Heimskringla - 27.02.1957, Blaðsíða 2

Heimskringla - 27.02.1957, Blaðsíða 2
2. SIÐA HEIMSKRINGL* WINNIPEG, 27. FEBR. 1957 !iii- <rnu 856-855 Sargent Ave.. Winnipcc 3. Man. Canada Phone SPruce 4-6251 -mu. ■ ^urmt. ’-orp. VIKTMI f'he Presí- H>tk Utiinhsjti fru" rltstj'. ÍEIMS . ai'luiam -'53 Sargent A> « EINARSSOr ''argen HEIMSKRINGLA is published by THE VIKING PRESS LIMITED and printed by VIKING PRINTERS >56-855 Sargent Ave., Winnipeg 3, Man. Canada Phone SPruce 4-6251 Authorlaed oa Secortd Clctas Mcdl—Poat Offlce Dept.. Ottawa WINNIPEG, 27. FEBR. 1957 Á KAMBABRÚN RÆÐA vFORSETA, V. J. EY- LANDS VIÐ SETNINGU 38. ÁRSÞINGS ÞJÓÐRÆKNISFÉ- LAGSINS Winnipeg, 18. febrúar 1957 Góðir áheyrendur: Á sólbjörtum sumardegi getur naumast fegurra útsýni á landi feðra vorra, íslandi, en það er blasir við augum á Kambabrún í Árnessýslu. Þar eru menn bók- staflega talað, staddir á ofurháu fjalli, og sjá þaðan mikla dýrð. Þar breiða sig fram undan, í austri og suðri hinar blómlegustu sveitir íslands- Grænar grundir og hæðadrög liggja eins og landa bréf fyrir fótum vegfaranda, og það er sett rauðum og hvítum deplum hér og þar. Eru þetta reisulegir sveitabæir, oftast mjallhvít steinhús með rauðum þökum. Hvítá, sem er eitt mesta vatnsfall á fslandi, fellur í mjúk um bugðum um þessar litríku og fögru sveitir, og leggur leið sína til sjávar í breiðum ósi, sem einn- ig sést í fjarlægðinni eins og fagurt fjarðarmynni. En Hvítá er ekki öll þar sem hún er séð, og ekki ávalt eins hægfara eða lygn eins og hún er á þessum slóðum. Hún kemur undan risa liáum jöklum inn á hálendinu, og á leiðinni gleypir hún í sig ýmsar stórár, svo að þær hætta að vera til. f Hvítá er Gullfoss, eitthvert hið mesta náttúru-und- j ur Evrópu. Fyrir neðan Gullfoss fellur áin í djúpum stokkum með stríðu og þungu straumfalli og miklum hávaða. En að lokum fer fyrir Hvítá eins og systrum! hennar, sem hún sogar í sig hér; og hvar á leið sinni. Áður en j leiðin er öll breytir hún bæði stefnu og nafni, og fellur loks til sjávar undir öðru nafni en því, er hún bar lengst, og um allt ró- legri og spakari í förum. ÞaS eru | aðeins nokkrir síðustu áfangar, árinnar, sem sjást af Kamba- brún. Menn kunna nú að spyrja:| Hvaða erindi á þessi landafræðis-, lexía inn á þjóðræknisþing hérj vestur í Winnipeg? Eg svara því cg segi að hér sé ekki aðeins um lexíu að ræða úr landafræði ís- lands, heldur dæmisögu, semj hljóðar upp á félag vort- Egj hugsa mér, að vér, sem hér erumj staddir til að halda þjóðræknis- þing í 38. sinn hér vestan hafs, nemum staðar á eins konar Kambabrún í annarlegri merk- ingu. Þjóðræknisfélagið er eins konar Hvítá, sem hefir veitt frjó magni íslenzkra erfða yfir byggð ir og bú Vestur-íslendinga í hart nær 40 ár. Eins og Hvítá á sér uppsprettu undir 'háfjöllum ís- lands, svo getur og félag vortj rakið sögu sína—sýnt fram á aðrennslið—allt frá upphafi land námssögu vorrar. Eins og Hvítá er mjög mismunandi að útliti og straumþunga á ýmsum stöðum á hinum langa farvegi sínum, fell- ur stundum fram með fossadin og flúðahjali, en stundum mjög hægt og hávarðalaust, einkum þegar nær ósum dregur, svo er það og um félag vort. Ýmsir þættir sögu þess eru litríkir eins og Gullfoss í sólskini og stund- um eru iðuföll og mikill hávaði, en svo er aftur logn og ládeyða. Hinar mörgu ár, sem Hvitá dreg ur til sín á leiðinni til sjávar, eru lífgjafar hennar. Svo er það og um deildirnar mörgu, sem mynda þetta félag vort; þær eru félagið. Þjóðræknisfélag íslendinga í V.- heimi, er ekki í Winnipeg, það er ií öllum byggðum vorum þar sem deildir eru starfandi. Ef aðrennslið þrýtur að Hvítá, verð ur hún næsta Iítil. Ef að deildir Þjóðræknisfélagsins tærast upp, þá eru dagar félagsins taldir. Þess vegna er oss hollt að nema staðar á þessari Kambabrún og litast um. Áin er sem einn sam- felldur þráður, og ekki hægt að afmarka neinn sérstakan spöl. Þannig er saga þessa féiags eins og elfan, sem að ósi streymir. Það er ekki nýtt vatn í ánni á neinum tilteknum stað, og ekki heldur neitt nýtt efni í sögu þessa félags, heldur er það fram haldssaga. Er vér nú nemum staðar á Kambabrún þess 38. þjóðræknis þings, og horfum á þann spöl ár- innar, sem við augum blasir, 'hvað sjáum vér þá? Jú, vér sjáum ofur litla kvísl, sem rennur næsta hljóðlaust og feimnislega um Iremur hrjóstugt land. Stundum virðist engu líkara en að frum- skógarnir hafi gert samning með sér um að fela og gleypa þessa litlu þjóðræknissprænu fslend- inga í Ameríku. Menn spyrja: Er ekki tími til kominn að Þjóð ræknisfélagið fari að eins og Hvítá, og breyti um stefnu og nafn? Eða er það of seint? Erum vér þegar komnir út undir ósa, og um það bil að hvera í ómælis haf hinnar verðandi heimsmenn ingar vestan hafs? Það er sagt að sjór sé ósaltur langt á haf út, þar sem Hvítá fellur til ósa. Hvaða áhrif skyldi Þjóðræknis- félagið hafa haft þegar saga þess er öll, eða íslenzka þjóðarbrotið ’/estan hafs? Það er önnur saga, sem ekki verður rakin hér, enda yrði það ekki saga heldur spá- dómur enn sem komið er. Ýmsum %nun finnast að æsku- fjörið sé 'horfið úr þessu félagi voru. Þessi Hvítá ryðst ekki fram með dunum og dynkjum, eins og í gamla daga,,þegar ris- amir voru uppi. Hið umliðna ár hefir verið tímabil lítilla átaka og lítilla framkvæmda, sem hægt sé að hrósa sér af. En engu að síður hefir verið haldið í horf- inu, og er það í sjálfu sér góðra gjalda vert. Áður en lengra er haldið, er rétt og maklegt að geta þeirra meðlima félagsins, sem látizt hafa á árinu: Hinn háæruverð- ugi fyrrv. landstjóri Canada: Jarlinn af Athlone; heiðurs- verndari félagsins; Dr. Sigurður Júlíus Jóhannesson, heiðursfé- lagi; Jón M. Gíslason, Morden; Oddur Swanson; Bjarni Árna- son; Jóhann Pétursson; Bjarni 'ikagfjörð, allir frá Selkirk; ?riðrik P. Sigurðsson, Árborg; Ijörtur Bergsteinsson, Craik, ask.; séra Guttormur Guttorms on; Chris Halldórsson, þingm.; feigur Sigurðsson, Red Deer; Irs. Margarét J. Benedictson, vnacortes, Wash.; Mrs. J. E. ailbraith; Mrs. Anna Ólafson; >ddur Brandson, Ludvig Hólm; ónas Þorvarðsson, Winnipeg: 'riðfinnur Einarsson, Gimli. Stjórnarnefndin hefir haldið allmarga fundi á árinu; hafa þeir flestir verið haldnir á bæki- stöð nefndarinnar í skólahúsinu gamla á Home Street. Hefir nefndin fjallað um hin venju- legu starfsmál, og þau sérmál sem til hafa fallið, á milli þinga. Hin venjulegu starfsmál hafa, eins og að undanförnu, verið út- breiðslumálin, fræðslumálin og samvinnumálin við ísland. Hefir nefndin leitast við að efla þessar starfsgreinar eftir mætti, en orð- ið minna ágengt en æskilegt hefði verið, einkum að því er snertir útbreiðslumálin. En auk nefndarinnar hafa einstakir menn, sumir meðlimir stjórnar- nefndarinnar, og aðrir, látið nokkuð til sín taka á þessum sviðum, og orðið töluvert ágengt. Þess skal getið, að heimför vara- skrifara, Finnboga Guðmunds- sonar prófessors til fslands á ár- inu, var mikill skaði fyrir félag ið hér vestra. Finnbogi hafði dvalizt hér vestra rúmlega ’hálft fimmta ár og reynzt ötull starfs- maður félagsins. En með heim- för hans höfum vér eignast góð- an talsmann á ættjörðinni. Und anfarna mánuði hefir hann starf að að því að sýna kvikmynd þá hina miklu, sem hann og Kjartan Ó. Bjarnason, myndatökumaður frá Kaupmannahöfn, tóku víðs- vegar hér vestan hafs. Hefir Finn bogi ferðast með mynd þessa víða um landið, talað fyrir henni og skýrt hana fyrir áhorfendum. Hefir myndinni verið vel tekið um land allt og hún aukið mjög þekkingu heimaþjóðarinnar á oss hér vestra. Þá hefir Finnbogi gefið út bók, sem harin nefnir— P'oreldrar mínir. Er þar um að ræða safn nokkurra ritgjörða eftir Vestur-íslendinga um þetta hugþekka efni. Er bókin öll hin prýðilegasta að frágangi, og út- gefanda til hins mesta sóma. Á- varpserindi, sem forseti félags- flutti í Ríkisútvarp íslands í sumar sem leið, þakkaði hann Finnboga í nafni félagsins fyrir störf hans hér vestra, og óskaði honum allra heilla. Veit eg að þingheimur tekur undir þær árn aðaróskir heilum huga. Eins og áður hefir dr. Richard Beck, fyrrverandi forseti félags ins, stutt starf þess með ýmsum hætti, og haldið áfram þjóðrækn is- og landkynningarstarfsemi sinni á öðrum sviðum. Hann flutti kveðjur félagsins og for- seta þess á lýðveldishátíðinni á Mountain, N. Dak., er hann stýrði. Ennfremur átti hann sam vinnu við stjórnarnefnd félags- ins um heimsóknir og ræðuhöld þeirra Tómasar Guðmundssonar skálds, séra Jóns Þorvarðssonar, og Steindór^ Steindórssonar yfir kennara, og ráðstafaði ferðum þeirra og ræðuhöldum í Norður Dakota í samráði við forráða- menn þjóíjræknisdeildarinnar ‘Bárunnar’, og aðra byggðarbúa. Hann hefir einnig á starfsárinu haldið fjölda af ræðum um nor- ræn og íslenzk efni, meðal annars flutti hann fyrirlestra um ís- lenzkar bókmenntir á ríkishá- skólanum í Kansas, Lawrence, Kansas, og á ríkisháskóiarium í Utah í Salt Lake City, erindi um norræna menningu í ársveizlu Félags norrænna manna í Kansas City, Missouri, og ávarp um varð veizlu íslenzkra erfða á samkomu íslendinga i Los Angeles. Núna um hátíðaleytið var útvarpað eft ir hann af segulbandi yfir ís- lenzka Ríkisútvarpið erindum um þá skáldin Þorstein Þ. Þor- steinsson, og dr. Sigurð Júlíus Jóhannesson. Má í því sambandi geta þess að hann flutti nýlega eitt þúsundustu ræðu sína eða erindi á samkomum í Bandaríkj unum, Canada og á Norðurlönd- um síðan hann kom til ríkishá- skólans í Norður Dakota, haust- ið 1929, og hefir allur þorri af þeim ræðum fjallað um íslenzk og norræn efni. Og fjölmargar eru þær ræðurnar, sem hann hef ir á því tímabili flutt á’ vegum ^Þjóðræknisfélagsins, beint og ó- beint. Hann hefir einnig, á um- ræddu ári ritað mikið um íslenzk efni beggja megin hafsins. í haust kom út í Reykjavík ljós- prentuð önnur útgáfa af þýðinga safninu “Icelandic Lyrics”, er harin safnaði til og út kom 1930, en sú bók, sem selst hefir í þús- undum eintaka og borið hróður islenzkra skálda víða um lönd, befir lengi verið uppséld. Af nýjum ritgerðum hans á ensku um íslenzk efni ná nefna allítar- í lega grein um Stephan G. Steph- ansson, er kom í sumar í tíma- ritinu “American Scandinavian Review í New York, og yfirlits- grein um ísland í alfræðiritinu The World Book Encyclopedia, cem notuð er í skólum um öll Bandaríkin og víðar um lönd. Fyrir nokkrum árum minntist forseti á það í ársskýrslu sinni f að þá væri verið að undirbúa linguophone plötur í íslenzku, sem á sínum tíma myndu reynast hið bezta hjálparmeðal við byrj- endanám í íslenzku. Nú eru þess ar plötur tilbúnar, og komnar í eigu félagsins fyrir milligöngu féhirðis, Grettis Leo Johannsons og Bjöms Björnssonar, sem lét gera plöturnar í Lundunum. Hef ii stjórnarnefndin gert nokkrar | tilraunir til að skipuleggja náms skeið í íslenzku fyrir börn hér í Winnipeg, en 'því miður hefir það ekki tekist enn sem komið er. Bera foreldrar við miklu ann- ríki barna og unglinga, bæði við skólanám, leiki og aukanáms- greinar svo sem hljómlist o.fl. Vafalaust er mikið til í þessu. En það kemur að litlu gagni þótt íélagið eða deildir þess útvegi verðmæt hjálpargögn til ís- íenzkunáms hvort heldur það eru bækur, eða hljómplötur, ef ekki er hægt að vekja foreldra og börn til meðvitundar og gagn og gildi þessa náms, og fá fólk til að leggja nokkuð á sig í þessu efni. Vonandi er aðstaðan í þess- um efnum betri annarstaðar eh í Winnipeg, og er þá vel íarið. Hinar ýmsu starfsgreinar fé- lagsins eru fléttaðar saman þann ig að það er oft erfitt að skil- greina þær hverja fyrir sig. Gagnkvæmar ferðir á milli ís- Iands og Vesturheims færast nú mjög í vöxt, en slík ferðalög hafa bæði bein og óbein áhrif bæði á útbreiðslumálin og fiæðslumálin. Á árinu hafa verið all örar samgöngur á milli ætt- landsins og vor, vestmanna. Er þar fyrst að minnast Kristjáns Albertssonar, rithöfundar, sem heimsókti oss fyrir ári síðan á þjóðræknisþingi. Mun þess lengi minnst hversu hann hreif hugi þeirra er á hann hlýddu bæði með málsnild sinni og aðlaðandi iramkomu á annan hátt. í um- sögninni um starfsemi dr. Beck's var vikið að heimsókn þeirra T'ómasar Guðmundssonar skálds, í séra Jóns Þorvarðssonar prests| frá Reykjavík, og Steindórs Steindórssonar, yfirkennara við; Menntaskólann á Akureyri. —, Heimsókn þeirra Tómasar skálds^ og séra Jóns var með slíkri; skyndingu að menn vissu naum- j ast af því fyrr en þeir voru farn j ir aftur, enda dvöldu þeir hér í. bænum aðeins nokkra klukku- j tíma. Samt mun kvöldstundin I sem við áttum með þeim í Sam- bandskirkjunni mörgum minnis stæð, vegna hins hugljúfa og óramatíska kvæðalesturs skálds- ins, og hins fróðlega og snjalla erindis sem séra Jón flutti. Rit ari félagsins, frú Ingibjörg Jóns son þakkaði gestunum komuna með faguryrtri ræðu. Steindór yfirkennari dvaldi hér í borg- inni í nokkra daga, hélt -hér sam- komu, öllum til ánægju og fróð- leiks er hana sóttu. Forseti fór með honum til Gimli; heimsótti hann elliheimilð Betel og flutti þar erindi. Einnig flutti hann erindi og sýndi myndir fyrir al- menning í bænum þá um kvöld- iS; aðsókn var fremur dauf, en hinn,bezti rómur gerður að máli kennarans. Er heim kom, sendi Steindór forseta félagsins bréf með ávarpi til þjóðræknisfélags- ins. Er ávarpið þess eðlis að eg tel rétt að fara með það nú í byrjun þings, en það hljóðar svo: “Kæru landar—Skyndiheimsókn mín til yðar s.l. haust færði mér heim sanninn um það, að það er raunar aðeins til að vekja upp löngun til nánari kynna að dvelj ast svo skamma hríð á ykkar veg- um. En viðtökur þær, sem eg naut, leggja mér þá ljýfu skyldu á herðar að senda ykkur nú stutta kveðju á ársþing ykkar, kveðju, sem þó einungis er til þess að þakka fyrir síðast. ‘Þótt þú langförull legðir sérhvert land undir fót, ber samt hugur og hjarta sjálfs þíns heimalands mót.’ sagði Klettafjallaskáldið fyrr- um. Þessi ummæli skáldsins kíæddust holdi og blóði í reynzlu minni á ferðalagi mínu um Am- eríku, s.l. haust. Á allri minni leið, austan frá Atlanzhafi og vestur til Kyrrahafs, norðan frá Gimli við Winnipeg vatn og suð ur til Spanish Fork í Utah var reynzlan hin sama. Allstaðar báru fslendingar mót heimalands :ns gamla, og það jafnvel þótt tapað hefðu þeir tungutaki for- feðra sinna. Hlýjan á hai^dtak- inu og gestrisnin íslenzka var allstaðar söm við sig, og þar sem eg skyggndist um starfssvið þeirra var það ljóst að þar hafði islenzk eljusemi verið að verki. Mér virtist sem margt hið bezta sem til er í líslnzkri þjóðarsál befði skírst og þroskast enn bet- ur meðal hinna íslenzku land- nema og niðja þeirra í Vestur- heimi, en heima á ættlandinu. Eg lét þess getið í erindi sem eg flutti í Winnipeg, að eg hefði fundið til þess með nokkru stolti, að þið hefðuð gert ísland stærra, með landnámi og störfum í Vesturheimi. Þegar eg nú horfi aftur yfir farinn veg og reynzlu mína og kynni af Vestur-íslend- ingum verður þessi tilfinning enn ljósari en áður. Hver og einn sem nokkur kynni hefir af þess um hlutum, hlýtur að fyllast að- dáun á því, hversu hinn fámenni hópur íslendinga í Vesturheimi hefir markað skýr spor og látið sjást áþreyfanlegar minjar starfs síns í hinni víðlendu og fólks- mörgu heimsálfu. Forfeður vorir á Norðurlönd- um fóru ií víkingu og hjuggu strandhögg þar sem þeir komu að landi og þóttu hvarvetna vá- gestir miklir meðal strand- byggja um vestanverða Evropu. Sagnir og kvæði hafa geymst um herferðir þeirra, en varanleg rnerki hafa þeir lítt eftir sig lát- ið, sem vænta mátti, svo sem að- ierð þeirra var. Þegar íslend- ingar fóru til Vesturheims var ferð þeirra harðla ólík siglingu víkinganna forfeðra þeirra. Þeir fóru með friði. Þeir herjuðu ekki landsólkið, en með þrot- lausri elju og erfiði gerðu þeir sér jörðina undirgefna, og með vopnum gáfna sinna og mann- kosta ruddu þeir sér til rúms með al framandi þjóða, og reyndust þar svo liðtækir, að ekki varð ja því komist að veita Þeim atiiyS 1 og og kveðja þá til hinna vanda sömustu starfa. Og sæti þeirra bafa hvarvetna reynzt vél skip- uð. Vesturheimi ‘hefir tekið sér það hlutverk á hendur að vernda og viðhalda þeim arfi, sem landnem- arnir íslenzku fluttu vestur um haf, og niðjar þeirra hafa síðan ávaxtað drengilega og dyggi- lega. Með því hefir félagið tekist á hendur ábyrgð og mikinn vanda, en starf þess um áratugi hefir sýnt, að það er vandanum vaxið. Tímar breytast, nýir starfs- hættir og ný viðhorf koma með nýjum tímum, ein kynslóð tekur við af annari. Því lögmáli hlýtur félagsskapur yðar að lúta sem aðrir. En allt um það heizt mark miðið óbreytt: verndun hins ís- ienzk arfs með þeim hætti, sem | hezt hentar hverjumtima. Þetta 1 starf er síður en svo eingöngu unnið fyrir Vestur ísiendinga ema, það er engu síður unnið fyrir okkur sem búum heima á gamla Fróni, og úr undarlegum steini má sá íslendingur vera gerður sem ekki fagnar því starfi og vill rétta því hjálpandi hönd. Að endingu flyt eg þióðrækn- isfélaginu og þingi þess alúðar- kveðju, og óska því og öllum ís- lendingum vestan hafs farsældar cg heilla í störfum sínum. Steindór Steindórsson frá Hlöðum”. Tel eg sjálfsagtað þingið vilji votta Steindóri kennara þakkir og senda honum kveðjur sinar í tilefni af þessu athyglisverða og \ ingjarnlega bréfi. En vér höfum ekki aðeins íagnað gestum rá íslandi, held- ur hafa og ýmsir á meðal vor farið til íslands á árinu. Þetta fólk hefir dvalið þar lengri eða skemmri tíma, og komið svo atur hingað vestur flytjandi með sér fróðleik og velvildarhug til ætt- lands og erfða. Björn Sigur- björnsson og Helga kona hans fóru í skyndiheimsókn til ís- lands í fyrrasumar, og sömuleið- is þær Ingibjörg Bjarnason, og Helen Jósephson. Hefir þetta fólk sýnt fagrar litmyndir frá ferðum sínum 0g flutt erindi víðs vegar fólki til fróðleiks og á- nægju. Forseti var einnig staddur á íslandi um fimm vikna skeið i fyrrasumar. Enda þótt að sú ferð væri farin einkum í kirkju- legum erindum, flutti hann víða ávörp og kveðjur frá Þjóðrækn isfélaginu. Þjóðræknisfélag ís- iendinga í Reykjavík hélt honum og konu hans kveðjnsamsæti skömmu áður en þau lögðu af stað heimleiðis, og samdægurs flutti hann erindi í Ríkisútvarp íslands, þar sem hann mælt m. annars á þessa leið: “Allmikill fjöldi Vestur-ís- lendinga heimsækja Island á hverju ári, mörgum þar vestra er ísland enn landið helga, sem stendur í ljómandi minningu- æskuáranna. Þeir sem koma bingað að vestan finna ekki leng- ur það land eða þá þjóð, sem feð urnir töluðu um á frumbýlingsár unum vestra. Þeir námu land- spíldu í Canada, og nefndu Nýja Island. Nú skilst mönnum sem koma þaðan hingað, að Nýja ís- iand er ekki í Canada, það er hér. “Sjá, allt er orðið nýtt”, má vissulega segja um þetta land. framfarir þess á sjó og landi og í lofti. Þessu fagna fslendingar vestan hafs. Við, sem hér höfum dvalið í sumar þökkum fyrir all- an kærleika og gestrisni sem við höfum notið hér; við biðjum góð an Guð að blessa ísland og ís- iendinga; við biðjum þess að and legur þroski þjóðarinnar megi ávalt haldast í hendur við hina tæknilegu þróun, og að hér megi ávalt verða gróandi þjóðlíf með þverrandi tár, sem þroskast á Guðsríkisbraut.” í>egar vér nú nemum staðar á Kambabrún þessa þjóðræknis- Þings, er það margt sem fyrir sugun ber i íslenzku félagslíf- inu hér vestan hafs. Margt bend- ir til þess að einstaklings fram- tak landans njóti sín nú ekki síð ur en áður. Ýmsir af þjóðflokki vorum hafa rutt sér braut til al- mennrar viðurkenningar og vel gengni. En skrá yfir allt slíkt til- heyrir fremur annálaritum, en skýrslu forseta þjóðræknisfélags ins, og skal því ekki farið frekar útí það mál hér. En sem kunnugt er, er nú annáll ársins prentaður í tímariti félagsins, og annast dr. Beck það starf. Það hefir verið sagt um okkur Vestur íslendinga að við skemmt um okkur vel á mannfundum okkar og félagsþingum, en að við tökum mál okkar ekki mjög föst um tökum, og leggjum ekki mik ið í sölurnar yfirleitt þeim til framdráttar. Nú er vissulega ekkert athugavert við það að menn skemmti sér vel, og eg

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.