Heimskringla - 23.02.1955, Side 3

Heimskringla - 23.02.1955, Side 3
WINNIPEG, 23. FEBR. 1955 HEIM SKRINGLA 3. SÍÐA meðlimagjalda fremur þunglega, en eins og kunnugt er, var með- limagjaldið hækkað úr einum dollar upp í tvo á þingi voru fyr- ir ári síðan. Menn ættu að muna, að fyrir þetta tveggja dollara meðlimagjald veitist þeim ekki aðeins tækifæri til að tilheyra Þjóðræknisfélagi íslendinga í Vesturheimi, styrkja þannig sína eigin þjóðerniskennd og málsta'ð félagsins, heldur veitist þeim í uppbót eitt hið bezta tímarit, sem gefið er út á íslenzku. Fœ- seta er ekki kunnugt um neitt annað sambærilegt félag, sem býður meðlimum sínum slík kostakjör; en spursmál er hversu lengi það tekst að halda uppi slíkri rausn, vegna þverrandi auglýsinga og síhækkandi kostn aðar við útgáfu tímaritsins. Þá skal vakin athygli þings- ins á því, að á þessu ári hætti Almanak Ólafs Thorgeirssonar að koma út. Þetta rit var gefið út í 60 ár, fyrst af Ólafi sjálfum, en síðar af sonum hans, með að- stoð dr. Richard Beck. Naut al- manakið mikilla vinsælda. — Áratugum saman hafði það birt söguþætti úr byggðum íslend- inga, annála og annan fróðleik. Enn munu liggja a skrifstofu útgefanda allmörg handrit af þessu tagi, sem ekki var hægt að birta áður en útgáfunni lauk. Æskilegt væri, að útgáfa alman- aksins gæti haldið áfram í ein- hverri mynd, og væri vel ef þetta þing vildi athuga möguleikana á framkvæmdum í því máli. —Framh. JUIVIBO PUMPKIN Risajurt, sem unnið hefir niörg verð laun á sýningum, gctur orðið um 100 pund á þyngd. Endingargóð, á- gæt til gripafóðurs og eins í skorpu- «teik. (Pakkinn 15c) (un/a 30c) póst* Alveg einstakt fæffujurtasafn.— Jutnbo Pumpkin, Jumbo Cabbage, líround Cherry, Garden Huckleberry, Ground Almonds, Japancse tiant Radish, China Long Cucumber, Yard Long Bcan, Guinea Butter Vinc, Vine Peach, allar þessar 10 tegundir auð- grónar og nytsamar. Verðgildi $1.60 BLOOD BANK faetyAeceuwt THI* (PACI CONTKIIUTfO • V WINNIPEG BREWERY L I M I T E O MD-351 Thelma (RAGNAR STEFANSSON ÞÝDDI) “Já, það er enginn efi á því! Það er nóg af svokölluðum frjálstrúar-kvensniftum, sem með ófyrirleitni, mælsku og stjórnlausri frekju þykj ast vera að leita réttar sins. Þú þekkir ekkert til þeirra, ungfrú Guldmar—vertu þakklát fyrir það! Jæja, Phil, hvað lengi á þetta skip þitt að slóra hér?” “Philip hlýddi áminningunni og kallaði ti-1 hafnsögumannsins, og eftir fáar mínútur, var “Eulaluie” komin á venjulega ferð, og hélt hratt til Soroe. Þessi eyja sem virtist svo dökk og skuggaleg í fjarlægð, fékk einhvern veginn vingjarnlegri svip þegar komið var nær henni. Öðru hvoru sló glampa á marglitar steintegund- ir í klettunum eða fagurgræna gróður bletti og Valdemar Svensen lýsti því yfir, að hann vissi af sendinni vík, þar sem hópurinn gæti, ef hann svo vildi, farið í land og séð lítinn helli sér- staklega fallegan—skreyttan með óteljandi bergkristöllum. “Eg hefi aldrei heyrt að þessi hellir væri til”, sagði Guldmar, og horfði á hafnsögumann inn með óvenjulega hvössu augnaráði. “Ert þú leiðsögumaður ferðafólks til allra slíkra staða í Noregi ?” Errington tók eftir því undrandi að Sven- sen roðnaði og virtist verða hikandi; meira að segja, tók hann ofan rauðu húfuna þegar hann svaraði bóndanum, sem hann ávarpaði með mestu virðingu—á norsku. Gamli maðurinn hló meðan hann hlustaði á hann, og virtist ánægður, því næst snéri hann sér við og sagði við Philip: “Þú verður að fyrirgefa. honum, drengur minn, fyrir að tala í návist þinni, tungumál sem þú skilur ekki- Hann meinti ekki að móðga neinn. Hann er sömu trúar og eg, en er hræddur um ef það vitnast, að honum yrði ekki vel til með atvinnu—sem er mjög líklegt—þar sem svo margt af fólki hér er fullt af trúarofstæki. Einnig er hann mér bundinn með eiði—sem til fornajiefði gert mér hann undirgefinn—en sem nú leggur honum engar skyldur á herðar gagn- vart mér—með einni undantekningu.” “Og sú undantekning er?” spurði Errington með vaxandi áhuga. “Hún er sú, að krefjist eg einhvern tíma af honum vissrar þjónustu, þorir hann ekki að neita því. Undarlegt, finnst þér það ekki? Eða þér virðist það.” og Guldmar þrýsti handlegg unga mannsins Jétt og hlýlega, “en norrænu eiðarnir okkar eru unnir í fyllstu alvöru, og svo bindandi, að líf og heiður liggur við að þeir séu haldnir. Samt sem áður hefi eg ekki krafist hlýðni af Valdemar ennþá, og geri ekki ráð fyr ir að gera það í bráð. Hann er ágætis drengur— vænn og trúverðugur—þó hann sé helzt til of draumlyndur”. “Skær og glaðlegur hlátur barst frá hópn- um sem sat á þilfarinu utanum Thelmu—og Guldmar nam staðar á göngunni, og bros færð ist yfir hreinskilnislega og göfugmannlega andl itið. “Það hefir góð áhrif á mann að heyra glað værð ungs fólks”, sagði hann. “Finnst þér ekki hlátur barnsins míns dálítið svipaður lævirkja söng svo hreinn og fagnaðarríkur?” Rödd hennar er hljómlistin sjálf!” gegndi Philip, fljótlega og hlýtt. “Það er ekkert sem hún segir eða gerir, sem er ekki yndislegt!” En svo varð hann sér þess allt í einu meðvitandi að hann hafði verið helzt til fljótfær og þagnaði. Hann roðnaði í andlitinu þegar Guldmar virti hann fyrir sér, með dálítið hvössu og rannsak- andi augnaráði. En hvað sem gamli maðurinn kann að hafa hugsað, sagði hann ekkert. Hann hélt aðeins ögn þéttar um handlegg unga bar- ónsins þegar þeir gengu til hins fólksins—það var þó auðsjáanlegt allan seinni hluta dagsins að bóndinn var fálátur og alvaralegur, og að oft hvíldi augu hans á dótturinni fögru með angur- værri þrá og þunglyndi í svipnum. Hér um bil tveimur klukkustundum eftir hádegisverð nálg aðist “Eulalie” vikina sem hafnsögumaðurinn ■kafði minnst á, og allir voru hrifnir af fegurð, ekki síður en hrikalegri náttúru staðarins- Klett armr 4 þessum hluta eyjarinnar virtust hafa klofnað og sprungið af hininháum brimöldum úthafsins, gnæfðu ejns Qg borgarvirki. eða must eristurnar meira en tvö þúsund fet yfir sjávar- mál. Fyrir neðan þessi hrjúfu hamravirki náttúr unnar hafði myndast fjörusandur á löngum kafla hvítur og skínandi, sem glampaði eins og mulið silfur. Öðru megin við þessa fjöru mátti greinilega sjá hið kringlótta hellisop sem Vald cmar Svensen hafði vakið athygli þeirra á. Ferða íólikið ákvað að skoða þetta náttúru undur_og skipið var stöðvað, og langi báturinn settur út. Þeir tóku engan skipssmannanna með sér í land, en Errington og félagar hans réru fjórum árum, en Thelma og faðir hennar komu sér fyrir i skutnum. Lendingin var auðveld, og þau gengu öll í áttina til hellisins, og undir fótum þeirra glitrað sandurinn með þúsundum af litlum, marglitum skeljum. Djúp þögn ríkti allstaðar —'eyjan var svo einangruð að það virtist eins og sjófuglarnir, hvað þá aðrar lifandi verur, kærðu sig ekkert um að eiga heima í gjám og klungrum þessara þverhníftu, gróðurlausu kletta. Við innganginn í litla hellinn leit Guld marmar út til hafsins. “Það er óveður í aðsígi!” sagði hann. “Þessi ský sem við sáum í morgun, hafa siglt hingað nálega eins hratt og við.” l . " Professional and Business Directory Office Phone Res. Phone 924 762 726 115 Dr. L. A. SIGURDSON 528 MEDICAL ARTS BLDG. Consultaitions by Appointment Thorvaldson Eggertson . Bastin & Stringer Lögfrœðingox Bank of Nova Scotia Blde. Portage og Garry St Sfini 928 291 Skýin voru áreiðanlega orðin dekkri og þéttari, og dálitlar smáöldur gáruðu yfirborð, sjávarins. En sólin skein ennþá glatt, og það var stillilogn. Eftir ráðleggingum hafnsögu- mannsins, hafði Errington og vinir hans búið sig út með blys, til þess að geta lýst upp hellinn undireins og inn væri komið. Við rauðleitu elds birtuna af blysunum, sem einnig lagði af reykj- armóðu, sýndist þessi staður við fyrstu sýn eins og lítil álfahöll skreytt með ótölulegum fjölda af gimsteinum. Langir oddmyndaðir kristals- stönglar héngu niður úr lofthvelfingunni með undarlega jöfnu millibili—veggirnir glitruðu í mismunandi litum—bleikum, grænum og fjólu- litum og í miðjum hellinum var stór, lygn vatns pollur, og í honum spegluðust allar þessar undramyndir. f einu horninu höfðu kristalls- stönglarnir og hinar samanrunnu bergtegundir myndað nokkurskonar stól, með hásætishimni yfir, og Duprez sem uppgötvaði þetta fyrst, hrópaði: “Nei, sjáið þið þetta! drotningarhá- sæti! Komdu hingað, ungfrú Guldmar, þú verð- ur að sitja í því!” Dr. P. H. T. Thorlakson WIXNIPFG CLINIC St. Mary’s and Vaugban, Winnipeg Phone 926 441 J. J. Swanson & Co. Ltd. REALTORS Rental, Insurance and Financial Agents Simi 927 5S8 308 AVENUE Bldg. — Wlnnipeg CANADIAN FISH PRODUCERS Ltd. J. H. Page, Managing Director Wholesale Distributors oi Fresh and Frozen Fish 311 CHAMBERS ST. Otfice Ph. 74-7451 Res. Ph. 72-5917 H. J. PALMASON CHARTERED ACCOUNTANT 505 Confederation Life Bldg. Winnipeg, Man. Phonc 92-7025 Home 6-8182 Rovatzos Floral Shop 253 Notre Dame Ave. Ph. 952 954 Fresh Cut Flowers Daliy. Plants in Season We specialize in Wedding and Concert Bouquets and Funeral Designs Icelandic Spoken A. S. BARDAL LIMITED selur líkkistur og annast um útfarir. Allur úíbúnaður sá bestL Enniremur selur hann aUskonar minnisvarða og legsteina 843 SHERBROOKE ST. Phone 74-7474 Winnipeg “En eg er ekki drotning”, sagði Thelma hlæjandi. “Hásæti er handa konungi líka, vill ekki Philip setjast í það?” “Þessi uppástunga er þér til sæmdar, Phil- ip!” hrópaði Lorimer, og veifaði blysinu í ákafa. “Við skulum vekja bergmálið hér með því að hrópa, lengi lifi konungurinn!” M. Einarsson Motors Ltd. Buying and Selling New and Good Used Cars Distributors for FRAZER ROTOTILLER and Parts Service 99 Osbornc St. Phone 4-4395 Union Loan & Investment COMPANY Rental, Insuronce cnd Finandal Agents Sími 92-5061 508 Toronto General Trusts Bldg. En Philip gekk til Thelmu, tók hönd henn- ar, og sagði þýðlega: “Komdu! Lofaðu mér að sjá þig sitja í hásæti, Thelma drotning! Gerðu það mér til ánægju —” Hún leit upp—bjarminn af hinu skæra blysi lýsti upp andlit hans, og hún gat ekki annað en séð ástarlogann sem brann í augum hans—en hún skalf og titraði eins og henni væri kalt, og það var kvíða blandin undrun í augnaráðinu. Hann kom nær og þrýsti hönd hennar; aftur hvíslaði hann: “Komdu, Thelma f drotning!” Hún lofaði honum eins og í draumi að leiða sig að kristallsstólnum, og þegar hún var setzt í hann, reyndi hún að stilla hinn æsta hjartaslátt sinn og brosa glaðlega til litla hóps- ins fyrir framan hana sem hrópaði með sam- blandi af kæti og aðdáun. “Þú tekur þig ágætlega út!” sagði Mac- farlane með auðsærri hrifningu. “Hún væri stór : kostlega fögur fyrirmynd til að mála, er ekki svo, Errington?” Philip starði á hana, en sagði ekkert. Til- finningar hans báru hann nálega ofurliði. Hún sat þarna innanum glitrandi bergtegunda — skrautið — og loginn af blysunum ljómaði upp hið yndislega andlit hennar og gullna hárið— og í augnaráðinu var sambland af gleði og kvíða—um varir hennar—sem titruðu ofurlítið, lék dularfullt óákveðið bros—hún leit nærri því hættulega yndislega út—Helen af Troy myndi varla hafa kveikt heitari ástríðueld í hjörtum Forn-Grikkjanna, heldur en þessi unga stúlka óafvitandi gerði á því augnabliki í hjörtum allra þeirra sem á hana horfðu. Duprez fylltist—ef til vill í fyrsta sinni, göfugri og hreinni lotningu fyrir kvenlegri fegurð, og ákvað það með sjálfum sér að léttúð, mælgi og gullhamrar ættu hér ekki við—hann sagði þess vegna ekkert, og Lorimer var einnig þögull, og barðist með hugprýði á móti æstum ástríðum sem voru nú, eftir hans skoðun, ekk- ert nema ótrúmennska og drottinssvik við vin hans. Hin sterka, hressandi rödd gamla Guld- mars vakti þá alla upp af þessum dagdraumum. “Nú, nú, Thelma mín! Ef þú hefir verið gerð að drotningu, þá notaðu vald þitt og skip- aðu þessum drengjum að fara að koma sér á brott héðan. Þetta er dálítið rakur staður fyrir konungshirð, og hásætið hlýtur að vera fremur kalt og ónotalegt. Við skulum fara út í blessað sólskinið aftur—og ef til vill getum við klifrað upp á einhvern klettinn hér og notið útsýnis- • _ f» íns. “Það er ágætt, herra minn!” sagði Lorimer, og ákvað með sjálfum sér að nú skyldi Erring- ton fá sitt tækifæri. “Komdu nú, Mac! áfram með þig—Pierre! Herra Guldmar krefst full- kominnar hlýðni af okkur! Phil, þú sérð um drotninguna!” Hann ýtti Duprez og Macfarlane með lagi á undan sér, og þeir fylgdu Guldmar eftir sem var á undan—og vinur hans var þann- ig skilinn eftir einn hjá Thelmu—að minnsta kosti nokkur augnablik. S.--------------------------------------—------------- The BUSINESS CLINIC (Anna Larusson) 306 AFFLECK BLDG., (Opp. Eaton’s) Officc 92-7130 House 72-4315 Bookkeeping, Income Tax, Insurance Mimeographing, Addressing, Typing Y ZJ r "V Halldór Sigurðsson & SON LTD. Contractor & Builder • 526 ARLINGTON ST. * Sími 12-1212 sW ? FINKLEMAN OPTOMETRISTS and OPTICIANS Kcnsington Building 275 Portage Ave. Winnipeg PHONE 92-2496 Y--- - MALLON OPTICAL j 405 GRAHAM AVENUE Opposite Medical Arts Bldg. TELEPHONE 927 118 Winnipeg, Man. COURTESY TRANSFER & Messenger Service Flytjum kistur, töskur, húsgögn, píanós og kzliskápa önnumst allan umbúnað á smásend- ingum, ef óskað er. Allur fltuningur ábyrgðstur Simi 526 192 1096 Pritchard Ave. Eric Erickson, eigandi Vér verzlum aðeins með fyrsta flokks vörur. Kurteisleg og fljót afgreiðsla. TORONTO GROCERY PAUL HALLSON, eigandi 714 Ellice Ave. Winnipeg TALSIMI 3-3809 S--~ — BALDWINSON’S BAKERY 749 Ellice Ave., Winnipeg (milli Simcoe & Beverley) Allar tegundir kaffibrauðs. Brúðhjóna- og afmxliskökur gerðar samkvæmt pöntun Sími 36-127 Off. Ph. 74-5257 700 Notre Dame Ave. Opp. New Matemity, Hospital NELL’S FLOWER SHOP Wedding Bouquets, Cut Flowen Funeral Designs, Corsages Bedding Plants Mrs. Albert J. Johnson Res. Phone 74-6753 j \ GRAHAM BAIN & CO. PUBLIC ACCOUNTANTS and AUDITORS 874 ELLICE AVE. Bus. Ph. 74-4558 Res. Ph. 3-7390 V J Office Ph. 92-5826 Res. 40-1252 DR H. J. SCOTT Spccialist in EYE, EAR NOSE and THROAT 209 Medical Arts Bldg. HOURS: 9.30 — 12.00 ajm. 2 — 4 J0 p.m. —, J. WILFRID SWANSON & CO. Insurance in aU its branches. Real Estate — Mortgages — Rentals 218 POWER BUILDING Telephone 987 181 Res. 403 480 LET US SERVE YOU Hafið HÖFN í Hnga ICELANDIC OLD FOLKS HOME SOCIETY — 3498 Osler Street — Vancouver 9, B. C. U j GILBART FUNERAL HOME - SELKIRK, MANITOBA - J. Roy Gilbart, Licensed Embalmer PHONE 3271 - Selkirk S__ GUARANTEED WATCH, k CLOCR REPAIRS SARGENT JEWELLERS H. NEUFELD, Prop. Watches, Diamonds, Rings, Clocks, Silverware, China 884 Sargent Ave. Phooe 8-8170 A. J l JACK POWELL, B.A. LL.B. BARRISTER, SOUCITOR, NOTARY PUBUC Off. Ph. 927751 - Res Ph. 56-1015 206 CnnfcdcratMMs Ruilding, Wimupeg, hA. V. HERE _NOW! ToastMaster MIGHTY FINE BREAD! At your grocers J. 8. FORREST, J. WALTON Manager Sales Mgx. PHONE 3-7144 V —

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.