörfin var hin sama a(S öllu leyti nema einu. f Índó-Kína kemur vernd nýlendustefnunnar til greina, eins lengi og Frakkar hanga þar. En hún er stefna, sem Bandaríkin eru eins á móti og öðrum yfirráðastefnum. Það skal ekki sagt um hvað mikils gætir valds Frakka í Indó-Kína. En það gerir ekkert til. Þó sambandsríki þess þar ráði eins miklu og Frakkar sjálfir, er þar brot af þessari gömlu nýlendustefnu, sem trúin á er nú yfir- leitt dauð. Það er að vísu önnur stefna komin í hennar stað og sem er sízt betri. Það er einræðið, eins og því er nú haldið fram fram hjá kommúnistum. En þarna er samt ástæðan fyrir, að Bandaríkin slá slöku við í Indó-Kína, en ekki í Koreu. Stefna þeirra er lýðræðis hugsjónin, að hvert þjóðfélag ráði sér að eins miklu leyti sjálft og auðið er. En þá stefnu hefir reynst svo erfitt að kenna þjóðum Evrópu og Asíu, sem svo lengi hafa um hvern munnbita barist, að þær skilja ekki þessa 'hugsjón eins og hinn frjálsi Vesturheimur gerir. Þar í lggja erfiðleikarnir nú sem fyr. fyrst nokkur ár í Manitoba, fluttu þá til North-Vancouver og hafa búið Jþar um 40 ár. Ás- geir er dáinn fyrir 3 árum. Ol- afía var 71 árs, var búin að vera hér á Höfn í tvo mánuði, verður jörðuð í dag, 5. maí. Hún átti margt skyldfólk við Minnewak- en og Narrows í Manitoba. i Ekki aðrar fréttir í þetta sinn. Óska þér gleðilegs sumars. — Sendi máske línu seinna. Þ. G. Isdal ★ ★ ★ Mr. Thordy Kolbeinson, son-j ur Mr. og Mrs. J. Kolbeinson, | Foam Lake, Sask., var stadduri í bænum. Hann, ásamt nokkrum öðrum háskólanemendum frá Saskatoon, Sask., sem hafa ver- ið á ferð í Bandaríkjunum, voru á leiðinni aftur til Sakatoon, þarj sem þeir útskrifuðust og þurfa að taka þátt í athöfn því við- víkjandi i næstu viku. Thordy útskrifaðist í lyfjafræði. ★ ★ ★ LEIT AÐ ERFINGJUM Ræðismannsskrifstofa íslands í Winnipeg hefur verið beðin að afla upplýsinga um ættingja FREYGERÐAR ÁRNADÓTT- UR frá Stokkseyri, sem andað-! ist 20. júli 1953. Meðal erfingja; dánarbúsins eru talin systur- börn hinnar látnu í Ameríku, en nánari upplýsingar um nöfn þeirra eða heimili eru ekki fyrir hendi. Ætlað er, að systr Frey- gerðar en móðir umræddra erf- ingja hafi heitið Margrét Árna- dóttir, en ekki er það þó vitað með vissu. Upplýsingar varð- andi málaleitun þessa sendist til Consulate of Iceland, 76 Middlegate, Winnipeg, Man., eða um síma 74-5270. ái og hefur hann síðan stöðugt verið gefinn út í Reykjavík. Sama ár og Skírnir var flutt ur heim var hafin útgáfa á tíma- riti Hins íslenzka bókmenntafé- lags undir ritstjórn Gríms Thomsen. Kom það rit út í 25 ár, en var árið 1904 sameinað Skírni cg hffur ritið upp frá því venð nefnt “Skírnir, tímarit Hins ís- lenzka bókmentfélags. Allt frá því Skírnir kom fyrst út árið 1827 og fram á þennan öag, hefur aldrei fallið úr einn árgangur af ritinu. Hefur Skírn ir því lifað í 126 ár, eða lengur en nokkurt annað tímarit á norð urlöndum. Á þessu langa tíma- bili hafa verið við ritið 30 rit- stjórar. Meðal ritstjóranna eru margir af merskustu mönnum þjóðar- innar, svo sem Jón Sigurðsson forseti, er var ritstjóri 1837 á- samt iMagnúsi Hákonarsyni. Jónas Hallgrímsson var ritstjóri 1836 og Grímur Tormsen 1846. Fyrsti ritstjóri Skírnis var Finn ur Magnússon er sá um ritið fyrsta árð. Á árunum 1828-1829 og aftur frá 1831 til 1835 var Þórður Jónasson ritstjóri. En ár ið 1830 sáu þeir Baldur Einars- son og Konráð Gíslason um rit- ið. Of langt mál yrði að telja upp alla ritstjóra Skírnis en frá því um síðusut aldamót hafa þessir séð um ritstjórn Skírnis: Þor— steinn Gislason tekur við ritstj., árið 1903 af Jóni Ólafssyni. Guð mundur Finnbogason er ritstjóri frá 1905—1907, 1917—1920 og frá 1933—1943. Bjön Bjarnason frá 1910—1912. Árni Pálsson frá 1921—1929 og 1931—1932. Ein- ar Arnórsson er ritstjóri árið 1930 og Einar Ólafur Sveinsson RITSTJÓRASKIPTI VIÐ “SKÍRN”. Nýlega hafa orðið ritstjóra- skipti við Skírni, tímarit Hins íslenzka bókmenntafélags. Læt- ur dr. Einar Ólafur Sveinsson af ritstjórn tímaritsins eftir að hafa verið ritstjóri um 10 ára skeið en við ritstjórn tekur Hall- dór Halldórsson dósent. Saga Skírnis er talin hefjast árið 1827, er Hið íslenzka bók- menntafélag gefur hann út í átta blaða broti. Ritið er þó í rauninni eldra, því að árið 1817 gefur Hið íslenzka bókmennta- félag út íslenzka sagnablöð í fjögurra blaða broti, og var það í rauninni upphaf Skírnis. Skirnir var í fyrstu gefinn út í Kaupmannahöfn af deild Hins íslenzka bókmenntafélags þar. En árið 1890 verða miklar deilur milli Reykjavíkurdeildarinnar cg Hafnardeildarinnar um það, kvort flytja ætti ritið til íslands eða ekki. Lauk deilunni með heimflutningi Skírnis þetta sama frá 1943—1954. Núverandi forseti Hins ís- lenzka bókmenntafélags er Matt hías Þórðarson. —Alþbl. 2. apríl. AFKOMA RÍKISINS ÁRIÐ 1953 Fjármálaráðherra flutt á laug ardaginn var skýrslu um afkomu rikissjóðs á síðastliðnu ári. Sam kvæmt henni höfðu rekstrar- tekjurnar orðið 506 milljón kr., en voru áætlaðar 418 milljón kr. Rekstrarútgjöldin urðu 411 milljón kr., eða 31 milljón kr. meira en áætlað var. Auk þess voru svo geriddar 10,5 millj. kr samkvæmt sérstökum fyrirmæl- um Alþingis. Rekstrarafgangur varð því 84 millj. kr. en var áætl aður 38 millj. kr. —Tíminn • Finnbogi próf. Guðmundsson lagði af stað til íslands í morg- un (12. maí). Hann dvelur þrjá til fjóra mánuði úr sumrinu heima. Heimskringla óskar hon- um góðrar ferðar.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.