Heimskringla - 24.08.1955, Blaðsíða 3
WINNIPEG, 24. ÁGÚST, 1955
hagsaðstoðin gerði byggingu
þessarar iþjóðþrifafyrirtækja
mögulega. Án hennar hefði þjóð
in ekki getað ráðist í þau.
£>að verður 'því enn einu sinni
augljóst, að þeir menn, sem börð
ust með oddi og egg gegn þátt-
töku íslands í efnahagssam-
vinnunni höfðu ekki hagsmuni
íslenzku þjóðarinnar fyrst og
fremst í huga. —Mbl. 28. júlí
*
Stórblaðið Life lætur
gera íslandskvikmynd
í byrjun ágúst kemur hingað
mikill leiðangur, sem gerður er
út af ameríska stórblaðinu ‘Life’.
Leiðangur þessi er vísindalegs
eðlis og er það hlutverk hans að
taka ítarlega kvikmynd af ís-
landi, náttúru landsins, fuglalífi
og jarðfræði.
Mun leiðangurinn dveljast
hér í þrjár vikur og vera á sífelld
um ferðalögum um landið. Kvik
myndin verður að sjálfsögðu lit
mynd.
Taka kvikmyndar þessarar er
þáttur í áætlun “Life” að taka
slíkar fræðslukvikmyndir í flest
um löndum veraldar til þess að
auka kynni þjóða í milli og þekk
ingu þeirra á hverri annarri
Mun íslandskvkmyndin verða
sýnd í þúsundum kvikmyndahúsa
um allan heim. Það er kvikmynda
ver í Vestur-Þýzkalandi, sem
kvikmyndatökuna annast að
mestu leyti fyrir “Life” og kem
ur leiðangurinn þaðan. Hefur dr.
Sigurður Þórarinsson annazt um
fyrirgreiðslu fyrir leiðangur
þennan. —Mibl. 29. júlí
★
Sr. Friðrik Friðrikssyni reist
minnismerk við Lækjargötu í
Reykjavík á 87 ára afmæli hins
aldna kennimanns og unglinga-
fræðara.
★
Vígðir samtímis 5 prestar: Guð
mundur Óli Ólafsson til Skál-
holtsprestakalls, Rögnvaldur
Jónsson til Ögurþinga, Norður-
ísafjarðarsýslu, Sigurður Hauk-
ur Guðjónsson til Hálspresta-
kalls Suður-Þingeyjarsýslu, Þor
leifur Kjartan Kristinsson til
Kolfreyjustaðaprestakalls og Ó1
afur Skúlason til evangelisk-lúth
erska kirkjufélags íslendinga í
Vesturheimi.
★
Um 40 karlmenn frá Danmörku
ráðnir tii landbúnaðarstarfa hér
á landi aö tii-blutun Búnaðarfé
lags fslands.
T H I S
S P A C E
CONTRIBUTED
V BY
ÖKEmYS
MAN itoba
D I V I S I ON
WESTERN
CANADA
BREWERIES
LIMITID
BLOOD BANK
Thelma
(RAGNAR STEFANSSCM ÞÝDDI)
Enginn af aðalsfólkinu hafði séð hana ennþá
nema í skemtigarðinum og Philip hafði gildustu
ástæðu að vera ánægður með þá hrifningu sem
hún vakti, en hann var dálítið undrandi yfir
frú Winsleigh að vera fyrst til að bjóða hina ó-
þekktu brúði hans velkomna í samkvæmislífið
á tilhlýðiegan ‘hátt. Breytni hennar í því efni
fannst honum ofurlítið tortryggileg—því að
sannarlega gat hann ekki dulið það fyrir sjálf-
um sér að hún hafði um eitt skeið verið tryll-
ingslega ástfangin í honum. Hann minntist með
sársauka að við eitt eða tvö tækifæri þegar þau
voru saman, hafði hann orðið að leiða
henni fyrir sjónir hversu henni bæri að rækja
hjónabandsskyldur og trúnaðarheit, við eigin-
mann sinn—og hann roðnaði af gremju þegar
hann hugsaði um ósiðlæti hennar, ofsagrát, ást-
ríðufulla ástleitni og tryllingslegt, óheiðarlegt
orðbragð.
Samt sem áður varð nú þessi sama kona
fyrst til—gekk fram fyrir skjöldu í samkvæmis
lífi aðalsfólksins til þess að taka á móti konu
hans með opnum örmum—hann gat ekki vel
skilið i því. Þegar allt kom til alls, var hann
karlmaður—og hin mörgu og mismunandi slægð
arbrögð og f jöllyndi tízku kvenna voru eðlilega
ofvaxin hans skilningi. Thelma hafði aldrei séð
eða kynnst lávarðsfrú Winsleigh—ekki einu
sinni séð henni bregða fyrir á ökuferðum um
skemmtigarðinn—og þegar hún fékk boðspjald
ið í hið stórkostlega gildi í Winsleigh-höllinni
þáði hún það af því maður hennar óskaði eftir að
hún gerði það, sjálf bjóst hún ekki við að hafa
neina sérstaka ánægju af að fara. Þegar hinn
tiltekni dagur rann upp að lokum var hún ná-
lega búin að gleyma því þangað til í lok hins
ánægjulega samtals þeirra við morgunverðinn,
að Philip sagði skyndilega:
“Eftir á að ihyggja, Thelma, eg hefi sent
eftir Erringtans demöntunum í bankanum. Það
verður komið með þá hingað bráðlega. Mig lang
ar til að þú skreytir þig með þeim í kvöld.”
Thelma leit á hann undrunar og spurnar-
augum.
“Hvert íörum viÖ 1 kvöld? Eg er búin aó
gleyma því. Ójú, nú veit eg það— Við eigum
að fara til frú Winsleigh. Hvernig ætli það
verði Philip?”
“Jæja, það verður óskaplegur fólksfjöldi
sem treðst upp og niður stigana—þú sérð þar
allar þessar frúr sem hafa skilið hér eftir nafn
spjöldin sín, þú verður kynnt þeim—eg þori
að segja að það verður þar einhver léleg hljóm
list og ómeltanlegur kvöldverður — og — og —
það er allt sem það verður!”
Hún hló og hrissti höfuðið ásakandi. “Eg
get ekki farið eftir því sem þú segir, vinur minn,
þegar stríðnisköstin hlaupa í þig!” sagði hún
um leið og hún stóð upp úr sæti sínu og kraup
við hlið hans með handleggina utan um háls
hans, og horfði astúðlega í augu hans. “Þú ert
nærri því eins slæmur og okkar mjög svo slæmi
Lonmer, sem alltaf sér einhverja einkennilega
agnúa á öllum hlutum! Eg er alveg viss um að
lávarðsfrú Winsleigh hefir ekki fólksþyrpingar
að troðast upp og ofan stigana hjá sér—það væri
tkki góður smekkur. Og ef hún hefir hljóm-
list, verður hún góð—og hún myndi ekki láta
bera fram þær veitingar fyrir vini sína sem
gerðu þá veika.”
Philip þagði. Hann var að yfirvega hinn
mjúka, bjarta og yndislega hörundslit konu
sinnar, og virtist annars hugar. “Vertu í bún-
ingnum sem þú fekkst hjá Worth”, sagði hann
skyndilega. “Mér fellur hann vel í geð—hann
fer þér svo vel”.
“Auðvitað verð eg í honum ef þú óskar
Þess”, sagði hún hlæjandi. En hversvegna?
Hvaða mismun gerir það? Þú vilt að eg sé eitt-
hvað sérstaklega vel búin í kvöld?”
langar til að þú skyggir á og takir
öllum konum fram í samkvæminu!” sagði hann
með eftirtektarverðum áherzlum.
Hún varð fremur hugsandi. “Eg held ekki
að það yrði neitt skemmtilegt”, sagði hún, alvár
lega. Auk þess sem það er ógerlegt. Og það
væri rangt að vilja að eg gerði allar aðrar konur
óánægðar með sig (sjálfar). það er ekki líkt
þér, vinur minn, að óska eftir slíku!”
Hann snerti hið gullna hár hennar mjúk-
lega með fingrunum. “Ó, yndið mitt! Þú þekkir
ekki hverskonar heimur þetta er, og hversu und
arlegt fólk er í honum! En hvað um það! Láttu
það ekki fá neitt á þig. Þú færð góða hugmynd
um það í kvöld hvernig samkvæmislífið er, og
þú verður að segja mér seinna hvernig þér fell
ur það i geð. Eg verð forvitinn að heyra hvern
Þer geSjast að lávarðsfrú Winsleigh.”
“Hún er fríð, er ekki svo?”
HEIMSKRIMGLA
3. SÍÐA
“Það er litið svo á af flestum kunningjum
hennar, og henni sjálfri”, svaraði hann bros-
andi. “Eg hefi nautn af að sjá falleg andlit”,
sagði Thelma, hlýlega, “Það er eins og maður
skoði myndir. Síðan eg kom til London hefi eg
séð svo mikið af þeim, það er mjög skemmtilegt.
Þó finnst mér engin af þessum fríðu konum
líta ánægjulega eða hraustlega út.”
“Helmingur þeirra þjáist af taugaveiklun
og allskonar heilsuleysi af of mikilli tedrykkju
og of þröngum lífstykkjum”, svaraði Errington
“og þær fáu sem eru sæmilega hraustar eru of
mikið á ferðinni, þær gefa sig við dýraveiðum
og þesskonar skemmtunum þangað til þær verða
rauðbláar í andliti og feitar, og grófgerðar eins
og stelpugálur eða hestasveinar. Þær virðast
aldrei geta ratað meðalhófið. — Jæja!” og hann
stóð upp frá morgunverðarborðinu. “Eg ætla að
fara á fund Neville og yfirfara reikninga. Við
förum í ökutúr seinni partinn til að fá okkur
ferskt loft, og á eftir verður þú að hvíla þig,
yndið mitt—því þú munt komast að því að heim
boðin þreyta mann meira en fjallgönguferðir í
Noregi.” Hann kyssti hana og fór, en hún fór
að sinna sinum venjulegu störfujn, sem voru
mörg, því að hún hafði lagt mikla rækt við að
komast inn í alla stjórn og rekstur á óðölum
manns síns—hún fór á hverjum morgni til her-
bergis þess sem ráðskonan, frú Parton, tók á
móti henni með mikilli virðingu og alúð, og
veitti henni allar nauðsynlegar leiðbeiningar í
að stjórna stóru og mannmörgu heimili og
fræddi hana um daglegan reksturskostnað, svo
að hún var orðin því öllu vel kunnug. Hún var
látlaus og hagsýn að eðlisfari, og þó að hún bæri
umhyggju fyrir því að öllu þjónustufólkinu,
lágum sem háum, liði sem bezt, sá hún mjög á-
kveðið um það að ekkert óhóf ætti sér stað, en
þó með svo ljúfum og látlausum hætti, að naum
ast varð eftir því tekið—þó að maður hennar
hefði fljott komist að árangrinum af heimilis
stjórn hennar þar sem vikuleg útgjöld höfðu
smám saman minnkað, og þar sem allri risnu
virtist þó vera haldið í sama horfi og áður var.
Hún var gædd góðri skynsemi og heil-
brigðri dómsgreind—og hún sá enga ástæðu til
að sóa auði manns síns aðeins vegna þess að af
miklu var að taka—svo að vegna hennar mildu
og hyggilegu áhrifa, var Philip það ljóst að auð
ur hans óx án þess að það væri hans eigin að
gerðum að þakka. Hús hans og heimili hafði
blóm, sem Thelma sjálf kom fyrir, prýddu her-
bergin—á svölunum og í gróðurhúsunum kvað
víð indæll fuglasöngur og smám saman ófust
einhverjir töfraþræðir í kringum hann—og
mynduðu heildarsvip dásamlegs heimilis.
Áður fyr var svo langt frá því að honum
hefð fallið þetta virðulega borgarstórhýsi vel
í geð—honum hafði fundist það leiðinlegt og
kalt, nærri því skuggalegt, en nú fannst honum
að sér hefði sést yfir marga af þess góðu kostum
áður. Og kvöldið sem til stóð að þau færu í hið
mikla samkvæmi frú Winsleigh—leit hann yfir
hinn yndislega skrautbúna sal með eldi á arni,
ajúpum hægindastólum, bókum og hinu mikla
hljóðfæri, og óskaði að hann og kona hans gætu
dvalið heima í næði. Hann leit á úrið sitt—það
var tíu. Það var nægur tími. Hann ætlaði sér
sannarlega ekki að koma of snemma í samkvæmi
frú Winsleigh. Hann vissi hvílík áhrif og eftir-
tekt koma Thelmu myndi vekja—og hann brosti
þegar hann hugsaði um það. Hann var að bíða
eftir henni—hann sjálfur var tilbúinn, klæddur
fínustu kvöldfötum — og var—eins og æfinlega
—frámunalegur fríður og karlmannslegur út-
lits.
Hann gekk um gólf dálítið óþolinmæðis-
lega—en tók svo ljóðabók Keats og settist með
hana í hægindastól og varð brátt niðursokkinn í
lesturinn. Hann hafði augun enn á hinni prent-
uðu síðu bókarinnar, þegar mjúk snerting á öxl
hans vakti hann af dvalanum—og þýð, hálfhlæj
andi rödd spurði:
“Philip! Er eg eins búin og þú óskar eftir?”
Hann spratt á fætur og stóð frammi fyrir
henni—en nokkur augnablik gat hann ekkert
sagt. Hin dásamlega fegurð hennar hafði frá
því fyrsta vakið undrun hans og ástríðufulla að
dáun—en á þessu kvöldi, þegar hún stóð frammi
fyrir honum, klædd látlausum hvítgulum slóða
löngum flöjelskjól, með ættardemantana glitr-
andi í hárinu og um háls og handleggi, var feg
urð hennar svo ósegjanlega hrífandi að hann
átti engin orð til, svo sakleysislega ánægð, að
hann starði á hana hugsandi—var það rétt af
honum að láta þessa hreinu og saklausu veru
kynnast öllum hinum ógeðslega og falska yfir-
borðsgljáa og hræsni þess félagsskapar, sem
hún átti nú að fara að verða hluti af? Og því
stóð hann þögull, þangað til Thelma varð óró
leg.
“Ó, þú ert ekki ánægður!” sagði hún, “eg er
ekki eins og þú vilt! Það er eitthvað rangt!”
Hann tók hana í faðm sinn, þrýsti henni
að sér og kyssti hana með nálega angurværri
blíðu.
i Professional and Business Direr.tnry
Office Phone Res. Phone 924 762 726 115 Dr. L. A. SIGURDSON 528 MEÐICAL ARTS BLDG. Consultations by Appointment Thorvaldson Eggertson Bastin & Stringer Lögfrœðingar Bank of Nova Scotia Bld«. Portage og Garry St. Sími 928 291
Dr« P, H, T, Thorlakson WINNIPEG CLINIC St. Mary's and Vaughan, Winnipeg Phone 926 441 H. J. PALMASON CHARTERED ACCOUNTANT 505 Confederation Life Bldg. Winnipeg, Man. Phone 92-7025 Home 6-8182
J. J. Swanson & Co. Ltd. REALTORS Rental, Insurance and Financial Agents Sími 927 538 308 AVENUE Bldg. — Winnipeg Rovatzos Floral Shop 253 Notre Dame Ave. Ph. 932 9S4 Fresh Cut Flowers Daily. Plants in Season We specialize in Wedding and Concert Bouquets and Funeral Designs Icelandic Spoken
CANADIAN FISH PRODUCERS Ltd. J. H. Page, Managing Director Wholesale Distributors of Fresh and Frozen Fish 311 CHAMBERS ST. Otfice Ph. 74-7451 Res. Ph. 72-3917 A. S. BARDAL limited selur líkkistur og annast um utfarir. Allur útfoúnaður sá besti. Ennfremur selur hann allskonar mmnisvarða og legsteina 843 SHERBRCKDKE ST Phone 74-7474 Winnipeg
M. Einarsson Motors Ltd. Buying and Selling New and Good Used Cars Distributors for FRAZER ROTOTILLER and Parts Service 99 Osborne St. Phone 4-4395 Union Loan & Investment COMPANY Bental, Insurance and Finandal Agents Sími 92 5061 508 Toronto General Trusts Bldg.
X The BUSINESS CLINIC (Anna Larusson) 306 AFFLECK BLDG., (Opp. Eaton’s) Ofíice 92-7130 House 72-4315 Bookkeeping, Income Tax, Insurance Mimeographing, Addressing, Typing Halldór Sigurðsson & SON LTD. Contractor & Bullder • 526 ARLINGTON ST. Sími 72-1272 V
MALLON OPTICAL 405 GRAHAM AVENUE Opposite Medical Arts Bldg. TELEPHONE 927 118 Winnipeg, Man. . FINKLEMAN OPTOMETRISTS and OPTICIANS Kensington Ituilding 275 Portage Ave. Winnipeg PHONE 92 2496 ’
COURTESY TRANSFER & Messenger Service Flytjum kistur, töskur, húsgögn, píanós og kæliskápa önnumst allan umbúnað á smásend- ingum, ef óskað er. Allur fltuningur ábyrgðstur Sími 526 192 1096 Pritchard Ave. Eric Erickson, eigandi verzlum sðcms nicð fyrstA flokks vörur. Kurteisleg og Hjót afgreiðsla. TORONTO GROCERY PAUL HALLSON, eigandi 714 Ellice Ave. Winnipeg TALSIMI 3-3809 ^ ✓
BALDWINSON’S BAKERY 749 Ellice Ave., Winnápeg (milli Simcoe 8c Beverley) Allar tegundir kaffibrauðs. Brúðhjóna- og afmxliskökur gerðar samkvæmt pöntun Sími 36-127 Off. Ph. 74-5257 700 Notre Dame Ave. Opp. New Matemity Hospital NELL’S FLOWER SHOP Wedding Bouquets, Cut Flowert Funeral Designs, Corsages Bedding Plants Mrs. Albert J. Johnson Res. Phone 74-6753
GRAHAM BAIN & CO. PUBLIC ACCOUNTANTS and AUDITORS 874 ELLICE AVE. Bus. Ph. 744558 Res. Ph. 3-7390 l ^ 'l MANITOBA AUTO SPRING WORKS CAR and TRUCK SPRINGS MANUFACTURED and REPAIRED Shock Absorbers and Coil Springs 175 FORT STREET Winnipeg - PHONE 93-7487 - ’■ —
J. WILFRID SWANSON & CO. Insurance in all its branches. Real Estate — Mortgages — Rentals 210 POWER BUILDING Telephone 937 181 Res. 403 480 LET US SERVE YOU Hafið HÖFN í Huga
ICELANDIC OLD FOLKS HOME SOCIETY — 3498 Osler Street — Vancouver 9, B. C. \
GILBART FUNERAL HOME - SELKIRK, MANITOBA - J. Roy Gilbart, Licensed Embalmer PHONE 3271 - Selkirk \ d GUARANTEED WATCH. & CLOC.K REPAIRS SARGENT JEWELLERS H. NEUFELD, Prop. Watches, Diamonds, Rings, Clodts, Silverware, China 884 Sargent Ave. Phone 3-3170
1 JACK POWELL, B.A. LL.B. BARRISTER, SOUCITOR, NOTARY PUBUC Off. Ph. 927751 - Res Ph. 56-1015 206 Confederation Building, Winmpeg, Múa. HERE _N O W I ToastMaster MIGHTY FINE BREAD! At your grocers J. S. FORREST, J. WALTON Manager Sales Mgr. PHONE 3-7144 \