Heimskringla - 15.09.1954, Blaðsíða 1
LXVIII, ÁRGANGUR
NÚMER 50.
WINNEPEG, MIÐVIKUDAGINN, 15. SEPT. 1954
DR. A. H. S. GILLSON
(Fáein minningarorð)
Dr. A. H. S. Gillson
f. 4. des. 1889 — d. 10. sept 1954
í bréfi, sem Jónas Hallgríms-
son skrifaði vini sínum, Páli
Melsted yngra, frá Kaupmanna-
höfn 5. júlí 1844, lýsir Jónas
danska skáldinu J. C. Hauch m.
a. svo:
H. er allra elskulegasti mað-
ur; hann er hár og grannur og
ólánlega vaxinn, allra manna
svartastur, blakkur og suðrænn
í andliti, og sérlega fallega ljót-
ur, eins og þú þekkir, með
fjarska stórt nef og efra tann-
garð og allra manna stóreygð-
astur og úteygðastur; og samt
sem áður þarf ekki nema líta á
hann til að sjá hann er fluggáf-
aður./
Þessi mannlýsing varð mér
strax minnisstæð, er eg las hana,
og hún kom mér ósjálfrátt í hug,
er eg sá dr. Gillson í fyrsta skifti
daginn eftir að eg kom til Win-
nipeg. Það var á laugardags-
morgni, annasöm vika senn liðin
hjá og eins og ró helginnar hefði
færzt yfir forsetann. Hann var
i prýðisskapi, og féll þegar vel á
með okkur, og hélzt svo æ upp
frá því.
Hugmyndin um íslenzka kenn
ararstólinn hreif hann þegar, og
veitti hann henni af alhug, er til
kasta háskólans kom. Þó að
stærðfræði og stjörnufræði væru
sérgreinar hans, undi hann ekki
við þær einar, heldur haslaði sér
miklu víðari völl bæði, í listum
og bókmenntum. Og þar sem
þekkingu hans þraut í þeim efn-
um, tók við glöggt hugboð hins
sanna menntamanns, er lætur
fátt koma að sér óvörum. Honum
var kunnugt, hver rækt hefur
verið lögð við íslenzk fræði á
iöðurlandi hans, Englandi, og
taldi þau eiga jafnbrýnt erindi
hér sem þar. Hann skildi og, a'ð
Manitobaháskóli var kjörinn
staður til slíkra fræði-iðkana
sökum þess, að íslenzk tunga er
enn að nokkru lifandi mál í fylk-
inu og skilyrði til náms í henni
að því leyti sérstæð. Loks vissi
hann, að miklu varðaði, hvernig
búið yrði að íslenzkunni við há-
skólann í upphafi, og var það hið
síðasta, sem við ræddum, áður en
hann veiktist, hversu enn mætti
bæta aðstöðuna til íslenzkunáms-
ins, svo að kennslan við deildina
gæti komið að sem mestum og
beztum notum.
Þegar eg nú rifja upp kynni
min við dr. Gillson, verður mér
einna hugstæðust málsnilld hans
hvort heldur var í einkaviðræð-
um eða á stórum mannfundum.
Forsetaembættið við Manitoba-
háskóla er umsvifamikið. Forset-
inn verður að vera alls staðar
heima og með á öllum nótum.
Huginn og Muninn þurfa að vera
á stöðugu flugi, ef ekkert á að
fara framhjá forsetanum. Há-
skólaráð, kennaralið og nemend-
ur standa stundum í öndverðum
fylkingum, og verður forsetinn
þá aö miðla málum milli þeirra,
ef í odda skerst. Biðstofa hans
er þéttsetin, og við alla ræðir
hann af kunnleika og áhuga,
Hann var frábær fundarstjóri,
hélt sér að efninu og hafði svip
aðan aga á fundarmönnum og
góður tamningamaður á hesti
sínum. Hátíðlegum samkomum
stýrði hann af miklum virðuleik,
og er mér sérstaklega minnis-
stætt, hver stíll var yfir stjórn
hans, er hið nýja bókasafn há-
skólans var vígt. í veizlum og á
hvers konar gleðimótum var
hann ^hrókur alls fagnaðar og
líkt og lifnaði yfir mönnum, þeg-
ar hann byrjaði að tala.
Grikkir hinir fornu lögðu
mikla áherzlu á, að menn væru
snillingar í orðum, en þó jafn-
framt framkvæmdarmenn í verk-
um. Eru kunn orð hins gamla
riddara Felix, er hann mælti eitt
sinn við kappann Akkilles:
— — “Hinn aldraði riddari
Peleifur lét mig fara með þér
þann dag, er hann sendi þig frá
Fiðju til Agamemnons; varstu
þá ungur og enn óvanur hernaði
og mannfundum, þar er menn
verða frábærir um fram aðra.
Því var það að hann lét mig fara
með þér til að kenna þér allt
þetta, svo þú yrðir snillingur í
orðum og framkvæmdarmaður í
verkum.”-----
Þó að dr. Gillson væri e.t.v.
meiri orðsnillingur en fram-
kvæmdarmaður, kom hann miklu
í verk í stjórnartíð sinni. Hver
byggingin reis af annarri á há-
skólalóðinni og starfsemi skólans
jókst og dafnaði á margar lundir.
Reynt var að styrkja samband
háskólans við almenning í fylk-
inu, og var dr. Gillson ótrauður
að ferðast um í kynningarskyni
og flytja mönnum fróðleik um
þessa æðstu menntastofnun
þeirra. Hann hélt því fram, að
háskólinn ætti að spegla menn-
ingu og háttu hinna mörgu þjóð-
arbrota, er fylkið byggja, og
styðja þau til að varðveita og á -
vaxta hvorttveggja. Minnast fs-
lendingar í Manitoba þannig
ferða hans um byggðir þeirra og
ýmsir jafnframt persónulegra
kynna við hann. Áhrif þeirra
kynna verða og varanlegust, þeg-
ar frá líður; endurminningin um
hlýtt handtak, vingjarnlegt bros
og övandi orð lifir löngu eftir
að maðurinn er genginn — og
því lengur sem hann var örlátari
á allt þetta og þeir fleiri, sem
þekktu hann.
Eg mun ætíð sakna dr. Gill-
sons og þykja daufara um þar
úti, eftir að hann er farinn.
Ekkju hans og syni þeirra votta
eg samúð mína og þakka henni
um leið alúð hennar í minn garð
á liðnum árum.
Finnbogi Guðmundsson
að lönd þessi vinni á móti Kín
verksum yfirgangi en ákvæði
eru þó ekki um að þau séu skyld
ug til hernaðar þátttöku. Það
virðist eiga að fara samninga-
leiðina með þessu, eins langt og
hægt er.
Sum þessara landa eru fátæk
og er hugmynd Bandaríkjanna
jafnframt að styrkja þau efna-
lega.
ÚR ÖLLUM ÁTTUM
HERVARNIR í SUÐUR-
ASÍU
Félag hefir verið myndað í
Suð-vestur Asíu til varnar því að
Kína færi þar út kvíarnar á svip
aðan hátt og gert var í Vestur-
Evrópu, eða átti að gera, en sem
þing Frakka tók gröfina að. í
þessum Asíu samtökum eru þessi
lönd: Pakistan, Thailand, Viet-
nam, Laos, Cambodia, Ástralía,
Phillipeyjar, New Guinea, Brit-
ish Borneo, Sarawak, Malaya og
New Zealand. Auk þessara landa
skrifa undir samning þennan
Bretar, Bandaríkin og Frakkar.
Lönd sem þarna áttu að vera
ireð en eru ekki eru Indland,
Burma, Ceylon, Indónesia, og
ennfremur Formósa.
Samningurinn gerir ráð fyrir,
Garnet Coulter borgarstjóri í
Winnipeg hefir gefið til kynna,
að hann sæki um endurkosningu
í komandi bæjarkosningum. —
Vinni hann, verður hann í sjö-
unda sinni borgarstjóri. Hann er
72 ára og hefir nú þegar verið
lengur borgarstjóri en nokkur
fyrirrennari hans.
Á móti honum sækir George
Sharpe bæjarráðsmaður í Suður-
Winnipeg. Ennfremur sækir
William Kardash kommúnisti og
fylkis þingmaður. H. B. Scott
bæjarráðsmaður og Peter Curry
skólaráðsmaður sem eitt sinn var
talað um að mundu sækja, hafa
hætt við það.
★
Það er mikið útlit sagt á því,
að Kínverjar séu að búa sig út
í að gera árás á Formósu.
Fyrir nokkru réðust þeir á
smáeyjar er Quemoy heita. En
þar búa þjóðernissinnar. Tóku
þeir karlmannlega á móti og
gerðu sprengju árás á strönd
Kína. Eru eyjar þessar mjög
nærri meginlandinu. En í hönd-
um kommúnista stytta þær leið-
ina til Formósu.
Það er sagt að her Formósu
geti ekki varið eyjuna fyrir
kommúnistum. En Bandaríkin
hafa heitið henni aðstoð. Það
gerir strik í reikninginn. Komm
únistar munu því ekki hlaupa
að því að gera þessa árás. Þeir
vita að Bandaríkin fara ekki með
hernaði til meginlandsins ef
Formósa er í friði látin.
★
U. S. News segir, að það séu
meiri líkur til að republikanar
haldi sínu, en demóikratar í kosn
ingunum 2. nóvember. í Öldunga
deildinni eru' 12 vafasöm sæti,
Demókratar verðar að vinna 8
þeirra en republikar aðeins 5 til
að verða betur liðaðir en áður.
f fulltrúa deildinni eru horfur
á að demókratar vinni vegna þess
chuk að Silver, John Shanski,
West Kildonan og Steve Oliver,
borgarstjóri í Selkirk.
★
Nefnd manna úr öldungadeild
Bandaríkjaþings, sem skipuð var
til að rannsaka mál McCarthy,
lauk starfi sínu s.l. mánudag.
Semur nefndin nú skýrslu yfir
það og leggur fyrir Öldunga-
deildina. En ekki er víst, að hún
verði birt fyr en eftir kosningar
2. nóvember. Rannsóknin laut að
því, hvort McCarthy hefði unn-
ið starf sitt eins og vera bar, í
leitinni að kommúnistum, sem
heldur svakaleg þótti.
VÍSUR EFTIR MARÍU
RÖGNVALDSD.
Til vina minna vestan hafs
Eg rétti ykkur hönd yfir hafið
Og heilsa, lands mins dætur og
synir.
Á hringinn minn er heilmikið
grafið,
þar hef eg nöfnin, frændræknu
vinir.
M,orgunvísa
Bjartur, fagur bjarmar dagur
burt á flótta rennur nóttin,
Lofts of heiði birtan breiðist,,
breytast tjöld við morgunvöldin.
Fjöll og grundir bregða blundi,
bygð við raknar, lýðir vakna.
Yfir fjörðinn “fagurgerða”,
færist hlýja af lífi nýju.
Staka
Sumarbjarti sólgeislinn
sveifjar vængja blaki,
gægjist inn um gluggann minn,
gáir, hvort eg vaki.
KOMJN HEIM
Dr. Richard og Bertha Beck
komu heim til Grand Forks úr
fslands- og Norðurlandaferð
sinni síðastliðinn fimmtudag eft
ir rúmra þriggja mánaða ferða-
lag. Höfðu þau alls staðar átt
frábærum viðtökum að -fagna, og
ferðin um allt vérið hin ágæt-
asta, eins og þegar er að nokkuru
kunnugt af blaðafréttum.
Þau dvöldu seinni part sumars
ins á Norðurlöndum, lengst af í
Noregi, og mun síðar sagt nánar
frá dvöl þeirra á þeim slóðum.
En seinustu viku ferðalagsins
dvöldu þau heima á íslandi, og
var þar aftur, sem fyrri í sum-
ar, afburða vel tekið og margvís
M r. og Mrs.
Laugardaginn áður en þau
hjónin hurfu heimleiðis, héldu-
íslenzkir Goodtemplarar þeim
virðulegt kveðjusamsæti og
leystu þau út með stór gjöfum;
var dr. Beck við það tækifæri af
hent skrautritað ávarp þess efnis
að hann hefði verið kjörinn heið
ursfélagi í stúkunni “Framtíð-
inni” í Reykjavík í viðurkenn-
ingar skyni fyrir störf hans í
þágu bindindis-og menningar-
mála.
Síðasta laugardagskvöld sitt á
íslandi kvöddu þau hjónin land
og þjóð í ríkisútvarpinu og þökk
Richard Beck
uðu hinar framúrskarandi ástúð-
legu viðtökur, sem þau höfðu
hlotið. Óll dagblöðin í Reykja-
vík birtu einnig kveðju viðtöl
við þau hjónin. Fórust “Tíman-
um meðal annars þannig orð í
viðtali sínu:
“Hingað voru þau hjónin mikl
ir aufúsugestir, ekki aðeins vin-
um og ættingjum, heldur og
þjóðinni allri. íslendingar þakka
þeim fyrir komuna og óska þeim
fararheilla. Þau munu ætíð
verða velkomnir gestir til ís-
lands á ný.”
FRETTIR FRÁ ISLANDI
i legur sómi sýndur af hálfu ætt-
að þeir gera að minsta kosti ráð i ingja og vina og opinberra aðila,
fyrir, að republikanar tapi einiáður en þau lögðu af stað heim-
hverjum af sætum þeim, er þeir i leiðis með Loftleiðum mánud-
unnu í forsetakosningunum. dagskvöldið þann 6. september.
* ! í boði borgarstjóra Reykjavík-
Það var hugmynd margra á ur, herra Gunnars Thoroddsen,
fundinum í Manila, er rætt varj skoðuðu þau hitaveitu borgarinn
um stofnun hervarna í Asíu, aðj ar Qg Sogsvirkjunina, og fannst
hafa Formósu með í þeim sam- i mikið til um þau mannvirki.
tökum. En Bretar voru ákafir á
móti því. Þar hefði þó mátt búast
Síðasta föstudagskvöldið, sem
þau hjón dvöldu í Reykjavík,
við heraðstoð, sem lítil er hjá 1 hélt dr. Kristinn Guðmundsson
þeim þjóðum, er samtökin mynd utanríkisráðherra þeim veglega
uðu.
★
f frétt frá Ottawa er haldið
fram að tekjur bænda í Canada
hafi lækkað um $8,700,000 á
fyrra helmingi ársins 1954, bor-
ið saman við fyrstu 6 mánuði af
árinu 1953.
★
kveðjuveizlu, og þakkaði þeim,
í nafni ríkisstjórnarinnar, kom-
una, og dr. Beck margþætt kynn
ingar- og fræðistörf hans, en
fyrr á sumrinu höfðu þau, ásamt
fleiri Vestur-íslendingum, setið
boð forseta íslands, herra Ás-
geirs Ásgeirssonar, og frúar
hans að Bessastöðum, og einnig
Af hálfu liberala verður þing-jhoð forsætisráðherra fslands, hr.
mannsefni í Selkirk kjördæmi j úiafs Thors, og frúar hans að
til Ottawa þingsins valið á, heimili þeirra. í boði biskups ís
fundi í New Poplarfield 23. j ian(js dr< Ásmundar Guðmunds-
september. Er sagt að sex muni sonar> foru þau einnig fyrr á
gefa kost á sér. Eru nöfn þeirra:
William Wood frá Teulon, son-
ur Roberts Wood þingmanns er
lézt fyrir nokkru, S. V. Sigurds-
son Gimli, Barney Egilson borg-
arstjóri á Gimli, J. F. Palamar-
sumrinu til Gullfoss, Geysis og
Þingvalla, en á vegum Eysteins
Jónssonar ráðherra fóru þau síð
asta sunnudag sinn á íslandi í
ferðalag til Strandarkirkju,
Keflavíkur og Hafnarfjarðar.
“Sigurlampinn”, verðlaun Fé-
lags íslenzkra leikdómenda fyrir
bezta leik ársins féll í hlut Har-
aldar Björnssonar, leikstjóra og
leikara við Þjóðleikhúsið.
—Vísir 28. júní
Próf. Stefán Einarsson
heiðraður.
Dr. Stefán Einarsson prófess
or í norrænum fræðum við Johns
Hopkin háskólann í Baltimore,
var nýlega kjörinn meðlimur í
The American Philosophical
Society.
Félag þetta var stofnað af
Benjamin Franklin á síðari hluta
átjándu aldarinnar, og miðar fé
lagatölu við 500 hæst. Eru félag-
ar kosnir úr öllum greinum vís-
inda og fræðimennsku. Segist
amerísku stórblaði svo frá, að
þetta sé einn hinn mesti heiður,
sem amerískum lærdómsmönn-
um geti hlotnast. En félagskil-
yrði er þó ekki bundið við
ameríska borgara eingöngu. Má
t.d. nefna þá norrænufræðingana
Rasmus Chr. Rask og C. C. Rafn,
sem á sínum tíma voru félags-
menn Aðeins einum íslendingi
hefur áður verið veittur þessi
heiður, nefnilega Vilhjálmi
Stefánssyni. —Vísir 2. júlí
•
Þórbergur Þórðarson og frú
iil Sovétríkjanna
Á s.l. ári bauð Rithöfundasam-
band Sovétríkjanna Halldóri
Kiljan Laxness til nokkurrar
dvalar eystra. í ár hefur þeim
Þórbergi Þórðarsyni og Kristni
E. Andréssyni verið boðið. Þór
bergur fór utan í fyrradag áleið
is til Sovétríkjanna ásamt Marg
réti konu sinni, og munu þau
dveljast eystra um mánaðarskeið.
—Þjóðv. 1. júlí
i •
íslenzk skáldsaga kvikmynduð
Þýzkt kvikmyndafyrirtæki
hefur samið við Kristmann Gúð
mundsson rithöfund um að taka
kvikmynd af skáldsögu hans
“Morgunn lífsins”.—Vísir 3. jú
•
f riti National Fisherie? Insti
tute í Washington er gerður sam
anbuðu á fiskinnflutningi helztu
fiskinnflytjenda til Bandaríkj-
anna. — Kanada hefur verið og
er helzti innflytjandinn á fryst
um fiski, en bilið milli fslands
sem er í öðru sæti, og Kanada,
virðist óðum minnka.
Þar sem í ritinu er gerður sam
anbuður á fiskinnflutningum eft
ir fyrstu fjóra mánuði yfirstand
andi árs og fyrra, kemur í ljós
að innflutningur á frystum fiski
héðan er nær því helmingi meiri
í ár en í fyrra, en aukningin á
fiskinnflutningnum frá Kanada
er aftur á móti ekkert svipuð.
FJÆR OG NÆR
Mrs. Steinun Inge frá Foam
Lake, Sask., var s.l. viku í heim-
sókn hjá Mrs. K. Thorsteinson,
Selkirk, Man
★ ★ ★
Mrs Mabel Sigurdson frá Van
couver, er stödd hér eystra, í
heimsókn hjá forn-vinum á
Gimli.
★ ★ ★
Messað verður á sunnudaginn
kemur, 19. þ.m. á Geysi, kl. 2 á
íslenzku, og á Víðir kl. 2 á
ensku. —Robert Jack.
★ ★ ★
Allan Myrick prestaskólanemi
frá Bandaríkjunum, sem þjónað
hefir í prestaköllum Unitara í
nýja íslandi og á Lundar á sumr
inu, er nýlagður af stað suður til
framhalds náms. Var hann kvadd
ur með fjölmennri samkomu af
kvenfélagi Unitara á Gimli og
þakklæti og vináttu fyrir starf-
ið.
★ ★ ★
l.O.D.E. TEA
The Jon Sigurdson Chapter
I.O.D.E. holds it annual Fall Tea
and sale at The T. Eaton As-
semhly Hall (7th' floor) Satur-
day, Sept. 25, from 2.15—5 p.m.
In addition to the home cook-
ing and novelty sales, a special
feature of this years’ Tea will
be a really outstanding handi-
craft both where patrons may
buy at most reasonable prices, a
variety of handworked articles.
Among them, such novel articles
as doll’s clothes, baby’s wear,
fancy mitts and socks for child
ren; as well as aprons, pothold
ers and innumerable other items
suitable for gifts on occasions
such as birthdays, showers or
| Christmas.