Íslenzki good-templar - 15.04.1893, Qupperneq 5

Íslenzki good-templar - 15.04.1893, Qupperneq 5
ísl, Good-Templar. «1 »Jeg vildi óska, að jeg gæti játað því, Jón minn! en jeg er hræddnr um, að þú hafir með þessu glappaskoti unnið tjón, ekki að eins mjer, heldur jafnframt konu þinni, börnum þínum, sjálfum þjer, og, jeg gæti bætt við, töður- landi þínu«. »Jeg leiði minn hest alveg frá þvi, að skilja, hvað þú fer núna«, sagði Jón og var alveg forviða. »Jæja, jeg skal þá segja þjer hreint og beint. Þeg- ar jeg gekk heim á laugardagskvöldið, þá sá jeg marga verkamenn fara með vikulaunin sín og leggja þau í spari- sjóðinn. Mjer þótti vænt um, að nokkrir af ykkur verka- mönnum mínum voru þar með. En stundu síðar sá jeg þig og nokkra fleiri fara með vikulaunin ykkar og leggja þau inn í allt annan sparisjóð. Og það var síður en svo, að það væri góður sparisjóður«. »Þú átt víst við veitingahúsið, sem nefnir sig Komdu- hjerna-inn; jeg gekk inrw í það með kunningja minum á laugardagskvöldið«. »Já, það er einmitt Komdu-hjerna-inn, sem jeg á við. Og heyrðu nú, Jón! Þú ert skynsamur maður, það sje jeg á því, hversu vel sjerhvert verk fer þjer úr hendi. — Heyrðu mig! Hefirðu nokkur tíma í alvöru hugsað út í það, hvað það sje, að leggja fje inn í þann sparisjóð?« »Nei, jeg hefi ekki hugsað út í það, og jeg get held- ur ekki skilið, að um það þurfi nokkuð sjerstaklega að hugsa, nema ef vera skyldi að því leyti, að það er hart að heyra sllkt, að menn skuli ekki eiga frjálst að skrafa við kunningja sína á tómstundum sinum þar, sem vel fer um mann, og að maður skuli fá þungar átölur fyrir það, rjett eins og maður hefði stolið eða myrt mann«. »Já, í veitingahúsunum fer fram margs konar þjófn- aður og morð, er enginn kemst undir manna hendur fyr- ir. En sá sem sagði: »Hver sem hatar bróður sinn, er morðingi«, hann ritar það allt upp. Hann sjer konuna og börnin, sem eru nakin og hungruð, af því að heimilisfað- irinn fleygir fje sínu í áfengisfenið, i stað þess að leggja

x

Íslenzki good-templar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenzki good-templar
https://timarit.is/publication/130

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.