Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 29.04.1893, Qupperneq 2
64
ÞjÓÐVILJINN ungj.
II, 14.
ý .1. Clir. Hostrr p.
093
Minningarljóð þau, er hér fara á ept-
ir, hefir séra Matthías Jochumsson þýtt
úr dónsku; voru þau sungin af stúdent-
um við jarðarför Hostrups 28. nóv. f. á.
Þú fæddist með fjörið og þorið,
þá frumvorið skein yfir grund
og sóngst oss um vonina’ og vorið,
unz veturinn nísti þinn lund.
Og harpan þín hljómaði lengi
sinn hugljúfa sakleysis óð;
vér stúdentar vöktum þá strengi,
en styrkinn gaf land vort og þjóð.
Þó hrynji nú tárin í hljóði,
og hylji þig grátblóma safn
í sumarsins siunga ljóði
skal Sælundur geyma þitt nafn.
IIinni va.n(arœSalegw
varnarlilausu L. Bjarnasonar í
21. nr. „ísafoldar11 þ. á. þarf eg eigi miklu að
svara, með þvi að L. B. liefir enda eigi leitazt
við að hrekja með rökum eitt einasta orð
af því, er sagt var um hann í 12. nr. „Þjóðv.
unga“ þ. á.
En fyrir mann, sem fengið hefir þann vitn-
isburð um sannsögli og sannleiksást frá fleiri
hundruðum merkra manna, að „hann sé svo ó-
áreiðanlegur í orðum, að það sé orðið all-títt,
að menn vilji ekki við liann tala, nema undir
votta“ o. s. frv., þarf sannarlega eitthvað
annað, en svigurmælin ein, til að hnekkja grein-
unum í 12. nr. „Þjóðv. unga“, enda vita og
menn hér vestra, að þar er rétt frá skýrt.
Á privatbrófið frá Sigurði á Látrum hefði
L. B. eigi átt að minnast, þvi að það er kunn-
ugt, hvernig hann liræddi það út úr syni Sig-
urðar með hótunum um „tugthús“ og fl. góð-
gæti, sem hann hefir á boðstólum, þegar fáfróð-
ur almúgi á hlut að.
Fyrirheitum L. B. um lögsókn, út af því er
eg hefi minnzt á málsrannsókn hans, og aðrar
aðfarir, get eg eigi annað en fagnað, með því
að eg ætla, að mér gefist þá færi á, að leiða
margt það í ljós um háttalag hans hér vestra,
sem enn er að eins óvottfast, ef stjórn eða þing
eigi finna ástæðu til að leiða það 1 Ijós á ann-
an hátt.
ísafirði, 26. apríl ’93.
Skúli Thoroddsen.
—-3>-*3-£»-eí-
PRÓFASTUR SKIPAÐUR. ÍMýra-
prófastsdæmi er séra Einar Friðgeirsson
á Borg skipaður prófastur.
Aflabrögd. Yið sunnanverðan Faxa-
flóa hafa, síðan á páskum, verið prýðis-
góð aflabrógð, svo að elztu menn muna
varla meiri afla, og fiskurinn alveg uppi
á grunni.
í Vestmannaeyjum, Þorlákshöfn, og
öðrum verstöðum í Árnessýslu, hefir einn-
ig verið mikið góður afli.
Prestskosning. I Háls-prestakalli í
Fnjóskadal hefir kand. theol. Einar Páls-
son verið kjörinn prestur.
Harðindatíð hefir í vetur verið í Múla-
sýslum, svo að í öndverðum marzmán.
var víða farið að verða hey-knappt þar
um slóðir, einkum á Úthéraðí og í Vopna-
firði.
„Dagsbrúnu heitir mánaðarrit, kirkju-
legs efnis, sem séra Magnús J. Skapta-
son, prestur Ný-íslendinga, byrjaði að gefa
út í síðastl. janúannán.
Mánaðarrit þetta, sem er í nokkru
stærra formi en „Sameiningin“, á að
skýra trúarskoðanir séra Magnúsar og
safnaðarinanna lians; en, sem kunnugt er,
greinir þá einkum á við ev. luth. kirkj-
una í því, að þeir trúa, hvorki .„fordæm-
ingarkenningunni“, né heldur bókstafleg-
um innblæstri ritningarinnar; og með því
að ýmsir hér á landi munu einnig vera
veiktrúaðir í þessum atriðum, þykir ekki
ólíklegt, að „Dagsbrún“ muni einnig hér
á landi eignast ýmsa vini.
Trjáreki. í vetur hefir rekið all-
mikið af trjávið í Vestmannaeyjum,
Skaptafells- og Rangárvallasýslum; þyk-
ir það ekki ólíkleg tilgáta, að stór viðar-
farmur hafi farizt á leið yfir Atlantshafið,
með því að það, sem rekið hefir, er mest-
inegnis höggvinn viður.
Gufubátsferðir um Faxaflóa. Frá
Khófn er skrifað, að Fischer kaupmaður
Iiafi afráðið að kaupa gufubát, er hann
ætlar að nota til fólks- og vöru-flutninga
um Faxaflóa, og kvað bátur þessi eiga
að koma út á öndverðu þessu sumri.
f 9. marz þ. á. andaðist að heimili
sínu, Breiðabólstað í Vesturhópi, séra
GunnHangnr Halldórsson, sonur merkis-
prestsins Halldórs heitins Jónssonar á
Hofi; séra Gunnlaugur varð tæplega hálf-
fimmtugur, fæddur 3. nóv. 1848; stúdent
varð hann 1870, og tók embættispróf á
prestaskólanum tveim árum síðar; vígð-
ist hann fyrst sem aðstoðarprestur til föð-
ur síns, en fékk síðan veitingu fyrir
Skeggjastóðum 1874, og fyrir Breiðaból-
stað í Vesturhópi 1883.
Sorglegt slys skeði á Kirkjubóli í
Tungusveit 27. marzinán.; 2 drengir á 6.
og 6. ári, synir Gríms bónda' Benedikts-
sonar, drukknuðu þar í gili á miðju tún-
inu; leysing var um daginn, og höfðu
drengirnir ætlað ytir gilið á snjóbrú, en
duttu ofan um hana, og fundust fyrst
daginn eptir.
- - ■ -íx 'Ij- --
NORÐUR-HEIMSSKAUTAFERD. Ameri-
kanskur maður, Pearý að nal’ni, ætlur í vor að
leggja af stað frá Ameriku í norður-heimsskauta-
ferð; ætlar hann að hoíja ferð sína 1. júní, og
halda sjéleiðis til Grænlands, en þaðan hyggst
hann munu geta komizt á sleðum til norður-
heimsskautsins.
Býst hann við, að ferðin muni alls standa
yfir í 3 ár.
FERDINAND DE LESSEPS, sem nafnfræg-
ur er um lieim allan, síðan liann stóð fyrir
skurðgreptinnm gegnum Suez-eyðið, Iiefir ný-
skeð verið dæmdur í 5 ára fangelsisvist, út af
forstöðu sinni fyrir Panama-félaginu.
LeSseps er maður fjörgamall, hefir sjö yfir
áttrætt, og kunna vinir hans dómsúrsiitunum
all-ilia, enda er á orði, að á þingi Frakka verði
borin upp tillaga þess efnis, að gefa honum
upp hegninguna.
16. nóv. f. á. lagði skipið „Juana“ af stað
frá bænuin Portorico í Vestindíum, og hroppti
óveður mikii, svo að það laskaðist að mun, og
komst loks nauðuglega til haf’nar á Providence
eyjunni, eptir 4 vikna útivist; voru skipverjar
þá fyrir löngu orðnir vistaiausir, og af 26 far-
þegjum voru að eins 16 á lífi; liinir 10 höfðu
látizt úr hungri, og höfðu þeir, sem eptir lifðu,
lagt sér lík félaga sinna til munns.
——skí-sisks- -
Fundargjöi’ð.
(Niðurl.). III. UM ÁBYRGÐAR-
SJÓÐI FYRIR KÝR. Sigurður Sig-
urðsson hreifði því, hversu ábyrgðarsjóð-
ir fyrir kýr væru nauðsj'nlegir, þar sem
þær væru helzti bústofn margra efnalít-
illa bænda, og þeim kæmi því mjög illa
þau óhöpp, að missa þær bótalaust. Hann
gjórði þá tillógu, að stofnaður væri
ábyrgðarsjóður fyrir vesturhluta ísafjarð-
arsýslu.
Friðrik Bjamason áleit betra, að sjóð-
urinn tæki yfir stærra svæði, að mipnsta
kosti alla Isafjarðarsýslu. Hann gjörði
þá tillögu, að inálið væri lagt fyrir sýslu-
fundinn.
Um þetta mál urðu nokkrar umræður,
og vom flestir því meðmæltir. Fundur-
inn kaus þá 3 menn í nefnd, til að koma
því inn á sýslufundinn. — Kosningu
hlutu:
Matthías Ólafsson . . . með 10 atkv.
Sigurður Sigurðsson . . —• 9 —
Séra Þórður Ólafsson . —- 8 —