Heimskringla - 20.07.1955, Side 2
2. SÍÐA
HEIMSKRINGLA
Wjcimskrintila (StofnuO 18»$) CMxmx út 6 hverjum mlðvlkudegL Eigendur: THE VIKING PRESS LTD. 85S og 855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man. — Talsfmi 74-6251
Verð blaöalna er $3.00 árgangurlnn, borgist fyriríram. AJlar borganir eendiat: THE VIKING PRESS LTD.
öll vlOsklftabréf blaBlnu aPlútandl sendist: Ti>e VUdng Press Limited, 853 Sargent Ave., Winnipeg Rltstjóri STEFAJf EINARSSON Utanáskrlft tll ritatjórans: EDITOR HEIMSKRINGLA, 853 Sargent Ave., Winnipeg
“Heimakringlo" is published by THE VIKING PRESS LIMITED and printed by VIKING PRINTERS 853-855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man., Canada — Telephone 74-6251
Authorixed as Second C1<m» Mcdl—Pogt Oíiice Dept., Ottawa
WINNIPEG, 20. JÚLÍ 1955
SJÖTUGSAFMÆLI GARÐ-
YRKJUFÉLAGS ISLANDS
Eftir Pióf. Richa'd Beck
Garðyrkjufélag íslands átti
sjötugsafmæli 26. maí í ár, og
var þeirra merkistímamóta í
sögu þess þarfa og ágæta félags-
skapar að verðugu minnst bæðí
i blaðagreinum og með sérstakri
dagskrá í Ríkisútvarpinu ís-
ienzka.
“Garðyrkjuritið,” sem er árs-
rit Garðyrkjufélags fslands, var
ennfremur í ár, eins og vera ber,
sérstaklega belgað 70 ára afmæli
félagsins. Ritstjórinn, Ingólfur
Davíðsson magister (hann á ná-
komið frændfólk hér vestan
hafs) skrifar ítarlega sögu fé-
lagsins, og skipar sú skilmerki-
lega og fróðlega ritgerð hans
öndvegi í ritinu.
í inngangsorðum sínum bendir
hann á það, að félagið hafi upp-
haflega heitið “Hið íslenzka
garðyrkjufélag”, allt fram til
ársins 1940, en þá var nafni fé-
lagsins breytt og heitir það síð-
an Garðyrkjufélag íslands. Var
það einnig lengi eina garðyrkju-
félag landsins, en nú eru slík fé-
lög orðin drjúgum fleiri, eftir
því sem garðyrkja á íslandi hef-
ir fært út kvíarnar og orðið fjöl
þættari. Rekur höf. síðan sögu
íslenzkrar garðyrkju í nokkrum
megindráttum, og er ánægjulegt
að fylgjast með þróun hennar.
Þá getur höf. nokkurra braut-
ryðjenda á sviði slenzkrar garð-
yrkju, og er þar fyrstur á blaði
OttaW&, Ont., hy Franklin Arbuckle, R.C.A., O.S.A.
One of the 65 Paintings in the Seagram Collection.
SEAGRAM MYNDASAFNIÐ
SENDIBOÐI VINÁTTU
OG GÓÐVILJA
Til að sýna fólki í öðrum löndum hvernig
við lítum út, bað House of Seagram vel-
þekta canadiska listmálara, að gera ínyndir
af borgum Canada. Þessar myndir hafa
verið sendar flugleiðis í kringum jörðina
og sýndar meira en kvartmiljón manna.
Hvar sem þessir sendiboðar vináttu hafa
komið, hafa þeir útbreytt varanlega þekk-
ingu á Canada og aðdáun á hinum miklu
framförum landsins.
f dag er á þúsundum heimila lengst út í
Iheimi, talað um hina góðu heimsókn þess-
ara ágætu fulltrúa frá Canada.
WINNIPEG, 20. JÚLÍ 1955
Georg Schierbeck, landlæknir, er
var hvatamaður bæði að stofn-
un Hins íslenzka garðyrkjufé-
lags og “Garðyrkjuritsins”. Eiga
íslendingar því honum, sem
fleiri Dönum, mikla skuld að
gjalda í garðyrkjumálum, eins
og Ingólfur Davíðsson tekur
réttilega og drengilega fram í
ritgerð sinni. Annar af stofn-
endum Garðyrkjufélagsins og
helztu stuðningsmönnum þess
framan af árum var Árni Thor-
steinsson landfógeti. Sonur hans,
Hannes Thorsteinsson
var seinna um langt skeið for-
maður félagsins. En Einar
Helgason garðyrkjustjóri var
“einn aðalbrautryðjandinn, mátt-
arstólpi Garðyrkjufélagsins á
öðru starfsskeiði þess, árunum
1920—1935”, svo að viðhöfð séu
orð greinarhöfundar.
Á seinni árum, síðan garðyrkj-
an varð sjálfstæð atvinnugrein
og garðyrkjustéttin að sama
skapi all-f jölmenn, koma hér
vitanlega miklu fleiri við sögu,
eins og sjá má af skrám þeim
yfir stjórnendur og aðra starfs-
menn Garðyrkjufélagsins, sem
birtar eru í þessu afmælisriti
þess.
Annars er fróðlegt að minna
á það, hverjir sóttu stofnfund
félagsins 26. maí 1885, en þeir
voru þessir, samkvæmt fundar-
gerðinni, sem tekin er upp í rit
gerð Ingólfs Davíðssonar: —
Sahierbeck landlæknir, Pétur
biskup Pétursson, Magnús
Stephensen assessor (yfirdóm-
ari), Theodór Jónassen bæjar-
fógeti, Árni Thorsteinsson land-
fógeti, Si^urður Melsted presta-
skólaforstöðumaður, Þórarinn
prófastur Böðvarsson, Halldór
Friðriksson yfirkennari, Stein-
grímur Thorsteinsson skólakenn
ari, Björn Jónsson ritstjóri og
Hallgrímur Sveinsson dómkirkju
prestur. Var hér sannarlega
mannval mikið úr hópi stór-
menna lhndsins á þeirri tíð, og
má segja, að leiðtogar hinnar
andlegu og veraldlegu stéttar
tækju höndum saman um að
hrinda af stað stofnun þess þjóð
þrifafélagsskapar, er hér var um
að ræða. Má einnig bæta því við,
að Grímur Thomsen skáld var
einn af þeim, er skráð höfðu sig
fyrirfram sem stofnendur félags
ins, þó eigi sæti hann stofnfund-
inn. _
Félagið starfaði óslitið fram til
aldamóta, en þá tók Búnaðarfé-
lag íslands við Starfi þess um all
lan^t skeið. Árið 1910 var Garð-
yrkjufélagið endurvarkið og hef
ir starfað síðan, að undantekn-
um þrem árum, er hlé varð á
starfsemi þess eftir lát Einars
Helgasonar 1935.
Árið 1935, á 50 ára afmæli fé-
lagsins, rakti Metúsalem Stefáns
son (einnig frændmargur vest-
an hafs) sögu þess í landbúnaðar
ritinu “Frey”, og komst meðal
annars þannig að orði:
“Það er ekki hægt að segja,
að það hafi borið sérlega mikið
á Garðyrkjufélaginu þau 50 ár,
sem það hefir nú starfað, enda
hafa forgöngumenn þess ekki
verið neinir hávaðamenn, sem
langaði til að láta á sér bera, en
þeir hafa verið rólegir eljumenn
sem unnu af áhuga og einlægni
fyrir gott og nytsamlegt mál-
efni, enda var ekki öðru til að
dreifa, því að starfsfé hefir fé-
lagið aldrei haft.
En þrátt fyrir þetta mun þó
svo fara, við nánari athugun, að
flestar þær breytingar, sem orð-
ið hafa hér í garðyrkjumálum s.l.
hálfa öld, má^ rekja til Garð-
yrkjufélagsins og starfsmánna
þess.
Þótt þessar breytingar séu
minni en æskilegt væri og mik-
ið sð enn óunnið garðyrkjunni
til eflingar, þá vita þeir, sem
muna aftur til síðustu aldamóta
og lengra, að margt hefir skipast
til betri vegar í garðyrkjunni,
og einkanlega er nú meiri trú
manna á möguleikana til garð-
yrkju hér á landi, bæði á heitum
og köldum stöðum, en áður var.
Og það er ekki lítilsvert að
hrinda aldagamalli vantrú og
vekja rétta trú í staðinn, því að
þá er komið að aðalatriðinu, að
sýna trúna í verkunum, og nú
er knýjandi nauðsyn til þess að
það sé gert.”
Ingólfur Davíðsson, sem þeim
málum er gagnkunnugur, bætir
svo við ofangreind ummæli um
félagið þessum orðum frá eigin
brjósti:
“Mundu ekki orð Metúsalems
vera sannmæli um störf félags.
ins enn þann dag í dag? Bæta
má því við að þau 20 ár, sem lið-
in eru síðan þau voru rituð, hafa
framfarirnar í garðyrkju hér á
landi verið miklu meiri og örari
en nokkru sinn fyrr.
í þeirri þróun á Garðyrkjufé-
lagið drjúgan hlut. Með garð-
yrkjusýningum, fyrirlestrum,
umræðufundum, Garðyrkjurit-
inu o.fl., hefir félagið vakið á-
Nýtt Sívirkt
Dry Yeast heldur ferskleika
ÁN KÆLINGAR
Konur sem reynt hafa hið nýja, skjótvirka, ]mrra ger
Fleischmans, segja að það sé bezta gerið, sem þær hafi reynt. Það
er ólíkt öðru geri að því leyti að það heldur sér vel þo vikur standi
upp á búr-hillu. Samt vinnur það sem ferskst duft, verkar undir
eins, lyptist skjótt, framleiðir bezta brauð, af allri gerð til fyrir og
eftir matar. .
Uppleysist: (l)Leysið það Vel upp í litlu af volgu vatni og bætið
í það einni teskeið af sykur með hverju umslagi af geri. (2) Stráið
þurru geri á. Lát standa 10 mínútur. (3)Hrærið vel í. (Vatnið not-
að með gerinu, er partur öllu vatni er forskriftin gerir ráð fyrir).
Fáðu þér mánaðarforða hjá kaupmanninum í dag. 4546—Rcv.
1 pakki jafngildir 1 köku af Fresh Yeast
huga og haldið uppi hagnýtri
fræðslustarfsemi í garðyrkju.”
Hér er þá jafnframt dregin at-
hygli að meginþáttunum í starf-
semi félagsins', en þeim eru síð-
an, svo sem “Garðyrkjuritinu”
og garðyrkjusýningunum, gerð
ítarlegri skil í sérstökum köfl-
um í sögu félagsins í afmælisrit
inu. Um ritið skal þess getið, að
auk Ingólfs ritstjóra eiga nú
sætTí ritnefndmni Eínar I. Sig-
geirsson (hann gat sér mikinn
námsframa á Landbúnaðarháskól
anum í Fargo, N. Dak.) og Hall-
dór Ó. Jónsson.
Þá má geta þess sérstaklega
að félagð hefir haldið sjö sjálf-
stæðar garðyrkjusýningar, tekið
þátt í þrem, þar af tveim erlend-
is, og aðstoðað við þrjár, sem
aðrir aðilar hafa haldið. Hefi
fjöldi fólks sótt sýningar þess-
ar, sumar þeirra svo mörgum
þúsundum skipti, og ifggur því
í augum uppi. að þær hafa haft
víðtæk og vekjandi áhrif.
Núverandi stjórn Garðyrkju-
félags íslands skipa: E. B. Malm
quist formaður, Ingólfur Davíðs
son ritari, Hlín Eiríksdóttir
gjaldkeri, og Jóhann Jónasson
og Friðjón Júlíusson meðstjórn
endur .
J£rv jafmTarrrt ~hi«nl iEerlíu Ug
fræðandi ritgerð Tngólfs um
sögu Garðyrkjufélagsins og
öðrum fróðleik varðandi það,
flytur “Garðyrkjuritið” að þessu
sinni, eins og endranær, fjölda-
margar aðrar fróðlegar greinar
og athygBsveröar um íslenzka
garðyrkju og fleira, er þau mál
snertir, og er að því öllu góður
fehgur þeim, er láta sig þau mál
varða, og þá sérstaklega öllum
þeim, sem fylgjast vilja með þró
un íslenzkrar garðyrkju á síðari
Alt undir einu þaki
Útibú hvers löggilds banka eru miklu meira en hentugur staður til
að geyma í spari fé. Það er banka þjónustu í öllum skilningg sem
nauðsynleg ér sérhverjum borgara þjóðfélagsins-
1 hverjum hinna<f,000 bankabúa Canada, elU ^1111
nauðsynlegustu störf af hendi leyst fyrir alla. I ai ei fé lagt
inn, ávísanir greiddar, lán veitt leigðir oryggis kassar, peningum
ávísað og keyptir og seldir erlendir víxlar.
Einungis í löggiltum bankum, cr öll þessi þjonusta veitt og öll
undir einu og sama þaki. 1 gegnum bankanna eru allar þarfir
Jnnar í fjárskiftum -óbrotnar, öryggar, auðveldar.
SJÁIÐ BÁNKANN
ÞVl VIÐYÍKJANDI
Aðcins löggiltir bankar veita
follkomnustu þjónustu
Spari fjárreikningur
Daglegan reikning
Sameignar reikning
Privat lán
Verzlunar lán
Bænda lán
Veðdeildar lán
Heimilis lán
Upplýsingar um innlands og
erlend viðskifti
Kaup og sala erlendra
vfxla
Viðskifta innköllun
Peningar sendir
Banka ávísanir
Ferðamanna ávisanir
Lánsskýrteini
OryggisLassar
Upplýsingar um lán
Kaup og sala verðbréfa
Geymsla verðmætra skjala
Bankarekstur með pósti
Zhc Jíouse of Seaq ram
the chartered banks serving your
COMMUNITY
Ad. No. 5501