Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 13.07.1893, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 13.07.1893, Blaðsíða 3
H, 19. ÞJÓÐVILJINN UNGI. 75 Holdsveikra spítali. Schierbeck land- læknir liefir sent alþingi ýtarlega áskorun, þar sem liann fer fram á, að þingið veiti allt að 50 þús. krónur, til þess að koma á fót spítala kanda koldsveikum á íslandi, þar sem allt að 40 sjúklingar gætu verið. Jafnframt fer kann og fram á, að það verði gjört að lagaskyldu, að senda alla koldsveika meun á íslandi á þenna væntanlega koldsveikra spítala, ef læknir álíti sjúkdóminum svo varið, að þess sé þörf, til þess að fyrirbyggja útbreiðslu þessarar næmu veiki. Framfaramennirnir í Skeggjastaða- kreppi bafa sent þingmönnum sínum svo látandi áskorun, er lögð hefir verið fram á lestrarsal alþingis: „Þar eð vér undirskrifaðir erum útilokaðir frá að sækja þingmálafundinn á Vopnafirði 15. þ. m. af þeirri sök, að sýslumaður vor hefur sama daginn ákveðið hér þingdag, leyfum vér oss að senda vorum heiðruðu alþingismönnum áskorun vora um, að þeir 1. lækki tolla á þjóðinni a. með þvi að strjála (!) alþingi þannig, að það ekki verði haldið optar, en 5. hvert ár; b. með því að afnema öll eptirlaun; c. með því að takmarka sem mest og helzt alveg afnema öll verðlaun; d. með því að afnema öll tillög til allra verklegra skóla, þvi obs finnst þeir ættu að geta horið sig sjálfir, eptir að einu sinni er húið að setja þá á stofn; e. með því að takmarka þingfararkaupið; 2. stuðli eptir megni að greiðari samgöngum, einkum á sjó, kringum landið og við útlönd. — Styrk úr landssjóði til uppsiglingar í Lag- aríijótsós erum vér alveg mótfallnir; 3. hverfi alveg frá vistarbandsleysingunni. Skeggastaðahreppi 11. júní 1893. Stefán Pétursson. Jóhann Árnason. (hreppstjóri). Árni Árnason. Ágúst Stefánsson. Eunólfur Hannesson. Ólafur Gunnlaugsson. Til alþingismannanna i Norðurmúlasýslu11. Áskorun þessa, er felur í sér framtíðar- hugsjóuir „framfaramaunanua“ í Skeggja- staða-kreppi, kefir þótt rétt að skrásetja á prenti, alveg orðrétta, ölduum og ó- bornum til gagns og gamans, fyrirmynd- ar og fróðleiks En vera má, að seinni tíma mönnum þyki all-einkennileg sum ályktunar atriðin i þessari „frelsis-frumskrá“, er skapazt hefir þarna norður í Skeggjastaða-kreppi undir lok nítjándu aldarinnar; nútíðarmennina hneyxla þau auðvitað minna, suma hverja. Kirkjuleg málefni eru svo mörg fyr- ir þessu þingi, að mörgum dettur ósjálf- rátt i hug sálmurinn „Vér komum sa,man á kirkjuþing“, þegar þeir koma inn í neðri deildar þingsalinn, og heyra biblíu- lesturinn m. m., sem þar hefir fram farið, það sem af er þingi. Hér á landi er auðsjáanlega komið all- mikið los á kirkju og kirkjunnar málefni, og flestir kannast í rauninni við, að það, sem gjöra þyrfti, sé að gjöra fullan skiln- að ríkis og kirkju; en enginn vogar að stiga það stóra spor. Síra Þör. Böðvarsson hefir borið fram tvo langa laga-bálka; anuað frv. hljóðar um telcjur kirkna, og fer í þá átt, að af- nema kirkjugjöld þau, er uú eru, enleggja í þess stað einnar krönu nefskatt á hvern fermdan mann, ög myndi það auka tekj- ur kirknanna að mun, en íþyngja lands- mönnum að því skapi. Hitt frv. er um skipulag og stjörn andlegra mála hinnar ísl. þjóðkirkju, og getur naumast talizt heilt eða hálft; biskup og einskonar kirkju- ráð á að stjórna andlegum kirkjumálum. Frv. þessi voru bæði falin sömu nefnd (síra Pór., H. Kr. Fr., Jón Jakobsson, Bj. Bjarnarson og síra Sig. Gunnarsson) til íhugunar, og fullkomin tvísýni talin á því, að nefnd þessi, eins og hún er sam- ansett, komi sér saman um nokkurn skap- aðan hlut; en hitt líkara, að málið fari í mola, eða verði fellt á þinginu. Frv. um borgarálegt hjónaband hafa þeir Jón Jönsson, þm. Eyf., og Sk. Thor- oddsen komið fram með, og stóðu um það allharðar umræður 11. júlí; síra Þórarinn og síra Einar mæltu mjög gegn frv., en aðrir prestar neðri deildar voru því hlynnt- ir; frv. veitir þeim, sem þjóðkirkjutrú hafa, rétt til að velja um, hvort þeir vilja láta sýslumann eða prestinn „pússa“ sig. Afnám hdgidaqa liggur þm. Borgfirð- inga mjög ríkt á hjarta; hann vill hvorki vita af skírdegi, uppstigningardegi, kongs- bænadegi, né öðrum í páskum og hvíta- sunnu, sem helgum dögum; í frv. er góð réttarbót, en mjög hæpið, að það nái fram að ganga nema hvað takast kann. að afnema kongsbænadaginn, sem mun eiga formælendur fáa. Þá er og að minnast á stjórnarfrv. um almannafrið á helgidögum þjóðkirkjunnar, er klerkum þykir taka til sín, og mun hæpið, að það komizt klakklaust gegn um efri deild, þótt neðri deildin fallist áþað; 5 manna nefnd hefir verið skipuð til að íhuga þetta mál og næsta mál á undan. Náttúrufræðisfélagið. Nýlega er kom- in á prent „skýrsla um hið íslenzka nátt- úrufræðisfélag árið 1892“, og lýsir formað- urinn. hr. Ben. Gröndal. ástandi félagsins eigi sem glæsilegast; um marga af þeim, sem félagsmenn gjörðust á stofnunarfund- inum, er svo að sjá, sem þeir séu algjör- lega tíndir; um þá „vitum vér ekkert, hvar eru“, segir í skýrslunni, og félagstil- lög hefir auðvitað reynzt ómögulegt að fá frá þessum tíndu félagsmönnum; það er og enn ein afleiðingin af því, að hjörðin er öll á víð og dreif, að ekkert gagnar að hóa henni saman; fundir hafa eigi orðið haldnir í 2 — 3 ár, og þeir, sem síðast voru kjörnir í stjórn félagsins, eru allir oltnir úr sessi, eða farnir frá stjórn, nema hr. Ben. Gr. einn, sem hefir „slegið sér upp“ sem óbundinn einvaldsherra í félaginu. En síðan hr. Ben. Gr. tók einveldið, hefir félagið þó dafnað all vel, og eignazt ýmsa náttúrugripi, og það er í rauninni eiuvalds-stjórn hans og tryggð við íélagið að þakka, að félagið ekki er liðið undir lok, en hefir staðið af sér allar stjórn- byltingarnar. Ben. Gr. liefir nú sótt til alþiugis um 600 kr. árlegan styrk handa félaginu, til þess að geta lialdið stjórn sinni áfram, og kom- ið á þeim umbótum í ríki sínu, er honum þykja bráð-nauðsynlegastar. Ágrip af undirbúningsfundi undir alþingri aö H’óskuldsstöðum í llreiðdal 2 júuí 1893. Árið 1893, 2. dag júním., var af þing- mönnum Suður-Múlasýsla og kaldinn fundur að Höskuldsstöðum í Breiðdal til undirbúnings undir alþingi. Var fund- arstjóri kosinn Sigurður prófastur Gunn- arsson, en skrifari Jón prestur Finnsson. Voru þá tekin til umræðu þessi mál: 1. Stjórnarskrármálið: í því máli var borin upp svo látandi tillaga: „Fundurinn skorar á alþingi að halda stjórnarskrármálinu hiklaust fram á sama grundvelli, og í sömu stefnu, sem frumvarp neðri deildar alþingis fór 1891“. Samþykkt í einu hljóði. 2. Samgöngumálið. Svolátandi tiilögur samþykktar: a, viðvíkjandi samgöngum á sjó: „Fund- urinn skorar á alþingi, að það finni sem hentugast ráð til að bæta úr samr göngum á sjó, sem hann álítur vera

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.