Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 20.07.1893, Qupperneq 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 20.07.1893, Qupperneq 1
Verð ftrgangsinB (minnst 30 arka) 3 kr.; í Ameríku 1 doll. Borgist fyrir júni- mánaðarlok. PJOÐVILJINN UNGI. -■ 1= A NNAR ÁRGANGUR. ^=|- - - -«>«—Ritstjóri SKÚLI THORODDSEN cand. jur. t— Uppsögn skrifleg, ðgild nema kominn sé til útgef- anda fyrir 30. dag júní- mánaðar. M 20. REYKJAVÍK, 20. JÚLÍ. 1893. Á aö aftiema læknaskólann? Það er híllf-óviðkunnanlegt, að það skuli vera fyrsti sýnilegi ávöxturinn af ferðastyrk þeim, er alþingi 1891 veitti héraðslækni Ásgeiri Blöndal, að hann í 38. nr. „ísafoldar“ þ. á. ræður til að af- nema læknaskólann. Það er að vísu skiljanlegt, að hr. Ásg. Blöndal hafi fundizt til um það, er hann bar saman læknakennsluna hér á landi og erlendis, hve ófullkominn spítalinn i Reykjavík er, og hve ófullnægjandi sú kennsla i verklegri læknisfræði hlýtur að vera, sem hér á landi er auðið að láta í té. En þegar hann hefir komizt að þeirri niðurstöðu, að réttast væri, að leggja lækna- skólann niður, virðist oss, að hann hafi látið tilfinninguna, fremur en hyggindi, ráða. Eða hafa menn gleymt því, hvernig á- statt var hér á landi, áður en lækna- kennslan komst hér á fót, þegar ekkivar auðíð að fá innlenda lækna í þau fáu læknishéruð, sem hér voru þá? Yissulega stóðu þó háskóladyrnar ís- lendingum opnar, eigi síður þá, en nú. En nú, þegar lækuahéruðin eru orðin margfalt fleiri, og fara fjölgandi ár frá ári, þá á háskólinn að vera oss íslend- ingum einhlýtur, og læknaskólann á að afnema sem óþarfa stofnun. Hjaltalín heitinn landlæknir barðist fyr- ir því með djörfung og dug megin part lífs síns, að koma innlendri læknakennslu á fót, með því að hann sá, að læknaskip- un landsins myndi ella eigi komast í við- unanlegt horf; en nú er svo að sjá, sem þetta lífs starf lians þyki verið hafa van- hyggjuverk. Og í stað þess, að láta læknaskólann þróast og þroskast sem bezt, þá á nú al- þingi, eptir þessari kenningu, að fara að leggja fram fé, til þess að styrkja ísl. stúdenta við háskólann í Höfn. En það er vonandi, að alþingi verði aldrei svo skipað, að það taki upp annað eins óheillaráð; og oss furðar það stórum, að „Fjallk." skuli gjörzt hafa formælandi jafn fávislegrar tillögu. Það er ekki nóg með það, að styrkur sá, er landssjóður yrði þá að leggja lækna- efnum við Kaupmannahafnar háskóla, hlyti að verða töluvert meiri, en fé það, sem landssjóður leggur læknaskólanum, heldur er og sú áhættan, að meiri eða minni hluta af styrk þessum yrði í reyndinni svo sem kastað á glæ. Vér þekkjum flestir þau áhrif, sem há- skólavistin hefir á islenzka námsmenn, og að vanhöldin þaðan eru hvorki óþekkt né fá. En þó að vér sláum striki yfir þessa hlið málsins, sem þó er eigi þýðingarlítil, hver er þá tryggingin fyrir því, að þeir, sem prófi ljúka í læknisfræði við háskól- ann í Höfn, muni leita til íslands, en ekki ílengjast erlendis? Læknisembættin hér á landi þykja þó ekkl það keppi-keflið, að menn geti al- mennt gjört sér vísar vonir um, að þeir, sem tekið hafa háskólapróf, muni sækjast eptir þessum embættum. En eigi að fara að auka laun lækna i því skyni, ætli þeir færu þá ekki að verða dýru verði keyptir, læknarnir, sem hingað fengjust frá háskólanum í Höfn? Jú; það er enginn efi á því, að ef látið væri að orðum þeirra, sem afnema vilja læknaskólann, myndi það ekki að eins auka landinu all-mikinn kostnað, heldur myndi og læknaþörfin innan skamms knýja oss aptur, til að endur-reisa hann. Vér verðum því í þessu máli, sem öðrum, að sníða oss stakk eptir vexti, og láta 08s lynda, þó að vér eigi getum átt kost jafn lærðra ogfullkominna lækna í öll lækna-umdæmin, eins og aðrar stærri og auðugri þjóðir. Læknaskólinn hefir þegar unnið þjóð vorri all-mikið gagn, og það er honum að þakka, að læknaskipunarmáli voru hefir mikið þokað áfram. Það væri hringlandaháttur, að ætla sér nú að afnema hann. í Parísarblaðinu „Le Monde économi- que“ kom út grein 10. júní síðastl. um íslenzka bankann. í grein þessari átti ritstjórnin ekki annað, en fyrirsögnina: „Eins dæmis banki“, og þarf hún engrar skýringar. Um bankann er þar sagt, að honum sé komið fyrir á gagngert skyn- samlegan hátt. Engar ástæður færðar. öreinin stutt og „overfladisk". Rækilegt svar fékk ritstjórnin frá mér 15. júní. Höfundurinn, sem hefir sagt mér íil sín sjálfur, er danskur maður, N. C. Freder- riksen1, alkunnur maður í Danmörku og á Norðurlöndum fyrir framkvæmdir sínar, svo sem bankari, og þá eigi síður svo í Bandaríkjunum. Þeir munu vera til á ís- landi, sem kannast við manninn og fín- anzsögu hans. G-ratulera með formælandanum! Cambridge, 5. júlí 1893. Eiríkur Magnússon. Útlendar fréttir. Með gufuskipinu „Stamford“, er hingað kom frá Englandi 18. júlí, bárust þessar fréttir helztar: Kosningarnar til þýzha ríkisþingsins fóru svo, að Caprivi telur herlaga frv. sínu borgið; býst hann við að hafa 10— 25 atkv. meira, en andvígis-flokkurinn. — Ríkisþingið var sett i Berlín 4. júlí, og flutti VilhjáJmur keisari þá ræðu, og kvaðst vona, að þingið hraðaði herlögunum, sem mest mætti verða, enda gæti Þýzkaland því að eins notið friðar til langframa, að heraíii þess stæði eigi að baki herafla ná- granna þjóðanna. Á þingi Breta standa enn yfir harðar umræður um írska málið, og hafa sumir þingfundirnir orðið ærið hávaðasamir. — 6. júlí gekk hertoginn af York, sem næst- ur er til ríkis eptir prinzinn af Wales, að eiga heitmey sína, Maríu af Teck, og var þá mikið um dýrðir. — 4. júlí kviknaði í koianámu í Thornhill í Yorkshire á Eng- landi, og var talið, að þar myndu hafa látizt yfir 100 manns. 1) N. C. Frederiksen för á höfuðið með seðil- banka í Danmörku fyrir 16—17 árum; síðan för hann til Ameríku, byrjaði þar á sama leiknum apt- ur, en leitaði þaðan í hitt eð fyrra, og dvelur nú í London. E. M.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.