Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 28.10.1893, Blaðsíða 2
2
ÞjÓðvil.ji.vn xjngh.
\riðkomustaðir innlenda
strandferðaskipsins („Randulff’s skips-
ins“), sem veittur er styrkur til í fjár-
lögunum fyrir næstk. tvó ár, þykja eigi
alls staðar, né að öllu leyti, hafa verið
sem heppilegast ákveðnar af alþingi.
Dalamenn eru t. d. sár-óánægðir yfir
því, að Skarðsstöð er sleppt á áætlun-
inni; Dýrfirðingar hefðu sumir kosið, að
skipið hefði komið við í Haukadal o. s.
frv.
En það er varla við því að búast, að
allir fái óskir sínar uppfylltar í fyrstu.
Tíminn og reynslan kennir mónnum
brátt, hvemig ferðunum verði haganleg-
ast fyrir komið, hvar flutningaþórfin sé
mest o. s. frv.
Vonandi er, að landsmenn hagnýti
sér nú sem bezt og hyggilegast hinar
auknu strandferðir, svo að allar hrak-
spár um það, að ísland sé svo frábrugð-
ið öðrum lóndum, að það þarfnist ekki
góðra samgangna, falli til jarðar.
Þess fremur verður og auðið, að bæta
sem fyrst úr þvi, sem ábótavant kann
að þykja.
XJppmselin«f
H vammsfjarðar.
—:o:—
Svo er að heyra, sem fjárveiting al-
þingis, til að mæla innsiglingu á Hvamms-
fjórð, hafi mælzt mjóg vel fyrir, og að
Dalamenn muni síður en ekki telja ept-
ir, að leggja fram fé það, sem til vantar.
Um þetta efni skrifar merkur bóndi
i Dalasýslu oss 3. þ. m., sem hér segir:
„Mikið erum vér Dalamenn þinginu, og
sérstaklega þingmanni vorum, séra Jens
Pálssyni, þakklátir fyrir fjárstyrkinn til upp-
mælingar á Hvammsflrði, þvi að það má beita
stór-nauðsynja-mál fyrir þetta hérað, að
glögg skipaleið f'áist inn fjörðinn, og að
verzlun komist þar á fót; mér finnst það
ekki nema náttúrlegt, þó að sýslan leggi
nokkuð fé fram í þessu skyni; það sannast,
að það fé borgar sig margfaldlega.11
Vonandi er að, stjórnin sjái svo um,
að uppmæling þessi geti fram farið á
komanda sumri.
Lán til þilBkipakaupa.
Eins og getið var um í 22. nr. II. árg.
„Þjóðv. unga“, samþykkti alþingi í sum-
ar, að veita mætti á næsta fjárhagstíma-
bili allt að 40 þús. króna lán úr lands-
sjóði til þilskipakaupa, og á lán þetta
að ávaxtast og endurborgast með 6 áf
hundraði árlega á 28 árurn
Vestfirðingar, sem kynnu að vilja fá
sér þilskip til fiskiveiða, ættu að nota
þetta tækifæri, með þvi að lánkjör þessi
mega teljast all ákjósanleg, eptir þvi sem
hér á landi er um að gera.
-----K3©i----
HJÓNABANDIÐ STYÐUR AD LANGLÍFI.
Skozkur vfsindamaður, dr. Stark að nafni, bef'-
ir ný skeð fært rök að því, að giptir menn
verði langlffari, en hinir, sem ógiptir eru.
Árið 1853 var safnað skýrslum um þetta efni á
Frakklandi, og taldist þá svo til, að af ókvong-
uðum mönnum, milli tvitugs og þrítugs. dæju
áð meðaltali 11 af 1000 á ári, en af kvonguð-
um mönnum á sama aldri að eins rúmlega 6
af þúsundi. Sams konar skýi-slum var og safn-
að á Skotlandi árin 1863—64, og yarð þar líkt
ofan á; af ókvonguðum mönnum taldist svo til,
að þar dæju 15 af þúsundi árlega, en af kvong-
uðum mönnum að eins kringum 7 af þúsundi.
Dr. Stark kveðst sannfærður um, að það sé
skaðlegra lifi og lieilsu manna, að lifa sem pip-
arsveinn, eða piparjómfrú, heldur en að stunda
óheilnæma atvinnu, eða hafa ill og óholl húsa-
kynni.
LÆKNAR í KlNA. Svo er að ráða, sem
líflæknum keisarans i Kína sé fremur vand-
lifað, þvi að í vetur er var, voru fjórir þeirra
sviptir heils árs launum, af þvf þeir voru í vafa
um, hvaða vesöld það væri, sem að keisai'an-
um gekk.____________________
HÁ RITLAUN. Bennett, eigandi blaðsins
„New-York Herald“, hefir borgaö frakknezka
skáldinu Zola 18 þús. krónur fyrir það, að
mega hirta nýjustu skáldsögu hans í blaði sínu,
áður en hún verði gefin út í Frakklandi.
BÓKSALI FRÁ JAPAN, Sabio Ohashi að
nafni, var á skemmtiferð um Evrópu i sumar;
hann gefur út 10 dagblöð í Japan, og er eitt
þeirra sérstaklega ætlað börnum, og upplag þess
um 80 þús eintök. í prentsmiðjum hans starfa
daglega 5600 menn.
FLJÓT TIMGUN. Það er furða, hve sumar
„bakteriu“—tegundir, er drepsóttum valda, geta
fjölgað fljótt; ef „baktorían" hittir á þau efni,
sem hún þrifst vel í, hlutast hún vonum bráð-
ar i tvennt, og hvor parturinn hlutast svo apt-
ur f tvennt o. s. frv. koll af kolli, svo að ept-
ir sólarhring telja menn, að fjöldi þessara smá-
kvikinda geti numið 16V, miljón.
BLÖÐ Á STÓRBRETALANDI. 1 ár eru
gefin út á Stórbretalandi 2268 blöð, og af þess-
um blaðasæg koma 192 blöð út á hverjnm
degi, og sum enda tvisvar á dag.
Hve mjög blöðum hefir fjölgað á Stórbreta-
landi á síðustu árum, má sjá af þvi, að árið
III, 1.
1S46 var blaðatalán að eins 551, og af þeim
voru að eins 14 blöð gefín út á hverjum degi.
ALDUR JARÐARINNAR. Clarence King,
frægur jarðfræðingur í Ameriku,hélt nýlega fyr-
irlestnr um aldur jarðarinnar, og taldi líklegt, að
jörðin myndi þegar vera orðin nálega 24 milj,
ára gömul.
ÁHRIF RAFURMAGNSLJÓSSINS. Monn
hafa voitt þvi eptirtekt, að verkamenn, sem
starfa við rafurmagnsljós, hafa stundum fengið
aðsvif, er líkjast sólsting; en sem betur fer, er
þetta þó fremur sjaldgæft, og ekki eins hættu-
legt, eins og sólstingur.
Kunningi vor, ritstjóri „ísafold-
ar“, hefir líkast til haldið, að vér mynd-
um hafa lítið blaða-efnið, þegar vér kæm-
um hingað vestur, á þennan útkjálka
landsins, því að 2. okt. þ. á., daginn áður
en vér kvöddum höfuðborgina í haust,
var hann svo hugulsamur, að senda oss
þrjá greinarstúfa, hvorki fleiri né færri,
er hann meira að segja þykist eiga heimt-
ingu á, að birtir séu í blaði voru „sam-
kvæmt 11. gr. tilsk. um prentfrelsi 9.
maí 1853“!!!
En það er hvorttveggja, að vér erum
í engri efnis-þróng, og þórfnumst því
einskis „eyðufyllis“, enda höfum vér og
aldrei svo langt i lagavitið stígið, að
vór hófum lært að þekkja þessa prent-
frelsis-tilskipun, sem ritstjórinn byggir
rétt sinn á.
Það er því í stuttu máli bróður vor-
um Bimi að segja, að greinar hans verða
éklci teknar í blaðið; en gjama megum
vér gefa honum heilræði, ekki síður en
öðrum náungum, er þess virðast þurf-
andi.
Og þetta heilræði vort er þá það, að
hann auki enn einu árinu við laganám-
ið sitt, þó að lang-róið væri forðum, svo
að ekki flaski hann á því í annað skipt-
ið, hvenær prentfrelsis-tilskipunin er út
gefin, og að hann kynni sér þá rækilega
11. greinina, því að ekki efum vér það þá,
að hann sjái það sjálfur, maðurinn, að ofan-
nefndar þrjár greinar hans eru svo ólögu-
lega úr garði gerðar, að hann á a 11 s
enga heimtingu á því, að þær verði tekn-
ar í blaðið.
---—
Skepnudauði af hval-áti‘?
Eins og skýrt er frá á óðrum stað í
blaði þessu, hefir enn orðið fjárdauði