Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 30.08.1890, Blaðsíða 1
Verð árg. (minnst 30
arka) 3 kr.; í Amer.
1 doll. Borgist fyrir
miðjan júnimánuð.
Uppsögn skrifleg, ð-
gild nema komin sé
til íitgefanda fy rir 1.
dag júlímánaðar.
Nr. 28.
ísafirði. laugardaginn 80. ágúst.
1890.
FRÉTTIR FRA ÚTLÖNDUM.
í Danmörku er pólitiska ástandið
ekki glæsilegra en vant er, heldur allt á
öllu meiri ringulreið en áður, þó að ekki
sýndist ábætandi; miklum óhug hefir það
slegið á vinstri menn, að tveir helztu þjóð-
pingismenn úr þeirra liði, Holstein greifi
frá Hleiðru og Pingel kennari, hafa ný-
lega lagt niður þingmennsku, og einn af
fremri vinstri mönnum í landsþinginu ; þyk-
jr þeim sýnt, að með stjórnina, eins og hún
inl er, verði enga leið komist, og að öll
barátta vinstri nianna sé þvi árangmrslaus;
hvernig flokkaskipun verður, þegar þingið
kemur saraan í október, er ekki gott að
segja, en likast þykir, að saman muni draga
með Bergs- og Hörups-flokkum, en að hin-
ir „dönsku vinstri-menn“, er hafa „Morg-
unblaðið“ að málgagni, muni aptur á móti
gera samband við hægri menn. — Múrar-
ar í Kaupmannahofn, er um tveggja mán-
aða tíma gjörðu verkfall, til þess að fá
fram komið ýmsum ívilnunum í launa- og
vinnukjörum, tóku aptur til vinnu seint i
júlímánuði, án þess að hafa fengið nokkru
vcrulegu framgengt; en stórtjón hefir verk-
fall þetta bakað fjölda manna, eigi að oins
mhrurunum sjálfum, heldur og ýmsum öðr-
um, iðnaðarmönnum og kaupmönnum, þar
sem ein atvinnugrcinin er svo nátengd
annari.
Vilhjálmur ý z k a 1 a n d s k e i s-
ari er á sífelldu ferðalagi; hann hefir í
sumar ferðast um Noreg, og þaðan ætlar
hann til Englands; mælt er og, að hann
muni heimsækja Rússakeisara, áður sum-
arið sé á enda, svo að það er fyllilega
réttnefni, er hann hefir nefndur verið ferða-
keisarinn.
í O p o r t o í Portugal hefir læknir ný-
lega orðið sannur að sök, að hafa deytt
sex menn á eitri, er hann gaf þeim inn
ýmist í mat eða læknislyfjum. Læknir
þessi hafði fyrir nokkru gengið að eiga
stúlku af ríkum ættum, og voru það vanda-
menn hcnnar, sem hann var að koma fyrir
á þenna hátt, til þess að ná í arfinn.
I B u 1 g a r f u varð uppvíst f vor sam-
særi gegn Ferdinand fursta, og var frum-
kvöðull samsærisins, Panitta herforingi,
skotinn 28. júni, og er til þess tekið, hve
vel hann hafi orðið við dauða sinum; en
ámæli mikið hefir Ferdinand fursti fengið
\dða í Evrópu fyrir það, er hann eigi náð-
aði Panitta, og hefir blaðamönnunum orð-
ið skrafdrjúgt um það, að furstinn láti
Stambuloff, æðsta ráðgjafann, hafa sig i
vasanum; en Stambuloff var svarinn óvinur
Panitta, og vildi hann fyrir hvern mun
feigan.
Belgar halda i sumar hátíð í minningu
þess, að 60 ár eru liðin, síðan Belgia los-
aðist úr sambandinu við Holland og varð
sjálfstætt riki.
Með Bandaríkjamönnum og
Euglendingum er fáþykkja mikil um
þossar mundir út af selaveiðum í Behrings-
sundi, og hafa hvorutveggja sent þangað
hcrskipaflota. og jafnvol selveiðamonnirnir
herbúa skip sin, til þess að vera við engu
óbunir.
Makaskipti Englendinga og J>jóð-
verja á eyjunni Helgolandi, er Englending-
ar láta fyrir víðáttumikil landflæmi í Af-
ríku, eiga að fullgjörast í næstkomandi októ-
bermánuði.
Stórkostlegur eldsvoði varð í
Constantinopel um miðjan júlímánuð, og
er skaðinn metinn 18 miljónir króna.
F R A
íSLEJíDINGUM YESTAN HAFS.
—o ^:o:^ o
Hið evang. lúth. kirkjufélag
íslendinga í Yesturheimi hélt kirkju-
þing í Nýja-íslandi 27.júní til 3. júlíþ.á.,
og mættu þar 4 af prestum kirkjufélagsins
og 30 kjörnir fulltrúar frá samtals 18 söfn-
uðum; en 4 söfnuðir höfðu ýmsra kring-
umstæða vegna eigi getað komið því við
að senda fulltrúa á kirkjuþingið.
Forseti kirkjufélagsins, séra Jón Bjarna-
son, skýrði frá störfum félagsins á hinu
liðna félagsári; einn söfnuður hafði gengið
i kirkjufélagið og einn prestur (Hafsteinn
Pétursson) hafði gengið í þjónustu þess,
og starfi hans þegar borið sýnilegan óg
mikinnávöxt; á mótspyrnu og baráttu gegn
starfa kirkjufélagsins kvað hann fyrst liafa
brytt fyrir alvöru á liðna árinu; að vísu
væri nú trúarboði presbyteriana svo kom-
ið, að ekkert verulegt væri að óttast það-
an; en því meiri hættaværi kirkjufélaginu
búin af trúboði unitara, er Björn Péturs-
son gengist fyrir.
Af gjörðum kirkjuþingsins, er yfir höf-
uð virðist hafa verið öllu daufara og fjör-
minna, en kirkjúþingið í fyrra, er þetta hið
helzta:
Samþykkt var að leitast við að fá tvo
nýja presta, og skýrði forseti frá þvi, að
séra Finnbogi Rútur Magnússon á Húsa-
vík (sem nú er dáinn) og cand. Eyjólfur
Kolb. Eyjólfsson væru fúsir á að taka á
móti köllun.
Hreift var á kirkjuþinginu, að æskilegt
væri, að kirkjufélagið sæi um útgáfu barna-
blaðs, en ýegna féleysis afráðið að ráðast
ekki i það fyrirtæki að svo stöddu, sér-
staklega þar sem áhugi kirkjufélagsmanna
á að styrkja blað kirkjufélagsins „Samein-
inguna" væri ekki meiri en svo, að tvísýni
væri á framhaldi þess blaðs vegna megnra
vanski-la með borgun af kaupanda hálfu.
Samþykkt var að reyna að byrja á næst-
komandi hausti að halda í Winnipeg und-
irbúningsskóla „lutheran academy“,' og er
svo til ætlast, að þeir, sem á skóla þann
ganga, verði eptir 3 ár færir um að ganga
á æðri menntunarskóla, „college".
Um afskipti presta af bindindismálum
urðu töluverðar umræður, en ekki vildi
kirkjufélagið oinskorða prestana til að vera