Heimskringla - 23.02.1955, Page 2

Heimskringla - 23.02.1955, Page 2
2. SÍÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 23. FEBR. 1955 Híimakringla (StotnuO ltU) JLatnva út 6 hverjum mlðvikudegL Elgendur: THE VIKING PRESS LTD. 853 og 855 Sargent Avenue, Wimnipeg, Man. — Talsfiai 74-6251 VertJ fciaðeina er $3.00 árgangurinn, borgist fyriríram. Allar borganir aendiat: THE VIKING PRESS LTD. öll vlðafciftabréf blaðinu aPlútandi sendist: The Vlklng Press Limlted, 853 Sargent Ave., Wirniipeg Ritstjéri STEFAN EINARSSON Utanáakrlft til ritstjórans: EDITOR HEIMSKRINGLA, 853 Sargent Ave., Winnipeg Advertising Manager: GUNNAR ERLENDSSON "Helmskrlnglo" is published by THE VIKING PRESS LIMITED and printed by VIKING PRINTERS 853-855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man., Canada — Telephcne 74-6251 Authariaed cts Second Class Mail—Post Ofíice Dept„ Ottcrwa WINNIPEG, 23. FEBR. 1955 ÞJóÐRÆKNISÞINGIÐ Þjóðræknisþingið, sem enn stendur yfir, hefir verið fjörugt og skemtilegt, þó ef til vill með fámennasta móti hafi verið. Get- ur verið og er vonandi að ill veður olli fremur en þjóðræknis legur doði. Samt eru fulltrúar frá flestum deildum félagsins á þinginu. f þetta sinn birtist ávarp for- seta í blaðinu, sem er nú sem fyr ein bezta fréttin af starfi þjóðræknisfélagsins. Það hafa fá mál verið afgreidd, af þeim er til umræðu hafa komið, þegar þetta er skrifað. Á meðal hinna helztu er húsbyggingarmálið og breyting eða lækkun á tölu at- kvæða, er fulltrúar deilda mega fara með á þingi. Umræður standa sem hæst um þessi mál. Samkoma Fróns á mánudag og Icelandic Canadian Club á þriðjudagskvöldið, voru góðar, en naumast eins vel sóttar og þær áttu skilið. Lexíur þeirra séra Valdimars Eylands og Ás- mundar Bensons dómara munu lengi óma skemtilega í eyrum þeirra er á þær hlýddu. Aðrar fréttir er ekki í bráðina af þinginu að segja. ÁRSSKÝRSLA Frh. frá 1. bls. bréfi frá Fjármálaráðuneyti ís- lands, þar sem heimilað er aðj senda gjafaböggla af tilteknuj verðmæti héðan að vestan til vina og ættingja á íslandi.; Verða sendingar þessar undan- þegnar tollgjaldi, ef þær mæta| fyrirmælum reglugerðarinnar um innihald, og eru auðkenndar á vissan hátt. .Stjórnarnefnd fé- lagsins lét prenta nokkur hundr uð miða með mynd af innsigli félagsins og nafni, að viðbættu orðinu “Gjafasending”, til auð- kenningar slíkum sendingum. Hefir verið mikil eftirspurn eft- Þessi eru kjörin, sem Loftleiðir bjóða yður: BEZTI aðbúnaður á ferðamannaleiðum (tourist class) Lægstu (lugfargjöld til ÍSLANDS f hverri flugvél eru 7 þrautreyndir flugmenn, sér- þjálfaðir í Bandaríkjunum. Vinsamleg og örugg þjónusta í hvívetna. Úrvalsmáltíðir. Skemmtileg ferð. Fjögurra hreyfla flugvél (Douglas Sky- master). Lægsta flugfargjald til Íslands . . . Sparið dollarana, fljúgið með Loftleiðum, einungis ferða- mannafarrými (tourist-class). Fljúgum einnig til — NOREGS - SVÍÞJÓÐAR DANMERKUR og ÞÝZKALANDS þaðan gagnvegir um alla Evrópu. Fastar áætlunarferðir frá New York, C.AJi. áskilin farþegum. Fjögra hreyfla flugvélar. Spyrjið ferðaskrifstofu yðar um n /71 n ICCIANDIÚ 'AIRIINES uiAiuzt 15 West 47th Street. New York 36-PL 7-8585 ir þessum miðum, og virðist þetta fyrirtæki hafa reynzt mjög vinsælt báðum megin hafsins. Ennfremur hefir próf. Finnbogi beitt sér fyrir endurreisn laugar- dagsskólans í íslenzku, og hefir haldið honum uppi undanfarna mánuði í samkomusal Sam- bandskirkjunnar á Banning St. f fyrravetur var skólinn ekki starf ræktur, vegna þess að þá vant- aði bækur fyrir börnin, en nú vantar börnin fyrir bækurnar. Aðsókn að skólanum er treg, og þarf góð ráð til úrbóta. Valdi- mar Lárusson og Þór Víkingur hafa aðstoðað Finnboga við kennsluna. Hvað samskiftin við ísland snertir er þess að geta, að marg- ir hafa komið og farið. Sumir þeirra hafa verið skyndigestir, og kann eg ekki að greina nöfn þeirra allra. Séra Eric H. Sigm- ar og frú Svava frá Seattle komu úr Evrópu— og íslandsferð snemma á árinu; fluttu þau er- indi á ýmsum stöðum og sýndu myndir fyrir atbeina Þjóðrækn- isfélagsins, sem skipulagði ferð- ir þeírra. Var erindi þeirra tekið mjög vel, og framkoma þeirra hjóna öll fróðleg og skemmtileg. Árni G. Eylands, fulltrúi, og frú Margit, komu einnig norður hingað á ferð sinni um Ameríku, samkvæmt tilmælum félags vors, og flutti Árni erindi og sýndi kvikmyndir á nokkrum stöðum. Alls sýndi hann myndir frá ís- landi og flutti erindi á 23 stöð- um á ferð sinni, og á tveimur stöðum voru myndirnar sýndar að honum fjarverandi. Þau hjóri- reyndust oss hinir mestu aufúsu- gestir; voru þau kvödd hér með samsæti af hálfu stjórnarnefnd- ar, og veitti vara-forseti, séra Philip M. Pétursson því for- stöðu í fjarveru forseta. Séra Pétur Magnússon frá Vallanesi kom hér við á ferðum sínum í sumar* og flutti erindi og prédikanir á nokkrum stöð- um. Jón Kristgeirsson kennari frá Reykjavík, hefir dvalizt'hér um slóðir í 2 mánuði og kynnt sér skólamál. Hefur hann skrifað margar greinar um dvölina hér vestra í blöð á íslandi. Dr. H. Sig mar og frú ferðuðust til íslands og Noregs s.l. sumar. Hefir hann sagt frá ferðum þeirra opinber- lega á ýmsum stöðum og ritað ferðasögukafla í blöðin. P. S. Pálsson skáld og frú heimsóttu einnig ættjörðina, flutti hann þar erindi og svo aftur hér, er heim kom. Snjólaug Sigurðsson píanóleikari tók sér einnig ferð á hendur til íslands og ílutti þar hljómleika. Jón Ásgeirsson kaup maður og frú dvelja nú í heim- sókn hjá ættingjum og vinum á íslandi. Dr. Stefán Einarsson prófessor dvaldi á íslandi um tíma s.l. sumar, og sömuleiðis Grettir Eggertsson forstjóri. Valdimar Björnsson, fyrrv. rík- isféhirðir í Minnesota, er ný- kominn úr íslandferð, og skrifar nú fróðlega greinaflokka um ís- lenzk mál í stórblaðið Sí. Paul Pioneer Press. Allt af þessu tagi er til nytsemdar og fróðleiks, en mest er þó vert um hin persónu- legu vináttu sambönd, sem mynd ast á slíkum ferðum. Á meðan gagnkvæmar heimsóknir milli íslendinga vestan hafs og austan haldast við, er síður hætt við að tengslin slitni. Með því sem þegar hefir verið vikið að um heimsóknir, fyrir- lestrahöld o.fl., tel eg að gerð hafi verið nokkur grein fyrir samvinnumálum við ísland og viðleitni félagsins í fræðslustarf semi. Margir munu þeir, bæði innan Þjóðræknisfélagsins og utan þess, sem í kyrþey vinna að fræðslumálum um íslenzk efni. Kunnugt er það um prestana, einkum þá á meðal þeirra, sem nýlega hafa flutzt hingað vestur. Þannig hefir séra Eiríkur Brynj ólfsson flutt erindi og sýnt myndir á ýmsum stöðum áj Kyrrahafsströndinni; séra Bragij Friðriksson og séra Robert Jack, hafa gert slíkt hið sama í presta- köllum sínum oð víðar. Kunnugt er mér og um konu eina, sem hefir unnið mikið og gott starf á þessum vettvangi. Er það frú Hólmfríður Danielson, fræðslu- málaritari I.O.D.E., og hefir maður hennar, Hjálmur, veitt henni góða aðstoð í starfi henn- ar. Hefir frú Hólmfríður flutt fræðsluerindi um ísland, land °g þjóð, sögu, bókmenntir og listir á ýmsum stöðum bæði í Það er þessi öryggiskend sem fólkinu I fellur í geð .... Hjá Eaton’s kaupir fólk margra ára reynslu; það kaupir öryggð, sem felst í fullvissunni um það, að Eaton’s nafnið stendur að baki vörunnar. Skiptir minstu bvað keypt er, smátt, stórt, mikilvæglegt eða 6mámunir. . . .Eaton tryggingin er ávalt að baki. “VARAN ÁKJÓSANLEG eða PENINGUM SKILAÐ AFTUR EATON’S of CANADA Manitoba og Minnesota, og hafa áheyrendur hennar komið víða að, og skift hundruðum. Margt af þessu fólki, eins og t.d. Al- þjóðaþing Zonta samtakanna, þar sem fulltrúar voru saman komnir úr flestum Miðríkjum Bandaríkjanna, og frá öllum Vesturfylkjum Canada, hafi naumast heyrt áður að til væri land, sem leitir fsland. Erindi frúarinnar á þessu mikla þingi var vel tekið, og bárust henni margar bréflegar fyrirspurnir síðar, og beiðnir um bækur og fræðsluriit um ísland. Hafa þau hjón lagt á sig mikla vinnu við að fjölrita slíkt lesmál og senda áhugamönnum um þessi efni, og einnig kennurum og námsmönn- um við ýmsa skóla, alla leið frá Toronto til Hawaii. Hafa þau hjón rekið eins konar einka- bréfskóla í íslenzkum fræðum á eiginn reikning. Viljum vér votta þeim viðurkenning og þakkir félags vors fyrir þetta ágæta og óeigingjarna starf. Þá er þess að geta, að Jóns Sigurðssonar félagið Í.O.D.E., efndi s.l. ár til samkeppni í samn ing leikrita. Skyldi leikurinn vera í þremur þáttum og fjalla um líf og starf íslendinga í V.- heimi. Fjögur leikrit voru send dómnefndinni, en einn meðlimur hennar var próf. Skúli Johnson. Hlutskörpust þátttakenda var Lauga Geir frá Edinburg, N. D., og voru henni veitt verðlaunin. Nefnist leikrit hennar: “In the Wake of the Storm”, og verður það sennilega sýnt á leiksviði innan skamms. Útgáfumál mélagsins eru ekki margbrotin. Saga íslendinga í Vesturheimi, er nú, sem kunn- ugt er, komin út í fimm bindum. Er talið, að því verki sé þar með lokið, en svo er þó ekki. Enn vantar mikið á, að gerð hafi ver- ið grein fyrir öllum byggðum vorum hér vestra, og þyrfti sögu ritunin að halda áfram. Sögu- útgáfunni hefir því miður ekki verið tekið eins vel og vonir stóðu til, en um gildi hennar segir Jónas Jónsson frá Hriflu í blaðagrein, sem birt var í Reykjavík 17. maí s.l.: Sú saga hermir frá dáðríku lífi kynslóð- arinnar, sem vestur fór og af- komendum þeirra, sem erfðu landið eftir feður og mæður og ömmur og afa, og hafa gert ís- lendingsnafnið heiðrað í fjar- lægum löndum. Stórir staflar af þessum bókum liggja á skrif- stofu stjórnarnefndarinnar á Home St. Minntist hr. Jón Emil Guðjónsson, forstjóri Bókaút- gáfu Menningarsjóðs á íslandi, útgefandi tveggja síðustu bind- anna, á þetta í nýkomnu bréfi til forseta, er hann segir: “Ula gengur salan vestra á Sögu Vest- ur-íslendinga, 4. og 5. bindi.” Vera má, að þetta þing vilji taka til athugunar á' hvern hátt bezt verður greitt fyrir þessu máli. Tímarit félagsins kemur út i ár, eins og venjulega, undir á- gætri ristjórn Gísla Jónssonar, og er Mrs. Einarsson auglýsinga safnandi, eins og s.l. ár, en í Nýja-íslandi mun Mrs. P. S. Pálsson annast það starf. Hefir þess verið getið við stjórnar- nefndina, að tregar gangi nú með söfnun auglýsinga en á fyrri árum. Má það teljast eðlilegt, er rætt er um hagnaðarvon auglýs- enda, sem er víst harla lítil. Hitt veldur meiri furðu, að meðlimir félagsins sums staðar hafa tekið eðlilegri og sjálfsagðri hækkun Notið IGILLETT S LYE| í fyrsta flokks sápu fyrir aðeins lc stykkið! Hugsið yður peningasparnaðinn við notkun, er kostar stykið! Og það kostar ekki mina en þetta að fá beztu tegund loðrandi sápu úr afgangs fitu og Gillett’s lút. Það er auðvelt að fara eftir þeim forskriftum, sem á Gillett’s baukunum standa. Kaupið Gillett’s lút, er þér næst farið í búð og spar- ið árlega mikla peninga. SÉRSTAKT TILBOÐ “SCENT ‘N’ OOLOR” KIT Bætið við þessu sérstaka “Scent ‘N’ Color” efni, er þér búið til Gillett’s lútsápu. Þér fáið fullkomnustu handsápu! Þar er valið um lilju, rósa og lavenderang- an. Öllum þessum angandi efnum er bætt í venjulegan 10 únzu bauk af Gillett’s lút. Scent N Color selst venjulega fyrir þrefalt verð. Fyrir hverja flösku skul- uð þér senda hvaða vörumiða af Gillett’s Jút sem er ásamt 25 cents til Standard Brands Limited, Dominion Square Building. Montreal. Verið viss í að velja þá ilmtegund, er þér helzt æskið. Látið heimilisfang yðar fylgja. Þá verð ur sent til yðar í snarhasti “Scent N Color” Kit ásamt forskrift póstfrítt. OA/cy\ og hvaða hlut teml er af Gillett’s lút-f vörumiða.

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.